Skip to main content

Íbúinn 26. tbl.

Page 1

Hollt & gott í hádegi alla daga!

ÍBÚINN

frétta- og auglýsingablað

26. tbl. 7. árgangur

Tónlistarskólinn 45 Á morgun, föstudaginn 7. september, fagnar Tónlistarskóli Borgarfjarðar 45 ára afmæli. Skólinn tók til starfa haustið 1967 og var Jón Þ. Björnsson fyrsti skólastjórinn. Í upphafi störfuðu fjórir kennarar við skólann og voru um 40 nemendur. Í dag kenna ellefu kennarar við skólann og eru nemendur 170. Kennt er á fjórum stöðum í héraðinu, í húsnæði skólans í Borgarnesi og einnig eru útibú á

Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Theodóra Þorsteinsdóttir skólastjóri segir að stefnt verði á að gera sér ýmislegt til gamans á afmælisdaginn. „Við verðum með opið hús í skólanum að Borgarbraut 23 frá kl. 15:00 til 17:00. Nemendur og kennarar munu flytja fjölbreytta tónlist og boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Öllum er velkomið að líta við á afmælisdaginn“.

6. september 2012

Fjárréttir haustið 2012 Réttir

Dagsetningar

Brekkurétt í Norðurárdal Fljótstungurétt í Hvítársíðu Grímsstaðarétt á Mýrum Hítardalsrétt í Hítardal Hreppsrétt í Skorradal Nesmelsrétt í Hvítársíðu Núparétt í Melasveit Oddsstaðarétt Lundarr.dal Rauðsgilsrétt í Hálsasveit Reynisrétt undir Akrafjalli Svarthamarsrétt Hvalfj.str. Svignaskarðsrétt, Svignask. Þverárrétt Eyja- og Miklah. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.

sunnud. 16. sept. laugardag 8. sept. þriðjudag 18. sept. mánudag 17. sept. sunnudag 9. sept. laugardag 8. sept. sunnudag 9. sept. miðvikud. 12. sept. sunnudag 16. sept. laugardag 15. sept. sunnudag 16. sept. mánudag 17. sept. sunnudag 16. sept. mánudag 17. sept.

Við viljum ráða starfsfólk á Stöðina í Borgarnesi í grill, kvöld og helgarvinnu Við leggjum áherslu á að í starf hjá okkur veljist glaðlegir, dugmiklir og þjónustulundaðir einstaklingar sem eru reiðubúnir að leggja sig fram um að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina okkar Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri

Umsóknir berist á netfangið: jb@skeljungur.is


Viðburðadagatal

fi 6/9-17.30 Safnahús Borgarfjarðar; Opnun sýningar um Egil Pálsson - aldarminning fö 7/9 15-17 Tónlistarskóli Borgarfjarðar; opið hús - 45 ára afmælisdagskrá la 8/9 Fljótstungurétt í Hvítársíðu la 8/9 Nesmelsrétt í Hvítársíðu su 9/9 Hreppsrétt í Skorradal su 9/9 Núparétt í Melasveit su 9/9-10.00 100 ára afmælisganga UMSB; frá Grenjum að Helgastöðum í Hítardal su 9/9-21.00 Fossatún; Moses Hightower og Snorri Helgason mi 12/9 Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal la 15/9 Reynisrétt undir Akrafjalli su 16/9 Brekkurétt í Norðurárdal su 16/9 Rauðsgilsrétt í Hálsasveit su 16/9 Svarthamarsrétt Hvalfirði su 16/9 Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr. má 17/9 Hítardalsrétt í Hítardal má 17/9 Svignaskarðsrétt má 17/9 Þverárrétt í Þverárhlíð þr 18/9 Grímsstaðarétt á Mýrum Annað í gangi: Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla daga Hamarsvöllur; pútt fyrir eldri borgara miðvikudaga kl. 14.00 Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfingar þri & fi kl. 17.00-18.30 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Kaffi Vínyll Fossatúni su-fö 10-21 laugardaga 10-24 Landbúnaðarsafnið daglega kl. 12-17 Landnámssetur sýningar daglega 10-19 Laxárbakki opið alla daga 10-22 Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi Samgöngusafn Brákarey 13-17 alla daga Snorrastofa sýningar alla daga Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Þórisstaðir húsdýragarður fö 15-18 laugard. og sunnud. 10-16

Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360

BARNAHORNIÐ

Nú er tilvalið að undirbúa sig fyrir smalamennskurnar. Finnurðu leiðina?

Egill Pálsson-aldarminning Í dag, 6. september hefði Egill Pálsson, verkamaður og bóndi í Borgarnesi, orðið 100 ára. Af því tilefni verður sett upp veggspjaldasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar um hann og fjölskyldu hans. Sýningin verður opnuð í dag kl. 17.30. Egill Pálsson var fæddur á Snæfellsnesi en flutti í Borgarnes barn að aldri. Foreldrar hans voru Páll Pétursson og Guðveig Guðmundsdóttir. Hann átti sín uppvaxtarár í Borgarnesi, en var einnig í nokkur ár í Sólheimatungu þar sem hann

gekk í öll venjuleg sveitastörf þótt ungur væri að árum. Í Sólheimatungu kynntist hann verðandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Lind frá Svíney í Færeyjum. Þau giftu sig og fóru að búa í Borgarnesi árið 1939 og bjuggu nær allan sinn búskap að Gunnlaugsgötu 10. Þau eignuðust saman 15 börn og þar af komust 13 upp og búa 10 þeirra í Borgarfjarðarhéraði í dag, flest í Borgarnesi. Sýningin um Egil Pálsson er unnin í samvinnu við fjölskyldu hans.

ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað

Netfang: olgeirhelgi@islandia.is - Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstjórn og ábyrgð: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum.

Auglýsingasími: 437 2360


Strætó milli Borgarfjarðar og höfuðborgarinnar Nú ganga Strætisvagnar nokkrar ferðir á dag milli Borgarfjarðar og höfuðborgarinnar. Síðasta sunnudag var tekið upp nýtt skipulag almenningssamgangna á Vesturlandi, en nýverið tóku Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi við umsjón almenningssamganga á svæðinu af Vegagerðinni. Nýtt skipulag hefur verið unnið í samráði við önnur landshlutasamtök í Norðvestur-kjördæmi. Samið hefur verið við Stætó bs. um að hafa umsjón með akstrinum

og voru flestar leiðir boðnar út og voru Hópbílar með lægsta tilboðið. Fyrir íbúa Borgarfjarðar norðan Skarðsheiðar hefur nýtt skipulag í för með sér aukið framboð á ferðum. Þannig verða átta ferðir alla virka daga á milli Borgarness og Reykjavíkur, þrjár ferðir laugardaga og fjórar ferðir sunndaga. Alla virka daga verður síðan boðið upp á ferð síðdegis frá Borgarnesi um uppsveitir Borgarfjarðar og mun bíllinn stoppa á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum, Reykholti,

Varmalandi, Baulu og enda síðan í Borgarnesi. Til þess að bíllinn fari þessa hringferð þarf að panta far sérstaklega með tveggja tíma fyrirvara. Samkvæmt áætlun Strætó er fyrsta ferð virka daga kl. 6 úr Borgarnesi til Reykjavíkur. Síðasta ferð er kl. 20.30 en 22.06 á föstudögum. Fyrsta ferð úr Reykjavík í Borgarnes virka daga er kl. 7 en síðasta ferð fer kl. 17.30. Er engin ferð eftir það í Borgarnes en síðasti strætó á Akranes fer kl. 22.00 úr Rvík.

Moses Hightower og Snorri Helgason í Fossatúni

Moses Hightower og Snorri Helgason halda tónleika saman í Fossatúni í Borgarfirði sunnudagskvöldið 9. september kl. 21. Miðaverð er 2000 kr. Húsið opnar kl. 20. Tónleikarnir eru lokapunktur tónleikaferðar um landið sem er farin í samstarfi við Kraum - tónlistarsjóð. Kvartettinn Moses Hightower leikur sálarskotna popptónlist og er að fylgja eftir nýjustu plötu sinni, Annarri Mósebók, sem kom út 9. ágúst hjá Record Records og hefur fengið framúrskarandi dóma (4/5 Fbl, 9,8 AJ á Rás 2, 5/5 Fréttatíminn). Fyrri Getum við aðstoðað þig?

Fjölritunar- og útgáfuþjónustan sími: 437 2360

plata sveitarinnar, Búum til börn, kom út 2010 og var m.a. tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins og fyrir textasmíðar ársins. Nýja platan, Önnur Mósesbók, situr í 3. sæti Tónlistans sem mælir mest seldu plöturnar á Íslandi. Á tónleikunum verða sérstakir gestir þeir Haukur Gröndal saxófónleikari og Samúel Jón Samúelsson básúnuleikari. Plötur Snorra Helgasonar, I’m gonna put my name on your door (2009) og Winter sun (2011) hafa einnig fengið frábærar viðtökur, innanlands og utan. Snorri

komst fyrst í sviðsljósið sem meðlimur Sprengjuhallarinnar, en frá því hún fór í pásu hefur hann gert stormandi lukku með þýðan þjóðlagapoppbræðing sinn, þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónleikarnir eru líka liður í því að bjóða upp á aukna fjölbreytni í tónlistarlífi á Vesturlandi. Aðstæður og hljómburður í Fossatúni henta vel fyrir tónleikahald af þessu tagi og er stefnt á framhald þess að bjóða upp á góða tónlist á landsbyggðinni.

Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifibréf - Boðsbréf - Ritgerðir - Skýrslur Nafnspjöld - Merkispjöld - Reikningar - Eyðublöð


Borgarneskirkja Sunnudaginn 9. september Messa kl. 11.00 Organisti: Steinunn Árnadóttir Prestur: séra Þorbjörn Hlynur Árnason

ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356

Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Íbúinn 26. tbl. by Íbúinn - Issuu