Skip to main content

Fyrsti kossinn 2021

Page 1

HAUST 2021 1


2


Fyrsti kossinn HÖFUNDAR: Brynja Ýr Júlíusdóttir og Guðlaugur Ómar Guðmundsson LEIKSTJÓRI: Karl Ágúst Úlfsson DANSHÖFUNDUR: Brynhildur Karlsdóttir TÓNLISTARSTJÓRAR: Björgvin Ívar Baldursson og Smári Guðmundsson AÐSTOÐARMAÐUR LEIKSTJÓRA: Kristín Rán Júlíusdóttir LJÓSA-OG HLJÓÐHÖNNUN: Þórhallur Arnar Vilbergsson TÆKNISTJÓRAR: María Rún Baldursdóttir, Þórhallur Arnar Vilbergsson og Unnar Már Pétursson BÚNINGAHÖNNUÐUR: Helgi Líndal Elíasson HÁR OG FÖRÐUN: Birgitta Ösp Smáradóttir og hópurinn LEIKMYNDAHÖNNUN: Davíð Örn Óskarsson YFIRSMIÐUR: Sigurður Smári Hansson SÝNINGARSTJÓRI: Unnar Már Pétursson LJÓSMYNDIR: Eyþór Jónsson UMBROT LEIKSKRÁR OG GRAFÍSK HÖNNUN: Davíð Örn Óskarsson

3


KÆRU LEIKHÚSGESTIR VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMNIR Í FRUMLEIKHÚSIÐ! Það er okkur sönn ánægja að kynna fyrir ykkur hinn glænýja glymskrattasöngleik (e.jukebox musical) Fyrsta kossinn. Fyrir nokkrum árum skaut þeirri hugmynd upp hjá nokkrum leikfélögum að setja upp keflvískan söngleik þar sem notuð yrðu þekkt dægurlög og perlur sem tilheyra Keflavík. Það var svo fyrir þremur árum síðan að tveir meðlimir félagsins og núverandi stjórnarmeðlimir, þau Brynja Ýr og Guðlaugur Ómar, gripu hugmyndina á lofti og ákváðu að skrifa söngleik sem tileinkaður yrði minningu Rúnars Júlíussonar. Þegar stjórnin las yfir handritið í júní 2020 voru allir sammála því að hér væri á ferðinni verk með mikla möguleika og því var ákveðið að Fyrsti kossinn yrði settur upp á afmælisári leikfélagsins haustið 2021. Vegna aðstæðna í samfélaginu vildi svo til að sýningin varð jafnframt hundraðasta sýning félagsins frá stofnun þess ef rétt er talið. Karl Ágúst Úlfsson var fenginn til að leikstýra en hann hafði áður leikstýrt hjá okkur farsanum Fló á skinni haustið 2019. Brynhildur Karlsdóttir var fengin til að sjá um dansinn og Björgvin Ívar Baldursson og Smári Guðmundsson tóku tónlistina að sér. Hér er á ferðinni metnaðarfullur söngleikur um ástir og átök ungs fólks og er það von okkar að þessi óhefðbundna samblanda sígildrar dægurtónlistar og málefna líðandi stundar heilli sem flesta. Því eins og skáldið sagði “þó jarðskjálftar, eldgos, frost og fárviðri sé fréttaefni, þá er fegurðin, ástin, já og sólskinið hið rétta efni.” Góða skemmtun og njótið vel, Stjórn Leikfélags Keflavíkur

STJÓRN L.K. 2021-2022 Formaður: Sigurður Smári Hansson Varaformaður: Hulda Björk Stefánsdóttir Gjaldkeri: Brynja Ýr Júlíusdóttir Ritari: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Meðstjórnandi: Ingvar Elíasson Varamenn: Arnar Helgason og Unnar Már Pétursson

4


5


Já Já Já Já Já Listin er eins og náttúran, algjörlega óútreiknanleg. Hún getur birst eins og eldgos, eins og jökulhlaup, eins og stormur eða rigningarskúr, en hún getur líka tekið á sig mynd smáfugls eða hagamúsar, bleikju í lækjarsprænu eða sóleyjar í túni. Við sem einhvern tíma tókum þessa undarlegu ákvörðun, að láta listina taka völdin í lífi okkar, við vitum aldrei hvert hún á eftir að leiða okkur. Og því síður vitum við hvað hún á eftir að gera úr okkur. Hún getur gert úr okkur snjókalla, haferni, klettadranga eða kíló af pipar, allt eftir duttlungum sínum hverju sinni. Og við verðum bara að taka því, hvort sem við erum sátt við það eður ei. Kannski er það lykillinn að hamingju listamanns að geta þegið með þökkum allt sem listin réttir honum. Í mínu tilfelli hef ég fengið fjölbreyttar gjafir, boðist að starfa sem leikari, þýðandi, höfundur og leikstjóri. Og síðastnefndi titillinn er einmitt ástæðan fyrir því að ég sit hér við tölvuna og velti vöngum. Þetta er í annað sinn sem ég fæ þá dýrmætu gjöf í hendur að fá að vinna með Leikfélagi Keflavíkur. Sem leikstjóri hef ég unnið með mörgum og ólíkum hópum, ýmist leikstýrt mínum eigin verkum eða annarra og eftir á verður vinnan og reynslan óneitanlega miseftirminnileg. En þegar mér bauðst að setja á svið nýjan íslenskan söngleik, Fyrsta kossinn, sem sækir efnivið sinn í ríka poppmenningu suðurnesja og fjallar þar að auki um stærsta og merkilegasta viðfangsefni skáldanna frá því sögur hófust, ástina - allt undir áhrifum frá einum af risunum í hugarheimi kynslóðar minnar, Rúnari Júlíussyni þá þurfti ég ekki að hugsa mig um tvisvar. Svarið var ekki bara eitt Já, heldur mörg. Já, ég vil gera þetta, Já, ég skal útvega ykkur einn besta danshöfund landsins, Já, ég elska þessa hugmynd og Já Já Já Já Já, ég vil endilega vinna með Leikfélagi Keflavíkur aftur, því þar hef ég kynnst meiri metnaði, jákvæðni, lífsgleði, hæfileikum og dugnaði en hjá flestum öðrum hópum sem ég hef starfað með. Það er einmitt þess vegna sem ég sit hér og get ekki annað. Og nú er komið að ykkur, kæru áhorfendur, að njóta alls þess óútreiknanlega sem listin hefur fært okkur undanfarna mánuði. Hvort sem þið upplifið eldgos, hagamús, sóley eða kíló af pipar vonum við að upplifunin verði góð og minningin um Fyrsta kossinn verði hlý og notaleg og fylgi ykkur inn í nóttina og ennþá lengra. Karl Ágúst

FACIN’ MY FLAG IN YEARS OF SELFDESTRUCTION IT DON’T SEEM SO FAR AWAY TO THE TAKE OF STATION PEOPLE EXPLODIN’ INTO DIFFERENT DIRECTIONS AM I REALLY LIVIN? OR AM I JUST DYIN? AM I REALLY LIVIN? OR AM I JUST DYIN?

6


7


KÆRU LEIKHÚSGESTIR Verið velkomin í Frumleikhúsið og við þetta líka einstaka tilefni! Að fagna 60 ára afmæli er stór áfangi en að ná því með frumsýningu á hundruðustu sýningu félagsins tekur fagnaðarlætin á töluvert hærra plan. Ekki er við öðru að búast en að við séum bæði full auðmýktar að það skuli vera þessi tiltekna sýning, barnið okkar ef svo má að orði komast. Bæði höfðum við lengi gengið með þessa hugmynd, að setja upp keflvískan söngleik, en ekkert varð úr því fyrr en við rugluðum saman reitum nokkru síðar. Á ýmsu gekk á meðan handritavinnunni stóð. Ólíkar hugmyndir um smáatriði í atburðarás, persónusköpun og lagaval voru helstu hindranirnar en farvegur sögunnar sjálfrar kom nokkuð snemma. Þegar skrifin voru búin vorum við bæði nokkuð sátt en áttum það þó bæði til að renna yfir og breyta hinu og þessu, jafnvel þó handritið hafi þegar verið komið í hendur leikstjóra og okkar vinnu í raun lokið. Þetta á þó sérstaklega við um annað okkar, en förum ekkert nánar út í það! Karl Ágúst Úlfsson var okkur innan handar ef þörf var á gagnrýni varðandi uppbyggingu og karaktersköpun sem varð til þess að við ákváðum að athuga áhuga hans á að leikstýra verkinu. Hann var sko aldeilis til í það og tókst að gefa þessari sögu líf á einstakan hátt eins og honum einum er lagið. Brynhildur Karlsdóttir var ráðin inn sem danshöfundur en hennar vinna kom sér einkar vel til að gera þau fjölmörgu tónlistaratriði sýningarinnar líflegri. Tónlistarvinnan fór einnig fram úr öllum væntingum og er það þeim Björgvini Ívari Baldurssyni og Smára Guðmundssyni að þakka, en þeir tóku þessi krefjandi lög og tóku upp öll hljóðfæri. Árangurinn er eftir því frábær. Að lokum viljum við gefa hópnum á sviðinu og á bakvið tjöldin lof fyrir sína frammistöðu og þrautseigju. Hér hafa verið stífar æfingar nánast öll kvöld frá því um miðjan ágúst og þessi hópur hefur gefið leikfélaginu allan sinn frítíma til að gera þetta verk að þeirri sýningu sem þið, kæru gestir, sjáið hér í kvöld. Við óskum ykkur góðrar skemmtunar á Fyrsta kossinum og hvetjum ykkur til að láta orðið berast! Það þarf fólk eins og ykkur fyrir fólk eins og okkur. Brynja Ýr Júlíusdóttir og Guðlaugur Ómar Guðmundsson Trúarofstæki truflar mig Í trú minni og von á þig Í takt og taumleysi vonin dvín Hentar illa eins og glatað vín 8


9


SAGA LEIKFÉLAGS KEFLAVÍKUR 19.september 1961 - Nokkrir áhugamenn úr Keflavík og Njarðvík stofna leikfélag. Leikfélagið hlaut nafnið Stakkur. Árið 1965 stofnuðu Njarðvíkingar eigið leikfélag og var nafninu því breytt í Leikfélag Keflavíkur árið 1967. Dvalartímabil - Leikfélagið gekk í gegnum nokkur dvalartímabil á 7., 8. og 9. áratug síðustu aldar en síðan 1988 hefur leikfélagið sýnt a.m.k. tvær sýningar á ári, að undanteknu leikárinu 1996-1997 þegar leikfélagar stóðu í framkvæmdum á Frumleikhúsinu. 4.OKTÓBER 1997 FRUMLEIKHÚSIÐ OPNAR. Fyrst um sinn var Stapinn helsti vettvangur leiksýninga en svo einnig Félagsbíó. Þó gerðist það nokkuð oft að leikhópar þurftu að leita í önnur húsnæði og reyndist það oft erfitt. Karlakór Keflavíkur gaf Reykjanesbæ neðri hæðina á Vesturbraut 17 gegn því að alltaf yrði einhver menningarstarfsemi í því húsi. Reykjanesbær gaf svo Leikfélagi Keflavíkur húsið og árið 1997 opnaði Frumleikhúsið og hefur nánast öll starfsemi leikfélagsins átt sér stað innan þeirra veggja síðan. Margir leikfélagar í gegnum árin hafa átt orð á því að hvergi sé betra að vera en í Frumleikhúsinu. FRUMLEIKHÚSIÐ Það má segja að starfsemi leikfélagsins hafi aldrei verið eins virk eftir að við komumst í eigið húsnæði, en þegar þetta er ritað hafa verið settar á svið 53 sýningar í Frumleikhúsinu og því er sýningin sem þú sérð í kvöld 54. sýning Frumleikhússins og jafnframt hundraðasta sýning Leikfélags Keflavíkur.

10

STARF LEIKFÉLAGS KEFLAVÍKUR Leikfélag Keflavíkur er eitt öflugasta starfandi áhugaleikfélag landsins og er fullur rekstur og gróskumikið starf unnið í Frumleikhúsinu. Starfið byggist á áhugafólki og sjálfboðaliðum sem leggur metnað sinn í að bjóða upp á gott leiklistar- og menningarlíf í Reykjanesbæ. Nafnið „Frumleikhúsið“ á Sveindís Valdimarsdóttir en hún sendi félaginu blómvönd stuttu eftir opnun þess með ósk um farsælt starf í Frumleikhúsinu og þar með var nafnið komið. Áður höfðu komið upp hugmyndir eins og Skothúsið og Skjöldur.


FRAMKVÆMDIR Leikfélagið fór í miklar framkvæmdir árið 2011 en þá fengum við afnot af stærri hluta af húsinu. Við færðum búningageymsluna okkar yfir í nýja hlutann og við það stækkaði smíðaverkstæðið. Við rifum niður fatahengið og miðasöluna og nýja miðasalan færðist yfir í nýja hlutann. Einnig var gólfið frammi flotað og panelveggirnir málaðir svartir ásamt því að hraunuðu veggirnir voru pússaðir niður. Þetta var einungis byrjunin en á síðastliðnum 10 árum höfum við skipt um gólfefni, skipt út klósettbásum, stækkað sviðið og margt fleira.

11


Við óskum leikfélaginu til hamingju með 60 ára afmælið og sýninguna.

12


TÓNLISTIN Í SÝNINGUNNI Eins og allir vita hafa Suðurnesin lengi verið kennd við tónlist og hér er að finna marga tónlistarsnillinga. Keflavík öðlaðist viðurnefnið Bítlabærinn eftir að íslenska bítlasveitin Hljómar sló í gegn á landsvísu. Allar götur síðan hefur lífleg og fjörug tónlistarmenning fylgt Reykjanesbæ og hans nágrenni, en fjöldinn allur af tónlistarfólki af svæðinu hefur vakið athygli víða, bæði hérlendis og erlendis. Þegar hugmyndin um Keflvískan söngleik fór á stjá var það strax neglt niður að lifandi tónlist yrði flutt í verkinu en hvert viðfangsefnið yrði var ekki ákveðið. Fljótlega gerðu höfundar sér grein fyrir því að þrengja þyrfti rammann verulega fyrir tveggja klukkustunda upplifun og ákváðu að sýningin yrði tileinkuð minningu Rúnars Júlíussonar, bassaleikara Hljóma og forsprakka upptökuheimilisins Geimsteins. Fyrst kom sú hugmynd að nota eingöngu tónlist Hljómanna, en síðar var ákveðið að nýta lög ólíkra tímabila úr katalóg Rúnars. Þeir sem skipa hljómsveitina Grip í söngleiknum eru þeir Sigurður Smári Hansson, Arnór Sindri Sölvason, Guðlaugur Ómar Guðmundsson og Ingvar Elíasson. Ingvar fann strax sinn sess á bak við trommusettið, enda fjölhæfur og þéttur trymbill, en hlutverkaskipan hinna aðilanna var snúin þar sem þeir voru allir liðtækir á gítar. Guðlaugur Ómar tók á sig bassaleik en hann hafði takmarkaða reynslu á því hljóðfæri líkt og Rúnar sjálfur þegar hann hóf sinn feril í Hljómum. Arnór Sindri henti sér beint í djúpu laugina á hljómborðið, en hann hafði litla sem enga reynslu á því hljóðfæri og Sigurður Smári hélt sér við rytmagítarinn. Sérstakur gestagítarleikari sýningarinnar er Þorvarður Ólafsson, en hann sér um sóló og fyllingar á meðan Smári slær hljómana. Hljómsveitarmeðlimir hittust fyrst í lok ágúst og fljótlega smullu þeir saman á skemmtilegan hátt. Um er að ræða mjög ólíka tónlist og ákveðin lög voru tímafrekari en önnur. Blessunarlega eiga þessir aðilar sameiginlega sögu hvað varðar leiklist og tónlist og gera má ráð fyrir því að það hafi hjálpað örlítið til. Tónlistarstjórar sýningarinnar eru þeir Björgvin Ívar Baldursson og Smári Guðmundsson, en þeir sáu um upptökur á allri tónlist sem ekki var flutt live, ásamt Baldri Þóri og Júlíusi Frey Guðmundssonum. Tónlistarstjórar voru hljómsveitinni innan handar og leiðbeindu með spilamennsku enda reynslumiklir tónlistarmenn. Arnór Sindri Sölvason: Gítar og hljómborð Guðlaugur Ómar Guðmundsson: Bassi og gítar Ingvar Elíasson: Trommur Sigurður Smári Hansson: Gítar og hljómborð Þorvarður Ólafsson: Gítar

ÉG TRÚI EKKI Á KRISTAL NÉ GRÆNMETISKÚR ÉG TRÚI EKKI Á ANDAGLASIÐ NEMA TIL AÐ DREKKA ÚR

13


Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13.apríl 1945 og var ávallt mjög heimakær. Rúnar hóf tónlistarferil sinn sem bassaleikari í Hljómum ungur að aldri og þekkja flestir þá sögu þegar Gunnar Þórðarson, sem bráðvantaði bassaleikara, leitaði til Rúnars, sem hafði aldrei snert bassa á ævinni en var farinn að æfa á fullu áður en vika var liðin. Sú saga hefur verið sögð að hann hafi ekkert sofið fyrstu árin sem hann var í Hljómum. Hljómsveitin sjálf fór um allt land og spilaði á nánast hverju kvöldi, þar sem Rúnar var feiminn fyrst um sinn en síðar mátti sjá til hans sveifla sér upp á hátalarabox og láta öllum illum látum. Rúnar var einnig valinn í landsliðið í knattspyrnu og var auk þess að smíða einbýlishús, ásamt sambýliskonu sinni, Maríu Baldursdóttur. Það hús stendur enn í dag og er útgáfufyrirtækið og hljóðverið Geimsteinn þar til húsa. Útgáfan var stofnuð 1976 og er elsta hljómplötuútgáfa landsins. Upptökuheimilinu var stjórnað af Rúnari sjálfum til hans síðasta dags og í dag sjá afkomendur hans um útgáfuna eftir bestu getu.

RÚNAR JÚLÍUSSON 1945-2008

Það voru ýmsar hliðar á Rúnari. Hann var hress, fjörugur og mikill orkubolti á sviði en heima fyrir var hann rólegur og yfirvegaður. Rúnar var einstaklega skapgóður og þolinmóður og gaf mörgum ungum tónlistarmönnum tækifæri til að taka upp í hljóðverinu. Hann tók upp u.þ.b. 250 hljómplötur í hljóðverinu á þeim rúmlega þrjátíu árum sem hann starfaði þar. Þrátt fyrir þolinmæði og æðruleysi var Rúnar ákveðinn á vissu sviði. Hann fluttist einu sinni á milli húsa og voru þar aðeins nokkur skref á milli. Hann var stoltur af heimabæ sínum, Keflavík, og var aldeilis ekki sáttur þegar Keflavík sameinaðist Njarðvík og Höfnum og hann vildi helst flytja í burtu þegar nafninu var breytt í Reykjanesbæ. 14


Rúnar skildi eftir sig tvo syni, sex barnabörn og ástina sína, Maríu Baldursdóttur, en þau giftu sig í febrúar 2007. Í gegnum árin hafa verið haldnir minningartónleikar og afmælistónleikar til heiðurs Rúnars og á vissan hátt má líta á þessa sýningu sem ákveðna minningartónleika um hann. 12 ár eru liðin frá því að Rúnar yfirgaf þessa veröld en tónlistin hans og tónlistin sem hann kom að mun svo sannarlega lifa áfram í hjörtum okkar allra.

Árið 1996 kom það í ljós að Rúnar var með hjartagalla sem hafði fylgt honum frá fæðingu. Sama ár gaf hann út plötuna Með stuð í hjarta og einsetti sér að gefa út eina plötu árlega eftir það sem hann gerði svo sannarlega. Síðasta platan hans var safnplata með hans allra bestu lögum sem kom út árið 2008 en eins og flestir vita lést hann þann 5.desember 2008 úr hjartaáfalli. Það má segja að tónlistin hafi fylgt Rúnari í dauðann en hann var að teygja sig í gítarinn fyrir útgáfutónleika á Ránni þegar hann fékk aðsvif og var fluttur með sjúkrabíl inn á Landspítala þar sem hann lést.

ÞAÐ ÞARF FÓLK EINS OG ÞIG, FYRIR FÓLK EINS OG MIG

15


DANSINN Það er ekki á hverjum degi sem nýr íslenskur söngleikur er frumsýndur, hvað þá keflvískur, hvað þá gleðisprengja með lögum sem við þekkjum öll og elskum. Þannig er Fyrsti kossinn. Sannkölluð gleðisprengja og bak við hana metnaðarfullt, hæfileikaríkt og skapandi fólk sem lét þetta verða að veruleika. Danshöfundurinn fékk mikið frelsi í ferlinu og ég þakka hópnum traustið. Við gáfum lítið fyrir fyrirfram gefnar hugmyndir og leyfðum okkur að hafa frjálsar hendur. Svo kom fljótt í ljós að í hópnum leyndust frábærir dansarar og það varð áríðandi verkefni að ögra þeim og hvetja. Þau mættu áskorunum með metnaði og orku sem fékk mig til að leggja allt í sölurnar til að gera sýninguna eins flotta og þau eiga skilið. Innblástur fyrir dansinn er fenginn héðan og þaðan. Þekkt stef úr söngleikjum koma við sögu, tilvísanir í Bob Fosse, en einnig í nútímadans, djass og fleira. Yfirleitt voru fyrstu sporin samin á náttfötunum heima, hreyfingar og skiptingar krotaðar á blað en hugmyndirnar lifnuðu við þegar hópurinn tók sporið saman. Tónlistin inniber svo mikla gleði og orku og vonandi endurspeglast það í dansinum Kærar þakkir til Leikfélags Keflavíkur og allra sem ég hef fengið að kynnast og vinna með undanfarnar vikur, ekki síst fyrir að vera svona skemmtileg. Við megum vera stolt. Ekki síður þökkum við ykkur, áhorfendunum. Vonandi njótið þið sýningarinnar og finnið fyrir gleðinni, metnaðnum og orkunni. Vonandi verður kvöldið ein gleðisprengja. Brynhildur Karlsdóttir DANSARAR Í SÝNINGUNNI: Andri Sævar Arnarsson Dagbjört Kristinsdóttir Elísabet Drífa Sigurbjargardóttir Helga Rut Guðjónsdóttir Kamilla Alfreðsdóttir Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld Þórhildur Erna Arnardóttir 16


ALHLIÐA ÞJÓNUSTA Í FÓLKSFLUTNINGUM

Skoðaðu vefinn okkar!

bus4u.is

Bus4u Iceland býður uppá alhliða þjónustu þegar kemur

www.bus4u.is

I

info@bus4u.is

að fólksflutningum á landi. Almenningssamgöngur, flugvallarakstur, almennar hópferðir ásamt ferðaskipulagningu af öllum toga. Sendu okkur línu, hringdu eða komdu i heimsókn og við finnum réttu lausnina.

@Bus4u Iceland

bus4u_iceland

17


SÉRSTAKAR ÞAKKIR Geimsteinn Leikskólinn Sólborg Sandgerði Reykjanesbær Salurinn Kópavogi Sóknaráætlun Suðurnesja Suðurnesjabær Særún Björgvinsdóttir Svanur Kristjánsson Halldór Lárusson Sigurður Árni Gunnarsson Fjölskyldur, vinir og aðrir aðstandendur þátttakenda fyrir ómetanlega þolinmæði á ferlinu

HLUTVERKALISTI Júlía: Róbert: Addi: Hanna: Bessi: Sylvía: Pétur: Sara: Jonni: Aldís: Halli: Siggi gítar:

18

Tara Sól Sveinbjörnsdóttir Sigurður Smári Hansson Ingvar Elíasson Brynja Ýr Júlíusdóttir Guðlaugur Ómar Guðmundsson Lísa Einarsdóttir Arnór Sindri Sölvason Sólborg Guðbrandsdóttir Elmar Aron Hannah Guðný Kristjánsdóttir Arnar Helgason Þorvarður Ólafsson


LEIKARAR

Arnór Sindri Sölvason

Brynja Ýr Júlíusdóttir

Elmar Aron Hannah

Guðlaugur Ómar Guðmundsson

Guðný Kristjánsdóttir

Ingvar Elíasson

Lísa Einarsdóttir

Sigurður Smári Hansson

Sólborg Guðbrandsdóttir

Tara Sól Sveinbjörnsdóttir

Þorvarður Ólafsson

Andri Sævar Arnarsson

Dagbjört Kristinsdóttir

Elísabet Drífa Sigurbjargardóttir

Kamilla Alfreðsdóttir

Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld

Þórhildur Erna Arnardóttir

DANSARAR

Arnar Helgason

Helga Rut Guðjónsdóttir

19


Við óskum Leikfélagi Keflavíkur innilega til hamingju með afmælið og frábæra sýningu

BLUEBILL.IS NOTAÐIR BÍLALEIGUBÍLAR TIL SÖLU

20


21


22


Starfsmannafélag Suðurnesja

23


Það er einfalt að skipta í Snjallöryggi Þú velur Snjallöryggispakka sem hentar þínu heimili, við segjum upp gamla kerfinu, tökum það niður og skilum því — Og þú greiðir þegar uppsagnafresturinn er liðinn.

Snjallöryggi 3

Snjallöryggi 5

Snjallöryggi 8

Stjórnstöð Stjórnborð Sírena 2 flögur +3 skynjarar að eigin vali

Stjórnstöð Stjórnborð Sírena 2 flögur +5 skynjarar að eigin vali

Stjórnstöð Stjórnborð Sírena 2 flögur +8 skynjarar að eigin vali

Verð 5.900 kr. á mánuði

Verð 6.900 kr. á mánuði

Verð 8.900 kr. á mánuði

Stofnkostnaður er 19.900 kr.

Val um skynjara í pökkum: Hreyfiskynjari með myndavél / hefðbundinn hreyfiskynjari reykskynjari / hurðarrofi / vatnsskynjari

Öryggismiðstöð Íslands | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 | Nánar á oryggi.is 24


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook