Sjálfbærniskýrsla 2023
1
Sjálfbærniskýrsla 2023
Efnisyfirlit 1. Fyrirtækið 2. Sjálfbærni 3. Umhverfisþættir 4. Félagslegir þættir 5. Stjórnarhættir 6. Yfirlitstöflur
2
Fyrirtækið
3
Sjálfbærniskýrsla 2023
Ávarp forstjóra Aukin lífsgæði og komandi kynslóðir
Sigurður Brynjar Pálsson – Forstjóri BYKO
„Við í BYKO fylgjum okkar skýru stefnu í sjálfbærni þar sem við leggjum áherslu á umhverfislega- félagslega- og efnahagslega sjálfbærni í okkar daglega rekstri. Við gerum okkur grein fyrir okkar ábyrgð þegar horft er til byggingariðnaðarins sem er ein af undirstöðu atvinnugreinum þjóðarinnar. Horfa má til að í kringum 8% af landsframleiðslu kemur frá þessari atvinnugrein og að jafnaði starfa um 20.000 manns í greininni. Ef litið er til alls iðnaðar á Íslandi þá stendur hann undir rétt rúmlega 25% af landsframleiðslu. Byggingariðnaðurinn er hins vegar einn mest mengandi iðnaður á heimsvísu þar sem honum fylgir mikil auðlindanotkun, losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs.
Tölur sýna að rekja megi um helming auðlindanýtingar í Evrópu og allt að 40% losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu til iðnaðarins. Kolefnislosun frá byggingariðnaði er áætluð um 360.000 tonn CO₂ ígilda á ári og 45% af kolefnisspori íslenskra bygginga má rekja til innlendrar og erlendrar framleiðslu byggingarefna. Stærsti hluti kolefnisspors íslenskra bygginga stafar þannig frá byggingarefnum og hefur iðnaðurinn, í samvinnu við stjórnvöld, sett sér þau markmið að draga úr árlegri kolefnislosun bygginga á Íslandi um 43% fyrir árið 2030. BYKO skrifaði undir loftlagsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Festu árið 2021 um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með aðgerðum en með markvissum aðgerðum til langs tíma náum við saman að hafa áhrif, draga úr kolefnisspori frá rekstri og mynda bindingu á sama tíma með mótvægisaðgerðum. Af ástæðu höfum við hjá BYKO ekki sett okkur eiginleg markmið um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, það er liður í vegferðinni að setja sér raunhæf mælanleg markmið, unnin með sérfræðingum, að greina hvaða fleiri aðgerðir fyrirtækið getur farið í og raunverulega náð þeim markmiðum sem sett eru um hlutleysi. BYKO vinnur engu að síður út frá þeirri sýn að kolefnisjafna starfsemi sé gilt og gott markmið en setja þarf markið hærra, byggt á þeirri staðreynd að skuld við fortíðina stendur eftir sem áður. Stefna BYKO er því að draga úr losun eða þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirtækið hefur á umhverfið eins mikið og hægt er og binda það sem eftir stendur. Við í BYKO viljum vera leiðandi afl þegar kemur að vistvænum áherslum í byggingariðnaði, hvatarnir fyrir vistvænum byggingum er margir. Í fyrsta lagi viljum við ekki skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta sínum þörfum. Í öðru lagi er um að ræða fjárhagslegan og þá um leið arðbæran hvata að byggja vistvænni byggingar. Niðurstöður ýmissa rannsókna hafa sýnt að vistvottaðar byggingar eru verðmætari, hafa betri ímynd og bera lægri rekstrarkostnað á líftímanum. Í þriðja lagi er heilsufarslegur hvati, minni notkun skaðlegra og heilsuspillandi efna í byggingarvörum stuðlar að heilnæmara umhverfi.
Ein af stærstu áskorunum verslunar og þjónustu í dag er að innleiða sjálfbærni í allri aðfangakeðjunni. Verslunin er hlekkur aðfangakeðjunnar sem tengir saman birgja, framleiðendur og viðskiptavini, þar sem viðhorf og neysluvenjur fólks eru stöðugt að breytast, fólk gerir auknar kröfur til fyrirtækja. Áskoranirnar eru því margar og ein af þeim er að rýna dýpra í aðfangakeðjuna og setja nýjar áherslur, mikilvægt er að horfa á hringrásarhagkerfið, að vörur sem keyptar eru inn séu í vistvænni umbúðum sem auðvelt er að endurvinna og/eða endurnýta áfram. Sjálfbærni hefur í för með sér breytt viðhorf fólks til hegðunar og atferlis sem hefur þá um leið áhrif á menningu samfélaga. Félagslegi þáttur sjálfbærninnar tengir okkur við þau miklu verðmæti sem mannauðurinn felur í sér. Okkar staðfasta trú er sú að fjölbreytileikinn leiði okkur að betri niðurstöðu, sem felur í sér jafnrétti óháð kynþáttum, uppruna, kynhegðun, trú, stöðu eða stétt. Okkar mat er að augljósasta leiðin að góðu fólki er að vera góður vinnustaður með sjálfbærni að leiðarljósi. BYKO hefur síðustu árin haft heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Þar er unnið eftir kjarnamarkmiðum sem samræmast hlutverki, kjarnastarfsemi og þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækið telur sig þurfa standa við og þá um leið getur haft áhrif á. Það er von okkar að skýrslan veiti öðrum innblástur en ekki síður að lesendur hafi samband og komi með tillögur um það hvernig við getum bætt okkur enn meira. Saman náum við árangri og slagorðið okkar á vel við í þessum efnum, „Gerum þetta saman.““
4
Sjálfbærniskýrsla 2023
Sjálfbærniskýrsla 2023 BYKO gefur í fimmta sinn út sjálfbærniskýrslu í samræmi við meginatriði (core) í viðmiðum Global Reporting Inititative (GRI) og styðst skýrslan við viðmið GRI Standards sem tóku í gildi 1.júní 2018. Undirbúningur er hafinn við að innleiða evrópskar reglugerðir (CSRD) og stefnir fyrirtækið á að færa skýrslugerð alfarið í ESRS staðalinn. Sem hluti af þeirri undirbúningsvinnu var gerð tvöföld mikilvægisgreining á árinu og helstu þættir skilgreindir sem við koma rekstrinum. Með mikilvægisgreininguna til hliðsjónar hefur uppröðun skýrslunnar verið breytt og kaflar endurspegla nú betur flokkun eftir mikilvægisgreiningu. Í skýrslunni er gerð grein fyrir rekstri starfstöðva BYKO en fyrirtækið rekur verslanir á Akureyri, Suðurnesjum, Selfossi, Reykjavík og Kópavogi. Í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir rekstri vöruhúsa í umsjón BYKO, þ.e. í Kjalarvogi og rekstri vörulagers BYKO Leigu, sem er staðsett að Selhellu Hafnafirði. Vöruhúsaþjónusta sem BYKO úthýsir til 3ja aðila, Bakkinn, er ekki hluti af skýrslunni. Vöruflutningar til landsins eru hluti umfangi skýrslunnar en ekki forflutningar erlendis. Flutningar á milli starfsstöðva BYKO eru einnig hluti skýrslunnar en ekki vöruflutningar til viðskiptavina.
Skýrslan afmarkast þannig við starfsemi BYKO en ekki móður- eða systurfélaga. BYKO á einnig 25% hlut í Steinullarverksmiðjunni hf. og 51% hlut í Fasteignafélaginu Smiðjuvöllum 9 ehf. en þau eru utan viðfangs þessarar skýrslu. Allar upplýsingar í skýrslunni eiga við um árið 2023 nema annað sé tekið fram. Fjárhagslegar upplýsingar í skýrslunni eru fengnar úr endurskoðuðum ársreikningi BYKO. Umhverfisupplýsingar voru fengnar gegnum gagnagátt Klappa frá birgjum BYKO. Tölur frá Klöppum voru bornar saman við upplýsingar frá birgjum. Upplýsingar vegna flutninga eru frá viðkomandi flutningsfyrirtæki. Gerð er grein fyrir frávikum í upplýsingum og útreikningum þar sem það á við, undir hverjum mælikvarða fyrir sig. Samfélagsupplýsingar, þar með talið mannauður eru fengnar úr innri kerfum BYKO.
5
Sjálfbærniskýrsla 2023
Um fyrirtækið BYKO var stofnað árið 1962 af þeim Guðmundi H. Jónssyni og Hjalta Bjarnasyni þar sem þeir opnuðu 135 fermetra byggingavöruverslun við Kársnesbraut í Kópavogi. Í upphafi var einungis verslað með grófa vöru en innan árs var opnuð þar smávöruverslun. Síðan þá hefur BYKO verið leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingavörumarkaði sem þjónustar einstaklinga og fagaðila í byggingariðnaði. BYKO rekur byggingarvöruverslanir í Kópavogi, Reykjavík, Reykjanesbæ, Selfossi og Akureyri. BYKO rekur einnig leigumarkað og vöruhús á Selhellu Hafnafirði, lagnadeild og vöruhús í Kópavogi og timburverslanir. Hægt er að nálgast yfirlit yfir verslanir á heimasíðu BYKO.
6
Sjálfbærniskýrsla 2023
Stefna BYKO Stefna BYKO er að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinarins í framkvæmdum og fegrun heimilisins. BYKO vinnur með sjálfbærni að leiðarljósi, horfir til framtíðar í átt að hringrásarhagkerfi og endurspeglar myndin starfsemina allt frá umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum.
7
Sjálfbærniskýrsla 2023
Helstu breytingar Nýtt skipurit tók gildi í ágúst 2023. Breytingin fólst í því að framkvæmdastjóri framþróunarsviðs lét af störfum og nýtt sameinað svið mannauðs og stefnu varð til, við þessar breytingar fluttust markaðs- og vefteymi undir vörustýringarsvið og verkefnastjórn framþróunarsviðs sameinaðist mannauðssviði. Aðrar breytingar voru ekki gerðar á skipuriti fyrirtækisins. Ný og endurbætt þjónustustefna var kláruð og komið í innleiðingarferli ásamt því að skilgreind voru verkefni til þjálfunar starfsmanna svo sem verklegt kennslurými. Nýr vefur fór í loftið í maí sem hafði í för með sér ýmsar áskoranir. Vefurinn virkaði ekki sem skyldi en meðal þess sem skilaði sér ekki á vefinn í fyrstu voru sjálfbærniupplýsingar, vottanir og gögn. Vefurinn hefur því verið í vinnslu á síðari hluta árs og verður áfram árið 2024. Þetta gerði þó það að verkum að samstarf við nýsköpunaraðilann Vistbók fór á bið þar til leyst hefur verið úr vandamálum sem tengjast vefnum. Með nýjum vef er lagður grunnur að betri þjónustu við viðskiptavini og þá sérstaklega fyrirtæki.
Stefnt er að því að auka markvisst hlutfall viðskipta til fyrirtækja í gegnum vefverslun og minnka þannig sóun sem fylgir í ferðum til og frá verslun til að ganga frá kaupum á vörum. Vinna við upplýsingakort BYKO hófst á árinu og er því ætlað að kortleggja allt sem við kemur upplýsingatækni, bæta ferla, skilgreina þá og einfalda. Þessi vinna mun standa yfir áfram árið 2024. Samhliða þessu hefur verið unnið að dreifikerfalausn ásamt úrbótum og frekari framþróun á viðskiptatengslakerfi BYKO. Framundan eru verkefni á borð við endurskoðun og endurskilgreiningu sjálfbærnistefnu ásamt þarfagreiningu félagsins á innleiðingu gæðastaðla á borð við ISO 9001 og ISO 14001. Einnig verður unnið að því að sjálfvirknivæða dreifingu í verslanir sem gefur okkur tækifæri til að besta dreifingarferlana til að hámarka nýtingu bifreiða í akstri og minnka sóun sem fylgi því að dreifa of ört eða í of litlum skömmtum. Búið er að endurhanna framsetningu á umhverfisskjölum og hvaða vörur hafa umhverfisvottanir og eru stór verkefni því tengdu í farvatninu og verða sett í loftið á árinu.
8
Sjálfbærniskýrsla 2023
Skipurit Starfsmaður BYKO á sviði mannauðs og stefnu er ábyrgur fyrir innleiðingu á sjálfbærni og ber einnig ábyrgð á þeirri stoð sjálfbærninnar sem tilheyrir umhverfismálum. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á þeirri stoð sjálfbærninnar sem tilheyrir félagsmálum og framkvæmdastjóri rekstrarsviðs ber ábyrgð á stoð sjálfbærninnar sem tilheyrir stjórnarháttum. Forstjóri er ábyrgur fyrir sjálfbærnistefnu BYKO. Nýtt skipurit tók gildi í ágúst 2023. Breytingin fólst í því að framkvæmdastjóri framþróunarsviðs lét af störfum og nýtt sameinað svið mannauðs og stefnu varð til, við þessar breytingar fluttust markaðs- og vefteymi undir vörustýringarsvið og verkefnastjórn framþróunarsviðs sameinaðist mannauðssviði. Aðrar breytingar voru ekki gerðar á skipuriti fyrirtækisins. Opna núverandi stjórn og skipurit á vef BYKO
9
Sjálfbærniskýrsla 2023
Stjórnskipulag Stjórn BYKO samanstendur af fimm einstaklingum. Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir, þar með talið ákvarðanir sem tengjast sjálfbærni. Stjórnina skipa: Guðmundur Halldór Jónsson – stjórnarformaður Jón Helgi Guðmundsson Iðunn Jónsdóttir Gísli Jón Magnússon Anna Rún Ingvarsdóttir
Stjórn BYKO ehf. leggur áherslu á góða stjórnarhætti og hefur sett sér starfsreglur þar sem fylgt er Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, þar er valdsvið hennar skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Leiðbeiningar eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins. Leiðbeiningarnar má finna á leidbeiningar.is. Stjórnarhættir BYKO byggja á starfsreglum stjórnar, samþykktum félagsins og lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Gildandi starfsreglur voru samþykktar á stjórnarfundi þann 10. júní 2020. Heildar stjórnarháttayfirlýsingu má finna hér
10
Sjálfbærniskýrsla 2023
Framkvæmdastjórn Framkvæmdastjórn samanstendur af forstjóra og framkvæmdarstjórum framþróun verslunar og viðskiptavina, fyrirtækjasviðs, rekstrarsviðs, smásölusviðs og vörustjórnunasviðs. Ein breyting varð um mitt árið þegar Edda Blumenstein lét af störfum og framþróunarsvið var lagt niður.
SIGURÐUR BRYNJAR PÁLSSON, FORSTJÓRI Sigurður Brynjar Pálsson er viðskiptafræðingur með áherslu á vörustjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú einnig nám í húsasmíði.
EDDA BLUMENSTEIN
BRAGI ÞÓR ANTONÍUSSON
Edda Blumenstein er með BSc gráðu í alþjóðamarkaðsfræði, MA gráðu í Fashion, Enterprise and Society og PhD gráðu frá Leeds University Business School. Hún starfaði við ýmis stjórnunarstörf frá 1999-2014, sinnti kennslu við breska háskóla 2018-2021 og hefur starfað sem ráðgjafi og fyrirlesari í eigin rekstri beOmni.is sem hún stofnaði 2017.
Bragi Þór Antoníusson er viðskiptafræðingur með BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst ásamt MBA gráðu frá IESE í Barcelona.
Edda hóf störf í BYKO árið 2021 sem framkvæmdastjóri framþróunar verslunar og viðskiptavina BYKO og sinnti því starfi þar til um mitt ár 2023.
Hann hóf störf í BYKO árið 2001 sem verkefnastjóri í birgðastýringu og hefur setið í framkvæmdastjórn BYKO síðan árið 2006. Sigurður var ráðinn forstjóri BYKO árið 2014.
Hann stýrði markaðsmálum og stafrænni þróun hjá ELKO árin 2017-2020 og frá árinu 2020 stýrði hann margvíslegum stafrænum umbótaverkefnum fyrir Festi. Bragi hóf störf í BYKO árið 2022 sem framkvæmdastjóri vörustjórnunarsvið BYKO. 11
Sjálfbærniskýrsla 2023
Framkvæmdastjórn EGGERT KRISTINSSON Eggert Kristinsson lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú einnig nám í húsasmíði. Hann hefur lengst af reynslu í verslun, stjórnun og rekstri og hóf störf í BYKO árið 1993. Eggert tók við starfi árið 2005 sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs BYKO.
HARALDUR BERGSSON Haraldur Bergsson er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði upphaflega í BYKO á árunum 2002-2009 og gegndi ýmsum stjórnendastöðum. Árin 2009-2015 var hann framkvæmdastjóri hjá Sævari Karli ásamt því að sinna stöðu framkvæmdastjóra fataverslunarinnar NEXT í Kringlunni árin 2011-2020.
HULDA JÚLÍANA JÓNSDÓTTIR Hulda Júlíana er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, með löggildingu í verðbréfamiðlun og framhaldsnám í stjórnendareikningsskilum og viðskiptagreind. Einnig er hún með framhaldsmenntun í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Interstudies Ltd. og Friba Holding árin 20122021. Einnig var hún meðeigandi SelectStudies. Hún hóf störf í BYKO árið 2021 þar sem hún var ráðin sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs BYKO.
Haraldur hóf aftur störf í BYKO árið 2020 sem framkvæmdastjóri smásölusviðs BYKO 12
Sjálfbærniskýrsla 2023
Umfang rekstrar Fjárhæðir eru í þúsundum íslenskra króna. Helstu efnahagsstærðir eru: Úr efnahagsreikningi
Starfsmannamál
2023
2022
2021
2023
2022
2021
Eignir
10.031.085
10.286.535
7.981.194
Laun
3.666.476
3.272.650
2.947.574
Skuldir
6.854.951
7.134.279
5.170.541
Mótframlag í lífeyrissjóð
468.980
419.516
377.134
Eigið fé
3.176.133
3.152.257
2.810.653
Önnur launatengd gjöld
286.004
486.180
283.654
Fjárfestingahreyfingar
273.823
216.114
117.937
Laun og gjöld samtals
4.421.461
4.178.346
3.608.363
Meðalstöðugildi á árinu
416
386
382,6
Stöðugildi í lok árs
406
399
378
Mynd: Helstu tölur úr efnahagsreikningi félagsins (þús. kr.)
Úr rekstrarreikningi
2023
2022
2021
Tekjur
29.830.672
29.559.808
24.444.350
Rekstrarkostnaður
3.534.164
3.410.920
2.923.865
Laun og launatengd gjöld
4.421.461
4.178.346
3.608.363
Arðgreiðslur
1.200.000
900.000
800.000
Tekjuskattur
298.985
291.889
312.077
Efnahagslegt framlag
9.454.610
8.781.155
7.644.305
Mynd: Helstu tölur úr rekstrarreikningi félagsins (þús. kr.)
Mynd: Helstu tölur er varða starfsmannamál félagsins (þús. kr.)
13
Sjálfbærniskýrsla 2023
Viðurkenningar Við í BYKO leggjum okkur fram við að ná þeim árangri út frá þeim markmiðum sem við setjum okkur og erum full þakklætis fyrir þær viðurkenningar sem við höfum hlotið frá markaðnum. Þessar viðurkenningar sýna okkur að við erum á réttri leið og gefa okkur kraft að halda áfram að gera eins vel og við getum til framtíðar. Við viljum vera fyrirmynd og hvatning til annarra fyrirtækja varðandi sjálfbærni, viljum huga vel að starfsfólki okkar varðandi jafnréttismál og við erum þakklát fyrir það traust sem okkar viðskiptavinir hafa sýnt okkur í gegnum árin og fögnum því að eiga ánægðustu viðskiptavinina. BYKO hlaut annað árið í röð viðurkenningu sem er veitt af alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Great Place to Work en BYKO hefur unnið með þeim að því að gera upplifun starfsfólks í vinnunni eins góða og hægt er. Great Place to Work er alþjóðlegt greiningar- og ráðgjafarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að ná betri árangri með því að einbeita sér að starfsreynslu hvers starfsmanns. Fyrirtækið starfar í yfir 60 löndum og veitir árlegar viðurkenningar fyrir eftirsóttustu vinnustaðina hjá litlum, meðalstórum og stórum fyrirtækjum. Það veitir einnig viðurkenningar fyrir eftirsóttustu vinnustaðina með tilliti til fjölbreytileika.
14
Sjálfbærni
15
Sjálfbærniskýrsla 2023
Sjálfbærnistefnur Sjálfbærnistefna BYKO hefur sett sér heildstæða sjálfbærnistefnu byggða á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Til stendur að endurskoða og uppfæra sjálfbærnistefnuna í kjölfar vinnu við tvöfalda mikilvægisgreiningu og innleiðingu ESRS staðalsins. Sjálfbærnistefnu BYKO má skoða í heild sinni hér.
Umhverfisstefna Umhverfisstefna BYKO hefur þrjú meginþemu, vistvænt vöruframboð, fræðslu til viðskiptavina og innra starf. Á heimasíðu BYKO má finna ýmis konar fræðslu um vistvæn byggingarefni og vöruframboð BYKO á þeim, þýðingu umhverfismerkja, upplýsingar um vottunarkerfin BREEAM og Svaninn og upplýsingar um vottað timbur. Umhverfisstefnu BYKO má skoða í heild sinni hér.
Áherslur BYKO í sjálfbærni
Minnka losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðjunni
Auka framboð af minna skaðlegum byggingarefnum
Leggja til gögn til vottunar á vistvænum vörum
Skipta út bensín/dísel farartækjum fyrir umhverfisvænni orkubera.
Bjóða viðskiptavinum byggingarefni og vörur sem má nota í hús vottuð með norræna umhverfismerkinu Svaninum og fyrir vistvottunarkerfin BREEAM og LEED.
Umhverfisyfirlýsingar, rekjanleikavottanir og önnur gögn sem vænst er til vottunar í Svaninum, BREEAM og LEED.
Mannauðsstefna Mannauðurinn er mikilvægasti þáttur fyrirtækja sem vilja ná árangri. BYKO er eitt virtasta og þekktasta vörumerki á Íslandi og með því að vera með virka mannauðsstefnu stuðlar BYKO að því að viðhalda þessari ímynd bæði sem vörumerki og vinnustaður. Mannauðsstefna BYKO er samansett úr þremur stefnum: Jafnlaunastefnu, Starfsmannastefnu og Persónuverndarstefnu.
Mynd: Áherslu BYKO í sjálfbærni 2023 16
Sjálfbærniskýrsla 2023
Tvöföld mikilvægisgreining Á þessu ári hóf BYKO að innleiða ESRS-staðalinn (e. European Sustainability Reporting Standard). Þessi staðall er hluti af fyrirhugaðri innleiðingu á tilskipun um upplýsingagjöf um sjálfbærni fyrir stór og/eða skráð félög (e. Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD)) í íslenska lagaumhverfið. Fyrsta skrefið í innleiðingu staðalsins var að framkvæma tvöfalda mikilvægisgreiningu (e. double materiality), sem er aðferðarfræði sem notuð er til að veita innsýn í þá þætti sjálfbærni sem eru hvað mikilvægastir fyrir hagaðila og stefnu BYKO til framtíðar. Mikilvægisgreiningin var gerð með aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa og sjálfbærniþáttum var skipt eftir UFS þáttum (umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum). Við greininguna var virðiskeðjan skoðuð í heild og tekið tillit til þeirra áhrifa sem BYKO veldur eða verður fyrir í henni allri ásamt því að hagaðilar voru endurskilgreindir og viðtöl voru tekin við innri og ytri hagaðila. Sjálfbærniviðfangsefnunum var svo forgangsraðað frá tveimur sjónarhornum; annars vegar áhrifum á UFS þætti og hins vegar fjárhagslegum áhættum og tækifærum. Þetta er í fyrsta skipti sem BYKO birtir niðurstöður úr tvöfaldri mikilvægisgreiningu sem tengist staðlinum, en þær má sjá hér til hliðar. Mikilvægisgreiningin var höfð til hliðsjónar við uppröðun og kaflaskiptingu á sjálfbærniskýrslu 2023 og notuð til þess að endurraða efni skýrslunnar til að undirbúa næstu skref við innleiðingu ESRS-staðalsins.
UFS Umhverfisþættir • • •
Hringrásarhagkerfi & úrgangur Loftlagsbreytingar Líffræðilegur fjölbreytileiki
• • • •
Félagslegir þættir
Stjórnarhættir
Eigið starfsfólk • Viðskiptavinir & endanotendur • Samfélagsleg áhrif Starfsfólk í virðiskeðju
Virðiskeðjan Viðskiptasiðferði
Mynd: Niðurstöður úr tvöfaldri mikilvægisgreiningu 2023
Verktakar Starfsfólk
Birgjar
Viðskiptavinir
Eigendur
Samfélag Samstarfsaðilar
Löggjöf & eftirlitsaðilar
Mynd: Hagaðilar BYKO 17
Umhverfisþættir
18
Sjálfbærniskýrsla 2023
Loftslagsbreytingar Loftslagsbreytingar hafa óneitanlega mikil áhrif á rekstur BYKO og því leggjum við áherslu á mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingum auk aðlögunar að loftslagsbreytingum. Hér til hliðar er tafla með losunartölum þar sem skipt er í þrjú umföng samkvæmt GHG Protocol. Niðurbrot á umfangsþáttum og losun þeirra má finna á næstu síðu. Allar losunartölur eru miðaðar við losunarstuðla frá Klöppum, að undanskildum vöruflutningum en þar koma losunartölur beint frá viðeigandi þjónustuaðilum. Umfang 1 Felur í sér beina losun gróðurhúsalofttegunda. Hjá
BYKO er eina beina losunin út frá jarðefnaeldsneyti sem er notað fyrir eigin vöruflutninga og bílferðir starfsfólks.
Umfang 2 Felur í sér óbeina losun sem kemur frá orkunotkun fyrirtækisins. Hjá BYKO er raforka og upphitun tekin saman frá öllum starfsstöðvum.
Umfang 3 Felur í sér óbeina losun og hefur BYKO tekið inn flugferðir starfsfólks, utanaðkomandi vöruflutninga og meðhöndlun úrgangs.
Önnur veruleg losun á sér ekki stað frá BYKO. Það á sér ekki stað nein losun á ósoneyðandi efnum. BYKO heldur ekki saman upplýsingum um losun á köfnunarefnisoxíð (NOx), brennisteinsoxíð (SOx) eða öðrum lofttegundum þar sem fyrirtækið hefur enga framleiðsluferla sem losa NOx eða SOx.. Timburskipið sem BYKO er með á leigu notar gasolíu (Marin Gasoil) með brennisteinsmagni undir 0,1%. Losun í opna viðtaka svo sem vatn eða jarðveg er ekki viðeigandi. Allt frárennsli er tengt við skólpkerfi viðkomandi sveitarfélags.
Áhætta og tækifæri sökum loftslagsbreytinga Mesta losun BYKO fellur undir umfang 3 eins og sjá má í kökuritinu og töflunni til hliðar. Stærsta áskorun BYKO varðandi loftslagsbreytingar er innbyggt kolefnisspor í byggingarvörum, þ.e. kolefnislosun við framleiðslu byggingarvara. Þessi losun fellur undir umfang 3 en ekki hefur enn verið náð utan um mælingar á henni. Því er tækifæri til þess að vinna að því og í kjölfarið setja markviss markmið til þess að minnka þá losun. Meðal þess sem hægt er að gera til að minnka losun af völdum innbyggðu kolefnisspori í vöruframboði er að finna og bjóða vörur með minna kolefnisspor en þær vörur sem eru ráðandi á markaðnum í dag. Þær vörur sem eru með hátt innbyggt kolefnisspor eru t.d. steypa og múrvörur, álklæðning og einangrun eins og steinull. Tækifæri BYKO felast meðal annars í aukinni áherslu á timbur í byggingum, fjölbreyttu úrvali klæðninga með minna kolefnisspori og íslenskri steinull sem er eina steinullin í heiminum sem er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum (vatnsafli).
Tafla: Losun umfangs 1, 2 & 3 (CO₂e ígildi í tonnum) Ár
2023
2022
2021
Umfang 1
244,0
285,2
269,9
Umfang 2
101,4
75,1
69,1
Umfang 3
4.213,5
4.550,1
4.324,9
Heildarlosun
4.558,9
4.929,8
4.683,2
Umfang 1 5%
Umfang 2
2%
92% Umfang 3 Hlutfall kolefnislosun BYKO eftir umföngum 19
Sjálfbærniskýrsla 2023
Loftslagsbreytingar Umföng Vöruflutningar eru flutningar til landsins og innanlandsflutningar. Vöruflutningar til landsins eru sjóflutningar en þar nýtir BYKO bæði Samskip og Eimskip en er einnig með leiguskip sem flytur timbur og járn frá Lettlandi. Tölur frá Eimskip eru flutningarmagnstölur til landsins og yfirlit yfir losun en tölur Samskipa eru skipaflutningar með forflutningum ásamt yfirlit yfir losun. Tölur fyrir leiguskipið eru reiknaðar út frá greiddu eldsneytisgjaldi sem þarf ekki að endurspegla nákvæma eldsneytisnotkun. Vöruflutningar innanlands eru flutningar á milli starfstöðva BYKO. BYKO mælir ekki ígilda vegna lífrænnar losunar. Umfang BYKO eru hraðsendingar til landsins með flugi sem og flutningar frá starfsstöðvum BYKO til viðskiptavina. Heildarlosun meðhöndlun úrgangs námu 79,9 CO₂e ígildi í tonnum árið 2023. Þetta er töluverð minnkun frá fyrri árum en vegna nýrra hringrásarhagkerfislaga var úrgangur fluttur erlendis í orkuvinnslu að auknu mæli. Þarf af leiðandi lækkaði losun við meðhöndlun úrgangs verulega.
Tafla: Losun fyrir umfang 1, 2 & 3 niðurbrotið (CO₂e ígildi í tonnum) Ár
2023
2022
2021
Umfang 1
244,0
285,2
269,9
Eldsneyti*
244,0
285,2
269,9
Umfang 2
101,4
75,1
69,1
Raforka
28,9
26,2
27,2
Upphitun*
72,5
48,9*
41,9
Umfang 3
4.213,5
4.550,1
4.324,9
Flugferðir samtals
39,5
31
21,04
Innanlands
7,2
10,36
9,5
Utanlands
32,3
20,64
11,54
Vöruflutningar samtals
4.174
4.299
4.075
Skipaflutningar
3.774
3.865
3.230
Innanlands
400
434
845
Meðhöndlun úrgangs**
79,9
220,1
228,9
Heildarlosun
4.558,9
4.929,8
4.683,2
* Tölur frá 2022 og 2021 hafa verið uppfærðar m.v. uppfærðan álestur í Klöppum ** Losun af völdum meðhöndlun úrgangs hefur verið uppfærð fyrir fyrri ár skv. tölum úr Klöppum til að halda samræmi milli ára.
20
Sjálfbærniskýrsla 2023
Loftslagsbreytingar Svansvottaðir gluggar BYKO hefur nú fyrst framleiðenda hlotið Svansvottun á gluggum sem framleiddir eru sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Markmið Svansins með slíkri vottun er að auka notkun á orkusparandi gluggum og útihurðum sem standast strangar kröfur varðandi efnisnotkun og framleiðsluferli og valda litlum áhrifum á umhverfið. BYKO hefur framleitt glugga og hurðir í 32 ár og þessi viðbót er rökrétt framhald þeirrar stefnu fyrirtækisins að bjóða ávallt bestu mögulegu vöruna á markaðnum á hverjum tíma. Ferlið er búið að vera langt og strangt því uppfylla þurfti fjölmörg skilyrði um efni og aðferðir við framleiðsluna með mælingum á rannsóknarstofu, útreikningum, efnisgreiningum o.fl.
„Þetta samræmist okkar vegferð í sjálfbærnimálum og með þessu stóra skrefi erum við að senda skýr skilaboð um að BYKO er markvisst að vinna í því að draga úr kolefnisspori sínu. Svanurinn er áreiðanlegt, norrænt umhverfismerki sem allir þekkja og er leiðandi á sínu sviði á heimsvísu. Svansvottunin felur í sér lífsferilsgreiningu og staðfestingu á gæðum vörunnar, m.a. út frá líftímasjónarmiði og áhrifum hennar á umhverfi og heilsu fólks.“ - Kjartan Long, Verkefnastjóri
Svansvottuðu gluggarnir eru virkniprófaðir, þeir hafa langan endingartíma og valda hverfandi loftslagsáhrifum, þökk sé litlu orkutapi. Þeim fylgja nákvæmar leiðbeiningar um meðferð, allt frá afhendingu til notkunar og flokkunar að líftíma þeirra liðnum. Fyrst um sinn mun úrvalið miðast við álklædda timburglugga, 75 mm þykk opnanleg fög og hurðir til að ná því U-gildi sem vottunin krefst.
21
Sjálfbærniskýrsla 2023
Loftslagsbreytingar Orkunotkun Byggingar eru ábyrgar fyrir um 40% orkunotkun á heimsvísu. Sem hluti af virðiskeðju mannvirkja, vill BYKO stuðla að betri framtíð með því að bjóða markaðnum upp á vistvæn byggingarefni og hámarka hlutfall endurnýjanlegar orku í rekstri sínum. Eldsneytisnotkun BYKO minnkaði töluvert á milli 2022 og 2023 og þar á móti jókst rafmagnsnotkun. Samkvæmt tölum frá Klöppum minnkaði eldsneytisnotkun um 14.2% og eldsneytisnotkun jókst um og 10,8%.
2023
2022
2021
Eldsneyti (kg)
81.849,45
95,308.58
90.232,97
Rafmagnsnotkun (kWh)
2.814.658
2.539.244
2.587.984
2023
2022
2021
75.413
57.434
42.677
Tafla: Heildar orkunotkun BYKO
Hleðslustöðvar BYKO hvetur og styður starfsfólk sitt í því að nota vistvænni samgöngur og einn hluti af því er að setja upp hleðslustöðvar. Starfsfólki býðst að hlaða sér að kostnaðarlausu 3 klst. á dag en það er sá meðaltalstími sem á að duga í akstri frá heimili til og frá vinnu. Fyrstu stöðvar voru settar upp árið 2019 og hefur BYKO fylgt þeirri rafbílaþróun sem hefur átt sér stað síðustu árin. BYKO hefur nú sett upp 20 hleðslustöðvar fyrir starfsfólk en þær eru dreifðar fyrir utan starfsstöðvar í Breidd, Granda, vöruhúsi Kjalarvogi, BYKO Leigu Selhellu og Selfossi.
Rafmagnsnotkun (kWh)
Tafla: Rafmagnsnotkun hleðslustöðva fyrir starfsfólk
Fjöldi starfsfólks sem hefur skipt bifreiðum sínum úr jarðefnaeldsneyti yfir í rafmagn fer sífellt fjölgandi sem skýrir aukningu í rafmagnsnotkun hleðslustöðva. Fleiri eru að nota stöðvarnar svo nýtingin er hærri en árin á undan. Heildarnotkun starfsfólks á árinu voru 75.413 kWh. 22
Sjálfbærniskýrsla 2023
Hringrásarhagkerfi & úrgangur Hringrásarhagkerfið er hagkerfi þar sem leitast er við að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi með áherslum sem tryggja að hægt sé að viðhalda verðmætum auðlinda eins lengi og mögulegt er. Hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er nokkuð margþætt og nær einnig til þess að endurmeta og endurskilgreina lífsgæði. Helstu aðgerðir sem tryggja að auðlindum sé haldið í hagkerfinu eru að deila, gera við, endurnota, endurframleiða og endurvinna.
BYKO Leiga
Úrgangsgreining
BYKO starfrækir öfluga leigustarfsemi sem á sér langa sögu sem má rekja allt til 1988. Mikil þróun hefur átt sér stað í starfseminni í takt við sjálfbærniáherslur fyrirtækisins, en leiga er sjálfbær í eðli sínu og BYKO vill vera leiðandi fyrir markaðinn.
Árið 2022 framkvæmdi Pure North umfangsmikla úrgangsgreiningu á starfsstöðvum BYKO. Niðurstöður greiningarinnar voru kynntar snemma árs 2023 og í kjölfarið var hafist handa við úrbætur á ýmsum atriðum sem komu fram í greiningunni. Þar má nefna að losunum úr gámum var breytt úr reglubundinni losun í losun eftir þörfum. Bætt var úr öllum merkingum og eru nú komnar samræmdar FENÚR merkingar á allar sorptunnur fyrirtækisins. Pappabollar voru fjarlægður úr öllum kaffistofum starfsmanna og á þeim stöðum sem hægt var að bjóða upp á margnota bolla. Endurvinnsla málma og timburs var færð til Furu. Áframhaldandi vinna við úrbætur mun eiga sér stað á næstu árum, meðal annars þarf að meta hvort hægt sé að koma plasti í meiri hringrás og endurskoða reglulega aðila sem taka við sorpi til endurvinnslu.
BYKO Leiga leggur í dag áherslu á að selja eða leigja tæki og tól og jafnframt selja úrval aukahluta fyrir rafmagnsverkfæri, vera með gott úrval af festingum, þéttiefnum og vöruflokkum sem snúa að fagaðilanum. Verkefni leigunnar í BYKO er að fræða og upplýsa, með þeirri von að með auknum umhverfisáherslum, aukinni umræðu um nýtingu og hringrásarhagkerfið að fleiri og fleiri muni sjá kosti þess að leigja, en á sama tíma er það stórt verkefni innan BYKO að halda áfram að gera leigu aðgengilegri og auðveldari fyrir fólk.
23
Sjálfbærniskýrsla 2023
Hringrásarhagkerfi & úrgangur Meðhöndlun úrgangs BYKO leggur áherslu á fræðslu til starfsfólks um mikilvægi úrgangsflokkunar, hvernig hægt er að endurvinna og endurnýta ákveðna úrgangsflokka og stuðla þar með að hringrás. Terra sér um megnið af úrgangsmeðhöndlun eða um 90% fyrir BYKO og taka endurvinnsluleiðir mið af þeirri þjónustu sem Terra býður. Annar úrgangur fer til Furu og Íslenska Gámafélagsins. BYKO leggur áherslu á að auka úrgangsflokkun og draga úr urðun sem er þá afleiðing hringrásarhagkerfis. Allur úrgangstölur birtast í gegnum rafrænt umhverfisbókhald Klappa þar sem hægt er að fylgjast með, greina sóun og bregðast við með aðgerðum. Yfirlit yfir heildarúrgang í kg má sjá í meðfylgjandi töflu, en BYKO hefur tekist að minnka heildarmagn úrgangs milli ára. Hluti af flokkaða úrganginum fór í förgun, þ.e. urðun eða brennslu. Hlutfall úrgangs sem var flokkaður (e. Recovery) var um 58,4% og var það bæting frá árinu áður um 56,3%. Samkvæmt tölum frá Klöppum var 78,7% af úrganginum sem fór til endurvinnslu endurunninn (e. Recycled) og 21,3% óendurunninn árið 2023. Þetta er ekki sú þróun sem við vildum sjá en hlutfallið frá fyrra ári var 77,6% endurunnið. Með áframhaldandi vinnu úr úrgangsgreiningu sem lýst var hér að framan er vonast til að auka flokkunarhlutfall og endurvinnsluhlutfall á næstu árum. Losun CO₂ frá meðhöndlun úrgangs var 79,9 tonn CO₂e árið 2023. Í byrjun árs 2023 voru innleidd ný hringrásarhagkerfislög um úrgangsmeðhöndlun þar sem litað timbur fór í ríkari mæli í orkuvinnslu erlendis. Þar af leiðandi minnkaði kolefnislosun vegna úrgagnsmeðhöndlunar verulega milli 2022 og 2023 - úr 220 tonnum CO₂e í 79,9 tonn CO₂e. BYKO mælir ekki CO₂ ígilda vegna lífrænnar losunar á CO₂.
Tafla: Heildarmagn úrgangs og niðurbrot eftir úrgangsflokkum (kg) Blandaður úrgangur Grófur úrgangur Timbur - hreint Timbur - blandað Gifs Málmar Jarðefni og gler Önnur endurvinnsluefni Jarðgerð/molta Spilliefni & raftæki Annað ótilgreint Heildarmagn úrgangs
2023
2022
2021
124.248 178.721 181.316 228.669 69.150 95.695 1.369 134.298 6.126 9.689 7.350 1.036.631
106.015 153.011 248.101 217.268 136.270 59.433 9.033 132.104 4.459 2.333 6.046 1.074.073
121.762 130.153 235.395 168.920 272.090 80.648 3.550 140.088 3.830 9.654 10.220 1.176.310
Tafla: Heildarlosun úrgangs 2023
2022
2021
Úrgangur (kg)
1.036.631
1.074.073
1.176.310
Losun(kg CO₂e)
79.908,5
220.068,9
221.510,1
Hlutfall flokkaðs úrgangs sem var endurunninn 21,3%
Endurunninn
78,7% Ekki endurunninn
24
Sjálfbærniskýrsla 2023
Hringrásarhagkerfi & úrgangur Efnisnotkun Gerð er grein fyrir efnisnotkun í daglegri starfsemi BYKO en vörur til endursölu eru ekki taldar með.
Prentefni Allt prentefni var keypt frá prentsmiðjunni Litla Prent sem er Svansvottuð prentsmiðja.
Ræstingarefni Ræstingar eru aðkeypt þjónusta fyrir verslanir og skrifstofur BYKO og er leitast eftir að þjónustuaðilar séu Svansvottaðir eða nota umhverfisvæn ræstiefni.
Plastnotkun BYKO hefur unnið að minni plastnotkun í plöstun vörubretta frá því árið 2021 og heldur þeirri vegferð áfram. Tekin hefur verið upp notkun á plastfilmu sem er 30% endurunnin sem hefur 24% lægra kolefnisfótspor en venjuleg Polythene plastfilma. Árið 2023 tóku 2 starfstöðvar til viðbótar upp endurunnu plastfilmurnar, en notkun þeirra er nú 10% af allri plastfilmunotkun fyrirtækisins.
25
Sjálfbærniskýrsla 2023
Líffræðilegur fjölbreytileiki BYKO getur haft áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika með því að huga að vistvænu vöruframboði þar sem boðið er upp á úrval af umhverfisvottuðum vörum.
Vistvænt vöruframboð Í gegnum umhverfisstefnu fyrirtækisins leggur BYKO áherslu á að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á vistvænt vöruframboð í öllum vöruflokkum. Samhliða þessu hefur verið lögð mikil áhersla á að skapa þekkingu á vistvottunarkerfum fyrir byggingar til þess að mæta auknum kröfum markaðarins, veita ráðgjöf og aðstoða viðskiptavini sem vilja byggja vistvænt. BYKO getur boðið viðskiptavinum sínum vörur í öllum vöruflokkum sem henta til bygginga sem votta á samkvæmt Svaninum, BREEAM og LEED vottunarkerfunum og koma snemma að hönnunarferlinu með þekkingu á hentugum lausnum fyrir vistvænar byggingar. BYKO ber ábyrgð á að koma upplýsingum til neytenda á framfæri. Hér á heimasíðu BYKO er
Rekjanleiki timburs hægt að finna hluta af þeim vottuðu vörum sem BYKO býður upp á. Þar eru meðal annars vörur sem bera Svansvottun eða eru leyfilegar í Svansvottaðar byggingar ásamt þeim vörum sem henta í BREEAM vottunarferlið. Þegar smellt er á vöru má finna hvort varan sé vottuð, rekjanleg eða beri önnur gögn sem nýtast í viðkomandi vistvottunarferli. Þar má ýmist finna EPD umhverfisyfirlýsingu, VOC vottun eða FSC vottun. Unnið hefur verið að því að gera þessar umhverfisupplýsingar aðgengilegar á vef og mun sú vinna halda áfram af krafti ásamt því að auka sýnileika þeirra í verslunum til að einfalda viðskiptavinum val og vistvænum valkostum, hlutverk BYKO er að vera skýr valkostur viðskiptavina þegar kemur að vistvænum lausnum.
Til þess að timbur sé samþykkt í Svansvottaðar byggingar og uppfylli skilyrði til samþykktar í BREEAM og LEED vottunarkerfin þarf það að koma úr sjálfbærri skógrækt og hafa rekjanleika. Vottanir sem staðfesta slíkt eru FSC eða Forest Stewardship Council og PEFC eða Programme for the Endorsement of Forest Certification. Vottun á rekjanleika felur í sér að allir milliliðir í virðiskeðjunni eru vottaðir og þannig sé hægt að rekja uppruna timbursins alla leið frá ræktun til söluaðila. Allt timbur sem BYKO kaupir kemur úr sjálfbærri skógrækt og er með rekjanleika vottun. Árið 2023 náðist sá áfangi að fá Chain of Custody vottun, þ.e. rekjanleikavottun frá skógi til vöru í hillu í verslunum BYKO.
26
Sjálfbærniskýrsla 2023
Líffræðilegur fjölbreytileiki Skógrækt BYKO hefur frá árinu 1987 stundað skógrækt en þá hófu eigendur og starfsmenn árlega gróðursetningu á Drumboddsstöðum II í Biskupstungum. Frá þeim tíma og fram til 2007 voru gróðursettar um 130 þúsund trjáplantna og hefur á þessum tíma náttúrulegt birki breiðst mikið út af sjálfsdáðum. BYKO fór síðan í samstarf við Skógræktina haustið 2019 til að gera úttekt og meta bindingu skógarins og fór úttektin fram á árinu 2020 þar sem skóglendið var kortlagt og bindingin metin með viðurkenndum og vísindalegum hætti. Samkvæmt niðurstöðu er binding mjög svipuð fram til 2030 og hún var 2020 eða að jafnaði 1200 tonn CO₂ á ári. Skógræktin sá um að gróðursetja 6840 plöntur til viðbótar í skóginum árin 2021 og 2022. Tegundum var blandað af bestu getu til að mynda skemmtilegan blandskóg og tryggja líffræðilegan fjölbreytileika, en tegundaskiptingin var 2920 sitkagreni, 2320 birki og 1600 stafafurur. BYKO er nú í ferli að skoða fjárfestingamöguleika í vottuðum kolefniseiningum og því hefur öll áframhaldandi vinna við BYKO skóginn verið sett á bið.
Nýjar vottaðar höfuðstöðvar BYKO Til þess að öðlast enn meiri þekkingu á virkni BREEAM vottunarkerfisins og ferlinu sem fylgir slíkri vottun var tekin ákvörðun um að nýjar höfuðstöðvar BYKO á Breiddarsvæðinu yrðu vottaðar BREEAM Excellent. Í byggingu er 5 hæða hús við hlið Timburverslunar sem hýsa mun sýningarsal timbur- og sérlausna ásamt skrifstofum og þar munu móðurfélagið Norvik ásamt Smáragarði einnig hafa aðsetur. Kjallari og lyftuhús byggingarinnar verður steypt, gólf og veggir úr krosslímdum timbureiningum og önnur efni eru rýnd með tilliti til krafna BREEAM ásamt því að lýsing og loftræsting er hönnuð í takt við kröfur BREEAM.
27
Félagslegir þættir
28
Sjálfbærniskýrsla 2023
Eigið starfsfólk Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Mikið hefur verið unnið í átt að þeirri framtíðarsýn á árinu en ljóst er að um langtímaverkefni er að ræða ef vel skal takast. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðspor, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. BYKO hlaut annað árið í röð viðurkenningu Great Place to Work sem frábær vinnustaður.
Kynjaskipting starfsfólks 2023 23%
Enn er áskorun að fjölga öðrum kynjum en körlum innan félagsins. Hlutfall karla hækkaði frá 74,5% árið 2022 upp í 77% árið 2023. Árin 2018, 2019, 2021 var hlutfall karla einnig millil 76-77%. Við sjáum að það þarf að bæta þær aðgerðir sem við höfum farið í til að jafna kynjaskiptingu innan fyrirtækisins.
77%
Líðan & heilsa starfsfólks Á árinu héldum við áfram með þá áherslu að hvetja starfsfólk til að huga að andlegri og líkamlegri líðan ásamt því að benda á upplýsingar, tæki og tól sem gætu gagnast þeim á þeirri vegferð. Þar á meðal má nefna líkamsræktar-, samgöngu og velferðarstyrki, flensusprautu, aðgengi að trúnaðarlækni og velferðarþjónustu.
2022 25%
Einnig höfum við fengið til okkar frábæra fyrirlesara sem blása í okkur kjark og aðstoða fólkið okkar við að takast á við hinar ýmsu áskoranir. Þar má nefna fræðslu um svefn og meðferð við svefnröskunum sem leiddi af sér að vinnustaðurinn hlaut svefnvottun og erindi frá gleðiskruddunni sem kenndi okkur að finna okkar gleðiverkfæri.
75%
Meðal lífaldur
36 ár
Meðal starfsaldur
6 ár & 5 mánuðir
Meðal veikindahlutfall
4%
Fjöldi starfsfólks
705
Starfsmannavelta
Karlar
Konur
Kynsegin
Óskilgreint
29%
29
Sjálfbærniskýrsla 2023
Eigið starfsfólk Fræðsla & þjálfun starfsfólks Við leggjum áherslu á að starfsfólkið okkar hafi aðgang að fjölbreyttri fræðslu. Við trúum því að með því að mæta þörfum starfsfólk þegar kemur að fræðslu og þjálfun ásamt því að hafa hugrekki til þess að prófa nýjar leiðir munum við ná árangri. Það er fólkið okkar sem drífur áfram árangur BYKO og viljum við geta stutt það eftir fremsta megni hvort sem er í vinnu eða einkalífi. Á árinu 2023 var tekinn upp rafrænn vettvangur, BYKO Saman, sem sameinaði upplýsingaveitu og fræðslukerfi. Þar með færum við fræðsluna enn nær okkar fólki ásamt því að styðjast við leikjavædda fræðslu. Fræðsluhluti kerfisins gefur starfsfólki notendavænan aðgang að öllu efni ásamt því að skyldu fræðslu er skipt upp í þrjá flokka sem einkenna okkar rekstur, grunnur (almennt), stoðir (viðbót við grunn), þak (sérhæft fyrir starf viðkomandi). Stjórnendur hafa nú mun betri aðgang í rauntíma að upplýsingum um hvaða fræðslu starfsfólk þeirra hefur tekið, hvað það á eftir að taka og enn betri möguleiki á eftirfylgni. Samhliða nýjum fræðsluvettvangi var lögð enn frekari áhersla á að útbúa fræðsla og þjálfun er varðar þekkingu og notkun á vörunum okkar. Okkar helsta áskorun í fræðslumálum er fjölbreyttur hópur starfa og óskir um fjölbreyttar leiðir til þess að afla sér þekkingar. Sérstök áhersla var lögð á að vinna úr þeim vanda á árinu 2023. Í vinnustaðagreiningu sem framkvæmd var í nóvember til desember 2023 kemur fram að starfsfólk okkar telur sig hafa aukið aðgengi að þjálfun og þróun árið 2023 samanborið við fyrra ár. Mat starfsfólks á möguleika á þjálfun og þróun hækkar um 4% milli áranna 2022 og 2023. Í samtölum við starfsfólk okkar kemur skýrt fram að helsta fræðslan sem þau telja að sig skorti sé aukin vöruþekking. Á árinu 2023 hefur BYKO skólinn verið í endurskoðun með það að markmiði að einfalda dagskrá skólans ásamt því að leggja áherslu á efni sem nýtist starfsfólki á fyrstu vikum þess í starfi. Skólinn er hugsaður sem fræðsla fyrir nýtt starfsfólk þar sem þeir fá kynningu á flestu sem tengist BYKO s.s. gildi, sögu BYKO og hlutverk deilda. 30
Sjálfbærniskýrsla 2023
Eigið starfsfólk Jafnrétti & fjölbreytileiki BYKO starfar í geira sem í gegnum tíðina hefur verið litið á sem karllægan geira og er það okkar samfélagslega ábyrgð að stuðla að auknum fjölbreytileika og jafnrétti. BYKO er stórt félag og getur því haft töluverð áhrif á framþróun jafnréttismála innan smásölu og byggingariðnaðarins. Á árinu 2023 fóru allir okkar stjórnendur á námskeið um ómeðvitaða hlutdrægni ásamt því að efnið var gert aðgengilegt öllu starfsfólki. Ef við ætlum að ná árangri í jafnréttis- og fjölbreytileikamálum er mikilvægt að allt okkar starfsfólk, þá sérstaklega stjórnendur séu meðvitaðir um sína eigin ómeðvituðu hlutdrægni. Sem karllægt félag með meirihluta af starfsfólki okkar sem skilgreinir sig sem karl er það einnig okkar ábyrgð að fræða um kynjahlutverk, breytingar sem eiga sér stað í menningu okkar og samfélagi. Á árinu buðum við öllu okkar starfsfólki upp á að sitja fyrirlestur um karlmennskuna og hvernig samfélagið okkar eru að breytast þegar kemur að staðalímyndum. Félagið starfrækir jafnréttis- og fjölbreytileikanefnd sem samanstendur af starfsfólki víðs vegar um félagið. Nefndin hefur það hlutverk að endurskoða jafnréttisáætlun félagsins að því marki að ganga umfram það sem lög krefja okkur um. Hluti af þeirri vinnu hefur verið aukin fræðsla til hópsins um minnihlutahópa innan samfélagsins s.s. kynsegin, geðfatlaða, einstaklinga af erlendum uppruna o.s.frv. Áætlað er að ljúka endurútgáfa á jafnréttisáætlun félagsins á árinu 2024.
31
Sjálfbærniskýrsla 2023
Eigið starfsfólk Jafnrétti & fjölbreytileika Félagið hlaut ekki viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar á árinu. Fækkað var um eitt stöðugildi i framkvæmdastjórn félagsins sem varð til þess að kynjahlutföll uppfylltu ekki skilyrði Jafnvægisvogarinnar um að hlutfall milli kynja sé a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórn. Félagið hafði áður fengið árlega viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar frá undirritun samstarfs árið 2019. BYKO hlaut jafnlaunavottun í febrúar 2020 hefur staðist árlegar úttektir frá vottun. Endurvottun fór fram árið 2022. Launamunur heildarlauna mældist 5,4% konum í óhag og launamunur grunnlauna mældist 2,9% konum í óhag sem er lækkun á launamun frá fyrra ári. Unnið er að endurskoðun starfsmats til þess að skýringarhlutfall launagreininga hækki og unnt sé að ráðast í leiðréttingar á launum með það að markmiði að minnka launamun enn frekar. Áætlað er að endurskoðun starfsmatskerfis verði lokið fyrir lok árs 2024. BYKO hefur mótað viðbragðsáætlun fyrir einelti, kynbundnu áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi (EKKO). BYKO er í samstarfi við Siðferðisgáttina sem gerir starfsfólki kleift að leita til utanaðkomandi óháðs aðila ef upp koma erfið mál. Engar tilkynningar bárust til siðferðisgáttarinnar á árinu 2023. BYKO styður við starfsfólk fjárhagslega sem vill nýta sér rétt sinn til foreldra- og fæðingarorlofs og höfða þar til allra kynja. 61% þeirra sem fóru í leyfi frá störfum á árinu 2023 vegna barneigna nýttu sér foreldra- og fæðingarorlofsstyrk félagsins samanborið við 42% á árinu á undan. Á árinu 2023 fóru 23 einstaklingar í fæðingar- og eða foreldraorlof, að meðaltali 2,83 mánuði hver. Konur fóru að meðaltali í 4,61 mánuði en karlar í 2,05 mánuði sem er aukning hjá körlum frá fyrra ári en stytting hjá konum. Við sjáum aukningu í fjölda karla sem kjósa að fara í orlof milli ára. Við erum meðvituð um jafnréttissjónarmið og fjölbreytileika þegar kemur að markaðsefni félagsins og meðvitað vinnum við að því að brjóta niður staðalímyndir í byggingar- og verslunariðnaði. Einnig viljum við vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir einstaklinga af fjölbreyttum uppruna og greiðir BYKO fyrir íslenskukennslu fyrir starfsfólk með annað móðurmál en íslensku. Á árinu buðum við öllu okkar starfsfólki af erlendum uppruna gjaldfrjálsan aðgang að stafræna íslenskukennslu smáforritinu: ,Bara tala‘. Mikil vinna hefur átt sér stað innan BYKO til að tryggja jafnrétti, bæði með því að fjölga konum í stjórnendastöðum, hvetja konur til að sækja um störf hjá fyrirtækinu og fá jafnlaunavottun.
32
Sjálfbærniskýrsla 2023
Viðskiptavinir & endanotendur BYKO er umhugað um viðskiptavini sína og leggjum við okkur fram við persónuvernd, aðgengi að gæðaupplýsingum, heilsu og öryggi neytenda og viðskiptaánægju.
Öryggismál
Fræðsla
Á árinu komu 1192 mál á borð öryggis- og eftirlitsdeildar sem er rúmlega 20% aukning á milli ára. Stærsti hluti þessara mála eru tengd þjófnaði viðskiptavina eða 74<<<% og um 26% eru öryggisatvik og óhöpp. Sum þessara öryggisatvika eru BYKO óviðkomandi og má þar t.d. nefna árekstra og önnur sambærileg atvik á athafnasvæðum BYKO. Einum viðskiptasamningi var sagt upp á árinu vegna atvika sem upp komu. Sjö starfsmenn fengu áminningu eða uppsögn vegna atvika á árinu.
BYKO hefur unnið markvisst að sjálfbærni síðustu árin og talað fyrir sjálfbærnivegferð BYKO, eigin ábyrgð á innra starfi sem og fræðslu um vistvæn byggingarefni og vistvottunarkerfi, en með því náum við að hafa áhrif á byggingariðnaðinn að byggja vistvænni mannvirki, bæði í þágu umhverfis, mannfólks og rekstarhagkvæmni til framtíðar.
Persónuvernd BYKO er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu BYKO kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Stefna þessi var uppfærð 27.1.2023.
33
Sjálfbærniskýrsla 2023
Samfélagsleg áhrif Samfélagssjóður BYKO BYKO sýnir samfélagslega ábyrgð í verki og leitast við að styðja við verkefni sem samræmast stefnu félagsins, gildum og þeim heimsmarkmiðum sem félagið starfar eftir. Verkefni sem snúa að sjálfbærni eða að umsækjandi/fyrirtæki/félagasamtök starfi með sjálfbærni að leiðarljósi styrkir stöðu umsóknar þar sem umsækjendur eru hvattir til að vinna eftir stoðum sjálfbærninnar sem eru umhverfismál, félagsleg mál og stjórnarhættir. Verkefni sem snúa að heilbrigði og hreyfingu í barnastarfi og/eða uppbyggingar í samfélaginu falla vel að. Á árinu 2023 styrkti samfélagssjóðurinn eftirfarandi verkefni:
Lionsklúbbur Kópavogs – Gamli Kópavogsbærinn
Styrktarfélagið Haven Rescue Home í Kenýa
Björgin – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja
Styrktarsamningur fyrir endurbætur á íbúðarhúsi gamla Kópavogsbæjarins í Kópavogstúni. Lionsklúbburinn fékk til umráða þetta elsta hús bæjarins til uppgerðar og mun íbúðarhúsnæðið nýtast fjölskyldum langveikra barna af landsbyggðinni sem sækja þurfa meðferð og læknisþjónustu til borgarinnar.
Haven Rescue Home er heimili í Kenýa fyrir stúlkur 18 ára og yngri sem eru barnshafandi eða mæður ungra barna, búa við fátækt og hafa ekki færi á að ljúka skólagöngu eða búa við ofbeldi. Þetta verkefni er hugsjónastarf Önnu Þóru Baldursdóttur, hún hóf þennan rekstur eftir að hafa upplifað neyðina og kynnst landinu í gegnum sjálfboðaliðastarf á svæðinu. Grunnmarkmið með þessu úrræði er að tryggja þessum viðkvæma hópi stúlkna menntun þrátt fyrir stöðu og bakgrunn, þær fá stuðning ásamt því að taka virkan þátt í starfseminni og læra þannig að spjara sig í lífinu og hafa aukin atvinnutækifæri að skólagöngu lokinni. Samfélagssjóður styrkti félagið til kaupa á eigin landi sem nýta á til ræktunar matvæla og létta þannig á rekstrarkostnaði heimilisins fyrst um sinn ásamt því að með tímanum fjármagna byggingu eigin húsnæðis á lóðinni.
Björgin er athvarf og endurhæfingarúrræði fyrir einstaklinga með hvers konar geðheilsuvanda og sækja um 30-50 manns miðstöðina daglega. Markmið miðstöðvarinnar er að rjúfa félagslega einangrun, efla sjálfstæði einstaklinga, auka samfélagsþátttöku þeirra og draga úr stofnanainnlögnum. Vegna rakaskemmda sem upp komu í húsnæði miðstöðvarinnar þurfti að ráðast í endurbætur og styrkti samfélagssjóður BYKO Björgina um nýtt parket á húsnæðið til að hægt væri að ljúka framkvæmdum.
UNICEF – Íslensk landsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna UNICEF fékk til afnota nýtt húsnæði í Hafnarfirði og þurftu að standsetja það. Samfélagssjóður BYKO styrkti samtökin um gjafabréf til kaupa á helstu nauðsynjum á borð við málningu o.fl. svo hægt væri að ljúka verkefninu og koma húsnæðinu í notkun.
34
Sjálfbærniskýrsla 2023
Samfélagsleg áhrif Ýmsir íþróttatengdir styrkir Samfélagssjóður BYKO, sem lesa má um hér, studdi einnig dyggilega við bakið á ýmis konar íþróttatengdum verkefnum á árinu, þ.m.t:
Team Rynkeby Hópur Íslendinga sem hjólar frá Danmörku til Parísar ár hvert til að safna fé fyrir langveik börn. Starfsmenn BYKO hafa tekið virkan þátt í hjólreiðahópnum undanfarin ár og BYKO verið dyggur stuðningsaðili hópsins.
Stjarnan – kvennakörfubolti BYKO gerði á árinu 2023 samning til tveggja ára vegna verkefnis körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar um að fjölga konum í körfubolta ásamt því að ná að byggja upp samfellu í flokkum kvennaflokka deildarinnar og draga úr brottfalli. Samhliða var unnið rannsóknarverkefni á vegum Háskólans í Reykjavík.
Víkingamótaröðin Samfélagssjóður BYKO gerði á árinu 2022 samning til fjögurra ára um að styrkja Víkingamótin bæði með fjárframlagi og vöruúttekt. Þetta eru tvær hjólreiðakeppnir og tvær hlaupakeppnir árlega sem er öllum opin til þátttöku, þessu til viðbótar hefur BYKO tekið virkan þátt í fjölskyldu skemmti hjólahring í tengslum við KIA gullhringinn sem endar í grilli og skemmtun fyrir fjölskyldur á bílaplani BYKO á Selfossi.
35
Sjálfbærniskýrsla 2023
Samfélagsleg áhrif Þátttaka í nýsköpun BYKO hefur tekið þátt árlega í nýsköpunarverkefnum, bæði til að styðja við bakið á frumkvöðlum og ekki síður til að skapa og miðla þekkingu út á markaðinn til að hafa áhrif til betri vegar.
Hönnunarstofan Plastplan
Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu
Visthönnun
Hringrás plastefna með því að taka það plast sem fellur til í BYKO og þróa og framleiða úr því ný og falleg verk. Á árinu 2022 var fyrsta varan framleidd, þúsund stykki af blómapottum merktir 60 ára afmæli BYKO. Á árinu 2023 fór fram frekari vöruþróun og framleiðsla hafin á kíttisspöðum og málningar fylgihlutum sem hefur verið dreift til fagaðila til reynslu gegnum BYKO á Granda. Plastplan var sigurvegari Hönnunarverðlauna Íslands 2022 fyrir hugsjón sína, hönnun og stuðning við efnahringrásina.
Pikkoló stöðvarnar eru kældar sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir matvöruverslanir á netinu. Viðskiptavinir geta pantað vörur frá ýmsum verslunum og nálgast þær svo í vistvænt kældum stöðvum sem nú eru komnar á þrjá staði um höfuðborgarsvæðið, nálægt stærri vinnustöðum. Markmiðið er að draga úr umferð og losun sem því fylgir. Samstarf BYKO og Pikkoló felur í sér að BYKO útvegar húsin sem hýsa sjálfsafgreiðslustöðvarnar.
Árið 2020 hófst samstarf við Visthönnun sem reisir Svansvottað einbýlishús í Hafnafirði, það hús er byggt úr CLT einingum og rík áhersla lögð á að sem mest af efninu sé vottað. Verkefnið er enn í vinnslu. Hlutverk BYKO er að veita faglega ráðgjöf við vistvæn byggingarefni.
36
Sjálfbærniskýrsla 2023
Samfélagsleg áhrif BYKO er aðili að eftirfarandi félagasamtökum
37
Sjálfbærniskýrsla 2023
Starfsfólk í virðiskeðju BYKO er annt um að starfsfólk í virðiskeðju okkar starfi við góðar vinnuaðstæður, það sé hlúað að heilsu og öryggi þess og nauðungar- og barnavinna sé ekki stunduð.
Mat á birgjum Þegar BYKO velur birgja þá horfir fyrirtækið í átt að sjálfbærni og umhverfismálum og hvernig og hversu langt birgjar eru komnir í sjálfbærni. Vöruúrval birgja hefur að hluta til verið greint með hliðsjón af því hvort vörurnar séu leyfilegar í Svansvottuð hús eða önnur vottunarkerfi eins og BREEAM. Birgjasamsetning hefur verið skoðuð út frá landfræðilegri staðsetningu þeirra. Megnið af öllum birgjum BYKO eru innan EES eða um 88% og þar af leiðandi um 12% utan EES, að mestu í Asíu. BYKO hefur sjálft ekki hafið að greina einstaka birgja út frá samfélagslegum sjónarmiðum svo sem nauðungar- eða barnavinnu en í gegnum innkaupasamstarfsnetið BRICO Alliance sem BYKO er aðili að hefur verið sett upp skrifstofa í Shanghai sem gerir út skoðunarfólk á vegum sambandsins sem áskilur sér rétt til að heimsækja verksmiðjur í Kína sem eru að framleiða vörur fyrir aðila innan BRICO hvenær sem er á framleiðslutímanum til að meta starfsaðstæður og hvort það leiki grunur á að stunduð sé nauðungar- eða barnavinna. Á árinu 2024 er gert ráð fyrir því að kalla eftir yfirlýsingum frá helstu birgjum um þeirra aðgerðir til að sporna við nauðungarog barnavinnu og hvernig þau tryggja starfsfólki viðunandi starfsaðstæður. 38
Stjórnarhættir
39
Sjálfbærniskýrsla 2023
Virðiskeðjan Aðfangakeðja Vöruúrval BYKO felur í sér um 40 þúsund vörutegundir sem eru keyptar inn frá tæplega 800 birgjum. Vörurnar eru að mestu leiti fluttar landleiðina til safnstöðva BYKO sem eru í Rotterdam, Immingham og Arhus. Þar er vörunum safnað saman í heila gáma sem eru fluttir til landsins með Eimskip eða Samskip. BYKO leigir skip og flytur vörur frá Lettlandi með viðkomu í öðrum löndum eins og Svíþjóð til að sækja vörur frá þarlendum birgjum. Þegar vörurnar koma til landsins fara þær í vöruhús BYKO sem eru fjögur talsins og í öllum vöruhúsum er farið eftir umhverfisstöðlun og flokkun.
Vörumóttökur Innleiðing á ferlum varðandi vörumóttökur inn í verslanir hefur gengið mjög vel og höfum við séð mun samræmdri vinnubrögð. Móttökur í gegnum handtölvur þar sem varan er skönnuð inn á lager hjá okkur fór úr 22,8% um mitt ár 2023 og upp í 83,05% í lok desember 2023, sjáum við það skila sér verulega í betri réttleika birgða. Samskipti og samtal allra aðila í vörukeðjunni hefur stóreflst enda hafa allir sem koma að flæði vöru áhrif á réttleika birgða. Unnið er að breytingum á einum verslunar lagernum til að auðvelda vörumóttöku á þeim lager.
Sítalningar 2023 Sítalningar 2023 gengu vel. Við samræmdum skráningar á öllum rýrnunum á öllum starfsstöðvum, bæði óþekkta og þekkta rýrnun sem er að skila okkur árangri í að lækka óþekkta rýnun sem og gegnsæi og rekjanleika á rýrnum. Verkferlar í sítalningum eru eins í öllum starfsstöðvum BYKO. Framundan er að nýta tæknina (handskanna) til að auka tíðni í birgðaleiðréttingum og fá skilvirkara verklag frá starfsfólki í verslun til talningarfulltrúa um birgðaleiðréttingu. Við erum að vinna að mælikvarða til að geta mælt árangur í réttleika birgða milli ára með eins nákvæmum hætti og mögulegt er.
40
Sjálfbærniskýrsla 2023
Viðskiptasiðferði BYKO rekur öfluga öryggisdeild sem heldur vel utan um málefni sem varða viðskiptasiðferði.
Áhættumat & hætta á spillingu BYKO gerir úttektir á helstu áhættuatriðum í rekstri fyrirtækisins á sex mánaða fresti. Helstu áhættuþættir sem hafa verið greindir í þessum úttektum eru misnotkun afsláttar í sölukerfi, misferli starfsmanna, aðgangur óviðkomandi að lagersvæðum og svikatilraunir í gegnum tölvupóst og netsamskipti. Fyrirtækið leggur áherslu á að minnka möguleg misferli á ýmsan máta. Öryggismyndavélum hefur verið komið upp á öllum starfsstöðvum þar sem slíkt er heimilt út frá persónuverndarsjónarmiðum. Stjórnendur, næstráðendur og lykilsstarfsmenn hafa fengið fræðslu um verklagsreglur gegn spillingu. Fjórir birgjar hafa verið í samstarfi við BYKO til að greina mögulega áhættu á svikastarfsemi auk þess sem hluti verktaka sem annast störf á athafnasvæði BYKO hafa fengið fræðslu varðandi áhættu á spillingu.
41
Yfirlitstöflur
42
Sjálfbærniskýrsla 2023
Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna BYKO skilgreindi árið 2019 fimm kjarnamarkmið og hóf innleiðingu á árinu 2020, upphaf innleiðingar fólst í því að fræða starfsfólk um öll 17 heimsmarkmiðin og hvað þau þýða. Farið var ítarlegra í þau markmið sem BYKO hafði skilgreint sem kjarnamarkmið og ástæðuna fyrir því af hverju þau markmið voru valin frekar en önnur, það sem skiptir okkur máli er að geta haldið umræðunni á lofti og hjálpað hvort öðru að átta okkur á mikilvægi markmiðanna. Árið 2022 var farið í ítarlegri fræðslu til starfsfólks og kjarnamarkmiðunum komið í ábyrgð hverrar deildar. Þetta var framkvæmt með námskeiðum þar sem fulltrúar frá hverju sviði/deild komu saman til að auka skilning og voru markmiðin sett í ábyrgð þeirra þar sem þau eiga fóstra þau, láta þau vaxa og dafna. Árið 2023 átti að vera næsta skref innleiðingar þar sem fara átti yfir lærdóm og breytingar sem hafa átt sér stað síðan markmiðin voru innleidd. Þessi vinna fór ekki fram og fyrir því eru margar ástæður, m.a. breytingar á skipuriti og starfsfólki sem starfa að innleiðingu sjálfbærni ásamt fyrirhugaðri endurskoðun á sjálfbærnistefnu félagsins.
Mynd: Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (e. The Sustainable Development Goals)
43
Sjálfbærniskýrsla 2023
Kjarnamarkmið BYKO BYKO setur sér mælanleg og tímasett markmið á kjarnamarkmiðum út frá heimsmarkmiðum og áskorunum á Íslandi. Kjarnamarkmiðin falla undir heimsmarkmið 5, 8, 9, 12 og 17. Röksemdir fyrir vali á þessum kjarnamarkmiðum og undirmarkmiðum má finna hér. BYKO vinnur að öðrum heimsmarkmiðum samhliða kjarnamarkmiðum eins og markmið númer 13, aðgerðir í loftlagsmálum og markmið númer 3, heilsa og vellíðan. Ástæðan fyrir því að þessi markmið eru ekki kjarnamarkmið er að meiri þunga þarf að leggja í kjarnamarkmiðin og þykir eðlilegra að velja ekki of mörg þótt önnur séu mjög mikilvæg og unnið að þeim daglega í rekstrinum.
Mynd: Sjálfbærni markmið BYKO fyrir árið 2023
44
Sjálfbærniskýrsla 2023
Kjarnamarkmið BYKO 2023 Ekki var náð öllum sjálfbærni markmiðum 2023 Heimsmarkmið
Kjarnamarkmið 2023
Náðist
Upplýsingar
5, 17
Minnka launamun kynjanna í 1%
Nei
Var 2.9% í lok 2023.
5, 17
Hlutfall kvenna við nýráðningar verði 35%
Nei
Var 29% í lok 2023.
7, 9, 17
Fjölga hleðslustöðvum fyrir starfsfólk og viðskiptavini
Já
Þessu verður haldið áfram með frekari uppbyggingu.
12, 17
Auka notkun á endurnýttu plasti til brettapökkunnar
Já
Verður haldið áfram að skipta út fleiri stöðvum.
12, 17
Auka hlutfall vistvænna vara í vöruframboði í 30%
Nei
Er að aukast jafnt og þétt með frekari framþróun hjá framleiðeindum.
12, 17
Auka markvisst hringrásarverkefni
Nei
Þarfnast frekari þarfagreiningar og áætlanagerðar til framtíðar.
12, 17
Auka merkingar á vistvænum vörum í verslun í 70%
Nei
Náðist ekki vegna breytinga í verslunum.
12, 17
Auka umhverfisgögn í vöruleit á vef
Nei
Náðist ekki vegna tæknilegra örðugleika.
12, 17
BYKO fá rekjanleikavottun á timbri
Já
FSC/PEFC vottanir staðfestar á öllu timbri sem BYKO flytur inn.
12, 17
Svansvottun á BYKO gluggum
Já
Var ekki upprunalega markmið fyrir 2023.
12, 13, 17
Auka kolefnisbindingu með plöntun 3500 trjáa
Nei – var hætt við
Þetta markmið var endurskoðað og hvort ætti að kaupa vottaðar einingar til notkunar í kolefnisbókhaldi BYKO. Hætt var við markmiðið.
13, 17
Draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda
Já 45
Sjálfbærniskýrsla 2023
Kjarnamarkmið BYKO 2024 Heimsmarkmið Kjarnamarkmið Sjálfbærni markmið 2024 2024 5
Minnka launamun kynjanna í 1%.
5
Hlutfall kvenna við nýráðningar verði 35%.
7&9
Fjölga hleðslustöðvum fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
8
Greining á aðfangakeðju BYKO.
12
Auka hlutfall vistvænna vara í vöruframboði í 30%.
12
Auka notkun á endurnýttu plasti til brettapökkunar.
12
Auka umhverfisgögn í vöruleit á vef.
13
Draga enn frekar úr losun gróðurhúsalofttegunda.
46
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
102-1
Nafn skipulagsheildarinnar
Að fullu
BYKO hf.
102-2
Starfsemi, vörumerki, vörur og þjónusta
Að fullu
Fyrirtækið
102-3
Staðsetning höfuðstöðva
Að fullu
Skemmuvegur 2a, 200 Kópavogur
102-4
Staðsetning rekstrar
Að fullu
Öll starfsemi BYKO er á Íslandi
102-5
Eignarhald og félagaform
Að fullu
BYKO er hlutafélag. Eignarhald var óbreytt á árinu. Byko er 100% í eigu Norvik Iceland sem er síðan í 100% eigu Norvík hf.
102-6
Markaðir í þjónustu
Að fullu
Fyrirtækið; https://www.byko.is/verslanir
102-7
Stærð skipulagsheildar
Að fullu
Umfang rekstrar
102-8
Upplýsingar um starfsmenn og aðra starfskrafta
Að fullu
Félagslegir þættir
102-9
Aðfangakeðja
Að fullu
Stjórnarhættir
102-10
Verulegar breytingar á skipulagsheildinni og aðfangakeðju hennar
Að fullu
Fyrirtækið
102-11
Varúðarregla eða -nálgun
Að fullu
Sjálfbærni
102-12
Innleiðing utanaðkomandi frumkvæða
Að fullu
Félagslegir þættir
102-13
Aðild að samtökum
Að fullu
Félagslegir þættir
Yfirlýsing frá æðsta ákvörðunartaka
Að fullu
Ávarp forstjóra
Gildi, meginreglur, staðlar og atferlisviðmið
Nei
BYKO hefur ekki gefið út siðareglur
Stjórnskipulag
Að fullu
Stjórnskipulag
102-40
Listi yfir hópa hagsmunaaðila
Að fullu
Sjálfbærni
102-41
Sameiginlegir kjarasamningar
Að fullu
Allir starfsmenn vinna samkvæmt kjarasamningi VR
102-42
Auðkenning og val á hagsmunaaðilum
Að fullu
Sjálfbærni
102-43
Verklag við virkjun hagsmunaaðila
Að fullu
Sjálfbærni
102-44
Helstu efnistök og málefni
Að fullu
Sjálfbærni
Upplýsingar um fyrirtæki
Stefna og greining 102-14 Siðareglur 102-16 Stjórnarhættir 102-18 Þátttaka og skuldbindingar hagsmunaaðila
47
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
102-45
Aðilar sem eru hluti af samstæðureikningsskilum
Að fullu
Fyrirtækið, Sjálfbærniskýrsla 2023
102-46
Skilgreining á efni skýrslu og mörkum efnistaka
Að fullu
Fyrirtækið, Sjálfbærniskýrsla 2023
102-47
Listi yfir viðfangsefni
Að fullu
Sjálfbærni
102-48
Ítrekun upplýsinga
Að hluta
Stjórnskipulag
102-49
Breytingar á skýrslugjöf
Að fullu
Stjórnskipulag
102-50
Tímabil skýrslugjafar
Að fullu
Skýrslan gildir fyrir almanaksárið 2023
102-51
Dagsetning síðustu skýrslu
Að fullu
5. apríl 2023
102-52
Tíðni skýrslugjafar
Að fullu
Árleg
102-53
Tengiliður vegna upplýsingagjafar um skýrsluna
Að fullu
jona@byko.is
102-54
Staðhæfingar um skýrslugjöf í samræmi við GRI staðla
Að fullu
Sjálfbærniskýrsla 2023
102-55
GRI efnisvísir
Að fullu
Tilvísunartafla
102-56
Ytri trygging
Að hluta
Staðfesting
103-1
Útskýring á viðfangsefni og mörkum þess
Að fullu
Fyrirtækið, Sjálfbærniskýrsla 2023
103-2
Stjórnunarnálgunin og þættir hennar
Að fullu
Sjálfbærni; Stjórnarhættir
103-3
Mat á stjórnunarnálguninni
Að hluta
Markmið
201-1
Beint efnahagslegt virði sem er skapað og dreift
Að fullu
Sjá ársreikning
201-2
Fjárhagsleg áhrif og önnur áhætta og tækifæri sökum loftslagsbreytinga
Að hluta
201-3
Skilgreint fyrirkomulag skuldbindinga um bætur og annað fyrirkomulag eftirlauna
Að fullu
Umhverfisþættir BYKO, sem og allir starfsmenn, greiða í lögbundnar skyldutryggingar lífeyrisréttinda. BYKO greiðir einnig lögbundið mótframlag 2% fyrir þá starfsmenn sem leggja fyrir 2 til 4% í séreignasparnað
Hlutfall almennra byrjunarlauna eftir kyni samanborið við staðbundin lágmarkslaun
Að fullu
Laun samkvæmt kjarasamningi VR, óháð kyni
Mikilsháttar atriði og takmarkanir
Ávarp forstjóra
Nálgun stjórnenda
Fjárhagsmál Fjárhagsleg frammistaða
Sýnileiki á markaði 202-1
48
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
203-1
Innviðafjárfestingar og þjónusta sem stutt er við
Nei
203-2
Veruleg óbein efnahagsleg áhrif
Nei
Hlutfall útgjalda til birgja í nærsamfélaginu
Að fullu
Íslenskir birgjar 24%; Stjórnarhættir
205-1
Mat á rekstri vegna áhættu sem tengist spillingu
Að fullu
Stjórnarhættir
205-2
Samskipti og þjálfun um stefnur og verklagsreglur gegn spillingu
Að fullu
Stjórnarhættir
205-3
Staðfest atvik um spillingu og aðgerðir er gripið var til
Að fullu
Stjórnarhættir
Lagalegar aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun, hringamyndun og einokunaraðferðum
Nei
Engin samkeppnishamlandi hegðun
301-1
Efni sem notuð eru eftir þyngd eða rúmmáli
Að fullu
Umhverfisþættir
301-2
Endurunnið hráefni sem notað er
Nei
BYKO er ekki framleiðslufyrirtæki
301-3
Endurvinnanlegar vörur og efni notað í umbúðir þeirra
Nei
Ekki haldið utan um þessar upplýsingar
302-1
Orkunotkun innan skipulagsheildarinnar
Að hluta
Umhverfisþættir
302-2
Orkunotkun utan skipulagsheildarinnar
Að hluta
Umhverfisþættir
302-3
Orkukræfni
Að hluta
Umhverfisþættir
302-4
Minnkun á orkunotkun
Að hluta
Umhverfisþættir
302-5
Minnkun á orkuþörf vöru og þjónustu
Nei
Ekki viðeigandi þar sem BYKO er ekki framleiðandi
Vatnstaka eftir vatnsbólum
Að fullu
Allar starfstöðvar tengdar við vatnsveitur viðkomandi svæða
Óbein efnahagsleg áhrif
Öflun aðfanga 204-1 Spilling
Samkeppnishamlandi hegðun 206-1 Umhverfismál Efnisnotkun
Orka
Vatn og frárennsli 303-1
49
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
304-2
Veruleg áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika af starfsemi, vöru og þjónustu
Að fullu
Umhverfisþættir
304-3
Varin eða endurheimt búsvæði
Að fullu
Umhverfisþættir
305-1
Bein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (umfang 1)
Að fullu
Umhverfisþættir
305-2
Óbein orkulosun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (umfang 2)
Að fullu
Umhverfisþættir
305-3
Önnur óbein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (umfang 3)
Að hluta
Umhverfisþættir
305-4
Styrkur á losun gróðurhúsalofttegunda (GHL)
Að hluta
Umhverfisþættir
305-5
Minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda (GHL)
Að hluta
Umhverfisþættir
305-6
Losun ósoneyðandi efna
Að fullu
Umhverfisþættir
305-7
Losun köfnunarefnisoxíðs (NOX), brennisteinsoxíðs (SOX) og önnur veruleg losun lofttegunda
Að fullu
Umhverfisþættir
306-2
Úrgangur eftir tegund og förgunaraðferð
Að fullu
Umhverfisþættir
306-3
Verulegur leki
Að fullu
Umhverfisþættir
Ekki farið að umhverfislögum og reglum
Að fullu
Engin þekkt tilfelli
308-1
Nýir birgjar sem voru skimaðir með því að notast við umhverfisviðmið
Að hluta
Félagslegir þættir
308-2
Neikvæð umhverfisáhrif í aðfangakeðjunni og aðgerðir sem gripið var til
Að fullu
Umhverfisþættir
401-1
Nýráðningar starfsmanna og starfsmannavelta
Að hluta
Félagslegir þættir
401-2
Fríðindi fyrir starfsmenn í fullu starfi en ekki fyrir starfsmenn í hluta- eða tímabundnu starfi
Að fullu
Fríðindi starfsmanna eru í samræmi við kjarasamninga. Önnur fríðindi standa öllum til boða
401-3
Foreldraorlof
Að hluta
Félagslegir þættir
Lágmarks uppsagnarfrestur ef breytingar verða á rekstri
Að fullu
Starfskjör þar með talið uppsagnafrestur er í samræmi við kjarasamning VR
Líffræðileg fjölbreytni
Frárennsli og úrgangur
Hlítni 307-1 Umhverfisáhrif birgja
Samfélagsmál Vinnuafl
Kjaramál 402-1
50
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
403-1
Fyrirsvar í formlegum og sameiginlegum heilsu- og öryggisnefndum stjórnenda og starfskrafta
Að fullu
Stjórnarhættir
403-2
Tegundir og tíðni meiðsla, atvinnusjúkdómar, fjarverudagar og fjöldi vinnutengdra dauðsfalla
Að hluta
Stjórnarhættir
403-3
Starfskraftar með háa tíðni eða í mikilli hættu á að þróa með sér starfstengda sjúkdóma
Að fullu
Stjórnarhættir
403-4
Efnistök er varða heilsu- og öryggismál sem fjallað er um í formlegum samningum við stéttarfélög
Að hluta
Stjórnarhættir
403-5
Þjálfun starfsmanna í tengslum við vinnueftirlit
Að hluta
Stjórnarhættir
403-6
Aðgerðir til að efla heilbrigði starfsmanna
Að fullu
Félagslegir þættir
403-7
Varnir og aðgerðir til að draga úr atvinnusjúkdómum og auka öryggi í viðskiptasamböndum
Að hluta
Félagslegir þættir
403-8
Hlutfall starfsmanna sem vinnueftirlit nær til
Að fullu
Allir starfsmenn og verktakar á athafnasvæði BYKO
403-9
Starfstengd meiðsla
Að hluta
Stjórnarhættir
403-10
Atvinnutengdir sjúkdómar
Að hluta
Stjórnarhættir
404-1
Árlegur meðalfjöldi klukkustunda í þjálfun á hvern starfsmann
Að hluta
Félagslegir þættir
404-2
Áætlanir um símenntun starfsmanna og stuðningur við breytingar
Að fullu
Félagslegir þættir; Starfslok í samræmi við ákvæði kjarasamninga
404-3
Hlutfall starfsmanna sem fær reglulega rýni á framistöðu og starfsþróun
Að hluta
Félagslegir þættir
405-1
Fjölbreytileiki stjórna og starfsmanna
Að fullu
Stjórnskipulag
405-2
Hlutfall grunnlauna og þóknana kvenna í samanburði við karla
Að fullu
Félagslegir þættir
Atvik um mismunun og framkvæmdar úrbætur
Að fullu
Félagslegir þættir
Vinnueftirlit
Þjálfun og menntun
Fjölbreytileiki og jöfn tækifæri
Jafnræði 406-1
51
Sjálfbærniskýrsla 2023
GRI TILVÍSUNARTAFLA 2023 Tilvísun
Lýsing
Skýrslugjöf
Athugasemdir / Heiti kafla
Rekstur og birgjar þar sem hætta er á sniðgöngu varðandi félagafrelsi og sameiginlega kjarasamningagerð
Að hluta
Stjórnarhættir
Rekstur og birgjar þar sem verulega hætta getur verið á barnaþrælkun
Að hluta
Stjórnarhættir
Rekstur og birgjar þar sem veruleg hætta getur verið á nauðungar- eða skylduvinnu
Að hluta
Stjórnarhættir
414-1
Nýir birgjar sem voru skimaðir á grundvelli félagslegra viðmiða
Að fullu
Stjórnarhættir; Engir birgjar skimaðir
414-2
Neikvæð félagsleg áhrif í aðfangakeðjunni og aðgerðir sem gripið var til
Að fullu
Ekki gripið til aðgerða
Framlag til stjórnmála
Að fullu
BYKO greiddi engin framlög til stjórnmálaflokka
416-1
Mat á heilsu- og öryggisáhrifum vöru- og þjónustuflokka
Að fullu
Félagslegir þættir
416-2
Atvik þar sem ekki var farið eftir reglum og varða vöru og þjónustu sem hefur áhrif á heilsu og öryggi
Að fullu
Engin tilvik á árinu
417-1
Kröfur til upplýsinga og merkinga á vörum og þjónustu
Að hluta
Helstu breytingar
417-2
Atvik þar sem ekki er farið eftir reglum sem varða upplýsingar og merkingar vöru og varða þjónustu
Að fullu
Engin þekkt tilvik á árinu
417-3
Atvik við markaðssetningu þar sem ekki er farið eftir reglum
Að fullu
Engin þekkt tilvik á árinu
Rökstuddar kvartanir varðandi brot á persónuvernd viðskiptavina og tap á gögnum þeirra
Að fullu
Engar rökstuddar kvartanir á árinu
Ekki farið að lögum og reglum á félagslegum og efnahagslegum sviðum
Að fullu
Engin þekkt tilvik á árinu
Félagafrelsi og kjaraviðræður 407-1 Barnavinna 408-1 Nauðungar- og skylduvinna 409-1 Mat á samfélagsáhrifum birgja
Opinber stefna 415-1 Heilsa og öryggi viðskiptavina
Merkingar á vöru og þjónustu
Persónuvernd viðskiptavina 418-1 Hlítni 419-1
52