Skip to main content

Catamitus 2021-2022

Page 1

Catamitus 2021-2022

1


Efnisyfirlit

2

Efnisyfirlit

3

Ávarp Nefndarinnar

4-6

Kynningar

7-8

5 LBGTQ+ slanguryrði/hugtök útskýrð

9-11

Persónufornöfn

12-14

LBGTQ+ ástarsögur fornaldar

15-16

Gangatískan

17

Sappho

18-22

Hlutir sem hinsegin vinur þinn vill (líklega) að þú vitir

23-25

Orsifjar nokkurra kynhneigða

26

Catamitus Lagalistinn ‘22

27- 29

Hvað í andskotanum þýðir eiginlega

30-34

kyn??? Hvaða hinsegin ICON ert þú? 2


*Mynd af ánægðum MR-ingi, þar sem um helmingur nefndarinnar er fastur í sóttkví eða einangrun

Ávarp Nefndarinnar Yndislegu samnemendur, foreldrar og starfsfólk skólans, verið hjartanlega velkomin í Catamitus-blaðið skólaárið 2021-2022! Innan veggja skólans starfar hinseginfélag. Þetta félag skipum við, Catamitus! Okkar markmið er að fræða og upplýsa umgjörð okkar um málefni hinsegin fólks. Auk þess höfum við sett okkar það persónulega markmið að skrifa einstaklega kostulegt blað. Lestu um LGBTQ+ ástarsögur fornaldar eða hlustaðu á Catamitus-Lagalistann; lærðu eitthvað nýtt um persónufornöfn eða hvað það þýðir að vera celesbian. Án þess að tefja ykkur neitt frekar, ástarkveðjur, Catamitus<3


4

Kynningar Meðlimir Catamitus 2021-2022

Formaður: Sædís Ósk Fornöfn: Hún/hana Námsbraut: Eðlisfræðibraut 2

Hlutur sem ég gæti ekki lifað án: Kaffi Nafn: Embla Fornöfn: hún/hana Námsbraut: Nýmálabraut 1 Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: kaffi og hafrar Ef ég væri dýr: snigill

Nafn: Gabriella Fornöfn: Hún/hana Námsbraut: Fornmálabraut 1 Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: Sourstuff

Ef ég væri dýr: Górilla


5

Kynningar Meðlimir Catamitus 2021-2022

Nafn: Erna Fornöfn: Hún/hán Námsbraut: Náttúrufræði

Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: Ís Ef ég væri dýr: Beltisdýr Nafn: Alexander Fornöfn: Hann/honum Námsbraut: Málabraut Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: eyrnapinnar og beyglur Ef ég væri dýr: Fíll - Buzzfeed Nafn: Viktoría Fornöfn: hún/hana Námsbraut: Náttúrufræðibraut 1 Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: sólgleraugu og vínber Ef ég væri dýr: Hrafn


6

Kynningar Meðlimir Catamitus 2021-2022

Nafn: Hildur Ósk Fornöfn: Hún/hana Námsbraut: Eðlisfræði 2

Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: Haframjólk of ferskjur Ef ég væri dýr: Skjaldbaka

Nafn: Helga María Kristinsdóttir Fornafn: Hún/ hana Námsbraut: Málabraut Hlutir sem ég gæti ekki lifað án: te og eyrnalokka Ef ég væri dýr: íkorni


7

5 LBGTQ+ slanguryrði/hugtök útskýrð Viktoría TWINK Twink er ungur samkynhneigður maður, oft á bilinu 18- 25, og er oft sætur á ungan og strákalegan hátt. Þetta er stundum líkt við vinsælu steríótýpuna af “heimsu-ljóskunni“. Þeir eru oft mjóir og hárlausir þ.e. lítið eða engin líkamshár og ekkert skegg. Twink á að standa fyrir Teenage-White-Into-No-Kink en það er augljóslega úreld skýring og er

ekki tæmandi.

PILLOW PRINCESS Pillow princess notað yfir konu sem vill fá munnmök frá annarri konu en er ekki tilbúin að veita þau sjálf. Þær konur eru oft ekki vissar í kynhneigð sinni og eru að prófa sig áfram að vera með annarri konu. Heitið pillow princess er þá frekar lýsandi þar sem hún liggur í þægindum en gefur ekki á móti.


BUTCH

8

Butch er lesbísk kona sem hefur mjög steríótýpískan karlmannslegan blæ um sig í m.a. klæðnaði, áhugamálum, og hegðun. Hið steríótýpíska útlit hjá þeim væri stutt hár t.d. rakað á hliðunum eða undercut, lítill eða enginn farði , mikið af dekkri litum, karlmannslegri skartgripir s.s. silfurkeðjur og leður armbönd og jakkaföt í stað kjóla. CELESBIAN Celesbian er fræg kona sem er annað hvort opinberlega skilgreind sem lesbía eða er talin vera slík og er vinsæl innan LGBTQ+ samfélagsins. Dæmi um nokkrar frægar væru Ellen DeGeneres, Kristen Stewart og Cate Blanchett. A CAMP Að vera camp-maður felur í sér að vera mjög skrautlegur, leikrænn og óhóflegur. Slanguryrðið er skilgreint sem „að pósa með ýktum hætti“ og í raun lýsir helstu steríótýpunni yfir samkynhneigðum manni. Til dæmis má nefna Elton John og Julian Clary.


Persónufornöfn

Algengustu

Erna

persónufornöfnin eru hann og hún, og gera margir ráð fyrir því að

Af þeim er hán orðið

allir noti annað þeirra,

hvað þekktast, en

eitthvað sem við notum

en svo er ekki rauninn.

einnig má nefna

öll, oft án þess að hugsa

Margir upplifa sig utan persónufornöfn eins þess ramma að vera og hé og hín. Þessi annaðhvort karl eða fornöfnin taka kona, og tengja því ekki almennt með sér við fornöfnin hann eða hún. Því varð að finna hvorugkyn, en það er

Persónufornöfn eru

mikið um það. Það er kannski helst í íslensku tímum, þegar við erum beðið um að flokka orð,

sem við tökum eftir þeim. aðra lausn, og koma þá að sjálfsögðu Nýlega hefur þó umræðan kynhlutlaus persónubundið. Þau persónufornöfn til um kyn og kynvitund hafa orðið mjög aukist gríðarlega, og því

sögunnar.

útbreidd á stuttum

fylgja auðvitað pælingar

tíma, bæði hér á

um persónufornöfnin sem

Íslandi og víða í

við notum. En hver eru þessi nýju persónufornöfn og hvernig eru þau notuð?

9

,,Margir upplifa sig utan þess ramma að vera annaðhvort karl eða kona”

útlöndum, enda eru sífellt fleiri að finna

sjálft sig utan hins hefðbundna kynjakerfis.


En hvernig eru þessi fornöfn notuð í setningu? Hér eru nokkur dæmi: „Veistu hvort að hán sé að koma?“

Það eru nefnilega sumir sem nota fleira en eitt persónufornafn. Það eru margar

„Hán er mjög þreytt“ „Hé er mjög vinalegt og alltaf tilbúið að hjálpa“ „Hín er fyndið, en á það til að hlæja á óviðeigandi tímum“ Það eru ekki bara persónufornöfn sem eru fjölbreytt, heldur eru leiðirnar

til að nota þau það einnig.

leiðir til að gera það, og er það mjög persónubundið. Sumir

nota

tvö

eða

fleiri

persónufornöfn í bland. Aðrir nota mismunandi

persónufornöfn

á

mismunandi dögum, og fer það eftir einstaklingum hversu oft fornöfnin breytast. Það er mikilvægt að spyrja hvernig einhver notar fornöfnin sín, ef þau eru

fleiri en eitt. Persónufornöfn geta verið eins fjölbreytt og fólkið sem notar þau. 10


11

En hvers vegna skipta öll þessi

persónufornöfn

máli? Mörgum finnst flókið að þurfa að venja sig á að

Það getur tekið tíma að átta sig á

nota ný fornöfn, og finnst það

nýjum pælingum varðandi kyn,

jafnvel bara óþarfi

þær stangast oft á við það sem okkur hefur verið kennt.

En þessi persónufornöfn eru

En aðalatriðið er að virða fólk

mikilvæg fyrir þá einstaklinga

jafnvel þótt þú skiljir það ekki

sem

alveg. Það er mikilvægt að vera

upplifa

sig

utan

hins

hefðbundna kynjakerfis.

opin fyrir því að læra nýja hluti,

Það að fá að vera maður sjálfur, og nota þau persónufornöfn sem manni finnst best, eru mikilvæg réttindi hverrar manneskju og það getur haft mikil áhrif á andlega

heilsu

ef

vinir

og

fjölskylda neita að nota það fornafn sem einhver kýs.

og gera sitt besta til að nota rétt fornöfn fyrir alla. Öll erum við mismunandi, og það á að fagna fjölbreytileikanum

í

öllu

sínu

veldi, ekki síst þegar kemur að persónufornöfnum.


LGBTQ+ ástarsögur fornaldar

12

Gabriella AKKILLES X PATRÓKLUS Akkilles var hraustasti bardagakappinn við Tróju (umsátur útaf Helenu fögru málinu). Hann er líka ein að aðalpersónunum í Ilíonskviðu Hómers. Hann á að hafa verið uppi um 12. öld. f.Kr. Patróklus var „vinur“ hans, en þeir voru samt aðeins meira en bara vinir. Þetta er mjög sorgleg saga. Patróklus er bara inni í tjaldinu þeirra að horfa og hlusta á Akkilles spila á hörpu og syngja, svo þarf Patróklus skyndilega að fara að berjast og

elskendurnir sjást aldrei aftur. Patróklus deyr í orrustu. Akkilles verður brjálaður af reiði og ákveður þá að verða loks fóthvatur í stað þess að sitja bara inni í tjaldi með Patróklusi. Hann vill hefna fyrir morðið á elskanda sínum. Hann drepur loks Hektor, morðingja Patróklusar (sem er samt mjög sorglegt af því Hektor er svo góður. Svo góður að ætla að skýra framtíðar gæludýr mitt?? Hektor). Akkilles er allavega alveg brjálaður og svívirðir líkið hans Hektors og dregur það á eftir sér á vagni og allt

mögulegt. Svo loksins kemur pabbi Hektors og biður um líkið og þá verður Akkilles aftur aðeins mannlegri. Patróklus hefði verið stoltur.


13

ALEXANDER MIKLI X HEPHAISTON Alexander mikla könnumst við við (ekki síst úr 4. bekkjar sögu). Hann var uppi á 4. öld. f.Kr. Alexander var makedónískur og einn besti og farsælasti herforingi mannkynssögunnar. Svo geggjaður að Helgi Ingólfs gerði alltaf stórt A og teknaði hring utanum það. Hann elskaði Alexander. Þó ekki eins mikið, né á sama hátt og Hephaistion elskaði Alexander.

Þeir voru líka „vinir“.

Þeir voru líka „vinir“. Hephaistion hefur þó viðurnefnið (epitet) Philalexandros. Philo- kemur frá gríska orðinu philia (φιλία) og þýðir ást. Þannig Hephaistion Philalexandros þýðir Hephaistion sem elskar Alexander. Hephaistion elskaði að vera með Alexander en hafði samt ekki áhuga á að vera elskhugi hans til lífstíðar, en það vildi Alexander. Hephaistion var til staðar fyrir Alexander allan sinn lífstíma. Þegar Hephaistion dó var Alexander alveg miður

sín

af

sorg.

Hephaistion

var

ást

lífs

hans.


HADRIANUS X ANTONIOUS Hadrianus var keisari í Róm og uppi á 2. öld e.Kr. Hann elskaði

grískan gaur sem hét Antinous. Hadrianus var keisari þannig rómverjar voru bara eih, „já, þetta er allt í lagi, svo lengi sem hann ber ekki tilfinningar til hans.“ En hann bar tilfinningar til hans. Hann bauð honum alltaf með í fínu matarboðin og veislurnar og allt. Svo átti Hadrianus að giftast og barna einhverja konu en þegar en þegar að ekkert barn kom þá fór fólkið að slúðra um að hann væri víst samkynhneigður. Eitt sinn voru Hadrianus og Antinous að sigla niður Nílarfljót og Antinous drukknaði. Ekki er vitað hvers vegna hann drukknaði en fólk hefur giskað á að hann hafi fyrirfarið sér til að vernda orðspor Hadrianusar. Hadrianus varð svakalega sorgmæddur. Hann lét reisa borg nálægt staðnum þar sem Antinous dó og skýrði borina Antinopolis í höfuð á elskanda sínum. Hann lét líka reisa mörg hof og um 2000 höggmyndir af Antinousi og lét fólk dýrka hann sem guð.

14


Gangatískan Embla Klæðaburður hjá ýmsum nemendum, stjórnendum og meistaralegs kennara - 19. janúar 2022. Bon Appétit!

15


16


17

Sappho Gabriella Þessi boss lady frá 6. öld f.Kr. skrifaði geggjuð ástarljóð til kvenna. Hér að neðan eru 3 erindi úr kvæði 31 hennar. Hún skrifar um hvernig gaurinn sem situr hjá elskunni sinni er jafn heppin og guð og Sappho er svo ástfangin af henni að líkami hennar hættir að starfa eðlilega.

Kvæði 31 Hann virðist mér vera jafn guði, hann, sem sitjandi á móti þér horfir ítrekað og hlustar á þig hlæjandi ljúflega, sem sviptir mig

en tungan er lömuð,

vesælan

léttur lögi hríslast um

öllum skilningarvitunum:

limina,

Því um leið og

eyrun dynja fyrir eigin

ég hef litið þig er ekkert eftir af

són,

röddu í munni mínum

augun hyljast tvöfaldri nótt.


Hlutir sem hinsegin vinur þinn vill (líklega) að þú vitir Embla

Hinseginleiki er oftar en ekki samþykktur í samfélagi ungmenna. Flestum stendur á sama um kynhneigð og kynvitund annarra. Þó, felst stundum ákveðið fáfræði í hlutleysinu. Ef til vill áttu

hinsegin vini, vandamenn eða fjölskyldumeðlimi. Kannski ert þú sjálfur/sjálf/sjálft hinsegin og bara forvitinn/forvitin/forvitið hvort ég sé að segja eitthvað að viti. Hvernig sem stendur á því, eru nokkur atriði sem getur verið gott að hafa í huga í dagsins amstri.

,,Í upphafi var orðið, síðan kom setningin - því miður markaði hún enda skynseminar”

Í upphafi var orðið, síðan kom setningin - því miður markaði hún enda skynseminar. Örvæntið ei’! Eftirfarandi er listi af… óheppilega orðuðum setningum sem fólk hefur sagt við mig og góða félaga. Auk þess fáið þið ágætis útskýringar hvers vegna þær hlutu heiðursæti í þessari mikilfenglegu grein.

18


,,Getum við plís farið saman á Kiki?“ Þetta gæti hugsanlega farið illa í suma við fyrstu sýn, en endilega dokið við. Ég ætla á engan hátt að halda því fram að cis-het fólk ætti ekki að hafa aðgang að hinsegin rýmum. Á hinn bóginn fylgir því ákveðin listi af mannasiðum:

1. Ekki vera móðguð/aður/að ef einhver gerir ráð fyrir því að þú sért hinsegin. Segjum sem svo að einstaklingur kemur upp að þér og sýni þér áhuga á hinsegin bar. Segjum sem svo, að þetta sé afar kurteisislegt og vel orðað daður. Segjum sem svo að þetta sé karlmaður, alveg eins og þú! Þú hefur allan rétt að hafna boðinu, eins og í öllum öðrum aðstæðum. Það er aftur á móti mjög ósmekklegt að verða yfir sig hafin af móðgun, skíthræddur um að fólk haldi að þú gætir hugsanlega kannski verið eitthvað annað en gagnkynhneigður. Gerðu betur.

19


2. Ekki taka með ykkur heilan her af fólki. Þetta er auðvitað smekksatriði, en fyrir marga tákna hinsegin rými ákveðið öryggi. Sumir eru ennþá í skápnum, en eru tilbúnir að taka sín fyrstu skref. Þetta þýðir gjarnan að vera innan um fólk í sömu stöðu og þú. Þegar heilt íþróttalið eða gæsapartý ræðst inn, eykur það líkurnar verulega að andrúmsloftið breytist. Skyndilega þarftu að hafa áhyggjur af því hvort þú þekkir einhvern. Einhvern sem jafnvel skilur ekki

mikilvægi

þess

að

hafa

stjórn

á

sínu

ferli

sjálf/sjálfur/sjálft. 20

3. Ekki fara inn á þeim forsendum að þú sért að fara að ,,breyta” kynhneigð fólks. Newsflash! Það er ekki hægt.

Ef

einstaklingur

,,gerir

undantekningu

á

gagnkynhneigð sinni fyrir þig” þýðir það einungis að þau voru ekki gagnkynhneigð fyrir. Örfáir vilja aftur á móti meina að þau hafi persónutöfra og kynþokka sem nær langt yfir ,,kjánalega andlega fjötra eins og kynhneigð”. Oftar en ekki snýst þetta um egó og hroka, og að ætla að notfæra sér hinsegin rými í þessum tilgangi er skammarlegt.


21

,,Wait, varstu ekki nýbúin/nn/ið að breyta um kyn?” Ég veit af eigin reynslu, að það getur verið erfitt að venjast nýjum fornöfnum. Stundum virðist þú vera nýbúinn/nýbúin/nýbúið að venjast þessum nýju þegar þetta breytist aftur. Það er aftur á móti mikilvægt að átta sig á einu: ,,þetta snýst engan veginn um mitt líf og það sýnir mikið tilitsleysi að sýna þessu ekki skilning.” Við erum fædd með fast kyn og kyngervi. Aftur á móti er fornöfn ekki meðfædd, heldur þitt persónulega ferli. Sumum finnst ekkert óþægilegt þegar fólk ruglast á fornöfnum þeirra, öðrum finnst það hræðilegt. Þetta er jafn fjölbreytt og við erum mörg. Misskynjun hefur t.d. oftar mikil áhrif á einstaklinga með

kynama, heldur en þau sem gera það ekki. Fornöfn og samband manneskjunnar sem hafa þau eru 100% þeirra, og það er aldrei þinn staður að dæma hvaða fornöfn aðrir nota til þess að tjá sig.


Ef þér finnst erfitt að nota fornöfnin sem aðili í kringum þig óskar eftir, skaltu frekar sleppa fornöfnum heldur en að miskynja þau. Þó, munu langflestir sem breyta um fornöfn sýna þér skilning ef þú skyldir ruglast á þessu í byrjun. Að því gefnu að þú sért að gera þitt besta. Auk þess er mjög eðlilegt að koma út fyrir fólki nokkrum sinnum, að prófa sig áfram, áður en þú festir þig við eitthvað ákveðið.

Sumum finnst öll þessi hugtök tilgangslaus, sumum finnst þau mikilvægur hluti af sjálfsmynd þeirra.

22

Þessi listi, í heild sinni, er eins ótæmandi og hann er óþolandi að takast á við. Hugsanlega hefur þú skimað yfir punktana og hugsað:

1.,,hm.” eða 2.,,shit, ég hef sagt þetta.” Ef þú varst meiri (b) manneskja, vil ég taka fram að við gerum öll mistök. Oft meinar fólk vel, og í raun veit ekki betur en að þau séu afar prúðmannleg og upplýst. Það eina sem hægt er að gera í kjölfarið, er að upplýsa sig og gera betur í framhaldinu.


Orðsifjar nokkurra kynhneigða

23

Gabriella HOMOSEXUAL

Margir heyra orðið homosexual og hugsa bara: „karl-kynhneygður“ eða „samkynhneigður sem á við um karlmenn“ eða eitthvað slíkt. Orðhlutinn homo- þýðir, jú, maður, upp á latínu. Orðið homo sem hér er notað kemur hins vegar úr grísku. Gríska orðið homos (eða ὁμός) og þýðir sami. Ég veit, mind blowing. Orðið hefur ekkert að gera við karlmenn.

Orðrétt

þýðir

homosexual

þar

af

leiðandi

samkynhneygð/ur/t. *mic drop* . HETEROSEXUAL

Líkt og með orðið homosexual kemur orðhlutinn heter- líka úr grísku. Heteros (eða ἔτερος) þýðir öðruvísi, eða gagnstæð/ur/tt. Þaðan fáum við orðið gagnkynhneigð/ur/t.

BISEXUAL Bi- er af latneska orðinu bis. Bis er, jú, töluorð en þýðir ekki tveir! Áhugavert er að orðið bis þýðir tvisvar. Bis er raðtala. Frumtalan tveir er duo á latínu. Bisexual þýðir því (beinþýtt) tvisvar-kynhneigð/ur/t.


24

LESBIAN Orðið Lesbía hefur geðveikt fallegan uppruna. Og jú, ég veit að allir mr-ingar læra þetta í fjórðu bekkjar sögu en mig langar samt að segja það. Dílaðu við það. Semsagt, á 6. öld f.Kr. var geggjuð girl boss gella sem hét Sappho og skrifaði hin fallegustu ljóð til kvenna. Sappho var samkynhneigð kona og bjó á eyjunni Lesbos (Λέσβος). Orðið okkar, lesbía, er þannig vísun í Sappho, our queen, í gegn um eyjuna á hverri hún bjó <3.

PANSEXUAL & OMNISEXUAL Nútímaskilgreiningar þessara hugtaka eru mismunandi, þ.e. að omnisexual einstaklingur getur hrifist af öllum kynjum. Útlit,

persónuleiki o.fl. geta spilað þátt í því. Pansexual einstaklingur getur orðið hrifinn að öllum kynjum, en hins vegar skiptir útlit manneskjunnar engu máli. Út frá sjónarmiði orðsifja, þýða þessi orð þó það sama. Pan- kemur úr grísku (πᾶς) og þýðir allt. Omni- kemur hins vegar úr latínu (omnis), en merkir líka allt. Þetta er semsagt sama orðið, bara komið úr mismunandi tungumálum!


POMOSEXUAL

25

Po- er kominn af orðinu post (latneskt forskeyti og atviksorð sem merkir eftir). -mo- er komið af orðinu modern sem er komið af franska lýsingarorðinu moderne (komið af latneska atviksorðinu mode og merkir nýlega). Þannig í fullri lengd væri hugtakið: post-modern sexuality. Hugtakið er notað af fólki sem vill ekki tilgreina eða finnst engin ákveðin hugtök eiga við sig.

QUEER & GAY Eins og má sjá að ofan eru hugtökin mynduð úr grískum og latneskum orðum (fyrir utan lesbia sem er funky queen). Eitt hugtak kom mér þó að óvart og það er orðið queer. Orðið kemur af germönsku málaættinni. Á 15. öld merkti queer skrýtin/nn/ð. Orðið gay er komið úr forn-frönsku (gai sem þýddi glaður). Þegar að fór að líða að 15. öldinni var orðið komið inn í enskuna og bar merkinguna glaður. Síðar fór fólk að beita þessum orðum til þess að uppnefna LGBTQ+ samfélagið. Það æðislega sem hefur gerst á síðustu árum er að samfélagið tileinkaði sér þessi orð og fór að bera þau með stolti.


26

Catamitus Lagalistinn ‘22 Í tilefni hinseginviku Menntaskólans í Reykjavík, settum við

Catamitus saman einn víðtækan lagalista. Hér má finna lög eftir hinsegin tónlistarfólk, lög um hinsegin málefni og örfá lög með hinsegin… orku?

Þið getið nálgast lagalistann með því að skanna strikamerkið hér fyrir neðan:


Hvað í andskotanum þýðir eiginlega kyn???? Málsögulegar pælingingar um þetta orðskrípi Katrín Valgerður

Orðin „sex“ og „gender“ renna saman í eina þýðingu á íslensku: „kyn“. Samt sem áður er ákveðinn merkingarmunur sem ligggur í þessum ensku orðum og helst það í hendur við að orðið „kyn“

hefur fleiri en eina merkingu á íslenskri tungu. Í hugum sumra er munurinn á þessum orðum lítill sem nánast enginn. Sem sagt sumir lifa í þeirri þröngsýni að orðið „kyn“ eigi einungis að gera greinarmun

á

því

hvort

að

þú

berir

XX

kynlitninga

samsetninguna eða XY. ,,…upprunarleg merking orðsins „kyn“ er einungis einhver ákveðin flokkun á einhverju.” 27

Orðið „kyn“ er meðal annars notað í líffræðilegum skilningi þegar talað er um kynlitninga, kynfæri, kynlíf og svo framvegis. Einnig er orðið notað þegar talað er um flokkanir lífvera: ættbálkur, mankyn, .... Það síðara kemur ekki á óvart þar sem orðin „kyn“, „gender“ (ens.) og „genre“ (ens.) eru öll skyld. Það er að segja, upprunarleg merking orðsins „kyn“ er einungis einhver ákveðin flokkun á einhverju.


„Kyn“ er auðvitað líka notað í málfræðilegum skilningi, sem sagt kvk., kk. og hvk. eins og við þekkjum í íslensku. Má þó segja frá því að uppruni þess að flokka fallorð eftir málfræðilegu kynunum þremur kemur frá frumindóevrópsku. Fræðimenn eru þó flestir sammála um að í frumindóevrópsku hafi kynin ekki verið þrjú í byrjun, heldur tvö: karlkyn (notað yfir lifandi hluti) og hvorukyn (notað yfir dauða hluti). Kvenkynið varð til seinna sökum viðskeytisins „-*ā“, eða „-*h2“ . Orðið „sex“, er aftur á móti óskylt fyrrnefndum orðum og gæti það

mögulega skýrt merkingarmun orðanna í dag. Orðin „gender“ og „sex“ eru bæði latnesk að uppruna: „genus“ (stofn: „gener“) og „sexus“ (stofn: „sex“). „Genus“ (lat.) er komið af frumindóevrópska orðinu „*génh1os“ sem

28

merkir kynþáttur (race) eða ætterni (lineage). Latneska orðið „genesis“ (frá forngrísku: „γένεσις“), sem er nafn fyrstu bókar gamla testamentsins, er komið af þessu orði og merkir það upphaf, byrjun, sköpun eða fæðingartími. Seinna, af „genus“ hefur orðið „genre“ sem barst í enskt mál frá frönsku.


29

Orðið „sexus“ (lat.) komið frá orðinu „*séksus“ (FIE.) af stofninum „*sék-“ (FIE.) og merkir hann að skera/klippa niður (to cut), það er að segja skipting (í kvenkyn og karlkyn). Við má bæta að latneska orðið „signum“ (enska: „sign“) og íslenska/fornnorræna orðið „sigg“ er komið af sama „*sék-„ stofninum. Samt sem áður er íslenska/frumnorræna orðið „kyn“ komið af nákvæmlega sama frumindóevrópska stofni og „genus“

nema hér hefur orðið farið aðra leið í gegnum frumgermönsku og orðið „*kunją„ áður en það varð „kyn“ eða eins og það finnst í ensku: „kin“.

*Frumindóevrópska og frumgermanska eru einungis þekkt í endurgerðum byggðar á sögulegum málvísindum en eru ekki til í rituðum heimildum.


30

Hvaða hinsegin ICON ert þú? Hildur Ósk

Hefur þú einhvern tíman velt fyrir þér hvers konar icon þú værir, ef svo er þá er hér fullkomið quiz fyrir þig til að finna út úr því!

1.Hvaða orð lýsir þér best?

2. Hvernig tónlist hlustar þú

13 stig: Vinaleg/t/ur

mest á?

9 stig: Sjarmerandi

13 stig: Rock

5 stig: Jarðbundin/ð/nn

9 stig: Hip-Hop/Rap

1 stig: Klár/t

5 stig: Pop/Indie 1 stig: Klassíska

3. Hvað gerir þú oftast í frítíma þínum? 13 stig: Hitti vini 9 stig: Hreyfi mig 5 stig: Slaka á 1 stig: Læri

4. Hvernig tekur þú oftast á við vandamálin þín? 13 stig: Tekst strax á við þau 9 stig: Gleymi þeim 5 stig: Fæ hjálp frá öðrum 1 stig: Hugsa lengi út í þau


31

4. Hvernig tekur þú oftast á við vandamálin þín? 13 stig: Tekst strax á við þau 9 stig: Gleymi þeim 5 stig: Fæ hjálp frá öðrum 1 stig: Hugsa lengi út í þau

5. Í hvernig fötum mætir þú í partý? 13 stig: Eitthverju þæginlegu 9 stig: Flottustu fötunum 5 stig: Nýjum fötum 1 stig: Smart fötum

6. Hversu miklu máli skiptir

7. Hvað kannt þú mest að

útlit þitt fyrir þér?

meta við sjálft þig?

13 stig: Pæli ekki í því

13 stig: er skemmtileg/t/ur

9 stig: Mjög miklu

9 stig: er fyndin/ð/nn

5 stig: Ekkert sérlega miklu

5 stig: er metnaðarfull/ur/t

1 stig: Aðrir hlutir eru

1 stig: er traust/ur

mikilvægari 8. Hvernig myndir þú eyða föstudagskvöldi? 13 stig: kósý með kæró 9 stig: Fara í partý 5 stig: Hitta vini 1 stig: klára heimanámið


32

10. Ef þú gætir verið með ofurkrafta hvaða kraftar væru það? 9. Hversu mikinn metnað

13 stig: Geta flogið

leggur þú í klæðaburð þinn?

9 stig: Hafa ofurstyrk

13 stig: Er bara í þægilegum fötum

5 stig: Hafa lækningakrafta

9 stig: Fer í hvað sem ég vil

1 stig: Vera skyggn

5 stig: Hef mikinn áhuga á fötum 1 stig: Reyni mitt besta

Freddie Mercury: 96-130 stig Þú ert mjög viðkunnanlegur einstaklingur og fólki líkar við að vera í kringum þig. Þú gerir það sem þér sýnist því þér er sama um hvað öðru fólki finnst um þig. Þú kannt að forgangsraða og lætur utanaðkomandi hluti ekki hafa of mikil áhrif á þig. Þú tekur lífinu ekki of alvarlega og kannt að hafa gaman með vinum þínum.


33

Billy porter: stig 66-95 stig Þú kannt svo sannarlega að skemmta þér. Þú ert mikil félagsvera sem

lætur sig ekki vanta í nein party. Þú ert mjög hrífandi og fyndinn einstaklingur. Þú veist nákvæmlega hvað þú villt og hvernig á að gera hlutina. Hvert sem þú ferð tekur fólk eftir þér og þú hefur ekkert á móti því.

Lady Gaga: 36-65 stig Þú hefur marga góða eiginleika upp á að bjóða og allt sem þú leggur þig fram við gerir þú upp á hundrað. Þú ert mjög jarðbundin og róleg manneskja sem tekur frá tíma af og til, til þess að slappa af. Samt sem áður kannt þú að skemmta þér konunglega með vinum þínum og ert þeim mjög góður og traustur vinur.


34

Marsha P. Johnson 10-35 stig Þú ert afskaplega klár og veist hvað það er sem þú vilt. Þú pælir mikið í hlutunum og tekur skynsamlegar ákvarðanir. Þú ert mjög traustur vinur sem þeir geta leitað til hvenær sem er. þú ert mjög yfirvegaður einstaklingur sem leggur þig allan fram við það sem þú telur mikilvægt.

Takk fyrir okkur!


35


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Catamitus 2021-2022 by emblawaage - Issuu