20 ára afmælissýning Frumleikhússins
VOR 2017
Höfundur handrits og tónlistartexta Howard Ashman Höfundur tónlistar Alan Menken Byggt á kvikmynd eftir Roger Corman, handrit eftir Charles Griffith. Upphaflega framleitt af WPA theatre (Kyle Renick, framleiðslustjóri) í Orpheum theatre, New York City af WPA theatre, David Geffen, Cameron Mackintosh og Shubert samtökunum. Þýðing á bundnu máli Megas Þýðing á lausu máli Gísli Rúnar Jónsson Leikstjóri Þorsteinn Bachmann Söngstjóri Arnór Vilbergsson
Ágæti leikhúsgestur, Velkomin í Frumleikhúsið! Í ár eru eins og flestir ættu að vita 20 ár frá því að Frumleikhúsið var tekið í notkun. Til að fagna þeim tímamótum ákvað stjórn félagsins að setja upp stórann söngleik þar sem engu yrði til sparað og varð Litla hryllingsbúðin fyrir valinu. Það er óhætt að segja að sýning sú sem þú ert í þann mund að fara að sjá er ein sú íburðamesta sem félagið hefur sett upp síðustu árin hvort sem litið er til sviðsmyndar, ljósa eða hljóðs. Æfingaferlið hefur verið langt, strangt en gríðarlega lærdómsríkt enda leikstjórinn, Þorsteinn Bachmann, einn af okkar bestu mönnum og standa honum fáir ef nokkrir jafnfætis þegar kemur að listum leikhússins. Að setja upp sýningu sem þessa krefst mikillar vinnu, fórnfýsi, þolinmæði og hæfileika og ef við hefðum ekki alla þessa óeigingjörnu einstaklinga sem gefa alla vinnu sína værum við ekki með neitt í höndunum. Félagsauðurinn sem félagið býr yfir verður seint færður til bókar og viðurkenndur af löggiltum endurskoðendum en þrátt fyrir það er það sá auður sem er félögum sem þessu hvað verðmætastur. Þegar mikið liggur við er alltaf hægt að finna einhvern sem
þekkir einhvern sem á fjarskyldan frænda sem mögulega getur reddað vinstra horni af þríhyrndum þriggja vetra hrút eða hvaða dyntir það eru sem leikstjórar bíta í sig hverju sinni og stendur uppá okkur hin að redda. Að þessu sinni voru ótal mörg fyrirtæki sem sáu sér fært að styrkja félagið með einum eða öðrum hætti og erum við afskaplega þakklát fyrir það að fyrirtæki hér á svæðinu og víðar skulu átta sig á mikilvægi svona starfs fyrir samfélagið. Eftir sem áður væri svona starf og þær ótal vinnustundir sem í það fara lítils virði ef ekki væri fyrir áhorfendur sem koma og sjá sýningar hjá okkur, upplifa eitthvað nýtt og verða fyrir hughrifum sem enginn miðill nema leikhúsið getur boðið uppá. Þakka þér kærlega fyrir komuna áhorfandi góður, breiddu út boðskapinn og vertu ævinlega velkominn aftur. Stjórn Leikfélags Keflavíkur 2016-2017 Davíð Örn, Gustav Helgi, Halla Karen, Guðný, Sólrún, Brynja Ýr og Yngvi Þór.
Til hamingju með sýninguna
hún hefur sýnt mér og einnig fyrir óeigingjarnt starf í þágu þessarar sýningar. Ég vil einnig óska félaginu til hamingju með 20 ára afmæli Frumleikhússins. Ég vil þakka þeim tæknimönnum sem komið hafa að sýningunni fyrir gott og gjöfult samstarf og aðstoðarleikstjóra. Formanni leikfélagsins þakka ég einnig náið og gott samstarf sem og söngstjóra sýningarinnar. En fyrst og fremst þakka ég leikurum sýningarinnar fyrir skemmtilegt ferðalag. Þið hafið verið mér sem ein stór fjölskylda sem mér þykir vænt um og vona svo sannarlega að þið náið að láta ljós ykkar skína nú og í komandi framtíð. Þið eruð stjörnurnar, einlæg, hugrökk og skýr.
Hugleiðing leikstjóra Í ár eru liðin nítján ár frá fyrri uppfærslu undirritaðs með félaginu en það var á Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey sem frumsýnt var í Frumleikhúsinu þ. 17 apríl 1998. Þetta er eftirminnileg sýning og það var skemmtilegur og samheldinn leikhópur þar á ferð. Það var ekki síst vegna fyrri kynna við leikhúsið og fyrrum formann félagsins sem ég ákvað að slá til og vera með að þessu sinni. Vinnan við uppsetningu Litlu Hryllingsbúðarinnar hefur verið einkar skemmtileg. Það er samstilltur hópur sem kemur að verkinu. Í hópnum eru fjölmargir frambærilegir söngvarar og nokkrir alveg hreint framúrskarandi. Slíkt er vitaskuld heppilegt þegar um söngleik er að ræða. Einhverjir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði sem er alltaf spennandi og óhætt er að segja að um nokkra endurnýjun sé að ræða í hópnum. Litla Hryllingsbúðin er stór sýning. Öll umgjörð hennar stór bæði tæknilega og listrænt séð. Verkið er öðrum þræði “paródía” á aðra söngleiki og svokallaðar B-myndir frá miðri síðustu öld. Tónlistin er því að vissu leyti sundurlaus, þ.e. í verkinu blandast saman ólíkir tónlistarstílar sem kalla svo aftur á ólíka túlkun og útfærslu. Leikmynd og umgjörð sýningarinnar er einnig nokkurs konar blanda af raunsæi og fantasíu þannig að töluverða útsjónarsemi þarf til að finna hverjum hlut sinn stað. Gnótt leikmuna eru í sýningunni, hröð búningaskipti og alls kyns leikhúsgaldrar framkvæmdir til að þjóna fyrrnefndum tilgangi parodíunnar. Það er ekki sjálfgefið að koma slíku verki á fót á áhuganum einum saman. Ekki síst þegar allir sem að sýningunni koma eru í fullri vinnu eða námi annars staðar. En það hefur tekist og ég vil þakka stjórn leikfélagsins fyrir traustið sem
Það má segja að Litla hryllingsbúðin sé löngu orðin klassískt verk. Hún hefur mikið og gott skemmtanagildi en felur einnig í sér dýpri visku eins og slíkum verkum er títt. Meginhugsun verksins hverfist þannig um græðgina, skilyrta ást, ótta við aðskilnað og fíkn í öllum sínum ógnvekjandi myndum. Á sama tíma og þessu eru gerð skil á einlægan hátt er engu síður verið að gera grín það þessu öllu saman um leið. Verkið er þannig kaldhæðið eins og titillinn gefur ef til vill til kynna. Þannig er leikhúsið og leikhúsformið eiginlega að gera grín að sjálfu sér. Það er því ef til vill heppilegast að horfa á sýninguna eins og við höfum leyft okkur að gera hópurinn: Með dágóðum skammti af kæruleysi. Góða skemmtun.
byko.is
Fyrir tæpum fjórum áratugum var Litla Hryllingsbúðin fyrst tekin til sýninga í litlu leikhúsi á Manhattan í New York. Leikhúsið var til þess að gera lítið og rúmaði færri en 100 áhorfendur á hverri sýningu. Þeir sem að þessari fyrst uppfærslu stóðu grunaði síst hvaða vinsældum hún átti eftir að fagna og hvað þá að nokkrir áhugamenn úr Keflavík á Íslandi myndu leika hana. Vinsældir sýningarinnar ætluðu engann endi að taka eftir að hún var fyrst sýnd og má sem dæmi um þær vinsældir nefna að þegar sýningin var sett upp á West End í London var hún sýnd hvorki meira né minna en 813 sinnum. Hugmyndin að söngleiknum er fenginn frá lítt eftirminnilegri kvikmynd frá árinu 1960 sem segir frá manni sem rekur verslun sem selur mannætuplöntur. Söngleikurinn hefur nokkrum sinnum verið tekinn til sýninga á Íslandi og ávallt átt góðu gengi að fagna. Þegar sýningin var fyrst sett upp hér á landi árið 1985 varð hún strax eitthvert vinsælasta sviðsverk sem sett hafði verið upp fram að þeim tíma, að Fiðlaranum á þakinu undanskildum. Sýningin hefur auk þess verið sett upp í Borgarleikhúsinu árið 1999 og hjá Leikfélagi Akureyrar árið 2006. Leiktextinn er hljómþýður og flýtur vel í skemmtilegri þýðingu Gísla Rúnars og ekki eru söngtextarnir síðri í frábærri þýðingu Megasar sem nær á sinn einstaka hátt að fá óþjála íslenskuna til þess að falla eins og flís við rass að þeim anda sem leitast er við að skapa í sýningunni.
Frumleikhúsið Til hamingju með afmælið 20 ára Frumleikhúsið opnar Þann 7.október 1997 var Frumleikhúsið formlega opnað með pomp og prakt að viðstöddu fjölmenni. Þetta var hátíðardagur í sögu leikfélagsins og vert að halda afmælishátíð í tilefni þess. Það voru glaðir leikfélagar Leikfélags Keflavíkur sem hófu breytingar að Vesturbraut 17, í janúarmánuði árið 1997. Eftir áratuga baráttu fyrir húsnæði undir starfsemi leikfélagsins var loksins komið að því að flytja allt hafurtaskið undir sama þak en fram að því hafði félagið haft takmarkaða aðstöðu hingað og þangað um bæinn bæði fyrir geymslur, æfingaaðstöðu og sýningar. Þar sem áður voru reknir í húsinu skemmti- og veitingastaðir á tveimur hæðum var ljóst að mikil vinna þyrfti að eiga sér stað til að húsnæðið nýttist sem leikhús. Þá þótti einnig ljóst að verkefnið yrði kostnaðarsamt. Félagið fékk tíu milljónir til breytinganna frá Bæjarstjórn Reykjanesbæjar og áttu þær að duga í verkefnið. Yfirumsjón með verkinu höfðu þeir Jón Páll Eyjólfsson og Júlíus Guðmundsson sem lögðu nótt við dag og í raun að öllum öðrum ólöstuðum sáu til þess að verkið kláraðist á ekki lengri tíma. Það þurfti að rífa niður, byggja upp, versla allt sem gott leikhús þarf að hafa eins og pallakerfi,sæti, ljósabúnað ofl. Það voru ófáir félagsmenn sem komu við á Vesturbrautinni á þessu níu mánaða tímabili og lögðu hönd á plóginn og þeim ber að þakka. Þá má heldur ekki gleyma að þakka þeim fjölmörgu aðilum sem lögðu verkefninu lið og of langt yrði að telja upp hér en ég leyfi mér þó að nefna og þakka sérstaklega Haraldi Valbergssyni á teiknistofunni Örk sem gaf allar teikningar, Vélaleiga Sigurjóns
Helgasonar lagði til tæki og tól auk Keflavíkurverktaka sem einnig styrktu verkefnið. Þá er enn óupptalið það vinnuframlag einstaklinga sem lögðu okkur lið við eitt og annað. Ómetanlegt að hafa haft aðgang að þessum mannskap. Bestu þakkirnar fær þó bæjarstjórn þessa tíma sem hafði trú á því að okkur tækist þetta verkefni sem raunin varð. Nafnið “Frumleikhúsið” á Sveindís Valdimarsdóttir en hún sendi félaginu blómvönd stuttu eftir opnun þess með ósk um farsælt starf í “Frumleikhúsinu” og þar með var nafnið komið. Áður höfðu komið upp hugmyndir eins og Skothúsið,Skjöldur ofl.skemmtileg nöfn. Á þessari tuttugu ára sögu Frumleikhússins hafa verið settar á svið tvær stórar sýningar hvert ár auk ýmissa menningartengda viðburða eins og tónleikar og aðrar skemmtanir. Fjölmargir leikstjórar hafa leikstýrt í húsinu og þá er nú gaman að geta þess að nokkrir sem hér léku héldu í leiklistarnám og útskrifuðust sem leikarar. Þrír þeirra hafa m.a. leikstýrt verkum í Frumleikhúsinu, þeir Jón Páll Eyjólfsson, Sigurður Eyberg og Davíð Guðbrandsson.
Sýningin “Stæltu stóðhestarnir” sem frumsýnd var 1998 og sló aðsóknarmet sem enn stendur var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning það árið og sýnd í Þjóðleikhúsinu þar sem
hálfvitarnir, Fálkar, Breiðbandið ofl. Það má heldur ekki gleyma að nefna það öfluga ungmennastarf sem hér er unnið og ófáar sýningar verið settar á svið með börnum og unglingum. Þá hefur samstarf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Vox Arena og verkefnið List án landamæra verið farsælt. Leikfélag Keflavíkur er eitt það öflugasta starfandi leikfélag landsins og er enn fullur rekstur og gróskumikið starf unnið í Frumleikhúsinu og mun klárlega verða svo um ókomin ár enda sem betur fer alltaf til áhugaleiklistarfólk sem er til í að byggja
ð færri komust að en vildu. Aðrar sýningar sem gaman er að nefna og voru vel sóttar eru m.a. Óliver Twist, Gaukshreiðrið, Hin illa Dauðu, Ávaxtakarfan, Krummaskuð, Máttarstólpar þjóðfélagsins ofl. Þá má ekki gleyma revíunum sem alltaf slá í gegn og jólasýningunum sem eru að festast í sessi. Þá er gaman að eiga þær minningar héðan úr húsinu þegar Þjóðleikhúsið kom með tvær sýningar hingað beint úr Þjóðleikhúsinu, Gestinn og Græna landið þar sem keflvíkingurinn Gunnar Eyjólfsson lék aðalhlutverkið í þeim sýningum. Þau Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon frumsýndu verkið Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Sigurðardóttur hér um árið við mjög góða aðsókn. Þá hafa margar hljómsveitir haldið tónleika í Frumleikhúsinu og ber þar fyrsta að nefna stórhljómsveitina Sigurrós en auk hennar komu hér við m.a. Deep Jimi and the Zep Creams, Hjálmar, Hjaltalín, Valdimar, Ljótu
upp og hlúa að góðu leiklistarlífi hér í bæ. Við erum stolt af Frumleikhúsinu okkar og stolt af því starfi sem þar fer fram. Það er alveg ljóst að það að Leikfélag Keflavíkur búi við svo gott húsnæði er grundvöllur allrar starfsemi sem þar fer fram ásamt því góða dugmikla fólki sem þar gefur vinnu sína. Með stolti og þakklæti óska ég Leikfélagi Keflavíkur og bæjarbúum öllum til hamingju með afmæli Frumleikhússins, megi það standa undir nafni um ókomin ár. Guðný Kristjánsdóttir.
Allar sýningar leikfélagsins í Frumleikhúsinu frá opnun 1997 – Leikhúslíf 1998 – Erum við á réttu róli Gaukshreiðrið Máttastólpar þjóðfélagsins Litla stúlkan með eldspýturnar Jólasería 1999 – Stæltu stóðhestarnir Óliver 2000 – Ekkert klám Rauðhetta Krummaskuð 2001 – Bar par
2002 – Í bænum okkar er best að vera Grettir 2003 – Þetta er allt vitleysa Snjólfur Kalda borðið Ráðalausir menn 2004 – fimm Með álfum og tröllum Eftirlitsmaðurinn 2005 – Hans og Gréta Trainspotting 2006 – Keflavík, Ísland, alheimurinn eða mamma þín Öskubuska 2007 – Besti bær Allt í plati
2008 – Bærinn breiðir úr sér Sex í sveit 2009 – Hin illa dauðu Bugsy Malone 2010 – Mér er alveg sama þó einhver sé að hlæja að mér Slappaðu af 2011 – Bærinn bræðir úr sér Jólasaga 2012 – Með allt á hreinu Jólin koma eða hvað?
2013 – Með vífið í lúkunum Hamagangur í hellinum 2014 - Ávaxtakarfan Með ryk í auga 2015 – Killer Joe Rauðhetta 2016 – Eitt töfrateppi, takk! Á stoppistöð 2017 – Litla hryllingsbúðin
Reykjanesbæ
Bar Par
Litla stúlkan með eldspýturnar
Leikhúslíf
Rauðhetta
Stæltir stóðhestar
Krummaskuð
Ekkert klám
Killer Joe
Með ryk í auga
Hamagangur í hellinum
#blueiceland
Ávaxtakarfan
Leikarar
Arnar
Ásdís Rán
Elmar
Guðlaugur Ómar
Guðrún Lára
Guðsteinn
Hörður Bjarmi
Ingvar Jón
Lísa
Sigrún
Sigurður Smári
Sólborg
Sólrún
Yngvi Þór
Hlutverkalisti Arnar Helgason
Ástmar Magnússon o.fl.
Ásdís Rán Kristjánsdóttir Selma Elmar Aron Hannah
Benjamín frá BBC/ Útvarpsmaður o.fl
Guðlaugur Ómar Guðmundsson
Plantan Auður II (rödd) / Róni
Guðrún Lára Árnadóttir
Klinka tannlæknis o.fl.
Guðsteinn Fannar Ellertsson
Rödd Guðs/ Ritsjórinn Hlíf/
Andri Bra Bra o.fl.
Hörður Bjarmi Hallmundsson
Kúnni o.fl.
Ingvar Jón Bates Gíslason
Broddi Sadó
Lísa Einarsdóttir Auður I Sigrún Gísladóttir Bates Margrét Mikkelsen Sigurður Smári Hansson Baldur Snær Sólborg Guðbrandsdóttir Elma Sólrún Steinarsdóttir Telma Yngvi Þór Geirsson
Plantan Auður II (hreyfingar)
Þar sem hönnun, hughrif, fallegur kóði og vingjarnlegt fólk fara hönd í hönd
VIÐ TÓKUM ÁKVÖRÐUN: AÐ VEITA BESTU BANKAÞJÓNUSTU Á ÍSLANDI ... Við tökum vel á móti þér í næsta útibúi og á islandsbanki.is islandsbanki.is
Netspjall
Sími 440 4000
... svo þú eigir auðveldara með að taka þínar ákvarðanir
www.kosmosogkaos.is
Wirkilega wandaðir wefir
Myndir frรก framkvรฆmdum
B:185.2894” T:185.0394” S:185.0394”
S:94.4882”
SETUP
ROUTING
Live 185.2894” x
Scale 94.7382”
Production None Designer None Reviewer None Quantity None
1st Comp Date 01/09/2017
2nd Comp Date None A/R Date 01/11/2017
Last User / Previous User
Thomas Nguyen / Thomas Nguyen
Fonts CONTENT
Due Date 01/11/2017
Traffic Manager ashleye
Trim 185.0394” x
Bleed 94.4882”
Color(s) None
Paper Stock None
Print Scale
Filename ITG24279 - RUSH - ICELAND - AC MF TUB ART-
Requestor johnmo
Overprinting 1” = 1” (100%)
Custom Techs None
Gotham HTF (Book)
Colors
Cyan,
Links
Magenta,
Round None No. Last Modified
1
1-9-2017 4:43 PM
Skechers Printer None
Yellow,
Black
ITG24279 - RUSH - ICELAND - AC MF TUB ARTWORK_4700Wx2400Hmm_FLATTEN.psb (CMYK; 149 ppi; 200.58%)
1/2 SCALE
B:94.7382”
Job # ITG24279
T:94.4882”
JOB NAME ITG24279 - RUSH - ICELAND - AC MF TUB ARTWORK
ht.is
Fólkið á bakvið tjöldin Höfundur handrits og tónlistartexta Höfundur tónlistar Brúða upphaflega hönnuð af Þýðing á bundnu máli Þýðing á lausu máli Leikstjóri Söngstjóri Aðstoðarleikstjóri og danshöfundur Leikmyndahönnun Yfirsmiðir Sviðsvinna Sviðsstjóri Brúðugerð Aðstoð við brúðugerð
Howard Ashman Alan Menken Martin P. Robinsson Megas Gísli Rúnar Jónsson Þorsteinn Bachmann Arnór Vilbergsson Sigrún Gísladóttir Bates Davíð Örn Óskarsson Guðmundur Árni Þórðarson, Ellert Björn Ómarsson Arnar Helgason, Davíð Örn Óskarsson Arnar Helgason Jón Bjarni Ísaksson Davíð Örn Óskarsson
Undirspil Kristján Edelstein Stefán Ingólfsson Halldór G.Hauksson Arnór B. Vilbergsson
Gítar Bassi Trommur Píanó og hljóðgerflar
Ljósahönnun Hljóðvinnsla Hljóðkeyrsla Ljósakeyrsla Eltiljós Leikmunir Hár, förðun og búningar Myndir í leikskrá Hönnun og umbrot
Þórhallur Arnar Vilbergsson Yngvi Þór Geirsson og Ástþór Sindri Baldursson Arnar Ingi Tryggvason og Þórhallur Arnar Vilbergsson Davíð Örn Óskarsson Elmar Aron Hannah Arnar Helgason og hópurinn Sara Dögg Gylfadóttir og hópurinn Davíð Örn Óskarsson Grafíksmíði
Sérstakar þakkir Reykjanesbær Menningarsráð Reykjanesbæjar Bára Skúladóttir Guðmundur Hjaltason Smur- og hljólbarðaþjónustan Guðmundur Árni Þórðarsson Ellert Björn Ómarsson
PIPAR\TBWA • SÍA
HEIMAÖRYGGI
Það er dýrmætt að búa við öryggi heima við. Þess vegna er gott að vita af einhverjum sem er alltaf til staðar. Svona til öryggis.
Öryggismiðstöðin | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 – Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400
Nánar á oryggi.is