
1 minute read
Köfnunarefni
from Áburðahandbók SS
by buvorur
Köfnunarefni (N)
Köfnunarefni er mikilvægasta áburðarefnið. Það hefur mikil áhrif á vöxt plantna og er eitt af megin byggingarefnum próteins. Það er einnig hluti af blaðgrænu og gegnir því mikilvægu hlutverki við ljóstillífun. Plöntur taka köfnunarefni upp einkum sem nítrat (NO3 -) en einnig sem ammóníum (NH4 +). Nítrat í áburði nýtist plöntunni strax og það hefur náð að leysast upp í jarðveginum. Plöntur geta tekið upp ammóníum í litlu mæli en megnið af ammóníum umbreytist í nítrat áður en það er tekið upp. Ammóníum hefur sýrandi áhrif á jarðveginn.
Advertisement
SKORTSEINKENNI
Skertur vöxtur. Hefur áhrif á myndun blaðgrænu. Skortseinkenni koma fram sem ljósgrænn litur á yngri blöðum.
