NÝTT FRÁ MOGUNTIA
SÚPUR
Ljúffengar súpur á fljótlegan og einfaldan máta Yljandi og bragðgóð súpa er eitthvað sem fáir fá staðist. Hvort sem um er að ræða forrétt eða aðalrétt er ljúffeng súpa alltaf vinsæll valkostur með góðu brauði. Súpurnar frá Moguntia eru frábær grunnur til að búa til bragðgóða máltíð. Duftið er einfaldlega hrært út í í vatn og súpan látin sjóða í stutta stund. Bragðbættu eftir eigin smekk og búðu til þína fullkomnu súpu.
Bragðtegundir Aspassúpa - 3 kg / 37,5 l Flauelsmjúk og bragðgóð aspassúpa með ljúffengu aspasbragði. Bragðbætið gjarnan með aspasmauki til að fá enn meira aspasbragð! Súpan verður enn betri ef einum hluta af vatni er skipt út fyrir mjólk eða rjóma. Skömmtun: 80 g/l Vnr. 963380
Blómkálssúpa - 3 kg / 37,5 l Yljandi, klassísk blómkálssúpa sem allir þekkja, með góðu bragði af blómkáli og litlum blómkálsbitum. Súpan verður enn betri ef einum hluta af vatni er skipt út fyrir mjólk eða rjóma. Skömmtun: 80 g/l Vnr. 963381
Brokkolísúpa - 3 kg / 30 l Fínleg, rjómakennd súpa með mildu bragði af brokkolí og ríkulegu magn af brokkolíbitum. Frábær í forrétt eða sem aðalréttur, mjög góð með brauðteningum og ferskum kryddjurtum. Súpan verður enn betri ef einum hluta af vatni er skipt út fyrir mjólk eða rjóma. Skömmtun: 100 g/l Vnr. 963382
Rjómalöguð blaðlaukssúpa - 3 kg / 30 l Mild og ljúffeng súpa með góðu blaðlauksbragði og blaðlauksbitum, kláruð með bragðgóðum Allgaeu osti. Frábær máltíð með góðu brauði. Súpan verður enn betri ef einum hluta af vatni er skipt út fyrir mjólk eða rjóma. Skömmtun: 100 g/l Vnr. 963384
Rjómalöguð sveppasúpa - 3 kg / 37,5 l Bragðgóð rjómalöguð sveppasúpa. Fullkomin á köldum dögum, bæði sem forréttur og aðalréttur. Tilvalið að bæta við sveppum fyrir matarmeiri súpu. Súpan verður enn betri ef einum hluta af vatni er skipt út fyrir mjólk eða rjóma. Skömmtun: 80 g/l Vnr. 963383