VIKUBL AÐIÐ 6. TÖLUBLAÐ / 2. ÁRGANGUR / FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Bls. 13 Áskorendapenninn
Bls. 14-15 Sportið
Bls. 4 Hjólareiðafélag Húsavíkur
Tæplega 170 ára sögu lokið Prentsmiðjan Ásprent Stíll á Akureyri hefur hætt starfsemi en skiptastjóri tilkynnti starfsfólki þetta á fundi í byrjun vikunnar. Hjá fyrirtækinu störfuðu um 20 manns. Eins og blaðið greindi frá í síðustu viku var Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta og fékk starfsfólk ekki greidd út laun núna um síðustu mánaðarmót. Jón Ólafur Sigfússon er fyrrum framleiðslustjóri hjá Ásprent til margra ára en hann starfaði við prentiðn á Akureyri allan sinn starfsferil eða í rúm 50 ár. Hann segir í samtal við Vikublaðið að lokun fyrirtækisins sé afar sorgleg og þetta sé mikið högg fyrir bæjarfélagið. „Hér hafa bæjarbúar og nágrannar getið gengið að góðri og vandaðri þjónustu, hvort heldur sem þurfti að fá prentuð ýmis smáverk, límmiða fyrir alls konar starfsemi, blöð eða stórar og vandaðar bækur. Það er varla hægt að hugsa sér að í svona stóru samfélagi sé ekki hægt að reka prentsmiðju og veita þá þjónustu sem þarf í
Ásprent hefur hætt starfsemi.
Sjá nánar á bls. 5.
Leitað að fjármagni
Norðlendingur vikunnar Úlfhildur Rögnvaldsdóttir er fyrrum formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri til tíu ára og starfaði einnig í verslun, banka og hjá ýmsum félagasamtökum á sínum starfsferli. Úlfhildur var bæjarfulltrúi á Akureyri fyrir Framsóknarflokkinn í þrjú kjörtímabil frá 1982-1994 og starfaði í ýmsum nefndum. Nokkur ár eru síðan hún fór á eftirlaun og hefur hún m.a. starfað með Félagi eldri borgara á Akureyri eftir að starfsferlinum lauk. Úlfhildur er Norðlendingur vikunnar og situr hér fyrir svörum. -þev Sjá bls. 12.
nútímasamfélagi“ segir Jón Ólafur. Með lokun Ásprents lýkur langri prentsmiðjustarfsemi á Akureyri sem má rekja alla leið aftur til ársins 1852. Ásprent Stíll ehf. var stofnað í núverandi mynd 1. september 2003 með sameiningu prentsmiðjunnar Ásprents og auglýsingastofunnar og skiltagerðarinnar Stíls. Síðan þá hafa nokkur prentfyrirtæki runnið inn í Ásprent. Síðastliðið sumar kom Ísafoldarprentsmiðja inn í hluthafahóp Ásprents. Við þann samruna komst Ásprent Stíll að samkomulagi við Útgáfufélagið ehf. um kaup á miðlastarfsemi Ásprents en undir hana fellur útgáfa á Dagskránni, Vikublaðinu og Skránni. Taka skal fram að allir þessar miðlar munu halda áfram að koma út í óbreyttri mynd og hefur lokun Ásprents ekki áhrif á útgáfu þessara miðla. -þev
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
Í ljós hafa komið talsverðar skemmdir og fúi í Húsavíkurkirkju. Vikublaðið ræddi við Guðberg Ægisson sem starfað hefur sem kirkjuvörður síðastliðin 9 ár. Hann segist hafa áhyggjur af stöðunni og ljóst megi teljast að ráðast þurfi í talsverðar framkvæmdir svo vel megi vera. Hann segist eiga von á að tugi milljóna þurfi til í endurbætur á kirkjunni sem og Bjarnahúsi, safnaðarheimili Húsavíkurkirkju. Guðbergur segir að hugmyndir séu uppi um að stofna hollvinafélag Húsavíkurkirkju til að afla fjár til verksins en dregur ekki úr skoðun sinni að honum þyki sveitarfélagið ætti að sjá sóma sinn í því að hlaupa undir bagga. -epe Sjá nánar á bls. 8-9.
Húsavíkurkirkja. Mynd/Þorgeir Baldursson.
2
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
FRÉTTA MOL AR Skólaakstur boðinn út í Norðurþingi Fjölskylduráð Norðurþings fjallaði í vikunni um hvort bjóða eigi út skólaakstur sveitarfélagsins á aðalleiðum. Núverandi samningar renna út í lok þessa skólaárs. Í fundagerð ráðsins kemur fram að ef bjóða á aksturinn út þarf að skoða hvort breyta þurfi leiðum og/eða fyrirkomulagi. Fjölskylduráð samþykkti að fela fræðslufulltrúa að efna til útboðs á skólaakstri á aðalleiðum þar sem samningar eru lausir í lok skólaárs 2020 - 2021. Um er að ræða skólaakstur úr Reykjahverfi í Borgarhólsskóla, úr Lóni í Öxarfjarðarskóla og úr Reistarnesi í Öxarfjarðarskóla. Fræðslufulltrúa er einnig falið að gera drög að útboði á skólaakstri nemenda á milli Grunnskóla Raufarhafnar og Öxarfjarðarskóla.
Tiltekt á lóð og athafnasvæði á Akureyri Bæjarráð Akureyrar tekur undir bókun heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra um að lögð verði áhersla á að tiltekt á lóð og athafnasvæði Steypustöðvar Akureyrar ehf. og Skútabergs ehf. í Sjafnarnesi fari fram strax og snjóa leysir og verði lokið í síðasta lagi 1. september 2021. Heilbrigðisnefnd hafði samþykkt tillögu um breytingu á samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra þannig að í stað 45 daga í 6. grein komi 30 dagar. Hliðstæð breyting er fyrirhuguð í lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar þannig að hraða megi verkferlum til förgunar á skráningarskyldum ökutækjum án skráningarnúmera.
Opnað án takmarkana um Jökulsárbrú Eftir samráðsfund Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands var brúin yfir Jökulsá á Fjöllum opnuð án takmarkana í vikunni. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum hafi lækkað og því hafi verið tekin ákvörðun í samráði við Vegagerðina að hleypa ótakmarkaðri umferð yfir brúna við Grímsstaði.
Dóra Harðar kom færandi á hendur Dóra Harðardóttir frá Húsavík kom færandi hendi til Krabbameinsfélags Íslands og það ekki í fyrsta sinn segir á heimasíðu félagsins. Dóra prjónaði 200 pör af vettlingum fyrir öll aldursbil sem hana langaði að gefa til styrktar góðu málefni. Verða vettlingarnir til sölu og rennur ágóði óskiptur til starfa og stuðnings í þágu krabbameins-greindra og aðstandenda þeirra.
Snjóbræðslukerfið í tröppunum er nánast ónýtt.
Fara þarf í endurbætur á kirkjutröppunum Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar hefur óskað eftir því að áfram verði unnin áætlun um endurbætur á kirkjutröppunum við Akureyrarkirkju ásamt kostnaðaráætlun. Frá því var greint á dögunum að vegna bilunar var slökkt á snjóbræðslukerfinu í kirkjutröppunum tímabundið. Kirkjutröppurnar eru upphitaðar með rafmagni, en um nokkurt skeið hefur verið ólag á hita-
strengjum og undanfarið hafa tíðar útleysingar skapað vandamál. Andri Teitsson, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, segir ljóst að snjóbræðslukerfið í tröppunum sé nánast ónýtt, það var byggt á rafhitun á sínum tíma, en núna myndi verða lagt vatnskerfi. „Þannig að þetta þarf að vinna alveg frá grunni. Svo þarf að endurnýja tröppurnar sjálfar og lýsingu og handrið sem er norðan við
tröppurnar til að verja fólk frá því að falla niður á bílastæðið, svo nokkuð sé nefnt. Það er ljóst að þetta er býsna umfangsmikið verkefni. En tröppurnar eru eitt mikilvægasta kennileiti Akureyrar þannig að það er vilji til að gera þetta svo að sómi sé að,“ segir Andri. Næsta skref sé að skilgreina hvað þurfi að gera og setja svo upp tímaáætlun og kostnaðaráætlun. -þev
Aðgerðaráætlun fyrir eldri borgara Meirihluti bæjarráðs Akureyrar óskar eftir því við frístunda- og velferðarráð að mynda samráðshóp um aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara í samræmi við velferðar- og íþróttastefnu Akureyrarbæjar. Meirihluti bæjarráðs leggur til að horft verði sérstaklega til nýútkominnar skýrslu um heilsueflingu aldraðra. Hallgrímur Gíslason, formaður félags eldri borgara á Akureyri (EBAK), ítrekaði ósk félagsins og öldungaráðs nýverið um að unnin verði heildstæð aðgerðaáælun vegna þjónustu við eldri borgara í samvinnu allra viðkomandi aðila. Málið var áður til umræðu á fundi bæjarráðs þann 13. febrúar 2020 og 5. mars 2020 og var þá vísað til samráðsfundar bæjarstjórnar og öldungaráðs en engin ákvörðun var tekin. Hlynur Jóhannsson hjá M-lista greiddi atkvæði á móti og sagðist í bókun vera á móti því að setja þetta í enn eina nefndina. „Ég tel að eldra fólk eigi inni hjá bænum að þetta sé unnið með skilvirkari hætti. Eins og
þetta er afgreitt hjá bæjarráði er verið að tefja málið,“ sagði í bókun Hlyns.
Akureyri.
Of lítið húsnæði og langar boðleiðir
Hallgrímur Gíslason skrifar grein í blaðinu um málefni eldri borgara í bænum og segir fólk oft hafa kvartað undan löngum boðleiðum. Sameining búsetu- og fjölskyldusviðs í eitt velferðarsvið um síðustu áramót eigi að vera til einföldunar. „Aukið íbúasamráð á einnig að hjálpa til í þessu efni. Eldri borgurum kemur til að fjölga mikið á næstu árum og við því er nauðsynlegt að bregðast,“ segir Hallgrímur. Hann segir einnig að Félag eldri borgara á Akureyri vilji leggja sitt af mörkum með því að vinna með Akureyrarbæ að góðri og uppbyggilegri samveru og öflugu tómstundastarfi. Of lítið húsnæði hamli hins vegar þróun þeirrar starfsemi. Til að unnt sé að bregðast við fjölguninni þurfi að gera áætlun um hvernig á að bregðast við henni á næstu árum. Aðalmálið fyrir aldurshópinn sé heilsuefling. Sjá nánar á bls. 13
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
3
4
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Hjólreiðafélag Húsavíkur formlega stofnað Hjólreiðamenningu á Húsavík hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár og hefur óformlegt hjólreiðafélag verið starfrækt í bænum undanfarin ár. Fyrir skemmstu var fyrsti formlegi aðalfundur félagsins haldinn og kosinn var formaður, Aðalgeir Sævar Óskarsson. Vikublaðið ræddi við Aðalgeir í vikunni en að sögn hans hefur hjólreiðarfólki fjölgað hratt á Húsavík upp á síðkastið. „Sérstaklega undanfarin tvö ár og má ætla að innreið raffjallahjólanna hafi mest áhrif. Það hefur mikið verið að fjölga í hópi rafhjólafólks og með þeim góða hópi hefur komið slagkraftur inn í félagið. Nú finnst okk-
Aðalgeir Sævar Óskarsson.
ur loksins eins og hægt sé að gera eitthvað af viti,“ segir Aðalgeir. Síðastliðið sumar var opnuð ný 2,7 km. hjólabraut sem liggur frá bílastæði á Reykjaheiði niður að Botnsvatni. Brautin var gerð að mestu leiti í sjálfboðavinnu af hjólreiðarfólki og fengust til þess góðir styrkir frá fyrirtækjum úr nærsamfélaginu. Á aðalfundi félagsins var tekin ákvörðun um það að framlengja brautina niður í Skrúðgarð í hjarta Húsavíkur og segir Aðalgeir að búið sé að fjármagna framkvæmdirnar. Með framlengingunni verður brautin um 5 km. löng og verður
Fjölskylduráð Norðurþings
auglýsir eftir umsóknum
um styrki til lista- og menningarmála.
Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum. Úthlutun úr sjóðnum fer fram á reglulegum fundum fjölskylduráðs. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á www.nordurthing.is
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt eyðublað á www.nordurthing.is
mikil lyftistöng fyrir hjólamenninguna í bænum að sögn Aðalgeirs. Nokkrir myndarlegir styrkir hafa borist undan farið, m.a. frá Landsvirkjun, Landsbankanum og frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Áður höfðu ýmis húsvísk fyrirtæki, s.s. Trésmiðjan Rein og Höfðavélar, styrkt uppbyggingu á fyrri hluta brautarinnar. Hið nýstofnaða félag verður
hluti af almenningsíþróttadeild Völsungs sem hefur verið sú deild innan Völsungs sem hefur verið í hvað örustum vexti undan farin ár enda verið gríðarleg lýðheilsuvakning meðal bæjarbúa og aðstæður til almenningsíþrótta tekið stakkaskiptum. Ber þar að nefna göngu- og hjólreiðastíg um Stangarbakka en eftir að hann var tekinn í notkun virðist umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi fólks hafa tekið fram úr bílaumferðinni. /epe
Akureyringar einna ánægðastir á landinu Íbúar á Akureyri eru einna ánægðastir á landinu með búsetuskilyrði og meðal þeirra jákvæðustu í viðhorfi til síns sveitarfélags, samkvæmt nýrri könnun á vegum Byggðastofnunar og landshlutasamtakanna. Fjallað er um könnunina á vef Akureyrarbæjar. Þar segir að Akureyringar séu ánægðastir allra í könnuninni með almenningssamgöngur, framhaldsskóla, háskóla, framboð á leiguíbúðum og íbúðarhúsnæði til kaups, menningarlíf, sorpmál, umhverfismál og vegakerfi. Íbúar Akureyrarbæjar og við Eyjafjörð komu, ásamt höfuðborgarbúum, best út þegar spurt var um tækifæri til afþreyingar. Þeir eru að auki meðal þeirra jákvæðustu í samanburði við íbúa annarra svæða hvað varðar vöruverð og vöru-/þjónustuúrval, unglingastarf, nettengingar, mannlíf,
tækifæri til íþrótta-/tómstundaiðkunar, framfærslukostnað, farsímasamband og fjölbreytni atvinnulífs. Í heildarstigagjöf fyrir landsvæðin 24 og þau 40 búsetuskilyrði sem spurt var um voru íbúar Akureyrarbæjar í 2. sæti, rétt á eftir Vestmannaeyingum, og aðrir íbúar við Eyjafjörð voru í 3. sæti. Skoðanakönnunin var gerð í september og október 2020 og var send út á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri annaðist gerð úrtaks. Niðurstöðurnar byggja á svörum frá yfir 10 þúsund þátttakendum, þar af 762 frá íbúum Akureyrarbæjar, og er þetta í fyrsta sinn sem svo víðtæk könnun á búsetuskilyrðum, hamingju og viðhorfi til sveitarfélags nær til allra svæða landsins.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir fjölmenningarfulltrúi - sigrunbjorg@nordurthing.is eða í síma 464 - 6100
Norðurþing Ketilsbraut 7 - 9 / www.nordurthing.is / 464 6100
Akureyri.
Mynd/Ármann Hinrik.
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
5
Langri prentsmiðjustarfsemi á Akureyri lokið Eins og fram hefur komið er prentsmiðjan Ásprent Stíll á Akureyri hætt starfsemi. Skiptastjóri tilkynnti starfsfólki þetta á fundi í byrjun vikunnar en hjá fyrirtækinu störfuðu um 20 manns. Eins og blaðið greindi frá í síðustu viku var Ásprent tekið til gjaldþrotaskipta og fékk starfsfólk ekki greidd út laun um síðustu mánaðamót. Rekstur félagsins hefur verið þungur síðustu misseri og áhrif COVID-19 faraldursins hefur haft afgerandi neikvæð áhrif. Tilraunir til fjárhagslegrar endurskipulagningar með viðskiptabanka félagsins tókust ekki. Jón Ólafur Sigfússon er fyrrum framleiðslustjóri hjá Ásprent til margra ára en hann starfaði við prentiðn á Akureyri allan sinn starfsferil eða í rúm 50 ár. Hann segir lokun fyrirtækisins vera afar sorglega.
Sorglegur endir „Þetta var ömurlegur dagur fyrir alla viðkomandi aðila þegar starfsemin hætti og sorglegur endir á sögu prentiðnaðar á Akureyri,“ segir Jón Ólafur. „Saga prentunar í bænum er afar löng og hér var langöflugasta prentsmiðjan á landsbyggðinni, fínar vélar og fært fagfólk í starfi.“ Hann segir það vera mikið högg fyrir bæjarfélagið að Ásprent hætti starfsemi. „Hér hafa bæjarbúar og nágrannar
getað gengið að góðri og vandaðri þjónustu, hvort heldur sem þurfti að fá prentuð ýmis smáverk, límmiða fyrir alls konar starfsemi, blöð eða stórar og vandaðar bækur. Vonandi sjá einhverjir sér fært að endurvekja þessa starfsemi því það er varla hægt að hugsa sér að í svona stóru samfélagi sé ekki hægt að reka prentsmiðju og veita þá þjónustu sem þarf í nútímasamfélagi“ segir Jón Ólafur.
Prentsmiðjustarfsemi frá árinu 1852 Með lokun Ásprents lýkur langri prentsmiðjustarfsemi á Akureyri sem má rekja alla leið aftur til ársins 1852 en þá var stofnuð prentsmiðja undir heitinu Prentsmiðja Norðurog Austurumdæmisins og hóf starfsemi í Aðalstræti 50 og ári síðar, 1853, hóf göngu sína fyrsta norðlenska blaðið, Norðri. Gekk þessi rekstur illa og 1879 urðu eigendaskipti og Björn Jónsson stofnaði nýja prentsmiðju sem hlaut nafnið Prentsmiðja Norðanfara. Sameinuðust síðar þessar tvær prentsmiðjur undir nafninu Prentsmiðja Björns Jónssonar og lauk þeirri starfsemi 1987. Árið 1901 stofnaði Oddur Björnsson nýja og mjög fullkomna prentsmiðju sem á fyrstu árunum bar nafnið Prentsmiðja Odds Björns-
Frá vinnslu í Ásprents sem nú hefur hætt starfsemi.
sonar en breyttist í Prentverk Odds Björnssonar (POB) og var hún rekin til ársins 1995.
Þekking og reynsla sameinaðist í Ásprent Árið 1975 stofnaði Árni Sverrisson prentsmiðjuna Ásprent og rak hana til ársins 1979. Þá keyptu hjónin Rósa Guðmundsdóttir og Kári Þórðarson prentsmiðjuna. Var hún fyrst til húsa í Kaupvangsstræti, síðar í
Brekkugötu en 1988 flutti þau sig í Glerárgötu 28 þar sem prentsmiðjan var alla tíð síðan. Árið 1995 keyptu þau rekstur POB og fluttu í Glerárgötuna og fylgdu þá með margir starfsmenn sem urðu síðar þungamiðja í starfseminni. Ásprent Stíll ehf. var stofnað í núverandi mynd 1. september 2003 með sameiningu prentsmiðjunnar Ásprents og auglýsingastofunnar og skiltagerðarinnar Stíls. Síðan þá hafa nokkur prentfyrirtæki runnið inn í Ásprent og má þar nefna Alprent (áður Valprent stofnað 1962), Límmiða Norðurlands, Prenttorg og Stell. Það má því segja að í Ásprenti hafi sameinast þekking og reynsla sem byggð hefur verið upp í prentiðnaði á Akureyri á liðnum áratugum.
Dagskráin, Vikublaðið og Skráin koma áfram út
Árið 1901 stofnaði Oddur Björnsson nýja og mjög fullkomna prentsmiðju sem á fyrstu árunum bar nafnið Prentsmiðja Odds Björnssonar en breyttist í Prentverk Odds Björnssonar (POB) og var hún rekin til ársins 1995. Fremstur á myndinni í hvítri skyrtu og með slaufur er Sigurður Oddsson, sonur Odds Björnssonar, sem var lengi prentsmiðjustjóri.
Síðastliðið sumar kom Ísafoldarprentsmiðja inn í hluthafahóp Ásprents með það að markmiði að efla framleiðslu og vöruframboð Ásprents. Við þann samruna komst Ásprent Stíll að samkomulagi við Útgáfufélagið ehf. um kaup á miðlastarfsemi Ásprents en undir hana fellur útgáfa á Dagskránni, Skránni og Vikublaðinu. Tekið skal fram að allir þessar miðlar munu halda áfram að koma út í óbreyttri mynd og hefur lokun Ásprents ekki áhrif á útgáfu þessara miðla. -þev Heimildir: Prentarinn 44. Árg., Saga Akureyrar II. Bindi.
6
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Viðhald óskast í Norðurþingi Það virðist vera stefna sveitarstjórnar Norðurþings að losa sig við fasteignir sem eru orðnar frekar á viðhald. Skemmst er að minnast á verbúðirnar sem hafa verið til sölu um all nokkurt skeið og nýjasta útspilið er að selja þær og taka sem greiðslu fasteignina að Hafnarstétt 1, neðri hæð. Meirihluti sveitarstjórnar telur minni áhættu fólgna í því að eiga Hafnarstétt 1 þar sem Verbúðirnar standa fyrir kostnaðarsömu viðhaldi ef eitthvað gagn á að vera af þeim. Þetta virðist vera víðar að fasteignir sveitarfélagsins drabbist niður án þess að nokkuð sé að gert, enda kannski sveitarEgill P. Egilsson, blaðamaður. sjóður heldur rýr til að kosta til stórra framkvæmda til að halda við sögufrægum húsum. Gamli sýslumannsbústaðurinn, Tún, er dæmi um slíkt en þar var um árabil starfrækt félagsmiðstöð á vegum sveitarfélagsins; eða þar til ekki þótti verjandi að halda úti slíkri starfsemi í húsinu, bæði vegna slæms ástands en ekki síður slæmu aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Í dag er húsið að hluta til leigt út til Háskóla Íslands og nú nýverið hefur Rauðakrossdeildin á svæðinu óskað eftir að leigja hluta hússins á undirverði. Ekkert bólar á viðhaldi, og ekki selst húsið. Íþróttahöllin er enn eitt dæmið um lélegt viðhald þó ástandið þar sé kannski ekki jafn slæmt og víða annars staðar. Þó eru dæmi um leka í þaki og fleira svo ekki sé minnst á áhorfendastúkuna. Hana fékk Norðurþing athugasemd út á, frá Vinnueftirlitinu fyrir nokkrum árum vegna slysahættu eftir óhapp sem fór betur en á horfðist þegar barn féll niður um bil á milli eininga stúkunnar. Samkvæmt upplýsingum frá íþrótta og tómstundafulltrúa hafa engar úrbætur verið gerðar. Nú er til umfjöllunar í blaðinu brýn viðhaldsþörf á Húsavíkurkirkju og Bjarnahúsi og ljóst að tugi milljóna þarf í viðhaldsframkvæmdir svo vel megi vera. Sveitarstjóri lýsir sig opinn fyrir því að sveitarfélagið komi að málum með einhverjum hætti. Viðhald á mannvirkjum kirkjunnar er reyndar ekki í verkahring sveitarfélaga en Kristján segir að þegar um sé að ræða menningarverðmæti á við Húsvíkurkirkju, sjálft hjarta bæjarins þá sé sjálfsagt að sveitarfélagið skoði málið með opnum hug, sér í lagi ef samstaða sé um það innan samfélagsins. Formaður sóknarnefndar Húsavíkursóknar segist þó ekki vongóð um aðkomu Norðurþings og ef litið er til ástands á mörgum sögufrægum fasteignum sveitarfélagsins þá lái henni hver sem vill.
VIKUBL AÐIÐ Sími 4 600 750 Netfang: vikubladid@vikubladid.is – Veffang: vikubladid.is Útgefandi: Útgáfufélagið ehf. Ritstjóri: Þröstur Ernir Viðarsson (ábm.) – Netfang: throstur@vikubladid.is Blaðamaður: Egill Páll Egilsson – Netfang: egillpall@vikubladid.is Ritstjórn og auglýsingar: Glerárgata 28, 600 Akureyri ISSN 1670-4010
það má skipta um skoðun 30 daga skilaréttur*
*Nánar á elko.is
Verið velkomin í nýja verslun að Tryggvabraut 18, Akureyri. Mán-fös: Lau: Sun.
11:00 - 19:00 11:00 - 18:00 12:00 - 18:00
ORÐIÐ Á GÖTUNNI Kennileitin í kröppum dansi
Eins og fjallað er um í blaðinu þá er Húsavíkurkirkja í slæmu ástandi og þarfnast mikillar lagfæringar en kirkjan er eitt helsta kennileiti Húsavíkur. Eitt helsta kennileiti Akureyringa, sjálf Akureyrarkirkja, hefur einnig verið í brasi undanfarið. Ekki eru mörg ár síðan að kirkjan var spreyjuð í bak fyrir og unnar skemmdir á veggklæðingu og nú síðast hefur komið í ljós að ráðast þarf í miklar endurbætur á kirkjutröppunum eins og getið er á
öðrum stað í blaðinu. Framkvæmdir á endurbótum á kirkjunni vegna skemmda eru langt komnar en óvíst er hvenær kirkjutröppurnar verði klárar enda þarf að vanda vel til verka. Það er vonandi að þessar tvær kirkjur ná sínum vopni á ný sem allra fyrst enda vita allflestir hversu mikilvægt er að hafa þessar byggingar í lagi fyrir aðdráttarafl bæjarfélaganna.
Ákall vegna Punktsins á Akureyri
Handverksmiðstöðin Punkturinn er vinsæll staður í Rósenborg en bæjaryfirvöld á Akureyri hafa stefnt að því að flytja starfsemina annað, þvert á vilja aðstandenda og notanda starfseminnar þar. En nú á að láta til skarar skríða á ný og því mótmæla nokkrir hollvinir í aðsendri grein sem birtist á Vísir. is. í vikunni. „Undanfarin tvö ár hafa kjörnir fulltrúar á Akureyri
um í að falla frá þessum fyriráætlunum.
Gleymum ekki eldra fólkinu
skapað mikla óvissu um framtíð Punktsins. Í umræðunni hefur verið að flytja starfsemina í húsnæði sem getur ekki hýst nema lítið brot af því starfi sem nú er haldið úti í Rósenborg. Ákvarðanir hafa verið teknar án þess að samráð sé haft við notendur og starfsfólk Punktsins. Lítil greiningarvinna hefur verið unnin og undirbúningur fyrir ákvarðanatöku ekki unninn með faglegum hætti. Umræðan hefur búið til mikið óöryggi, vonleysi og óvissu meðal notanda,” segir m.a. í bréfinu. Ljóst er að sótt er hart að bæjaryfirvöld-
Fjallað er um málefni aldraða í blaði vikunnar þar sem greint er frá því að meirihluti bæjarráðs Akureyrar óski eftir því við frístunda- og velferðarráð að mynda samráðshóp um aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara í samræmi við velferðar- og íþróttastefnu Akureyrarbæjar. Hlynur Jóhannsson hjá M-lista greiddi atkvæði á móti og sagðist í bókun vera á móti því að setja þetta í enn eina nefndina. „Ég tel að eldra fólk eigi inni hjá bænum að þetta sé unnið með skilvirkari hætti. Eins og þetta er afgreitt hjá bæjarráði er verið að tefja málið,“ sagði í bókun Hlyns. Á götuhornum bæjarins er fólk sammála um að eldra fólkið eigi skilið að málefni þeirra séu unnin hratt og örugglega en tefjist ekki endalaust í nefndum og starfshópum. -þev
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
7
Er það minn eða þinn sjóhattur? Takk Norðurþing! Þann 20. janúar síðastliðinn sendi sveitarstjórn Norðurþings frá sér umsögn um frumvarp til laga um miðhálendisþjóðgarð. Vægt er tekið til orða með því að segja, að þetta sé eitt það allra slappasta sem komið hefur frá sitjandi sveitarstjórn. Skömm er að og sýnir að hagsmunir íbúanna er varpað fyrir borð í nafni hlutleysis. Heiðarlegra hefði verið að lýsa yfir beinum stuðningi við frumvarpið í stað þess tátipls sem á sér stað í umsögninni. Í umsögninni segir m.a.: „Að tækifæri kunna að liggja í uppbyggingu þjónustu og innviða fyrir þjóðgarðinn við Grímsstaði á Fjöllum og nærliggjandi svæði innan Norðurþings nærri mörkum þjóðgarðs og hálendisins.“ Nokkrum línum neðar segir: „Lykilatriði er að sveitarfélög séu ekki í einu og öllu bundin af stjórnunar- og verndaráætlun garðsins og þurfa ekki að taka allt sem þar kæmi fram inn í skipulag sveitarfélags.“ Þarna er algjör tvískinnungur á
ferðinni og tipla menn þar í kringum grautarskálina, léttstígir eins og tófa án þess að marki neinsstaðar spor. Þeir sjá tækifærin sem mögulega liggja nærri mörkunum en þó sé lykilatriði að sveitarfélögin séu ekki bundin af stjórnunarog verndaráætlun garðsins. Hvers vegna gerir þá sveitarstjórn enga fyrirvara við 14. gr. 3. kafla sem segir að öll jaðarsvæði muni falla undir stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðs? Hvers vegna eru engar athugasemdir gerðar við að hvergi liggur nein skilgreining á orðinu „jaðarsvæði“? Með sínu svokallaða „hlutleysi“ er sveitarstjórn óbeint að leggja blessun sína yfir frumvarpið. Hún getur þá líklega sætt sig við að jarðir og eignir séu teknar eignarnámi með skipun ráðherra. Henni finnst ásættanlegt að lýðræðislegt skipulagsvald kjörinna fulltrúa sé skert og völd 1/3 af landinu okkar sé fært á fárra manna hendur í nafni forræðishyggju. Henni finnst í lagi að aldrei hafi
Ágústa Ágústsdóttir.
farið fram nein þarfagreining og hvergi liggi fyrir nein uppbyggingar- kostnaðar- eða rekstaráætlun fyrir svo stórt bákn. Henni finnst í lagi að nýtingarog almannarétturinn sé virtur að vettugi þar sem ráðherra einn getur ef honum sýnist svo, lokað vegum og svæðum árið um kring. Þess má geta að innan Vatnajökulsþjóðgarðs er nú þegar búið að loka
Krossgáta Vikublaðsins
tugum slóða sem hefð var fyrir að nota í áratugi og jafnvel lengur. Engin ástæða er til að ætla annað en það sama muni gerast innan miðhálendisþjóðgarðs ef af honum verður. Það er eitt ef meirihluta sveitarstjórnar hugnast sú hugmynd að það lýðræðislega rekna land sem Þjóðlendurnar eru, verði samþjappaðar niður í hendur eins ráðherra og breytt í enn eina ríkisstofnunina. En það er annað að samþykkja frumvarp í kringum þá stofnun sem inniber slíkt valdboð og einræði sem raunin er. Og ég held að sveitarstjórn ætti að velta því fyrir sér hvort raunveruleg náttúruvernd felist í því að stimpla hálendið allt með nafninu „Þjóðgarður“, vitandi að nafnið eitt og sér mun marfalda það magn ferðamanna sem mun vilja sækja það heim? Hvað verður þá um þá náttúrulegu upplifun ferðamanna sem svo mikið er talað um? Einnig dreg ég það stórlega í efa, ef sveitarstjórn stæði frammi fyrir því að allt að 65% alls landsvæðis sveitarfélagsins ætti að falla undir þjóðgarð eins og blasir við öðrum sveitarfélögum, að hún myndi sýna slíkt hlutleysi sem hún sýnir nú. Í ljósi þessarar óljósu afstöðu sveitarstjórnar er mér því með öllu óskiljanlegt hvers vegna yfir höfuð hún telur nauðsynlegt að halda uppi vörnum fyrir landi í eigu sveitarfélagsins í svokölluðu Ássandsmáli sem ríkið rekur nú fyrir dómstólum í nafni Landgræðslunnar. Þar vill ríkið slá eign sinni á stórt landsvæði norðan vegar í Kelduhverfi. Hvers vegna eru hagsmunir sveitarfélagsins veigameiri þar en annarsstaðar? Það lítur allavega út fyrir að hagsmunir íbúanna vegi töluvert minna þegar þeir eru settir á vogarskálina á móts við hagsmuni sveitarfélagsins sjálfs. Því hvet ég sveitarstjórnina til að segja sig frá Ássandsmálinu sem fyrst svo samhljómur geti ríkt í hlutlausum vinnubrögðum þeirra og framkomu því þar fer ekki saman hljóð og mynd í dag.
Höfundur: Bragi V. Bergmann / bragi@fremri.is
Ágústa Ágústsdóttir íbúi við Öxarfjörð
Lausnarorð gátunnar er nafnorð og fæst með því að raða saman stöfunum úr tölusettu reitunum. Rétt lausnarorð birtist í næsta Vikublaðið. Lausnarorð síðustu gátu var: AFMÆLI
8
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Umfjöllun:
Leitað að fjármagni til bjargar Húsavíkurkirkju Hjarta bæjarins skemmt af fúa – Bjarnahús í lélegu standi – Aðgengismálum ábótavant - Tugmilljóna framkvæmdir – Sveitarstjóri opinn fyrir samstarfi Húsavíkurkirkja hefur löngum verið helsta prýði og kennileiti Húsavíkur enda varla hægt að ýkja fegurð þessa fornfræga húss sem var hannað af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt. Ferðamenn hafa í áranna rás laðast að kirkjunni sem er án efa vinsælasta myndefni bæjarins síðustu áratugi. Kirkjan var vígð árið 1907 og er nú nýlokið við að mála hana að utan. Þá komu í ljós talsverðar skemmdir og fúi eins og Atli Vigfússon á Laxamýri skrifaði um í Morgunblaðinu í vikunni. Tugmilljóna þörf Vikublaðið ræddi við Guðberg Ægisson sem starfað hefur sem kirkjuvörður síðastliðin 9 ár. Hann segist hafa áhyggjur af stöðunni og
ljóst megi teljast að ráðast þurfi í talsverðar framkvæmdir svo vel megi vera. Hann segist eiga von á að tugi milljóna þurfi til í endurbætur á kirkjunni sem og Bjarna-
húsi, safnaðarheimili Húsavíkurkirkju. Guðbergur segir að hugmyndir séu uppi um að stofna hollvinafélag Húsvíkurkirkju til að afla fé til verksins en dregur ekki úr skoðun sinni að honum þyki sveitarfélagið ætti að sjá sóma sinn í því að hlaupa undir bagga. „Fjórir krossar ofan á skipi kirkunnar, smíðaðir úr furu eru mjög skemmdir af fúa víðast hvar. Þeir eru undir miklu veðurálagi og það er hætta á að þeir falli í slæmu veðri,“ segir Guðbergur og bætir við að samkvæmt Guðmundi Halldórssyni málarameistara sem sá um málun á kirkjunni væri réttast að endurnýja krossana úr vönduðum harðvið. Þá segir Guðbergur að þverbitar utan á kirkjunni séu flestir mjög illa farnir af fúa og að yfir þetta hafi verið málað í sumar til þess að allt liti vel út en að það væri skammgóður vermir, eins séu turnspýrur illa farnar. Einnig þurfi að einangra þak kirkjunnar að innan. Þá bendir Guðbergur á að safnaðarheimilið, Bjarnahús, sé farið að láta á sjá og að þar þurfi að ráðast í viðhaldsaðgerðir ef ekki á illa að fara. „Það er augljóslega kominn tími á að skipta um glugga
enda farnir að leka í mestu rigningunum. Bárujárnsklæðingin er líka orðin ansi léleg og þyrfti að klæða bæði þak og veggi upp á nýtt,“ segir Guðbergur og bætir við að þakskegg og lista þurfi einnig að endurnýja. Guðbergi er það mikið hjartans mál að kirkjunni sé sómasamlega haldið við enda sé hún eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna í bænum. „Ég veit til þess að það er leikur á netinu um allan heim þar sem Húsavíkurkirkja er einn af miðpunktunum,“ segir hann. Leikurinn snýst um að ferðamenn sem heimsækja Húsavík taki mynd af sér við kirkjuna og pósta inn á vef-
Helga Kristinsdóttir.
Rögnvaldur Ólafsson (5. desember 1874 – 14. febrúar 1917)
Húsavíkurkirkja.
Guðbergur Ægison.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.
var íslenskur húsameistari (arkitekt). Hann var fyrsti Íslendingurinn sem nam byggingarlist og raunar fyrsti nútíma húsameistarinn sem Íslendingar eignuðust. Rögnvaldur fæddist á Ytrihúsum í Dýrafirði. Faðir hans var Ólafur bóndi Sachariasson og móðir hans Veronika Jónsdóttir. Rögnvaldur byrjaði nám nokkuð gamall. Hann lærði undir skóla hjá Þorvaldi Jónssyni prófasti á Ísafirði. Hann stundaði svo nám við Latínuskólann í Reykjavík. Þar hóf hann nám árið 1894 og var efstur námsmanna við útskrift árið 1900 og útskrifaðist sem utanskólasveinn. Fjórum árum síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar til að nema húsgerðarlist og fékk til náms nokkurn stuðning af landsfé. Lagði hann sig þar um hríð af miklu kappi eftir því námi, en sem nokkuð leið, tók hann að kenna heilsubilunar, sem síðar átti eftir að draga hann til dauða. Ágerðist sjúkleiki hans svo mjög, að hann hélt aftur til Íslands árið 1904. Starfaði hann þar til hann lést á Vífilsstaðaspítala. Eitt af þekktari verkum Rögnvaldar er Húsavíkurkirkja sem var vígð 2. júní 1907. Hún er krosskirkja, byggð úr norskum viði. Edinborgarhúsið á Ísafirði sem er timburhús reist 1907. Nokkur önnur verk hans voru: Vífilsstaðaspítali sem var reistur 1908, Bíldudalskirkja, sem er steinhús og Þingeyrarkirkja sem er einnig steinhús og í gotneskum stíl. Þá eru skrifstofur forsetaembættisins til húsa í einni af byggingum Rögnvaldar, Sóleyjargötu 1.
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Húsavíkurkirkja Húsavíkurkirkja er tvílyft timburhús og krossmynduð að grunnfleti. Efri hæðin er portbyggð undir krossreistu risi. Þakskegg slútir fram yfir veggi og gafla. Á milli vestur- og norðurálmu kirkjunnar er turn, ferhyrndur að grunnfleti og fjórar hæðir. Þak turnsins er hátt og toppmyndað klætt sléttum málmplötum. Á öllum hliðum hans eru burstir sem skaga út yfir hliðarnar. Á burstunum eru útsagaðar spírur og hryggskraut. Ofarlega á turnspírunni eru agnarsmáir kvistir með fjögurra rúðu glugga, einn á hverri þakhlið. Þeir eru með bjórlaga þaki yfir og lítilli spíru. Efst á turnþakinu er hnúður og upp af honum er stór hvítmálaður kross með lauklaga endum. Kirkjan er talin eitt glæsilegasta hús í sveitserstíl hér á landi og eitt fegursta verk Rögnvaldar Ólafssonar. (Kirkjur íslands 22. bindi)
9 en það hafi tekið allt sumarið að fá það í gegn að sögn Helgu. Þá nefnir Helga að það sé mikil kirkjulóð í kringum kirkjuna og að hugur hafi verið í sóknarnefndinni að bæta úr bílastæðamálum við kirkjuna. Sóknarnefnd sendi Norðurþingi erindi þar sem óskað var eftir samstarfi um að gera bílastæði við Ketilsbraut austan við kirkjuna suður að Bjarnahúsi. Helga segir að erindinu hafi verið hafnað. Ásýnd kirkjulóðarinnar hefur breyst talsvert að undanförnu og er lóðin á milli kirkjunnar og að Bjarnahúsi orðin mun opnari út að Garðarsbraut en Helga segir að betur megi ef duga skal. „Við viljum að kirkjan bjóði fólk velkomið eins og segir í trúnni og sjáum fyrir okkur opið og fallegt kirkjutorg enda má fólk alveg koma inn á lóðina og njóta fegurðarinnar,“ segir Helga og bætir við að áhersla sé lögð á áframhaldandi tengingu lóðarinnar við Bjarnahús.
Sveitarstjóri opinn fyrir samtarfi Vikublaðið hafði samband við Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóra Norðurþings og spurði hann hvort til greina kæmi að Norðurþing hlutaðist til um nauðsynlegar framkvæmdir við kirkjuna. „Ég reikna með að óska eftir umræðu
Skemmd í bitum.
Skemmd í turnspýtu.
svæði. Þá þurfa þátttakendur að svara spurningum og til þess að geta fundið svarið þurfa þeir að finna miða sem er falinn í eða við kirkjuna með vísbendingum. „Ég hef lent í því að ferðamenn komi inn í kirkjuna og spyrja mig hvort ég viti hvar miðann sé að finna,“ segir Guðbergur og bætir við aðspurður að hann hafi vitað af miðanum fyrir um tveimur árum. „Þá var hann falinn í litlum hólki undir suðurtröppunum.“
Aðgengismál í forgangi „Það sem við erum að vinna með núna er að koma turninum í viðunandi horf, það er það sem þarf að gerast í sumar. Síðan er það aðgengið sem brennur á okkur“, segir Helga Kristinsdóttir, formaður sóknarnefndar Húsavíkursóknar með þungri áherslu í samtali við Vikublaðið og bætir við að það liggi svakalegur kostnaður í þessum framkvæmdum. „Við förum af stað með samþykktir til þess að stofna hollvinafélag á næstunni. Ég er búin að fá mikið af símtölum og tölvupóstum frá fólki sem segist vera tilbúið til
að leggja málefninu lið, hvort sem er í gegnum vinnu eða með því að leggja fram fjármagn. Ég er bjartsýn á að þessi vinna muni ganga vel og trúi því að það safnist inn fyrir þessu. Velviljinn er til staðar,“ útskýrir Helga. Þegar á heildina er litið er þó talsvert meira verk fyrir höndum, sér í lagi ef Bjarnahús er tekið inn í myndina en það er staðsett við hlið kirkjunnar og opnað hefur verið á aðgengi í gegn um lóðina á milli húsanna tveggja. Helga segir að ekki hafi verið leitað á náðir Norðurþings um að koma að verkefninu og lætur Helga í veðri vaka að erfiðlega hafi gengið að fá sveitarfélagið til samstarfs í tengslum við önnur verkefni á vegum kirkjunnar. „Ég veit ekki hvort það þjónar tilgangi að leita til Norðurþings nema sveitarfélagið hreinlega komi að þessu að fyrra bragði,“ segir hún. Í sumar stóð Húsavíkursókn fyrir framkvæmdum í gamla kirkjugarðinum á Húsavík. Leitað var til sveitarfélagsins til að leggja til efnisflutninga og það tókst að lokum
um þetta mál á sveitarstjórnarfundi núna á þriðjudaginn. Við munum örugglega taka einhverja umræðu um það. Þetta er auðvitað ákaflega leiðinleg og erfið staða. Húsavíkurkirkja er algjört kennileiti fyrir bæinn,“ segir Kristján en tekur fram að sveitarfélaginu beri þó engin lagaleg skylda til að koma að málefnum kirkjunnar. „En þegar svona er í pottinn búið þá mun auðvitað sveitarfélagið taka umræðu um hvort hægt sé að koma að þessu. Við munum auðvitað horfa í þessa stöðu með einhverjum lausnamiðuðum hætti. Hversu mikið, hvernig eða yfir höfuð hvort verður að koma í ljós,“ segir Kristján og bætir við að honum þyki ekki óeðlilegt að leitað sé til sveitarfélagsins þegar stendur fyrir þrifum að koma menningarverðmætum eins og Húsavíkurkirkju í viðunandi horf. „Það er ekki nema sjálfsagt að taka púlsinn á því. Samfélagið er auðvitað sveitarfélagið og ef það er forgangsatriði hjá fólki að nota fjármuni sveitarfélagsins í þetta verkefni, þá munum við skoða það; þó vissulega séum við sjálf með fasteignir á okkar snærum sem skorta gríðarlegt viðhald. En þetta er svona eitt af þessum heilögu véum sem við viljum hafa í lagi,“ segir Kristján. /epe
það má skipta um skoðun 30 daga skilaréttur*
*Nánar á elko.is
Verið velkomin í nýja verslun að Tryggvabraut 18, Akureyri. Mán-fös: Lau: Sun.
11:00 - 19:00 11:00 - 18:00 12:00 - 18:00
10
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Menningarsjóður Akureyrar 2021 Menningarsjóður Akureyrar 2021
Hægt er að sækja um í fjórum ólíkum flokkum eftir við á:um í fjórum ólíkum flokkum Hægtþví er sem að sækja eftir því sem við á: • Samstarfssamningar Verkefni sem stuðla að fjölbreyttu menningarlífi á Akureyri. Hægt er að sækja um • Samstarfssamningar samstarf til tveggja þriggja áramenningarlífi í senn. Verkefni sem stuðlaeða að fjölbreyttu á Akureyri. Hægt er að sækja um Upphæðirtilsamstarfssamninga samstarf tveggja eða þriggjageta ára íverið senn.á bilinu 100.000 – 800.000 kr. Upphæðir samstarfssamninga geta verið á bilinu 100.000 – 800.000 kr.
• Verkefnastyrkir Verkefni sem hafa listrænt og menningarlegt gildi fyrir samfélagið. • Verkefnastyrkir ÍVerkefni ár er sérstök áhersla lögð áogverkefni sem endurspegla samfélagið og sem hafa listrænt menningarlegt gildi fyrir hinsegin samfélagið. mannlífsins. Ífjölbreytileika ár er sérstök áhersla lögð á verkefni sem endurspegla hinsegin samfélagið og Styrkir eru að upphæð 50.000 – 400.000 kr. Einnig verður úthlutað tveimur styrkjum fjölbreytileika mannlífsins. að upphæð kr.50.000 til stærri verkefnakr. í tengslum við Akureyrarvöku (27.-29. ágúst). Styrkir eru að600.000 upphæð – 400.000 Einnig verður úthlutað tveimur styrkjum að upphæð 600.000 kr. til stærri verkefna í tengslum við Akureyrarvöku (27.-29. ágúst).
Skilafrestur allra umsókna er til og með 14. febrúar 2021 Skilafrestur allra umsókna er til og með 14. febrúar 2021
• Starfslaun listamanna
Umsóknir skulu innihalda greinargóðar og hnitmiðaðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni • Starfslaun listamanna á starfslaunatímabilinu, listferil og menntun. Umsóknir skulu innihalda greinargóðar og hnitmiðaðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni Árið 2021 eru veitt starfslaun aðog upphæð 2.700.000 kr. sem dreifast jafnt yfir 9 mánuði. á starfslaunatímabilinu, listferil menntun. Öllum meðeru lögheimili á Akureyri er heimilt2.700.000 að sækjakr. umsem í eigin nafni.jafnt yfir 9 mánuði. Árið 2021 veitt starfslaun að upphæð dreifast Öllum með lögheimili á Akureyri er heimilt að sækja um í eigin nafni.
• Sumarstyrkur ungra listamanna Úthlutað verður 1-2 styrkjum til ungs og efnilegs listafólks á aldrinum 18-25 ára sem er í • Sumarstyrkur ungra listamanna framhaldsnámi leið í framhaldsnám í sinni grein. Markmiðið er að18-25 viðkomandi Úthlutað verðureða 1-2 ástyrkjum til ungs og efnilegs listafólks á aldrinum ára sem geti er í dregið úr sumarvinnu (júní-ágúst) með námi og þess lagt stund list sína bæðigeti með framhaldsnámi eða á leið í framhaldsnám í sinni grein.í stað Markmiðið er aðá viðkomandi æfingum viðburðum. dregið úr og sumarvinnu (júní-ágúst) með námi og þess í stað lagt stund á list sína bæði með Upphæð styrks er 600.000 kr. sem dreifist jafnt yfir mánuðina júní, júlí og ágúst. æfingum hvers og viðburðum. Á móti styrknum munerviðkomandi fram meðal annars á viðburðum á sumarhátíðum Upphæð hvers styrks 600.000 kr.koma sem dreifist jafnt yfir mánuðina júní, júlí og ágúst. bæjarins, Listasumri (2.-31. júlí) og Akureyrarvöku (27.-29. júlí), allt eftir nánara samkomuÁ móti styrknum mun viðkomandi koma fram meðal annars á viðburðum á sumarhátíðum lagi við Akureyrarstofu hverju bæjarins, Listasumri (2.-31. júlí)sinni. og Akureyrarvöku (27.-29. júlí), allt eftir nánara samkomulagi við Akureyrarstofu hverju sinni.
Hagnýtar upplýsingar Upplýsingar reglur Menningarsjóðs, Samþykkt um starfslaun listamanna og Hagnýtarumupplýsingar Menningarstefnu Akureyrar má sjá á heimasíðu Akureyrarbæjar: Upplýsingar um reglur Menningarsjóðs, Samþykkt um starfslaun listamanna og https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/reglur-og-samthykktir Menningarstefnu Akureyrar má sjá á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/reglur-og-samthykktir Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á www.akureyri.is. Athugið aðrafrænt einungis er hægt þjónustugátt að opna umsóknina með íslykliá www.akureyri.is. eða rafrænum skilríkjum. Sótt er um í gegnum Akureyrarbæjar Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is. Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is.
Geislagata 9
Sími 460 1000
www.akureyri.is
akureyri@akureyri.is
Geislagata 9
Sími 460 1000
www.akureyri.is
akureyri@akureyri.is
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
11
Veitingastaðurinn Eyrin hættir rekstri Veitingastaðurinn Eyrin Restaurant hefur verið lokað, í tilkynningu sem rekstraraðilar sendu frá sér í dag kemur fram ástæða lokunarinnar sé það rekstrarumhverfi sem Covid-19 heimsfaraldurinn hefur haft í för með sér. Það eru hjónin Guðmund ur Ragnar Sverrisson og Aðalheiður Hannesdóttir sem ráku staðinn. „Það er með sorg í hjarta sem við tilkynnum það að Eyrin Restaurant hefur verið lokað. Eftir frábærar viðtökur Akureyringa og annarra gesta. Frá því að við opnuðum haustið 2019 vorum við spennt fyrir því að bjóða upp á dýrindis veitingar við notalegt andrúmsloft í Menningarhúsinu Hofi til framtíðar. Hinsvegar eftir gríðarlegar áskoranir í kjölfar Covid-19 sem við reyndum að aðlagast eftir fremsta megni með dyggri aðstoð gesta okkar er það orðið ljóst að rekstur Eyrin Restaurant stendur ekki undir sér. Eyrin Restaurant var rekinn af okkur hjónunum Guðmundi og Aðalheiði og voru flutningar norður yfir heiðar með börnin okkar fimm fyrirhugaðir og að allir myndu leggjast á árarnar við að skapa framúrskarandi veitingastað á Akureyri. Eftir mikla íhugun höfum við því miður sætt okkur við að
Guðmundur Ragnar Sverrisson Aðalheiður Hannesdóttir.
FRÉTTIR MANNLÍF VIÐTÖL ÍÞRÓTTIR
og
vegna áhrifa Covid-19 mun sá draumur ekki verða að veruleika. Við viljum þakka ótrúlega góðar viðtökur og viðskipti við okkur, það hefur verið okkur ómæld ánægja að taka á móti ykkur síðastliðna 14 mánuði,“ segir í tilkynningunni.
Veitingastaðurinn Eyrin Restaurant.
12
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Bíður eftir sumrinu og að geta heimsótt dóttur sína erlendis Úlfhildur Rögnvaldsdóttir er fyrrum formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri til tíu ára og starfaði einnig í verslun, banka og hjá ýmsum félagasamtökum á sínum starfsferli. Úlfhildur var bæjarfulltrúi á Akureyri fyrir Framsóknarflokkinn í þrjú kjörtímabil frá 1982-1994 og starfaði þar í ýmsum nefndum. Nokkur ár eru síðan hún fór á eftirlaun og hefur hún m.a. starfað með Félagi eldri borgara á Akureyri eftir að starfsferlinum lauk. Úlfhildur er Norðlendingur vikunnar og situr hér fyrir svörum. Hvaðan ertu? Fædd í Mývatnssveit, mamma var þaðan en pabbi Húnvetningur. Fjölskylduhagir? Ég hef verið gift Hákoni Hákonarsyni í meira en hálfa öld, á tvö börn, sex barnabörn, þrjú langömmubörn og það fjórða á leiðinni. Helstu áhugamál? Fjölskyldan, ferðalög, stangveiði og útivist, þjóðmál og málefni eldri borgara. Þitt lið í enska boltanum? Pass, hef samt mjög gaman af að horfa á fótbolta, vel þá mitt lið á staðnum til að halda með í það skiptið. Hvert langar þig helst að ferðast þegar ástandið skánar? Til dóttur minnar og hennar fjölskyldu í Svíþjóð. Við höfum ekki hitt þau í nærri heilt ár. Hvernig leggst árið 2021 í þig? Bara mjög vel, þetta er allt á réttri leið, hlakka verulega mikið til sumarsins. Hvað borðaru í morgunmat? Ávexti, tómatsafa og kaffi. Hvaða sjónvarpsseríu mælirðu helst með? Pass.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
Hvað gerirðu til að slappa af? Les eða fer í göngutúr, hlusta á tónlist eða talað mál. Hvaða tónlistarmaður/hljómsveit er í mestu uppáhaldi hjá þér? Ég var svo heppin að vera unglingur á sjöunda áratugnum með Presley, Bítlunum og Stones. Annars hef ég gaman að næstum allri tónlist. Hvernig er fullkomin helgi hjá þér? Rólegheit, kannski smá bakstur, sjónvarp og útivera. Fæ svo fjölskylduna sem býr hér á Akureyri í mat á sunnudag en við búum tólf hér en sex annarsstaðar.
Ljósmynd/Þröstur Ernir
Hvað yrði fyrir valinu ef þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk? Lambahryggur með vel af rjóma-sveppa-pipar-ostasósu og rauðvínstár. Hvaða lag kemur þér í gírinn? Gömlu góðu rokklögin sem fá mann til að stökkva á fætur og dansa eins og vitleysingur. Uppáhaldssjónvarpsefni? Missi helst ekki af fréttum og íþróttaviðburðum í beinni. Stundarðu líkamsrækt? Leikfimi 60+ og sundleikfimi þegar covid truflar ekki. Uppáhaldsdrykkur? Vatn. Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
Að leika mér við langömmubörn í sól og blíðu. Ef þú þyrftir velja allt annan starfsframa, hver yrði hann? Kannski flugstjóri. Hvernig er dæmigerður dagur hjá þér? Frost og snjóþyngsli ásamt Covid hefta mig verulega svo dæmigerður dagur um þessar mundir er bara inni letidagur. Hlustar þú á podcast og þá hvað helst? Pass. Hvaða áttu helst eftir ógert? Sjá örlítið meira af heiminum, umgangast skemmtilegt fólk og svo að spilla ungviðinu í fjölskyldunni smávegis.
Húsavík á enn möguleika á Óskarsverðlaunum
Húsavík.
Lag tónskáldsins Atla Örvarssonar, Husavik, úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga á möguleika á því að verða tilnefnt til Óskarsverðlauna í flokknum besta lagið. Þetta varð ljóst í vikunni eftir að listi fyrir mögulegar tilnefningar fyrir verðlaunin í nokkrum flokkum var birtur, þar á meðal fyrir besta lagið. Landkynning Húsavíkur vegna Eurovision myndarinnar virðist því hvergi nærri lokið enda er undirbúningur fyrir stofnun Eurovision safns í bænum langt á veg kominn. /epe
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
ÁSKORENDA PENNINN Sigrún Heimisdóttir
Síðasta árið hefur umræða um heilsu verið áberandi, enda geysar heimsfaraldur. Við höfum verið upptekin af því að fást við þessa vá sem hefur breytt lífi margra og ekki að fullu ljóst hver áhrifin verða þegar fram líða stundir. Samfélagsþreyta er hugtak sem heyrist og við tölum um áður óþekktar aðstæður og fordæmalausa tíma. Samofin heilsuógninni er svo umræðan um heilbrigðiskerfið. Þar hafa hetjur síðasta árs hlaupið í heilmiklum darraðardansi til að bjarga lífum og halda vágestinum niðri eins og hægt er. Enginn var viðbúinn þessu áhlaupi en á þessum síðustu mánuðum hefur þjóðin öll skellt í sjálfsbjargargír, sett undir sig hausinn varist fimlega og tekist á við þetta! Á sama tíma heyrast svo fréttir af biðlistum í veldisvexti, fjölg-
13
Úr vörn í sókn til heilsueflingar un ofbeldistilkynninga og barnaverndarmála. Álagið hjá hjálparlínunni aldrei verið meira og því miður vísbendingar um fjölgun sjálfsvíga og vaxandi tíðni kvíða og þunglyndis. Einnig eru vísbendingar um að fólk leiti síður eftir læknisþjónustu, sem getur seinkað greiningum og mikilvægum meðferðum banvænna og langvinnra sjúkdóma. Á síðustu árum hefur fólki fjölgað sem tekst á við langtímaveikindi vegna langvarandi álags, streitu og örmögnunar. Allskonar skýringar hafa verið nefndar á því, m.a. sú að kreppan fræga 2008 hafi haft þar áhrif. Þegar þjóðir ganga í gegnum álagstíma koma fram neikvæð áhrif á lýðheilsu, en þau birtast oft ekki strax. Því er viðbúið að á næstu misserum og árum munum við sjá enn fleiri þurfa að takast á við langtímaveikindi s.s. örmögnun. Á sama tíma er þjóðin að eldast og krafa um lífsgæði þrátt fyrir veikindi orðin sjálfsögð. Útreikningar hagfræðinga og skýrslur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar áætla að byrði heilbrigðiskerfis verði á næstu árum og áratugum mun meiri vegna langvinnra veikinda en t.d. smitsjúkdóma. Samkvæmt endurhæfingarstefnu stjórnvalda á að efla þjónustu við langveika og þá sem þurfa endurhæfingu, t.a.m. með því að leggja áherslu á samfellu í meðferð. Í aðgerðaráætlun til næstu fimm ára er lagt til að endurhæfing verði hluti af heilbrigðisþjónustu á öllum stigum. Meginmarkmið er að meðferð taki mið af
þörfum notenda með kröfu um gæði, skilvirkni og árangur að leiðarljósi. Einnig að í meðferð sé unnið samhliða með líkamleg- og sálræn einkenni sem og félagslega stöðu. Staðan í dag er sú að hérlendis eru nokkrar öflugar endurhæfingarstofnanir sem sinna veikustu einstaklingunum. Einnig hefur efling heilsugæslu verið mikilvæg og þörf. Langir biðlistar eru hinsvegar í opinbera þjónustu og því hefur aðgengi almennings helst verið að sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Starfsstofur í heilbrigðisþjónustu hér á Akureyri hafa aðallega verið litlar einingar og algengt að meðferð þar sé afmörkuð við ákveðinn vanda, án samfellu eða samtals á milli fagaðila, þ.e. teymishugsunar. Sum þjónusta einstaka faghópa hefur verið niðurgreidd en önnur ekki og því hefur verið erfitt að vinna út frá teymishugsun á starfsstofum úti í bæ. Á síðasta ári var samþykkt á Alþingi að greiða niður sálfræðiþjónustu en sú samþykkt er ekki komin í gagnið ennþá. Vonin er þó til staðar og er mikilvægt að þessar úrbætur gangi í gegn, sér í lagi nú þegar viðvörununarmerki blikka með versnandi heilsu, álagsáhrifum og hærri tíðni tilfinningavanda. Miklu máli skiptir að hafa aðgang að viðeigandi endurhæfingu og úrræðum á réttum tíma og í samræmi við þörf. Það er mikilvægt að allir geti fengið rétta greiningu, meðferð, fræðslu og eftirfylgni. Það þurfa ekki allir þverfaglega þjónustu en þegar
horft er til langvarandi veikinda er það mikilvægt. Einnig skiptir máli að einstaklingurinn sjálfur hafi val og sé við stjórnvölinn í sínu bataferli, en njóti stuðnings fagfólks eftir þörfum. Í ljósi þessa sem hefur verið reifað hér er ánægja að kynna áætlun um aukna starfsemi í heilbrigðisþjónustu á Akureyri. Sálfræði- og heilsumiðstöð sem mun bæði þjónusta þá hópa sem nægir afmörkuð sérhæfð meðferð eða ráðgjöf, sem og þá sem þurfa þverfaglega teymisþjónustu. Markmið að veita vandaða alhliða heilbrigðisráðgjöf, greiningu og meðferð tilfinningavanda, streituraskana og langvinnra veikinda. Horft er til samvinnu við mismunandi fagaðila og stofnanir í bænum til að tryggja samfellu í meðferð eins og hægt er. Tilgangurinn er að hámarka andlega og líkamlega heilsu sem og að efla félagslega stöðu þeirra sem þurfa á að halda og þjónustuna sækja, og starfa þannig í samræmi við áætlanir stjórnvalda. Samningar um niðurgreiðslu þjónustu eru í óvissu en mikilvægt er að geta brugðist við þegar sú gátt opnast og boðið úrræði sem samræmast stefnu stjórnvalda, eru gagnreynd og með skýrum markmiðum. Mikilvægt er að við tökum höndum saman um að lágmarka neikvæð áhrif álagstíma og heimsfaraldurs á heilsu okkar allra! Ég skora á Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara VMA, í að skrifar næsta pistil. - Höfundur er sálfræðingur
Eldri borgarar á Akureyri Allir einstaklingar sem eru 67 ára og eldri flokkast sem eldri borgarar. Sumir eru enn á vinnumarkaði, aðrir hafa hætt störfum af fúsum og frjálsum vilja og svo eru þeir sem hafa þurft að hætta störfum vegna óhagstæðrar kennitölu. Sumir eru við góða heilsu á meðan aðrir þurfa að líða heilsubrest. Fjárhagsleg afkoma er mjög misjöfn og svona má lengi telja. Þessi hópur er því ansi fjölbreyttur og engin leið að alhæfa hvorki eitt né annað hvað hann varðar. Því er mjög líklegt að þegar spurt er hver séu brýnustu þjónustuverkefni Akureyrarbæjar verði svörin næstum því jafn mörg og fjöldi aðspurðra. Ekki er til neinn upplýsingabanki um málefni hópsins. Öflun upplýsinga vegna svokallaðs Rafræns mælaborðs um líðan og velferð aldraðra er í gangi og er tilgangur þess að varpa nokkru ljósi á þarfirnir. Verkefnið er á vegum Akureyrarbæj-
ar og Félagsmálaráðuneytisins. Oft hefur verið kvartað undan löngum boðleiðum innan bæjarkerfisins, fólki er of oft vísað á næsta mann þegar það spyr um ákveðna þjónustu. Sameining búsetu- og fjölskyldusviðs í eitt velferðarsvið um síðustu áramót á að leiða til einföldunar, en hvernig til tekst getur reynslan ein leitt í ljós. Aukið íbúasamráð á einnig að hjálpa til í þessu efni. Eldri borgurum kemur til að fjölga mikið á næstu árum, hlutfallslega meira en þeim sem yngri eru. Við því er nauðsynlegt að bregðast. Það er yfirlýst markmið að allir geti verið sem lengst heima. Til að svo geti orðið þurfa margir að leggjast á árarnar. Félag eldri borgara á Akureyri (EBAK) vill leggja sitt af mörkum með því að vinna með Akureyrarbæ að góðri og uppbyggilegri samveru og öflugu tómstundastarfi. Of lítið húsnæði hamlar þróun þeirrar starfsemi. Bein leið með strætis-
vagni eða á annan máta á milli félagsmiðstöðvanna í Víðilundi og í Bugðusíðu er mikið atriði. Verið er að hanna nýtt leiðakerfi vagnanna og verður fróðlegt að sjá hve mikið tillit verður tekið til athugasemda EBAK og notendaráðs félagsmiðstöðvanna, sem voru studdar af öldungaráði bæjarins. Til að unnt sé að bregðast við fjölguninni þarf að gera áætlun um hvernig á að bregðast við henni á næstu árum. EBAK og öldungaráð Akureyrarbæjar hafa þrýst á að gerð verði aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara á Akureyri. Fyrir því liggja ýmsar ástæður. Það hafa ekki allir eldri borgarar kunnáttu á tölvur, en ljóst er að heimaþjónusta kemur til með að byggjast mikið á tölvum og ýmiss konar velferðartækni frekar en á fjölgun starfsfólks. Aðalmálið fyrir aldurshópinn er heilsuefling. Það má kosta miklu til að seinka dvöl einstaklinga á hjúkrunarheimilum. Öllum er
Hallgrímur Gíslason.
nauðsynlegt að hreyfa sig. Aldur og geta skiptir ekki máli, því öll hreyfing og hæfileg áreynsla er af hinu góða. Mörg sveitarfélög styðja myndarlega við heilsueflingu eldri borgara. Akureyrarbær er að leita leiða til að feta í fótspor þeirra við að aðstoða þá sem mest þurfa á hreyfingu að halda. Það er engin spurning um að hún er öflugasta og ódýrasta forvörnin þegar upp er staðið. Hallgrímur Gíslason, Formaður Félags eldri borgara á Akureyri.
14
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Völsungar höfðu betur gegn HK b Völsungsstúlkur hrósuðu sigri í miklum baráttuleik gegn HK b á heimavelli sl. laugardag. Gestirnir byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinu nokkuð örugglega og voru þar með komnar með forystu. En heima-stúlkur voru ekki á því að láta slá sig út af laginu og unnu 2. og 3. hrinu og staðan orðin 2 - 1 í hrinum talið. Í fjórðu hrinu var
Blaklið Völsungs.
jafnt á með liðunum lengst af en gestirnir voru sterkari undir lokin og unnu hrinuna. Oddahrinuna byrjuðu heimastúlkur af miklum krafti og nutu þess greinilega að spila. Þær héldu út alla hrinuna og unnu hana 15-6 og þar með leikinn 3-2. Tamás Kaposi var eðlilega glaður eftir leik og sagði: „Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir okkur en það þurfti að hafa fyrir honum. Okkur gengur vel í deildinni en framundan er áframhaldandi vinna við að byggja upp unga leikmenn og hjálpa þeim að finna öryggi inni á vellinum”.
Jakob Franz til Ítalíu Sigurhæðir – Matthíasarhús Akureyrarstofa auglýsir til leigu Sigurhæðir á Akureyri. Húsið lét þjóðskáldið, séra Matthías Jochumsson, reisa árið 1903 en það er einlyft timburhús með risi. Húsið stendur á steinhlöðnum kjallara og miðjukvistir með risþaki eru á vestur- og austurhlið. Viðbyggingar eru við þrjár húshliðar, anddyri með valmaþaki við norðurstafn, inngönguskúr með skúrþaki við bakhlið og forstofa með valmaþaki við suðurstafn. Húsið er friðað í B-flokki og verður starfsemi í húsinu að samræmast þeim kvöðum sem því fylgja og vera þess eðlis að ekki mæði of mikið á því. Leigjendur hafa ekki heimild til að framleigja húsið né hafa í því búsetu.
Knattspyrnumaðurinn Jakob Franz Pálsson hjá Þór er genginn til liðs við Venezia sem leikur í B-deild á Ítalíu. Þór og ítalska félagið hafa samið um kaupin en Jakob fer til að byrja með á lánssamningi og hafa Ítalirnir tíma til áramóta að ganga endanlega frá þeim. Greint er frá þessu á vef Þórs. Jakob Franz, sem er 18 ára gamall og uppalinn hjá Þór, lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í Inkasso deildinni haustið 2019. Alls á Jakob 15 leiki að baki með Þór í deild og bikar. Hann hefur leikið ellefu leiki með yngri landsliðum, U16 og U17, og skorað eitt mark.
Áhugasamir skili inn greinargerð þar sem m.a. kemur fram: • Hvaða starfsemi fyrirhuguð er í húsinu • Menningarlegt vægi starfseminnar og tenging við sögu hússins • Hvernig fjármögnun verður háttað • Tilboð í leigufjárhæð Við yfirferð á framlögðum hugmyndum og tilboðum mun fyrirhuguð starfsemi og menningarlegt vægi gilda 50% af mati og tilboð um leigufjárhæð 50%. Stjórn Akureyrarstofu mun annast matið. Stærð og árlegur kostnaður: • Húsið er leigt til 4ra ára með möguleika á framlengingu samnings í önnur 4 ár • Heildargólfflötur er um 237 m2 • Reiknuð árleg innri húsaleiga af húsinu er um 2,5 m.kr. á ári • Kostnaður við rafmagn og hita er u.þ.b. 260 þús. á ári Nálgast má teikningar á þessum vef: http://map.is/akureyri/?teikningar# Nánari upplýsingar veitir Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu; netfang: thorgnyr@akureyri.is Frestur til að skila inn hugmyndum og tilboðum er til og með 26. febrúar 2021.
Geislagata 9
Sími 460 1000
www.akureyri.is akureyri@akureyri.is
Jakob Franz Pálsson. Mynd/Páll Jóhannesson..
VIKUBLAÐIÐ – FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
15
Brösótt gengi Þórs Þórsurum gengur erfiðlega í Olísdeild karla í handbolta en eftir átta umferðir eru liðið aðeins með tvö stig í næstneðsta sæti deildarinnar. Aðeins ÍR er í verri málum á botninum án stiga. Þórsarar hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum eftir að deildin hófst að nýju eftir Covid-pásuna. Þór tapaði gegn Selfossi í síðustu umferð á útivelli
Ólafur Gústafsson á ferðinni með KA.
þar sem lokatölur urðu 33-24. Markahæstir í liði Þórs voru þeir Ihor Kopyshynskyi og Arnþór Gylfi Finnsson með 5 mörk hvor. Næsti leikur Þórs í deildinni er gegn Gróttu á heimavelli en liðin mætast þá í Íþróttahöllinni á Akureyri, sunnudaginn 14. febrúar kl. 16:30.
Mynd/Þórir Tryggvason.
KA þokast upp töfluna KA sækir ÍBV heim sunnudaginn 14. febrúar í Olís-deild karla í handbolta. Eftir sjö umferðir er KA með sjö stig í sjöunda sæti deildarinnar en ÍBV hefur níu stig í fimmta sæti. KA hafði betur gegn ÍR í síðasta leik og sigraði örugglega, 32-16. Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur í liði KA með sex mörk, þar
af eitt úr víti. Áki Egilsnes, Einar Birgir Stefánsson og Patrekur Stefánsson skoruðu fjögur mörk hver, þeir Allan Norðberg, Ólafur Gústafsson og Jóhann Geir Sævarsson þrjú mörk hver og Þorri Starrason, Jón Heiðar Sigurðsson, Andri Snær Stefánsson og Daði Jónsson skoruðu eitt mark hver.
Toppbaráttuslagur í Garðabæ KA/Þór sækir Stjörnuna heim í Olís-deild kvenna í handbolta í næstu umferð og verður leikið í Garðbænum laugardaginn 13. febrúar kl. 16:00. Liðin er bæði í harðri toppbaráttu. KA/Þór hefur tólf stig á toppi deildarinnar ásamt Fram en
Garðar Már Jónsson í leik með Þór.
Mynd/Þórir Tryggvason
Þór sækir Þór heim Eftir níu leiki er Þór í níunda sæti Dominos-deildar karla í körfubolta með sex stig. Þór sækir nafna sína í Þór í Þorlákshöfn heim í kvöld, fimmtudag í næstu umferð en Þór Þorlákshöfn er í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig. Þór sigr-
aði Njarðavík í síðustu umferð á heimavelli þar sem lokatölur urði 90-68. Srdan Stojanovic var stigahæstur í liði Þórs með 22 stig en Ivan Alcolado kom næstur með 20 stig.
Stjarnan hefur tíu stig í fjórða sæti og getur jafnað toppliðin að stigum með sigri á KA/Þór. Norðankonur unnu ÍBV á heimavelli í síðustu umferð, 24-23. Ásdís Guðmundsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs með sjö mörk.
Srdan Stojanovic var öflugur í sigri Þórs gegn Njarðvík.
Mynd/Páll Jóhannesson.
Daníel Hafsteinsson til KA
Sólveig Lára Kristjánsdóttir leikmaður KA/Þórs í harðri baráttu um boltann. Mynd/Þórir Tryggvason.
Daníel Hafsteinsson hefur gert þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA. Greint er frá þessu á vef KA. Daníel er uppalinn KA-maður og hefur spilaði 45 leiki í deild og bikar fyrir félagið og skorað í þeim fimm mörk áður en hann gekk til liðs við Helsginsborg í Svíþjóð eftir sumarið 2019. Á síðasta tímabili lék hann á láni hjá FH og þar sem hann spilaði 13 leiki og skoraði fjögur mörk. Daníel hefur spilað 19 landsleiki með yngri landsliðum Íslands. Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir á vef félagsins að þetta sé
mikill fengur fyrir liðið og sýnir vel þann metnað sem er í félaginu.
Daníel Hafsteinsson.
Mynd/KA.
VIKUBL AÐIÐ
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
6. TÖLUBLAÐ / 2. ÁRGANGUR / FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2021
Huld Hafliðadóttir.
Núvitund í símastól
Mér verður reglulega hugsað til uppvaxtaráranna, en í minningunni var lífið töluvert einfaldara þá. Kannski er það ímyndun, kannski ekki. Það eina sem ég veit er að þá voru engir gemsar, tölvur eða snjalltæki. Það voru jú útvörp, segulbönd og plötuspilarar, sjónvörp og síðan komu videotækin. Ég man eftir okkur vinkonunum sitjandi við stórt segulbandstæki við upptökur á okkar eigin spjallþætti, sem fór svo á spólur, en fáir voru hlustendurnir. Kannski það hafi verið podcast okkar tíma? Ef við vinkonurnar þurftum að koma skilaboðum á milli okkar í skólanum skrifuðum við gjarnan á miða og laumuðum í pennaveski hver annarrar. Myndavélarnar innihéldu filmur sem kostaði sitt að framkalla og því var vandað til verka við hverja ljósmynd. Hver mynd var einstök, dýrmæt. Mér finnst í minningunni að við höfum verið meira í núvitund, einbeitt okkur að einu í einu. Og það er kannski fátt sem minnir skýrar á það en blessaður símastóllinn. Sérstakur stóll til að sitja í við símtöl. Táknmynd þess að þegar talað var í símann, var bara talað í símann. Auðvitað hefur það áhrif að lengi framan af var snúra í símanum og lítið hægt að fara um með hann, en hvert símtal var samt sem áður heilög stund. Samtal í núvitund, frá símtóli til símtóls. Það var ekki verið að keyra, elda eða horfa á sjónvarpið á meðan. Það var bara setið í símastólnum. Í dag eru símtölin alls konar og alls staðar. Og jafnvel þótt þú svarir ekki, er líklegt að þú þurfir að svara fyrir að hafa ekki svarað. Því í dag er síminn ekki bara sími. Hann sendir skilaboð, er lítið sjónvarp, útvarp og myndavél allt í einu litlu tæki. Er nema von að símastóllinn veki upp notalega fortíðarþrá eftir að gera bara eitt í einu, þó ekki væri nema stundum?
SKEMMTILEGT EINS ÁRS VERKEFNI Á TEIKNISTOFU NORÐURORKU Starfssvæði Norðurorku hf. er viðfeðmt en fyrirtækið rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Meginhlutverk Norðurorku hf. er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfis raforku og rekstri fráveitu. Norðurorka hf. er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001). Starfs- og ábyrgðarsvið: • Upplýsingavinnsla á teiknistofu • Innmælingar og útsetningar með GPS tæki • Vinnsla mæligagna og upplýsingagjöf • Önnur verkefni sem til falla Menntunar- og hæfniskröfur: • Almenn ökuréttindi • Framhaldsskólamenntun • Góð almenn tölvukunnátta • Góð íslenskukunnátta • Reynsla af veitukerfi er kostur • Reynsla af landmælingum er kostur • Stundvísi og nákvæmni • Frumkvæði, samskiptahæfni, þjónustulipurð og jákvæðni Innmælingar og útsetningar með GPS tækinu eru framkvæmdar úti á verkstað og krefjast þess að viðkomandi eigi auðvelt með að hreyfa sig í ójöfnu landi. Næsti yfirmaður er verkefnastjóri Teiknistofu. Umsjón með ráðningunni hefur Erla Björg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Sandra Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Teiknistofu í gegnum netfangið gudbjorg.sandra.gunnarsdottir@no.is Umsækjendur eru beðnir að sækja um á heimasíðu Norðurorku: https://www.no.is/is/um-no/starfsemi/storf-i-bodi Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2021
RANGÁRVÖLLUM
-
603 AKUREYRI
-
SÍMI 460 1300
- no@no.is
- www.no.is