Eystrahorn Fimmtudagur 9. desember 2010
45. tbl. 28. รกrgangur
www.eystrahorn.is
ร aรฐventu Nรบ er lรกgt รก lofti sรณl, lengist nรณttin svarta en brรกรฐum heilsa heilรถg jรณl meรฐ helgiljรณmann bjarta.
ร aรฐ รก vel viรฐ aรฐ birta รพessa vรญsu hรฉr aรฐ ofan. Vรญsan er รบr bรณkinni Undir breรฐans fjรถllum - ljรณรฐ og lausavรญsur sem รบt kom รก รกrinu og er eftir ร orstein Jรณhannsson frรก Svรญnafelli รญ ร rรฆfum. Mynd: ร รฐinn Eymundsson
ร รฆtlunar๏ฌ ug
Leigu๏ฌ ug
Skipulagรฐar รฆvintรฝraferรฐir
Bรณkaรฐu flugiรฐ รก netinu ร dรฝrara รก ernir.is Verรฐ frรก 8.900 kr.
Jรณlapakkatilboรฐ
Allir jรณlapakkar undir 10 kรญlรณ aรฐeins 1.350 kr. hver sending
bรณkaรฐu flugiรฐ รก ernir.is
@aย Q @X R aย _a [ \QR[ aN @a R[ ย Q aN X_a\_a [aNaNaN X\ X\ QR aN R[ X\ _a_a @aย ย Q X\ _a @a R[ @aย Q Stรบdentakort @aย QR[aNX\_a @aย QR[aNX\_a @aย QR[aNX\_a 30% afslรกttur veittur viรฐ @aย @a Q R R[aN aNX\ _a [ X\ _a _a _a \ Xย Q aNX\ R[aN R[ Qย Q kaup รก stรบdentakorti @aย @a @aย QR[aNX\_a @aย QR[aNX\_a S_NZUNYQ` Us`Xย YN[ RZN Xย YN[RZN S_NZUNYQ` Us` 2: 39B4:6 6 46916? @2: 39B4 . ?. 7ย aYjYVaj g
HVjร {g`gย `jg
<_ย \jg
46916? @ 2 . 3?ร ' . ?. 926 A69 V GZn`_Vkย ` 5ย S[ ~ 5\_[NSV_
<_ย \jg
7ย aYjYVajg
HVjร {g`gย `jg
:6 6 926 @Nb s_X_ย XA69 2 . 3?ร ' V /~YQb
QNY 4Wย T_V S_NZUNYQ` Us`Xย YN[RZN =ย [c
=ย [c
GZn`_Vkย `
KZhibVcc VZn_Vg
46916? @2: 39B4:6 6
. ?. 926 A69 2 . 3?ร ' HVjร {g`gย `jg CR`aZN[[NRfWbZ
7ย aYjYVajg _Vg KZhibVccVZn
<_ย \jg
=ย [c
GZn`_Vkย `
KZhibVccVZn_Vg
2
Fimmtudagur 9. desember 2010
Eystrahorn
Bæjarstjórn ráðstafar 24 mkr í atvinnutengd verkefni Á fundi sínum þann 2. desember ákvað bæjarstjórn Hornafjarðar að ráðstafa 24 m.kr. í atvinnutengd verkefni. Verkefnið var unnið í góðri samvinnu allra framboða í bæjarráði og tók talsverðum breytingum frá því að málið var fyrst lagt fram. Fjármunir í verkefnið koma úr svokölluðu aukaframlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Undanfarin ár hefur aukaframlagið farið óskipt í sveitarsjóð og bætt þannig rekstrarstöðu sveitarfélagsins. Stærsti hluti af þessu framlagi er til kominn vegna íbúafækkunar og þess vegna vakti það strax spurningar um hvort ekki væri rétt að verja fjármunum til þess að reyna að sporna gegn þeirri þróun. Fyrir nokkrum árum úthlutaði þáverandi ríkisstjórn Íslands svokölluðum mótvægisaðgerðum til sveitarfélaga vegna niðurskurðar á þorskafla. Þá ákvað bæjarstjórn Hornafjarðar að ráðstafa þeirri upphæð að hluta til í atvinnumál. Stærsti hluti þess framlags fór
í að styrkja smáframleiðslu matvæla, kanna möguleika á atvinnuuppbyggingu í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð og til að kanna kosti á útflutningi á vatni úr héraðinu. Reynslan af þessu verkefni var góð. Fjölmargar vörur voru búnar til úr átakinu sem sneri að smáframleiðslu matvæla, hafin var þróun á fjallaferðaþjónustu í kjölfar umræðu um atvinnuuppbyggingu í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð og í undirbúningi er útflutningur á vatni með Rolf Johansen og Co. Það var því litið til þessarar reynslu þegar bæjarráð mótaði þá tillögu sem bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 2. desember. Hún er í sex liðum:
Danskt jólahlaðborð á laugardaginn
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að 14 m.kr. verði varið í að styrkja atvinnuog rannsóknasjóð sveitarfélagsins. Jafnframt því að styrkja sjóðinn er atvinnu – og menningarmálanefnd falið að gera tillögu að breytingum á sjóðnum þannig að hluti af árlegri úthlutun fari til eins eða tveggja stórra verkefna en hluti af sjóðnum fari til verkefna sem úthlutað verði lægri fjárhæðum. Unnið er að tillögum þessa dagana sem ræddar verða á fundi atvinnuog menningarmálanefndar þann 21. desember. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að 3 m.kr.verði varið í markaðs- og kynningarstarf. Hér er hugmyndin að leita eftir samstarfi við Ríki Vatnajökuls um verkefnið en nánari útfærsla á ráðstöfun þessara fjármuna er háð samþykki bæjarráðs. Í þriðja lagi er gert ráð fyrir að 2 m.kr. verði varið í að efla handverkstæði í kjallara Vöruhúss, þar sem handverksmenn, hönnuðir, og nemendur í framhaldsskóla
og grunnskóla geta nýtt sér. Leitað verður eftir samvinnu við grunnskólann, framhaldsskólann og handverksfólk og hönnuði hér á Hornafirði við útfærslu á verkefninu. Í fjórða lagi verða allt að 2 m.kr. varið til kaupa á ýmsum búnaði til fjallaferða, s.s. brodda, ísaxa, lína og rötunarbúnaðar. Framhaldsskólinn og Björgunarfélagið hafa nú þegar útfært þetta verkefni í samvinnu við bæjarfélagið og er það hugsað til að styðja við nám sem Framhaldsskólinn hefur sett á laggirnar. Í fimmta lagi er gert ráð fyrir að 2 m.kr. í rannsóknir á vegum Háskólasetursins á Hornafirði. Á vegum Háskólasetursins hafa verið unnin margvísleg verkefni í tengslum við umhverfismál, bókmenntir og ferðaþjónustu. Í sjötta lagi er gert ráð fyrir að leggja 1 m.kr. í að setja upp skilti við strandlengjuna. hjaltithor.blog.is
Opnunartími til jóla Laugardaginn Laugardaginn Þorláksmessu Aðfangadag
11. desember 18. desember 23. desember 24. desember
kl. 13:00 - 17:00 kl. 13:00 - 17:00 kl. 9:00 - 22:00 kl. 9:00 - 12:00
Greni, hyasintur, skreytiefni, kerti ofl. Cintamani nærfatnaður úr merino ull - frábær jólagjöf Jólablað Eystrahorns kemur út fimmtudaginn 16. desember.
Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: . ............ albert@eystrahorn.is Prófarkalestur:.... Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:......... Maríus Sævarsson Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Aðstoð:................. Ásta Ásgeirsdóttir Prentun: ............. Leturprent ISSN 1670-4126
Eystrahorn
Fimmtudagur 9. desember 2010
3
Vel lukkað hagyrðingamót
F.v. Ómar Ragnarsson, Torfhildur Torfadóttir, Halldór Þorsteinsson, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir og Reynir Ragnarsson.
Sjaldan hefur verið hlegið hærra og meira í Skaftfellingabúð en kvöldið 18. nóvember þegar fimm hagyrðingar fóru þar með sinn hnyttna kveðskap. Þetta voru Vestur-Skaftfellingarnir Heiða Guðný Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum og Reynir Ragnarsson í Vík og AusturSkaftfellingarnir Halldór Þorsteinsson frá Svínafelli og Torfhildur Torfadóttir á Gerði. Ómar Ragnarsson sem einnig á rætur að rekja í Skaftafellssýslur stjórnaði hópnum og lagði fram drjúgan skerf af skemmtiefni. Skáldin kynntu sig í bundnu máli og brugðu líka upp myndum af
hinum þátttakendunum, rifjuðu upp gömul kynni og reyndu að stofna til nýrra. Halldór var að hitta Heiðu í fyrsta skipti þennan dag og fékk mikið klapp í salnum er hann orti svo til hennar: Heiða, lítt um hagi þína háttalag og siði veit. Inn í líf þitt reyni að rýna, ég reyndar veit þú býrð í sveit. Heiða, þú ert laus og liðug, líkt er ástatt fyrir mér. Ég á hugmynd, hún er sniðug að heim á óðal fylgi þér. „Nú, þetta ætlar að hafa afleiðingar,“ sagði stjórnandinn Ómar og tók eitt af sínum
GJAFAVÖRUR, SKARTGRIPIR, MYNDARAMMAR Opið virka daga 10 - 18 og laugardaga 13-15 VERSLUN STEINGRÍMS, Skólabrú 2 Hafnarkirkja sunnudaginn 12. desember
Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00 Sóknarprestur
frægu bakföllum. Halldórs:
Tolla orti til
Reynir setti alla sýslubúa undir einn hatt er hann orti:
Sjáið vinir segginn þann sem mitt hlýtur lofið. Hjá skáldgyðjunni hefur hann held ég alltaf sofið.
Skýrt er sagt um Skaftfellinga þeir skoði vel sitt orðaval til loforða ei létt að þvinga en lofi þeir – það standa skal.
Meðal yrkisefna voru Skaftafellssýslurnar og munurinn á þeirri eystri og vestri og íbúum þeirra. Heiða rakti muninn aftur til sköpunarinnar og taldi almættið hafa komið úr vestri og haldið til austurs eins og þurrkurinn.
Eftir um tveggja tíma frábæra dagskrá með góðu kaffihléi tóku Kristinn Kjartansson og Stefán Bjarnason upp dragspilin og fylltu salinn ljúfum tónum meðan gestir bættu á sig kökum og aðrir kíktu á barinn. (www.skaft.is)
Fullkomið hreint allt hjá honum frá hæstu fjöllum í djúp svo var göslið algert á onum austan við Lómagnúp.
Óska eftir nettu sófasetti.
Upplýsingar í síma 8622926. Hrefna Magnúsar.
Jólagjöf sem nýtist Vorum að fá fallegar gjafaöskjur með sjampói og næringu frá Wella og Sebastian ásamt kaupauka Sléttujárn í öllum stærðum og gerðum, krulluburstar með blæstri og ferðarakvél fyrir herrann Sigrún hefur hafið störf aftur eftir fæðingarorlof.
Tímapantanir í síma 478-1780 Bjarnaneskirkja sunnudaginn 12. desember
Aðventukvöld kl. 20:00 Kórsöngur, hljóðfæraleikur Sigurður Einarsson flytur hugvekju Kaffi á Hótel Jökli (Nesjaskóla) eftir samkomuna. Komið og njótið notalegrar stundar á aðventunni
Sóknarprestur - Sóknarnefnd
Verið velkomin, Jóna, Ellý og Sigrún Hárstofunni Vesturbraut 2
4
Fimmtudagur 9. desember 2010
Jökullinn heillar Jökulsárlónið á Breiðamerkursandi og umhverfi þess er óþrjótandi viðfangsefni jafnt atvinnu- sem áhugaljósmyndara. Það er ánægjulegt að nú er að koma út önnur bókin á árinu eftir „heimafólk“ um þessa einstöku náttúruperlu. Hér á síðunni er sýnishorn úr bókinni og lék ritsjóra for vitni á að vita meira um höfundinn og tilurð bókarinnar. „Ég fæddist í Þýskalandi 1962. Fyrstu ferðina mína til Íslands fór ég 1981 og kom svo á hverju ári í tíu ár að undanskildu einu ári, 1986. Veturinn 1984/85 dvaldi ég hjá Ólafi Eggertssyni og Önnu Antóníusdóttur á Berunesi við Berufjörð. Eftir þessa dvöl fór ég í landbúnaðarháskóla í Þýskalandi og lauk þaðan prófi sem landbúnaðarverkfræðingur haustið 1991. Ég flutti svo í janúar 1992 til Íslands og hef verið búsettur hér síðan. Sumarið 1993 fék ég vinnu á Jökulsárlóni þar sem ég byrjaði að falla fyrir ísnum. Næstu 2 sumrin (´94 og ´95) vann ég þar og myndaði af áfergju. Að öðru leyti bjó ég í Reykjavík mest allan tímann og vann við leikmyndasmíði hjá Sviðsmyndum ehf. í 10 ár áður en ég tók við sem framkvæmdastjóri sama fyrirtækis árið 2005. Fljótlega eftir að við Regína kynntumst ákváðum við að stefna að því að flytja út á land sem allra
Eystrahorn
fyrst. Við sóttum bæði um á nokkrum stöðum en þegar Regína fékk þjóðgarðsvarðastöðuna haustið 2007 þurftum við ekki að hugsa okkur um. Strax í desember fluttum við austur í Skaftafell. Það var ljóst að mín beið ekki fullt starf í Öræfasveitinni þannig að ég fór að velta ýmsum verkefnum fyrir mér. Bókin um ís hefur lengi kraumað undir yfirborðinu en núna sá ég fram á að geta klárað hana. Ég stofnaði fyrirtækið Sjónarsker ehf. utan um bókina en ég fjármagna og gef hana út alfarið á eigin vegum og án utanaðkomandi styrkja. Ég vildi ráða alfarið sjálfur hvernig hún yrði og fékk gamla vinkonu, Petru Bachmann, sem er bókarhönnuður í Þýskalandi til að taka verkið að sér og hef ekki séð eftir því. Þegar bókin er komin út, mun ég að halda áfram með næsta verkefni sem ég byrjaði á fyrir ári síðan. Hugmyndin er að framleiða reyktar og loftþurrkaðar kjötvörur úr öræfsku ærkjöti og selja ferðamönnum í Skaftafelli. Þróunarvinnu er að mestu lokið en salan mun hefjast fyrir alvöru næsta sumar. Þegar sú vinnsla er komin í fastar skorður er aldrei að vita nema fleiri bækur líti dagsins ljós á næstu árum. Það er þetta frelsi, að geta gert það sem manni langar að gera, sem mér finnst ómetanlegt og gerir það svo eftirsóknarvert að búa “úti á landi”. Þetta eru að mínu mati raunveruleg lífsgæði sem eru því miður mjög svo vanmetin í dag. Það að geta skapað sér það líf sem maður langar til að lifa er jú það sem allir láta sig dreyma um.”
Eystrahorn
Fimmtudagur 9. desember 2010
5
Hjá okkur er mikið úrval í jólapakkann
Afmæli
Rúmföt • Handklæði Dúkar • Fatnaður • Skór Nýtt kortatímabil Opið kl. 13:00 - 16:00 á laugardaginn
Hann Guðjón Benediktsson verður 50 ára 26. desember. Af því tilefni langar hann að ættingjar og vinir komi og fagni með honum og þiggi léttar veitingar föstudaginn 10. desember kl. 20:00 í Mánagarði í Nesjum.
Verslun Dóru
It is perhaps this: The melting that we have wantonly made through our greed and waste should shock us into a new awareness of ice, of its place in the living whole – an awareness that might translate into new modes of being: less egocentric, more ecological. Eric G. Wilson, The Spiritual History of Ice
Málið er kannski þetta: Bráðnunin, sem við höfum í kæruleysi okkar valdið með græðgi okkar og sóun, ætti að stuða okkur til nýrrar meðvitundar um ísinn og stöðu hans í hinni lifandi heild, meðvitundar sem gæti vísað veginn að nýjum lífsháttum, minni sjálfshyggju, meiri visthyggju.
Möglicherweise ist es dies: Das Schmelzen, das wir rücksichtslos durch unsere Gier und unsere Verschwendung hervorgerufen haben, sollte uns schockieren und zu einem neuen Bewusstsein vom Eis führen, von seinem Platz im lebendigen Ganzen – einem Bewusstsein, das sich in neue Daseinsweisen übertragen sollte: weniger egozentrische, mehr ökologische.
Peut être s’agit-il de cela : la fonte que, sans aucune raison valable, nous avons provoquée par notre avidité et notre gâchis, devrait exacerber notre conscience de la glace, de sa place dans une vision holistique du vivant – une conscience qui pourrait se traduire par une nouvelle manière d’être : moins égocentriste, plus écologique.
6
Fimmtudagur 9. desember 2010
Geymum loðnuna þar til hún verður verðmætari Blaðið leitaði frétta hjá Ásgeiri Gunnarssyni útgerðarstjóra hjá Skinney – Þinganesi um nýlokna humarvertíð, vinnsluna í desember og loðnuveiðar. Hann hafði þetta að segja; „Humarvertíðin í haust var í heildina nokkuð góð. Bátarnir voru á vestursvæðinu fram í miðjan október þá datt veiði þar niður, fóru þeir þá í Breiðarmerkurdýpi og Lóndýpi þar sem ágætisveiði var út vertíðina sem endaði 1. desember. Humarinn var stór og skelsterkur þetta haustið og markaðarnir biðu eftir humrinum fyrir jólin. Skinney og Þórir
Jólagjöfin þín í ár
fiskuðu 60 tonn af humri miðað við hala og skiptist aflinn jafnt á milli þeirra. Við verðum rólegir þó svo að loðna sé farin að veiðast, kvóti okkar er ekki það mikill að það borgi sig að vera að sækja þetta lengst norður í höf. Tökum hana á vertíðinni þegar hún er komin í göngumunstur með austur- og suðurströndinni. Það verður fremur rólegt í desember, aldrei þessu vant. Við erum vön að vera á fullu í síld á þessum tíma. En fólkið fær að hvíla sig vel fyrir vetrar- og loðnuvertíð á nýju ári“.
Fjárhagsáætlun 2011– umsóknir um styrki Þau félög og félagasamtök sem vilja koma inn erindum eða styrkumsóknum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 þurfa að skila umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðu þess fyrir 20. desember n.k. Styrkumsókn skal fylgja ársreikningar/uppgjör fyrir síðasta fjárhagsár, greinargerð um fyrirhugaða nýtingu styrks og starfsemi styrkumsækjanda á liðnu ári annars verður umsókninni hafnað. Atvinnu- og rannsóknasjóður mun auglýsa eftir umsóknum á næstu vikum þegar samþykktir hafa verið endurskoðaðar. Hornafirði 7. desember 2010 Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Tónskóli A-Skaft. Nemendatónleikar verða: • fimmtudaginn 9. des. kl. 17:30 • þriðjudaginn 14. des. kl. 17:30 • föstudaginn 17. des. kl. 17:00 Fram koma einleikarar og hljómsveitir. Allir tónleikarnir verða í Sindrabæ og eru áætlaðir 50 mínútur í senn. Nánari upplýsinga má sjá á www.rikivatnajokuls.is/tonskoli
Eystrahorn
Úrval af rúmum og dýnum í öllum stærðum og gerðum
veski.is • sign.is • sjonaukar.is Þessar vörur færð þú hjá okkur
Húsgagnaval
Opið 13 - 18 virka daga og til kl. 16 laugardaginn 11. desember
Gjafabréf á dekur í jólagjöf Eitthvað fyrir alla Góðar húðsnyrtivörur í úrvali Kaupaukar Sigrún verður í versluninni laugardaginn 11.desember kl 10:00 - 14:00
Fjósið og Húsdýragarðurinn Kaffihúsið Fjósið í Hólmi býður upp á heitt kakó og kökur á aðventunni laugardaginn 11. desember og sunnudaginn 12. desember Frítt verður þessa daga í húsdýragarðinn fyrir kaffigesti Opið milli 10-17
Aðventustemning í Pakkhúsinu laugardaginn 11. desember Verslum afurðir úr héraði í jólamatinn Fjölbreytt úrval af kjöti, grænmeti og fiski á jólaföstunni Gjafaöskjur fyrir afurðir úr héraði til sölu, veljið sjálf Gjafavörur og kaffiveitingar til styrktar félagasamtökum Verið velkominn á Heimamarkaðinn í Pakkhúsinu Opið frá kl. 13:00 - 16:00
Matvælaklasinn í Ríki Vatnajökuls
gleðjumst saman um jólin
Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær
markhonnun.is
31%
afsláttur
gleðjumst saman um jólin
GJAFAKORT NETTÓ GÓÐ GJÖF FYRIR ALLA
898
HAMBORGARHRYGGUR
kr/kg áður 1.298 kr/kg
Jólaundirbúningurinn
HANGIFRAMPARTUR
HANGIFLÆRI
ÚRBEINAÐUR
ÚRBEINAÐ
26%
26% afsláttur
REYKTUR LAX EÐA GRAFINN OPAL SEAFOOD
afsláttur
25%
afsláttur
1.997
kr/kg áður 2.698 kr/kg
RAUÐKÁL FERSKT
2.441
kr/kg áður 3.298 kr/kg
SMARTIES
HOLLOW PENGUIN
2.249
kr/kg áður 2.998 kr/kg
SMÁAR KLEMENTÍNUR 2,3 KG KASSI
FRÁBÆRT VERÐ!
238
kr/kg Frábært verð!
359
kr/stk. Tilboðsverð!
Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær
495
kr/pk. áður 598 kr/pk.
Tilboðin gilda 9. - 12. des. eða meðan birgðir endast