Hollt & gott í hádegi alla daga!
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
13. tbl. 7. árgangur
18. apríl 2012
Tríó tónvilltra, eins og þau kalla sig: Inga Björk Bjarnadóttir lengst til vinstri ásamt félögum sínum, þeim Jóhanni Snæbirni Traustasyni og Birnu Kristínu Ásbjörnsdóttur. En þau voru meðal þeirra fjölmörgu flottu ungu tónlistarmanna sem fram komu á tónleikunum. Mynd: Olgeir Helgi
Glæsileg ungmenni
Fimmtudaginn 12. apríl sl. stóð Inga Björk Bjarnadóttir fyrir tónleikum í Hjálmakletti. Tilgangurinn var að safna fé svo hún gæti farið með skólasystkinum sínum í MB í útskriftarferð í vor. Inga Björk sem er 19 ára Borgfirðingur hefur verið bundin við hjólastól frá þriggja ára aldri vegna vöðvarýrnunarsjúkdómsins SMA. Hún þarf að hafa tvo aðstoðarmenn með sér til að geta farið og kostnaðinn af
því ber hún sjálf auk kostnaðar vegna leigu á hjálpartækjum o.fl. þegar út er komið. Tónleikarnir voru afar vel sóttir og atriðin voru hvert öðru betra. Oft mátti sjá tár á hvarmi tónleikagesta enda var stemmningin afar hlýleg. Inga Björk á svo sannarlega heiður skilinn fyrir að sýna tónleikagestum hvað við eigum marga, fjölhæfa og glæsilega unga tónlistarmenn í héraðinu. Rétt er að ítreka
söfnunarreikning Ingu Bjarkar, en bankaupplýsingarnar eru: Kt. 270993-3469 Reikn: 0354-03-44 44 40 Nú gefst enn kostur á að hlýða á unga tónlistarmenn í héraði. Á sumardaginn fyrsta kl. 17.00 verða tónleikar í Hjálmakletti sem liður í að fjármagna flygilkaup. Þessir tónleikar eru undir yfirskriftinni Er sumarið kom yfir sæinn. Ungt og efnilegt listafólk mun koma fram og leika og syngja lög af ýmsum toga.
Viðburðadagatal mi 18/4-20.00 Hjálmaklettur; Sælkeramáltíð og glæsiball Freyjukórsins fi 19/4 Sumardagurinn fyrsti fi 19/4-13.30 Borgarneskirkja; Skátamessa fi 19/4-17.00 Hjálmaklettur; Tónleikar ungs og efnilegs tónlistarfólks úr héraði la 21/4 Íþróttamiðstöðin Borgarnesi; Árgangamót Skallagríms í knattspyrnu la 21/4-17.00 Landnámssetur; Feðgarnir frá Kirkjubóli la 21/4-20.00 Landnámssetur; Feðgarnir frá Kirkjubóli su 22/4-17.00 Landnámssetur; Feðgarnir frá Kirkjubóli 22/4-20.00 Landnámssetur; Feðgarnir frá Kirkjubóli 26/4-20.00 Snorrastofa; Prjónabókakaffi 26/4-20.00 Hjálmaklettur; Afmælishátíð – 100 ára afmæli Ungmennasambands Borgarfjarðar Annað í gangi: Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla daga Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfingar þri & fi kl. 17.00-18.30 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Kaffi Vínyll Fossatúni 11-17 lau-su Landbúnaðarsafnið eftir samkomulagi Landnámssetur sýningar daglega 10-19 Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi Snorrastofa sýningar alla daga Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Laxárbakki opið alla daga 10-22 Samantekt: Borgarbyggð og Íbúinn
Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar
BARNAHORNIÐ
Nú er sumarið alveg að koma! Tengdu saman punktana til þess að sjá hvað er á myndinni!
Til sölu fellihýsi Viking fellihýsi 1706 árgerð 1995 til sölu Í toppstandi: Ný dekk, nýjar fjaðrir, nýjar legur
Klárt í ferðalagið í sumar! Verð kr. 420.000 - Fyrstur kemur, fyrstur fær! Upplýsingar í síma 892 2736
Getum við aðstoðað þig?
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað
Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum. Auglýsingasími: 437 2360
Umsjón: Hanna Ágústa
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan
sími: 437 2360 Netfang: olgeirhelgi@islandia.is
Prentum m.a.:
Ritgerðir Skýrslur
Feðgarnir frá Kirkjubóli endurtekið í Landnámssetri
Um næstu helgi laugardaginn 21. og sunnudaginn 22. apríl verður sagnaskemmtun Silju Aðalsteinsdóttur og Böðvars Guðmundssonar endurtekin í Landnámssetrinu. Sagnaskemmtunin ber yfirskriftina Feðgarnir frá Kirkjubóli en þar segir Silja frá Guðmundi Böðvarssyni skáldi frá Kirkjubóli og konunum í lífi hans. Böðvar sonur Guðmundar segir svo sögur úr Síðunni - sveit sem ekki er til, eins og Böðvar segir sjálfur. Báða dagana hefst skemmtunin kl. 17 með frásögn Silju sem tekur tæplega tvo tíma með hléi. Gert verður um klukkutíma hlé og gefst gestum þá kostur á að fá sér léttan kvöldverð, fiskisúpu og/eða tómatlagaða kjötsúpu. Kl. 20 tekur svo Böðvar við með Sögum úr síðunni. Sagnaskemmtunin Feðgarnir frá Kirkjubóli var frumflutt í janúar sl og sló algjörlega í
gegn. Fullt var útúr dyrum á allar sýningarnar og komust færri að en vildu. Böðvar er búsettur í Danmörku en Landnámssetrið fékk hann til að koma aftur nú þegar farið er að vora og
endurtaka leikinn með Silju þessa tvo daga. Uppselt er á laugardaginn en ennþá eru nokkur sæti laus á sunnudaginn bæði kl. 17 og 20.
Átak í handsömun katta í Borgarnesi
Fjöldi katta í Borgarnesi er farinn að valda mörgum íbúum ónæði, segir í frétt frá sveitarfélaginu. Í flestum tilfellum er um villiketti eða ómerkta óskráða ketti að ræða. Því hefur verið ákveðið að gæludýraeftirlitsmaður muni næstu vikur fara í átak í handsömun óskráðra katta í Borgarnesi. Handsamaðir kettir verða auglýstir og afhentir réttum eigandum gegn greiðslu handsömunargjalds, eftir að þeir hafa
verið skráðir. Villikettirnir verða hinsvegar svæfðir. Þeim kattaeigendum sem enn hafa ekki skráð ketti sína er bent á að bæta þar úr hið bráðasta og losna þannig við óþarfa kostnað. Þeir kattareigendur sem eru með ketti sína á skrá eða hafa sótt um skráningu eru beðnir um að sjá til þess að kettirnir séu vel merktir til að auðvelda eftirlitsmanni að greina þá frá hinum án þess að þurfa að lesa á eyrnamerki eða örmerki.
ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356
Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360
Kveðjum vetur, fögnum sumri! Opið sumardaginn fyrsta kl. 11-14
Lítið við!
30% afsláttur af allri
gjafavöru síðasta vetrardag og sumardaginn fyrsta
Verið velkomin!
Getum við aðstoðað þig?
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan sími: 437 2360
Blómaborg
Borgarbraut 55 - Borgarnesi sími 437 1878
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta: Dreifibréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur
Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu og Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar. Mynd af vef Borgarbyggðar
Borgarbyggð styrkir Snorrastofu
Nýverið undirrituðu Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu í Reykholti og Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar samkomulag um stuðning Borgarbyggðar við Snorrastofu á árinu 2012. Sveitarfélagið mun veita Snorrastofu 2,8 milljónir á árinu til reksturs og þróunar á starfsemi Snorrastofu.
Við viljum ráða trausta og samviskusama starfsmenn á Stöðina Borgarnesi Við leggjum áherslu á að í störfin veljist glaðlegir, dugmiklir og þjónustulundaðir einstaklingar sem eru reiðubúnir að leggja sig fram um að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina okkar Störfin sem um ræðir eru eftirfarandi •
Vaktstjórar
•
Afgreiðslufólk
•
Hlutastarfsfólk
•
Sumarstarfsfólk
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri Hægt er að sækja um hjá www.skeljungur.is