Skip to main content

Eva í ritstýru V88

Page 1

Eva Sóldís í ritstýru V88


Ávarp Kæru ættingjar, vinir, landsmenn og Verzlingar nær og fjær, Eva Sóldís heiti ég og er í framboði til embættis ritstýru V88. Í allri hreinskilni þá hef ég reynt að skrifa þetta ávarp sirka 23 sinnum. Í síðustu útgáfu þess var meginumfjöllunarefnið feldingar (furries) og þá uppgötvaði ég að það er kannski best að hafa þetta aðeins hnitmiðaðra og útskýra af hverju ÞÚ ættir að kjósa MIG í ritstýru V88. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég elska, dái og tilbið Verzlunarskólablaðið. Við erum að tala um að ég valdi Verzló út af þessari nefnd og þegar ég komst inn í V86 sem busi gjörsamlega missti ég það. Já, ég dab-aði nokkrum sinnum fyrir framan spegilinn eftir tilkynninguna mína, og hvað? Allavega, V86 ferlið stóð algjörlega undir væntingum og gerði ég það eina sem var í stöðunni eftir það og fór í V87. Þessi tvö ferli hafa gert þessa nefnd að 90% af persónuleikanum mínum sem væri pirrandi ef hann hefði ekki verið 100% vandræðalegur áður. Ég vil meina að Verzlunarskólablaðið hafi gert mig að betri manneskju og er því draumur minn að fá að endurgjalda greiðann og gera V88 að bestu bók sem hægt er að gera. Ef þú styður það, þá mæli ég eindregið með að setja X við mig, Evu Sóldísi, í ritstýru V88.

Sérstakar þ akkir Ásta Kristjánsdóttir CATO Lögmenn Meðmælendurnir mínir :) Herdís Rún Sigurðardóttir Hörður Tryggvi Bragason Ragnheiður Sóllilja Tindsdóttir Urður Vala Guðmundsdóttir


Reynsla Í Verzló V87 (samfélagsmiðlastýra) 2020-2021 Femínistafélag NFVÍ 2020-2021 Leikskrá Listó 2020-2021 V86 (businn) 2019-2020 Búninganefnd Listó 2019-2020

Utan Verzló

Umsjón Instagram aðgangsins @hunteiknar: 2016 London College of Fashion námskeið: 2019 Ritstýra skólablaðs Hagaskóla: 2018-2019 Ritnefnd skólablaðs Hagaskóla: 2017-2018


Medmæli - Vala Gudmundsdóttir Urdur Eva Sóldís. Sæt, skemmtileg, fyndin, falleg og allt það besta - the ideal woman. Eftir skrautlegt ferli V87 þetta árið get ég með stolti sagt að engin manneskja er hæfari en Eva í starf formanns V88. Hún gerði ferlið okkar að svo miklu meira en ég geri mér grein fyrir. Góð dæmi eru endalausir fundir sem lífguðust við einungis vegna húmorsins hennar Evu, eða ef hugmynd kom upp var Eva þegar komin með plan fyrir framkvæmd á henni. Hún er bara þessi týpa, með framkvæmdarvilja sem aðeins fáir geta talið sig hafa. Þessi vilji mun ekki bara hjálpa henni í V88 heldur einnig í stöðu stjórnarmeðlims. Hún er með nýja sýn sem er nauðsynleg fyrir komandi skólaár og þess vegna er kjörið að láta X við Evu í formann V88. Þessi gríðarlegi drifkraftur, metnaður og ástríða sem Eva hefur fyrir þessu erfiða verkefni sem við köllum Verzlunarskólablaðið mun þá fá að blómstra enn á ný. Kjósið rétt elsku Verzlingar, besta skólaár lífs ykkar er rétt handan við hornið!

Nefnd V87 tekur undir þ essi tvö medmæli, ad- Rebekku ritstýru undanskilinni, samkvæmt þ eim reglum ad- medlimir stjórnar megi ekki veita medmæli

Sigrún Hauksdóttir Eva Sóldís er án efa besti kosturinn í ritstýru V88. Ég var með Evu í nefnd V87 og get ég staðfest að hún er tilbúin að taka við embætti ritstýru. Hún vinnur öll sín verkefni mjög vel og skipulega en hún er einnig dugleg að setja sig inn í ýmis konar hluti sem formaður þarf að kunna vel t.d. samskipti við prentsmiðjur, uppsetjara og fleira. Ég var fjármálastjóri í nefnd V87 og leitaði ég oft til Evu við ýmis konar verkefni því hún hefur góðan skilning á fjármálum innan nemendafélagsins og ég treysti henni fullkomlega til þess að skila V88 af sér réttu megin við núllið. Hún er ekki bara sjúklega áhugasöm og klár í öllu sem kemur bókinni við heldur er hún líka sjúklega góð í samskiptum og ég veit að hún er fullkominn leiðtogi fyrir komandi nefnd. Hún er með mikinn drifkraft og sýnir mikið frumkvæði sem eru bæði nauðsynlegir kostir fyrir formann. Eva er réttsýn og góð fyrirmynd sem er eitthvað sem skiptir miklu máli í fari stjórnarmeðlims. Eftir að lesa þetta ættuð þið að vita að Eva Sóldís er kjörin í þetta verkefni, setjið X við Evu!!!!!!!!!!


Fannar Þór Benediktsson

Ásta Sóley Hilmisdóttir Nú ert þú eflaust að velta því fyrir þér hvað gerir Evu Sóldísi hæfa sem ritstýru Verzlunarskólablaðsins og ég skal sko segja þér það. Þegar Eva kom sem lítið busakrútt í nefndarviðtal fyrir blaðið var ekki aftur snúið. Hún var með allt upp á 10, hæfileikaríkari en við flest og með geggjaðar hugmyndir (er það ekki allt sem þetta snýst um?:) Hún sótti líka bókstaflega um Versló fyrir blaðanefndirnar, ÞUST SEGIR ÞAÐ EKKI NÓG EÐA. Hún er ángríns fædd í þetta! Eva er með reynsluna, hæfileikana og svo er hún með svo geggjaða orku í kringum sig sem mun svo sannarlega birta upp á myglaðanemendakjallara fundi. Eva hefur allt sem ritstýra þarf að hafa og ég sé engan fyrir mér gera þetta betur en hún! X - Eva Sóldís í V88 <3️

Ef þú varst í einhverjum vafa ef Eva ætti heima í sæti ritstýru Verzlunarskólablaðsins, þá ertu á réttum stað. Eva er ein sú klárasta, hugmyndaríkasta og almennilegasta manneskja sem ég þekki. Einu sinni fyrir langa löngu vann ég með henni í gerð V86 og þrátt fyrir að hún var first timer í þessu ferli þá var eins og hún hafði aldrei gert neitt annað. Eva á eftir að poppa þessa bók upp og gefa henni a much needed facelift. Það er enginn jafn hæfur til þess, konan er bara fædd í þetta starf! Eva might be too proud to beg eeeen vá hvað ég er það ekki… Plíííís kjósið Evu sem ritstýru Verzlunarskólablaðsins!! She will not disappoint.

Gúa Margrét Bjarnadóttir Gúa heiti ég og hér er málstaður minn. Ég skrifa hér til stuðnings Evu Sóldísar í formann 88. árgangs Verzlunarskólablaðsins. Eva er með hæfustu ef ekki bara hæfasta manneskja innan veggja þessa skóla - og flestra veggja yfirhöfuð - til að stýra þessari blessuðu árbók. Hún hefur eytt báðum menntaskólaárum sínum í að skapa þennan hlunk sem nemendur fá svo ókeypis upp í hendurnar í lok skólaárs. Þeim tíma sem ég eyddi með henni í nefndinni vann hún alltaf hörðum höndum og lagði gríðarlegan metnað í öll þau verkefni sem hún tók að sér. Hún er afar dugleg, ung stelpa. Ekki að ég vilji endilega hljóma eins og háöldruð amma hennar en hún er hinn fullkomni kostur í Verzlunarskólablaðsformann... og ég er ekki einu sinni búin að nefna hvað hún er FÁRÁNLEGA heit. Óþarft er að nefna hæfileikana þar sem þeir eru öllum augljósir. Peace, love, money, $wag


Ólafur Rúnar Kaaber Fyrir utan það hvað Eva er góð í að dansa, þá er hún líka sjúklega góð í því að skrifa. Alltaf þegar að ég lít á hana inn í stofu þá er hún annað hvort skrifandi eða lesandi. Eva hefur tekið skuggalega margar myndir sem að eru upp á vegg heima, hún tók fermingarmyndirnar hjá litla bróður mínum, fimmtugs myndina af pabba og fallega mynd af fjölskyldunni minni. Það er fátt til í heiminum sem að passar jafnvel saman og Eva og Kenzo peysur, en það er til eitt combo sem að toppar það og það er Eva og Verzlunarskólablaðið. Ég veit að allir segja í meðmælunum sínum að „það er enginn annar hæfari í starfið“ en í þessu tilfelli þá hefur þessi setning aldrei verið jafn sönn. Ég treysti engum öðrum en Evu fyrir ritstýru V88, nei, ekki einu sinni Birni Inga frá Viljanum. Það eru 3 ástæður fyrir því. 1. Eva er hæf í öllu sem að tengist Verzlunarskólablaðinu. 2. Eva er með kjark og ekki hrædd við að koma sínum skoðunum á framfæri. 3. Eva er traustasta og góðhjartaðasta manneskja sem ég þekki svo að ég veit að ef hún verður ritstýra þá verður SVO góður mórall í nefndinni og ferlið mun vera svo skemmtilegt. Þetta er nákvæmlega það sem formaður Verzlunarskólablaðsins þarf að hafa! Kjósið rétt Verzlingar! X - Eva Sóldís í ritstýru Verzlunarskólablaðsins

- Kristín Hallgrímsd. Álfheidur Ég man vel eftir Evu litlu busaling á leiðinni í busaviðtalið sitt í V86 á fyrsta ári. Þarna áttaði ég mig fyrst á því hvað Eva er bæði metnaðarfull og líka hvað hún hefur mikla ástríðu fyrir þessari nefnd. Þarna sat ég á móti Evu og fylgdist með henni klippa og líma saman svakalega flottan bækling sem hún hafði alveg sjálf hannað og teiknað frá grunni! Síðan þá hef ég fengið að kynnast Evu muuuun betur og áttað mig á því hvað hún er ótrúlega samviskusöm og skilar öllu sem hún tekur að sér mjög vel unnu og meira en það. Hún er líka ótrúlega listræn í eðli sínu og skapandi. Svo er hún líka mjög klár, skemmtileg og funny sem er mikilvægt. Eva Sóldís líka með fallegustu sál sem ég hef kynnst (heheh væmið I know en samt satt!!). Eva hefur svo gríðarlega mikla ástríðu og metnað fyrir þessu blaði og ég veit að það er ekki hægt að finna neinn betri í þetta verk!! Þess vegna ætla ég að gera það rétta, sem er auðvitað að setja X við Evu Sóldísi í ritstýru V88!!!


Bæta upp fyrir Covid skólaár Hámarka fjölda og gæði viðburða til að bæta upp fyrir takmarkað félagslíf seinustu anna. Ef COVID-19 lætur okkur ekki í friði mun ég verja tíma mínum og orku í að finna leiðir til að láta það ekki hafa áhrif á NFVÍ.

Gefa öllum tækifæri Hafa jákvætt hugarfar gagnvart nýjum hugmyndum nefnda og hjálpa öllum nefndum sem langar að fá eigin viku. Þar að auki myndi ég leggja mitt af mörkum til að mynda pláss fyrir alla innan NFVÍ. Skapa ný tækifæri svo alla sem langar að taka þátt í félagslífinu fái það.

Kynna nefndir mjög vel Leggja mikið upp úr mjög góðum kynningum á hinum ýmsu nefndum svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi og viti hvað þeir eru að koma sér út í.

Virkja busana Kynna félagslífið mjög vel fyrir busunum strax í byrjun svo þeir viti nákvæmlega hvað er í gangi og geti orðið virkir þáttakendur strax. Peppa allar nefndir til að taka inn busa.

Stefnumál Stefnumál Stefnumál Stefnumál Stefnumál Stefnumál Stefnumál Stef

V88 Stjórn

Meira ad- gerast

Auka afköst nefndarinnar þannig hún taki að sér fleiri verkefni, haldi fleiri viðburði og taki sér meira pláss yfir skólaárið

Fjölbreytni í einu og öllu

Sjá til þess að bókin endurspegli upplifanir allra Verzlinga með því að leggja sérstaka áherslu á fjölbreytt efni og að koma sem allra flestum og helst öllum í bókina.

Ný verkefni í stad- Snobbsins

Skapa ný og spennandi verkefni eða viðburði sem eru meira í takt við það sem Verzlinga langar og vantar í stað Snobbsins.

Opin fyrir nýjungum

​ g er mjög spennt fyrir samstarfi við aðrar nefndir É og nýjum hugmyndum. Jákvæðni gagnvart nýjum tækifærum er lykilatriði og ég er til í að skoða allt sem býðst.

Áhersla á umhverfismál

Gera bókina eins umhverfisvæna og mögulegt er og passa að það hafi samt engin áhrif á útlit eða gæði hennar nema bara góð.

Gera epíska bók

Gera tímamótaeintak þar sem ekki er bara farið upp á næsta stig heldur nýtt stig fundið upp. Hámarka fegurð og gæði bókarinnar þannig hún brjóti alla skala.

Skemmtileg nefnd

Ferlið á að vera ótrúlega skemmtilegt og gefandi. Ég vil mynda góða stemningu þar sem allir nefndarmeðlimir fá tækifæri til að þrífast og blómstra.


X - Eva í V88 X - Eva í V88 X - Eva í V88


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eva í ritstýru V88 by evasoldis - Issuu