Ástarskáldið og Blótgoðar Sýningum lýkur í febrúar miðapantanir í síma 437 1600
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
6. tbl. 7. árgangur
9. feb. 2012
112 dagurinn Á 112 deginum þann 11. febrúar næstkomandi munu viðbragðsaðilar í Borgarbyggð standa fyrir opnum degi við Hjálmaklett Menntaog menningarsetur Borgarbyggðar. Þar verða björgunarsveitir héraðsins, slökkvilið Borgarbyggðar, lögreglan og sjúkrautningaaðilar með kynningu og sýningu á sínum tækjakosti. Fólki verður gert kleyft að sjá tækin í notkun. Borgarfjarðardeild Rauða krossins mun verða með afhendingu á sérstakri viðurkenningu á skyndihjálpar afreki síðasta árs. Einnig mun fólki bjóðast örkennsla í skyndihjálp. Rauða kross búðin verður með sérstaka afmælisopnun frá klukkan 11:0015:00 en hún er einmitt 1 árs þennan dag, verður í tilefni þess 20% afsláttur af öllum vörum. Dagskráin hefst með skrúðakstri viðbragðsaðila þar sem ekið verður með ljósum frá Brákarey klukkan 13:00 að Hjálmakletti. Stendur dagskráin til klukkan 16:00.
Stimplar Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
Snjóbíll Björgunarsveitarinnar Oks keyrður upp á vörubílspall eftir útifjör Björgunarsveitanna í Skorradal síðasta sumar. Halldór Sigurðsson á Þorvaldsstöðum er ökumaður. Mynd: OHR
Íþrótta- og uppskeruhátíð UMSB Íþrótta- og uppskeruhátíð UMSB fer fram laugardaginn 18. febrúar nk. Keppni hefst kl. 10.00 en um kl. 12.30 verður gert hlé á keppni og veittar viðurkenningar fyrir framfarir og afrek ársins 2012 auk þess sem íþróttamaður ársins 2012 verður krýndur. Upplýsingar um keppnisgreinar, aldursflokka, tímasetningar og fleira má finna á heimasíðu UMSB; www.umsb.is
BARNAHORNIÐ
Viðburðadagatal fi 9/2-19.30 Menntaborg; Félagsvist til styrktar útskriftarhópi fi 9/2-20.00 Borgarneskirkja; Tónleikar Gunnars Guðbjörnssonar og Jónasar fi 9/2-20.00 Snorrast.; Prjónabókakaffi fö 10/2-20.30 Þinghamar; Félagsvist la 11/2-13.00 Hjálmaklettur; Íþróttamaður Borgarbyggðar valinn la 11/2-13.00 Hjálmaklettur; Einn, einn, tveir dagurinn la 11/2-16.00 Landnámss.; Blótgoðar la 11/2-20.00 Hjálmaklettur; Þorrablót su 12/2-20.30 Skiphylur; Aðalfundur Umf. Björns Hítdælakappa fi 16/2-20.00 Hvanneyri; Viskukýrin fi 16/2-20.00 Hvíti bærinn; Rússi la 18/2-10.00 Íþróttamiðstöðin Bgn; Íþrótta- og uppskeruhátíð UMSB la 18/2-14.00 Snorrastofa; Málþing um hlutverk fölmiðla á landsbyggðinni la 18/2-16.00 Landnámss.; Blótgoðar la 25/2-11.00 Hjálmaklettur; Atvinnuvegasýning má 27/2-20.00 Tónlistarskóli Borgarfj.; Nótutónleikar Annað í gangi: Brúðuheimar 10-18 vd & 13-17 lau+su Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla daga Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfingar þri & fi kl. 17.00-18.30 Kaffi Vínyll Fossatúni Landbúnaðarsafnið eftir samkomulagi Landnámssetur sýningar daglega 10-19 Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi Snorrastofa sýningar alla daga Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Laxárbakki opið alla daga 10-22
Hjálpaðu hundinum að finna boltann sinn!
Viskukýrin 2012 Spurningakeppni Landbúnaðarháskóla Íslands verður haldin í matsal skólans á Hvanneyri fimmtudaginn 16.febrúar og hefst kl. 20:00 Nemendur, kennarar og heimamenn í Borgarbyggð ásamt óvæntu gestaliði munu etja kappi og spyrill er Logi Bergmann Eiðsson Skemmtiatriði og sælgætissala í hléi.
Samantekt: Borgarbyggð og Íbúinn
Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar
ÍBÚINN
Umsjón: Hanna Ágústa
Aðgangseyrir 500 kr. en frítt fyrir 14 ára og yngri
Getum við aðstoðað þig?
frétta- og auglýsingablað Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan
Auglýsingasími: 437 2360
sími: 437 2360
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta: Dreifibréf - Boðsbréf Reikningseyðublöð Ritgerðir - Skýrslur
Skák og mát í sundlauginni Í lok janúar var skákdagurinn á Íslandi og te t var um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara. Í tilefni dagsins var sundlaugin í Borgarnesi skákvædd þegar Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jóhann Óli Eiðsson afhentu Páli Brynjarssyni sveitarstjóra ta frá Skákakademíunni. Tinna og Jóhann Óli vígðu ta ið í heita pottinum að viðstöddum Helga Ólafssyni stórmeistara. Helgi te di svo fjölte i í Hyrnutorgi síðar um daginn.
Gunnar og Jónas í Borgarneskirkju Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari verða með tónleika í Borgarneskirkju í kvöld, mmtudagskvöldið 9.febrúar kl 20 og í DuusHuus í Reykjanesbæ sunnudaginn 12. febrúar kl 16. Þeir félagar hafa lítið verið á ferðinni síðasta árið en héldu þó tónleika saman síðast í nóvember í tónleikaröðinni Íslenskt, já takk! í Salnum í Kópavogi. Gunnar söng einnig seint á
síðasta ári tónleika með Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar en þar fór hann með einsöngshlutverkið í Requiem eftir Dvorak og var honum í kjölfarið boðið aftur til Svíþjóðar árið 2013 til að syngja í 9. Sinfóníu Beethovens. Jónas þarf ekki að kynna fyrir landsmönnum enda hefur hann um áratugaskeið verið einn fremsti slaghörpuleikari landsins. Jónas var nýlega valinn heiðursborgari Kópavogsbæjar við hátíðlega athöfn í Salnum.
ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356
Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360
Íþróttamaður Borgarbyggðar 2011 Íþróttamaður Borgarbyggðar verður kjörinn við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti, mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar, laugardaginn 11. febrúar næstkomandi klukkan 13:00. Tómstundanefnd Borgarbyggðar kýs árlega íþróttamann ársins úr tilnefningum frá ungmennafélögum í sveitarfélaginu. Kjörið fer nú fram í 21. sinn.
Jón Ingi Sigurðsson íþróttamaður Borgarbyggðar 2010
Við þetta tækifæri verða einnig veittar viðurkenningar til íþróttafólks sem hefur skarað fram úr á árinu 2011. Jafnframt verður veitt viðurkenning úr Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvists Kristmarssonar. Íbúar Borgarbyggðar eru hvattir til að fjölmenna í Hjálmaklett og samgleðjast íþróttafólkinu og fjölskyldum þeirra.
Menningarsjóður Borgarbyggðar - styrkir Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur hans er að ema menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlíl. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins. Umsóknir skulu berast til Emblu Guðmundsdóttur þjónustufulltrúa, skrifstofu Borgarbyggðar í Reykholti, 320 Reykholt, í síðasta lagi ïmmtudaginn 1. mars 2012. Umsóknareyðublað má lnna á heimasíðu Borgarbyggðar: http://borgarbyggd.is/stjornsysla/umsoknir/ Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram. Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar