3 minute read

ÁVARP FRAMKVÆMDASTJÓRA

Við tókum stórt skref árið 2020 þegar við hófum innleiðingu á nýrri stefnu sem var sniðin að nútímasamfélagi með loforði okkar að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku um að: „Það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli.“ Við vitum að velgengni til framtíðar mun ráðast af trausti og ímynd og markmið okkar hjá ELKO er að standa okkur gagnvart viðskiptavinum, starfsfólki, samstarfsaðilum og samfélaginu í heild.

Sem fyrirtæki berum við töluverða ábyrgð gagnvart viðskiptavinum okkar löngu e ir kaup þeirra á vörum og endurspeglast það einna helst í þeim tugþúsundum verkbeiðna á ári hverju sem eru tilkomnar vegna tækja sem þurfa skoðun, viðgerð eða ráð öf um notkun. Því er ekki að ástæðulausu að árið 2022 bar innra starf ELKO yfirskri ina „ár e irkaupaþjónustu“. Í þeim málaflokki var stærsta verkefnið innleiðing á nýju þjónustupantanakerfi sem kemur til með að bæta þjónustu, draga úr sóun hjá fyrirtækinu og len a lí íma tækja á markaðnum með öflugum viðgerðarferlum.

Ig

ELKO lagði á árinu mikla áherslu á mannauðinn og var verkefnið „Besti vinnustaðurinn“ tekið þriðja árið í röð. Niðurstöðurnar létu ekki á sér standa enda jókst ánæ a starfsfólks úr 4,18 í 4,31 milli ára og fengum við viðurkenningu sem Fyrirtæki ársins hjá VR, í fyrsta skipti sem við tókum þá . Því til viðbótar fengum við viðurkenningu „Jafnvægisvogar FKA“ fyrir jöfn kynjahlu öll stjórnenda sem og viðurkenningu frá CreditInfo fyrir „Framúrskarandi fyrirtæki“. Á árinu lögðum við mikla áherslu á þjálfun og fræðslu starfsfólks og sannaði ný stöðugildi þjálfunarstjóra sig með því að búa til öflugri ráð afa fyrir viðskiptavini ELKO. Þá var fræðslustarfið ekki eingöngu inn á við, heldur sneri það einnig að viðskiptavinum og almenningi. Á árinu var meðal annars haldin foreldrafræðsla um rafíþró ir og heilbrigða nálgun í notkun tölvuleikja.

Styrktarsjóður ELKO var tvöfaldaður á árinu og voru styrkt ótal skemmtileg verkefni, en umfangsmesta verkefnið var þegar ELKO gaf heimilistæki í há í 60 íbúðir sem standse ar voru fyrir fló afólk frá Úkraínu.

Fl Ttaf Lk

Dregið var úr prentun ELKO-blaðsins sem hefur verið stoð markaðsmála í gegnum árin og stefnum við að því að draga enn meira úr prentun árið 2023. Pappírslaus lánaviðskipti voru innleidd hjá fyrirtækinu á árinu og er reksturinn nú að mestu pappírslaus. Síðasta vígið verður unnið á þessu ári þegar við útrýmum afhendingarseðlum. Á árinu var svo gerð tilraun í Skeifunni með notkun auglýsingaskjáa í stað prentaðs efnis og gekk hún framar öllum vonum. Við stefnum því að því að innleiða skjái í allar ELKO-verslanir fljótlega.

Ráðist var í ítarlega naflaskoðun til að skoða hvernig ELKO gæti lagt si af mörkum í umhverfismálum til framtíðar. Í kjölfarið se um við fyrirtækinu ný langtímamarkmið sem skráð eru í nýrri umhverfisstefnu sem er kynnt til leiks í þessari skýrslu. Áhersla er lögð á hringrásarhagkerfið þar sem við tökum þá í og styðjum við verkefni til að lágmarka áhrif ra ækjaúrgangs á Íslandi. Gerður var samstarfssamningur við Laufið og ráðist í að skoða hvaða grænu skref og lauf ELKO hafði þegar uppfyllt sem og að gera áætlun um hvaða skref yrðu se í forgang. Úr þeirri vinnu urðu til ný skammtímamarkmið sem við se um okkur fyrir árið 2023.

Fjölmörg skref hafa verið stigin til að gera viðskiptavinum klei að nýta stafræna tækni við kaup á ra ækjum til að draga úr bílaumferð. Þar má helst nefna myndsímtal ELKO þar sem viðskiptavinir geta fengið persónulega þjónustu í rauntíma heima hjá sér í gegnum netið þar sem söluráð afi aðstoðar viðskiptavin, ber vörurnar rafrænt saman og setur þær í körfu fyrir viðskiptavin á elko.is. Dreifing hefur einnig þróast gríðarlega og dreifir ELKO í yfir 60 póstbox með póstinum, á yfir 70 afhendingarstaði í gegnum Dropp og keyrir beint heim að dyrum sé þess óskað. Öflugt dreifingarnet gerir ELKO klei að minnka umferðarálag og nýta hagkvæmni stærðarinnar í útkeyrslum.

Mikill árangur náðist með því að koma notuðum tækjum a ur í hringrásarhagkerfið en ELKO keypti yfir 4.000 tæki á árinu á móti 2.100 tækjum árið á undan. Þá fjölguðum við einnig flokkum tækja sem við tökum á móti. Við stóðum okkur betur í að flokka úrgang frá rekstri fyrirtækisins og drógum úr hlu alli óflokkaðs úrgangs frá starfseminni.

Við í ELKO erum gríðarlega þakklát fyrir viðskiptavini okkar sem halda okkur á tánum og hvetja okkur til að bjóða betri þjónustu og sýna aukna samfélagslega ábyrgð. Eins erum við ótrúlega stolt af starfsfólki okkar sem hefur staðið sig eins og hetjur í krefjandi umhverfi með framúrskarandi þjónustu sinni.

Við ætlum að gera betur í samfélagsmálum enda snerta þau allt okkar umhverfi, inn á við sem og út á við. Sem traustir ráð afar í ra ækjum ætlum við að hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni og gera líf viðskiptavina okkar betra, þægilegra og skemmtilegra.

This article is from: