Það er með miklu stolti sem við í Breiðabliki bjóðum ykkur öll velkomin á fertugasta Símamótið hér á félagssvæði okkar í Fagralundi og Smáranum. Það er ótrúlegt hversu mótið hefur vaxið og stækkað á þessum árum og ég held það megi fullyrða að þeim sem skipulögðu fyrsta mótið hefði aldrei órað fyrir hver þróunin hefur orðið.
Að hingað í dalinn kæmu 3000 stelpur til að spila fótbolta, reyna sig hver við aðra sem einstaklingar og ekki síður að keppa sem samhent lið. En um leið að njóta alls þess sem þátttakan býður upp á innan vallar sem utan og fara með töskuna héðan barmafulla af minningum.
Við skipulagningu mótsins er það haft að leiðarljósi að allar fái leiki við sitt hæfi og eðlilega keppni, þannig halda þær áfram að þroskast sem leikmenn og stíga næstu skref á vellinum og í lífinu. Hér á öllum að finnast þær öruggar, líða vel og njóta næstu daga. Við treystum því líka að nýja Símamótslagið muni hljóma um allt á mótinu en einnig óma í hugum þátttakenda lengi eftir að heim er komið.
Á bak við skipulag á móti sem þessu er ótrúlega öflugur og breiður
hópur sjálfboðaliða sem sinnir afar fjölbreyttum störfum. Áætla má að það séu rúmlega 2000 vinnustundir sem þarf að manna meðan á mótinu stendur, fyrir utan dómara, og er þá ótalin undirbúningurinn undanfarið ár. Það er auður Breiðabliks að hafa allt þetta fólk innan sinna vébanda og vil ég nota tækifærið og þakka þeim öllum hjartanlega fyrir sín störf. Ég vil nota tækifærið og þakka Símanum, aðalstyrktaraðila mótsins, fyrir frábært samstarf og stuðning sem og öðrum styrktaraðilum mótsins en án þeirra væri mótið ekki svo glæsilegt. Þá viljum við líka þakka Kópavogsbæ og starfsmönnum þar fyrir gott samstarf og samvinnu í fjölmörgum þáttum við undirbúning og framkvæmd.
Eins og nefnt var í upphafi þá hafa orðið miklar breytingar á mótinu síðan í byrjun, og samhliða hafa
GOTT AÐ VITA
Síminn verður með beinar útsendingar frá leikjum
á Símamótinu í Sjónvarpi Símans.
Öll mikilvæg símanúmer vegna framkvæmdar mótsins eru sjáanleg á heimasíðu mótsins, simamotid.is, undir flipanum „Hafðu samband“ og einnig undir flipanum „Handbækur“.
einnig orðið framfarir í því umhverfi sem knattspyrna kvenna býr við, hér á landi og erlendis. En þar er margt óunnið t.d. varðandi launamál, umgjörð og umfjöllun svo fátt sé nefnt. Afrekskonur okkar í knattspyrnu stigu svo til allar sín fyrstu keppnisskref í fótbolta hér á Símamótinu, þær hafa náð frábærum árangri, bæði sem einstaklingar og fyrir hönd Íslands. Á sinni leið hafa þær þurft að yfirstíga margar hindranir með dugnaði og seiglu.
Eigum við ekki að gefa hvert öðru það í 40 ára afmælisgjöf að þeim stelpum sem nú keppa á Símamótinu bíði betra og sanngjarnara umhverfi þegar þær stíga inn á stóra sviðið í efstu deildum og landsliðum. Þær eiga það allar; núverandi, fyrrverandi og verðandi afrekskonur, skilið. Áfram stelpur.
Símamótið er einn af hápunktum ársins hjá ykkur fótboltastelpum og njótið vel! Við í Kópavogi erum afskaplega stolt af því að fá nú í fertugasta sinn flottan hóp iðkenda á þetta fjölmennasta fótboltamót landsins. Það má með sanni segja að bærinn iði af lífi þessa daga sem mótið stendur yfir. Mótið fer fram í Kópavogsdal og nú hin seinni ár einnig í Fossvogsdal. Aðstæður til fótboltaiðkunar eru mjög góðar á báðum stöðum eins og vera ber í íþróttabænum Kópavogi.
Það er mikil upplifun að mæta á fótboltamót þar sem blandast saman gleði og spenna. Keppnisskapið skiptir máli en gleymum ekki að njóta
daganna og hvetja áfram liðsfélaga. Samheldni liðsins skiptir öllu máli. Á Símamótinu er andrúmsloftið einstaklega skemmtilegt eins og ég þekki af eigin raun. Ég lofa ykkur því að mótið er vel skipulagt af Breiðabliki líkt og undanfarin ár og áratugi.
Mig langar að hvetja ykkur til þess að njóta daganna í Kópavogi og nýta ykkur það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Sundlaugarnar okkar eru frábærar og útivistarsvæðin í bæði Kópavogsdal og Fossvogsdal til fyrirmyndar. Þá eru menningarhúsin okkar yndisleg heim að sækja en nýverið opnuðum við vísindasmiðju sem tengir á skemmtilegan máta saman vísindi, bókmenntir og listir.
Að lokum óska ég ykkur góðs gengis á Símamótinu, verið velkomin í Kópavog og góða skemmtun næstu daga.
Áfram þið!
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir, 22 ára
Staða: Miðja
A landsleikir: 41, 9 mörk
Félagslið: Bayer Leverkusen
Hvað er skemmtilegasta mótið sem þú hefur farið á?
Ég verð að segja EM 2022. Það jafnast ekkert á við tilfinninguna að spila á stórmóti fyrir landið sitt. En Símamótið er EM þegar maður er lítill!
Hver er eftirminnilegasti leikurinn sem þú hefur spilað à Símamótinu?
Ég spilaði úrslitaleik á Símamótinu í 6. flokki á móti Breiðabliki og við unnum þann leik 1-0 og tryggðum okkur gull, það var mjög skemmtilegt.
Hvað hefur þú spilað fyrir mörg félagslið?
Ég hef spilað fyrir fjögur. FH, Breiðablik, Bayern Munich og Bayer Leverkusen.
Hvað líkar þér best við fótbolta?
Að vinna. Ég er algjör keppnismanneskja og vil alltaf vinna.
Hvaða liði er skemmtilegast að keppa á móti og afhverju?
Mér finnst gaman að keppa á móti Þýskalandi þar sem ég tala þýsku og þekki nánast allt liðið.
Hvað hugsar þú um fyrir leiki, hvernig undirbýrðu þig?
Ég reyni ekki að hugsa mikið,
aðallega þá bara að njóta dagsins. Ég borða mjög hreint fæði og legg mig ef það er kvöldleikur annars er ég frekar slök og ekki með neina sérstaka rútínu.
Hvaða skilaboð ertu með til ungra stúlkna sem vilja ná langt?
Trúa á sjálfa sig, einbeita sér að ná markmiðum sínum og njóta þess að spila fótbolta!
Viðtal: Bryndís Lára Guðjónsdóttir
Áfram stelpur!
Setjum markið hátt
Dagskrá Símamóts 2024
Fimmtudagur
16:00 – 21:00* Afhending mótsgjafa í Smáranum fyrir öll lið** (ekki Litla Símamótið).
17:30 – 19:15 Kvöldmatur í Smáranum fyrir lið sem gista (allir flokkar).
19:30 Skrúðganga leggur af stað frá Smárahvammsvelli að Kópavogsvelli.
** Einungis hægt að sækja fyrir heilt félag í hverjum flokki en ekki einstök lið innan félaganna.
09:00 – 15:00 Litla Símamótið í Fífunni fyrir 8.flokk (hvert lið er með viðveru í ca. 1,5 klst.)
17:00 – 18:30* 6., 7. og 8. flokkur: Pylsur og skemmtun fyrir utan Smárann/Fífuna.
16:30 – 18:00* 5. flokkur: Pylsur í Fagralundi.
19:00* 5. flokkur: Bíó í Smárabíói.
Sunnudagur
07:00 – 10:00 Morgunmatur fyrir lið sem gista.
08:00 – 15:00 Kross-spil og úrslitaleikir/jafningjaleikir.
15:15 – 16:00* Úrslitaleikur 5. flokks í efsta styrkleika fer fram á Kópavogsvelli og mótslok.
Ítarlegri dagskrá má finna í handbók Símamótsins á simamotid.is Þetta
* Allar tímasetningar birtar með fyrirvara um breytingar, fylgist með á heimasíðu mótsins.
Nýtt fjölskyldu pakki
Sumartilboð
Grilluð samloka og franskar
Barnaborgari og franskar
Kjúklinganaggar og franskar
Mexíkósk kjúklingasúpa
Íslensk kjötsúpa
799 kr. Barnamáltíð og leikfang
Boxin fást á veitingastöðum okkar á Hvolsvelli, Blönduósi, í Staðarskála, Borgarnesi og á Akranesi.
Almennar upplýsingar á meðan á móti stendur
Munum að hér eru börn að leik og enginn að spila úrslitaleik á HM. Foreldrar/aðstandendur eiga að hvetja alla, vera jákvæðir og tala vel um dómarann, andstæðinginn, þjálfara og samherja.
Ungir dómarar eru að stíga sín fyrstu skref og þurfa að geta gert það án athugasemda frá hliðarlínunni. Leikmenn, þjálfarar og aðstandendur þurfa að virða ákvarðanir dómara. HUGSUM UM HAGSMUNI HEILDARINNAR OG ÁNÆGJU BARNANNA
ENDA ER MÓTIÐ FYRIR ÞAU.
Dagskrá og mótsreglur Símamóts
Dagskrá og mótsreglur má sjá á heimasíðu Símamótsins: simamotid.is
Leikjafyrirkomulag og leiðrétting úrslita
Leikjafyrirkomulag mun miða að því að liðin spili sem flesta leiki á sama svæði/völlum innan hvers dags. Liðin keppa í ákveðnum hollum þannig að þau spila annað hvort flesta leiki fyrir hádegi eða eftir hádegi.
ATH! Ekki er hægt að leiðrétta úrslit leikja eftir kl. 18:30 föstudag og laugardag. Mótstjórn þarf tímann eftir 18:30 til að stilla upp mótinu fyrir næsta dag. Fylgist því vel með úrslitum leikja um leið og þau koma inn í kerfið.
Skrúðganga og mótssetning
Skrúðgangan fer frá Smárahvammsvelli kl. 19:30 og inn á
Kópavogsvöll þar sem mótið verður sett.
Sjónvarps- og
samfélagsmiðlar
Sjónvarp Símans sýnir beint frá mótinu eins og undanfarin ár.
• Sýnt verður frá einum velli í hverjum flokki alla dagana og reynt að stýra liðum á þessa velli til að flest lið komist í útsendingu. Auðkennt verður í leikjaplani hvaða leikir verða í útsendingu hverju sinni.
Fjáröflunarnefnd 4. flokks rekur veitingasölu á Símamótinu líkt og fyrri ár. Veitingasalan verður dreifð um keppnissvæðið í Smáranum
og einnig verður veitingasala í Fagralundi.
Nestisaðstaða, óskilamunir Smárasvæði
• Hægt er að borða nesti og hlýja sér í sal í Smáranum.
• Allir óskilamunir fara í afgreiðslu í Smáranum. Fagrilundur
• Hægt er að borða nesti og hlýja sér í morgunmatssalnum.
• Allir óskilamunir fara í afgreiðslu í Fagralundi og eftir mót niður í Smárann.
Bílastæðamál
Vinsamlegast virðið ábendingar starfsfólks á bílastæðavöktum –þau þurfa að halda akstursleiðum á svæðinu opnum – SÉRSTAKLEGA VEGNA AÐKOMU NEYÐARBÍLA.
• Bent er á að bæði Lögregla og Bílastæðasjóður Kópavogs hafa eftirlit á svæðinu og grípa til viðeigandi úrræða ef bifreiðum er ólöglega lagt.
• Bifreiðum sem lagt er utan merktra bílastæða eða þar sem bannað er að leggja fá á sig stöðubrotsgjald í samræmi við gjaldskrá Bílastæðasjóðs Kópavogs.
• Bifreiðum sem skapa hættu eða loka mikilvægum leiðum verða dregnar burtu eða sektaðar.
ATH. það eru takmörkuð bílastæði við Fagralund og fólk hvatt til að sameinast í bíla eða koma hjólandi/ gangandi ef það hentar.
Sund
Frítt er í sund fyrir börn í Kópavogi – bæði í Salalaug og Kópavogslaug í vesturbæ Kópavogs.
VIÐ BJÓÐUM SÍMAMÓTINU
10%
Á SHAKE & PIZZA
GÓÐA SKEMMTUN
Hildur Antonsdóttir, 28 ára
Staða: Miðja
A landsleikir: 16, 2 mörk
Félagslið: Á milli liða
Hvað er skemmtilegasta mótið sem þú hefur farið á? Símamótið var alltaf í miklu uppáhaldi. En svo fannst mér líka gaman að fara á Pæjumótið á Sigló því þá gisti liðið saman.
Hver er eftirminnilegasti leikurinn sem þú hefur spilað á Símamótinu? Úrslitaleikur á móti HK þegar ég var í 4. flokki. Þá tók 4. flokkur enn þátt og það var gaman að færa sig úr 11 manna velli aftur niður í 7 manna. Líka eftirminnilegur því við unnum leikinn.
Hvað hefur þú spilað fyrir mörg félagslið? Ég hef spilað fyrir þrjú á Íslandi sem eru Valur, Breiðablik og HK/Víkingur. Síðan fyrir eitt í Hollandi sem er Fortuna Sittard.
Telma Ívarsdóttir, 25 ára
Staða: Mark
A landsleikir: 11
Félagslið: Breiðablik
Hvað er skemmtilegasta mótið sem þú hefur farið á?
Pæjumótið á Siglufirði er mjög ofarlega hjá mér, fór mörg ár í röð og það var brjáluð stemning.
Hver er eftirminnilegasti leikurinn sem þú hefur spilað á Símamótinu?
Fór bara einu sinni á Símamótið og man mjög lítið eftir því, þannig get ekki sagt, þvi miður.
Hvað hefur þú spilað fyrir mörg félagslið og hvaða?
Ég hef spilað með mjög mörgum liðum í gegnum árin til að fá spiltíma en ég byrjaði að spila með Fjarðabyggð svo hef ég farið á lán og spilað með Grindavík,
Hvað líkar þér best við fótbolta?
Mér finnst gaman að gleyma mér og öllu öðru sem er í gangi í kringum mig til að spila fótbolta. Maður fær svo mikla útrás. Síðan er félagskapurinn æðislegur. Hef eignast mínar bestu vinkonur í gegnum fótboltan.
Hvaða liði er skemmtilegast að keppa á móti og afhverju?
Mér finnst alltaf skemmtilegast að spila á móti bestu liðunum. Nú síðast var það Ajax í Hollandi. Þá nær maður að miða sig við bestu leikmennina.
Hvað hugsar þú um fyrir leiki, hvernig undirbýrðu þig?
Ég hugsa fyrst og fremst um að njóta þess að spila. Síðan hugsa ég um mín hlutverk í leiknum og svo hugsa ég um að reyna hluti sem ég vil bæta mig í. Í undirbúning fyrir leik passa ég að næra mig vel og drekka mikið vatn daginn áður og sama dag. Á leikdegi fer ég síðan
Haukum, Augnabliki, FH og svo auðvitað Breiðabliki.
Hvað líkar þér best við fótbolta?
Stelpurnar og sigrarnir auðvitað, alltaf plús að vinna einhverja titla.
Hvenær vissir þú að þú vildir vera í marki?
Þegar ég var valin í U17 árið 2014 þá langaði mig rosa mikið að halda áfram í marki og sjá hvernig það myndi ganga en það var erfitt að hætta að spila frammi en svo var ég bara nokkuð góð í marki svo það hjálpaði til.
Hvað hugsar þú um fyrir leiki, hvernig undirbýrðu þig? Ég reyni oftast að hugsa sem minnst um leikinn sjálfan til að vera ekki að stressa mig eitthvað óþarfa en ég hugsa reglulega fyrir hvern leik hvernig ég ætla að verja skot eða grípa vel inn í þegar þörf er á og sjá leikinn fyrir mér í hausnum og ég hugsa alltaf sigur. Ég undirbý mig ekkert eitthvað
Leggja sig alltaf 100% fram á öllum æfingum og leikjum og vera þolinmóð, það gerist ekkert á einni nóttu. Að vera tilbúin að fórna ýmsum hlutum og muna að hafa gaman, við erum alltaf í fótbolta til að hafa gaman, það má ekki gleymast! Það er líka engin fullkomin, það má gera mistök en maður lærir af þeim og trúðu mér ég er ennþá að læra eins og allir aðrir!
HIMINN
Rennd hettupeysa
6.990kr,-
GIL Húfa
3.290kr,-
HIMINN Jogging buxur 5.990kr,-
Tengjumst á Símamótinu
Eyrún Huld Harðardóttir, markaðsstjóri Símans.
Símamótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár, hvílíkt ferðalag sem þetta hefur verið. Öll vináttuböndin, allar minningarnar sem bæst hafa í minningarbankann.
Símamótið er fjölmennasta íþróttamót á Íslandi. Þrjú þúsund stelpur mæta og keppa, um sautjánhundruð leikir eru spilaðir. Einstök stemning, glæsileg tilþrif, stórkostleg skemmtun, sigrar og ósigrar. Stjörnur framtíðarinnar fá ómetanlega reynslu. Hetjur verða til. Á bak við tjöldin starfa frábærir sjálfboðaliðar og Breiðablik heldur utan um skipulagið af stakri snilld og fagmennsku.
Sjálf man ég vel eftir mínu fyrsta móti, bæði sem leikmaður og þjálfari. Símamótið kenndi mér hvað liðsheild og samtakamáttur skiptir miklu máli, eitthvað sem ég mun alltaf búa að. Á sama tíma hefur kvennaboltinn sem heild blómstrað og átt sinn þátt í að efla jafnrétti og skapa fyrirmyndir fyrir stelpur og stráka.
Á hverju móti er stór hluti stelpnanna að koma í fyrsta sinn, meðan aðrar búa að langri reynslu. Öll þurfum við að vinna saman að því að skapa jákvæða stemningu og dýrmætar minningar, hvernig sem gengur úti á vellinum. Við erum hér til að læra og eflast, en fyrst og síðast að njóta mótsins saman.
Að vanda verður fjöldi leikja í beinni útsendingu á Síminn Sport svo að aðdáendur sem ekki komast á staðinn geti fylgst með stjörnunum sínum heima í stofu og sungið með Símamótslaginu, Áfram stelpur með Siggu Ózk.
Við hjá Símanum erum stolt af því að vera styrktaraðili mótsins sem er fjölmennasta íþróttamót landsins.
Áfram stelpur, allar sigra!
BÚÐIN MEÐ BOLTAVÖRURNAR
FÓTBOLTASTJÖRNURNAR BORÐA Á SAFFRAN!
Hollur og bragðgóður matur fyrir alla fjölskylduna
Fjölskyldur á Símamótinu fá 15% afslátt með kóðanum
BOLTI þegar pantað er í Sa ran appinu eða á sa ran.is
Hægt að borða á staðnum eða taka með.
Kolagrillaður kjúklingur • Vefjur • Taco • Bökur
Salöt • Kótilettur • Fiskur
Leikmenn úr meistaraflokki Breiðabliks borða á Sa ran á leikdögum. Maturinn er að þeirra sögn frábær og orkuríkur og uppfyllir allar þeirra þarfir fyrir leiki.
Við erum staðsett á Dalvegi, í göngufæri við Fífuna og í Fákafeni.
Sjáumst
Hlökkum til að sjá fótboltahetjur framtíðarinnar og foreldra þeirra í sundi á milli leikja í Símamótinu. Áfram stelpur!