Hollt & gott í hádegi alla daga!
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
25. tbl. 7. árgangur
23. ágúst 2012
Collingwood í Safnahúsið Ein myndanna sem enski aðalsmaðurinn W. G. Collingwood málaði á Íslandi sumarið 1897 hefur verið afhent Safnahúsi Borgarfjarðar til eignar og varðveislu. Um er að ræða mynd sem hann málaði af Guðrúnu Magnúsdóttur (f. 1896) á Gilsbakka í Hvítársíðu þegar hann dvaldi þar á ferðum sínum um íslenska sögustaði. Alls málaði Collingwood þrjár myndir á Gilsbakka þetta sumar. Málverkið verður til Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður, Sigríður Sigurðardóttir (heldur á mynd sýnis í Safnahúsi til 27. ágúst n.k. Collingwoods) og Magnús Karlsson sonur Sigríðar. Myndataka: Vilborg Einarsdóttir.
Atvinna Óskum eftir starfsfólki í Nettó í Borgarnesi á kvöld -og helgarvaktir í vetur Áhugasamir fylli út umsókn á staðnum eða á www.netto.is
Opið: Virka dagaSamkaup kl 10-19 - Borgarnesi Laugardaga kl 10-18 - Sunnudaga kl 12-18 úrval, - Pöntunarsími : 430-5536
Viðburðadagatal
la 25/8 Þórisstaðir; Veiðikeppni la 25/8-10.00 Bílastæði við Glym; Útivist í boði Bifrastar gengur að Glym og á Hvalfell í Hvalfirði la 25/8-11.00 Bjarteyjarsandur; Morgunstund með dýrunum la 25/8-12.00 Ferstikluskáli; 80 ára afmælishátíð veitingarekstrar la 25/8-14.00 Bjarteyjarsandur; Ganga á slóðum Harðar sögu og Hólmverja la 25/8-18.00 Bjarteyjarsandur; Uppskeruveisla la 25/8-20.00 Fossatún; Ómaga blús la 25/8-21.00 Bjarteyjarsandur; Kvöldvaka og varðeldur í fjörunni fö 31/8 Reykholtskirkja; Lúðrasveitin Kirksæterørens Hornmusikk heldur tónl. su 2/9-10.00 100 ára afmælisganga UMSB; frá Hvítárbrú að Grenjum su 9/9-10.00 100 ára afmælisganga UMSB; frá Grenjum að Helgastöðum í Hítardal fö 21/9-20 Landnámssetur; Frumsýning á Egill Skallagrímsson - skáld og skálkur. Annað í gangi: Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla daga Hamarsvöllur; pútt fyrir eldri borgara miðvikudaga kl. 14.00 Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfingar þri & fi kl. 17.00-18.30 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Kaffi Vínyll Fossatúni su-fö 10-21 laugardaga 10-24 Landbúnaðarsafnið daglega kl. 12-17 Landnámssetur sýningar daglega 10-19 Laxárbakki opið alla daga 10-22 Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi Samgöngusafn Brákarey 13-17 alla daga Snorrastofa sýningar alla daga Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Þórisstaðir húsdýragarður fö 15-18 laugard. og sunnud. 10-16
Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
BARNAHORNIÐ
Nú eru skólarnir að hefjast og þá er mikilvægt að heilinn sé í góðu formi. Hér er óvenjulegt völundarhús.
Tónlistarskólinn byrjar
Vetrarstarf Tónlistarskóla Borgarfjarðar er að hefjast. Kennarar skólans vinna í stundatöflugerð með nemendum sínum þessa dagana og síðan hefst kennslan samkvæmt stundatöflu á mánudaginn 27. ágúst. Starf skólans verður með hefðbundnum hætti í vetur og kennt í Borgarnesi, einnig eru útibú frá skólanum á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Sömu kennarar starfa við skólann áfram, en í hópinn bætist sópransöngkonan
og söngkennarinn Alexandra Chernyshova sem ættuð er frá Úkraínu. Hún hefur búið í Skagafirði síðastliðin 9 ár en fluttist í Hvalfjarðarsveit nú í haust. Unnt er að bæta við nokkrum nýjum nemendum á blásturshljóðfæri og gítar, en velkomið er að sækja um á öll hljóðfæri og verða nýir nemendur teknir inn þegar pláss losnar. Er áhugsömum bent á að að hafa samband við skólastjóra í síma 437 2330 eða senda tölvupóst á netfangið tskb@simnet.is.
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað
Netfang: olgeirhelgi@islandia.is - Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstjórn og ábyrgð: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum.
Auglýsingasími: 437 2360
100 km afmælisganga UMSB Nú í ágúst hófst 100 km gönguferð í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Borgarfjarðar, UMSB. Ætlunin er að þvera sambandssvæðið og ganga frá Hvalfjarðarbotni um Síldarmannagötur og alla leið vestur um Mýrar upp í Hítardal, að Foxufelli, fjalli ársins. Gengið verður í fimm áföngum. Þegar er búið að ganga sunnudagana 12. og 19. ágúst en fyrirhugað er að halda göngunni áfram 2., 9. og 30. september. Gengið er mest á vegum og vegaslóðum fyrir utan hluta af síðustu tveimur dagleiðunum. Það verður því oftast auðvelt að koma því við ef fólk vill aðeins ganga hluta úr leiðum. Mælt er með að fólk sameini sig í bíla og hafi samband sín á milli með að hafa bíla tiltæka á endastöðvum. Ef einhver býður sig fram til að verða skipuleggjendum innan handar með að ferja fólk frá og eins ef eitthvað kemur upp á þá er það vel þegið. Þann 12. ágúst var gengið frá Hvalfjarðarbotni um Síldarmannagötur yfir í Skorradal og síðan meðfram vatninu að sunnanverðu að Skátaskálanum í Skorradal. Þann 19. ágúst var gengið frá Skátaskála í Skorradal áfram út með vatninu, norður yfir
Hestháls, niður Uxahryggjaveg (52), fram hjá Hesti og inn á gömlu Borgarfjarðarbrautina og niður að Hvítárbrú við Ferjukot. Þann 2. september nk verður gengið frá Hvítárbrú við Ferjukot að Grenjum. Gengið verður frá Hvítárbrú í vesturátt til að byrja með á Hvítárvallavegi (510), þjóðvegur 1 þveraður og genginn vegurinn að Klapparholti og stefnan svo sett á eyðibýlið Gufuá, vegaslóða er fylgt með Gufuá, framhjá Staðarhúsum og Laxholti og gengið vestur um að Stangarholti, þar er tekinn smá krókur í suður og síðan er stefnt á Langá og gengið upp með henni. Farið er yfir Langá á vaði og er því brýnt að fólk hafi með sér vaðskó/sandala til að vaða í yfir ána. Gengið er áfram að Grenjum. Mæting á upphafsstað göngu er kl 10, áætlað er að ganga 20-22 km og áætlaður göngutími er 6-7 klst. Þann 9. september verður gengið frá Grenjum að Helgastöðum í Hítardal. Gengið er á gamla veginum sem liggur undir Múlunum, þ.e. Grenjamúla, Grímsstaðamúla og Svarfhólsmúla, þá er farið út af slóðanum og stefnan tekin að Grjótá, e.t.v. gæti þurft að vaða
hana. Þaðan er stefnan sett á Helgastaði. Mæting á upphafsstað göngu kl 10, áætlað er að ganga 16-18 km og áætlaður göngutími er 5-6 klst. Lokadaginn, 30. september verður gengið frá Helgastöðum í Hítardal á Foxufell og þaðan að Hítarhólma. Gengið er frá Helgastöðum upp Hítardal eftir veginum, farið er austan við Hólmann og gengið inn að Foxufelli (fjalli ársins) og gestabókin sem farið var með þangað í maí sótt, gengið er til baka að bílastæðinu sem er norðaustan við Hólmann. Mæting á upphafsstað göngu er kl 10, áætlað er að ganga 18-20 km og áætlaður göngutími er 5-6 klst. Göngunefnd UMSB vill minna fólk á að vera vel búið og þá sérstaklega á þetta: • Nesti • Hlífðarfatnað • Vaðskó/sandala/sokka • Lítið handklæði • Göngustafi er gott að hafa þegar vaða þarf ár • Plástur og auka sokka
Fjölskyldudagur í Hvalfirði - Taktu rúntinn
Laugardaginn 25. ágúst bjóða ferðaþjónustuaðilar í Hvalfirði gestum heim, margt spennandi verður í boði s.s. veiðikeppni, sundlaugarpartý, varðeldur, afmælisveisla og margt fleira. Allir sem heimsækja okkur geta skráð nafn sitt í verðlaunapott og meðal þess sem hægt er að vinna er gjafabréf á Hótel Glym, matarveitingar í Ferstikluskála, veiðileyfi á Þórisstöðum, sundferð fyrir fjölskylduna að Hlöðum og matarkarfa haustsins beint frá býli. Dagskráin á Bjarteyjarsandi hefst með morgunstund með dýrunum kl.11.00. Börnum og fullorðnum er boðið að taka þátt í umhirðu dýranna á bænum. Á Bjarteyjarsandi er stunduð sauðfjárrækt og vistvæn svínarækt en á bænum eru einnig íslenskar landnámshænur, hestar,
Getum við aðstoðað þig?
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan sími: 437 2360
kanínur, geitur, hundar, kisa og gæs. Kl. 14.00-15.30 verður gengið á söguslóðum Harðar sögu og Hólmverja. Rifjuð um sögubrot, örnefni, ljóð og fleira. Heitt kakó og pönnukökur að göngu lokinni. Kl. 18.00 er uppskeruveisla. Ljúffeng grænmetissúpa, úr fersku grænmeti beint úr garðinum. Heimabakað brauð með haugaarfapestói og ferskur melissudrykkur. Kl. 21.00-23.00 verður kvöldvaka og varðeldur í fjörunni. Í Ferstikluskála verður haldið upp á 80 ára afmæli veitingarekstrar í Ferstiklu. Frá kl. 12.00 meðan birgðir endast verður boðið uppá ókeypis grillaðar pylsur, kók, kókómjólk, svala og ís fyrir gesti og gangandi.
Á grillinu bjóðum við m.a. uppá Ferstikluhamborgara með bláberjum. Teiknikeppni; krakkar kríta mynd af hval á bílaplanið. Flott verðlaun í boði fyrir bestu myndirnar. Sundlaugin á Hlöðum verður opin frá kl. 13.00-19.00. Kl 15.00-17.00 verður boðið upp á magnað sundlaugarpartý. Í Hótel Glym er kökuhlaðborð frá kl. 15.00 -17.00 kr. 1.590 per mann og 1/2 verð fyrir 12 ára og yngri. Á Þórisstöðum verður veiðikeppni laugardaginn 25. ágúst í samstarfi við www. veidiheimur.is og www.veidikortid.is. Veglegir vinningar í boði.
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifibréf - Boðsbréf - Ritgerðir - Skýrslur Nafnspjöld - Merkispjöld - Reikningar - Eyðublöð
Ómaga blús í Fossatúni Laugardagskvöldið 25. ágúst verður haldið blúskvöld í Fossatúni. Hljómsveitin Ómagar mun koma fram. Ómagar lýsa sér sem fornblúsaklúbbi með blúgrassívafi, en helstu áhrifavaldar eru: Rev. Gary Davis, Lead Belly, Mississippi John Hurt, Sonny Terry & Brownie Mcghee, Memphis Minnie, Lightning Hopkins, Mance Lipscomb, Carter Family, svo einhverjir séu upptaldir. Hljómsveitina skipa: Eyjólfur Guðmundsson; gítar og söngur, Guðmundur Andri Thórsson; gítar, Aðalgeir Arason; mandolin, Snorri Björn Arnarson; bassi, Gunnar Eyjólfsson; trommur. Á undan, í hléi og eftir
að hljómsveitin hefur lokið leik sínum mun Gunnlaugur Sigfússon, plötuskápsstjórnandi á Rás 2, spila vinylplötur og sýna sjaldséðar upptökur með frumherjum blústónlistarinnar.
Afar góðar aðstæður, plötusafn, gamlar eðalgræjur og heimabíó, er að finna á Kaffi Vínyl. Gunnlaugur hefur leik kl. 20 en Ómagar kl. 21. Tilboð verður á drykkjarföngum.
ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356
Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360