1 minute read

ÞROSKAHJÁLP OG

Virtual Dream Foundation

ELKO studdi við verkefni Virtual Dream Foundation og Þroskahjálpar með því að útvega sjö Meta Quest VR sýndarveruleikagleraugu. Verkefnið fólst í því að búa til sýndarveruleika fyrir fólk með þroskahamlanir til að æfa sig að framkvæma athafnir sem virðast framandi eða ógnvekjandi í fyrstu. Fólk getur því æft sig þar til það er orðið nógu öruggt til að stíga skrefin í raunveruleikanum. Búnar voru til sviðsmyndir í samvinnu við kjörstjórn í Reykjavík, Strætó, Reykjadal og Bjarkarhlíð hvernig það væri að kjósa, taka strætó, mæta í sumarbúðir og leita sér aðstoðar sem þolandi ofbeldis.

Heilbrig

Rafíþróttir eru sífellt að verða umsvifameiri í samfélaginu og ekki síst hjá börnum. Því er mikilvægt að nálgast tölvuleikjaiðkun með heilbrigðu og góðu hugarfari og spila tölvuleiki á jákvæðan hátt.

Foreldrafr Sla

ELKO bauð foreldrum upp á fræðslukvöld um rafíþróttir þar sem Arnar Hólm hélt fyrirlestur um heilbrigða nálgun barna og unglinga að rafíþróttum og hvernig rafíþróttaiðkun getur haft jákvæð áhrif í daglegu lífi. Einnig var farið yfir hvernig foreldrar og börn geta átt í opnum samskiptum um rafíþróttir.

Fr Slub Klingur Fyrir Foreldra Um Raf R Ttir Og Heilbrig An L Fsst L

ELKO, í samstarfi við Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) og Samfés, gaf árið 2021 út fræðslubækling til foreldra um rafíþróttir og heilbrigða nálgun sem ætlaður var sem fróðleikur fyrir foreldra og tölvuleikjaspilara. Bæklingurinn var aðgengilegur í verslunum ELKO og er hægt að skoða hann

Elko Firmam Ti

„ÖFLUGT SAMSTARF VIÐ RAFÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS“ á elko.is en honum var einnig dreift rafrænt á póstlista

ELKO, ásamt að vera legur í fræðslustarfi RÍSÍ sem og á viðburðum á vegum Samfés.

LÍKAMI & SÁL

ELKO, í samstarfi við Rafíþróttasamband Íslands hefur staðið að rafíþróttamóti meðal fyrirtækja undir nafninu ELKO firmamótið í rafíþróttum. Þar sem mótið var fært til á almanaksárinu þá fór mótið ekki fram árið 2022 en undirbúningur við mótið stóð yfir á haustmánuðum

2022 og fór mótið af stað í janúar

2023. Mótið skapar vettvang fyrir starfsfólk fyrirtækja að taka þátt í sameiginlegu áhugamáli. Reynslan hefur verið sú að það skapast mikil samstaða innan fyrirtækja sem taka þátt í mótinu og miðað við þátttöku þá virðist firmamótið vera komið til þess að vera.

ELKO-BLOGGIÐ

Bloggið er vettvangur þar sem ELKO gefst tækifæri til þess að fræða og miðla upplýsingum til viðskiptavina. ELKO-bloggið stuðlar að hlutverki fyrirtækisins, að hjálpa öllum að njóta ótrúlegrar tækni. Þar er að finna upplýsingar eða fræðslu um vörur, notkun á mismunandi vörum, nýjungar, þjónustu eða öryggismál, svo eitthvað sé nefnt.

Bloggið þjónar einnig tilgangi fréttaveitu fyrirtækisins, sem er svo almennt miðlað áfram á þá miðla þar sem ELKO hefur haslað sér völl á. Má þar einna helst nefna Facebook, Instagram og Linked-In.

This article is from: