Jólablað 2015
Miðbær og mannlíf Bls. 32-33
Jólin á Eyrinni Bls. 18-19
Ég var ekki gleymdur Bls. 22-23
2
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Kærleikur – góður leikur!
Aðventan er hafin. Rafmagnsreikningar Íslendinga rjúka upp úr öllu valdi. Það þarf að lýsa upp skammdegið og þá skal engu til sparað. Jólin eru reyndar löngu byrjuð. Þau byrjuðu í IKEA fyrir sirka tveimur mánuðum. Hátíðin lengist með hverju árinu, en á sama tíma færumst við fjær upphaflega boðskapnum. Óháð því hvort við trúum á Jesú Krist, Allah, Óðinn eða einfaldlega á okkur sjálf á boðskapur jólahátíðarinnar alltaf við. Boðskapurinn er einfaldur. Vertu góður við náungan. Sýndu honum virðingu og komdu fram við hann eins og þú vilt að hann komi fram við þig. Kærleikur. Líklega besti og skemmtilegasti leikur sem hægt er að spila. Leikur sem á að vera óháður menningu, litarhafti, trú eða kynhneigð. Allir sem vilja geta tekið þátt í leiknum. Reglurnar eru einfaldar. Vertu góður, sýndu virðingu og komdu vel fram við aðra. Bíddu við! Eru reglurnar í kærleiknum ekki kunnuglegar? Er þetta ekki sama upptalning og um boðskap jólanna? Jú það stemmir. Boðskapur jólanna er þá enn einfaldari. Boðskapurinn er kærleikur! Í kaupæðinu sem heltekur meirihluta íslensku þjóðarinnar allt frá því að laufin falla að hausti og þar til búðirnar loka um hádegi á aðfangadag ýtir þessum leik sem er svo einfaldur oftast nær út úr hugum okkar. Eina hugsunin er að kaupa, kaupa, kaupa! Stöldrum aðeins við. Lítum í kringum okkur. Hver veit nema sú eina rétta (rétti) standi fyrir aftan okkur í röðinni í Lindex þar sem við kaupum jólagjöf handa mömmu gömlu en við missum af henni (honum) af því að jú, jú, við eigum líka eftir að kaupa gjöfina handa pabba! Og korter í lokun. Hægjum á okkur, þó ekki sé nema bara til að stara á jólaljósin sem prýða umhverfið, ef ekki eru þeir sem borga fyrir ljósin að gera það til einskis. Til hvers að taka á sig margfalt hærri rafmagnsreikning ef samfélagið flýtir sér of mikið til þess að sjá ljósin? Ef allir spila leikinn minnka líkurnar á því að voðaverk séu framin. Það er vitað mál að útópískt samfélag, þar sem allir elska alla og engin gerir öðrum mein, mun ekki finnast hér á jörð. Það eina sem við getum gert er að fækka þeim skiptum sem við blótum náunganum, hugsum illa til hans og öfundum hann af því sem hann á. Brosum frekar til samborgaranna og bjóðum góðan daginn. Því að ef bros getur dimmu í dagsljós breytt gætum við hugsanlega haldið rafmagnsreikningum okkar í lágmarki yfir hátíðarnar.
Gleðileg jól!
Arnar Geir
Atli Freyr
Ágústa Ýr
Árni Gísli
Björn Þór
Egill Páll
Eva Björk
Halldóra Kristín
Hrönn
Ingibjörg
Jón Ágúst
Jóna Sigurlaug
Katrín Lilja
Magnús Hlynur
Oddur
Saga Björk
Sigríður
Sigrún Aagot
Sigurjón Már
Vigdís Diljá
Þorvaldur Örn
Forsíðumyndin
Myndina tók Halldóra Kristín Bjarnadóttir af Gyðu Dröfn Hallgrímsdóttur hjá Grímshúsum í Aðaldal, en Gyða Dröfn hlakkar til jólanna.
Jólablað Vikudags
Jólablað Vikudags sem hér birtist er fylgiblað hins hefðbundna Vikudags. Vikudagur sjálfur er borinn í hús og seldur í lausasölu eins og endranær en Jólablaðið fer í víðari dreifingu. Þetta blað var unnið af nemendum í námskeiðinu prentmiðlun við Háskólann á Akureyri sem Birgir Guðmundsson ber ábyrgð á. Nemendurnir koma víða af landinu, bæði staðarnemar og fjarnemar og þeir sem komu að vinnslu blaðsins voru þessir: Arnar Geir Halldórsson (AGH), Atli Freyr Arason (AFA), Ágústa Ýr Sveinsdóttir (ÁÝS), Árni Gísli Magnússon (ÁGM), Björn Þór Björnsson
(BÞB), Egill Páll Egilsson (EPE), Eva Björk Benediktsdóttir (EBB), Halldóra Kristín Bjarnadóttir (HKB), Hrönn Magnúsdóttir (HM), Ingibjörg Bergmann Bragadóttir (IBB), Jón Ágúst Eyjólfsson (JÁE), Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir (JSF), Katrín Lilja Kolbeinsdóttir(KLK), Magnús Hlynur Hreiðarsson (MHH), Oddur Sigurðarson (OS), Saga Björk Friðþjófsdóttir (SBF), Sigríður Grétarsdóttir (SG), Sigrún Aagot Ottósdóttir (SAO), Sigurjón Már E Gunnarsson (SMEG), Vigdís Diljá Óskarsdóttir (VDÓ), og Þorvaldur Örn Kristmundsson (ÞÖK).
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
KEA óskar félagsmönnum sem og samstarfsaðilum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
3
4
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Ragnheiður Gunnarsdóttir tekur að sér heimilislausa ketti:
Kettirnir í Kisukoti fara ekki í jólaköttinn – Fá þríréttaðan kvöldverð á aðfangadag
Ragnheiður Gunnarsdóttir rekur eina kattaathvarfið á Akureyri. Hún hefur unnið að því hörðum höndum síðustu þrjú ár að taka að sér heimilislausa ketti og veita þeim húsaskjól. Starfið er aðallega fjármagnað af einstaklingum sem styrkja hana, auk þess sem hún er í samstarfi við dýralækna og dýraverslanir í Reykjavík. Ragnheiður er mikið jólabarn og passar upp á að gera vel við kisurnar sínar yfir hátíðirnar. „Þær fá alltaf eitthvað gott á aðfangadag, kjúkling, rækjur eða túnfisk. Ég gef þeim alltaf tví- eða þríréttað á aðfangadags- og gamlárskvöld,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður skreytir mikið yfir jólahátíðina, en það fer ekki alltaf saman að vera með ketti og jólaskraut. „Kisunum finnst mjög gaman að veiða jólaseríur og jólaskraut. Ég skreyti mikið en þeir reyna veiða allt. Þarf bara að passa að koma jólaskrautinu fyrir þannig að kisurnar nái ekki í það,“ segir hún.
Kisur eru ekki jólagjafir
Ragnheiður tekur það skýrt fram að kisur og önnur dýr séu ekki gjafir: „Fólk fær sér alveg kisur um jólin. Sumir vilja gefa ketti í jólagjöf. Það er ekki sniðugt, þú gefur ekki lifandi veru í jólagjöf nema hafa látið viðkomandi vita. Maður gefur ekki lifandi veru með tilfinningar sem gjafir,“ segir Ragnheiður alvarlegg á svip. p
Ragnheiður með nokkrum kattanna í Kisukoti.
„Fólk verður að átta sig á því að þetta er löng skuldbinding. Margir gera sér ekki alltaf grein fyrir því. Þetta er ekki binding til tveggja eða þriggja ára, kisurnar lifa í allt að fimmtán ár,“ segir Ragnheiður sem vill undirstrika þá áralöngu skuldbindingu sem fylgir því að taka að sér kött.
Hefur átt ketti síðan hún var sex ára
Ragnheiður hefur átt ketti síðan hún var sex ára gömul. Það byrjaði þannig að mamma hennar fann kisu úti sem vantaði heimili, hún var pínulítil og gat ekki borðað sjálf. Fljótlega eftir að kisan kom á heimilið varð hún kettlingafull og gaut þremur kettlingum. „Ég byrjaði með Kisukot formlega 29. janúar árið 2012. Þá ákvað ég að stofna Facebook síðuna Kisukot – Kattaraðstoð á Akureyri. Þessi síða hefur vaxið mikið, það eru alltaf fleiri og fleiri sem heyra í manni,“ segir Ragnheiður.
Kisurnar til í tuskið á sumrin
„Ég hef alltaf verið kattamanneskja og það er alltaf marga ketti sem vantar heimili,“ segir Ragnheiður, en venjulega er hún með 10-15 ketti í heimilisleit og eru það mest kettlingar. „Það er erfiðara að taka þessa eldri inn og veita þeim heimili,“ segir hún. Ragnheiður segir að flestir kettlingar fæðist frá apríl og fram yfir sumar. „Það verður offramboð og fólk veit ekkert hvað það á að gera við kettina.“
Full vinna að sjá um kettina
Kisukot er fjármagnað með frjálsum framlögum og Ragnheiður er afar þakklát þeim sem styrkja hana.. „Það eru í rauninni bara dýravinir sem styrkja mig, þetta eru mest einstaklingar. Ég er með góðan samning hjá Elvu dýralækni um geldingar og aðgerðir,“ segir hún. Ragnheiður leggur mikla áherslu á það að kettirnir séu geltir og ormahreinsaðir áður
en hún sendir þá á heimili. „Gæludýr.is fyrir sunnan sjá um að gefa mér fóður, það munar um það,“ segir Ragnheiður. Aðspurð hvort hún geti einhvern tímann komist í frí eða skroppið í burtu svarar hún um hæl: „Það er gott að eiga góða vini, vinkona mín sem er mikið í dýrum hefur passað fyrir mig þegar ég fer suður. Ég á vini sem eru tilbúnir að koma og sjá um kettina ef ég þarf að fara í burtu.“
Með 30 kettlinga í einu
Ragnheiður útskýrir að það geti verið erfitt að láta frá sér kettlinga, „Það er miserfitt, maður tengist þeim mismikið, það eru alltaf einhverjir sem er erfitt að láta frá sér. Ef þeir fara á góð heimili er það fyrir öllu.“ Hún lýsir því að oft fái hún fréttir af kisunum eftir að þær eru komnar á heimili og það munar oft miklu fyrir hana. Aðspurð hversu margar kisur hún hafi haft í einu segir hún „Í sumar var ég með 23 kettlinga – mest voru það 30 kettlingar í heimilisleit. En þeir fara fljótt.“ Ragnheiður segir að kettlingarnir séu yfirleitt fljótir að fá heimili. „Kettlingarnir eru erfiðari en þeir fullorðnu, þeir eru ekki allir búnir að læra á sandinn og þeir rústa öllu og svona.“
Of margir kettir
Ragnheiður geldir alla sína ketti og hvetur kattareigendur að gera hið sama: „Það er alltof mikið um að læður séu ekki teknar úr sambandi. Málið er að það er allt of mikið af köttum til á Íslandi. Það eru rosalega margir kettir og ótrúlegar tölur yfir svæfingar,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður segist yfirleitt vera með nóg af kisum sem vantar heimili. „Endilega hafið samband við mig ef þið viljið kisur. Ég hef ekki aðstöðu til að taka alla ketti að mér en ég reyni alltaf að hjálpa,“ segir Ragnheiður að lokum. SAO
5 ÍSLENSK A SI A .IS ICE 77182 11/15
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
VELKOMIN HEIM Á jólunum viljum við að gleðin sé við völd. Við viljum halda í hefðirnar og vera í faðmi fjölskyldu og vina. Á stað sem okkur er kær. Heima hjá okkur. Stundum flækist lífið fyrir fögrum fyrirheitum. Áætlanir breytast. Rétt eins og lífið. Þá aðlögum við okkur. Við getum pakkað jólunum niður og flutt þau þangað sem hjartað slær. Flogið yfir fjöll og höf og búið okkur til nýjar hefðir þar sem ástvinir okkar eru. Gleðilega hátíð.
+ icelandair.is
Vertu með okkur
6
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Steinar lifna í höndum handverkskonu
Nú líður að jólum og flestir farnir að huga að jólagjöfum. Gaman er að gefa frumlegar og einstakar gjafir sem gleðja og endast. Í Hlégarði í Aðaldal býr kona sem vert er að vekja athygli á en henni er svo sannarlega margt til lista lagt, Bergljót Benediktsdóttir – kölluð Begga.
Í dag er Begga þekkt fyrir að mála steina og sjá út úr þeim alls kyns mótív sem eru í fyrstu falin augum flestra. Hún byrjaði þó ekki að sinna þessu áhugamáli sínu fyrr en hún var komin yfir fimmtugt og hefur því einungis sinnt því í um 22 ár. Það sem er kannski enn merkilegra er að Begga hafði áður ekki teiknað mikið og ekki talið sig færa um slíka listsköpun. Hins vegar átti eiginmaður hennar, Hálfdan sem nú er fallinn frá, eftir að hvetja hana áfram en sjálfur var hann flinkur að teikna og gerði því mikið af því. Sennilega hefur hlédrægni Beggu staðið eitthvað í vegi fyrir því að hún byrjaði fyrr en Begga segist hafa fundið fyrir minnimáttarkennd. Þrátt fyrir það hefur henni alltaf liðið betur með eitthvað í höndunum, hún prjónaði mikið og saumaði m.a. allar flíkur á sig og þau fimm börn þeirra Hálfdanar á uppvaxtarárum þeirra – fá heimili státa af slíku handbragði í dag.
Hluti af jólasveinunum hennar Beggu.
Handverkskonan Bergljót Benediktsdóttir.
Rollingstone Gallery
Á þeim árum þegar mikil aukning varð í ferðaþjónustu hérlendis varð Beggu hugsað til vöntunar á fjölbreyttum, íslenskum minjagripum. Sú staðreynd færði Beggu byr undir báða vængi og datt henni í hug að kannski gæti hún jafnvel bætt þá stöðu. Begga var síðan á ferðinni í Edinborg þegar hún rakst á litla búð að nafni Rollingstone gallery en inni í versluninni sat kona og málaði steina. Þá kviknaði hugmyndin, að þetta væri kannski eitthvað sem hún gæti gert. Í framhaldinu fór Begga á nokkur stutt myndlistarnámskeið. Hálfdan tók svo af skarið og hófst handa við að mála steina og leiðbeindi þá Beggu örlítið þó hún hafi verið ákveðin í því að fara sínar eigin leiðir. Ljóst er að það er langt frá því sjálfsagt að hjón séu svo heppin að stunda svipuð áhugamál en Hálfdan og Begga gátu stutt hvort annað áfram. Það kom því fljótt í ljós að pensillinn lék í höndum Beggu en í fyrstu málaði hún mest ketti, og þá gjarnan grábröndótta, eins og heimiliskött þeirra hjóna. Í dag hafa ekki einungis kettir Beggu notið vinsælda heldur fylgja útgáfur hennar af íslenska forystufénu fast á eftir. Hún hefur einnig málað lunda, torfbæi og konur í íslenskum búningum, svo örfá dæmi séu nefnd.
Senn líður að jólum
Grýla og Leppalúði reyna hvað þau geta að viðhalda aga innan jólasveinahópsins.
Refurinn hennar Beggu er afar fagur.
Myndir: Halldóra Kristín Bjarnadóttir.
Útgáfur Beggu af íslensku jólasveinunum eru bráðskemmtilegar og góðar enda málar Begga steina fyrst sér til skemmtunar. Upphaf y ogg fremst sjálfri j pp
Hé sést Hér é vell skemmtileg k il útsjónarsemi ú jó iB Beggu þegar þ kemur k að því að nýta lag steinanna.
Begga að störfum.
jólasveina Beggu stjórnaðist í raun af tilviljunum en hún vildi gera eitthvað þjóðlegt. Hún segir að það sem sé hvað skemmtilegast við íslensku jólasveinana okkar sé að þeir eru í raun allir með einhvern mat en með þeim hætti kynna þeir íslenskar matarhefðir. Jólasveinarnir eru því sannarlega hentugir minjagripir erlendis sem og hérlendis og hafa vakið talsverða athygli. Seinustu ár hefur hún því verið að gefa meðal annars barnabörnum sínum jólasveinana og eru þau flest að verða komin með þá alla. Ár hvert hefur Begga farið á nokkra markaði og selt steinana sína en í ár stefnir hún einmitt að því að verða á jólamarkaðnum í Jarðböðunum í Mývatnssveit. Ljóst er að það verður enginn svikinn á því að heimsækja Beggu í Hlégarð og fá að skoða gersemarnar sem þar leynast – í alls kyns formum. HKB
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI Dálæti sumra á Kofareykta hangikjötinu frá Kjarnafæði virðist engum takmörkunum háð. Það er vissulega skemmtilegt að ljúffengt hangikjötið öðlist þann virðingarsess sem hér má sjá, en auðvitað nýtur það sín betur á matarborðum landsmanna, þar sem það hefur í áranna rás glatt og satt Íslendinga og skapað sannkallaða hátíðar- og jólastemmningu, enda um sérlega bragðgott hangikjöt að ræða. Kofareykta hangikjötið frá Kjarnafæði er sérvalið fyrsta flokks lambakjöt með ljúffengu, ríku og hefðbundnu íslensku reykbragði, verkað og reykt af kjötiðnaðarmeisturum fyrirtækisins.
7
8
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
„Þetta hljómar eins og þetta sé ekki draumurinn minn“
vilja fyrst gefa út Forest Fire upp á nýtt og við munum líklegast byrja á því en ég er búinn að vera í stúdíói að undanförnu og ég er tilbúinn með breiðskífu,“ segir Axel en hann býst við því að lögin á plötunni verði 14 alls. Nafn Axels er sífellt að stækka hérlendis sem og erlendis. Nú nýverið seldi Axel lög eftir sig í þýska auglýsingu og í bandarísku sjónvarpsþáttaröðina The Vampire Diaries. „Það var mjög gaman; ég hafði aðeins einu sinni áður selt lag eftir mig í sjónvarp. Það var í kanadíska þáttinn Degrassi,“ segir Axel.
Axel Flóvent Daðason er tvítugur Húsvíkingur sem hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis á þessu ári fyrir tónlist sína. Axel er talinn vera eitt mesta efni í íslensku tónlistarlífi í dag; margir hafa heyrt nafnið en fáir þekkja til hans.
Axel Flóvent ólst upp á Húsavík og bjó þar þangað til hann varð 17 ára ef frá eru talinn 3 ár sem hann bjó í Danmörku frá því hann var 10 ára og þangað til hann varð 13 ára. Axel fékk fyrsta gítarinn sinn í jólagjöf níu ára gamall og þá hófst glamrið en hann segist þó ekki hafa tengt almennilega við tónlistina alveg strax. „Ég myndi segja að ég hafi kynnst tónlistinni almennilega þegar ég var 11 ára; þá byrjaði ég að skilja tónlist og fór að semja hana,“ segir Axel og heldur áfram „Það sem heillaði mig við semja var að vera tengdur tónlistinni og að geta samið og spilað hana, eða ég taldi mér allavega trú um það að ég gæti það 11 ára gamall.“ Axel kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu. Bróðir hans, Þórir Georg, er tónlistarmaður og leit Axel mikið upp til hans og hafði hann sterk áhrif á hvernig tónlistarmaður Axel er í dag. Ásgeir Trausti og Steini í Hjálmum eru bræður móður hans. Afi hans Einar Georg samdi textana við fyrstu plötu Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn, en hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir, engu að síður myndi Axel ekki vilja fá hann til að semja texta fyrir sig. „Textaformið er svo mikilvægt fyrir mig; ég vil gera textana mína sjálfur. Ég þarf svo mikið að tjá mig í textum. Ég sem um allt, tengingar á milli fólks og síðan sendi ég skilaboðum til vina í gegnum lögin mín. Þetta er samt oftast um tilfinningar,“ útskýrir Axel. Axel hafði mikinn metnað fyrir tónlistinni þegar hann var yngri og eyddi frítíma sínum að miklu leyti einn inn í herbergi að semja. Húsavík er ekki stór bær og fáir sem voru í sömu pælingum og hann varðandi tónlistina. „Ég hafði fáa til að tala um tónlist við að einhverju viti og ég tengdi við fáa þannig ég var alltaf að bíða eftir því að komast í stærra samfélag.“
Tónlist plan A, myndlist plan B
Axel tók fyrsta árið í Framhaldsskólanum á Húsavík en flutti síðan til Akureyrar og hóf nám á listnámsbraut í VMA með myndlistarkjörsvið. „Ég ætlaði mér alltaf að verða tónlistarmaður, það var plan A, síðan var ég með plan B ef það myndi ekki ganga og það plan var það að verða mynd-
Starfar sem tónlistarmaður
Axel Flóvent er ungur og upprennandi tónlistarmaður.
listarmaður,“ segir Axel um það hvers vegna hann valdi myndlistarkjörsvið „Það er reyndar mjög fyndið að hugsa til þess að myndlist hafi verið plan B því það er töluvert erfiðara að koma sér í stöðu þar sem maður lifir af því að vera myndlistarmaður.“ Axel telur það hafa verið mjög gott skref fyrir hann að flytja til Akureyrar. „Það var mjög gott að flytja til bæjar sem er töluvert stærri en Húsavík en samt frekar lítill. Akureyri hafði mjög mikil áhrif á þróunarferlið á tónlistinni minni. Ég samdi eiginlega öll lögin sem ég hef gefið út núna á menntaskólaárunum mínum á Akureyri,“ segir hann.
Íslendingar fréttu af Axel erlendis frá
Boltinn fór að rúlla hjá Axel sumarið 2014. Hann gaf út lag á netinu sem heitir Beach. „Þegar ég gaf lagið út fékk ég meiri athygli en ég hafði nokkuð tímann fengið fyrir lögin mín. Í kjölfarið hafði breskt útgáfufyrirtæki samband við mig og vildi vinna með mér. Með því samstarfi kom markmið; við ætluðum að gefa út EP plötu. Um svipað leyti fór ég að starfa með umboðsmanninum mínum, Sindra Ástmarssyni, sem hefur hjálpað mér mikið,“ segir Axel um upphafið að alvörunni. Ferill Axels fór mjög undarlega af stað; vanalega er það svoleiðis að tónlistarfólk nær fyrst vinsældum hér á
Ljósmynd: Sigga Ella.
landi og vekja þannig athygli á sér erlendis en hjá honum er sagan önnur. „Þetta fór rosalega skringilega af stað. Bransafólk úti veitti mér fyrst athygli og byrjaði að tala við mig. Bransafólk hérna heima fór síðan að heyra nafnið mitt í gegnum bransafólkið úti. Þegar ég spilaði fyrst úti í Bretlandi höfðu tónleikarnir sem ég hafði spilað á hér heima verið býsna litlir,“ segir Axel. „Það er mjög erfitt að koma sér á framfæri hérna heima. Ef fólk veit ekki hver þú ert þá kemur enginn nema vinir þínir og kannski einhverjir útlendingar; þannig ég hef litla reynslu á því að spila fyrir Íslendinga. Maður þarf nánast að borga fyrir að spila hér heima. Eins lifandi og tónlistarlífið er á Íslandi þá er mjög lítið gert til þess að viðhalda þessu. Það sem heldur þessu tónlistarlífi svona lifandi er bara út af því Íslendingar eru mjög listrænir. Það er samt að verða breyting á þessu; Íslendingar eru að átta sig á þessu og þetta er að batna,“ segir Axel. Það fór svo að Axel gaf út EP plötu með breska útgáfufyrirtækinu Trellis Records. Sú plata kom út í sumar og heitir Forest Fires. „Ég er ekki á samning hjá útgáfufyrirtækinu í Bretlandi en það hjálpaði mér mikið að koma mér af stað,“ útskýrir Axel „Í dag er ég í viðræðum um samninga við nokkur spennandi útgáfufyrirtæki.“ Axel staðfestir það að nýtt efni sé á leiðinni frá honum. „Útgáfufyrirtækin
Axel útskrifaðist úr VMA í vor og er nú fluttur til Reykjavíkur. Hann starfar nú einungis sem tónlistarmaður. „Það er vegna þess að ég vil bara vera gera þetta. Það er ekki eins og ég sé að fá miklar tekjur. Ég get lifað á tekjunum eins og þær eru í dag en síðan kemur bara í ljós hvað gerist á næstunni,“ segir Axel. Hann segir að það geti verið erfitt að halda sér við efnið þegar maður er ekki með fastan vinnutíma. „Ég reyni að skipuleggja mig en ég á það til að detta í kæruleysið og vera ekki að gera neitt ef ég finn enga löngu til þess að gera eitthvað. Þegar þetta gerist reyni ég að snúa hlutunum við og fara gera eitthvað; það þetta fer eftir dögum suma daga er ég bara kærulaus og geri ekkert og aðra er ég mjög iðinn og teikna mikið og sem lög og texta. Það er mjög erfitt að vera sinn eigin herra,“ segir Axel um hvernig dagarnir hans eru. „Ég er nánast að verða geðveikur á þessu; það er enginn að upplifa þetta með mér, það er enginn að gera það sama og ég, þannig ég er mikið einn. Þetta er mjög skrýtinn lífsstíll. Þetta hljómar eins og þetta sé ekki draumurinn minn en þetta er hann því þetta gerir það kleift að ég get gert það sem ég elska. Ég myndi bara vilja túra og það kemur að því ef þetta verður að einhverju. Núna er ég bara að gera mig tilbúinn ef það skyldi gerast. Ég ætla að semja nóg af efni, vera með nóg af efni tilbúið fyrir næstu ár. Ég er að undirbúa mig fyrir næstu ár. Það er skrýtið og það eru mjög margir sem skilja þetta ekki. Foreldrar mínir skilja þetta ekki og mamma er alltaf að biðja mig um að fá mér vinnu en ég get ekki verið bundinn einhverri vinnu því þá þyrfti ég stanslaust að vera fá frí til að gera hitt og þetta. Ég vil frekar bara einbeita mér að þessu núna og sjá hvað gerist því það er mögulegt fyrir mig eins og staðan er núna,“ segir Axel sem virðist vera mjög ákveðinn í því að ná markmiðum sínum. BÞB
9
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
• jl.is •
réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem
JÓNSSON & LE’MACKS
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja
SÍA
Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er.
10
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Dóri og Saga takast á:
Saga ráðleggur Dóra að fara til læknis Hann prumpar of mikið
Dóri DNA og Saga Garðars kynntust í leiklistarskólanum. Þau hafa verið að sýna „Þetta er grín án djóks“ í Hofi sem hefur notið mikilla vinsælda á Akureyri. Þau svöruðu spurningum um hvort annað og þeirra samstarf. Saga:
Hvort ykkar er stjórnsamara? Við erum bæði mjög stjórnsöm en öðruvísi. Dóri presentar sínar hugmyndir alltaf frá upphafi sem er snilld á meðan ég byrja mjög hógvær en held þeim til streitu þar til fólk gefst upp og lætur undan mér. Dóri er frekari á yfirborðinu en ég beiti andlegum sálfræðihernaði, sem er betri til lengri tíma og tortímir þannig þeim sem eru ósammála mér hægt en örugglega. Hvort ykkar er meiri tilfinningavera? Halldór er nötrandi strá í vindi. Það leið ekki sá dagur sem hann lagðist ekki í gólfið í uppnámi yfir annaðhvort fegurð heimsins eða áhyggjum af uppvexti barnanna sinna. Hann er bara búnt af hráum tilfinningum. Hvort ykkar frussar meira á sviðinu? Halldór. Hann er heldur ekki leikaramenntaður. Helstu kostir Dóra? Hann er skemmtilegasti maður sem ég þekki. Ég hlæ svona tærum gleðihlátri alveg frá hjartanu þegar ég er í kringum hann. Svo er hann líka svo klár. Þegar ég er ekki að hlæja er ég að taka andköf af lotningu. Hann er líka besti vinur minn. Helstu gallar Dóra? Hvað hann prumpar alveg óhugnanlega mikið. Hann þarf að fara til læknis. Hvort ykkar er skipulagðara? Halldór. Hann sendir mér sms og lætur mig vita að við eigum að skemmta um kvöldið því hann veit að ég gleymi því . Hann sækir mig líka og passar mig eins og sitt þriðja barn. Hann setur allar fyrirhugaðar kvöldmáltíðir upp í excel í byrjun hvers mánaðar og verslar inn einu sinni í viku og heldur alltaf dagskrá. Hann tekur tíman á öllu sem hann gerir, til að bæta sig. Hvað er það vandræðalegasta sem hefur komið fyrir Dóra? Sko, ég held að okkur finnist ekkert vandræðalegt. Við erum alveg frekar óforskömmuð. Allt vandræðalegt sem hentir okkur er bara gjöf fyrir okkur í grínið, við viljum helst tala um það og best er ef það gerist fyrir framan fólk. Að gleyma að fara í sundföt og fara allsber út í laug væri það besta sem gæti gerst fyrir okkur. Við þyrftum ekki að tala um annað í heilt ár. Hefur eitthvað farið úrskeiðis í sambandi við sýninguna hjá ykkur? Dóri heimtaði að fá nýjar og þykkari nærbuxur þar sem hans voru gegnsæjar og hann var síðasti maðurinn til að fatta það. Það truflaði mig samt ekkert. Ef þú gætir breyst í Dóra í einn dag – hvað væri það fyrsta sem þú myndir gera? Ég myndi barna Magneu, gullfallegu konuna hans aftur og ræna sjoppu og kýla alla sem ég myndi hitta á leiðinni. Af því að ég gæti það. Svo myndi ég láta börnin mín borða nammið úr blóðugum lúkum mínum og segja „Pabbi elskar ykkur!“
Dóri:
Hvort ykkar er stjórnsamara? Ég. Við vinnum rosa vel saman en ég á það til að taka stjórnina stundum. Stundum er það ekki alveg málið, en Saga leyfir það yfirleitt. Ég á það til að taka í taumana. Hvort ykkar er meiri tilfinningavera? Saga. Hún fúnkerar best í jákvæðu umhverfi þar sem allt er uppi á borðum. Hún þrífst á jákvæðri og kærleiksríkri orku á meðan mér er slétt sama. Fyrir mér er bara orkan sem er, besta orkan. Það er yingið og yangið okkar. Hún er tilfinningavera á yfirborðinu, ég frekar undir niðri. Hefur hún farið að gráta yfir einhverju? Já margoft, en ekki útaf mér. Hvort ykkar frussar meira? Ég. Ég er ekki lærður leikari. Ég er líka að borða popp í sýningunni og mig skortir smá tækni, stundum stendur út úr mér strókurinn. Helstu kostir Sögu? Hlý, ógeðslega klár, snjöll í að gera húmor og hún treystir. Það er það besta í samstarfi okkar, við treystum hvort öðru – ef henni finnst eitthvað fyndið þá treysti ég því. „Já, finnst þér þetta fyndið? Þá er þetta fyndið, fyrst þér finnst það þá hlýtur það að vera“. Saga er hugmyndarík. Ekki langrækin. Auðveld í samskiptum. Hún er besti samstarfsaðili sem ég hef átt. Helstu gallar? Hvað hún er mikil tilfinningavera. Hún er smámunasöm, og ég ætla ekki einu sinni að kalla það fullkomunaráráttu. Til dæmis fór hún 2 – 3 hringi yfir handritið bara til að bæta við svona „ó“-um og ,,æ”-um á undan setningum og orðum. Svo er hún (það er ekki galli) skemmtilega glórulaus. Hvort ykkar er skipulagðara? Ég veit það ekki. Hún á yfirborðinu en ég undir niðri. Áttu einhverja vandræðalega sögu af henni? Við vorum í leiklistarskóla saman. Þessi ár í skólanum eru samansafn af vandræðalegum uppákomum. Við kunnum ekki að skammast okkar eða fatta að eitthvað sé vandræðalegt. Hefur eitthvað farið úrskeiðis í sambandi við sýninguna? 7-9-13 þá höfum við sloppið vel en það hefur hellst niður popp í byrjun sýningarinnar, einu sinni var einn hátalari óvirkur. Einu sinni var líka fullt fólk á sýningunni sem er aldrei gaman, alltaf rápandi fram og til baka. Ef þú gætir breyst í Sögu í einn dag hvað myndir þú gera? Ég myndi fara að borða allt of mikið af djúpsteiktum kjúklingi og láta hana vakna helmingi þykkari en hún er. Nei … ætli ég myndi ekki bara reyna að hrekkja Snorra kærastann hennar eitthvað. SAO/HM
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
KONFEKTKASSI FULLUR AF LJÚFFENGUM PRALÍN MOLUM… OG ENGU ÖÐRU
ÁRNASYNIR
Pralín molar eru fylltir molar, með lungamjúkri og bragðgóðri fyllingu sem bráðnar í munni. Gefðu þér og þínum gleðistundir með ljúffengum Pralín molum.
11
12
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Jólabörnin á Kiðagili
Börnin á leikskólanum Kiðagili eru farin að hlakka til jólanna. Þau svöruðu spurningum um jólin, jólasveinana og móður þeirra, Grýlu. Berglind Björnsdóttir Björnsdótt Malmquist 5 ára
Ívan Breki Arnórsson Arnórsso 5 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Fá pakkana og skreyta jólatréð. Setur þú skóinn út í glugga? Já, ég hef fengið sleikjó í skóinn. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Nei aldrei! En systir mín hefur fengið kartöflu. Hún henti henni í ruslið. Hver er Grýla? Mamma jólasveinanna, hún býr í hellinum auðvitað. Ég hef farið þangað. Hvað myndir þú mest vilja borða á jólunum? Kjöt, jólakjöt.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Gera snjókarl. Hvað gerirðu alltaf á jólunum? Ekkert annað en að gera snjókarl. Áttu systkini? Já tvö. Ein er átta og einn er tveggja. Eru þau alltaf stillt á jólunum? Ekki Tómas, hann er ekki góður á jólunum. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Stekkjastaur því ég þekki hann svo vel. Hvað langar þig að borða á jólunum? Brauð!
Magnea Rún Thelmudóttir Thelm 5 ára
JJón Axel Sveinsson 5 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Fá jólapakka, ég fæ fimm jólapakka! Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Nei, bara lauk. Af því að ég var óþekk af því að ég vildi fá jólasveinaís. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Kertasníkir af því að hann gefur mér alltaf kerti. Hefur þú hitt Grýlu? Já, ég hitti hana í bænum. Grýla og Leppalúði setja börn í pottinn. Þau hræra börnin og bborða h b ð þþau. Áttu þér jólaósk? Að eignast litla hvolpa.
Guðmundur Þormar Þorma Þórsson 4 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Hengja upp jólaljós þegar pabbi kemur heim. Við skreytum inni og úti. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Nei en systir mín fékk kartöflu í skóinn, hún var óþekk í rúminu. Ég fékk bara nammi! Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Grýla, ekki jólasveinarnir. Ég sá pokann hennar Grýlu, ég held það hafi verið krakki í pokanum! Hvað langar þig að borða á jólunum? Það sem jólasveinarnir elska, hjartakökur. Áttu þér jólaósk? Já, ég á óskastein. Ég óskaði mér með honum að ég fengi hest.
Gunnar Bragi g Reimarsson 5 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Fara á jólaball. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Hurðaskellir, það eru alltaf svo mikil læti í honum. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Nei en afi hefur fengið kartöflu í skóinn! Hvað langar þig að borða á jólunum? Rjúpur, af því að pabbi skaut margar rjúpur á Dalvík. Áttu þér jólaósk? Hlaupahjól fyrir snjó.
Guðnýý Björg j g Björgvinsdóttir j g 5 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Opna pakkana. Setur þú skóinn út í glugga? Já, þá setur jólasveinninn dót í skóinn. Þekkirðu einhvern sem hefur fengið kartöflu í skóinn? Já frænka mín. Hún var óþekk. Hún borðaði kartöfluna. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Stekkjastaur því hann gaf mér sykurpúða í skóinn. Ég hittii S Stekkja É hi kkj staur einu i sinni og þakkaði fyrir mig. Hver er Grýla? Mamma jólasveinanna, mig langar ekki að hitta hana, hún er svo ljót. Hún borðar óþekku börnin. Áttu þér jólaósk? Að fá alvöru dúkkubað.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Leika í snjónum með Benedikt og Gunnari Braga. Setur þú skóinn út í glugga? Já, af því þá kemur jólasveinninn. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Nei, en ég hef fengið eina björgunarsveit. Hver er Grýla? Hún býr í helli og kveikir stundum á kertum. Hún er samt ekki til í alvörunni. Hvað langar þig að borða á jólunum? Lambakjöt er uppáhaldsmaturinn minn.
Hildur Sara Ingadóttir: Ingadót
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Leika úti í snjónum. Hlakkar þú til jólanna? Já, því þá fæ ég pakka frá jólasveininum. Hver er Grýla? Mamma jólasveinanna, hún eldar börn. Hvað gerist fyrir óþekk börn á jólunum? Þau fá kartöflu í skóinn. Hvað langar þig mest að borða á jólunum? Jólamat.
Aron Vigri g Elvarsson 5, næstum 6 ára
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á jólunum? Ná í jólatréð með pabba. Setur þú skóinn út í glugga? Já, ég set spariskó út í glugga. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Stekkjastaur, því hann gaf mér flottasta dót sem ég hef átt, skjaldbökudót! Ég elska skjaldbökur. Ertu hræddur við Grýlu? Nei, ég er ekkert hræddur við hana. Ég hef séð ljón! Ég var ekkert h hræddur dd við ið þþað, ð éég er ekki hræddur við nokkuð dýr, ekki einu sinni könguló! Ég hef haldið á könguló. Áttu þér jólaósk? Ég myndi fara til Afríku! Ég hef farið þangað, mig langar að fara aftur. Ég fór i frumskóginn, keypti mér froska, svo fór ég heim, borðaði kvöldmat og fór að sofa.
Svandís Bára JJakobsdóttir 4 ára
Hefur einhver sem þú þekkir fengið kartöflu í skóinn? Já, mamma. Hefur þú fengið kartöflu í skóinn? Já, mamma gaf mér kartöflu í skóinn. Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn? Mamma. Hver er Grýla? Grýla býr í skóginum og étur flögur. Hver er uppáhaldsjólamaturinn þinn? Ís. –HM/SAO
13
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA -12-2393
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
ís sem bræðir hjörtu Þessi himneski jólaís með mildum tónum af súkkulaði, grískri jógúrt, hunangi og heslihnetukrókant á eftir að verða fastagestur á jólaborðum þínum. Sjáðu úrval hátíðaruppskrifta á gottimatinn.is, í tölvunni, spjaldtölvunni eða snjallsímanum.
Matargerðin byrjar á gottimatinn.is
14
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Innflytjendur á Íslandi
Jólahald er með ýmsum hætti vítt um heim og fólk sem flytur til Íslands hefur alist upp við aðra siði en tíðkast hér á landi. Vikudagur ræddi um jólin við tvo innflytjendur. Blandar saman íslenskum og þýskum jólum
Nicole Kristjánsson kemur frá Heidelberg í Þýskalandi og býr núna á Akureyri og vinnur fyrir stéttarfélagið Einingu-Iðju. Hún kom fyrst til Íslands til að vinna fyrir hestaleigu, en varð ástfangin af íslenskum manni og eiga þau núna saman tvær stelpur. Nicole finnst jólahefðirnar á Íslandi og í Þýskalandi vera mjög svipaðar. Í Heidelberg var jólatréð sett upp á aðfangadegi – seinni partinn var sest með kaffi og smákökur og svo sungið fyrir framan tréð. Pakkarnir voru opnaðir áður en að borðaður var fjögurra til fimm rétta kvöldverður. Það var mjög mikilvægt að hafa alvöru kerti á jólatrénu og er það siður sem hún tók með sér til Íslands. Á Íslandi finnst henni sérstakt að við viljum byrja jólahaldið klukkan sex á aðfangadegi, en þó gerir fjölskyldan hennar það í dag. Þá borða þau þriggja rétta máltíð, sem samanstendur af humri í forrétt, hreindýri í aðalrétt og síðan jólaís með bökuðum eplum, fylltum með alls kyns góðgæti. Nicole nefnir það að siðirnir séu mismunandi eftir því hvar þú ert í Þýskalandi og þekkir hún fólk í Berlín sem borðar kartöflusalat og pylsur á aðfangadag en sé með stóra jólamáltíð á jóladag. Önnur hefð sem Nicole kom með til Íslands er jóladagverður. Í Þýskalandi var alltaf hlaðborð sem svignaði undan veitingum af ýmsum toga á jóladagsmorgun og endurtekur hún leikinn hérna á Íslandi. Nicole lætur ekki undan manninum sínum sem er alltaf að biðja hana um að baka hálfmána og heldur sig við tvær sortir af þýskum smákökum. Nicole finnst íslensku jólin yndisleg, þar sem hér sé meira myrkur en í Þýskalandi. Einnig finnst henni gaman að hafa snjóinn því hún er ekki vön honum. Þjóðverjar skreyta heldur ekki mikið með jólaseríum, en henni finnst notaleg öll ljósadýrðin á Íslandi. Þó saknar hún þýskra jólamarkaða, að skoða þar, drekka jólaglögg og borða ristaðar möndlur. Annars eyðir hún jólunum í faðmi fjölskyldunnar, þar sem þau leika sér saman, spila og horfa á bíómyndir ásamt því að borða góðan mat.
Nicole Kristjánsson með manni sínum, Snæbirni Kristjánssyni, og dætrunum Emmu og Elsu.
lítið í Tékklandi, en seinustu ár hefur hann aðeins byrjað að kíkja þangað. Á Þorláksmessu var jólatréð sett upp hjá fjölskyldunni hans í Tékklandi, en á aðfangadag hittist nánasta fjölskylda. Á jóladagsmorgun hittist stórfjölskyldan og vinir, dagurinn byrjar á morgunmat og síðan fínum kvöldmat. Í matinn er yfirleitt fiskisúpa, brauð, fiski- og kartöflusalat. Það er misjafnt eftir því hvar í Tékklandi þú ert hvaða matur er á boðstólum. Pavel finnst Íslendingar skreyta mikið og byrji mun fyrr en í heimalandi hans. Honum finnst einnig notalegt hvað íslenskar fjölskyldur séu duglegar að hittast yfir jólin, meira að segja þeir fjölskyldumeðlimir sem búa erlendis. Hérna á Íslandi heldur hann upp á jólin á frekar tékkneskan máta, hann byrjar seint að skreyta og maturinn er tékkneskur. Þótt að Pavel segist ekki vera mikil jólamanneskja mun hann fara í jólahúsið á Akureyri eins og hann gerir hver einustu jól. Það verður fiskur og kartöflusalat á boðstólunum ásamt því að hann borðar mikið af bæði tékknesku og íslensku jólanammi. Hann bætir við að það skipti kannski ekki miklu máli hvaða siðir koma hvaðan, heldur sé aðalatriðið að njóta hátíðarinnar.
Aðalatriðið að njóta hátíðarinnar
Pavel Landa kom til Íslands árið 2005, hann ætlaði að vera hérna í 3 mánuði, til að prófa eitthvað nýtt. En hann fór aldrei til baka og í dag býr hann á Akureyri, á 15 mánaða dóttur og vinnur sem smiður og við frystilöndun. Pavel er frá Tékklandi, hann segir að jólin þar séu mjög svipuð og á Íslandi. Munurinn sé aðalega að þar séu engir jólasveinar heldur „little baby jesus“, en jesúbarnið kemur að kvöldi aðfangadags og heimsækir fólk sem er búið að vera gott. Jólasveinninn sést
Myndir: SAO
Pavell L P Landa. d
-ÁÝS
15
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Kennari í MA skrifar bók – Þroskasaga unglings í leit að sjálfum sér
Sölvasaga unglings er heitið á fyrstu skáldsögu Arnars Más Arngrímssonar sem kom út í byrjun nóvember á þessu ári. Í bókinni segir frá Sölva, 15 ára strák úr Garðabæ, sem er að útskrifast úr 10. bekk. Í kjölfarið er hann sendur í sveit til ömmu sinnar austur á land og þarf að eyða sumrinu þar, fjarri sínu náttúrulega umhverfi eins og interneti eða farsímum. Dvölin reynist honum erfið enda um eins konar fangabúðir að ræða að mati piltsins. Höfundur bókarinnar, Arnar Már, er kennari við Menntaskólann á Akureyri og þekkir því vel hugarheim unglingsins. „Sölvi glímir við depurð og kvíða. Hann á erfitt með að staðsetja sig félagslega og er að leitast við að finna sjálfan sig. Bókin er ekki byggð á raunverulegum atburðum en flest í henni er byggt á einhverju sem maður hefur séð,“ segir Arnar Már. Arnar Már hefur verið gagnrýninn á skólakerfið á Íslandi á undanförnum árum og viðurkennir að það geti vel verið að greina megi eitthvað af þeirri gagnrýni við lestur bókarinnar. Þá segir hann að ýmislegt í fasi aðal-
Arnar Már A Má A Arngrímsson, í kkennarii í MA og rithöfundur. i höf d
persónu bókarinnar, Sölva, geti hafa átt við sig á unglingsárum sínum. „Ég var mjög stefnulaus lengi vel og endaði bara einhvernveginn sem kennari.
Mér þótti kennslan erfið og óspennandi fyrst um sinn en hef síðan fundið mig vel í því. Ég átti sjálfur alltaf erfitt í skóla þó mér hafi gengið þolanlega.
Mér hefur alltaf fundist skólar vera frekar erfið fyrirbæri þar sem þetta kerfi, að setja 25 einstaklinga í sama árgangi í einhvern bekk sem á að fylgjast að. Kannski má lesa einhverja ádeilu á skólakerfið út úr sögunni í bókinni,“ segir Arnar Már. Eins og áður segir er um að ræða fyrstu skáldsögu Arnars, en hann stefnir á frekari útgáfu í framtíðinni. Arnar er þó enginn nýgræðingur þegar kemur að því að skrifa sögur en hann hefur skrifað ýmsar smásögur, sér og öðrum til skemmtunar. „Ég hef alltaf haft gaman að því að skrifa og ég fann það þegar ég var að skrifa þessa bók að þetta á vel við mig. Ég skrifaði bókina meðfram starfi mínu sem kennari og það virkaði vel. Ég fann það samt að ég gæti haft gaman af því að leggja þetta algjörlega fyrir mig.“ Arnar Már kennir íslensku við MA og viðurkennir að hafa hugleitt að nota bókina til kennslu. „Ég held að það sé ekkert ólíklegt. Bókin er vel til þess fallin en ég veit ekki hvort ég sé tilbúinn til þess. Jújú við skulum bara segja að hún verði kennd í öllum þeim áföngum sem ég kenni,“ segir Arnar Már, sposkur á svip. AGH
Jólabækur Hóla KVEIKJUR
Kveikjur séra Bolla taka á vandamálum og viðfangsefnum nútímans og eiga erindi við alla.
SKÓSVEINARNIR
SKÓSVEINARNIR
LEITIÐ OG FINNIÐ Skósveinarnir eru alls staðar – en geturðu fundið þá? Bók sem eflir athyglisgáfuna.
SKÁLDSAGA FYRIR KRAKKA Sláist í för með Kevin, Stuart og Bob í leit þeirra að versta illmenninu til að stjórna þeim félögum.
HERSETAN Á STRÖNDUM OG NORÐURLANDI VESTRA
STEVEN GERRARD
Hermennskulífið, loftárásir, mannskæðar slysfarir, vofveiflegir atburðir og margt fleira er hér í sviðsljósinu.
ÁRIN HJÁ LIVERPOOL Saga eins af fremstu knattspyrnumönnum sinnar kynslóðar er hér rakin, en þess utan er farið djúpt ofan í sögu Liverpool á þeim tíma sem hann lék með liðinu.
FÓTBOLTASPURNINGAR 2015
Hvað veistu um boltann? Bráðskemmtileg bók fyrir alla sem áhuga hafa á fótbolta.
HALLOWEEN
Magnaðar draugaog hryllingssögur. Lestu ef þú þorir!
BESTU BARNABRANDARARNIR
BARA GÓÐIR! Bók sem kitlar svo sannarlega hláturtaugar jafnt yngri sem eldri.
www.holabok.is holar@holabok.is
16
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Fallegt jólahandverk hjóna í Varmahlíð:
Jólaföndur í skóginum – Kolbeinn býr til fallegt handverk úr viði
til en hún málar alla fínvinnuna. Það má sjá myndir af jólasveinunum inni á facebook líka. Fyrir jólin höfum við einmitt fengið pantanir í gegnum facebook, bæði af jólasveinum og birkiskálum, og sent út um allt land, en einnig nokkuð út fyrir landsteinana. Við látum þetta verða lokaorðin og þökkum Kolbeini kærlega fyrir spjallið. Hægt er að hafa samband við hann á facebook síðu hans undir nafninu Kolbeinn Konráðsson og í síma 861 5955. –KLK KLK
Kolbeinn Konráðsson er 52ja ára smiður, búsettur í Varmahlíð í Skagafirði. Þar hefur hann komið sér upp aðstöðu fyrir áhugamál sitt sem hann hefur þróað undanfarin ár en Kolbeinn býr til fallegar skálar, glös og jafnvel jólakarla og konur af öllum stærðum og gerðum, allt úr efniviði sem skógurinn í kringum hann gefur honum. Þarna verður til hvert meistarastykkið á fætur öðru. Kolbeinn og kona hans Linda Gunnarsdóttir, sem sér um að glæða jólafólkið lífi með fallegri málningu, hafa mátt hafa sig alla við að anna eftirspurn. Óhætt er að segja að þessir einstöku munir rjúki út enda vinsælar gjafir og skraut á heimilið því engir tveir eru eins. Við settumst niður með Kolbeini og Lindu til að ræða hvernig þetta allt saman. Hvenær byrjaðir þú á þessu? Ég byrjaði aðeins að renna samhliða smíðakennslu í kringum árið 2005-6. En árið 2009 keypti ég mér lítinn rennibekk og þá hófst þetta fyrir alvöru. Hvernig kviknaði áhuginn? Hann kviknaði eiginlega árið 1983 þegar ég var í Ármúlaskóla. Smíðakennarinn þar, sem ég man ekki lengur nafnið á því miður, kom mér á bragðið, eins og stundum er sagt. Hjá honum komst ég fyrst í kynni við rennibekk og síðan hefur þetta blundað í mér. Ég kenndi svo smíðar í nokkur ár og þar komst ég aftur í tæri við rennibekk og þá vaknaði aftur áhuginn fyrir þessu. Hvernig fer vinnslan fram? Ef við tölum t.d. um birkið, þá byrjar þetta með því að maður verður sér út um trjábút, annað hvort hegg ég sjálfur niður tré, en nóg er af þeim garðinum mínum, eða fæ búta í skóginum í kring þegar verið er að grisja þar, svo eru hinir og þessir sem hafa samband við mig og bjóða mér trjábúta. Síðan þarf að þurrka bútinn, það er í það minnsta ár sem það tekur, fer eftir sverleika bolsins. Ég læt hann fyrst liggja utandyra í skjóli, í að minnsta kosti ár áður en ég tek hann inn og læt hann jafna sig þar í góðan tíma áður en ég fer að vinna úr honum, stundum er hann ekki orðinn nógu þurr til vinnslu og þá læt ég hann bíða aðeins lengur. Svo saga ég hann niður í hæfilega búta sem passa í rennibekkinn, síðan fer ég að renna og ræðst það mikið til af því hvernig trjábúturinn er hvernig munirnir verða. En það er alltaf gaman að vinna með svona lifandi efni. Nú ferðist þið hjónin landshorna á milli til að sýna og selja munina. Hefur það gefist vel? Já, það hefur gefist ágætlega, auðvitað misvel, en það eru alls staðar mjög góðar viðtökur og virkilega gaman að koma á nýja staði, hitta annað handverks-
Hjónin Kolbeinn Konráðsson og Linda Gunnarsdóttir.
fólk og sjá hvað það er að fást við. Það er svo margt fólk sem er að gera góða og fallega hluti í handverki. Hvernig er hægt að nálgast þessa muni? Að mæta á markaði þar sem við erum að selja munina, hringja, eða hafa samband við mig á facebook. Nóg er að slá upp nafninu mínu á facebook, fara í myndir, og þar er hægt að skoða handverksalbúmin mín, en þau eru öll opin. Á þessum árstíma erum við hjónin með jólasveina, bæði staka og jólasveinapör ásamt öðrum munum. Það er gaman að geta þess að þegar kemur að þessum árstíma þá breytist heimili okkar hjóna í lítið jólasveinaverkstæði, því ég renni jólasveinana, kem með þá heim, og þá tekur konan mín við og málar á þá, ég hjálpa
J l k l og -kerlingar Jólakarlar k l sem K Kolbeinn lb hhannar og L Linda d kona hans málar.
Hér má sjá handverk hjónanna Kolbeins og Lindu á einni sölusýningunni en þau hjón selja víðs vegar um landið.
Óskum viðskiptavinum og starfsmönnum
gleðilegra jóla og ljúffengs komandi árs
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Jólin eru að koma
17
18
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Jólin á Eyrinni í gamla daga rifjuð upp.
Jólin á Eyrinni
Mynd: JÁE.
– Systkinin Lórenzbörn rifja upp jólin í gamla daga
Jólaskraut í nóvember, örtröð í verslunum, risastór yfirdráttur, stress og kvíði, pakkafjall undir trénu á aðfangadag og gríðarlegt spennufall þegar búið er að taka utan af gjöfunum. Kannast einhver við þetta? Hafa jólin alltaf einkennst af þessu gegndarlausa kapphlaupi og sjálfsspeglun í veraldlegum gæðum? Við setjumst niður með þeim Magnúsi Guðlaugi, Gísla Kristni, Ingibjörgu og Skúla Viðari Lórenzbörnum á heimili Ingibjargar sem borið hefur dýrindis kræsingar á borð, heimabakað brauð með reyktum laxi og konfekt í skál og ekki laust við að örli á smá jólaskapi. Í hópinn vantar Pálínu Axelínu og Gunnar Halldór en þau eru bæði fallin frá og Steinunni Guðbjörgu sem er búsett í Kópavogi. Öll eru þau fædd á fyrri hluta síðustu aldar og ólust upp á Eyrinni, nánar til tekið í Fróðarsundi 3. Við fengum þau til að rifja upp hvernig undirbúningi jólanna var háttað á þeirra heimili og hvernig jólahald nútíma Íslendings er frábrugðið því sem þekktist í þeirra uppvexti.
Bakað alla nóttina
Ilmur er einkennandi fyrir hughrif systkinanna af endurminningunum. Það fyrsta sem kemur upp í huga þeirra þegar þau láta hugann reika aftur í tímann, að jólahaldi bernskunnar er ilmurinn af smákökunum. ,,Ég man nú fyrst bara eftir því þegar maður fann ilminn af kökunum. Þá fór maður í háttinn og það var
bakað þegar allir voru sofnaðir“ segir Gísli Kristinn og Magnús, eldri bróðir hans tekur í sama streng. Ingibjörg heldur áfram: ,,Og vaknað við það á morgnanna, kökur við rúmið. Þá voru þær á diski við rúmið. Þá hafði verið bakað alla nóttina.“ Ekki er langt liðið á samræðurnar þegar Magnús og Gísli eru komnir út fyrir efnið og ræða sín á milli um hvar og hvenær þeir bjuggu á þeim og þeim stað. Skúli Viðar sá yngsti, skýtur á þá bræður og segir að allir eigi eftir að átta sig á því hversu misminnugir þeir séu, og hlær með sjálfum sér. Það fer ekkert á milli mála að jólaundirbúningur fer fyrr af stað í dag en hann gerði um miðja síðustu öld. Þá var ekkert farið að skreyta um miðjan nóvember. Systkinin vitna um það að á Þorláksmessu hafi stofunni verið lokað og hún ekki opnuð aftur fyrr en klukkan sex á aðfangadag. „Það var voða mikil hátíð þegar opnað var inn í stofu klukkan sex á aðfangadagskvöld. Þá var mikil hátíð, fá að sjá jólatréð og hvernig það hafði verið skreytt,“ segir Ingibjörg. Á þessum árum var ekki hlaupið út í Rúmfatalager eftir jólaskrauti heldur var það að mestu heimagert. Magnús rifjar upp þegar þau sátu í marga daga við að klippa út og setja saman músastiga eða það sem hann sjálfur kallar ,,harmonikubelgi“.
Engin vildi í jólaköttinn
Ekki kannast systkinin við að muna eftir að gömlu jólasveinunum þ.e. að hrekkjalómunum hafi verið gert hátt undir höfði og því síður Grýlu. Um jólaköttinn gegndi öðru máli, það var mikið rætt um hann. Það var mikilvægt að allt væri hreint og fínt til að
forðast að lenda í jólakettinum. Það fór nú líka lítið fyrir rauðklæddu jólasveinunum, svona miðað við hvernig þetta er í dag. „Það komu nú alltaf jólasveinar á jólaballið í Hjálpræðishernum,“ segir Skúli og bætir við: „En upplifunin gagnvart jólasveininum var allt önnur en hún er í dag. Maður var búinn að bíða lengi eftir honum þegar hann loksins kom. Þegar Ketill Larsen var að koma hérna fyrst, þá kom hann með flugvél frá Flugfélaginu. Hann var sóttur fram á flugvöll og keyrður inn á Ráðhústorg þegar verið var að kveikja þar á ljósunum. Hann var í svona stórri skikkju utan yfir sig, mjög reffilegur karl og er enn. Þetta var allt önnur stemning heldur en er í dag. Nú er alveg sama hvernig þetta er gert.” Þegar minnst er á jólamatinn segir Magnús: ,,Ég minnist þess bara að reynt var að hafa gott að borða á jólunum. Punktur og basta og búið,“ en heldur svo áfram og segir og þau raunar öll í kór, að oftast nær hafi verið rjúpa á boðstólnum. Magnús segir jafnframt að rjúpnaveiðin á þessum árum hafi verið með allt öðru móti en í dag. ,,Pabbi fór klukkan fjögur á morgnana, þá lagði hann af stað til að fara upp í Súlur og þeir fóru á bússum þangað til að verjast bleytunni. Það þætti skrýtið skótau í dag. Ég man að hann hafði alltaf Þjóðviljann eða Morgunblaðið með sér. Ég spurði hann sérstaklega eftir því af hverju hann væri með þessi dagblöð. Jú, það var til að verjast kuldanum. Þá settu þeir það framan á sig inn undir buxurnar til að verjast næðingnum“. Veiðitímabilið var sömuleiðis mun lengra en þekkist í dag og segir Skúli að menn hafi verið að skjóta rjúpur alveg fram í febrúar og bætir við: ,,Ef það vantaði í jólamatinn þá var hægt að hlaupa út og skjóta eina í viðbót“.
19
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Húsakostur fjölskyldunnar var ekki stór. Það mætti ætla að nóg væri að níu manna fjölskylda byggi í svo litlu húsi. Þrátt fyrir það var stofan notuð sem barnaskóli og auk þess leigði þriggja til fjögurra manna fjölskylda herbergi í húsinu. Það var því oft þröngt á þingi og erfitt að athafna sig þegar mikið lá við. Skúli segir: ,,Gamla [mamma þeirra] hafði sig nú alltaf í gegnum þetta þó að hún væri þreytt stundum. Svo varð að taka tillit til þess að þarna voru líka stundum sjö óþekkir einstaklingar, allir ofvirkir og lítið pláss“. Þau segja að mamma þeirra hafi því oft brugðið á það ráð að baka fram eftir allri nóttu þegar krakkaskarinn var genginn til náða. Magnús, sem var að nálgast fermingu þegar sá yngsti fæðist segir að auðvitað hafi allir reynt að hjálpa til og allir hafi haft meira en nóg að gera í undirbúningnum. ,,Krakkar voru látnir fara að leggja sig um eittleytið á aðfangadag og áttu að sofa fram til hálf fjögur eitthvað svoleiðis til þess að geta vakað fram eftir. Það þurfti að vera hægt að taka til í húsinu, til þess að það sé hreint og fínt þegar jólin byrja,“ segir Skúli. Þegar talið berst að kirkjusókn fjölskyldunnar voru svörin önnur en búist var við. Ingibjörg segist ekki muna eftir því að hafa farið í kirkju, en bræðurnir vilja nú meina að þeir hafi ,,stundum farið í kirkju“ og Magnús segir enn fremur: ,,Það var nú bara ef það var þannig veður. Maður var svo lengi að fara gangandi neðan af Eyri og upp á Brekku sko og áður en Akureyrarkirkja kemur náttúrulega, þá var farið inn í gil.“ Yngri systkinin þrjú vilja nú meina að ,,sá gamli“ hljóti nú eitthvað að vera ruglast, því Akureyrarkirkja hafi nú verið komin þegar þau voru að alast upp. Þá svarar Magnús að bragði og segir: ,,Nei, því Akureyrarkirkja kemur nú 1940 sko, ég ætti nú heldur betur að muna eftir því þegar maður var príla í stillönsunum meðan það var verið að byggja hana.“ Þá var Magnús sex ára gamall. Það sem kemur sömuleiðis á óvart er að á þessum árum var ekki messað á aðfangadagskvöld eins og tíðkast nú til dags heldur var eingöngu messa á jóladag.
Systkinahópurinn ásamt foreldrum sínum fyrir margt löngu.
Candy og þurrkaðar apríkósur
En hvernig skyldi hafa verið að alast upp á hernámsárunum, og ætli jólin hafi verið eitthvað frábrugðin á þeim tíma? Skúli beinir þá orðum sínum að Ingibjörgu og spyr hvort að þau tvö ættu ekki bara að skreppa og fá sér ís en Ingibjörg var ekki nema tveggja ára þegar stríðinu lauk og enn tvö ár í að Skúli kæmi til sögunnar. Magnús og Gísli muna þó vel eftir þessum árum. Magnús segir það skipta máli hvort um fyrstu eða síðustu ár stríðsins er að ræða ,,vegna þess að seinni árin var Bandaríkjaher hérna og við vorum í spes uppáhaldi hjá þeim villingarnir í Fróðasundinu. Við fengum stóran kassa, skókassa fullan af candy og alls lags dótaríi frá hernum.“ Gísli segist nú ekki muna eftir sælgætinu en hann man vel eftir því þegar offiseri bankaði upp á á jólunum með fullan trékassa af þurrkuðum apríkósum og gaf þeim. Offiserinn þáði þó ekki boð fjölskyldunnar um að ganga í bæinn. Þau eru öll sammála um að bruðl í jólagjöfum var ekki með sama hætti og er í dag. Það hafi fyrst og fremst verið gefið eitthvað sem fólk þurfti. ,,Gjafir voru allt öðruvísi. Maður fékk lina pakka. Við fengum bara lina pakka. Það voru vettlingar, það voru húfur, það voru peysur og belgvettlingar, ekta, með tveimur puttum, mundu,“ segir Magnús og beinir orðum sínum að Gísla. Ingibjörg bætir því við að hún muni sérstaklega eftir fallegum prjónaklukkum sem amma þeirra á Eskifirði sendi þeim. Þau tala um að vangaveltur um hvað væri í pakkanum hafi ekki þekkst á þessum árum, hvort að í honum leyndist Ipad eða eitthvað slíkt. Föt var eitthvað sem allir þurftu á að halda og því voru það föt en ekki leikföng sem rötuðu undir tré fjölskyldunnar.
Ilmurinn af eplunum
Magnús minnist þess þegar hann var strákur, líklega um það bil þegar Inga var að fæðast. „Þá var ég byrjaður að fara niður á bryggju og vinna í strandferðaskipunum. Þegar eplaskipið kom fyrst í byrjun desem-
Þetta er húsið við Fróðasund sem systkinin sjö bjuggu í ásamt foreldum sínum. Auk þess var starfræktur barnaskóli í stofunni og herbergi leigð út til minni fjölskyldna.
Fráá vinstri: F i i G Gunnar H Halldór, lldó M Magnús ú G Guðlaugur ðl og Gí Gísli li K Kristinn. i i
ber þá angaði bærinn alveg. Bara af eplalykt sko. Það var svo sterk lyktin af þessum eplum.“ Og Skúli bætir við: „Maður stóð nú bara á bryggjunni á meðan það var verið að landa þessu og beið eftir því að einhver kassi dytti og brotnaði. Þá gat maður fengið sér appelsínu eða epli.“ Magnús hlær og kinkar kolli til samþykkis og bætir við að það hafi komið fyrir að kassarnir voru viljandi látnir brotna. Eftir að hafa hlustað á systkinin rifja upp þessa
gömlu tíma vaknar sú spurning hvort allt þetta prjál sem fylgir jólunum nú til dags sé eitthvað eftirsóknarvert. Hvort að jólahaldið væri ekki hreinlega notalegra og skemmtilegra ef við tækjum upp þá gömlu siði og venjur sem þau ólust upp við. Það er ekki laust við að nostalgían svífi yfir vötnum þegar systkinin eru kvödd og það eina sem kemst að er að halda beint út í Bónus til að kaupa stóru jólaeplin og kannski mandarínur með. JÁE/EPE
20
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Sigmundur og Elín fagna silfurbrúðkaupsafmæli á næsta ári.
Var snemma staðráðinn í að vinna við skriftir – Sat fyrsta ritstjórnarfund DV árið 1981
Sigmundur Ernir Rúnarsson er fæddur þann 6. mars 1961 á Akureyri og bjó þar þangað til hann kláraði stúdentspróf úr MA árið 1981. Ungur að aldri byrjaði Sigmundur að skrifa og hefur hann varla lagt frá sér pennann síðan. Það er á dimmu vetrarkvöldi í nóvember er undirritaður ráfar um Laufásveginn í miðbæ Reykjavíkurborgar. Tilgangurinn var að mæla mér mót við Sigmund Erni Rúnarsson, rithöfund og fjölmiðlamann. Leið mín endar hjá stóru snjóhvítu húsi þar sem ég banka á dyr Sigmundar og konu hans, Elínar Sveinsdóttur. Rúnar Sigmundsson, eldri sonur Sigmundar og Elínar kemur til dyra og býður mig velkominn. Ég geng í bæinn þegar klukkan er að slá í hálftíu en þá situr stórfjölskyldan við matarborðið að nýlokinni kvöldmáltíð. Sigmundur og Elín bjóða mig velkominn í bæinn og undirritaður heilsar öllu bæjarfólki samhliða því að biðjast forláts fyrir að trufla matartímann. Sigmundur er ekki lengi að vísa afsökunum mínum á bug og tjáir mér með stóru brosi á vör að á sínu heimili sé kvöldmáltíðin seint og lengi, þau hefðu eflaust setið ennþá við borðið hefði ég mætt klukkustund síðar. Við Elín og Sigmundur setjumst inn í borðstof-
una, en þar eru fyrir Auður og Birta að huga að dóttur Birtu, Ragnhildi Eddu. Ragnhildur er eina barnabarn þeirra Sigmundar og Elínar, en saman eiga þau fjögur börn. Ásamt Auði (2004), Rúnari (1992) og Birtu (1990) eiga þau Erni sem fæddur er árið 1996. Birta kveður, en hún er á hraðferð heim til sín en Auður er send upp í herbergið sitt. Hús þeirra við Laufásveg er glæsilegt. Þarna mætir antíkin nútímalistinni í fullkominni blöndu.
Simmi sískrifandi
Sigmundur gaf út sína fyrstu bók, Tröllasaga, þegar hann var aðeins 10 ára í Barnaskóla Íslands á Akureyri. „Ég var strax staðráðinn í því, bæði í gagnfræðaskóla og menntaskóla að vinna við skriftir.“ segir Sigmundur og heldur áfram „Það lá því beinast við að fara á dagblöðin eftir nám 1981. Ég fór á öll dagblöðin beint eftir að ég kom að norðan. Fyrst prófaði ég Þjóðviljann, það var ekki laust þar. Síðan fór ég á Dagblaðið en það var ekki laust þar heldur. Síðast fór ég svo á Vísi þar sem að var laust og ég byrjaði þar. Ég tók bara röðina, en ég var frekar vinstrisinnaður þá en endaði síðan hjá hægrisinnaðasta blaðinu,“ segir Sigmundur og uppsker hlátur viðstaddra. Seint árið 1981 sameinuðust Vísir og Dagblaðið og úr varð fréttablaðið DV. Sigmundur sat því fyrsta ritstjórnarfund DV árið 1981. Eftir tveggja ára stopp á Helgarpóstinum árin 1983-1985
ákvað Sigmundur að reyna fyrir sér í sjónvarpi þar sem honum bauðst starf hjá RÚV sem þáttastjórnandi síðla árs 1985. Árið 1987 færir Sigmundur sig síðan yfir á Stöð 2 og er þar til 2001 sem bæði fréttamaður og varafréttastjóri. Sigmundur átti síðan eftir að snúa aftur á Stöð 2 frá 2005-2009, meðal annars sem fréttastjóri, en í millitíðinni vann hann sem ritstjóri DV 2001-2003, þáttastjórnandi á SkjáEinum 2003-2004 og fréttaritstjóri á Fréttablaðinu 2004-2005. Elín Sveinsdóttir, kona Sigmunds starfaði lengst af sem fréttapródusent hjá Stöð 2, en það er einmitt þar sem þau kynnast fyrst. „Við þekktumst ekkert áður en við byrjum að vinna á Stöð 2. Ég er að koma á stöðina nýkominn heim frá París og hann er að koma frá RÚV,“ segir Elín og Sigmundur tekur við: „Svo féll aurskriða í Ólafsfirði haustið 1988. Ég var sendur norður til að gera fréttina og á sama tíma er Elín að undirbúa skemmtiþáttinn „Í sumarskapi“ með Sögu Jónsdóttur og Jörundi Guðmundssyni í Sjallanum. Við sendum út frétt í beinni frá Sjallanum og Elín sminkaði mig þá til þess að fara í fréttina.“ Elín bendir á að hún hafi nokkrum sinnum áður sminkað Sigmund fyrir fréttaútsendingar, en segir að „það var þarna þar sem að eitthvað gerðist“. Sigmundur tekur undir og bætir við „ég held að við séum á nákvæmlega sama stað og örlögin ætluðu okkur.“
21
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Harður heimur
Í janúar 2009 er Sigmundi og Elínu sagt upp stöfum á Stöð 2 af ástæðum sem enn eru þeim óljósar. „Þetta voru þakkirnar sem maður fékk fyrir að taka þátt í uppbyggingu stöðvarinnar. Við vorum leidd út af stöðinni eins og sakamenn, við máttum ekki taka neitt með okkur og við fengum engar útskýringar. Þetta er harður heimur,“ segir Sigmundur um málið. Uppsögnin átti sér stað þremur vikum eftir einhverja erfiðustu og eflaust hættulegustu sjónvarpsútsendingu í íslenskri fjölmiðlasögu. Kryddsíldin í lok árs 2008. „Kryddsíldin 2008 er náttúrulega bara eitthvað klikkaðasta atvik sem maður hefur upplifað á sínum fjölmiðlaferli. Það var einnig mjög tvísýnt hvernig þetta allt færi,“ segir Sigmundur. Sem kunnugt er gerði hópur mótmælenda aðsúg að stjórnmálamönnum og þáttastjórnendum sem sátu inni á Hótel Borg. „Í eftiráhyggju þá hefði getað farið mjög illa með líf og limi þessara ráðamanna sem voru þarna innilokuð“ segir Sigmundur enn fremur. „Það voru allir mjög skelkaðir en þjóðin var réttilega reið. Það var búið að stela frá henni miklum peningum og trúverðugleika. Blessaður kapítalisminn var orðinn gjaldþrota og óvíst var hvort að öll hans hefðbundnu gildi gætu lifað áfram. Það er ósköp eðlilegt að reiði fólksins hafi beinst að þeim sem stjórnuðu. Mér þykir samt verst að þessi reiði hafi bitnað á saklausu starfsfólki Stöðvar 2 sem átti engan þátt í hruninu. Fólk meiddist þarna og það var það sem mér þótti einna sárast, fyrir utan það að sjá í glottin á RÚV-urum úti á torgi,“ segir Sigmundur um örlagaríkan lokadag ársins 2008. Þessi mótmæli táknuðu upphaf búsáhaldabyltingarinnar sem átti eftir að vera áberandi næstu mánuði.
Á Hringbraut
Í dag er Sigmundur dagskrár- og ritstjóri sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar eftir að hafa setið á Alþingi landsmanna í eitt kjörtímabil, frá 2009-2013,
Akureyringurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson.
sem 2. þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi. Sigmundur hefur verið með Hringbraut frá upphafi en núna rúmum níu mánuðum eftir upphaf stöðvarinnar mælist Hringbraut sem stærsta „minni“ sjónvarpstöðin en hún er fjórða vinsælasta sjónvarpstöð landsins á eftir RÚV, Stöð 2 og SkjáEinum. Á Hringbraut er samansafn af reynslumiklu sjónvarpsog fjölmiðlafólki með nöfnum á borð við Pál Magnússon, Sigríði Arnardóttur og Karl Ágúst Úlfsson innanborðs. Sjónvarpstöðin býður upp á úrval af fjörugri og fjölbreyttri dagskrá alla daga vikunnar. Það er því lítið sem stendur í vegi Hringbrautar að verða einn daginn hluti af „stóru“ stöðvunum. Sigmundur hreykir sér af jafnréttisstefnu Hringbrautar. Af þeim 22 þáttum sem sýndir eru á stöðinni alla vikuna er 10 stýrt af konum. Á níu mánaða afmælisdegi stöðvarinnar voru birtar úr kynjabókhaldi stöðvarinnar áhugaverðar upplýsingar en slíkt er gert á afmælisdögum. Á viðmælendaskrá þann 18. nóvem-
Gleðilega hátíð! Sparisjóðurinn á Akureyri Sparisjóðurinn á Grenivík
Traustur Sparisjóður í eigu heimamanna síðan 1879
Sparisjóður Höfðhverfinga | Sími 460 9400 | spsh@spsh.is | www.spsh.is
ber síðastliðin má sjá að úr rúmlega 1100 viðmælendum sem stöðin hefur talað við hafa 579 þeirra verið kvenkyns á móti 595 karlkynsviðmælendum. Sigmundur segir um málið „við viljum sýna samfélagið eins og það er, en þar eru konur einmitt jafn margar og karlar, hafi það farið framhjá einhverjum!“ Ekki er algengt að sjónvarpstöðvar haldi kynjabókhald en RÚV birti í sumar jafnréttisáætlun þar sem taka átti á þessum málum hjá stöðinni en áætlun RÚV tekur ekki gildi fyrr en 1. desember 2015. Sigmundur gerir sér fyllilega grein fyrir mikilvægi kvenfólks í samfélaginu en Sigmundi er enn ferskur í minni afmælisdagur kvennafrídagsins fyrir áratug en af því tilefni lagði kvenfólk á Íslandi lagði niður störf líkt og gert var 1975. Kvenfólk var áberandi á Stöð 2 á þeim tíma og gegndu þær stóru hlutverki. Fréttatíminn þetta kvöld fór ekki vel. „Ég bara upplifi þetta sem aulahroll, hinn mesta. Auðvitað var maður þá búinn að átta sig á því fyrir margt löngu að samfélagið gæti ekkert fúnkerað í atvinnulegu tilliti án kvenna. Stöð 2 hefur alltaf verið frekar jafnréttissinnuð stöð. Það voru margar konur í veigamiklum lykilhlutverkum sem stjórnendur, pródúsentar, fréttamenn og dagskrágerðarfólk þannig að jafnréttið var svona tiltölulega afslappað og sjálfgefið. Það þurfti ekkert að koma á óvart að þegar konurnar fóru einn daginn að allt færi meira og minna til andskotans.“ „Sjónvarp, eins og öll skapandi vinna er þeirrar náttúru að þú getur alltaf gert betur. Í sjónvarpi, í blaðamennsku og að vissu leyti í útvarpi líka, þetta er allt af þeirri náttúru að öll þín mistök í vinnu eru opinber. Allt sem þú gerir vitlaust, hvort sem það er röng fyrirsögn, röng myndbirting eða bara að þú ert að bora í nefið í beinni útsendingu, þá sést þetta allt, þú getur ekkert falið. Þetta er eina atvinnugreinin sem sýnir meira og minna öll sín mistök. Þetta er þannig vettvangur að hann er svo áberandi að svona hlutir fara ekki framhjá neinum. “ -AFA
GJAFAKORT RÉTTA GJÖFIN Þú velur upphæðina Þiggjandinn velur gjöfina
22
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
„Ég var ekki gleymdur“ Eftir nærri tveggja áratuga innilokun er Geir Gunnarsson nú laus úr fangelsi. Kristín S. Bjarnadóttir og fjölskylda hennar báru hitann og þungann af því að gera honum lífið aðeins léttbærara. Sumum samföngum Geirs fannst, eins og honum sjálfum, hann hafa öðlast blessun og eignast verndarengil. Hér á eftir fer viðtal við Geir og Kristínu um vináttu, einmanaleika og hjálpsemi. Saga þeirra getur hugsanlega orðið þeim, sem vilja láta gott af sér leiða, innblástur nú í aðdraganda jóla. Fagnaðarfundir vinanna Kristínar og Geirs á Keflavíkurflugvelli. Geir loksins frjáls.
Nú á haustdögum var Geir látinn laus úr fangelsi í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Þar afplánaði hann þungan dóm sem hann hlaut fyrir alvarlega líkamsárás 25 ára gamall. Geir hafði flutt með foreldrum sínum og eldri bróður frá Íslandi til Bandaríkjanna þegar hann var 11 ára. Hann aðlagaðist illa félagslega og reyndi stöðugt að sanna sig til að hljóta viðurkenningu og falla inn í hópinn. Hann endaði þó í vondum félagsskap og neyslu. Kristín er gift þriggja barna móðir; fædd og uppalin á Svalbarði á Svalbarðsströnd. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt og sérhæfði sig í líknarhjúkrun við Háskólann á Akureyri og Manchesterháskóla. Hún vinnur í Heimahlynningu á Akureyri.
Seinna gat einfaldlega orðið of seint
Árið 2007 sá Kristín viðtal Sigmars Guðmundssonar við Geir í Kastljósi. Eftir það varð ekki aftur snúið. Þá þegar hafði Geir setið inni í níu ár; fjórum til fimm árum lengur en hann hefði mátt búast við miðað við dóma fyrir sambærileg brot. Samkvæmt Kristínu þótti 20 ára fangelsisdómur hans óvæginn og duttlungum háður. „Það var augljóst að maðurinn var mjög lífhræddur og alveg búinn á því. En jafn augljóst hvað mikið var í hann spunnið. Það blasti líka við að það var verið að brjóta á honum mannréttindi og að hann var ekki að fá þann stuðning sem hann þurfti.“ Hún hugsaði með sér að það væri eins gott að byrja strax að hjálpa honum í stað þess að bíða í tæp níu ár í viðbót eftir að hann kæmi. Eins og líðan hans var á þessum tímapunkti þá gæti það í hennar huga einfaldlega verið orðið of seint.
Hjálparhellan
Geir kveið því að koma heim því hann hafði enga möguleika á að undirbúa búsetu sína hér. Hann mátti ekki hringja hingað og var ekki í miklu sambandi heim til Íslands. „Að vera sviptur landvistarleyfi í Bandaríkjunum að lokinni afplánun var eins og að fá annan dóm. En það var guðsgjöf að fá Kristínu inn í líf mitt. Það gjörsamlega breytti öllu.“ Hann bætir því við að hann væri ekki á þessum stað í dag ef ekki væri fyrir hana og fjölskyldu hennar.
Blæs á fordómana
Kristín segir að sumum hafi þótt svolítið sérstakt að þau skyldu byrja að skrifa honum. „Í upphafi voru nokkrir sem höfðu áhyggjur af þessu. Að við værum að skrifa ókunnugum afbrotamanni sem hafði fengið þungan dóm í Bandaríkjunum. Ég vissi líka af fordómum þegar
undirbúin og ígrunduð. Og ég lét baktal annarra ekkert á mig fá. Á meðan fullkomið traust ríkti á milli okkar og Geirs þá var mér sama um hvað öðrum fannst.“
Strangar reglur
Einangrun Geirs í fangelsinu var mikil. Hann mátti hvorki fá pakka, föt, mat eða sælgæti að heiman. Það sem hann mátti fá sent varð að komast fyrir í umslagi og það mátti ekki vega meira en 28 grömm. Kristín notaði hugmyndaflugið til að koma til hans gjöfum af ýmsu tagi. Geir segir: „Ég fékk engar gjafir nema frá Kristínu og fjölskyldu hennar. Ég fékk til dæmis litlar jólaskreytingar sem voru klipptar út, jólalímmiða, jólasögur og jólasálma í nokkrum umslögum. Ég skreytti klefann með þessu og gerði þannig mitt besta til að hafa huggulegt í kringum mig. Þetta var það eina sem ég hafði.“ Seinna var lagt bann við því að senda límmiða og Kristín fékk jólakortið til hans endursent það ár.
„Að vera sviptur landvistarleyfi í Bandaríkjunum að lokinni afplánun var eins og að fá annan dóm. En það var guðsgjöf að fá Kristínu inn í líf mitt. Það gjörsamlega breytti öllu.“ við ákváðum að heimsækja Geir í fangelsið. Ákvörðun um heimsóknina var tekin eftir að pabbi hans dó. Geir leið mjög illa að hafa ekki getað stutt foreldra sína í veikindum hans og öll höfðum við verið að vona að pabbi hans næði að lifa það að sjá hann frjálsan. Á þessum tímapunkti átti hann enn eftir að afplána tvö og hálft ár. Það varð úr að við Sóley María dóttir mín færum sem fulltrúar okkar fjölskyldu að heimsækja hann. Einhverjir hneyksluðust á að ég skildi vera að álpast inn í þetta fangelsi með unglinginn minn. En heimsóknin var vel
Mikil þrengsli
Hlutirnir gátu gengið mjög hægt fyrir sig í fangelsinu. Kristín segir: „Við komumst smám saman betur að því hversu ótrúlegar aðstæður hann bjó við. Hann var þarna ásamt öðrum fanga í klefa sem var minni en fimm fermetrar. Klósettið var líka inni í því rými. Þannig að þetta voru mikil þrengsli. Það myndar heldur enginn augnsamband þarna inni og ekki á neinn að treysta; hvorki fangaverði né fanga.“
Óvissan það eina vissa
Síðustu árin sendi Kristín Geir dagatöl sem hún hafði hannað með fallegum myndum að heiman. Hún gat
23
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 sent þau með því að klippa þau af gorminum og senda í mörgum pörtum. Geir greinir frá því að síðustu jólin hefði hann hins vegar allt í einu ekki mátt fá dagatalið sitt. „Ég vissi að samkvæmt reglum var það leyfilegt en ég þurfti að berjast alveg hrikalega mikið fyrir því. Þeir gera sitt besta í að gera líf manns óþægilegt og í þessu tilfelli kostaði það mikið vesen.“ Eftir fjögurra mánaða baráttu og bréfaskriftir til fangelsisyfirvalda fékk hann loksins öll umslögin með dagatalinu í hendur. Þá var honum jafnframt sagt að engin ástæða hefði verið fyrir því að neita honum um það „Það er lítið hlustað á fólk þarna inni. Þeir halda alltaf að við vitum ekki hvað við erum að tala um og þó fangar þyrftu algjörlega að fara eftir öllum reglum þá þurftu fangaverðir ekki að fylgja þeim reglum sem þeim voru settar.“ Að þessu leyti var erfitt að vera í svona stóru fangelsi því að reglurnar gátu breyst næstum daglega; eftir því hver var á vakt. Maður þurfti alltaf að vera viðbúinn breytingu. Það eina sem maður gat verið viss um var óvissan.“
Heimþrá um jól
Það sem Geir saknaði allra mest að heiman var samveran með fjölskyldunni um jólin. „Þetta var tími sem við vorum alltaf saman. Það var svo hátíðlegt heima hjá mömmu og pabba. Við vorum alltaf öll í jólaskapi. Það var búið að skreyta og verið að búa til matinn allan daginn. Pabbi var alltaf svo skemmtilegur í sér en á jólunum var hann tíu sinnum skemmtilegri. Hann var svo góður maður. Jólin voru almennt ekki haldin hátíðleg í fangelsinu. Það er sama rútína alla daga; líka um jólin. Margir þarna inni reyna bara að gleyma því að það séu jól.“
Aðfangadagskvöld erfitt
Eitt árið spurði Geir alla 88 fangana á deildinni hvort þeir vildu taka þátt í að halda jól. Tæplega helmingur þeirra vildi það. Þeim tókst með góðum vilja að setja saman jólamáltíð úr þeim skyndiréttum sem fáanlegir voru í fangelsisbúðinni. „Úr þessu varð þessi fína jólagleði. Við héldum helgistund og svo var borðað. Fimm borð voru hlaðin af mat og það varð svolítil fjölskyldustemning“ segir Geir. Með þessu náðu fangarnir að brjóta upp hversdagsleikann. Þetta var gert í þrjú ár en þá flutti Geir á aðra deild. Hann gerði þetta líka fyrsta árið þar en áhuginn á að endurtaka það var ekki fyrir hendi. Hann reyndi þó alltaf að finna að minnsta kosti einn samfanga til að setjast niður með sér á þessum erfiða hátíðartíma milli sex og átta á aðfangadagskvöld. Þegar hann vissi að foreldrar hans og bróðir voru að halda jólin heima.
Tengingin heim
Útsýnið við heimili Kristínar og fjölskyldu sem Geir þekkti svo vel af myndum og hafði þráð að sjá berum augum. F.v. Kristín S. Bjarnadóttir, Geir Gunnarsson og Guðrún Friðgeirsdóttir. Akureyri í baksýn.
„Ég hafði ekkert“
Geir hafði haft verulegar áhyggjur af framtíðinni. Honum fannst því sérlega gott og traustvekjandi að fá Kristínu og Sóleyju Maríu í heimsókn og heyra hvað undirbúningur fyrir komu hans heim gekk vel. „Það var allt á réttri leið. Það var þeim að þakka að ég var ekki lengur kvíðinn yfir hvar ég ætti að búa, hvort ég hefði föt til að fara í eða mat í ísskápnum „því ég hafði ekkert.“
Einmanaleiki
Kristín: „Þessar lýsingar Geirs á einmanaleika um jólin eru okkur hér heima öllum góð áminning um að mikilvægt er að hugsa út fyrir kassann þegar við vitum af einhverjum sem er einmana. Það er hellingur sem við getum gert og það þarf ekki að kosta peninga. Því eins og Geir sagði þá er það samveran með fólkinu sem hann saknaði mest. Fyrir okkur sem lifum hér og hrærumst í
Geir hafði þó enga leið til að panta frá Íslandi en eftir krókaleiðum tókst að koma til hans bókum; þar á meðal ljósmyndabók frá Akureyri „Ég skoðaði og las þessa bók spjaldanna á milli og lifði hreinlega í gegnum hana. Það var því draumur að rætast þegar ég kom loksins í fyrsta skipti á ævinni til Akureyrar nú í haust,“ segir Geir en hann heimsótti Kristínu og fjölskyldu ásamt móður sinni.. Það var ótrúlegt að stíga út úr bílnum í miðbænum á Akureyri þar sem ég þekkti allt umhverfið svo vel af myndum úr bókinni.“ Allra hrifnastur var Geir af Akureyrarkirkju. Þar fengu þau mæðgin góðar móttökur og var sýndur hver krókur og kimi kirkjunnar.
Laus úr fangelsinu
Um komu Geirs heim til Íslands segir Kristín að hún hafi verið mjög óraunveruleg. Margt þurfti að ganga upp á lokametrunum. Það reyndist ógjörningur að fá leigða íbúð fyrir Geir í Reykjavík. „Það endaði með að frábær vinur minn, Jóhannes Helgi Gíslason, bauðst til að ganga úr íbúð fyrir Geir þar til úr rættist. Það góðverk leysti stóran hnút. Ég var í daglegu sambandi við sendiráðið í Washington því það var ekki vitað hvenær bandarísk yfirvöld myndu senda Geir heim. Allt fram á síðustu stundu var mjög mikil spenna. En svo allt í einu var hann kominn og það var mögnuð stund á Keflavíkurflugvelli.“
„Ég var í daglegu sambandi við sendiráðið í Washington því það var ekki vitað hvenær bandarísk yfirvöld myndu senda Geir heim. Allt fram á síðustu stundu var mjög mikil spenna.“
Það skipti Geir miklu máli að hafa eitthvað sem minnti hann á heimalandið. „Amma sendi mér til dæmis jólakort fyrir um 15 árum sem sýndi Ísland um áramót. Ég setti þetta jólakort upp á vegg um hver jól eftir það og önnur póstkort sem ég fékk.“ Þó það mætti hengja upp myndir í klefanum þá fengu fangarnir ekkert til þess en björguðu sér með því að nota tannkrem sem lím. Íslensk kort sem stóð „Gleðileg jól“ á voru í sérstöku uppáhaldi. Klefafélagar Geirs í gegnum tíðina skreyttu aldrei hjá sér. En þeir voru flestir sáttir við að Geir gerði það. „Ég á mynd af okkur Michael bróðursyni mínum sem var tekin af okkur saman í sófanum heima síðustu jólin mín þar. Það var erfitt að horfa á þessa mynd ár eftir ár í fangelsinu og sjá hvernig Michael stækkaði en ég var fastur í tíma. Lokaður inni í kassa. Allt mitt líf, reynsla og minningar frá því ég var 25 til 42 ára gamall var fast inni í þessum einangraða kassa sem ég var búinn að koma mér í. Ég get því miður ekki tekið til baka það sem ég gerði. En ég mun reyna að vera betri maður.“ Kristín hvatti alla til að skrifa Geir í fangelsið og það varð mikil tilbreyting og styrkur fyrir hann síðustu jólin að fá fjölda jólakorta frá Íslandi. „Fangaverðirnir voru steinhissa þegar þeir komu alltaf með nýjan og nýjan kortabunka til mín: „Mikið hrikalega átt þú marga vini!“
hversdeginum er ekki mikið mál að skrifa eitt bréf. En að hlusta svo á hann segja frá því mörgum árum seinna hverslags ótrúleg upplifun það var fyrir hann að fá þetta bréf frá okkur í upphafi; sannfærði mig endanlega um að maður á bara að láta vaða.“ Geir tekur undir þetta. „Auðvitað vissi ég að foreldrar mínir elskuðu mig og vildu allt fyrir mig gera. Þannig eru foreldrar. En það var svo gott að heyra frá ókunnugum heima á Íslandi. Þá fór ég í fyrsta skipti aftur að fá von um að ég gæti jafnvel átt eftir að eignast næstum því eðlilegt líf seinna. Að ég yrði ekki bara stimplaður glæpamaður eins og ég hafði búist við. Ég var ekki gleymdur.“
Á Akureyri
Vegna þess að Geir var svo einangraður frá lífinu heima á Íslandi gerði Kristín allt sem hún gat til að upplýsa hann og undirbúa sem best fyrir heimkomuna. Hún og fjölskyldan sendu honum upplýsingar í pappírsformi svo sem blaðagreinar og fleira. Í nokkur skipti hafði Kristín opið hús til fjársöfnunar fyrir Geir og stóð þá jafnframt fyrir bréfamaraþoni til hans. Þannig bárust Geir ógrynni frétta að heiman og hann las allt upp til agna sem hann fékk. Síðustu árin var reglum breytt þannig að fangarnir gátu eftir ströngum skilyrðum pantað fáeinar bækur.
Fyrstu jólin í frelsinu og framtíðin
Geir er á blússandi siglingu inn í nútímann með nýja símann sem hringir í sífellu eins og hjá öðrum nútíma Íslendingum. Hann er búinn að læra á Skype og er kominn á Facebook. Hann er bjartsýnn og lífið blasir við. Nú er bara að finna góða vinnu og bíða eftir að ástin banki á dyrnar í lífi hans. Geir hlakkar mjög til að verja fyrstu jólunum sínum sem frjáls maður hjá frænku sinni, Stellu Friðgeirsdóttur og fjölskyldu, í Danmörku. Hvað Kristínu og fjölskyldu varðar þá er Geir löngu orðinn kær fjölskylduvinur. „Ég hef oft sagt það að við fjölskyldan erum ríkari af kynnum okkar við Geir. Mér finnst aðdáunarvert hvað hann er laus við biturleika og svo þakklátur fyrir hversdaginn. Honum finnst gaman að vakna á hverjum morgni og vita að hann er frjáls. Hann er með svo smitandi lífsneista og það er yndislegt að vera í kringum hann. Við hlökkum til að fylgjast með honum blómstra áfram og sjá hann eignast fjölskyldu – það er draumurinn hans.“ –JSF
24
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Dalvíkingarnir Arnar og Jón:
Fara alltaf yfir um, um jólin
Þeir Arnar Símonarson, starfsmaður á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík og sambýlismaður hans Jón Arnar Sverrisson, deildarstjóri Blómavals á Akureyri eru svo sannarlega í essinu sínu í kringum jólin en þeir skreyta hátt og lágt, prjóna jólapeysur, senda hátt á annað hundrað jólakorta og steikja gríðarlegt magn af laufabrauði fyrir hver jól.
„Já, við höfum báðir alltaf verið jólabörn. Þegar við vorum litlir var skreytt seint og lítið, liggur við bara á Þorláksmessu, en núna leyfum við okkur að byrja að skreyta upp úr miðjum nóvember. Það er drungi í skammdeginu og sjálfsagt að lýsa upp heimilið og undirbúa jólin með góðum fyrirvara,“ segir Arnar og Jón kinkar kolli til samþykkis. Skreytingar þeirra Arnars og Jóns hafa vakið töluverða athygli þeirra sem eiga leið hjá. „Við byrjum á að skreyta garðinn, þá erum við með seríur í grenitrjánum og á fleiri stöðum. Því næst tökum við niður svo lítið af
Jón Arnar og Arnar í heimaprjónuðum jólapeysum.
hversdagsskrautinu okkar, tökum upp úr u.þ.b. 30 kössum af jólaskrauti,“ segir Arnar en Jón bætir við að það sé ákveðin ástæða fyrir því að þeir byrji svo snemma að skreyta: „Það tæki því ekki að setja þetta allt upp á Þorláksmessu til að taka það svo niður á þrettándanum. Eftir skreytingarnar byrjum við í bakstri og jólakortum og jólapökkunum og göngum frá þeim. Svo erum við bara í því að hitta fólkið okkar og eiga notalegar stundir á aðventunni. Þessi tími snýst fyrst og fremst um að vera til og hafa gaman af þessu en vera ekki í stresskasti. Hjá okkur er þetta tími notalegheitanna, hitta fólkið og vera með fólki.“ Jón bruggar rifsberjasnaps fyrir hver jól.
Minimalismi á ekki við um þá Arnar og Jón þegar kemur að skreytingum.
Hátt í 200 jólakort og pakkaflóð
„Við erum alveg rosalega pakkaglaðir og finnst gaman að gleðja í kringum jólin en við verslum gjafirnar allt árið. Þetta eru svona 80 pakkar hugsa ég, allir klárir niðri í kjallara,“ segir Arnar. „Við eigum báðir mjög stórar fjölskyldur og viljum ekki gleyma neinum og við eigum náttúrlega engin börn en það er fullt af börnum í kringum okkur og um að gera að gleðja þau,“ bætir Jón við. Þeir láta líka gott sér leiða og gefa í safnanir fyrir þá sem engar gjafir fá. „Kortin eru líklega um 180. Einu sinni föndruðum við öll kort, ég veit ekki hvaða tíma við höfum haft þá!“ segir Jón og skellihlær. „Þegar við vorvor
Í bílskúrnum er loppumarkaður sem verður opinn á aðventunni.
25
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Í svartasta skóglendi Parísar
Arnar prjónar peysur í stíl fyrir jól.
um að skrifa á öll kortin þá vorum við handlama svona þrjú kvöld en nú nýtum við okkur tæknina og látum græja þetta á ljósmyndastofu,“ bætir Arnar við.
Jólapeysur og smákökur, bæði fallegar og ljótar
Það er nú orðinn hluti af aðventunni hjá þeim Arnari og Jóni að klæðast nýprjónuðum jólapeysum og húfum í stíl. „Ég hef svakalega gaman af því að prjóna og finnst þetta skemmtileg hefð. Það er svo nýtt hjá okkur að fara í ljótar jólapeysur líka, ég prjóna þær reyndar ekki,“ segir Arnar og hlær. Jón sér um smákökubaksturinn en segir farir sínar af sörubakstri ekki sléttar. „Ég nefndi þær bara upp á nýtt eftir þessa tilraun. Ég kallaði þær herfur, þær voru svo hræðilega ljótar. En þær voru samt jafn bragðgóðar og þær voru ljótar,“ segir Jón léttur í bragði. „Við bökum yfirleitt um sex sortir fyrir jólin.“ Þar að auki bruggar hann jólasnaps fyrir hver jól: „Ég lærði þetta svo sem hvergi, maður setur bara sama magn af rifsberjum og sykri og svo vodka og hristir. Þá kemur fallegur og jólalegur litur á drykkinn.“
Loppumarkaður og laufabrauð
Arnar og Jón bjuggu í Horsens í Danmörku og koma með alls kyns siði og venjur þaðan. „Undanfarin ár höfum við haft loppumarkað, eða flóamarkað, í bílskúrnum hjá okkur en við kynntumst þeirri hefð úti. Við höfum haft opið um helgar í vetur en á sumrin er þetta stærri garðsölumarkaður. Það er alveg sérstakt að hafa bílskúrinn opinn, fullan af jólalykt, og taka á móti fólki á aðventunni. Við gerum það aftur í ár.“ Loppumarkaðurinn er á Hólavegi 5 á Dalvík fyrir þá sem vilja komast í jólaskap með hraði.
Eins og allt hjá þeim Arnari og Jóni er laufabrauðið tekið föstum tökum: „mamma kemur til okkar með uppskrift frá ömmu og langömmu og í henni er sko nóg af kúmeni,“ segir Arnar. „Þetta eru engar 20 kökur neitt, þetta eru líklega 180-200 kökur og allir hjálpast að. Það er skemmtilegur hluti af þessu,“ bætir Jón við.
Misheppnaðasta jólagjöfin
„Það var ein jólin sem gjöfin mín til Jóns misheppnaðist algjörlega,“ segir Arnar. „Þá keypti ég vespur, eina handa mér og eina handa honum. Ég lét fjölskylduna hans vita sem keypti bitabox og hjálm og ég var að fara að henda slaufunni á tækið þegar Jón komst að þessu. Hann sagðist aldrei myndi stíga fæti á þetta tæki og ekki vilja sjá þetta. Þannig að það mislukkaðist algjörlega og hann fékk ekkert frá mér þau jól. Skemmtilegasta jólagjöfin var klárlega þegar við gáfum hvor öðrum utanlandsferð til Tenerife og við fórum svo eftir jól. Við mælum algjörlega með svoleiðis gjöfum.“
París er algjör undraborg í kringum Í þessum samræðum okkar hvarfljólin. Meðan búðargluggarnir fyll- aði það að mér að fyrir mér eru jólin ast af könglum, greni og alls konar ekki í París, þau eru á Íslandi. Og jólajurtum sem ég þori ekki fyrir þegar ég sat í lestinni á leið í skólann mitt litla líf að reyna að þekkja og og Svala Björgvins sagði mér að hún jólamarkaðir spretta um allt getur hlakkaði svo til, þá rann það alveg verið alveg yndislegt að labba um súrrealískt upp fyrir mér hversu forog dást að fegurðinni. fallinn Íslendingur ég er. Það dregur líka aðeins athyglina Þrátt fyrir það nýt ég mín vel frá fjölda hermanna og hérna í París. Ég einlögregluþjóna sem blíni á þau tækifæri standa vörð um sem mér standa til borgina þessa stundboða og vona að ina. En því hef ég kosnámslánin leyfi mér ið að einblína ekki á að njóta þeirra til fulls, eins og t.d. að hvað kemur næst á skauta á fyrstu hæð þessum óhugnanlegu Eiffel-turnsins eða tímum í Evrópu, því sjá Maríu Magdalenu að það er víst ábyggiog Jósep ríða um á legt að hryðjuverk sem asna í Jardin du þessi gera ekki boð á Luxembourg. Sagan undan sér. Það gera segir að maður geti jólin hins vegar og því Ingibjörg og Effelturninn. sjálfur fengið að miklu skemmtilegra prufa... En kannski er það bara fyrir einhvern veginn að spá í þau frekar. Það eina sem ég get hins vegar börnin, ég veit það ekki alveg, ég er sett út á París er hversu ótrúlega ennþá að fóta mig í frönskunni. erfitt það er að fá hangikjöt hérna. En framar öllu vona ég að ég Og hvar er laufabrauðið, maltið og þurfi ekki að hitta franska jólaappelsínið, lakkrístopparnir? sveininn eða öllu heldur fylgiÞað hefur hvarflað að mér að mann hans, „Père Fouettard“ en reyna að útvega mér hangikjöt og hans hlutverk er að lemja óþæg jafning einhvers staðar og vinur börn með svipu. Ekki veit ég minn tjáði mér eitt sinn að hér væri hversu bókstaflega þessi ,,hefð“ er skógur, rétt utan við París, sem væri höfð í heiðri en ég vona að það sé einhvers konar svartur skógur, þ.e. jafn mikil alvara í henni og barnasvartur markaður. Þú ferð inn í ætunni henni Grýlu okkar. Ef ekki, skóginn með pening og gengur út þá get ég bara þakkað fyrir að vera með það sem þig vantaði. ,,Ætli 22 ára og vonað að „Père Fouettard“ þeir séu með hangikjöt þar?“ spurði hafi lítinn áhuga á að heimsækja ég vininn, vitanlega. fjórtán fermetrana mína hérna í Hann skildi ekki hvað ég átti við Montmartre-hverfinu. þegar ég reyndi að útskýra ,,hanged meat“. Égg skil ekki hvað fór úrskeiðis. Ingibjörg g j g Bergmann g Bragadóttir. g
Hvernig forðast maður jólastress?
Þegar menn undirbúa jólin svona mikið en með stóískri ró er mikilvægt að reyna að komast að leyndarmálinu bak við stressleysið, hver er galdurinn? „Okkur finnst mjög mikilvægt að njóta aðventunnar og forðast allt óþarfa stress. Þessi tími er svo dásamlegur og með því að skipuleggja sig og byrja snemma verður hann afslappaður eins og hann á að vera,“ segir Arnar. En hvað með þá sem byrjuðu ekki snemma, hvað geta þeir gert? „Það er mikilvægt að muna að jólin koma, líka þó það sé ekki búið að skúra undan frystikistunni,“ segir Jón og brosir. -VDÓ
Búði ið Ch El é eru skreyttar k tt hhver í kkapp við ið aðra. ð Búðirnar við Champs-Elysées
26
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Prestar í jólaskapi
S Hildur Sr. ld Eir Bolladóttir ll d prestur í Akureyrarkirkju Sr. Þorgrímur G. Daníelsson l sóknarprestur Grenjaðarstað Hvaða jólalag kemur þér alltaf í jólagírinn? „Hátíð fer að höndum ein“. Hvaða jólalag finnst þér óþolandi? Flest þessi popplög, sérlega með sykursætu tónlistarfólki, sem tilgerðin og innihaldsleysið lekur af. Hvað er á matarborðinu á aðfangadagskvöld? Hangikjöt. Kærasta jólaminningin? Skermarnir sem voru settir utan um ljósaperurnar heima þegar ég var tveggja ára.
Hvaða jólalag kemur þér alltaf í jólagírinn? Það er annars vegar „The Christmas song“ með Nat King Cole og hins vegar sálmurinn „Sjá himins opnast hlið“ eftir séra Björn Halldórsson í Laufási. Hvaða jólalag finnst þér óþolandi? Göngum við í kringum einiberjarunn, þetta er svona lag sem ætlar aldrei að enda en hefði heldur aldrei átt að byrja Hvað er á matarborðinu á aðfangadagskvöld? Rjúpur og jólagrautur eftir uppskrift föðurömmu minnar Hlínar Jónsdóttur Kærasta jólaminningin? Ég er nú svo heppin að eiga bara kærar minningar frá jólum, foreldrar mínir voru mikil jólabörn og sköpuðu fallega umgjörð í kringum okkur krakkana, ég man þó alltaf þegar þau gáfu mér fyrstu dúkkuna í jólagjöf, hún var risastór miðað við eigandann og fékk nafnið Bolli, tæplega tuttugu árum síðar fæddi ég svo stóran dreng ekki ósvipaðan þessari dúkku, bara heldur líflegri og gaf honum nafnið Haraldur Bolli.
Sr. Svavar Alfreð lf ð Jónsson sóknarprestur í Akureyrarkirkju
S Odd Sr. Oddur Bj Bjarnii Þ Þorkelsson k l sóknarprestur Möðruvöllum Hvaða jólalag kemur þér alltaf í jólagírinn? „Chestnuts roasting“ (e. „The christmas song“ e. „Þorláksmessukvöld“) Hvaða jólalag finnst þér óþolandi? „Ef ég nenni“. Lengi hataði ég „Jólahjól“, en „Ef ég nenni“ rústar þessu hands down. Andstyggilegt lag. Hvað er á matarborðinu á aðfangadagskvöld? Fyrstu 36 árin voru það kótilettur í raspi. En núna er það hamborgarhryggur. Kærasta jólaminningin? Veistu – ég er algerlega óforbetranlegt jólabarn og ég elska jólin og aðventuna. Get ómögulega gert upp á milli. Fyrsta aðfangadagskvöldið með Sunnevu dóttur minni í fyrra er líklega sú kærasta samt, eins og er.
Hvaða jólalag kemur þér alltaf í jólagírinn? Uppáhaldsjólalagið mitt heitir „Koppången“ eftir Per-Erik Moraeus við yndislegt ljóð Py Bäckman. Svo þykir mér alltaf vænt um „Christmas in Dixie“ með hljómsveitinni Alabama. Fátt kemur mér samt betur í jólagírinn svokallaða en jóla- og aðventusálmarnir okkar. Hvaða jólalag finnst þér óþolandi? „Jól alla daga“. Það er görsamlega óþolandi og ég dett úr öllum gírum og drifum við tilhugsunina eina. Hvað er á matarborðinu á aðfangadagskvöld? Rauðvínslegið lambalæri með bláberjasósu. Kærasta jólaminningin? Ein af kærustu jólaminningunum er frá jólunum 1983, þeim fyrstu okkar hjóna að heiman. Við bjuggum á stúdentagarði í Þýskalandi og allir farnir heim í frí nema við. Konan var að vinna alveg fram á aðfangadag og ég var því einn á Þorlák. Það var indæll dagur. Ég gerði hreint í litlu íbúðinni okkar, sauð hangikjötsrúllu frá Kaupfélaginu sem Svavar afi minn hafði sent okkur, föndraði rangeygðan engil og hlustaði á íslensk jólalög af kassettu frá Mifa-tónböndum, því merka akureyska fyrirtæki. EPE/JÁE
27
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Ingólfur Sverrisson gaf út á dögunum bókina Dagrenning með endurminningum sínum frá fyrstu fimm árum ævi sinnar:
Gafst upp á biðinni og skrifaði bókina sjálfur
Ég hitti Ingólf til þess að ræða nýútgefna bók hans, Dagrenningu, sem fjallar um fyrstu fimm ár ævi hans. Ingólfur ólst upp á Akureyri í venjulegri fjölskyldu í stórum systkinahóp, oft kenndan við Ránargötu. Fyrstu fimm árin átti fjölskyldan heima í Brekkugötu 29, sem var við þjóðveginn til Reykjavíkur á þeim tíma.
Bókin Dagrenning kom út í lok nóvember, en fyrir tæpu ári byrjaði Ingólfur að skrifa hana. Það fyrsta sem ég spurði Ingólf um var hvort hann myndi eitthvað frá fyrstu fimm árum ævinnar, þar sem flestir muna lítið eftir þessum fyrstu árum í lífi sínu. En hann er ekki öðruvísi en við hin og man í raun fátt frá þessum árum og segir að bókin sé endurminningar með skáldlegu ívafi. Samt sem áður eru allir atburðirnir í bókinni í sjálfu sér sannir.
Var að bíða eftir svona bók
Ingólfi fannst vanta bók með þessu sniði um Akureyri. Hann hafði lesið bækur með svona stíl um Reykjavík, þar sem rithöfundar skrifuðu um barnæsku sína í Vogunum og Hlíðunum. Eftir langa bið ákvað Ingólfur að grípa til sinna eigin ráða og skrifa bókina sjálfur. Hann lagðist í rannsóknarvinnu og byrjaði á því að talaði við Unni Berg frænku sína, en hún passaði hann mikið þegar hann var barn. Hann talaði við annað eldra fólk úr fjölskyldunni, rýndi í sögu Akureyrar og fletti öllum tölublöðum Dags frá árunum 1943-1948, árin sem bókin fjallar um. Hann vildi hafa söguna trúverðuga og draga fram ýmslegt sem margir hafa gleymt eða jafnvel vissu ekki um. Eins og til dæmis hvenær fyrsti ísskápurinn kom til Akureyrar, hvenær símalínurnar fóru niður í jörðina og hvernig klósettaðstöðu var yfirleitt háttað á þessum tíma.
Ingólfur Sverrisson við málverkið Dagrenning við Eyjafjörð fyrir landnám í bakgrunni. Málverkið er eftir hann sjálfan.
ið sögu. Ingólfur segir að saga einnar fjölskyldu sé ekkert ómerkilegri en annarra. Bókin byrjar á því að lýsa því sem hann sér, fyrst er umhverfið hans bara sjór, landslag og himinn. Síðan fer hann smá saman að rannsaka út frá sér, húsið sem fjölskyldan býr í ásamt tveimur öðrum og annað í nærumhverfinu. Þar á eftir fer hann að skoða bæinn ogg er alltaf að
Jólin komu með eplunum
Ingólfur segir að jólin hafi verið ósköp hátíðleg á þessum tíma. Þótt að það hafi verið þröngt um fjölskylduna fyrstu fimm árin í lífi hans. Samt sem áður hélt fjölskyldan jólin hátíðleg, þar sem búið var til gervijólatré, hlustað á útvarpið og borðað lambakjöt. Á þessum tíma hafi fjölskyldan ekki efni á lambakjöti á sunnudögum, heldur var það einungis á boðstólum um jól og stundum um páska. Bæjarbúar biðu eftir að Gullfoss kæmi með epli og appelsínur í sinni einu ferð í desember. Með eplunum og appelsínunum kom jólailmur í bæinn. Ingólfur veltir fyrir sér jólunum í bókinni bæði fyrstu jólunum sínum og seinna. Þegar hann er orðinn aðeins stálpaðari eru vangaveltur hans orðnar dýpri eins og hvernig sé að fæðast í fjárhúsi.
Bardús venjulegrar fjölskyldu
Ingólfur vildi rita sögu Akureyrar frá þessum fimm árum þannig að venjulegt fólk nennti að lesa hana. Glæða söguna lífi og segja hana frá sjónarhorni barns á bardúsi venjulegrar fjölskyldu. Sagan byrjar fyrr en vanalegt er, en Ingólfur byrjar á sjálfum getnaðinum og fer svo yfir uppvöxt sinn næstu fimm árin og hvernig daglegt líf þar kom honum fyrir sjónir. Hann veltir fyrir sér ýmsum heimspekilegum spurningum, eins og hvernig sé að vera barn á Akureyri, og furðaði sig á því hvernig sjálfstæði Íslendinga var tilkomið í hersetnu landi í miðri heimsstyrjöld. Hann segir frá því að hann skildi ekki af hverju fimm manna fjölskylda vildi flytja úr 30 fermetra kjallaraíbúð í stærra húsnæði, það hafði verið svo ósköp notalegt þar sem þau bjuggu.
Við gleymum fljótt
Lífshlaup allra merkilegt
Í aðfaraorðum í bókinni segir Ingólfur: „Því er lífshlaup hvers einstaklings forvitnilegt íhugunarefni og margt í frásögur færandi enda þótt við fyrstu sýn virðist flestir atburðir hversdagslegir og tæpast fréttnæmir“. Hvað er merkilegra fyrir barn sem er að læra að ganga annað en það að læra ganga? Það er merkilegasta afrek hvers barns þegar þar er kom-
velta fyrir sér hvort hann hafi verið heppinn að hafa fæðst á Akureyri. Ingólfur segir að hann geti allavega ekki kennt þeim góða stað Akureyri um ef eitthvað misfærist í lífinu, það væri þá alfarið honum sjálfum að kenna.
Ingólfur með móður sinni Andrea Gíslínu Jónsdóttur. Mynd í einkaeign GS
Dagrenning er skemmtileg bók, þar sem Ingólfur segir frá upplifunum sínum og hugsunum á ýmsum viðburðum í sögu Akureyrar, stórum sem smáum. Aðspurður er hann ekki viss hvort hann haldi áfram að skrifa og gefi út aðra bók. En það sé þó aldrei að vita. Honum hafi þótt merkilegt við skrif bókarinnar hvað fólk er fljótt að gleyma. Kannski ekki síst þá hvað hann sjálfur þurfti að rifja upp margt sem hann hafði gleymt og þótti venjulegt á þeim tíma sem sagan tekur til. -ÁÝS
28
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
„Ekki hafa back-up plan – það rústar draumnum“
Kvikmyndagerðamaðurinn Baldvin Zophoníasson eða Baldvin Z, hefur haslað sér völl í íslenskri kvikmyndagerð á undanförnum árum og má segja að stjarna hans hafi skinið skært á árinu sem er að líða. Baldvin er fæddur árið 1978 en hann ólst upp á Oddeyrinni og minnist æskuáranna frá Akureyri með hlýhug.
„Ég held það hafi í rauninni verið rosa gott að alast upp á Akureyri og á þessum tíma sérstaklega útaf því að ég er af síðustu kynslóðinni fyrir útivistartíma. Þegar ég var 10 ára var enginn útivistartími og það var alveg geðveikt gaman á Akureyri. Maður var úti öll kvöld og langt fram eftir nóttu stundum í alls konar leikjum. Þetta var nokkuð týpiskt hjá mér, eins og er hjá flestum sem alast upp úti á landi. Ég var í fótbolta, með Þór, að sjálfsögðu. Æskuárin voru heilt yfir ljúf þannig lagað og fyrir utan nokkur áföll fékk ég heilbrigt og gott uppeldi,“ segir Baldvin sem varð fyrir því áfalli að missa móður sína á unglingsaldri.
Hóf ungur að semja sögur
Baldvin fór snemma að pæla í sjónvarpsefni og segist hafa verið mjög áhugasamur um að segja sögur alveg frá því að hann muni eftir sér. „Þegar ég fæ áhuga á kvikmyndagerð er ég 11 ára og þá breytist töluvert mikið hjá mér. Ég verð svolítið sér á báti þó ég haldi alveg áfram í fótbolta til 15 ára aldurs. Ég hafði alltaf áhuga á söguforminu. Ég man eftir mér vera að skrifa og semja sögur þegar ég var í Oddeyrarskóla. Einn kennarinn leyfði mér alltaf að lesa sögu á föstudögum þegar ég var 8 ára. Eftir að hafa séð sjónvarpsseríu sem heitir Twin Peaks eftir David Lynch má segja að áhuginn á kvikmyndagerð hafi kviknað. Á fimmtudagskvöldum var ég eini gaurinn í vinahópnum sem var heima að horfa á sjónvarp-
ið á meðan allir hinir voru úti á túni í fótbolta. Þetta heltók mig algjörlega,“ segir Baldvin. Á þessum tíma var aðgengi að allri tækni töluvert erfiðari en það sem ungt áhugafólk um kvikmyndagerð lifir við í dag en Baldvin átti reyndar hauk í horni. „Besti vinur minn úr grunnskóla var sonur Sigurðar Hlöðverssonar sem er gamalgróinn tökumaður frá Akureyri og tók upp fyrir Stöð 2. Hann var með sitt eigið studio og allar græjur. Þegar við vorum 11 ára fórum við á klippinámskeið hjá honum og fengum alltaf aðgang að græjunum hans sem voru af VHS tækninni.Við vorum því með fína vél og gerðum stuttmyndir sem við reyndum að sýna í skólanum en það var reyndar misvel tekið í það. Þetta voru frekar langar og leiðinlegar myndir eins og gengur og gerist þegar maður er að gera sínar fyrstu myndir. Þetta var allt saman miklu flóknara og erfiðara heldur en það er í dag. Bæði það að maður sá miklu minna af efni en krakkar geta gert í dag með Youtube og fleiru. Margir krakkar eru í dag orðnir geggjaðir kvikmyndagerðamenn 10 ára gamlir. Maður sér börnin sín klippa og skjóta myndbönd eins og ekkert sé, sem var eitthvað sem maður gat bara dreymt um þegar maður var krakki. Ég dróg vini mína að leika og þeir entust í því kannski til 15 ára aldurs.
Í annarlegu ástandi
Fyrsta starf Baldvins í bransanum var á akureyrsku sjónvarpsstöðinni Aksjón sem starfrækt var frá 19972006 en Baldvin starfaði á stöðinni í rúmlega eitt ár í kringum aldamótin. Hann segir þennan stutta tíma hafa verið mikið ævintýri. „Ég man mjög óljóst eftir þessu,“ segir Baldvin hlæjandi. „Þetta var algjört ævintýri. Aksjón var eini vettvangurinn í þessum bransa á Akureyri, ásamt fyrirtæki sem hét Samver. Ég sótti um vinnu þarna eftir að mér var sagt upp á flugvellinum á Akureyri og byrjaði að gera sketsaþætti sem hétu Hæ Gosi. Svo
fór ég líka að að klippa fréttir og fleira. Þetta endaði svo með að ég var með beina útsendingu hverja einustu helgi með þátt sem hét „Í annarlegu ástandi“. Þar voru ég og meðstjórnandi minn, Doddi Dj, eins og hann var kallaður, fullir í stúdíói, sýndum sketsa og tókum viðtöl.“ Þessi tími var þó ekki eintóm fíflalæti heldur segir Baldvin að hann hafi lært mjög mikið af tíma sínum á Aksjón. Þetta var mjög skemmtilegur tími en líka lærdómsríkur. Ég hef svo lengi verið að standa á eigin fótum og að gera allt sjálfur og hef lært mikið á því. Það byrjaði þarna. Svo þegar ég fer að gera Hæ Gosa þáttaröðina þá erum við að gera allt sjálf.. Ég hef lært voða mikið að gera þetta bara einhvernveginn á hnefanum og það er alveg æðislegur grunnur að hafa gert þetta allt á eigin fótum“, segir Baldvin. Eftir viðburðarríkt ár á Aksjón stofnaði Baldvin auglýsingastofuna Geimstofuna í félagi við nokkra aðra og sá hann aðallega um að gera sjónvarpsauglýsingar. Meðfram því vann Baldvin við félagsmiðstöðina Húsið þar sem hann var mikið að föndra við að gera stuttmyndir og fleira í þeim dúr. Þá vann Baldvin einnig nokkur sérverkefni fyrir ýmsa aðila og gerði meðal annars tónlistarmyndbönd fyrir goðsagnakenndu rapphljómsveitina Skytturnar.
„Linkin Park varð til vegna Toy Machine“
Baldvin getur ekki skilið við tímann á Akureyri án þess að minnast á tónlistarferilinn sem hann átti sem trommari rokkhljómsveitarinnar Toy Machine sem naut mikilla vinsælda á Akureyri í kringum aldamótin. „Ég vil ekki segja að ég hafi verið mjög teknískur trommari en það var geðveikur fílingur í mér. Ég er mjög stoltur af mínum trommaraferli. Við hefðum klárlega getað átt okkur framtíð. Skömmu áður en við hættum spiluðum við á fyrstu Iceland Airwaves hátíðinni í flugskýli 4 þar sem við vorum eitt af fjór-
29
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 um íslenskum böndum sem spiluðu á hátíðinni. Það voru Quarashi, Ensími, GusGus og Toy Machine. Í kjölfarið var okkur boðið til New York þar sem við spilum á CBGB sem er mjög „legendary“ tónleikastaður og sagan segir að hugmyndin að hljómsveitinni Linkin Park hafi fæðst út frá okkur. Þetta er einhver flökkusaga en ég sel hana ekki dýrara en ég keypti hana. Við töldum okkur vera á barmi heimsfrægðar sem við vorum nátturúlega ekki. Við vorum samt með fullt af tækifærum í höndunum en við skulum bara orða það þannig að við höfum tekið sex, drugs rock’n’roll pakkann allan út fyrir lífstíð í þessari ferð sem varði í tvær vikur. Í kjölfarið sprakk bandið í rauninni,“ segir Baldvin.
„Ekki hafa back-up plan – það rústar draumnum“
Baldvin flutti ásamt fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar árið 2005 og hugðist hefja nám við Danska kvikmyndaskólann. Eftir ár í Danmörku hófst umsóknarferlið sem var langt og strangt. Af um 240 nemendum voru 6 sem komust inn og var Baldvin ekki einn af þeim. „Ég komst ekki inn og eftir það varð ég svolítið eyðilagður. Ég hélt einhvern veginn að þessi kvikmyndadraumur væri bara búinn. Við vorum að fá þriðja barnið á þessum tíma og þetta var bara voðalega þunglynt í lok árs 2007 Maður heyrir oft fólk segja „ef þú ætlar þér eitthvað, gerðu það þá!“ en það er bara eitt grundvallaratriði sem þú verður að hafa í huga ef þú ætlar að láta drauma þína rætast; að hafa ekki back-up plan – það rústar draumnum. Ég var ekki með neitt back-up plan og það hjálpaði en það þýddi að ég var kominn með heimildir hjá 7 mismunandi lánastofnunum árið 2008. Þetta er alger geðveiki en ég er búinn að borga það til baka í dag.“ Eftir þrjú ár í Danmörku flutti fjölskyldan heim til Íslands og þá bauðst Baldvini vinna á höfuðborgarsvæðinu. Eftir 5 mánuði í vinnu þar fór fyrirtækið á hausinn. „Ísland hrundi og hið stóra meltdown átti sér stað. Ég sótti um vinnu hjá öllum fyrirtækjunum og það gat enginn ráðið mig í vinnu því ég hafði ekki gert neitt af viti, þannig séð. Þá stofnaði ég mitt eigið fyrirtæki og náði einhvernveginn að troða mér inn á auglýsingamarkaðinn og fékk slatta af verkefnum.“ Á þessum tíma fóru hlutirnir að rúlla hjá Baldvini þegar hann kynntist þeim Júlíusi Kemp og Ingvari Þórðarsyni, kvikmyndaframleiðendum. „Þeir gera með mér stuttmynd, Hótel Jörð og þetta eru mennirnir sem koma með Óróa til mín. Það handrit var reyndar skelfilegt sem ég las fyrst en svo fengum við
tækifæri til þess að endurskrifa það og gerðum þá mynd saman. Það var fyrsta verkefnið sem ég vinn með öðrum en sjálfum mér. Svo eftir Óróa hélt ég að ég myndi fá endalausa vinnu en það gerðist ekki neitt. Þá fórum við að gera Hæ Gosa.“ Baldvin segir að þó svo að ekki hafi rignt yfir hann verkefnum eftir Óróa þá hafi sú mynd klárlega verið stökkpallur fyrir hann. Hæ Gosi var lifibrauð hans í þrjú ár og á sama tíma skrifaði hann og þróaði Vonarstræti. Það er engum blöðum um það að fletta að árið 2015 hefur komið Baldvini á kortið en telur hann sig vera búinn að meikaða? „Að meikaða er mjög skrítið orð. Þegar ég var í rokkhljómsveit þá fannst mér meik vera sex, drugs and rock’n’roll; þetta er bara skilgreiningaratriði. Það sem hefur breyst hjá mér er að ég hef ekki lengur áhyggjur af því hvort ég fái fleiri verkefni. Þetta var alltaf bara „hvað gerist nú, hvað gerist næst“. Ég er kominn á þann stað að ég veit að ég er með verkefni til 2020. Það er frábær tilfinning. Ef það er að meikaða þá, já, klárlega!“ Baldvin segir að framtíðin sé mjög björt í íslenskri kvikmyndagerð. Hann segir nýja kynslóð leikstjóra hafa fengið allt öðruvísi kvikmyndalegt uppeldi en þeir sem fyrir voru. „Friðrik Þór og Hrafn Gunnlaugs, þeir sem eru á undan Balta, sáu kannski 1-2 bíómyndir í mánuði. Mín kynslóð hefur aðgang að miklu meira efni en kynslóðin á undan, okkar lesskilningur á bíói og videoi er allt öðruvísi en þeirra og þess vegna eru okkar myndir allt öðruvísi en myndirnar sem þeir gerðu. Ég held að þessi kynslóð sem er að koma inn núna sé ótrúlega spennandi. Auðvitað mættu fleiri fara á íslenskar myndir í bíó en við verðum líka að átta okkur á því að fólk nennir ekki endalaust að horfa á myndir um fólk í lopapeysu einhvers staðar. Við viljum líka horfa á samtímasögur þannig að það verður að vera fjölbreytni.“
Fjölskyldufaðirinn Baldvin
Það er ekki bara að miklu að huga hjá Baldvini í kvikmyndaheimum því hann hefur stórri fjölskyldu að sinna en hann er giftur Heiðu Sigrúnu Pálsdóttur og eiga þau þrjú börn saman. Baldvin viðurkennir að það hafi tekið tíma að læra að tvinna saman uppganginn á framabrautinni og fjölskyldulífið. „Ég held að það séu svona tvö ár síðan ég lærði að sameina þetta. Fyrir þann tíma var ég bara „out of it“ meðan ég var að vinna. Ég skildi fjölskylduna mína eiginlega bara eftir þegar ég var að vinna að Vonarstræti, Óróa og Hæ Gosa. Þetta var bara 24/7 og ég einhvernveginn kunni ekki að díla við þetta. Þá tók ég ákvörðun að ég gæti þetta ekki því mig langaði ekki að hafa þetta svona. Núna undanfarin tvö ár hef ég verið að þróa vinnutækni sem gengur vel og við gerðum þetta saman ég og Heiða. Við töluðum saman og áttuðum okkur á að við þyrftum að finna út úr þessu af því að þetta er það sem ég á eftir að gera það sem eftir er ævi minnar. Ég ætla ekki bara alltaf að kveðja og segja bless þegar ég fer að vinna, það er bara alveg fáranlegt. Þannig að já, þetta er alveg hægt, alveg klárlega,“ segir Baldvin
Nóg af verkefnum á döfinni
Baldvin segir að framtíðin sé mjög björt í íslenskri kvikmyndagerð. Hann segir nýja kynslóð leikstjóra hafa fengið allt öðruvísi kvikmyndalegt uppeldi en þeir sem fyrir voru.
Það er nokkuð ljóst að Baldvin mun ekki sitja aðgerðarlaus á næstunni en eins og áður hefur komið fram er hann með verkefni til ársins 2020. Það er ýmislegt í pípunum hjá honum og mikið af spennandi efni í vinnslu. Meðal annars mynd sem hann gerir sjálfur sem er undir vinnuheitinu Contalgen-börnin. Einnig er vert að nefna að í þróun er sjónvarpssería úr bókinni Nautið, sem er ný bók eftir Stefán Mána. Fleiri verkefni eru í þróun og nefnir Baldvin að ein sjónvarpssería gæti átt að gerast á Akureyri. „Það er mjög stutt komið en er ógeðslega spennandi verkefni. Ég er alltaf að reyna koma Akureyri að: „Hey en ef við gerum þetta á Akureyri?“ Þetta er flottur bær, það er svo kúl að nota hann. Akureyri hefur verið mjög lítið notuð,“ segir Baldvin. AGH/EVB
Þorsteinn Bachmann, B leikari
,,Ég hef verið svo lánsamur að fá að vinna með honum í öllum helstu verkefnum hans síðasta áratuginn eða svo. Í Vonarstræti náði svo samstarfið nýjum hæðum. Það er alltaf gaman að vinna með honum og ég treystii h honum mjög jö vel. Baldvin er heiðarlegur og einlægur í vinnu. Hann er mikill húmoristi og er einstaklega lunkinn við að laða það besta fram í hverjum og einum. Það vilja einfaldlega allir allt fyrir hann gera. Svo er hann súper klár og leynir á sér þrátt fyrir ungan aldur hvað varðar og þroska og lífsýn. Hann er í raun djúpvitur þó hann hagi sér stundum eins og idjót. Um daginn var hann að keyra mig heim og það óð á honum eins og oftast þegar við spjöllum um lífið og listina. Skyndilega fannst mér hann vera að missa sjónar á hægfara biðfreið fyrir framan okkur og því gaf ég honum snögga og skýra bendingu um að hægja ferðina svo við lentum ekki aftan á henni. Baldvin hló sínum einstaka dillandi hlátri og sagði: „Hvað er þetta maður, þetta hefði verið epískt ef við tveir hefðum farið saman hérna í bílslysi, spáðu aðeins í því?““
Hilda Jana Gísladóttir, o sjónvarpsstjóri N4 framkvæmda- og
Ég vann með Badda rétt upp úr aldarmótunum, þá við hinn epíska sjónvarpsþátt „Háskólahornið“ á gullstöðinni „Aksjón“. Þetta var í fyrsta sinn sem ég vann í sjónvarpi og var auðvitað pínu stressuð, en hann lagið kkunnii alveg l l ið á mér til þess að ég fengi það sjálfstraust sem þurfti til að láta bara vaða og taka sjálfri mér ekki of hátíðlega. Mér hefur alltaf þótt Baddi vera einstaklega vel gerð manneskja, einlægur, húmoristi, metnaðarfullur, réttsýnn, ber virðingu fyrir fólki, heiðarlegur, ástríðufullur í því sem hann tekur sér fyrir hendur og umfram allt góð manneskja. Það er einmitt þannig fólk sem öllum langar að vinna með og þannig fólk nær árangri, þannig að ég er alls ekki hissa á því að hann eigi velgengni að fagna. Ég trúi því að hann sé einn af þeim sem geti allt sem hann langar til.“
Heiða Sigrún Pálsdóttir, eiginko eiginkona Baldvins
,,Baldvin er langbesti vinur minn og getur alltaf fengið mig til að hlæja, hann er yfirleitt í góðu skapi og sér jákvæðu hliðarnar á lífinu. Honum finnst best í heimi að kúra uppi í sófa með allri fjölskyldunni og horfa á bíómynd. pabba er varla hægt að bíó d Skemmtilegri Sk i hugsa sér og börnin sakna hans mjög mikið þegar hann þarf að vera lengi í burtu vegna vinnu. Baldvin er mjög góður kokkur, þegar hann nennir því. Hann er mjög utan við sig og gleyminn, sérstaklega þegar hann er að vinna í myndunum sínum og atriðið í Vonarstræti, þar sem pabbinn gleymir að hringja í barnið sitt á afmælinu og segir að það hafi ekki verið ,,signal“ er ekki alger uppspuni. Hann prumpar meira en allir sem ég þekki og vinir og samstarfsfólk hans geta staðfest það. Hann er mjög sjúkdómahræddur og er til dæmis eina manneskjan sem ég þekki sem hefur fengið furuhnetueitrun, daginn eftir að hann sá frétt um umrædda eitrun í sjónvarpinu.“
30
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Ekkert frí á jólunum
Fjölskyldan í Skriðu heldur jólin hátíðleg í sveitinni.
Á bænum Skriðu í Hörgárdal búa hjónin Þór Jónsteinsson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir ásamt börnum sínum fjórum þeim Eyrúnu 20 ára, Agnari Páli 15 ára, Agli Má 13 ára og Jónsteini Helga 11 ára. Við settumst niður með Sigríði og þremur af börnunum en Þór og Egill vou vant við látnir annars staðar og það víst ekki í fyrsta skipti. Við ræddum um lífið í sveitinni og ennfremur hvernig jólunum er háttað í sveitinni. Sigríður hefur alltaf búið í Skriðu en þar er blandað bú og nóg að gera á hverjum einasta degi. „Ég hef nú bara búið hér allt mitt líf en Þór bjó á Akureyri áður. Við erum búin að vera bændur hérna síðan 1998. Við tókum við af foreldrum mínum. Við vorum í félagsbúi frá 1998-2004 og tókum við þessu 2004,“ segir Sigríður. Á bænum er nóg um að vera á hverjum degi en mikill búskapur er á staðnum. Þar er 230.000 lítra mjólkurkvóti, 41 kýr, um 200 kindur og 70 hross ásamt því að nokkrar endur og kanínur fá að vera með. Svo eru hundar og kettir að sjálfsögðu á heimilinu. Fjósið er básafjós með brautarkerfi og húsmóðirin sér alla jafna um að fara í fjós, en það gerir hún alla morgna um hálf átta leytið og hálf sex á kvöldin og er í rúma tvo tíma í senn. Hún segir þó að stundum fari vinnufólk eða aðrir fjölskyldumeðlimir í fjós þegar þannig standi á. Mikil hestamennska er stunduð á bænum og er tamning og þjálfun hrossa mikill partur af búskapnum.
Krakkarnir duglegir að hjálpa til
Sigríður segir krakkana á heimilinu duglega að
halda jól í sveit og í þéttbýli sé að sinna skepnunum og sætta sig við það að borða ekki jólamatinn endilega á slaginu klukkan sex. Veðrið spili einnig inn í. Dæmi séu um að ættingjar þeirra hafi keyrt út af og setið fastir úti um alla sveit á jóladag þegar það eigi að halda árlega jólaboðið í Skriðu. Svo þarf að sjálfsögðu að vera búið að kaupa allt inn á tilsettum tíma. Það þarf líka að passa sig að vera búinn að kaupa allt því maður skýst ekkert út í búð á aðfangadag ef það vantar eitthvað“. Eins og flestar fjölskyldur eru stórfjölskyldan í Skriðu með sínar jólahefðir. Á hverju ári rölta þau saman út í skógarreit sem þau eru með sjálf og sækja sér jólatré. Á Þorláksmessu er elduð skata í hesthúsÞað þarf líka að vinna á jólunum Að halda jól í sveit er ólíkt því sem gerist í þéttbýli. inu og er haldin skötuveisla í hádeginu þar sem Það er ekkert frí frá vinnu í sveitinni þó svo að það fjöldi manns koma saman. Eyrún, sú elsta af börnsé aðfangadagur, jóladagur eða gamlársdagur; það unum fjórum, lýsir aðfangadag þannig að hún vakni þarf alltaf að sinna skepnunum. En skepnurnar eru upp úr hádegi þegar búið sé að fara í fjós og gera ýmis verk og vekur það þeirra lifibrauð og ekki upp mikinn hlátur meðal kvartar fjölskyldan yfir bræðra hennar. Á sjálft lifnaðarháttum í sveit„Maður sleppur náttúrulega aðfangadagskvöld er önd inni, það hefur sína kosti í matinn og á jóladag ekki við að fara í fjós, og galla að búa í sveit. koma margir ættingar í „Maður sleppir því maður sefur ekki út sko. heimsókn. Gamlárskvöldi náttúrulega ekki við að En á aðfangadag þá mjólkum eyða þau síðan á Akureyri, fara í fjós, maður sefur en þau hafa þó einu sinni ekki út sko. En á aðvið fyrr og reynum að vera þurft að eyða því í fangadag þá mjólkum við sveitinni vegna ófærðar. fyrr og reynum að vera komin inn klukkan 6“. Jónsteinn Helgi, sá kominn inn klukkan sex. yngsti, kom því svo sérÁ aðfangadagskvöld fer staklega á framfæri að Þór og mjólkar og ég pabbi hans svindlaði í möndlugrautnum á hverju elda. Þá reynum við að fara út í verkin klukkan einasta ári, hann væri orðinn langþreyttur á þessu svona fjögur, en það er bara á aðfangadagskvöld og og óskaði eftir að pabbi hans færi að hugsa sinn gamlárskvöld sem við stelumst til að mjólka svona gang. mikið fyrr,“ segir Sigríður. Með þessum orðum kveðjum við fjölskylduna í Að öðru leyti segir hún að rútínan sé sú sama yfir ÁGM hátíðarnar og aðra daga. Meginmunurinn á því að Skriðu og óskum þeim gleðilegra jóla. hjálpa til, hvort sem það er í eldhúsinu eða úti við sveitastörfin. „Jónsteinn Helgi er yngstur og er hann duglegur að elda ofan í okkur og baka og svona ýmislegt, sem er náttúrulega heljarinnar mál á stóru heimili sko. Svo er Egill næstyngstur og hann er bara á fullu í búskapnum, hefur mikinn áhuga á þessu öllu saman, hestunum og kindunum mest. Svo er Agnar Páll og hann er duglegur að gera allt sem maður segir honum að gera, góður í öllu. Hún Eyrún var nú áhugasöm bóndakona á yngri árum, en hún á það nú til að taka skorpur og hjálpa til, fara í fjós og svona.“
31
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 460 9000
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 550 0700 • www.aktravel.is
Hafnarstræti 96 – Sími 461 4600
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
www.bogt.is – Sími 462 4017
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Furuvöllum 3 – Sími 575 8000
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Símar 862 9686 & 772 8687
Sími 899 9800
Ingvar ökukennari óskar ökunemum sínum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Tryggvabraut 5 – Sími 458 8900
Óskum Akureyringum og nærsveitamönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Glerárgötu 28 – Sími 4 600 700
32
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Mikilvægt fyrir samfélagið í heild að versla fyrir jólin í heimabyggð:
Miðbær án mannlífs? – Akureyringar fljótir að rjúka til Reykjavíkur
Tinna Berglind Guðmundsdóttir er verslunarstjóri í versluninni Víking í miðbæ Akureyrar. Hún hefur sterkar skoðanir á því hvað betur mætti fara í skipulagsmálum bæjarins og hvetur Akureyringa til að vera opnari fyrir verslun í heimabyggð. Tinna hefur sterkar skoðanir á mikilvægi þess að fólk versli í heimabyggð fyrir jólin. „Það skiptir máli fyrir samfélagið sem slíkt að versla í heimabyggð um jólin. Fyrirtækin borga skatta og halda hinu og þessu uppi. Ef við verslum ekki í heimabyggð þá loka verslanir og við missum störf. Það er ekki eitthvað sem við viljum,“ segir Tinna. Hún tekur fram að til þess að halda í verslunina þurfi verslanir að vera samkeppnishæfar í verðum. Hún segir að kaupmenn á Akureyri leggi ekki mikið á vörurnar þrátt fyrir flutningskostnað sem kaupmenn þurfa að borga.
Erfitt að fá fólk í bæinn
Tinnu þykir það leitt hversu erfitt það geti verið að fá Akureyringa í miðbæinn. „Það er eins og fólk leggist í dvala eftir verslunarmannahelgina. Við þurfum að fara út um dyrnar á veturna, ekkert endilega til að versla, heldur hitta fólk, og fá líf í bæinn,“ segir hún. „Við sköpum störf með því að hafa opnar verslanir og þjónustu,“ segir Tinna og leggur hún til að fólk taki nýjum fyrirtækjum á Akureyri með opnum örmum, „við megum ekki vera sá sem segir bara: já þessi er að sunnan,“ segir Tinna. Henni þykir mikilvægt að bjóða þessi fyrirtæki velkomin. „Í miðbænum vantar fleiri verslanir til að laða fólkið að, yfirvöld verða að bæta úr húsnæðisTinna Berglind Guðmundsdóttir verslunarmaður. málum,“ segir hún og telur að skortur sé á góðu verslunarhúsnæði í bænum. Hún stingur upp á að byggt verði neðan við Viljum við alltaf suður? Skátagilið, ein hæð og þrjár til fjórar verslanir, og Tinna segir mikilvægt að fólk láti vita hvað vanti í róló eða leikvöll á þakið. „Þá erum við ekki að blokka bæinn og spyr: „Viljsólina sem allir eru um við alltaf þurfa að hræddir við, sem er fara til Reykjavíkur nánast eini sólarað versla eittbletturinn á gönguSamkvæmt upplýsingum frá Íslandspósti til hvað?“ Hún bætir götunni á vissum við: „Verslunarfólk tímum sólarhrings.“ eru einstaklingar farnir að panta þarf kannski að gera Hún segir þetta góða leið til að forvörur á netinu í auknum mæli en áður. þarfagreiningu, vill fólk ódýrari vöru eða eldrar geti sleppt börnunum aðeins og Fjölgun á vörusendingum frá Kína var eitthvað af þessum dýru merkjum?“ spyr rölt í búðir án þess Tinna. 350% á milli áranna 2012 og 2013. að hafa áhyggjur. „Við þurfum að fara í smá ævintýraNetverslun leit, hvort sem það er miðbærinn eða Glerártorg,“ segir Tinna og ítrekar hefur galla það að Akureyringar verði að skoða hvað sé til í verslAðspurð um samkeppnina við netsíður í jólavertíðun á Akureyri í staðinn fyrir að rjúka alltaf suður. inni kveðst Tinna vissulega finna fyrir henni. „Sam„Það er mikið til hérna. Kannski vantar eitthvað. keppnin eykst við netsíður í gegnum jólavertíðina. Kannski erum við ekki nógu opin fyrir því að sækja Maður sér öll mistökin sem fólk er að gera á þessum okkur þá þjónustu sem til er,“ segir Tinna. Þegar fólk heimasíðum því það getur ekki komið við vöruna,“ fari suður sé það yfirleitt ekki að spara neitt. „Yfirleitt segir hún og leggur áherslu á mikilvægi þess að vera í er dýrari leiga á húsnæði fyrir sunnan og það fer beinni snertingu við það sem keypt er. „Þetta getur beint í vöruverð,“ segir hún og kveðst iðulega verða orðið dýrara ef fólk þekkir ekki vöruna sem það vör við það að fólk taki eftir því að vöruverð sé lægra kaupir á netinu. Fyrir mitt leyti vil ég koma við það á Akureyri en Reykjavík. sem ég er að kaupa,“ segir hún.
Fjölbreytni mikilvæg
Tinna segir mikilvægt að verslanir séu fjölbreyttar. „Mér finnst persónulega vanta fínni búðir – fólk vill t.d. geta keypt sér dýra skyrtu, okkur vantar flott merki inn í flóruna. Ekki bara eitthvað ódýrt dót,“ bætir hún við. Tinna nefnir húsnæðið í Krónunni.. „Af hverju vill enginn opna verslun þar? Það hefur aldrei verið fullt hús af verslunum þarna síðan þetta var byggt,“ segir hún og þykir það mjög sorglegt. „Fólk sér ekki hag sinn í að stofna verslun þar sem enginn kemur og verslar,“ segir hún. Svipaða sögu sé að segja um matvöruverslun í miðbænum og segir Tinna það hörmung að þurfa að
„Það er eins og fólk leggist í dvala eftir verslunarmannahelgina. Förum út fyrir dyrnar á veturna. Þú þarft ekkert endilega að versla, komdu og hittu fólk, fáum líf í bæinn“
33
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 senda útlendinga í 20 mínútna göngu til að kaupa í matinn. „Margir gista hérna í miðbænum og fólk þarf að labba langa leið til að komast í búð,“ segir hún. Tinna segir það mikilvægt að vera jákvæður. „Fyrst og fremst, opnum okkur og skoðum hvað er til. Verum jákvæðari fyrir öllu ef einhverjum dettur í hug að gera eitthvað. Það er vitaskuld mikilvægt að verslunareigendur bæði hér og fyrir sunnan séu með góð verð og séu samkeppnishæf á markaði. „Það styrkir samfélagið í heild og gerir lífið skemmtilegra,“ segir hún að lokum. –SAO/ HM
1978. Mynd: GVA.
1990. Mynd: Golli.
1984. Mannfjöldi fylgist með jólasveinunum í Hafnarstræti.
1986. RÞB.
1983. Mynd: KGA
1987. Mynd: DLV
34
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Fjölskyldufyrirtæki í Gilinu:
Hönnunarvörur seldar út um lúgu – mögulega minnsta búð landsins
„Þegar við fluttum norður vildum við geta haft vinnustofuna í húsinu okkar til að geta unnið þegar tími gafst. Okkur datt í hug að það gæti verið gaman að hafa nokkrar vörur til sölu inni á vinnustofunni en vinnustofan varð fljótt of lítil. Þannig kviknaði hugmyndin að Sjoppunni. Þegar j pp g við tókum allt í
gegn þá ákváðum við að hafa búð í anddyrinu hjá okkur og lúgu sem yrði afgreitt út um.“ Almar Alfreðsson og konan hans eiga og reka Sjoppuna vöruhús sem er hönnunarbúð í Listagilinu á Akureyri. Sjoppan er ekki nema rúmlega 3 fermetrar og því líklega minnsta búð landsins. Rýmið er vel nýtt og allskonar vörur, í öllum verðflokkum upp
Almar ásamt konu sinni, Heiðu Björk og barni en þau reka búðina saman.
um alla veggi. Í Sjoppunni er hægt að finna allt frá íslenska fánanum sem er perlaður af ungri stúlku frá Akureyri til dýrra listaverka. Núna fyrir jól eru að koma margar nýjar vörur. „Hér fæst mikið í jólapakkann – hér eru allir verðflokkar nánast. Við reynum að verðleggja okkur sanngjarnt. Þetta snýst meira um að hafa gaman en græða, græða, græða. Við reynum að hafa skemmtilegar vörur sem jafnvel fást ekki annars staðar.“
Innblástur úr æsku
Afgreitt er út um lúgu sem snýr út að gangstétt.
„Innblásturinn af Sjoppunni er að þegar ég var lítill þá átti ég heima hérna á Brekkunni og hverfissjoppan mín var Garðshorn. Ég man alltaf eftir því að í hverri viku var maður búinn að safna smá pening og fór með hann í Garðshorn og valdi sér eitthvað nammi úr borðinu. Þar var flott nammiborð og vingjarnlegur eigandi sem heilsaði manni alltaf með nafni. Þetta var mjög persónulegt. Það var alltaf eitthvað nýtt í boði, litríkt og flott í svona þröngu umhverfi. Það er stemningin sem við erum að reyna að skapa hér, í þessu litla rými. Maður
horfir í kringum sig og það er alltaf eitthvað nýtt. „Eina helgina þurftum við að fara í höfuðborgina og tókum búðina bara með. Auglýstum það á facebook og svo hringdi fólk og við skutluðum vörunum heim til þeirra. Við viljum geta boðið upp á persónulega og góða þjónustu.“ Fréttir af Sjoppunni hafa borist alla leið til New York. Þekktur hönnuður þar hafði samband við Almar en hún hafði frétt af Sjoppunni í gegnum íslenska vinkonu sína. „Hún hafði bara samband, sagðist vera að koma til Íslands í ferðalag og hvort við gætum ekki hist. Hún vildi endilega fá að selja skartgripina sína hjá okkur. Annars viljum við ekki vera að auglýsa mikið, frekar láta orðið berast á milli manna.“
Jón í lit
Almar er menntaður vöruhönnuður úr Listaháskólanum. Hann útskrifaðist 2011 og er sjálfstætt starfandi. Eitt af hans aðalverkefnum í dag er Jón í lit, sem er lágmynd af Jóni Sigurðssyni. Fyrirmyndin af því verki
35
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 er koparlágmynd frá árinu 1944 eftir ókunnan listamann sem Almar fann árið 2009. Jón er til í tæplega 40 mismunandi litum. „Við reynum að hafa þjónustuna mjög persónulega, af því að þetta er svo lítið þá verður þetta svo persónulegt. Viðskiptavinir koma aftur og aftur. Margir koma til að kaupa Jón og maður man hvaða litasamsetningar viðskiptavinirnir hafa keypt áður. Þá getur maður ráðlagt þeim hvað passar við þá liti. Það er vandasamt að velja liti inn á heimili sitt. Hugmyndin á bak við Jón er sú að þú persónugerir verkið. Þetta er alltaf sama andlitið en þú getur valið þína liti og þína uppsetningu. Þannig að það er rosalega gaman að fá myndir frá viðskiptavinum og sjá hvernig uppsetningin er hjá þeim. Ég er ennþá að sjá litasamsetningar sem ég hef ekki séð áður þrátt fyrir að það sé þetta langt síðan ég byraði með hann.“ „Fólk þarf ekkert að kaupa, líka bara gaman þegar fólk kemur og spjallar. Fólk biður jafnvel um ráð. Opnunartíminn er breytilegur en það eru upplýsingar um opnunartíma á heimasíðunni almar.is þar er hægt að sjá hvort sé opið eða ekki. Einnig reynum við að vera með lifandi facebook og instagram síður, þar sem hægt er að fylgjast með.“ -HM
Jón í lit er skemmtilegur safngripur og góð tækifærisgjöf.
Gleraugu eru skart
Flottar og öðruvísi umgjarðir
Jón í lit er til í um 40 mismunandi litum.
Sjónmælingar hjá Birni Óskari sími 463 1455
36
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Jólagjöfin í ár er friður og umhyggja
Ljósmyndir, innanhússhönnun, körfuboltaþjálfun og ferðaþjónusta eru nokkur af fjölmörgum verkefnum þeirra hjóna, Höllu Báru Gestsdóttur og Gunnars Sverrissonar en saman reka þau fyrirtæki sitt undir nafninu Home and Delicious. Þau líta á jólin sem tækifæri til þess að rækta friðarboðskap og eiga góðar samverustundir með börnunum sínum í Reykjavík eða á Norðurlandi.
Hjónin Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður og Gunnar Sverrisson ljósmyndari hafa í nægu að snúast um jólin þó að þeim finnst best að hafa það afslappað og rólegt um hátíðirnar. Þau hafa komið sér vel fyrir í 101 Reykjavík ásamt dætrum sínum, Leu 12 ára og Kaju 7 ára. Þau reka þrjár íbúðir fyrir ferðamenn sem þau hönnuðu og gerðu upp frá grunni. Einnig halda þau úti heimasíðunnni Home and Delicious en þar má finna ljósmyndir og ýmsan fróðleik um innanhúshönnun.
Pabbi er flugeldasýning
Halla Bára er fædd og uppalin á Akureyri. Hún er dóttir Gests Einars Jónassonar leikara og útvarpsmanns og Elsu Björnsdóttur. „Jólin heima voru ósköp hefðbundin og róleg. Samt var alltaf svo mikil gleði og vel skreytt. Pabbi er algjör flugeldasýning þegar hann setur sig í jólagírinn, hann hefur rosalega gaman af því að skreyta heima. Þar sem ég er einbirni þá gat ég leyft mér að panta mat um jólin sem mér fannst góður. Foreldrar mínir voru oft með rjúpur en ég var meira fyrir hangikjöt eða léttreyktan lambahrygg,“ segir
Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson á heimili sínu í 101 Reykjavík.
Halla. Miðbærinn var fallega skreyttur og birtan frá jólaljósum í kirkjutröppunum skapaði jólalegt yfirbragð í bænum.“
Kalkúnn frá útlöndum
Gunnar er fæddur Reykvíkingur og er yngstur af fimm systkinum en foreldrar hans eru Guðrún Jóhannesdóttir og faðir hans hét Sverrir Hermannsson. „Það var ekkert rólegt við jólin hjá okkur þegar ég ólst upp. Veisluhöldin byrjuðu venjulega á aðfangadag og stóðu yfir öll jólin. Það var mikill gestagangur og fjör og óhætt að segja
það að maður var kominn með nóg í lok dags á annan í jólum. Við vorum oftast með kalkún sem fékkst ekki á Íslandi á þessum tíma. Pabbi vann á millilandaskipum og kom heim með þennan framandi fugl fyrir jólin. Þeir sem ekki vildu útlendan mat gátu fengið sér lambahrygg,“ segir Gunnar. „Ég held að ég hafi fengið alveg nóg af stórum jólaboðum þegar ég var yngri og í dag þá viljum við Halla og krakkarnir helst hafa það rólegt og óhefðbundið um jólin. Bara það sem hentar hverju sinni, við erum ekkert sérstaklega að halda í neinar hefðir og
Óskum félagsmönnum okkar og öðrum bæjarbúum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
erum ekki mikið fyrir það að binda okkur niður með einhverjum ákveðnum reglum. Samt höfum við haft kalkún oft um jólin, greinlega er kalkúnaarfleiðin að koma þar sterklega inn,“ segir Gunnar og hlær.
Bindum okkur ekki niður um jól
Jólin hjá Höllu Báru og Gunnari eru ekki mikið á trúarlegum nótum heldur líta þau á frekar jólin sem mikilvægan viðburð þar sem boðskapur um frið og ró haldast í hendur. „Við ölum börnin okkar upp með opnum huga og fordómlaus, sjálf vilj-
37
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Lágstemmdar jólaskreytingar á heimili Höllu Báru og Gunnars, jólastjarna í glugga og kerti á borði.
um við ekki binda okkur mikið niður og reynum þess vegna að vera hér og þar um jólin. Meðal annars á Akureyri, í bústað á Vatnsnesi eða jafnvel erlendis,“ segir Halla.
Íslendingar með sitt eigið jólaþema
Aðspurð um hvernig Íslendingar skreyti heimili sín fyrir jólin segir Halla Bára að stíllinn sé svolítið lýsandi fyrir það hvar landið okkar er á hnettinum, eða milli Ameríku og Norðurlanda. „Hér gætir einfaldra og stílhreinna skandinavískra áhrifa og svo aftur andstæðu þess sem kemur frá Ameríku. Íslendingar hafa svolítið skapað sér sinn eigin stíl þegar kemur að jólaskrauti og blanda mikið saman þessum stílbrigðum. Íslendingar virðast kaupa mikið jólaskraut og eru oft mjög litaglaðir þegar kemur að skrauti. Þeir eru farnir að kaupa í æ ríkara mæli hönnunarvörur og fyrir marga þá eru jólin hreinlega áhugamál þar sem virkilega er vandað til hvernig á að skreyta og með hverju. Þetta er samt bara smekkur hvers og eins og hvernig þú ert sjálfur innstilltur á jólin,“ segir Halla.
skyldunnar er að hafa það skemmtilegt og skapa jólastemmingu með ljósum. Við notum mikið af hvítum stjörnum og seríum sem við setjum í flesta glugga. Við viljum frekar nota lýsingu en að vera að skreyta mikið. Á endanum er það ljósið sem skapar umhverfið okkar, hvort sem það er í hönnun eða í ljósmyndun og þetta tvinnum við saman í okkar vinnu. Í raun eru þetta okkar sterkustu sérkenni,“ segir Halla Bára. „Jólaserían sem fer á jólatréð er einnig hvít en jólakúlurnar eru frá því við byrjuðum að búa. Svo er það líka ótrúlega góð stemming og útivera að höggva sitt jólatré sjálfur og koma því heim. Þetta er allt hluti af því að lýsa á hlýlegan hátt upp heimilið í mesta skammdeginu. Annars eigum við eitt uppáhalds jólaskraut en það er lítið gervitré sem við keyptum í Mílanó árið 2006 þegar við bjuggum þar um tíma,“ segir Halla. Gunnar minnist á að hann hafi verið langt á undan sinni samtíð þegar hann pantaði hvítt gervijólatré frá Bandaríkjunum fyrir tólf árum síðan. Þá var ekki mikið um slík tré á Íslandi en átti eftir að breytast nokkrum árum seinna þegar hvítur litur á gervitrjám fór að verða vinsæll.
Fólk skapi sinn eigin stíl
Halla Bára og Gunnar eru sammála því að bestu jólagjafirnar sem hægt sé að gefa séu heimalagaður góður matur, ást og umhyggja. Spurð um það hvað þau vilji sjá á íslenskum heimilum fyrir jólin segja þau að fólk skapi sér sinn eigin stíl og elti ekki það sem aðrir gera. Að fólk horfi í kringum sig, sæki innblástur hingað og þangað og leyfi leyfi tilfinningum og sköpunargáfu að ráða för til að skapa sér persónulegt umhverfi fyrir sig og sína.
Halla Bára og Gunnar kaupa á sitt heimili muni sem þeim þykja fallegir, sama hvaðan þeir koma. „Við erum ekki mikið í því að kaupa dýra hönnunarhluti heldur blöndum við bara hinu og þessu saman,“ segir Halla. Norðlenskir hönnuðir eru í uppáhaldi hjá þeim ef marka má muni sem finna má á heimili þeirra. Meðal annars eru kertastjakar eftir Ólöfu Jakobínu Ernudóttur, kökudiskur eftir Margréti Jónsdóttur keramíkhönnuð og verk eftir Jón Laxdal og Maríu Jónsdóttur.
„Það sem einkennir jólahald fjöl-
aðgát
með logandi
ljós!
Norðlenskir hönnuðir í uppáhaldi
Góð lýsing skiptir miklu máli
Sýnum
Á
Plastiðjan Bjarg Iðjulundur Uppáhaldsjólatréð er gervijólatré keypt í Mílano árið 2006.
Furuvellir 1 • 600 Akureyri Sími: 461 4606 • fax: 461 2995
Ö
Ó
Ó
38
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Hátíðlegur jólamatur
Kokkarnir á veitingahúsunum Strikinu og Rub23 ætla að hafa hreindýr og önd í matinn á jólunum Mikilvægt er að setja skinnhliðina fyrst niður til að fá hana vel stökka (hún má vera svolítið dökk). Bringurnar eru settar á bakka og inni ofn á 120°C þar til kjarnhitinn er kominn upp í 55°C (notið gjarnan kjöthitamæli)
Jólamatur Garðars Kára Hreindýrafilet með kanilsætkartöflu, portobelló-sveppum, sellerí rót og villi-rauðvínssósu
fyrir 4 1 kg filet 50 g smjör 300 g villibráðar- eða kálfasoð 100 ml rauðvín salt pipar 1 laukur sellerírót 2-4 portobellósveppir + Flúðasveppir 2 sætar kartöflur basill steinselja púðursykur kanill
Kjötið er tekið út í hádeginu og látið standa úti á bekk, strá smá salti á það klukkan 15. Steikin ca. 16:30-17:00 (fer eftir eldun) Hitið ofninn í 160°C og eina hellu á ca. 80% kraft, smjörsteikja filetið á pönnu með timjan í ca. 2 mín. á hvorri hlið, kryddað með salti og pipar. Sett í ofninn í 2 mín. og tekið út úr honum í 6 mín. (ég vil að kjötið hvíli mjög vel og sé frekar aðeins undireldað heldur en of mikið) og ég endurtek þetta 2-3svar. Sósan (byrja klukkan 14-15:00) Ég set lauk í pott með smá smjöri og læt malla á meðalhita þar til laukurinn er byrjaður að brúnast og jafnframt verða örlítið glær, þá bæti ég rauðvíninu og sýð þetta niður um helming, síðan bæti ég soðinu út í og læt sjóða rólega, klukkutíma fyrir matinn þá bæti ég 4-5 einiberjum, 1-2 negulnöglum og 1 stjörnuanís út í sósuna. Þegar búið er að steikja kjötið er frábært að nota skófið úr pönnunni í sósuna. Rétt í lokin klára ég sósuna með smá ediki, salti og smjöri, það er list að stilla þetta þrennt rétt saman, tekur æfingu og tilfinningu til að fullkomna sósugerðina svo ég mæli með að æfa sig áður en jólasósan verður löguð. 2 sætar kartöflur fara í ofninn klukkan 14 á 160-180°C (muna að setja smjörpappír/álpappír undir þær, það kemur síróp úr þeim sem er leiðinlegt að þrífa).
ALLT
AÐ
45 KG
0,5 m 0,5 x 0,5 x
Sultaður rauðlaukur
4 stk. rauðlaukar 50 g sykur 3 msk. balsamicedik 2 msk. síróp 3 msk. hunang 1 msk. vatn
Garðar Kári Garðarsson, yfirmatreiðslumaður á Strikinu.
Teknar úr ofninum eftir 2 klst. og látnar standa í 15 mín., svo er skinnið rifið af (það dettur bara af) og settar í skál, 2 msk. púðursykri og 1 tsk. kanil er bætt út í, svo er þessu hrært saman, sett í fallegt form. Þetta er svo sett í ofninn á ca. 160°C í 15 mín. rétt fyrir kvöldmat. Sveppirnir eru skornir niður og steiktir í smjöri, salt og pipar sett á þá meðan þeir steikjast, og svo rétt áður en þeir eru teknir af þá raspa ég smá hvítlauk með í pönnuna, einning má nota hvítlauks salt. Sellerírótin er sett í trölladeig 200 g salt og 200 g hveiti, ca ½ dl vatn, þetta er unnið saman og klesst utanum sellerírótina, svo er hún bökuð á 160-180°C með kartöflunum, tekin út á sama tíma og látin standa í hálftíma áður en hún er tekin úr skelinni, (ég er ekkert að skræla hana fyrirfram, bara skola hana vel undir þar sem moldin er oft og set hana beint í deigið, svo sker ég það frá eftir eldun). Sellerírótin er skorin í sneiðar og krydduð með pipar og sítrónu olíu (smakkið hana, það ætti ekki að þurfa salt) sneiðunum er raðað á fallegan disk sem má fara í ofninn í 5 mín. fyrir matinn, þegar diskurinn kemur út þá set ég ferskt basil og steinselju á sellerírótina, en það má alveg eins vera eitthvað annað skemmtilegt.
Jónas Jóhannsson, kokkur á Rub23.
Jólamatur Jónasar Hægeldaðir andaleggir og steiktar andabringur með sultuðum rauðlauk, smjörsteiktum kartöflum og Cointreausósu Hægeldaðir andaleggir
5 stk. andaleggir 1 sítróna 500 ml andafita sjávarsalt
Byrja á því að setja botnfylli af salti í bakka og rífa sítrónubörk yfir. Veltið leggjunum upp úr saltinu og látið standa í 3 klukkutíma í kæli. Svo er mesta saltið skafið af leggjunum. Leggirnir eru settir í nýjan bakka og andafitunni er hellt yfir, þannig að fitan rétt flýtur yfir leggina. Áður en bakkinn er settur í ofninn, er álpappír settur yfir bakkann. Ofninn er stilltur á 73°C og þetta látið malla í 24 klukkustundir.
Steikt andabringa:
5 stk. andabringur salt og pipar
Byrja á því að skera létt í skinnið á bringuni, fyrst langsum, og svo þétt þversum þannig að það komi litlir tíglar í skinnið. Stráið síðan salti og pipar á bringurnar og steikið á pönnu.
Laukurinn er skrældur og skorinn í strimla. Hita síðan pott og steikja laukinn vel eða þangað til að hann er orðinn ljós. Blandið síðan restinni af hráefnunum saman við og látið sjóða í sirka 30 mín á lágum hita eða þangað til hann er orðinn dökkur og sultulegur.
Smjörsteiktar kartöflur
500 g kartöflur 50 g smjör 2 greinar rósmarin 3 stk. hvítlauksgeirar salt og pipar
Kartöflurnar eru skornar í tvennt. Rósmarínið er tekið af greinunum og saxað smátt. Hvítlaukurinn er skorinn í smátt. Smjör er brætt í heitri pönnu, kartöflurnar eru steiktar á heitri pönnuni með rósmaríninu og hvítlauknum, þar til þær eru orðnar mjúkar að innan, þær eru síðan smakkaðar til með salt og pipar.
Cointreau-soðsósa
1 lítri vatn 110 g soyasósa 2 stk. anísstjörnur 35 g andakraftur 3-5 msk Cointreau (appelsínulíkjör) sósulitur þykkt með sósujafnara Vatn, soya, anís og andakraftur settur í pott og soðið upp á því. Cointreau er sett út í og smakkað til eftir smekk. Sósuliturinn settur út í, fer eftir smekk fólks hvað það vill hafa sósuna dökka. Svo er sósan þykkt eftir smekk. HM/SAO
Viðtakandi fær tilkynningu þegar sækja má sendingu.
750
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg.
KR.
OG EI EIMSKIP FLYTJANDI FLYT TJANDI J DI KE KEMUR EMUR E U J JÓLAPÖKKUNUM Ö NU TIL T SKILA KI
| www.flytjandi.is | sími 525 7820 |
39
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Borðum 18 kg af nammi á ári – Framleiða 13 milljónir konfektmola
páskavertíðin er alltaf einn af skemmtilegustu tímunum hjá okkur,“ segir Kristján.
Samkvæmt nýrri skýrslu frá Landlæknisembættinu kemur fram að sælgætisneysla landsmanna hefur staðið í stað frá 1960 – nammineyslan hefur sem sé hvorki aukist né minnkað í meira en hálfa öld! Nú fer í hönd tímabil umtalsverðar nammineyslu, ekki síst á súkkulaði og jólakonfekti ýmiss konar. Kristjáni Geir Gunnarssyni hjá Nóa Siríus koma tölur landlæknis ekki á óvart: „Já, þetta er rétt og niðurstöður embættisins eru alveg í takt við okkar tölur, sælgætisneysla landsmanna er mjög stöðug, eða um 18 kíló á mann á ári,“ segir hann. Samkvæmt því borðar meðal Íslendingurinn 1,5 kíló af sælgæti á mánuði eða 125 g á dag. Ugglaust er umtalsverður hluti þessara 18 kílóa neytt nú á jólaföstunni meðal annars í formi Nóa konfekts og mola sem Nói Síríus framleiðir. „Ég tók það einhvern tímann saman að við framleiðum um 13 milljón mola af konfekti árlega. Konfektið okkur er ómissandi um jólin enda alltaf mikið söluaukning á því fyrir hver jól. Nú bættum við einum mola í kassann,“ segir Kristján um leið og hann bætir við því að tíminn fyrir jól sé alltaf skemmtilegur í fyrirtækinu.
Ferðamannanammi
Kristján með jóla Nóa konfektið sem verður eflaust á mörgum heimilum um jólin og í jólaLjósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson. pökkum hjá einhverjum.
Tveir starfsmenn á Akureyri
Vörur Nóa Síríus eru seldar út um allt land. Á Akureyri eru tveir starfsmenn sem sjá um svæðið frá Staðarskála að Vopnafirði, sem er gríðarlega stórt svæði. „Norðurlandið er stórt svæði hjá okkur, við erum með aðstöðu á Akureyri sem þjónustar stóran hluta landsins, við gerum auðvitað ekki upp
á milli okkar neytenda en get þó sagt að við horfum til Norðlendinga,“ segir Kristján. Þrátt fyrir að það séu nokkrir mánuðir til páska þá er páskaeggjaframleiðsla fyrir páskana 2016 hafin hjá Nóa Síríus. „Páskarnir eru alltaf stórir hjá okkur enda erum við að framleiða um 1 milljón páskaeggja,
Stöðug aukning ferðamanna til landsins fer ekki fram hjá starfsfólki Nóa Síríus því erlendir ferðamenn eru mjög hrifnir af íslensku sælgæti. Kristján segir stöðuga söluaukningu á helstu ferðamannastöðum landsins. „Við höfum verið mjög heppin því erlendum ferðamönnum finnast vörurnar okkar góðar og áhugaverðar. Til að mæta þörfum þeirra þróuðum við fyrir tveimur árum sérstaka vörulínu ætlaða ferðamönnum sem hefur heldur betur slegið í gegn. Við leggjum líka mikla áherslu á útflutning og þannig verður það örugglega næstu árin, erlent fólk sækir mikið í sælgætið okkar. Við flytjum út til Bandaríkjanna, Rússlands, til Norðurlandanna og nú erum við að horfa til Þýskalands,“ segir Kristján. Nói Síríus byggir á gömlum grunni og nýtur þess í dag að hafa haft tækifæri til að vaxa með þjóðinni um langt árabil. Óheft samkeppni í þrjá áratugi hefur einnig hert fyrirtækið og eflt og í dag hefur það ríka ástæðu til að líta framtíðina björtum augum. Kristján kann stuttu söguna. „Já, fyrirtækið var stofnað 1920 og þá bara með brjóstsykur, Síríus er keypt frá Danmörku 1933 og þá bætist súkkulaðiframleiðslan við og Opal bætist í hópinn 1997.“ MHH/SG
O PI Ð UM JÓL OG ÁRAM ÓT Dagur
Tími
23.12. Þorláksmessa 24.12. Aðfangadagur 25.12. Jóladagur 26.12. Annar í jólum 27.12. 28.12. 29.12. 30.12. 31.12. Gamlársdagur 01.01. Nýársdagur
09-18 09-13 16-18 12-16 12-16 09-18 09-18 09-18 09-13 16-18
Óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
www.akap.is
Kaupangur v/ Mýrarveg
sími 460 9999
40
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Allir velkomnir í jólagrautinn!
Vikudagur fékk þær Ólöfu Magnúsdóttur, dætur hennar þær Selmu og Ingibjörgu og dóttir Selmu, Ólöf Maren í smá spjall um fjölskyldulífið, jólin og crossfit. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á crossfit og stunda það allar af kappi. Þær reyna að nota allann þann tíma sem þær hafa yfir hátíðarnar til þess að æfa saman ásamt því að borða góðan mat.
„Þær töluðu um að þetta væri svo gaman. Ég var viss um að þetta væri ekkert fyrir mig, að ég væri of gömul í þetta. Svo bara ákvað ég að fara á grunnnámskeið. Það er alltaf einhver að segja manni hvað maður eigi að gera á æfingum, það er mikill plús fyrir mig,“ segir Ólöf eldri aðspurð að því hvað það var sem heillaði hana við crossfit og afhverju hún byrjaði að stunda það. Stuttu eftir að Ingibjörg byrjaði náði hún að sannfæra stóru systir sína að þetta væri svo ótrúlega skemmtilegt og klárlega eitthvað sem hún hefði gaman af. Dóttir Selmu, Ólöf Maren byrjaði aðeins 10 ára að stunda crossfit en helsta ástæðan fyrir því afhverju hún byrjaði var að þrekið í sundinu var svo leiðinlegt. Auðvitað hlustar hún líka á mömmu sína sem sagði henni að prófa crossfit. „Ég var að æfa sund sem krakki. Það voru einhverjar tvær til þrjár í sundinu sem byrjuðu á undan mér í crossfit og sögðu að þetta væri alveg frábært. Það er líka meira svona íþróttaanda stemning í þessu heldur en til dæmis að vera í ræktinni. Ekki það að mér fannst ekki leiðinlegt í ræktinni fyrr en ég byrjaði í crossfit. Ég myndi aldrei vilja fara núna til baka“ bætir Ingibjörg við.
Fjölskylda í crossfit! Ólöf Magnúsdóttir – 54 ára – byrjaði að stunda crossfit í febrúar 2014, Selma Sigurðardóttir Malmquist – 33 ára – byrjaði að stunda crossfit sumarið 2011, Ingibjörg Ragna Malmquist – 25 ára – byrjaði að stunda crossfit apríl/maí 2011 og Ólöf Maren Bjarnadóttir – 13 ára – byrjaði að stunda crossfit árið 2012.
Jólin og mataræðið Ingibjörg kallar hann, er mest einkennandi þegar Þær virtust allar vera sammála því að það sem hefur kemur að hefðum um jólin. Grauturinn er borðaðtekið miklum breytingum eftir að þær fóru allar að ur í hádeginu á aðfangadag og eins og Selma orðaði stunda crossfit, var mataræðið. það: „Allir sem hafa komið einu sinni í graut mega „Ég er alveg búin að fara allan hringinn. Borða alltaf koma aftur, allir velkomnir.“ Það hafa mætt Paleo, sleppa öllu hveiti, brauði, sælgæti og fleira. allt upp í 30 manns, bæði vinir og fjölskyldumeðÞegar ég tók Paleo limir í hádegisgrautþá hreinsaði ég alveg inn. Margir í fjölút og það fengu allir skyldunni vinna „Það fara allir á æfingu á aðfangadag bara það í matinn vaktavinnu og er það nema mamma, hún þarf að elda grautinn þannig já það er búið því misjafnt hvort öll en hún getur kannski komið því yfir á að taka út ýmsilegt stórfjölskyldan nái að pabba núna“ en svona almennt á hittast og borða heimilinu þá er já saman á aðfangadag. hollara í matinn,“ Það virðist allt fara sagði Selma rétt áður en hún teygði sig í súkkulaðieftir vinnustöðum, hver er að vinna, hvar og hvernkúlu. ig en þau reyna að borða öll saman á gamlárskvöld. „Jájá, það er alveg búið að lagast helling en það svo sem mætti alveg vera betra samt“ segir Ingibjörg brosandi. „maturinn sjálfur er fínn en svo er það ísÆfingarnar yfir hátíðarnar inn og nammið sem fylgir með sem maður stundum Það virðist ekki vera tekin nein pása yfir hátíðarnar hugsar um að minnka og minnkar í einhvern tíma þegar kemur að æfingum hjá þessari mögnuðu fjölsem fer svo líka upp á einhverjum tíma, það fylgir skyldu. Þær nota allan þann tíma sem þær hafa yfir bara,“ bætir hún við. hátíðarnar til þess að skella sér á æfingu. Þær æfa frekar meira en minna þar sem allir hafa meiri tíma Jólin hjá svona crossfitfjölskyldu eru lítið öðruí sólarhringnum og því auðveldara að skipuleggja vísi en hjá öðrum. Smákökubaksturinn og gostímann í kringum æfingarnar. drykkjan virðist vera það helsta sem hefur minnkað „Í fyrra á jóladag fengum við þá flugu í hausinn hjá fjölskyldumeðlimum. að vera með skemmtilega æfingu hérna. Við fórum „Í fyrra keypti ég aðeins nokkra lítra í staðinn öll fjölskyldan í jólapeysum og tókum upp allar æffyrir heilu kippurnar af 2ja lítra flöskum, það var ingarnar á video og póstuðum á Facebook. Jólaeiginlega mesti sjáanlegi munurinn. Það er ekki að dagur fór eiginlega bara í það, í crossfit samt,“ segir maður hætti að drekka gos heldur notar maður það Ingibjörg hlæjandi. meira sem spari,“ segir Ólöf eldri. Þær fara allar á aðfangadag á æfingu nema Ólöf Möndlugrauturinn eða jólagrauturinn eins og
eldri en hún stendur vaktina við eldavélina og hrærir í jólagrautnum. Þær velta því samt fyrir sér hvort ekki sé hægt að setja jólagrautinn yfir á pabba þeirra þannig Ólöf eldri nái nú aðfangadagsæfingu með þeim öllum. „Já, ég er mikið að velta því fyrir mér núna hvort það sé ekki bara hægt,“ segir Ólöf eldri og glottir. Fjölskyldan sameinast öll á æfingu á gamlársdag. Það er mikil stemning og húllumhæ sem myndast meðal iðkenda yfir hátíðarnar. Í fyrra var ákveðið að hafa hattaþema á gamlársæfingunni, iðkendum til mikillar ánægju. „Við höfum boðið líka upp á piparkökur og kakó. Svo eru líka margir sem fara suður í skóla og koma svo á æfingu um jólin, eru að koma í jólafrí, það er mjög gaman. Þetta eru líka oftast bara tvær æfingar á dag, þetta er meira svona eins og laugardagur og sunnudagur allir dagar þannig það eru oft margir á æfingu á hverri æfingu og mikið hangsað eftir það“ segir Ingibjörg. „Spurning hvort við séum að æfa meira eða hvort við séum bara hérna meira,“ bætir Selma við og glottir. Boðið er upp á fjölskylduæfingar af og til og sérstaklega um hátíðarnar en markmiðið með þeim er að fá ekki bara fullorðna fólkið á æfingu á meðan börnin sitja heima með nammiskálina, heldur er reynt að fá alla með. Þær æfingar eru þá byggðar upp þannig að allir geta tekið þátt, þetta eru einfaldar æfingar sem krakkarnir ráða vel við og mikið er lagt upp úr samvinnu. Enn er ekki komin nein ákveðin hátíðardagskrá en þær lofa allar mikilli skemmtun og gleði. Á æfingunum verður mikið lagt upp úr samvinnu þar sem margir eru í húsinu á sama tíma. SBF
41
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Óskum viðskiptavinum okkar og starfsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs Sími 461 2288
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 460 4200
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 461 7880
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 464 9400
með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 461 1010
Óskum viðskiptavinum okkar
Sími 461 1660
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 462 3061
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 550 0700 www.sba.is
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
5 0 45
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Grímseyjargötu –Sími 462 7860
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum Akureyringum og nærsveitamönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 4 600 750 – www.vikudagur.is
42
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Haukur Tryggvason:
Ekki jól alla daga
Haukur Tryggvason, veitingamaður á Græna hattinum hefur undanfarin ár haslað sér völl sem einn helsti tónleikahaldari á Íslandi og ómissandi hluti af íslensku „músík-senunni“.
Hvernig er jóladagskráin á Græna hattinum? Leppalúðarnir Gísli Einarsson og Sólmundur Hólm ásamt Hvanndalsbræðrum voru 5. des. Það er í raun eina svona jólaprógrammið í ár. Núna um helgina verða 200.000 naglbítar og Dikta. Næstu helgi, eða síðustu helgina fyrir jól verður Eivör á fimmtudeginum, Jón Jónsson á föstudeginum og Dúndurfréttir á laugardeginum. Svo er fullbókað á milli jóla og nýárs, alla daga. Áttu þér uppáhaldshljómsveit sem hefur spilað á Græna hattinum? Nei, ekki eina. Ég á kannski tíu uppáhalds. Gömul uppáhaldshljómsveitin mín var að spila hérna í sumar, hljómsvetin Focus, frægasta hljómsveit Hollands. Ef þú gætir bara fengið eina hljómsveit í viðbót til að spila á Græna Hattinum, hvaða hljómsveit væri það? Trúbrot, lifunarútgáfan.“ Hvernig eru jólin á þínu heimili, eigið þið einhverjar sérstakar hefðir? Við höfum engar fastar hefðir. Við erum með góðan mat á aðfangadag. Það voru alltaf rjúpur en nú er erfitt að fá þær, þar sem ég skýt ekki sjálfur. Við verðum með önd í ár, humar í forrétt og góðan
Haukur Tryggvason vert á Græna hattinum.
eftirrétt. Svo læt ég einhvern bjóða mér í hangikjöt á jóladag. Skreytir þú mikið heima hjá þér? Nei það er í lágmarki. Jólin koma ekki fyrr enn? Þegar ég set á uppáhaldsjólaplötuna mína með Bryan Wilson „What I Really Want For Christmas“ á fóninn. Uppáhaldsjólagjöf sem þú hefur fengið? „Beatles for sale“ sem ég fékk þegar ég var 9 ára Ertu jólabarn? Nei. Uppáhaldsjólalag?
Í augnablikinu er það „Það snjóar með Sigurði Guðmundssyni.“ Eitthvert jólalag sem þú þolir ekki? Já, þau eru býsna mörg og mér finnst óþolandi þegar verið er að spila jólalög í nóvember. „Jólahjól“ og „Ef ég nenni“ eru í topp tíu. En alversta jólalagið er „Jól alla daga“. Aðfangadagur eða gamlársdagur? Gamlárs-, annars er aðfangadagur líka yndislegur. Eitthvert áramótaprógram á Græna? Það er lokað hér á gamlársdag og við opnum aftur 20. janúar, það er eiginlega eina þriggja vikna fríið sem ég fæ á árinu. EPE/HM
43
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Frostagötu 4a – Sími 462 5700
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu ...fyrir fagmanninn og þig líka Súluvegur 2 • Sími 660 6469
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Súluvegi 1 Sími 460 2200
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 464 6400
Óskum starfsmönnum okkar, verktökum og birgjum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs með þökk fyrir samstarfið á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 440 4000
Ást er …
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
… að gefa henni blikk
Óseyri 26 – Sími 462 7770
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
44
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Gerði áhugamálið að atvinnu
Heiðdís Austfjörð Óladóttir er eigandi vefverslunarinnar Haustfjörð.is. Meðfram því að sjá alfarið um verslunina tekur hún að sér förðun, starfar sem hárgreiðslukona og sér um smink fyrir Leikfélag Akureyrar.
Heiðdís er fædd árið 1986 á Húsavík og aðeins 5 ára gömul mætti Heiðdís í vinnuna til pabba síns með tvö „glóðaraugu“ eftir að hafa prófað nýju augnskuggana sína. „Ég byrjaði snemma að fikta í dótinu hennar mömmu og prófa varaliti og maskara. Eftir því sem á leið fór ég að prófa meira, fikta í öllu og svo að kaupa mér ofboðslega mikið af snyrtivörum. Þetta hefur því fylgt mér mjög lengi“. Heiðdís segist ekki hafa séð fyrir að förðunin væri eitthvað sem hún gæti gert að alvöru starfi og leit meira á þetta sem áhugamál. Hún stefndi á að læra sálfræði og segir að þrátt fyrir að hafa ekki gert það, fái hún sinn skerf af sálfræðinni í förðuninni. „Það er mjög mikilvægt að vera með það á hreinu hvernig þú átt að höndla fólk ef það kemur illa fyrirkallað til manns, sem er bara allt í lagi.“ Heiðdís hafði þó hug á því að mennta sig í tengslum við áhugamálið sitt og fór að skoða skóla erlendis þar sem henni þótti úrvalið í förðunarskólum hér á landi ekki nógu gott á þeim tíma. Hún sótti um í Delamar Academy í London haustið 2007. Það nám tók ár og þar var farið yfir flest allt í förðunarbransanum: „Þar er m.a. kennd hárkollugerð, að búa til gervi-
Gull og silfur eru alltaf jól og áramót. Þegar það dimmir koma inn fjólubláir og plómutónar sem henta vel með gylltu.
Hugmynd að jólaförðun frá Heiðdísi
Módel: Arney Ágústsdóttir Augu: Augnskuggar: Vintage Romance palletta frá Sleek Glimmer: Candy coin frá Eye Kandy Gerviaugnhár: Vixen og eru frá Social Eyes Eyeliner: Ink pot frá Sleek Maskari: Full fat lash frá Sleek
Andlit: Húð: Farði og hyljari frá Mac og matt púður frá Laura Mercier Skygging: Contour kit frá Sleek Kinnar: Luminoso kinnalitur frá Milani Varir: Varalitur: Matte naked nude frá Milani Varablýantur: Brandy frá Milani Champagne gloss frá Sleek
Heiðdís H iðdí við ið fförðunaraðstöðuna ð ð ð sem hú hún hhefur f ú útbúið búið á hheimili i ili sínu. í
skegg, „special effects“, leikhús kvikmyndaförðun, tískuförðun og allt ferlið á bakvið bransann. Það þótti mér hrikalega spennandi. Mamma hvatti mig til að sækja um, sem var náttúrulega rétt hjá henni. Það er það gáfulegasta sem ég hef gert að stökkva á þetta, því korteri eftir að ég kem heim varð hrun og verðið á skólanum hækkar um meira en milljón.“ Eftir að heim var komið fór Heiðdís á fullt að koma nafninu sínu að hjá sjónvarpsstöðvum, leikhúsum og á fleiri stöðum. Hún hélt í fyrstu að hún hefði ekki áhuga á leikhúsförðun en annað kom á daginn og hefur hún alfarið séð um hár og förðun fyrir Leikfélag Akureyrar frá árinu 2011. Heiðdís lét sér förðunarfræðin ekki nægja og tók sveinspróf í hárgreiðsluiðn árið 2014. Henni hafði þótt snyrtivöruúrval hér á landi frekar lítið og að það vantaði fleiri ódýrar en góðar vörur. Eftir að hafa frestað því í svolítinn tíma sló hún til og stofnaði vefverslunina Haustfjörð.is þann 17. apríl 2014. Eftir það fór boltinn að rúlla hratt og á síðunni selur Heiðdís átta mismunandi vörumerki. „Ég passa að þekkja merkin mín vel svo ég geti veitt viðskiptavinunum persónulega ráðgjöf um allar vörurnar. Ég er mjög bjartsýn á framtíðina og tel mig vera komna með eitthvað fyrir alla. Ég gæti þó hugsað mér að færa lagerinn úr svefnherberginu mínu!“ Heiðdís segir úrvalið af snyrtivörum hafa færst úr búðunum og á netið. Áhuginn hér á landi hefur aldrei verið meiri og eftirspurnin er eftir því. Vinnan á bak við síðuna er því mikil og allur lagerinn er inni á heimili Heiðdísar. Í upphafi ætlaði hún Haustfjord.is sem aukavinnu en það var fljótt að breytast. „Það er einhver make-up sprenging búin að vera
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
síðustu 1-2 árin og án þess að hafa vitað það, opnaði ég þessa síðu á hárréttum tíma. Kannski hefur maður haft einhver áhrif á að þessi sprenging varð. Stelpur eru í dag rosalega áhugasamar um snyrtivörur og ég held að Instagram, Youtube og Snapchat spili þar stórt hlutverk. Það eru allir að uppgötva eitthvað nýtt og það eru endalaust að poppa upp ný merki sem allir vilja prófa. Snyrtivörur eru líka orðnar auðveldari í notkun, þessar dýru vörur eru oft flóknari og þarf jafnvel að nota í ákveðnum skrefum. Yngri stelpur hafa þá gaman af vörum sem þær skilja hvernig á að nota.“ Í framhaldi af þeirri umræðu segir hún samfélagsmiðla hafa mikil áhrif á snyrtivöruheiminn. Snyrtivörur fái þar fría auglýsingu. Heiðdís segir það þó slæmt hvað ungar stelpur séu áhrifagjarnar. „Á þessum miðlum er oft verið að mála sig svo ofboðslega mikið og margar ungar stelpur eru þannig, að ef þær sjá eitthvað á Snapchat þá verða þær að gera það og eiga vöruna. Það er ekki alveg þannig, maður verður bara svolítið að finna sig.“ Besta förðunarráðið sem Heiðdís hefur fengið og vill deila með öðrum er að byrja alltaf á því að farða augun. Það flýtir fyrir þar sem að það getur orðið vítahringur þegar augnskuggar eða annar farði fer á húð sem búið er að farða. Nú líður að jólum og Heiðdís segir jólin alltaf mjög skemmtilegan tíma því það sé tími glimmers. „Gull og silfur eru alltaf jól og áramót. Þegar það dimmir koma inn fjólubláir og plómutónar sem henta vel með gylltu. Svart og silfur er líka alltaf klassískt. Það hefur orðið svolítill misskilningur að það þurfi að breyta andlitinu algerlega með því að „baka“ húðina og nota of mikið af skyggingum og ljóma. Þegar kemur að því að húðin sé förðuð fallega á „less is more“ algerlega við. -EBB
45
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 460 1300
Sími 462 5088
Óskum viðskiptavinum okkar
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 460 5720
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Sími 455 1050 · Fax 455 1059
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Sími 460 3350
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Glerárgötu 24 – Sími 545 6000 – www.kpmg.is
Sími 461 4100 www.hrt.is
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Sími 455 1050
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu Sími 460 7800
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Sími 460 3300
46
VIKUDAGUR โ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Prjรณnaรฐir skrautvettlingar
Litlir vettlingar sem er tilvaliรฐ aรฐ prjรณna รบr afgรถngum. Skemmtilegt aรฐ nota รพรก รก pakka eรฐa hengja รพรก รก jรณlatrรฉรฐ. Hรฆgt er aรฐ gera รพรก รบr hvaรฐa garni sem er. Stรฆrri prjรณnar og grรณfara garn รพรก verรฐa vettlingarnir stรฆrri. Fรญnna garn og minni prjรณnar, รพรก verรฐa รพeir minni. Einnig er um aรฐ gera aรฐ leika sรฉr meรฐ mismundi munstur og liti.
Blรกu vettlingarnir og rรถndรณttu vettlingarnir eru prjรณnaรฐir รบr lรฉttlopa รก prjรณna 3,5. Grรฆnuyrjรณttu vettlingarnir eru prjรณnaรฐir รบr tvรถfรถldu einbandi รก prjรณna nรบmer 2,5. ร rรถndรณttum vettlingum eru prjรณnaรฐar 2 umferรฐir til skiptis af hvorum lit. Efni: Garn og prjรณnar sem hentar garni. Heklunรกl nr. 3,5 eรฐa sem hentar garni. Aรฐferรฐ: Fitjiรฐ upp 22 lykkjur. Tengiรฐ รญ hring og prjรณniรฐ 1 lykkju slรฉtt og 1 lykkju brugรฐiรฐ รญ 6 umferรฐir. Prjรณniรฐ munstur eftir munstur-
teikningu, ef prjรณna รก rรถndรณtta eรฐa einlita vettlinga fylgiรฐ รพรก รบtaukningu รก munsturteikningu. ร rtaka fyrir รพumal: Prjรณniรฐ 10 lykkjur. Fitjiรฐ upp 2 lykkjur. Setjiรฐ nรฆstu 8 lykkjur รก hjรกlparband eรฐa nรฆlu og geymiรฐ. Prjรณniรฐ 10 lykkjur. Prjรณniรฐ 9 umf. slรฉtt. ร rtaka: Umf. 1 โ Prjรณniรฐ saman tvรฆr lykkjur รบt umf. Umf. 2 โ prjรณniรฐ saman tvรฆr lykkjur รบt umf. prjรณniรฐ 1 lykkju. Slรญtiรฐ bandiรฐ frรก, รพrรฆรฐiรฐ รญ gegnum lykkjurnar og gangiรฐ frรก endunum. ร umall: ร umall er prjรณnaรฐur fram og til baka. Slรฉtt รก rรฉttunni og brugรฐiรฐ รก rรถngunni. Setjiรฐ 8 lykkjur af hjรกlparbandi รก prjรณn. Umf. 1 โ slรฉtta โ prjรณniรฐ 1 lykkju. Aukiรฐ รบt um 1 lykkju. Prjรณniรฐ 5 lykkjur. Aukiรฐ รบt um 1 lykkju. Prjรณniรฐ 2 lykkjur. Umf. 2 โ ranga โ prjรณniรฐ brugรฐiรฐ รบt umf. Umf. 3 โ rรฉtta โ prjรณniรฐ slรฉtt รบt umf. Umf. 4 โ ranga โ prjรณniรฐ brugรฐiรฐ รบt umf.
Upphengilykkja: 25 loftlykkjur heklaรฐar. Sameinaรฐar aftan รญ stroffinu รก bรกรฐum vettlingum. ร voiรฐ og leggiรฐ til รพerris ef รพiรฐ viljiรฐ.
Umf. 5 โ rรฉtta โ takiรฐ 2 lykkjur saman รบt umferรฐ. Slรญtiรฐ bandiรฐ frรก, รพrรฆรฐiรฐ รญ gegnum lykkjurnar. Saumiรฐ saman รพumallinn. Prjรณniรฐ hinn vettlinginn eins.
Finniรฐ tรฝndu jรณlaorรฐin!
ร รพessu stafarugli er bรบiรฐ aรฐ tรฝna 20 jรณlaorรฐum. ร au gรฆtu veriรฐ lรกrรฉtt, lรณรฐrรฉtt, รก skรก eรฐa jafnvel afturรกbak. Getur รพรบ fundiรฐ รพau? ร รบ getur sรฉรฐ hver tรฝndu orรฐin eru hรฉr til hliรฐar.
Munstur.
Jรณlasveinar og lifandi tรณnlist um helgar
NAUSTAHVERFI K LU JAR ND NA UR -
โ
โ
โ ถ Normannsรพinur, rauรฐgreni, stafafura, fjallaรพinur og blรกgreni โ ถ Einnig trรฉ รญ pottum รญ รฝmsum stรฆrรฐum โ ถ Greinar, kransar og arinviรฐur
Leiksvรฆรฐi
Veljiรฐ jรณlatrรฉn รญ notalegu umhverfi
โ SNYRTINGAR
Jรณl รญ Kjarnaskรณgi EYJAFJARร ARBRAUT
โ ถ Nรกnar auglรฝst รก Facebooksรญรฐu Sรณlskรณga facebook.com/solskogar Upplรฝsingar og pantanir รญ sรญma 462 2400 Opiรฐ sem hรฉr segir:
7. til 13. des kl. 10-19 โ ถ 14. til 22. des. kl. 10-21 23. des. kl. 10-16 โ ถ Lokaรฐ รก aรฐfangadag Fylgist meรฐ okkur รก Facebook โ facebook.com/solskogar
Netfang: solskogar@simnet.is www.solskogar.is
VIKUDAGUR – FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
KEA HANGIKJÖT
Bragðið sem býr til jólin … ár eftir ár. Það er ýmislegt sem breytist með tímanum en KEA hangikjötið hefur verið ómissandi á jólaborðum Íslendinga í fjöldamörg ár. Það er taðreykt og verkað samkvæmt aldagömlum hefðum sem tryggja framúrskarandi bragð og gæði.
47
Getur þú hugsað þér daglegt líf án rafmagns?
Gleðilega hátíð Brátt fer daginn að lengja á ný og við fögnum birtunni sem fylgir hækkandi sól. Við hjá RARIK viljum þakka ykkur fyrir viðskiptin á árinu sem nú er senn liðið og sendum bestu óskir um gleðileg jól og heillarríkt komandi ár