Skip to main content

Eystrahorn 302010

Page 1

Eystrahorn Fimmtudagur 26. ágúst 2010

30. tbl. 28. árgangur

Eystrahorn

Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Ljósmynd: Runólfur Hauksson

Nú stendur undirbúningur fyrir flugeldasýninguna á Jökulsárlóni sem hæst, en hún fer fram næstkomandi laugardag þann 28. ágúst. Mikið verður um dýrðir, en þetta er ellefta árið sem flugeldasýningin er haldin. Það er staðarhaldarinn á Jökulsárlóni ásamt Björgunarfélagi Hornarfjarðar sem standa að þessum einstaka viðburði sem er fjáröflun fyrir björgunarfélagið. Ríki Vatnajökuls ferðaþjónustuklasi

Suðausturlands og Inspired by Iceland verkefnið sjá um kynningu á viðburðinum. Í fyrra komu 1.050 manns á flugeldasýninguna sem var metþátttaka frá byrjun. Það sem er sérstakt við þessa flugeldasýningu er það einstaka umhverfi sem Jökulsárlónið er, risastórir fljótandi ísjakar sem eru upplýstir með útikertum og kyrrðin á svæðinu gerir upplifunina enn sterkari. Flugeldasýningin virkar

helmingi umfangsmeiri þar sem öll ljósadýrðin endurspeglast í jökullóninu. Áhugi er hjá aðstandendum flugeldasýningarinnar að gera meira úr þessum viðburði með því að tengja við hann aðra listviðburði eins og tónleika. Einnig hafa komið upp hugmyndir um að fá flugeldalistamenn erlendis frá sem setja saman tónlist við flugeldasýningu þar sem flugeldarnir dansa í takt við tónlistina.

Til þess að framkvæma svona viðburð þarf fjármagn og skipulag ásamt góðri kynningu. Viðburðurinn í þessu magnaða umhverfi sem Jökulsárlónið er hefur alla burði til þess að laða að fjölda fólks alls staðar úr heiminum að mati Rósu Bjarkar Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls.

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús


2

Fimmtudagur 26. ágúst 2010

Starf í Sundlaug Hafnar

Eystrahorn

Unnu Hnátumót KSÍ

Frá og með 1. september vantar starfsfólk í Sundlaug Hafnar. Um er að ræða vaktavinnu og felst starfið í baðvörslu, ræstingu og afgreiðslu. Umsóknarfrestur er til og með 27.ágúst 2010. Laun samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Upplýsingar gefur Haukur Helgi í síma 4708000 og 897-8885. Einnig má senda umsóknir á netfangið haukur@hornafjordur.is. Nálgast má umsóknareyðublöð á skrifstofu sveitarfélagsins Hafnarbraut 27. Sundlaug Hafnar

KIRKJUDAGUR Í STAFAFELLSKIRKJU sunnudaginn 29. ágúst Messa kl. 14:00 Sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir prófastur prédikar Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur þjónar fyrir altari

Árni Þorvaldsson þjálfari og stelpurnar sem sumar komu beint úr afmælisveislu í myndatöku

A-lið 6. flokks kvenna, sem samanstendur af stelpum á eldra ári í flokknum en þær eru fæddar árið 2000, vann um helgina úrslitakeppni Hnátumóts KSÍ fyrir Norður – og Austurland. Mótið fór fram sl. laugardag í hryssingskulda og rigningu á Húsavík. Spilaðir voru þrír leikir og skemmst er frá að segja að Sindrastelpur unnu tvo og gerðu eitt jafntefli. Þær unnu heimaliðið Völsung í fyrsta leik og Tindastól frá Sauðárkróki, en gerðu svo jafntefli við Hött frá Egilsstöðum. Áður höfðu stelpurnar einnig

unnið Austurlandsriðilinn með sannfærandi hætti þannig að óhætt er að segja að þær hafa staðið sig mjög vel í sumar. 6. flokkur kvenna sendi líka tvö lið til keppni á Símamót Breiðabliks í Kópavogi. Bæði lið stóðu sig mjög vel í þeirri keppni en árangur B – liðsins á þessu sterka móti var mjög eftirtektarverður en þær enduðu í 8. sæti, sem er sannarlega glæsilegur árangur. Við óskum öllum stelpunum í 6. flokki kvenna til hamingju með glæsilegt knattspyrnutímabil

Organisti: Kristín Jóhannesdóttir Samkór Hornafjarðar leiðir safnaðarsöng Kirkjukaffi í Fundarhúsinu eftir messu Sóknarnefnd Sóknarprestur Þessir kátu krakkar Sessilía Sól og Jón Halldór héldu tombólu á dögunum í Hlíðartúninu og söfnuðu 3,800 krónum til styrktar Rauða krossinum. Hornafjarðardeild RKÍ þakkar þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Eystrahorn Sími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949 Útgefandi:.................................HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.......................Albert Eymundsson Netfang: . .................................albert@hornafjordur.is Prófarkalestur:.........................Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:..............................Maríus Sævarsson Umbrot: ...................................Heiðar Sigurðsson Aðstoð:......................................Ásta Ásgeirsdóttir Prentun: ..................................Leturprent ISSN 1670-4126

Áskrifendur

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum HornfjarðarMANNI

Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

Útgefandi þakkar þeim fjölmörgu sem nú þegar hafa greitt vildaráskrift.


Eystrahorn

Fimmtudagur 26. ágúst 2010

3

Kostnaður og styrkir Samfylkingarinnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2010

Rekstrareikningur Tekjur Sveitarfélagið Hornafjörður nóvember 2009.......................... 218.163 Sveitarfélagið Hornafjörður júlí 2010...................................... 111.411 Samfylkingin.............................................................................. 248.912 Framlag aðrir.................................................................................... 687 Kaffisjóður......................................................................................... 414 Tekjur samtals.................................................... 579.587

Þau skipuðu efstu sætin á lista Samfylkingarinnar sl. vor

Á fundi bæjarráðs 12. júlí sl. lagði áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar fram tillögu þar sem þeim tilmælum var beint til þeirra flokka, sem buðu fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum, að þeir upplýstu um heildarkostnað og styrki vegna framboða sinna sl. vor. Tillagan var samþykkt samhljóða í bæjarráði. Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram að birting upplýsinga um kostnað og styrki vegna sveitarstjór narkosninganna sé eðlilegur liður í því að auka gagnsæi og traust kjósenda á stjórnmálamönnum. Traust kjósenda á kjörnum fulltrúum er nauðsynlegur

grunnur fyrir dagleg störf sveitarstjórnarmanna og í anda opinnar og lýðræðislegrar stjórnsýslu. Samfylkingin fagnar því að bæjarráð hafi tekið undir með áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um nauðsyn þess að fjármál framboðanna séu uppi á borðum og öllum kunn. Á fundi bæjarstjórnar þann 12. ágúst sl. þar sem tillagan var lítillega rædd kom einnig fram stuðningur við tillöguna þótt borið hafi á áhyggjum einstakra bæjarfulltrúa um að of mikið gagnsæi gæti leitt til vandræða við fjármögnun smærri framboða og nýrra. Í samantekt gjaldkera Samfylkingarinnar á Hornafirði kemur fram að heildartekjur framboðsins vegna kosninganna

Gjöld Prentun og uppsetning............................................................. 161.578 Auglýsingar................................................................................ 352.515 Póst og flutningsgjöld................................................................. 38.164 Rekstur kosningaskrifstofu........................................................ 28.796 Sími kosningaskrifstofu.............................................................. 16.143 Fjölskyldu- og grillhátíð.............................................................. 58.856 Matur, stjórn og frambjóðendur................................................ 26.840 Auglýsingavörur.......................................................................... 31.623 Húsaleiga 3 vikur........................................................................ 50.000 Gjöld samtals...................................................... 764.515 Gjöld umfram tekjur.............................................................184.928 hafi numið 579.687 kr. en að heildarkostnaður framboðsins vegna kosninganna hafi verið 764.515 kr. Gjöld umfram tekjur voru því 184.928 kr. Tekjur framboðsins koma nær eingöngu frá sveitarfélaginu auk framlags frá Samfylkingunni á landsvísu. Fram kemur að stærstu útgjaldaliðirnir hjá framboðinu

voru prentun og uppsetning blaða og bæklinga og auglýsingar í staðarfjölmiðlum. f.h. Stjórnar Samfylkingarinnar á Hornafirði Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður

FÉLAGsnúmer Sindra er 780 Nú hefur kokkur lokað og við þökkum viðskiptin í sumar. Næturopnun í vetur verður auglýst nánar síðar.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911 @VjekVc\jg ' Æ ,%% :\^ahhiVÂ^g Æ H b^ *-% ,.%* Æ ;Vm *-% ,.%& Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901 =V[cVgWgVji &* Æ ,-% = [c Æ H b^ *-% ,.&* Æ ;Vm *-% ,.&& Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

FÉLAG FASTEIGNASALA

lll#^cc^#^h Æ ^cc^5^cc^#^h

Sigríður Kristinsdóttir, Hilmar Gunnlaugsson, hdl, lögg. fasteignasali hrl. og lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, s. 580 7902 Höfn

Víkurbraut 0101

Fullbúið 66,9 m² atvinnuhúsnæði á 1. hæð á góðum stað. Sér inngangur

Snorri Snorrason, Sigríður lögg. fasteignasali Kristinsdóttir, lögmaður og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Atvinnuhúsnæði

Hilmar Gunnlaugsson, Hjördís Hilmarsdóttir, Snorri Snorrason, Sigurður Magnússon, SigurðurPétur Eggertsson, Hjördís Hilmarsdóttir, Magnússon, lögg.lögg. fasteignasali, hrl. og lögg. fasteignasali,lögg. lögg. leigumiðlari, lögg. fasteignasali, lögg. fasteignasali leigumiðlari Egilsstöðum, fasteignasali Egilsstöðum, Egilsstöðum, Húsavík, s. 580 7916 s. 580 7908 Sími 580 7908 s. 580 Sími 580 7902 Sími 580 7907 Sími7907 580 7925

Ófeigstangi

Atvinnuhúsnæði: Vandað og velútbúið 927 m² fiskverkunarhús staðsett á góðri lóð við höfnina. Húsið er límtrésgrind, einangrað og klætt með yleiningum. Laust strax

Atvinnuhúsnæði

www.inni.is

Bugðuleira

Fullbúinn 137,6 m² eignarhluti á annari hæð í atvinnuhúsnæði. Skiptist nú í 3 rými auk kaffistofu og snyrtingar Björt eign með miklu útsýni.

Atvinnuhúsnæði


4

Fimmtudagur 26. ágúst 2010

Eystrahorn

Skólastarf að hefjast Nú eru skólarnir að byrja nýtt skólaár. Af því tilefni hafði blaðið samband við skólastjórnendur til að fá almennar upplýsingar um skólastarfið. Hulda Laxdal Hauksdóttir og Þórgunnur Torfadóttir skólastýrur Grunnskóla Hornafjarðar höfðu þetta að segja um komandi skólaár;

Grunnskóli Hornafjarðar „Í skólann eru nú skráðir 294 nemendur og hefur fækkað um 10 frá síðasta ári sem skýrist m.a. af því að við útskrifuðum 29 nemendur í vor en innritum 20 í fyrsta bekk í haust. Starfsmenn við skólann eru 56 og er það svipað og verið hefur. Vel gekk að ráða kennara í vor og er hlutfall réttindakennara stöðugt að aukast. Í vetur verða 37 kennarar af 42 með réttindi eða í réttindanámi. Skólasetning verður í skólanum á fimmtudag og föstudag en hún verður með öðru sniði en venjulega. Nú boða umsjónarkennarar nemendur og foreldra í viðtal í upphafi skóla þar sem farið verður yfir markmið vetrarins. Við teljum gott fyrir þessa aðila að hittast strax í skólabyrjun og fara yfir ýmis mál er varða skólagönguna þar sem allir geta komið sínum

skoðunum á framfæri. Kynningarfundir fyrir foreldra verða síðan á fyrstu dögum skólans þar sem farið farið verður nánar yfir þá þætti sem snúa fyrst og fremst að foreldrum. Í vetur mun skólinn leggja áherslu á samstarf við foreldra líkt og undanfarin ár, því uppeldi og menntun er samstarfsverkefni heimilis og skóla. Starfsfólk skólans hefur verið á nokkrum námskeiðum síðustu daga. Þar má nefna námskeið í Uppeldi til ábyrgðar sem allt starfsfólk skólans sótti ásamt námskeiði um samskipti og liðsheild. Kennarar og ritarar sátu námskeið í mentor ásamt því sem einstaka kennarar hafa sótt ýmisskonar námskeið í sumar. Í vetur munum við leggja sérstaka áherslu á að Grunnskólinn sé heilsueflandi. Undir heilsueflingu má fella flest í daglegu lífi barnsins allt frá því að það fái íþróttatíma, frímínútur og hollan mat upp í það að fá tækifæri til að tjá skoðanir sínar, læra að taka tillit til annara, þekkja þarfir sínar og þar fram eftir götunum. Lögð verður áhersla á að kynna það sem fram fer í heilsueflandi skóla jafnóðum fyrir foreldrum og samfélaginu í heild því í skólanum teljum

við mikilvægt að unnið sé með heilsueflingu á öllum sviðum samfélagsins. Síðasta vetur náðum við góðum árangri hvað varðar hollan og góðan mat og sælgætisát og gosdrykkja hvarf nánast úr skólanum. Í vetur stefnum við enn lengra og með góðri samvinnu við heimili og samfélagið í heild lítum við björtum augum til vetrarins. Heilsueflandi skóli snýst um að gera heilbrigðan lífsstíl eftirsóknarverðan og að það verði sá lífsstíll sem nemendur taki með sér út í lífið. Á fyrstu dögum skólans verður útidagur með nemendum þar sem farið verður í hinar ýmsu ferðir allt eftir aldri og áhuga nemenda. Hefðbundið skólastarf hefst þó mjög fljótt en reynt verður að hafa heilsueflingu sem rauða þráðinn í gegnum skólastarf vetrarins því hún kemur inn á allt skólastarf. Starfsmannahópurinn er öflugur og bjartsýnn og með góðu samstarfi við foreldra verður þetta örugglega árangursríkt og gott skólaár.

Hofgarður Pálína Þorsteinsdóttir skólastýra Hofsskóla í Öræfum hafði þetta að segja um skólastarfið þar; „Nemendur Grunnskólans í Hofgarði verða 12 í vetur í 2. til 7. bekk. Skólinn verður settur miðvikudaginn 25. ágúst kl. 17:00 að lokinni smölun á sumum bæjum. Ráðgert er að skólastarfið verði með hefðbundnu sniði í vetur. Það eru nokkuð sérstakar aðstæður hjá Öræfingum um þessar mundir, að það eru engin börn í sveitinni yngri en þau sem eru að koma í 2. bekk og munum við ekki eftir að þetta hafi gerst áður. Það má því segja að framtíð skólans sé í óvissu með þessu áframhaldi. Vonandi á ungt fólk eftir að sjá möguleika í búsetu hér. Það eru a.m.k. tímamót að nú er háhraðanettenging að komast í höfn í skólanum sem og á öðrum vinnustöðum og heimilum í sveitinni svo að þessi tækni ætti ekki framvegis að fæla fólk frá því að búa hér. Síðustu dagana hefur ýmislegt verið gert í viðhaldi við Hofgarð og það er afar ánægjulegt að koma að skólanum nýmáluðum að utan þetta haustið.“

Skólastarfið er fjölbreytt og stundum er farið í berjamó.


Eystrahorn

Fimmtudagur 26. ágúst 2010

5

Hreindýraveiðar stöðvaðar Umhverfisstofnun hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu sem birtist m.a. á vef stofunarinnar www.ust.is: „Veiðisvæði 9 verður lokað fyrir allar hreindýraveiðar frá og með 21. ágúst 2010. Svæðið samanstendur af Hornafirði, áður Mýrahreppi og Borgarhafnarhreppi (Suðursveit). Vegna lokunarinnar mun Umhverfisstofnun endurgreiða veiðileyfisgjald þeim veiðimönnum sem ekki hafa náð að veiða samkvæmt úthlutuðum veiðiheimildum á þessu veiðitímabili. Lokunin er samkvæmt 8. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003, og er til komin vegna upplýsinga um verulega fækkun á fjölda dýra á veiðisvæði 9 frá því að auglýsing um hreindýraveiðar fyrir árið 2010 var birt í Lögbirtingarblaðinu 21. janúar 2010. Breyting þessi er auglýst í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 486/2003 um stjórn hreindýraveiða, að fenginni tillögu Umhverfisstofnunar og að höfðu samráði við Náttúrustofu Austurlands og formann Hreindýraráðs, sbr. 14. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með áorðnum breytingum. Eins og fram kemur er ástæða lokunarinnar veruleg fækkun dýra á svæðinu. Í eftirlitsflugi 20. júlí 2010 fundust ekki nema 113 dýr og vantar því 134 dýr miðað við þær tölur sem gefnar voru út árið 2009 af Náttúrustofu

Ljósmynd: Þorvarður Árnason

Austurlands. Af 113 dýrum voru 107 dýr greind til kyns og aldurs. Kýr voru 45 en af þeim eru aðeins 22 á veiðanlegum svæðum og 23 á óveiðanlegu svæði. Veiðanlegir tarfar voru 8 en tarfaleyfin miðast við tveggja vetra tarfa og eldri. Af þeim dýrum sem vitað er með vissu að eru á svæðinu yrðu þá ekki eftir nema 65 dýr að veiðum loknum að meðtöldum kálfum og törfum á fyrsta ári. Útgefinn kvóti á svæðinu voru 29 kýr og 13 tarfar og því ljóst að verið væri

að höggva stórt skarð í stofninn á svæðinu.“ Búið var að veiða 5 tarfa en enga kú þegar bannið tók gildi. Vegna þessara ákvörðunar Umhverfisstofunar hafði Eystrahorn samband við Sigurð Guðjónsson á Borg sem hefur verið leiðsögumaður með veiðimönnum á þessu svæði og hefur mikla reynslu af veiðum á því. Hann sagði að sennilega væru ekki allir ánægðir með þetta bann en vera sjálfur sammála, enda hafi

hann áður bent á að það virðist vera misræmi í talningu milli árstíða. Mest hefur verið veitt vestan Fláajökuls á svæði 9 og því hætta á að hjarðirnar verði ekki sjálfbærar lengur ef ekki verði gripið í taumana. Telur Sigurður að dýrin ferðist meira milli svæða en álitið hefur verið. Sigurður sagði að hreindýrin hefðu ekki farið vestur yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi en nokkrir tarfar sáust í Reynivallafjalli í hitteðfyrra.

Vinir Vatnajökuls Vinir Vatnajökuls styrkja rannsóknir, kynningarog fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs. Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum samkvæmt nánari upplýsingum sem lesa má hér fyrir neðan. Samtökin vilja setja í forgang verkefni sem stuðla að: • Aukinni þekkingu almennings á náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs. • Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins. • Aukinni fræðslu og rannsóknum í

• • •

•

•

Vatnajökulsþjóðgarði og grenndarsamfélagi hans. Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs. Tengslum barna og unglinga við náttúruna. Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu. Eflingu samkenndar um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn. Sjálfbærri ferðaþjónustu.

Samtökin styrkja ekki: • Almennan rekstrarkostnað stofnana, félaga eða fyrirtækja. • Einstaklinga vegna greiðslu skólagjalda, námsdvala eða skólaferðalaga. Þeir sem geta sótt um styrki eru: Einstaklingar, samtök/tengslanet og bæði einkareknar og opinberar stofnanir. Umsækjendur mega búa hvort heldur er innan eða utan Íslands. Þegar fleiri en einn aðili standa að verkefni, er það umsjónaraðili verkefnisins sem sækir um styrkinn, ekki einstakir aðilar að verkefninu.

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist VINUM Vatnajökuls áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu fagráðs VINA Vatnajökuls innan tíu vikna frá auglýstum skilafresti. Umsóknum skal skila á vefsíðu VINANNA: www. vinirvatnajökuls.is þar sem allar nánari upplýsingar er að finna. Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 29. september 2010.


6

Fimmtudagur 26. ágúst 2010

Síðsumartilboð á Garðplöntum Haustgróðursetning gefur ekki síðri árangur en vorgróðursetning 25% - 40% afsláttur á garðplöntum 24. – 28. ágúst Opið þessa daga kl. 15 - 18. Þess utan eftir samkomulagi sími 849-1920 Verið velkomin

Gróðrarstöðin Dilksnesi

Eystrahorn

Atvinna Norðlenska auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar í sláturhúsi fyrirtækisins á Höfn. Sláturtíð hefst 21. september og stendur til 29. október 2010.

• Starfsmaður í kjötmat • Verktaki í svíðingu

Skólavörur á betra verði !

Nánari upplýsingar um störfin veitir Einar Karlsson vinnslustjóri í síma 840 8870. Umsóknarfrestur er til 3. september nk. Umsóknir skulu berast Jónu Jónsdóttur starfsmannastjóra í síma 840 8805 eða á netfangið jona@nordlenska.is

REKSTUR KAFFITERÍU NÝHEIMA Sveitarfélagsið Hornafjörður, f.h rekstraraðila Nýheima, óskar eftir tilboðum í rekstur kaffiteríu Nýheima . Tilgangur reksturs kaffiteríu er að sjá um veitingasölu til starfsmanna, nemenda og almennings auk funda og ráðstefnugesta. Aðstaðan er leigð út með þeim tækjabúnaði sem þar er til staðar í dag, því er aðstaðan ekki ætluð undir framleiðslueldhús. Heimilt að flytja mat að aðstöðunni. Opnunartími með sölu á kaffiveitingum, sælgæti o.s.frv. þarf að vera til staðar að lágmarki frá 20. ágúst – 20. maí ár hvert og frá kl. 9:00-14:00 alla virka daga yfir þann tíma. Nýheimar eru miðsvæðis á Höfn. Í Nýheimum eru um 40 starfsmenn, 150 nemendur stunda þar nám auk þess sem húsið er opið almenningi allt árið um kring. Nýr rekstraraðili skal hefja rekstur eigi síðar en 1. október 2010 Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með föstudeginum 20. ágúst. Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með föstudeginum 20. ágúst. V erð útboðsgagna er 4.000 kr. Skila skal tilboðum á sama stað kl. 15:00 mánudaginn 13. september 2010 og verða þau opnuð þar kl. 15:05 þann sama dag.

Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar


Tölvur fyrir alla, unga sem aldna ! www.martolvan.is, martolvan@martolvan.is, simi: 4781300, Litlubrú 1, 780 Höfn


:9Ø:;8=60 1A8=6DA

1.589

Za ZV u da &('

6AÐB0 <Ð=ØCDBC48:

"& PUb[uccda

1.198

Za ZV u da 1.898

HOLLUSTA Í HAUST ALLT Í ÁVAXTAÞEYTINGA

APPELSÍNUR Í LAUSU

$

$

PUb[uccda

PUb[uccda

99

LÍFRÆN BLÁBER FRÁ AKRI 125 G

290

KR/PK ÁÐUR 198

KR/PK ÁÐUR 579

CHILI BAUNIR 400 g

KJÚKLINGABAUNIR 410 g

NÝRNABAUNIR 410 g

135

135

119

KR ÁÐUR 169 KR

<H;;D :AH33:0:0

299

Za bcZ u da #"(

68;38A !% !( Í6ØBC

KR ÁÐUR 169 KR

KR ÁÐUR 149 KR

!$

PUb[uccda

;8CC;4 2>>: =Ø ;DA

2782:4= 1445 >A84=C0;

37

Za bcZ u da 49 18AC <4 5HA8AE0A0 D< ?A4=CE8;;DA 68;38A <4 0= 18A6 8A 4=30BC B:AÍ D 86 Í ?ÔBC;8BC0== Í FFF =4CC> 8B


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 302010 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu