Skip to main content

Sjálfbærniskýrsla 2024

Page 1

SJÁLFBÆRNISKÝRSLA 2024

1


Sjálfbærniskýrsla 2024

Efnisyfirlit 1. Sjálfbærniskýrsla

3. Félagslegir þættir

Ávarp forstjóra

Eigið starfsfólk

Um skýrsluna

Samfélagsleg áhrif

Árið 2024 í tölum Viðurkenningar

Starfsfólk í virðiskeðju

Stefnur Tvöföld mikilvægisgreining Kjarnamarkmið BYKO

2. Umhverfisþættir Losun gróðurhúsalofttegunda Orkunotkun Úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi Vistvænt BYKO Líffræðilegur fjölbreytileiki

4. Stjórnarhættir Stjórnskipulag og skipurit Framkvæmdastjórn Viðskiptasiðferði

5. Viðauki VSME tilvísunartafla

2


Sjálfbærniskýrsla 2024

Ávarp forstjóra Aukin lífsgæði og komandi kynslóðir

Sigurður Brynjar Pálsson – Forstjóri BYKO

„Við í BYKO fylgjum okkar skýru stefnu í sjálfbærni þar sem við leggjum áherslu á umhverfislega- félagslega- og efnahagslega sjálfbærni í okkar daglega rekstri. Við gerum okkur grein fyrir okkar ábyrgð þegar horft er til byggingariðnaðarins sem er ein af undirstöðu atvinnugreinum þjóðarinnar. Horfa má til að í kringum 8% af landsframleiðslu kemur frá þessari atvinnugrein og að jafnaði starfa um 20.000 manns í greininni. Ef litið er til alls iðnaðar á Íslandi þá stendur hann undir rétt rúmlega 25% af landsframleiðslu. Byggingariðnaðurinn er hins vegar einn mest mengandi iðnaður á heimsvísu þar sem honum fylgir mikil auðlindanotkun, losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs.

Tölur sýna að rekja megi um helming auðlindanýtingar í Evrópu og allt að 40% losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu til iðnaðarins. Kolefnislosun frá byggingariðnaði er áætluð um 360.000 tonn CO₂ ígilda á ári og 45% af kolefnisspori íslenskra bygginga má rekja til innlendrar og erlendrar framleiðslu byggingarefna. Stærsti hluti kolefnisspors íslenskra bygginga stafar þannig frá byggingarefnum og hefur iðnaðurinn, í samvinnu við stjórnvöld, sett sér þau markmið að draga úr árlegri kolefnislosun bygginga á Íslandi um 43% fyrir árið 2030. BYKO skrifaði undir loftlagsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Festu árið 2021 um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með aðgerðum en með markvissum aðgerðum til langs tíma náum við saman að hafa áhrif, draga úr kolefnisspori frá rekstri og mynda bindingu á sama tíma með mótvægisaðgerðum. Af ástæðu höfum við hjá BYKO ekki sett okkur eiginleg markmið um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, það er liður í vegferðinni að setja sér raunhæf mælanleg markmið, unnin með sérfræðingum, að greina hvaða fleiri aðgerðir fyrirtækið getur farið í og raunverulega náð þeim markmiðum sem sett eru um hlutleysi. BYKO vinnur engu að síður út frá þeirri sýn að kolefnisjöfnun á starfsemi sé gilt og gott markmið en setja þarf markið hærra, byggt á þeirri staðreynd að skuld við fortíðina stendur eftir sem áður. Stefna BYKO er því að draga úr losun eða þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirtækið hefur á umhverfið eins mikið og hægt er og binda það sem eftir stendur.

sjálfbærni í allri aðfangakeðjunni. Verslunin er hlekkur aðfangakeðjunnar sem tengir saman birgja, framleiðendur og viðskiptavini, þar sem viðhorf og neysluvenjur fólks eru stöðugt að breytast, fólk gerir auknar kröfur til fyrirtækja. Áskoranirnar eru því margar og ein af þeim er að rýna dýpra í aðfangakeðjuna og setja nýjar áherslur, mikilvægt er að horfa á hringrásarhagkerfið, að vörur sem keyptar eru inn séu í vistvænni umbúðum sem auðvelt er að endurvinna og/eða endurnýta áfram.

Sjálfbærni hefur í för með sér breytt viðhorf fólks til hegðunar og atferlis sem hefur þá um leið áhrif á menningu samfélaga. Félagslegi þáttur sjálfbærninnar tengir okkur við þau miklu verðmæti sem mannauðurinn felur í sér. Okkar staðfasta trú er sú að fjölbreytileikinn leiði okkur að betri niðurstöðu, sem felur í sér jafnrétti óháð kynþáttum, uppruna, kynhegðun, trú, stöðu eða stétt. Okkar mat er að augljósasta leiðin að góðu fólki er að vera góður vinnustaður með sjálfbærni að leiðarljósi. BYKO hefur síðustu árin haft heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Þar er unnið eftir kjarnamarkmiðum sem samræmast hlutverki, kjarnastarfsemi og þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækið telur sig þurfa standa við og þá um leið getur haft áhrif á. Það er von okkar að skýrslan veiti öðrum innblástur en ekki síður að lesendur hafi samband og komi með tillögur um það hvernig við getum bætt okkur enn meira. Saman náum við árangri og slagorðið okkar á vel við í þessum efnum, „Gerum þetta saman.““

Við í BYKO viljum vera leiðandi afl þegar kemur að vistvænum áherslum í byggingariðnaði, hvatarnir fyrir vistvænum byggingum er margir. Í fyrsta lagi viljum við ekki skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta sínum þörfum. Í öðru lagi er um að ræða fjárhagslegan og þá um leið arðbæran hvata að byggja vistvænni byggingar. Niðurstöður ýmissa rannsókna hafa sýnt að vistvottaðar byggingar eru verðmætari, hafa betri ímynd og bera lægri rekstrarkostnað á líftímanum. Í þriðja lagi er heilsufarslegur hvati, minni notkun skaðlegra og heilsuspillandi efna í byggingarvörum stuðlar að heilnæmara umhverfi. Ein af stærstu áskorunum verslunar og þjónustu í dag er að innleiða

3


Sjálfbærniskýrsla 2024

Um skýrsluna Allt frá árinu 2019 hefur BYKO gefið út árlega sjálfbærniskýrslu og er skýrslan í ár sú sjötta sem fyrirtækið gefur út. Í fyrri skýrslum hefur verið stuðst við skýrslustaðal Global Reporting Initiative (GRI) en í ár var gerð breyting þar á. Í ljósi fyrirhugaðra breytinga á sjálfbærnitilskipun Evrópusambandsins (Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD)) mun skýrslan í ár byggja á valkvæðum sjálfbærnistaðli fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (Voluntary Sustainability Reporting Standard for non-listed SMEs (VSME)) sem hugsaður er fyrir fyrirtæki sem ekki falla undir viðmið CSRD miðað við tillögur ESB. Birtar verða upplýsingar í samræmi við grunnsniðmát VSME staðalsins (e. Basic Module). Tilvísanir í kröfur staðalsins má finna í viðeigandi umfjöllunum í skýrslunni. BYKO hafði þegar hafið vinnu við innleiðingu á CSRD tilskipun Evrópusambandsins og hafði framkvæmt tvöfalda mikilvægisgreiningu, þar sem helstu sjálfbærni-þættir sem við koma rekstrinum voru metnir út frá áhrifum, áhættum og tækifærum. Afrakstur þeirrar vinnu mun ótvírætt nýtast fyrirtækinu í áhættustýringu og stefnumótun til framtíðar litið. 4

B1 – Basis for preparation

Skýrslan afmarkast við starfsemi BYKO ehf. en ekki móður- eða systurfélaga. Nánari upplýsingar um verslanir BYKO og sögu fyrirtækisins má nálgast á heimasíðu BYKO. Allar upplýsingar í skýrslunni eiga við um rekstrarárið 2024 nema annað sé tekið fram. Tölur og mælikvarðar í skýrslunni eru settar fram eftir bestu vitund. Umhverfisupplýsingar eru fengnar í gegnum gagnagátt Klappa og frá birgjum BYKO. Upplýsingar vegna flutninga eru frá viðkomandi flutningsfyrirtæki. Samfélagsupplýsingar, þar á meðal upplýsingar um mannauð fyrirtækisins eru fengnar úr innri kerfum BYKO.

Í viðauka skýrslunnar er að finna tilvísunartöflu í samræmi við VSME staðalinn.


Sjálfbærniskýrsla 2024

Árið 2024 í tölum Heildartekjur

Heildarlosun

29.859.813 ISK (þús. kr.)

4.101 tCO2í

Eignir alls

Fjöldi viðurkenninga

10.125.884 ISK (þús. kr.)

7

Fjöldi stöðugilda

Kjarnamarkmiðum náð

410

6 af 8

Flokkunarhlutfall 72% 5

B1 – Basis for preparation

5


Sjálfbærniskýrsla 2024

Viðurkenningar Við í BYKO leggjum okkur fram við að ná árangri út frá þeim markmiðum sem við setjum okkur hverju sinni. Sá árangur og markmið vinna öll að því að við komumst nær framtíðarsýn okkar um að veita bestu heildarupplifun af BYKO, hvort sem það snýr að viðskiptavinum, starfsfólki eða samfélaginu öllu. Við erum þaklátt fyrir þær viðurkenningar sem BYKO hefur hlotið og það traust sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt BYKO í gegnum árin. BYKO hlaut eftirfarandi viðurkenningar á árinu 2024: • Ánægjuvogin – áttunda árið í röð • Sjálfbærniásinn

• Framúrskarandi fyrirtæki – níunda árið í röð • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri – sjöunda árið í röð • Great Place To Work – þriðja árið í röð • Frábær vinnustaður fyrir konur

• Vinnustaður í fremstu röð frá Moodup BYKO var einnig tilnefnt til menntaverðlauna atvinnulífsins og menntasprota atvinnulífsins vegna fræðslustarfs á árinu 2024. Í umfjöllun segir að fyrirtækið skeri sig úr í fræðslu til starfsfólks með nýstárlegri þjálfun og markvissri fræðslu, sem tryggi fyrirtækinu betri þjónustu og bætta upplifun til viðskiptavina. Þessar viðurkenningar eru til marks um að BYKO er á réttri leið í átt að framtíðasýn sinni um að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina, starfsfólks og samfélagsins af BYKO.

B1 – Basis for preparation

6


Sjálfbærniskýrsla 2024

Stefnur BYKO er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingarvörumarkaði fyrir fagfólk og einstaklinga sem eru í framkvæmdahug. Meginstefna fyrirtækisins er að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinarins í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Sjálfbærni er eitt af leiðarstefum í starfsemi BYKO og hefur fyrirtækið innleitt stefnur, markmið og áherslur sem styðja við sjálfbæra framtíð. Byggingar eru ábyrgar fyrir 40% af orkunotkun og 1/3 af losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og getur iðnaðurinn því haft mikil áhrif til hins betra með markvissum aðgerðum og vali á vistvænu byggingarefni. Stefnur félagsins eru í stöðugri endurskoðun og uppfærðar eftir þörfum. Áætlað er að sjálfbærnistefna og umhverfisstefna félagsins verði uppfærðar á árinu 2025 með tilliti til fyrirhugaðrar löggjafar á sviði sjálfbærni.

Sjálfbærnistefna BYKO hefur sett sér heildstæða sjálfbærnistefnu sem byggir á þremur stólpum; umhverfi, félagslegum þáttum og stjórnaháttum ásamt því að byggja á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Umhverfisstefna Umhverfisstefna BYKO ber yfirheitið vistvæn saman sem vísar til þess hvernig félagið vinnur að umhverfismálum í eigin starfsemi og í samstarfi við birgja og viðskiptavini. Með stefnunni leggur BYKO áherslu á að auðvelda viðskiptavinum sínum vistvænar framkvæmdir hvort sem þar snýr að efnisvali, fræðslu og þekkingu eða ráðgjöf þegar kemur að vistvottun bygginga.

Mannauðsstefna Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind fyrirtækja sem ná árangri. Hjá BYKO höfum við sett okkur þá framtíðarsýn að veita fólkinu okkar bestu heildarupplifun af BYKO sem vinnustað. Það gerum við því við vitum að ef fólkið okkar er helgað og ánægt í starfi skilar það sér margfalt í betri þjónustu til viðskiptavina okkar. Félagið hefur sett sér stefnur er snúa að mannauði, jafnrétti- og fjölbreytileika, persónuvernd, EKKO o.fl. Sjáflbærni- og umhverfisstefnu BYKO má skoða í heild sinni hér

B2 – Practices, policies and future initiatives

7


Sjálfbærniskýrsla 2024

Tvöföld mikilvægisgreining Árið 2023 hóf BYKO vinnu við að innleiða ESRS staðalinn (e. European Sustainability Reporting Standard) sem er hluti af sjálfbærnitilskipun Evrópusambandsins (ESB) fyrir stór og/eða skráð félög (e. Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD)) og var þeirri vinnu haldið áfram á árinu 2024. Í byrjun árs 2025 tilkynnti framkvæmdastjórn ESB að hún hygðist endurskoða regluverkið og því er óvíst hvort BYKO komi til með að falla undir viðmið tilskipunarinnar að öllu óbreyttu. ESRS staðallinn gerir kröfu um að fyrirtæki framkvæmi tvöfalda mikilvægisgreiningu (e. double materiality assessment), sem er aðferðarfræði sem notuð er til að veita innsýn í þá þætti sjálfbærni sem eru hvað mikilvægastir fyrir hagaðila og stefnu BYKO til framtíðar. Mikilvægisgreiningin var uppfærð árið 2024 með aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa og yfirlit yfir helstu áhersluatriði fyrirtækisins út frá greiningunni má sjá hér til hliðar. Einnig var framkvæmd gloppugreining til að greina hvað væri það allra mikilvægast fyrir BYKO að leggja áherslu á í komandi sjálfbærnivegferð. Óháð því hvort BYKO komi til með að falla undir regluverkið mun tvöfalda mikilvægisgreiningin ásamt gloppugreiningunni ótvírætt nýtast fyrirtækinu til framtíðar við frekari stefnumótun og áhættustýringu. Við greininguna var virðiskeðjan skoðuð og tekið tillit til þeirra áhrifa sem BYKO veldur eða verður fyrir í henni allri, ásamt því að hagaðilar voru endurskilgreindir. Sjálfbærniviðfangsefnunum var síðan forgangsraðað frá tveimur sjónarhornum; annars vegar áhrifum starfsemi fyrirtækisins á umheiminn og hins vegar fjárhagslegum áhættum og tækifærum tengd sjálfbærni.

B2 – Practices, policies and future initiatives

8


Sjálfbærniskýrsla 2024

Kjarnamarkmið BYKO Kjarnamarkmið BYKO eru skilgreind með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í huga og hefur hvert kjarnamarkmið tengingu við a.m.k. eitt Heimsmarkmið. Kjarnamarkmiðin eru yfirfarin árlega og uppfærð miðað við árangur fyrra árs. Á árinu 2024 náði félagið að uppfylla sex af átta kjarnamarkmiðum sem sett voru. Áfram verður unnið að því að BYKO sem vinnustaður höfði í meira mæli til annarra kynja en karla ásamt því að bæta skráningu á vistvænum vörum í innri kerfum félagsins. Röksemdir fyrir vali á kjarnamarkmiðum og undirmarkmiðum má finna hér. Kjarnamarkmið 2024

Tenging við Heimsmarkmið

Náðist

Upplýsingar

Minnka launamun kynjanna í 1%

Já

Launamunur grunnlauna mældist 0,1% í lok árs 2024

Hlutfall kvenna við nýráðningar verði 35%

Nei

Hlutfall kvenna við nýráðningar var 20% í lok árs 2024

Fjölga hleðslustöðvum fyrir starfsfólk og viðskiptavini

Já

Uppbygging og fjölgun hleðslustöðva hélt áfram á árinu

Auka notkun á endurnýttu plasti til brettapökkunar

Já

Áfram var unnið að því að auka notkun á endurnýttu plasti

Auka hlutfall vistvænna vara í vöruframboði í 30%

Nei

Vinna hélt áfram við að skilgreina vöruflokka og skráningu í kerfi

Auka umhverfisgögn í vöruleit á vef

Já

Átaksverkefni var sett af stað seinni hluta árs 2024

Draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda

Já

Áfram var unnið að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi BYKO

Greining á aðfangakeðju BYKO

Já

Vinna hófst við að greina aðfangakeðju BYKO B2 – Practices, policies and future initiatives

9


Sjálfbærniskýrsla 2024

Kjarnamarkmið BYKO 2025 Uppfærð kjarnamarkmið með tilliti til árangurs árið 2024 má sjá hér að neðan þar sem sérstök áhersla verður á að aðlaga og ná þeim markmiðum sem ekki náðust á árinu 2024, þ.e. hlutfalli kvenna í nýráðningum og skráningu á vistvænum vörum í innri kerfum. Markmiði um launamun kynjanna verið breytt úr 1% í 3% (samkvæmt ráðleggingum frá utanaðkomandi ráðgjafa) og byggir það fyrst og fremst á ójafnri kynjaskiptingu innan starfahópa. Kjarnamarkmið 2025

Tenging við Heimsmarkmið

Að launamunur kynja verði minni en 3% Hlutfall kvenna við nýráðningar verði 25% Fjölga hleðslustöðvum fyrir starfsfólk og viðskiptavini

Auka notkun á endurnýttu plasti til brettapökkunar Vöruframboð taki til 97% af því sem þarf til að byggja vistvænt hús* Auka umhverfisgögn í vöruleit á vef

Draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda Áframhaldandi greining á aðfangakeðju BYKO 10

B2 – Practices, policies and future initiatives

*Fyrra markmið aðlaga: Auka hlutfall vistvænna vara í vöruframboði í 30%

10


UMHVERFISÞÆTTIR 11


Sjálfbærniskýrsla 2024

Losun gróðurhúsalofttegunda Loftslagsbreytingar hafa óneitanlega áhrif á rekstur BYKO og því leggjum við áherslu á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eins og kostur er.

Heildarlosun BYKO (tCO2í)

Hér til hliðar má sjá heildarlosun BYKO árið 2024 sem var 4.101 tonn af koltvísýrings ígildum (tCO2í). Heildarlosun lækkaði um 12% á milli ára og má það helst rekja til minna umfangs í vöruflutningum.

Ár

2024

2023

2022

Umfang 1

235

244

285

BYKO hefur mesta stjórn á losun í umfangi 1, en þar undir fellur bein losun frá starfsemi fyrirtækisins. Umfang 2 felur í sér óbeina losun vegna orkunotkunar (rafmagn og hiti) og umfang 3 inniheldur óbeina losun í virðiskeðju. Stærsti hluti losunar BYKO fellur undir umfang 3. Allar losunartölur eru miðaðar við losunarstuðla frá Klöppum, að vöruflutningum undanskildum.

Eldsneyti

235

244

285

Umfang 2

104

101

75

Raforka

26

29

26

Upphitun

78

73

49

Umfang 3

3.762

4.293

4.550

Flugferðir

103

40

31

Vöruflutningar

3.586

4.174

4.299

Meðhöndlun úrgangs

73

80

220

Heildarlosun

4.101

4.639

4.910

Heildarlosun vegna flugferða hefur hækkað töluvert milli ára en kostnaður vegna flugferða fylgir ekki sömu aukningu. Áætla má að aukningu sé vegna eftirfylgni með verklagi við bókun og betra utanumhald með ferðum innanlands með beinni tengingu við gögn (Klappir). Losun BYKO eftir umföngum 2% 6%

92%

Umfang 1

Umfang 2

Umfang 3

B3 – Energy and greenhouse gas emissions

12


Sjálfbærniskýrsla 2024

Orkunotkun Byggingar eru ábyrgar fyrir um 40% orkunotkunar á heimsvísu. Sem hluti af virðiskeðju mannvirkja leggur BYKO metnað sinn í að hámarka orkunotkun og hlutfall endurnýjanlegrar orku í eigin rekstri auk þess að bjóða markaðnum upp á vistvæn byggingarefni. Einnig hefur félagið byggt nýjar höfuðstöðvar skv. BREEAM staðli og framkvæmt endurbætur á eldra húsnæði í samræmi við kröfur Svansins. Gert er ráð fyrir að vottun fyrir báðar byggingar fáist staðfest á rekstrarárinu 2025. Eldsneytisnotkun BYKO hélt áfram að dragast saman á milli ára samhliða aukinni raforkunotkun. Notkun á heitu vatni jókst lítillega á milli ára, samhliða því að ný skrifstofubygging var tekin í notkun. Þetta eru jákvæðar tölur og endurspegla áherslur BYKO í orkuskiptum.

Orkunotkun BYKO árið 2024

13

2024

2023

Eldsneyti (kg)

61.334

81.849

Rafmagnsnotkun (kWh)

2.934.452

2.814.658

Heitt vatn (m3)

176.668

167.895

B3 – Energy and greenhouse gas emissions

B6 – Water

Setja mynd hér? Sveinborg athugar


Sjálfbærniskýrsla 2024

Úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi Hringrásarhugsun BYKO

Flokkun úrgangs

Hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins gengur út á að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi með áherslum sem tryggja að hægt sé að viðhalda verðmætum þeirra eins lengi og mögulegt er.

Grafið hér að neðan sýnir flokkunarhlutfall BYKO á árinu 2024. Síðastliðin ár hefur BYKO unnið með ýmsum utanaðkomandi aðilum að því að úrgangur sem verður til vegna starfsemi félagsins sé nýttur í hin ýmsu hringrásarverkefni.

BYKO leggur áherslu á hringrásarhagkerfið í sinni starfsemi á fjölbreyttan hátt. Þar má nefna BYKO Leigu, þar sem hægt er að leigja ýmis tæki og tól. BYKO leiga selur einnig úrval aukahluta fyrir rafmagnsverkfæri ásamt því að reka þjónustuverkstæði. Leigustarfsemi samræmist vel hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins og með aukinni umræðu um nýtingu og neyslu vonast BYKO til þess að sífellt fleiri sjái kosti þess að leigja verkfæri og önnur tól fyrir tilfallandi verkefni.

Heildarmagn úrgangs var rúm milljón kíló og minnkaði úrgangsmagn frá starfseminni um rúm 15 þúsund kíló á milli ára. Flokkunarhlutfall dróst aftur á móti ögn saman á milli ára. Árið 2024 var flokkunarhlutfall úrgangs 71,6% miðað við 75,3% árið 2023. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda vegna úrgangs á árinu var 73,2 tCO2í. Allar úrgangstölur birtast í gegnum rafrænt umhverfisbókhald Klappa þar sem hægt er að fylgjast með, greina sóun og bregðast við með aðgerðum.

BYKO leggur áherslu á fræðslu til starfsfólks um mikilvægi úrgangsflokkunar, hvernig hægt er að endurvinna og endurnýta ákveðna úrgangsflokka og stuðla þannig að aukinni hringrás hráefna. Í kjölfar umfangsmikillar úrgangsgreiningar sem ráðist var í árið 2022 voru gerðar ýmsar úrbætur á úrgangsmálum innan fyrirtækisins. Í lok árs 2024 var undirritaður samningur við nýjan þjónustuaðila í tengslum við vinnslu á úrgangi. Hluti af samstarfinu er að efla enn frekar vitneskju meðal starfsfólks BYKO á mikilvægi flokkunar og þeirra áhrifa sem virkt hringrásarkerfi getur haft.

Að lokum má nefna aðgerðir til að minnka plastnotkun í plöstun vörubretta. Tekin hefur verið upp notkun á plastfilmu sem er 30% endurunnin og hefur 24% lægra kolefnisfótspor en hefðbundin plastfilma. 14

B7 – Resource use, circular economy and waste management

Flokkunarhlutfall 2024

28%

1.021.065 kg 72%

Flokkaður úrgangur

Óflokkaður úrgangur


Sjálfbærniskýrsla 2024

Vistvænt BYKO Vistvænt vöruframboð Í gegnum umhverfisstefnu fyrirtækisins, Vistvæn sama, leggur BYKO áherslu á að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á vistvænt vöruframboð. BYKO var fyrst framleiðanda til að hljóta Svansvottun á gluggum sem eru framleiddir sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Einnig hefur félagið hlotið FSC og PEFC rekjanleika vottun fyrir timbur sem er skilyrði til samþykktar í Svansvottun, BREEAM og LEED.

Nýjar höfuðstöðvar BYKO – BREEAM og Svanurinn Nýjar og endurbættar höfuðstöðvar félagsins voru teknar í notkun á árinu 2024. Til þess að öðlast meiri þekkingu á virkni umhverfisvottana húsa og því ferli sem fylgir var ákveðið að sækjast eftir BREEAM vottun á nýbyggingu og Svansvottun á enduruppgerð á eldra húsnæði. Unnið er að vottun beggja bygginga og gert ráð fyrir að vottanir fáist staðfest á árinu 2025.

Samhliða þessu hefur verið lögð mikil áhersla á að skapa þekkingu á vistvottunarkerfum fyrir byggingar til þess að mæta auknum kröfum markaðarins, veita ráðgjöf og aðstoða viðskiptavini sem vilja byggja vistvænt. BYKO getur boðið viðskiptavinum sínum vörur í öllum vöruflokkum sem henta til bygginga sem votta á samkvæmt Svaninum, BREEAM og LEED vottunarkerfunum og koma snemma að hönnunarferlinu með þekkingu á hentugum lausnum fyrir vistvænar byggingar.

15

15


Sjálfbærniskýrsla 2024

Líffræðileg fjölbreytni Starfsemi í nálægð við vernduð svæði

Skógrækt

BYKO rekur verslanir á Akureyri, Kópavogi, Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og Suðurnesjum. Verslun BYKO við Óðinsnes 2 á Akureyri er staðsett í nálægð við Krossanesborgir, sem eru friðlýstar sem fólkvangur. Lóðin Óðinsnes 2 er 1.8 hektari að stærð og verslun BYKO er um 6500m2. Tekið skal fram að verslunin er staðsett á skilgreindu athafnasvæði fyrir blandaða atvinnustarfsemi og ekkert sem bendir til þess að hún hafi neikvæð áhrif á nærliggjandi svæði.

BYKO hefur frá árinu 1987 stundað skógrækt en þá hófu eigendur og starfsfólk árlega gróðursetningu á Drumboddsstöðum II í Biskupstungum. Skógræktin gerði úttekt á landinu árið 2019 og áætlaði að árleg binding svæðisins væru að jafnaði um 1200 tonn CO2 á ári.

16

B5 – Biodiversity

16


FÉLAGSLEGIR ÞÆTTIR 17


Sjálfbærniskýrsla 2024

Eigið starfsfólk Mannauður

Jafnréttismál

Starfsfólk BYKO er verðmætasta auðlind fyrirtækisins. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðspor, sterka ímynd og vinnustað sem fólkið okkar mælir með. Hér að neðan má sjá lykiltölur ársins 2024 er snúa að mannauði fyrirtækisins. Ein helsta áskorun sem snýr að mannauði er að fjölga öðrum kynjum en körlum innan fyrirtækisins. Hlutfall kvenna í fyrirtækinu lækkaði um eitt prósent á milli ára. Ástæða þess að heildarfjöldi starfsfólks lækkar á milli ára er breytt aðferðafræði í talningu svo að talan endurspegli betur þann fjölda sem starfar að meðaltali hjá fyrirtækinu á hverjum tíma.

Jafnréttismál skipta BYKO höfuðmáli, en byggingargeirinn hefur í gegnum tíðina verið álitinn karllægur og er það okkar samfélagslega ábyrgð að stuðla að auknum fjölbreytileika og jafnrétti.

Kynjaskipting starfsfólks 22%

Fjöldi starfsfólks

584

78%

Starfsmannavelta Karlar

Konur

BYKO hlaut jafnlaunavottun í febrúar 2020 og hefur staðist árlegar úttektir frá vottun. Launamunur grunnlauna árið 2024 mældist 0,1% konum í óhag sem er veruleg lækkun frá fyrra ári þegar munurinn mældist 2,9%. Það er ánægjulegt að sjá þetta hlutfall lækka ár frá ári og endurspeglar áherslur BYKO í málaflokknum. BYKO starfar eftir jafnréttis- og fjölbreytileikaáætlun félagsins þar sem lögð er áhersla á að starfrækja vinnustað fyrir öll. Við trúum því að með auknum fjölbreytileika meðal starfsfólks muni það skila okkur betri árangri fyrir BYKO til framtíðar. BYKO hefur undanfarin ár ýtt undir frekari nýtingu starfsfólks á rétti til foreldraog/eða fæðingarorlofa með því að styðja það fjárhagslega meðan á nýtingu stendur. Frá því að BYKO hóf greiðslu á styrkjum höfum við séð aukningu í fjölda karla sem kjósa að fara í orlof. Í framkvæmdastjórn félagsins eru fjórir karlar og ein kona. Árið 2023 var fækkað um eitt stöðugildi í framkvæmdastjórn sem varð til þess að kynjahlutföll uppfylltu ekki skilyrði Jafnvægisvogarinnar um að hlutfall milli kynja í framkvæmdastjórn sé að minnsta kosti 40/60. Því hefur BYKO ekki fengið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar undanfarin tvö ár (2023 og 2024) en félagið hafði áður fengið árlega viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar frá undirritun samstarfs árið 2019.

30%

B8 – Workforce – General characteristics

B10 – Workforce – Remuneration, collective bargaining and training

18


Sjálfbærniskýrsla 2024

Eigið starfsfólk Fræðsla og þjálfun

Heilsu- og öryggismál

BYKO hefur frá árinu 2019 unnið markvisst að því að auka fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Heilsu- og öryggismál voru, líkt og undanfarin ár, áherslumál BYKO á liðnu ári.

Á árinu 2024 héldum við áfram að vinna að þróun og nýsköpun í fræðslu þar sem vinnsla á fræðsluefni fyrir sýndarveruleika hófst og byrjað var að útbúa verklega kennslustofu fyrir starfsfólkið okkar.

Við héldum áfram að hvetja starfsfólk til að huga að andlegri og líkamlegri líðan ásamt því að benda á upplýsingar, tæki og tól sem gætu gagnast þeim á þeirri vegferð. Þar á meðal má nefna líkamsræktar-, samgöngu og velferðarstyrki, flensusprautu, aðgengi að trúnaðarlækni og velferðarþjónustu.

Við trúum því að með því að leggja aukna áherslu á verklega þjálfun hvort sem það er í raunheimum eða í tæknilegri útfærslu s.s. með sýndarveruleika erum við að tryggja að fólkið okkar nái sem mestum upplýsingum á þeim tíma sem þau nýta til þjálfunar.

Árið 2024 var heildarfjöldi áverka og slysa 17 talsins eða 3% af heildarfjölda starfsmanna. Slysum hefur fjölgað um níu frá árinu 2023 en fækkað um eitt frá árinu 2022.

Á árinu 2024 sinnti hver og einn starfsmaður að meðaltali 1,28 klst í rafrænni fræðslu i BYKO skólanum. BYKO hlaut á árinu 2024 tilnefningu til menntaverðlauna og menntasprota atvinnulífsins fyrir fræðslustarf félagsins á árinu 2024.

19

B9 – Workforce – Health and safety

B10 – Workforce – Remuneration, collective bargaining and training

19


Sjálfbærniskýrsla 2024

Samfélagsleg áhrif Samfélagssjóður BYKO

Þátttaka í nýsköpun

BYKO leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð í verki og leitast við að styðja við verkefni sem samræmast stefnu félagsins, gildum og þeim heimsmarkmiðum sem félagið starfar eftir. Samfélagssjóður BYKO hefur það að markmiði að styðja við verkefni sem samræmast áherslum BYKO í sjálfbærni og þeim Heimsmarkmiðum sem BYKO starfar eftir. Fjöldi umsókna bárust í sjóðinn árið 2024 og fengu eftirfarandi verkefni úthlutun á liðnu ári: Frú Ragnheiður, Píeta samtökin, RATA hugmyndasmiðir, Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar og Körfuknattleiksdeild Selfoss.

BYKO hefur einnig haldið áfram í fjölbreyttum nýsköpunarverkefnum, bæði til að styðja við bakið á frumkvöðlum og ekki síður til að skapa og miðla þekkingu út á markaðinn til að hafa áhrif til betri vegar.

BYKO hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Pikkoló – sjálfbæra þróun kaupmannsins á horninu. Pikkoló stöðvarnar eru kældar sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir matvöruverslanir á netinu. Viðskiptavinir geta pantað vörur frá ýmsum verslunum og nálgast þær svo í vistvænt kældum stöðvum sem nú eru komnar víða á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið stöðvanna er að draga úr umferð og losun sem henni fylgir. Samstarf BYKO og Pikkoló felur í sér að BYKO útvegar húsin sem hýsa sjálfsafgreiðslustöðvarnar. Árið 2020 hóf BYKO samstarf við Visthönnun sem reisir Svansvottað einbýlishús í Hafnafirði. Húsið er byggt úr CLT einingum og rík áhersla lögð á að sem mest af efninu sé vottað. Verkefnið er enn í vinnslu. Hlutverk BYKO er að veita faglega ráðgjöf við vistvæn byggingarefni. Einnig var BYKO í samstarfi við Plastplan á árinu um endurnýtingu á plasti sem til kemur vegna rekstrar félagsins. Það samstarf skilaði m.a. af sér málningarhrærum og sparsl spöðum sem viðskiptavinum bauðst sér að kostnaðarlausu.

Frá úthlutun Samfélagssjóðs BYKO árið 2024

20


Sjálfbærniskýrsla 2024

Starfsfólk í virðiskeðju Mat á birgjum BYKO er annt um að starfsfólk í virðiskeðju fyrirtækisins starfi við góðar vinnuaðstæður. Við viljum að hugað sé að heilsu og öryggi þess og að nauðungarvinna og/eða barnaþrælkun sé ekki stunduð. Þegar BYKO velur birgja þá horfir fyrirtækið til sjálfbærni og umhverfismála og hvernig og hversu langt birgjar eru komnir í sjálfbærni. Vöruúrval birgja hefur að hluta til verið greint með hliðsjón af því hvort vörurnar séu leyfilegar í Svansvottuð hús eða önnur vottunarkerfi eins og BREEAM. Birgjasamsetning hefur verið skoðuð út frá landfræðilegri staðsetningu þeirra. Langstærstur hluti birgja BYKO eru staðsettir innan EES svæðisins.

BYKO vinnur nú að undirbúningi á greiningu á einstaka birgjum út frá sjálfbærniviðmiðum svo sem nauðungar- eða barnavinnu. BYKO er aftur á móti aðili að innkaupasamstarfsnetinu BRICO Alliance, en skoðunaraðilar á þeirra vegum áskilja sér rétt til að heimsækja verksmiðjur í Kína sem eru að framleiða vörur fyrir aðila innan BRICO hvenær sem er á framleiðslutímanum til að meta starfsaðstæður og hvort það leiki grunur á að stunduð sé nauðungarvinna eða barnaþrælkun.

21

21


STJÓRNARHÆTTIR

22


Sjálfbærniskýrsla 2024

Skipurit Skipurit félagsins byggir á fimm sviðum: • • • • •

Smásölusvið Fyrirtækjasvið Markaðs-og vörustjórnunarsvið Rekstrarsvið Mannauður og stefna

Sölusvið eru tvö og stoðsviðin þrjú hvert með sína sérhæfingu í þjónustu við innri og ytri viðskiptavini. Nánari útlistun á sérhæfingu og ábyrgð má sjá á myndinni hér til hliðar.

24

24


Sjálfbærniskýrsla 2024

Stjórnskipulag og skipurit Stjórn BYKO samanstendur af fimm einstaklingum. Stjórnina skipa: • Guðmundur Halldór Jónsson, stjórnarformaður • Jón Helgi Guðmundsson • Iðunn Jónsdóttir • Gísli Jón Magnússon • Anna Rún Ingvarsdóttir Stjórnin leggur áherslu á góða stjórnarhætti og hefur sett sér starfsreglur þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Starfsreglurnar byggja á leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum atvinnulífsins. Stjórnarhættir BYKO byggja á starfsreglum stjórnar, samþykktum félagsins og lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Gildandi starfsreglur voru samþykktar á stjórnarfundi þann 10. júní 2020. Stjórnarháttayfirlýsingu í heild sinni má finna í ársreikningi 25 félagsins.

Framkvæmdastjórn BYKO er skipuð fimm reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn sem saman mynda öfluga heild. Framkvæmdastjórn skipa: • • • • •

Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri Bragi Þór Antoníusson Eggert Kristinsson Haraldur Bergsson Hulda Júlíana Jónsdóttir

Stjórn BYKO tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir, þar með talið ákvarðanir sem tengjast sjálfbærni. Mannauðs- og stefnustjóri ber ábyrgð á innleiðingu sjálfbærni, umhverfismálum og félagslegum þáttum sjálfbærni. Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs ber ábyrgð á stoð sjálfbærninnar sem tilheyrir stjórnarháttum. Forstjóri er ábyrgur fyrir sjálfbærnistefnu BYKO. 25


Sjálfbærniskýrsla 2024

Viðskiptasiðferði BYKO rekur öfluga öryggisdeild sem heldur vel utan um málefni sem varða viðskiptasiðferði.

Áhættumat og hætta á spillingu BYKO gerir úttektir á helstu áhættuatriðum í rekstri fyrirtækisins á sex mánaða fresti. Helstu áhættuþættir sem hafa verið greindir í þessum úttektum eru misnotkun afsláttar í sölukerfi, misferli starfsmanna, aðgangur óviðkomandi að lagersvæðum og svikatilraunir í gegnum tölvupóst og netsamskipti. Fyrirtækið leggur áherslu á að minnka möguleg misferli á ýmsan máta. Öryggismyndavélum hefur verið komið upp á öllum starfsstöðvum þar sem slíkt er heimilt út frá persónuverndarsjónarmiðum. Stjórnendur, næstráðendur og lykilstarfsmenn hafa fengið fræðslu um verklagsreglur gegn spillingu. Fjórir birgjar hafa verið í samstarfi við BYKO til að greina mögulega áhættu á svikastarfsemi auk þess sem hluti verktaka sem annast störf á athafnasvæði BYKO hafa fengið fræðslu varðandi áhættu á spillingu.

26

26


VIÐAUKI

27


Sjálfbærniskýrsla 2024

VSME TILVÍSUNARTAFLA 2024 Tilvísun

Lýsing

Uppfyllt?

Tilvísun/athugasemdir

Selected reporting option

Að fullu

Um skýrsluna bls. 4

24. (b)

Disclosures omitted due to classified or sensitive information

Á ekki við

24. (c)

Reporting on an individual or a consolidated basis

Að fullu

Subsidiaries covered in the report

Á ekki við

B1 – Basis for preparation 24. (a)

24. (d) 24. (e)

General information about the undertaking

25. Sustainability-related certifications or labels B2 – Practices policies and future initiatives for transitioning towards a more sustainable economy

Um skýrsluna bls. 4

Að hluta*

Árið 2024 í tölum bls. 5. *Rekstrartölur eru birtar í íslenskum krónum en ekki Evrum líkt og staðallinn kveður á um. BYKO ehf. Er íslenskt einkahlutafélag og öll starfsemi þess er á Íslandi. Meginstarfsemi BYKO fellur undir kóða G46 og G47 atvinnugreinaflokkunar Evrópusambandsins (NACE).

Að fullu

Viðurkenningar bls. 6

26.

Practices, policies and future initiatives

26. (a)

Practices

Að fullu

Stefnur bls. 7

26. (b)

Policies

Að hluta

Stefnur bls. 7

26. (c)

Future initiatives

Að fullu

Tvöföld mikilvægisgreining bls. 8

26. (d)

Targets

Að fullu

Kjarnamarkmið BYKO bls. 9 & 10

27.

Reducing negative impacts and enhancing positive impacts

Að fullu

Tvöföld mikilvægisgreining bls. 8

29.

Total energy consumption in MWh*

Að fullu

Orkunotkun bls. 13. *BYKO birtir orkunotkun í kWh og eldsneytisnotkun í kg.

30. (a)

Scope 1 GHG emissions in tCO2eq

Að fullu

Losun gróðurhúsalofttegunda bls. 12

30. (b)

Location-based Scope 2 emissions in tCO2eq

Að fullu

Losun gróðurhúsalofttegunda bls. 12

31.

GHG intensity

Að fullu

Losunarkræfni BYKO á árinu var 0,137 tCO2í á hverjar milljón krónur í heildartekjur

Mandatory and voluntary pollutant emissions disclosure

Á ekki við

B3 – Energy and greenhouse gas emissions

B4 – Pollution of air, water and soil 32.

28


Sjálfbærniskýrsla 2024

VSME TILVÍSUNARTAFLA 2024 Tilvísun

Lýsing

Uppfyllt?

Tilvísun/athugasemdir

33.

Sites near biodiversity-sensitive areas

Að fullu

Líffræðileg fjölbreytni bls. 16

34. (a)

Total use of land

Ekki þörf á að birta

34. (b)

Total sealed area

Ekki þörf á að birta

34 (c)

Total nature-oriented area on-site

Ekki þörf á að birta

34 (d)

Total nature-oriented area off-site

Ekki þörf á að birta

35.

Total water withdrawal

Að hluta

36. B7 – Resource use, circular economy and waste management

Water consumption for high-usage production processes

Á ekki við

37.

Úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi bls. 14

38. (a)

Application of circular economy principles Að fullu Total annual generation of waste broken down by non-hazardous and Að hluta hazardous

38. (b)

Total annual waste diverted into recycling or reuse

Að fullu

Úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi bls. 14

38. (c)

Annual mass-flow of relevant materials used (in high-usage sectors)

Á ekki við

B5 – Biodiversity

B6 - Water

Orkunotkun bls. 13. Einungis eru birtar tölur um notkun á heitu vatni.

Úrgangsstjórnun og hringrásarhagkerfi bls. 14. Ekki eru birtar tölur um hlutfall hættulegs og hættulauss úrgangs

B8 – Workforce – General characteristics 39.

Number of employees in headcount or FTE for the following metrics:

39. (a)

Type of employment contract (temporary or permanent)

Ekki uppfyllt

Bæta þarf verklag og skráningu í kerfi við ráðningu svo gögn séu áreiðanleg. Tímabundnar ráðningar eru sjaldgæfar og þá helst yfir sumar.

39. (b)

Gender

Að fullu

Eigið starfsfólk – mannauður bls. 18

39. (c)

Country of employment contract

Á ekki við

40. (d)

Employee turnover

Að fullu

Eigið starfsfólk - mannauður bls. 18

29


Sjálfbærniskýrsla 2024

VSME TILVÍSUNARTAFLA 2024 Tilvísun

Lýsing

Uppfyllt?

Tilvísun/athugasemdir

Number and rate of recordable work-related accidents Number of fatalities as a result of work-related injuries and workrelated health

Að fullu

Eigið starfsfólk – Heilsu- og öryggismál bls. 19

Að fullu

Engin dauðsföll má rekja til vinnuslysa eða óheilnæms vinnuumhverfis hjá BYKO.

42. (a)

Compliance with minimum wage standards for employees

Að fullu

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningum á hverjum tíma.

42. (b)

The percentage gap in pay between its female and male employees Að fullu The percentage of employees covered by collective bargaining Að fullu agreements The average number of annual trainings hours per employee, broken Að hluta down by gender

Eigið starfsfólks - Jafnréttismál bls. 18

Convictions and fines related to anti-corruption and anti-bribery laws Á ekki við

BYKO hefur ekki hlotið sektir vegna brots á lögum um samkeppnishæfni, spillingu og mútur, eða öðru sambærilegu.

B9 – Health and safety 41. (a) 41. (b) B10 – Workforce – Remuneration, collective bargaining and training

42. (c) 42. (d) B11 – Convictions and fines for corruption and bribery

43.

100% starfsfólks fyrirtækisins fellur undir kjarasamninga Eigið starfsfólk – fræðsla og þjálfun bls. 19. Ekki er markvisst haldið utan um skráningu á öðrum fræðslustundum en í rafræna BYKO skólanum og nýliðaþjálfun né hvernig fræðslustundir skiptast milli kynja..

30


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sjálfbærniskýrsla 2024 by BYKO ehf - Issuu