Félagsmiðstöðin
FJÖRHEIMAR
Haust 2016
fyrir unglinga og foreldra
Fjörheimar & 88húsið
-Hafnargötu 88
Félagsmiðstöðin Fjörheimar er starfrækt fyrir aldurshópinn 13-16 ára. Þar fer fram æskulýðsstarf í samvinnu við grunnskóla bæjarins. Markmið Fjörheima er að skapa unglingum vettvang þar sem flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og halda úti markvissri fræðslu og forvarnastarfi. Fjölbreytt dagskrá er í boði allan veturinn m.a. böll, klúbbastarf, tónleikar, ferðir, Samfés, íþróttamót og margt fleira. Félagsmiðstöðin skal halda úti markvissri fræðslu-, forvarnar- og leitarstarfi og beita fjölbreyttum aðferðum við að auka líkur á árangri á þeim vettvangi. T.d. í gegnum heimasíðu Fjörheima og með forvarnar- og fræðslukvöldum sem eru haldin reglulega í Fjörheimum. Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar skulu leitast við að byggja upp jákvæða sjálfsmynd unglingsins. Það gerir starfsfólk með því að bregðast ávallt við neikvæðri hegðun og vera jákvæð fyrirmynd í leik og starfi. Til að ná settum markmiðum skal félagsmiðstöðin leitast við að hafa gott samstarf við ýmsa aðila, s.s. unglinga í Reykjanesbæ, félagsmálastofnun, skóla, foreldra, lögreglu, aðrar félagsmiðstöðvar, aðrar stofnanir, félög og samtök sem vinna að unglingamálum. 88 húsið við Hafnargötu 88 er menningarmiðstöð unglinga 16 ára og eldri og fer þar fram fjölbreytt starfsemi. Markmið hússins er að bjóða uppá heilbrigðan valkost í afþreyingu, aðstoða unglinga við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og að vera leiðandi í jákvæðu starfi ungs fólks í bænum. Þar er t.d. kaffihús og tölvuver, aðstaða til tómstunda og breiðtjaldssjónvarp með þægilegri áhorfssaðstöðu. Einnig er þar aðstaða til hvers kyns tónleikahalds.
Hvað er hægt að gera í Fjörheimum? Borðtennis - foosballspil þythokkí - bandí gólftennis - pogo playstation herbergi pingpong - billiard -kósýhorn - karaoki risabolti -borðtölvurborðspil -tímarit internet og margt fleira Starfsemi Fjörheima er þér að kostnaðarlausu. nema þegar um stærri viðburði er að ræða
Fjörheimar á samfélagsmiðlum
Snapchat: fjorheimar
www.fjorheimar.is
www.facebook.com/fjorheimar
Addið okkur
Instagram: fjorheimar
allt sem þú þarft að vita um fjörheima
Opnunartími
Mánudagar kl.20.00-22.00 Miðvikudagar kl.20.00-22.00 Föstudagar kl.20.00-22.00* *Opið til kl.22.30 þegar það eru böll
Klúbbastarfið hefst kl.19.30 Mánudaga og miðvikudaga
Leiga
Staðurinn er leigður út fyrir barna afmæli alla virka daga frá kl.16.0019.00 Vinsamlegast sendið póst á fjorheimar@fjorheimar.is til að leigja staðinn
Umsjónarmaður Fjörheima & 88 hússins Nafn: Davíð Örn Óskarsson Aldur: 30 Áhugamál: Fótbolti, hönnun, heilbrigt líferni, börnin mín, körfubolti, listir og menning. Starf: Umsjónarmaður Fjörheima, Daglegur rekstur félagsmiðstöðvar, þ.m.t. innkaup og skipulagning á viðburðum á vegum félagsmiðstöðvarinnar. Skipulag innra starfs í nánu samstarfi við félagsmiðstöðvarráð. Að stuðla að virku klúbbastarfi og stuðningi við annað félagsstarf. Hvetja unglinga til þátttöku og ýta undir sköpunargleði og ábyrgð þeirra. Fylgjast með nýjungum og þróun í starfi annarra félagsmiðstöðva og mynda tengslanet við þær. Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Félagsmiðstöðin Fjörheimar- Hafnargötu 88230 Reykjanesbær- s:421-8890- gsm:891-9101
Starfsfólk Fjörheima
Starfsfólk Fjörheima er ungt fólk úr Reykjanesbæ sem hefur náð 20 ára aldri og Starfar í Fjörheimum á kvöldin Nafn: Sara Dögg Margeirsdóttir Aldur: 23 ára Áhugamál: Crossfit, körfubolti, fjölskylda og vinir Starf: Fjarnám í HA Nafn: Gunnhildur Gunnarsdóttir Aldur: 23 ára Áhugamál: Hreyfing, heilbrigður lífstíll, fjölskylda og vinir Starf: Stuðningsfulltrúi í Myllubakkaskóla
Nafn: Eiður Örn Eyjólfsson Aldur: 30 Áhugamál: Tónlist, tölvur, bílar, fjölskylda og vinir. Starf: Starfsmaður á Hæfingarstöðinni í Reykjanesbæ
Nafn: Stefán Örn Ólafsson Aldur:20 ára Áhugamál: Útivist, tónlist, björgunarsveitin, ferðalög, vélar og tæki. Starf/nám: Nemi í vélstjórn við vélskóla Íslands, félagi í björgunarsveitinni Suðurnes og umsjónarmaður í Unglingadeildinni Klett.
Nafn: Kristín Ásta Kristinsdóttir Aldur: 32 Áhugamál: Ferðalög, útivera, vinir og fjölskylda. Nám/starf: Félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Nafn: Ási Þórhallsson Aldur: 21 árs Áhugamál: mikill íþróttamaður Starf/nám:Er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Er með einn flottan strák í liðveislu.
Nafn: Guðný Andrésdóttir Aldur: 31 Áhugamál: Handbolti, fjölskylda og vinir, netflix, heilbrigt líferni, börnin mín, ferðalög, framandi matur og hreyfing. Starf/nám: Umsjónarmaður frístundaskólans í Myllubakkaskóla og stuðningsfulltrúi.
Nafn:Aron Freyr Kristjánsson Aldur:21 Áhugamál:íþróttir, tónlist, matur, vinir og fjölskylda Starf/nám: Sálfræði við Háskólann í Reykjavík
Nafn: Sigurbergur Elisson Aldur: 24 Áhugamál: íþróttir, ferðalög, vinir og fjölskylda, tónlist Starf/nám: Stuðningsfulltrúi í FS
Nafn: Hermann Sigurðsson Aldur: 26 ára Áhugamál: íþróttir, ferðast, vinir, fjölskylda og hreyfing. Starf: Fríhöfnin
Stelpu & strákaklúbbur Í haust verður starfræktur stelpu og strákaklúbbur í Fjörheimum. Klúbbarnir verður alla mánudaga (stelpur) og miðvikudaga (strákar) frá klukkan 19.30 - 21.30. Margt áhugavert verður í boði fyrir klúbbmeðlimi s.s. ferðalag, forvarnir, skemmtun, og margt fleira:) Hægt er að koma hvenær sem er og skrá sig í klúbbinn og allir velkomnir. Markmið klúbbana er að tengja unglinga úr mismunandi skólum saman í gegnum leik og starf, opna hug þeirra fyrir fjölbreyttum tómstundum og áhugaverðum smiðjum sem verða í boði hverju sinni. Klúbburinn er fyrir alla í 8.9. og 10.bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar
tie dye Tie-Dye er ótrúlega skemmtileg aðferð til þess að gefa gömlum eða nýjum fötum nýtt líf. Aðeins þarf að koma með bol / kjól / nærbol / koddaver eða hvað sem er. Fatnaðurinn þarf að vera úr bómull. Notast er við fatalitarefni og teygjur. Flíkurnar eru svo litaðar á mismunandi vegu
brjóstsykursgerð Upphaflega var brjóstsykur einhvers konar lyf við brjóstverkjum. Þaðan kemur tengingin við brjóst. Við ætlum ekki einungis að sækja okkur fróðleik um brjóstsykursgerð heldur ætlum við að búa hann til frá grunni. Við búum til nokkrar tegundir af brjóstsykri. Rauða, græna og svarta á litinn! Lakkrís, hindberja og tutti frutti er meðal bragðtegunda. Allir fá brjóstsykur með sér heim.
Af hverju tómstundir fyrir barnið þitt? Rannsóknir sýna að börn og unglingar sem stunda skipulagt tómstundastarf þrói síður með sér andfélagslega hegðun en þeir sem ekki eru í slíku starfi. Æ fleiri börn þurfa meðferð vegna stoðkerfisvandamála. Hluti vandamálanna er mikil kyrrseta og notkun tölva. 23 ára hreyfir sig jafn mikið og áttræður. 39%unglinga í 8.-10.bekk telja sig eyða meira en 3 klukkustundir á dag í tölvu samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn. Hvetjum unglinganna okkar til þátttöku í skipulögðu tómstundarstarfi
tölum saman í lífinu ekki á netinu
hvað ætlum við að gera Haustið 2016 Landsmót Samfés Hæfileikar Samsuð Vina & paraball Félagsmiðstöðvadagurinn Bíóferðir Öll böllin Samleikur Stelpuklúbbur Strákaklúbbur Tie Dye Brjóstsykursgerð Allskonar mót Playstation mót Minute to win it og margt fleira
Fjörráðið Unglingaráð Fjörheima
Meginmarkmið unglingaráðs er að koma saman og skipuleggja atburði á vegum Fjörheima og aðstoða við aðra stærri viðburði. Í staðinn fá þau sem bjóða sig fram til slíks tækifæri til að kynnast öðrum krökkum úr öðrum grunnskólum. Fjörráðið vinnur að því að bæta starfið í félagsmiðstöðinni og unnið er að jákvæðri hegðun og forvörnum. Helsta hlutverk ráðsins er að reka félagsmiðstöðina með aðstoð starfsmanna. Þannig verður reynt að láta unglinga bera sem mesta ábyrgð og hafa frumkvæði. Starfsfólkið á fyrst og fremst að vera leiðbeinendur og aðstoðarmenn. Unglingaráð Fjörheima er valið í byrjun hvers skólaárs og starfar allan veturinn. Í Unglingaráði sitja þrír fulltrúar frá hverjum skóla í Reykjanesbæ. Ætlast er til að þeir sem eru í unglingaráði séu til fyrirmyndar og neyti þ.a.l. ekki áfengis- eða tóbaks. Hægt er að sækja um að komast í ráðið með því að senda okkur póst á facebook.
Tรณmstunda dagatal Fjรถrheima haust 2016