Hรถfundur: Gudmundson
Leikstjรณri: Jรณel Sรฆmundsson
sรถngleikurinn
Vor 2018
MYSTERY BOY Mystery Boy fæddist undir fullu tungli um aldamótin 2000. Hann kom fullskapaður inn í heiminn eins og dularfull, dansandi eiturslanga. Mystery Boy er gjörsamlega hlutlaus á allt og alla en passaðu þig, hann magnar upp þá tilfinningu sem hann finnur í þér og sendir hana tvöfalt sterkar út í heiminn. Hann er gleðin, kvíðinn, hamingjan, reiðin og umfram allt, ástin. Hann er einstakur, eins og þú. Sumir segja meira að segja að hann sé holdtekja Guðs. Líttu upp. Sérðu ljósið. Einbeittu þér. Láttu þetta ljós skína í gegnum þig og leyfðu því að magnast upp í heim sem engan enda tekur. Við erum eilíf. Ástin er eilíf.
LEIKSTJÓRINN Kæri leikhúsgestur, vertu hjartanlega velkomin á Söngleikinn (sannleikinn?) Mystery Boy. Leikhús er hús þar sem fólk leikur sér, hefur gaman, skapar nýjan heim, uppgötvar eitthvað framandi, breyttir hugsunum, opnar hugann eða hreinlega bara leyfir sér að gleyma stað og stund í eina kvöldstund og njóta töfranna. Söngleikurinn Mystery Boy er dæmi um allt þetta. Það er alls ekki sjálfgefið að hafa leikfélag í bæjarfélaginu sínu, hvað þá svona öflugt eins og Reykjanesbær hefur! Það kostar miklar fórnir að halda því gangandi, stjórn, leikarar, tæknifólk, búningarhönnuðir, sviðsmyndahönnuðir, tónlistarmenn og enn fleira. Allt eru þetta einstaklingar sem fórna til þess frí- og fjölskyldutíma. Þegar ég kom fyrst í Frumleikhúsið datt mér ekki í hug hversu flott og metnaðarfullt starf er unnið hérna, aðstaðan er eins og best verður á kosið ásamt metnaðarfullri stjórn sem býr yfir fullt af hæfileikafólki í hverri stöðu. Þið í Reykjanesbæ getið verið virkilega stolt af því að hafa svona flott leikfélag í bænum ykkar og ég vona að þið verðið dugleg að koma á sýningar hjá þeim og styðja þau. Þið verðið ekki svikin af því, enda leitun að metnaðarfyllra leikfélagi. Ég vil svo að lokum bara segja takk fyrir mig og ég vona innilega að þið njótið afraksturs alls erfiðisins hjá þessu glæsilega leikfélagi og ég get ekki sleppt því að nefna höfundinn af söngleiknum og tónlistarmanninn, Smára, að búa til svona flott verk og vona ég að hann eigi eftir að skrifa fleiri leikrit í framtíðinni. Og síðast en ekki síst og eitthvað sem ég bjóst ekki við að segja, (í ljósi þess að ég er náttúrlega KR-ingur) ÁFRAM KEFLAVÍK!
Jóel Ingi Sæmundsson - leikstjóri
G L Ó R A D E S I G N
I
C O N S U L T I N G
I
P L A N N I N G
Við styðjum við öflugt menningarlíf
MYSTERY MENTOR Stefán Örn Gunnlaugsson sem hefur umsjón með tónlistinni hefur unnið við upptökustjórn og útsetningar í fjölmörg ár. Hann gefur sjálfur út undir listamannsnafninu ÍKORNI. Stefán hefur spilað í hljómsveitum eins og Buff, Ritvélar Framtíðarinnar og Lights On The Highway. Stefán hefur unnið ýmis leikhússtörf en hann samdi til að mynda tónlistina í Núnó og Júnía fyrir Leikfélag Akureyrar og var tónlistarstjóri söngleiksins Revolution in the Elbow of Ragnar Agnarsson Furniture Painter sem settur var upp í Minetta Lane Theater á Off-Broadway í New York.
HEIÐRUÐU LEIKHÚSGESTIR Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á söngleikinn „Mystery Boy“. Það er ljóst að í mörg horn er að líta þegar setja á upp leiksýningu, hvað þá söngleik, hvað þá söngleik með lifandi tónlist, hvað þá frumsaminn söngleik frá Suðurnesjamanni með lifandi tónlist. Frá því að Smári, höfundur verksins, kom til okkar og kynnti fyrir okkur hugmynd sem hann gekk með í maganum um að gera söngleik um fyrirbærið „Mystery Boy“ vissum við öll að ekki yrði aftur snúið. Í kjölfarið á stórkostlegri velgengni sýningarinnar um Dýrin í Hálsaskógi sem sett var upp fyrir áramót og sló öll met er því vel við hæfi að breyta um kúrs og bjóða leikhús- og tónlistaráhugafólki upp á heimagerðan söngleik.
Samstarf okkar við höfundinn og seinna leikstjórann, Jóel Sæmundsson, hefur verið einstaklega gjöfult og áreynslulaust. Að fá að vinna með svona snillingum gerir alla framkvæmd verksins mun auðveldari sérstaklega í ljósi þess að öll þau ágreiningsmál sem óhjákvæmilega koma upp í svona ferli hafa verið leyst í mesta bróðerni og með hag sýningarinnar fyrir brjósti. Við getum með sanni sagt að allir þeir sem koma að sýningunni skili sínu af fagmennsku og þá skiptir ekki máli hvort um sé að ræða hljóðmenn, hljóðfæraleikara, sviðsmenn, sminkur, ljósahönnuði eða aðra. Nú er komið að því að sýna ykkur afrakstur vinnu sem hefur staðið yfir í rúmt ár og að baki henni liggja fleiri þúsund vinnustundir sem að langmestu leyti eru unnar í sjálfboðavinnu. Sú spurning sem þátttakendur í svona verkefni fá hvað oftast er einmitt „…og hvað færðu fyrir þetta?“. Ánægjan og lófatak áhorfenda eru einu launin sem við fáum og þess vegna er mikilvægt að sem flestir njóti þess með okkur, komi og sjá þetta fallega verk. Beint frá býli, ómengað, lífrænt ræktað bláfánaverk sem aldrei hefur sést áður. Endilega hvettu samferðamenn þína til þess að koma og kíkja á okkur. Að lokum viljum þakka öllum sem hafa séð sér fært að aðstoða okkur við framkvæmdina og vonum að þú njótir sýningarinnar og hrífist með okkur. Stjórn Leikfélags Keflavíkur 2017-2018
Davíð Örn Óskarsson Halla Karen Guðjónsdóttir Arnar Helgason Guðlaugur Ómar Guðmundsson Þórhallur Arnar Vilbergsson Yngvi Þór Geirsson
MOJOuppskrift DJÚS 6 cl bourbon Safi úr ½ sítrónu 1 tsk. flórsykur Allt hrist saman ásamt klaka, hellt í viskíglas og skreytt með kirsuberi. Einnig má gera drykkinn líflegri með því að toppa með örlitlu sódavatni.
HAFNARGÖTU 36 A
TJÓNIÐ BÆTT Á 60 SEKÚNDUM VIÐSKIPTAVINIR TM GETA NÚ TILKYNNT TJÓN MEÐ APPI
Í appinu er hægt að tilkynna öll algengustu tjón sem verða á heimilismunum og þar hafa viðskiptavinir þægilega yfirsýn yfir sín tryggingamál.
HUGSAÐU Í FRAMTÍÐ OG NÁÐU Í APPIÐ Í APP STORE EÐA GOOGLE PLAY
HÖFUNDURINN Við erum eitt, öll saman eitt. Lögmál náttúrunnar byggjast á samvinnu ólíkra þátta sem mynda eina heild. Þetta sjáum við í árstíðum, nótt og degi, hringrás tímans í fæðingu, vexti, þroska, hrörnun, dauða og endurfæðingu. Þau lögmál eiga svo sannarlega við um leikhúslífið líka. Ég sem höfundur var ótrúlega heppinn að koma inn í hóp þar sem allir voru tilbúnir að leggja hart að sér til þess að ná fram sem sterkastri heildarmynd. Sannleikurinn er sá að við búum öll yfir heilmiklum sköpunarmætti sem bíður þess að verða virkjaður og við náðum svo sannarlega að virkja hvert annað. Orkan sem myndaðist í æfingaferlinu var svo falleg og tær og það gerist þegar allir vinna saman, deila hugmyndum, miðla reynslu og vinna að sameiginlegu markmiði. Þessi orka og kraftur var eins og vöðvi sem stækkaði og styrktist í gegnum allt ferlið og stendur nú stöðugur og olíuborinn og er tilbúinn að láta sýna sig. Á frumsýningardag eru 18 mánuðir síðan ég fór í meðferð. Mér líður betur, mér gengur betur, ég er sterkari andlega og líf mitt er sannarlega innihaldsríkara. Ég hefði ekki haft drifkraftinn, orkuna né sköpunarkraftinn til að semja og setja upp þennan söngleik í minni fíkn. Þessi viðsnúningur í mínu lífi byrjaði allt á því að ég viðurkenndi vanmátt minn gegn áfengi og að ég gæti ekki lengur stjórnað eigin lífi. Allir alkóhólistar eiga við skapgerðarbresti að glíma. Þeir drekka til að flýja lífið, til að vinna bug á einmanaleika eða minnimáttarkennd, eða vegna einhvers tilfinningastrits innra með þeim. Alkóhólismi er sjúkdómur, sjúkdómur sem ekki verður læknaður að fullu, aðeins gerður óvirkur þannig að lifa má eðlilegu lífi svo lengi sem áfengis er ekki neytt. Ég er einn af þeim heppnu sem fékk rétta hjálp og réttu verkfærin til að breyta þeim þáttum í lífi mínu sem drógu úr getu minni til að stjórna huganum. Núna er ég að brýna þessi verkfæri svo ég geti lánað þau áfram. Þessi söngleikur er eitt af mínum verkfærum. Þetta söngleikja ferli var mjög lærdómsríkt fyrir mig og gleðin að fá að kynnast og umgangast allt þetta fallega og skemmtilega fólk sem kom að verkinu hefur gert mig að betri manni. Takk fyrir mig baby cats. Ps. Án þess að vita það, þá staðfesti ég það samt: Leikfélag Keflavíkur er besta áhugamannaleikhús í heimi. Mystery Boy elskar ykkur.
Smári Guðmundsson, höfundur.
LEIKARAR: Kreisí: Smurf: Tómas: Lúlli létti: Olli: Sibba:
Fríða Dís Guðmundsdóttir Arnór Sindri Sölvason Guðlaugur Ómar Guðmundsson Arnar Ingi Tryggvason Jón Bjarni Ísaksson Ríta Kristín Haraldsdóttir Prigge
GENGIÐ: Lucy: Gitta: Frank: Rúnni: Tumi: Mjallhvít: Gloria:
Hulda Björk Stefánsdóttir Birgitta Ösp Smáradóttir Andri Snær Sölvason Elmar Aron Hannah Arnar Helgason Guðrún Elva Níelsdóttir Birta Rut Tiasha Sigfúsdóttir
HLJÓMSVEIT: Hljómsveitarstjóri: Bassi: Rafgítar: Svuntuþeysir: Saxafónn:
Smári Guðmundsson Arnar Ingólfsson Viktor Atli Gunnarsson Ástþór Sindri Baldursson Jón Böðvarsson
Nýjar vörur frá geoSilica®
geoSilica Iceland ehf. – Sími: 571 3477 – www.geosilica.is
Fríða Dís
Arnór Sindri
Guðlaugur Ómar
Arnar Ingi
Jón Bjarni
Ríta Kristín
Hulda Björk
Birgitta Ösp
Andri Snær
Elmar Aron
Arnar
Guðrún Elva
Birta Rut
Smári
Arnar
Viktor Atli
Ástþór Sindri
Jón
Á BAKVIÐ TJÖLDIN
Höfundur:
Gudmundson
Leikstjóri:
Jóel Ingi Sæmundsson
Höfundur tónlistar: Gudmundson og MysteryBoyBand Höfundur söngtexta: Gudmundson og Fríða Dís Guðmundsdóttir Tónlistarstjórn: Stefán Örn Gunnlaugsson, Smári Guðmundsson Ástþór Sindri Baldursson Ljósahönnun: Þórhallur Arnar Vilbergsson Leikmyndahönnun:
Davíð Örn Óskarsson
Sviðsvinna: Arnar Helgason Davíð Örn Óskarsson Sumarliði Þorsteinsson Hópurinn Ljósakeyrsla: Yngvi Þór Geirsson Hljóðvinnsla: Stefán Örn Gunnlaugsson Smári Guðmundsson Ástþór Sindri Baldursson Hljóðkeyrsla: Smári Guðmundsson Þórhallur Arnar Vilbergsson Adolf Marinósson Búningar: Ásdís Erla Guðjónsdóttir Halla Karen Guðjónsdóttir Hópurinn Aðstoð við söng: Halla Karen Guðjónsdóttir Förðun: Jóhanna Jeanne Caudron Þuríður Birna Björnsdóttir Debes Hópurinn Dans: Jóhanna Jeanne Caudron Hópurinn Ljósmyndir í leikskrá: Davíð Örn Óskarsson Hönnun forsíðu:
Davíð Örn Óskarsson
Hönnun og umbrot leikskrár:
Grafíksmíði
SÉRSTAKAR ÞAKKIR Reykjanesbær Menningarsvið Reykjanesbæjar Álnabær ICE BIKE Uppsláttur Þórdís Thelma Arnarsdóttir Kiwanisklúbburinn Keilir Björgvin Ívar Baldursson & Gunnar Skjöldur Baldursson fyrir alla aðstoðina í gegnum tíðina. Fjölskyldur og aðstandendur leikhópsins fyrir ómetanlega þolinmæði á meðan á æfingarferlinu stóð.
Yoga Crossfit Þitt form Fótbolti Superform Hópþjálfun Einkaþjálfun Opnir hóptímar ALLAR UPPLÝSINGAR UM VERÐ OG ÞJÓNUSTU Á WWW.SPORTHUSID.IS
SNJALLÖRYGGISAPPIÐ ER NÝ LAUSN FYRIR HEIMILI - öryggiskerfi sem þú hefur í hendi þér. Þú getur stýrt Snjallörygginu þínu hvar og hvenær sem er og búið til þínar eigin snjallreglur. Með Snjallöryggisappinu getur þú:
Gert öryggiskerfið virkt og óvirkt
Fylgst með hvort hurðir séu opnar
Fylgst með hitastigi
Opnað fyrir myndavélar og upptökur
Fylgst með reykskynjara
Fengið tilkynningu um vatnsleka
Stjórnað lýsingu með snjallperum
Stjórnað raftækjum
ÞÚ STJÓRNAR VIÐ VÖKTUM SNJALLÖRYGGI Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 – Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400 – Nánar á oryggi.is