Skip to main content

4. tbl. 2011

Page 1

Eystrahorn Fimmtudagur 27. janúar 2011

4. tbl. 29. árgangur

www.eystrahorn.is

Landsliðsþjálfarar í heimsókn Landsliðsþjálfararnir, Ólafur Jóhannesson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson í knattspyrnu voru í heimsókn á Hornafirði í síðustu viku. Mikil ánægja var með heimsókn þeirra bæði, hvað varðar æfingarnar sem þeir tóku með knattspyrnufólkinu og sömuleiðis opnum fyrirlestrum í Nýheimum um árangur sem Sigurður Ragnar flutti. Þeir félagar komu líka færandi hendi og afhentu 20 bolta að gjöf frá knattspyrnusambandinu. Sigurður Ragnar sagði þetta um heimsóknina; Ég vil bara koma á framfæri kveðjum til Hornfirðinga og allra þeirra sem tóku svona vel á móti okkur hjá Sindra. Það var reglulega gaman að kíkja í heimsókn og heiður að fá að stjórna æfingum hjá 3. flokki og meistaraflokki kvenna. Þar eru margir framtíðarleikmenn. Við fengum höfðinglegar móttökur hvert sem við fórum og vonum að við höfum haft jákvæð áhrif á frábært uppbyggingarstarf Sindra. Það

er magnað hvað Sindri hefur skilað af sér mörgum góðum knattspyrnukonum í gegnum tíðina sem hafa leikið í efstu deild og fyrir A-landslið kvenna. Það verður spennandi að fylgjast með þessum framtíðarleikmönnum næstu árin.“ Og Ólafur bætti við; „Heimsóknin var upplífgandi fyrir mig. Mér finnst alltaf mjög gaman að sækja heim félög úti á landi og sjá hvernig þau búa að knattspyrnunni af miklum metnaði þótt fámenn séu. Á Höfn hefur aðstaðan gjörbreyst með tilkomu mjög góðs gervigrass, sérstaklega yfir vetrartímann. Á æfingu með meistaraflokki karla mátti sjá marga efnilega stráka ásamt nokkrum reynsluboltum. Það verður spennandi að fylgjast með gengi Sindra í sumar. Aðstaðan mun svo að sjálfsögðu skila sér í enn betra knattspyrnufólki í framtíðinni. Ég sendi Sindramönnum þakkir fyrir heimboðið og frábærar móttökur.”

3. flokkur karla og kvenna ásamt landsliðsþjálfurum og þjálfurum Sindra.

Sigurður Ragnar og Ólafur landsliðsþjálfarar afhenda Maríu Selmu og Þorláki Helga 20 bolta frá KSÍ til Sindra.

Slysavarnir

Heitt og blautt þorrablót

Ester Þorvaldsdóttir og Hjalti Þór Vignisson taka við gjöfunum úr hendi Ingu Kristínar Sveinbjörnsdóttur formanns og Lindu Hermannsdóttur. Aðrar Slysavarnakonur á myndinni eru Fjóla Jóhannsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Sigríður Lárusdóttir og Jóhanna Stígsdóttir.

Fólk finnur upp á ýmsu til að halda uppá á bóndadaginn og bjóða Þorra velkominn. Eins og sjá má á myndinni hafa nokkrir hressir karlar, sem heimsækja sundlaugina daglega, tekið uppá þeim sið að halda „auka þorrablót“ í sundlauginni. Maturinn smakkaðist vel að sögn Mica sem skipulagði uppákomuna að þessu sinni. Hann bætti við að þessi siður sé kominn til að vera og Torfi Friðfinnsson hafi verið skipaður blótsstjóri fyrir næsta ár. Svo er bara að sjá hvort uppátækið fjölgi sundlaugargestum.

Slysavarnadeildin Framtíðin var með opið hús þriðjudaginn 18 janúar sl. sem og aðrar deildir um land allt. Af þessu tilefni afhenti deildin ungbarnaeftirliti heilsugæslunnar 40 stk. af fingravinum. Fingravinur er settur í hurðafals til að hindra að hurðin lokist og kemur þannig í veg fyrir að börn klemmi sig. Ungbarnaeftirlitið afhendir síðan nýjum Hornfirðingi einn fingravin við fyrstu ungbarnaskoðun. Einnig afhenti deildin bæjarfélaginu sjúkratösku sem verður staðsett á nýja gerfigrasvellinum. Innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar starfa öflugar slysavarnadeildir sem hafa það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir slys ásamt því að styðja við björgunarsveitir á sínu svæði. Starf þessara deilda á sér langa sögu og hefur þróast í áranna rás. Fjölmörg ný verkefni hafa komið til s.s. öryggisbúnaður barna í bílum, öryggi eldri borgara á heimilum, afhending endurskinsmerkja til barna, könnun á hjálmanotkun barna, öryggi á heimilum skoðað og svona mætti lengi týna til. Í stuttu máli má segja að ekkert viðkomandi slysavörnum sé deildunum óviðkomandi.


2

Fimmtudagur 27. janúar 2011

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu

Ástríðar Oddbergsdóttur

Eystrahorn

Andlát Gunnar Valur Hermannsson

Höfn í Hornafirði.

Sérstakar þakkir til starfsfólks HSSA fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Ásdís Marteinsdóttir, Hrollaugur Marteinsson, Anna Elín Marteinsdóttir, og aðrir aðstandendur

Þorrablót Suðursveitar og Mýra

verður haldið þann 5. febrúar í Hrollaugsstöðum Miðapantanir í síma 894-1826 og 861-8470 Miðaverð: 5000 kr

Nefndin

Breytingar í rekstri Frá laugardeginum 5. febrúar mun verslunin Blóm & Bróderí ekki lengur versla með blóm og gjafavöru. Frá þeim tíma munu Hornfirðingar geta leitað eftir blómaþjónustu til Húsasmiðjunnar/Blómavals á Hornafirði. Við þökkum af alhug þau blómaviðskipti sem þið hafið átt við okkur á undanförnum árum. Útsala á gjafavöru hefst fimmtudaginn 27.janúar. Í kjölfar þessarra breytinga mun verslunin fá nýtt nafn. Opnunartími frá og með 7.febrúar verður frá 10-18 virka daga og 13-16 laugardaga. Kveðja Hafdís og Gunnhildur

Ár uppbyggingar! Vinstrihreyfingin - grænt framboð boðar til félags- og opinna stjórnmálafunda um land allt í janúar. Við verðum á Höfn í Hornafirði, í Pakkhúsinu, sunnudaginn 30. janúar. Félagsfundur Svæðisfélag VG í Hornafirði boðar til félagsfundar kl. 15:30. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, fjallar um flokksstarfið og stjórnmálin í dag. Opinn stjórnmálafundur Almennur stjórnmálafundur með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra kl. 16:30. Staðan í íslenskum stjórnmálum og verkefnin framundan.

Vinstrihreyfingin grænt framboð

Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: . ............ albert@eystrahorn.is Prófarkalestur:.... Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:......... Maríus Sævarsson Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Aðstoð:................. Ásta Ásgeirsdóttir Prentun: ............. Leturprent ISSN 1670-4126

Íslandsmeistaramótið verður á Höfninni við Geirsgötu föstudaginn 4. febrúar kl. 20:00.

Gunnar Valur Hermannsson fæddist í Suðurhúsum í suðursveit 15. nóvember 1942. hann andaðist á hjúkrunarheimilinu á Höfn í Hornafirði 11. janúar 2011. Foreldrar hans voru Hermann Eyjólfsson frá Hestgerði í suðursveit, f. 1916, d. 2003 og Hulda Sigurðardóttir frá Króki í Suðursveit f. 1915, d. 1989. Gunnar var þriðji í röð 5 systkina, þau eru Sigþór Valdimar f. 1938, Gísli Eymundur f. 1941, Erla Sigríður f.1945, Guðni Þór f. 1954. Gunnar flutti til Hafnar árið 1945 með foreldrum sínum og systkinum ólst þar upp og bjó alla tíð. Hinn 17.06. 1964 kvæntist Gunnar, Birnu Þórkötlu Skarphéðinsdóttur f. 07.09. 1946, frá Reykjavík. Foreldrar hennar voru Skarphéðinn Þorkelsson læknir og Lára Sesselja Björnsdóttir frá Reykjavík. Börn Gunnars og Birnu eru 1) Bragi Hermann f. 28.04. 1965 maki Natalja Gunnarsson f. 1972 barn þeirra Sonja Francheska , börn Braga Gyða Rós, Gunnþóra Rut, Gígja Rebekka, Gunnar Valur, Dimitri Victor. 2) Sæmundur Skarphéðinn f. 28.04. 1965 maki Guðrún Halla Einarsdóttir f. 1965 börn Sæmundar Birna Þórkatla, Gunnar Már, Elías Kristinn, fóstursynir Þorsteinn Rúnar, Stefnir, Mjölnir. 3) Ólöf Kristjana f. 26.11. 1966 maki Benedikt Helgi Sigfússon f. 1963 börn Sigfús Gunnar, Stefanía Ósk, Halldóra Sigríður, Ásgeir Björn, María Hrönn. 4) Hulda Valdís f. 25.02. 1974 maki Jón Garðar Bjarnason f. 1970 börn Bjarni Friðrik, Elísa Ösp, Daníel Snær. 5) Matthildur Birna f. 02.09. 1984 maki Gunnar Kristófer Kristinsson

f. 1978. Barn þeirra Dagný Kristín, fósturbörn Kristinn Gamalíel, Sigurður Vigfús, Bryndís Laufey, Jónína Þórunn. Barnabarnabörn Gunnars og Birnu eru 9 talsins. Gunnar Hermannsson var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að hjálpa til við saltfiskverkun hjá KASK. Hann var sennilega 8 ára gamall þegar hann var að aðstoða verkafólkið að breiða úr saltfisk á Fiskhólnum. Seinna vann hann sumarstörf hjá mjólkursamlagi KASK á aldrinum 15-16 ára. Gunnar hóf síðan störf hjá frystihúsi KASK um áramótin 1957-1958 og vann þar fram í maí 1963 þegar hann tók sér frí frá KASK og vann á Stokksnesi í eitt ár. Eftir það kom hann aftur til starfa í frystihúsið og var þar í nokkra mánuði, eða þar til hann var færður í pakkhúsið hjá kaupfélaginu í september árið 1964 og þar vann hann óslitið til ársins 1970 þegar starfsemin var flutt út í Álaugarey. Gunnar var í forsvari fyrir skipaafgreiðslu KASK og fóðurvörudeild í Álaugarey og síðar í flutningadeild KASK. Þann 21. október 1982 tók hann við sem deildarstjóri byggingavörudeildar KASK og starfaði fyrir kaupfélagið fram á mitt ár 2006 þegar Húsasmiðjan tók við rekstri byggingavörudeildarinnar. Gunnar fylgdi með yfir til Húsasmiðjunnar og starfaði þar sem verlsunarstjóri fram á mitt ár 2008 þegar hann að eigin ósk hætti sem verslunarstjóri, en vann áfram hjá Húsamiðjunni við afgreiðslu þar til veikindin gerðu vart við sig seinni hluta árs 2010. Starfsferill Gunnars hjá Kaupfélagi Austur-skaftfellinga spannar næstum hálfa öld. Hann var forstöðumaður/deildarstjóri í 35 ár, fyrst var hann í forsvari fyrir skipaafgreiðslu og flutningadeild KASK í 12 ár og síðan sem deildastrjóri byggingavörudeildar í 23 ár. Útför Gunnars fór fram frá Hafnarkirkju þriðjudaginn 18.janúar. Fjölskyldan vill koma á framfæri góðum kveðjum, með innilegu þakklæti fyrir hlýhug og auðsýnda samúð.


Eystrahorn

Fimmtudagur 27. janúar 2011

Tipphornið Ja hérna, þær sleppa nú ekki takinu á tippinu stelpurnar hjá Póstinum en þær lögðu skvísurnar hjá Krakkakoti 8 -7 og skora nú á þá Ingólf og Hjört hjá Rafteymi. Við skulum kíkja á það og sjá hverning fer! Pósturinn 1. Southampton -Man.Utd. 2 2. Birmingham-Coventry 12 3. Bolton -Wigan 1 4. Sheff.Wed -Hereford 1 5. Stevenage-Reading 12 6. Torquay -Crawley Town 1 7. Watford -Brighton 1 8. Wolves -Stoke 12 9. Burnley -Burton Albion 1x2 10. Crystal Palace -Norwich 1 11. Hull -Q.P.R 1x2 12. Scunthorpe-Preston 1x2 13. Plymouth -Bournemouth 1

Rafteymi 2 1x 1 1 x2 1x2 x2 1 1 1x2 1 1 1x2

Rúm og dýnur í öllum stærðum og gerðum Úrval af fallegum skartgripum

Húsgagnaval

3

Starf í Sundlaug Hafnar Vantar starfskraft í sundlaugina. Vaktavinna. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1.júní 2011. Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára og helst að hafa lokið skyndihjálparnámskeiði. Laun samkvæmt samningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu þess, hornafjordur. is. Einnig má skila inn rafrænt á netfangið haukur@hornafjordur.is. Skila ber umsóknum fyrir 5. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Haukur Helgi Þorvaldsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 470 8000

Þorrablót

Nesja- og Lónmanna

verður haldið í Mánagarði laugardaginn 29. janúar

Opið 13 - 18 virka daga 13 - 15 laugardaga

Minnum á forsölu aðgöngumiða fimmtudaginn 27. janúar og föstudaginn 28. janúar kl 19:00 21:00 báða dagana Einnig er hægt að panta miða í síma 846-5226 (Heiða) og 867-7416 (Fríða)

ÍSLENSK ULL - TIL SÖLU

Miðaverð kr: 5.000,-

Léttlopi, plötulopi, einband ofl. til sölu í töluverðu magni. Fer á mjög góðu verði. Á sama stað, prjónað ullarefni, 2000 kr meterinn. Guðrún, sími 867-6604

Ekki verður selt sér inn á dansleikinn eftir borðhald

Nefndin

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911 Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901 Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

@VjekVc\jg ' Æ ,%% :\^ahhiVÂ^g Æ H b^ *-% ,.%* Æ ;Vm *-% ,.%& www.inni.is =V[cVgWgVji &* Æ ,-% = [c Æ H b^ *-% ,.&* Æ ;Vm *-% ,.&&

FÉLAG FASTEIGNASALA

lll#^cc^#^h Æ ^cc^5^cc^#^h

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Sigríður Kristinsdóttir, lögmaður

Austurbraut

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari s. 580 7908

Nýtt á skrá

Fallegt og vel við haldið 137,3 m² einbýlishús ásamt 44,9 m² bílskúr, samtals 182,2 m² 3 - 4 svefnherbergi, garðhús, verönd með skjólveggjum og heitum potti.

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali s. 580 7916

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali s. 580 7907

Hafnarkirkja

sunnudaginn 30. janúar Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00. Sóknarprestur

Vogabraut

Vel skipulagt 142,5 m² einbýlishús ásamt 41 m², bílskúr, alls 183,5 m², 4 svefnherb. nýtt og stærra baðherbergi..

Víkurbraut

Fullbúið 66,9 m² atvinnuhúsnæði á 1. hæð á góðum stað. Hentar í ýmsan rekstur,sér inngangur.

Mömmumorgnar alla miðvikudaga kl. 10:00.


markhonnun.is

SHARWOODS SÓSUR

Tikka masala Sweet & sour Saag Masala Madras Kung Po Korma Hoi-Sin Balti

20 % afsláttur

279

kr/stk. áður 349 kr/stk.

Nú er frost á fróni… 2,5 L Í FÖTU

25% afsláttur

1.949

ÞORRABAKKI

25% afsláttur

1.162

kr/ds. áður 2.598 kr/ds.

kr/kg áður 1.798 kr/kg

GULRÓFUR

25%

50%

afsláttur

1.274

kr/kg áður 1.698 kr/kg

HRÚTSPUNGAR SÚRIR

NÝ

1.528

kr/pk. áður 1.549 kr/pk.

MAGÁLL

SVIÐASULTA

KJÚKLINGAVÆNGIR HOT EÐA BBQ FRYSTIVARA

afsláttur

398

99

kr/pk. áður 689 kr/pk.

kr/kg áður 198 kr/kg

SÚRMATUR 700 G

20%

FERSK GRÍSAMÍNÚTUSTEIK

kr/kg áður 1.998 kr/kg

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is

1.198

kr/ds. áður 1.498 kr/ds.

Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær

40%

afsláttur

afsláttur

1.798

42%

afsláttur

1.139

Birtist með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl

ÞORRAMATUR

kr/kg áður 1.898 kr/kg Tilboðin gilda 27. - 30. jan. eða meðan birgðir endast


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
4. tbl. 2011 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu