Borgarleikhúsið 2026—2027
Leikárið 2026–2027 Morgunblaðið
Vísir
DV
Laboheme-print-A2-3mmBleed.pdf
2
14.6.2025
18:18
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Styrkt af Sviðslistasjóði
2026 ágúst
september
2027
október
nóvember
desember
janúar
febrúar
mars
Stóra svið
Moulin Rouge! Söngleikur Galdrakarlinn í Oz
Galdrakarlinn í Oz
Þegar Trölli stal jólunum! Söngleikur Svikasögur
Svikasögur
Djöflar
Nýja svið
Árin Lífsorka Pétur og kötturinn Brandur Undirdjúpin
27 Sex Ed
Litla svið
La bohème Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar Ekki hugmynd Innkaupapokinn
Ekki hugmynd
apríl
maí
júní
Fáðu besta verðið með leikhúskorti
Kortasalan er hafin!
30 % 35 % 50 Leikhúskort: 4–6 sýningar
% afsláttur af miðum
Lúxuskort: 7+ sýningar
afsláttur af miðum
25 ára og yngri: 4+ sýningar
afsláttur af miðum
Allir korthafar fá 15% afslátt af veitingum 4
Miðasala á borgarleikhus.is og í síma 568 8000
Hugmyndir að sýningum í kortið þitt eða veldu þína leið á borgarleikhus.is Fjölskyldu leiðin
Klassíska leiðin
Sýningar í korti
Sýningar í korti
Verð með 30% afslætti*
Verð með 30% afslætti*
Fullt verð 37.200
Fullt verð 32.800
– Moulin Rouge! Söngleikur – Þegar Trölli stal jólunum! – Pétur og kötturinn Brandur – Galdrakarlinn í Oz
26.040
– Svikasögur – Árin – Djöflar – Undirdjúpin
22.960
Létta leiðin
Lúxus leiðin
Sýningar í korti
Sýningar í korti
– Lífsorka – Ekki hugmynd – Svikasögur – Sex Ed
– Svikasögur – Árin – Djöflar – Undirdjúpin
Verð með 30% afslætti*
– 27 – Sex Ed – Lífsorka – Moulin Rouge! Verð með 35% afslætti* Söngleikur
Fullt verð 32.800
Fullt verð 73.650
22.960
*Verð miðast við einn fullorðinn
47.872
Ógleymanlegt ævintýri á Stóra sviðinu!
Morgunblaðið
Galdrakarlinn í Oz Sýningar hefjast aftur:
6. september
Vísir
DV
Salur:
Stóra svið
Ungir sem aldnir hafa í áratugi heillast af sögunni um stúlkuna Dóróteu sem ásamt hundinum Tótó lendir óvænt í ævintýralandinu Oz, þar sem fuglahræður tala, apar fljúga og galdranornir ráða ríkjum. Til að komast aftur heim þarf Dórótea að fylgja gula veginum sem liggur til galdrakarlsins fræga í Oz en hann er sá eini sem getur hjálpað henni. Galdrakarlinn í Oz er einstök upplifun fyrir alla fjölskylduna. Sýningin var tilnefnd til sex Grímuverðlauna, þar á meðal sem barnasýning ársins. Höfundur: L. Frank Baum Þýðandi leiktexta: Maríanna Clara Lúthersdóttir Þýðandi söngtexta: Bragi Valdimar Skúlason Leikstjóri: Þórunn Arna Kristjánsdóttir Leikarar: Berglind Alda Ástþórsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hilmir Jensson, Pétur Ernir Svavarsson, Sólveig Arnarsdóttir, Vilhelm Neto, Þórunn Arna Kristjánsdóttir Barnaleikhópur: Baldur Davíðsson, Einar Jósef Flosason, Emma Máney Emilsdóttir, Emma Rakel Alfreðsdóttir, Helena Jónsdóttir, Hlynur Axel Bjarkason, Hrafndís Valdísardóttir, Iðunn Eldey Stefánsdóttir, Kormákur Erlendsson, Mía Eldey Einarsdóttir, Mjöll Jónsdóttir, Sóllilja Arnarsdóttir, Theodór Elí Kristjánsson, Þórunn Embla Davíðsdóttir Dansarar: Ernesto Camilo Valdes, Fanný Lísa Hevesi, Margrét Hörn Jóhannsdóttir, Marinó Máni Mabazza
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
7.900.- 5.530.- 5.135.-
6
Borgarleikhúsið
2026–2027
Sögur – verðlaunahátíð barnanna: Leikflokkur ársins
Velkomin á Rauðu mylluna!
Moulin Rouge! Söngleikur Sýningar hefjast aftur:
28. ágúst
Salur:
Stóra svið
Söngleikurinn Moulin Rouge! gerist í París 1899 þar sem söngvaskáldið Christian kemur til borgarinnar í leit að innblæstri. Hann slæst í lið með bóhemum Montmartre er þeir vinna að söngleik sem þá dreymir um að verði settur upp á næturklúbbnum Moulin Rouge – Rauðu myllunni. Christian verður fljótt ástfanginn af stjörnu Rauðu myllunnar – Satine. En gildi bóhemanna um frelsi, fegurð, sannleik og ást mega sín lítils í heimi þar sem peningar ráða og allt er falt. Ekki missa af vinsælustu sýningu síðasta leikárs! Stórbrotin upplifun fyrir augu, eyru og hjarta – magnaðir dansar og dægurtónlist sem allir þekkja og elska. Höfundur: John Logan Þýðandi: Bragi Valdimar Skúlason Leikstjóri: Brynhildur Guðjónsdóttir Leikarar: Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Halldór Gylfason, Haraldur Ari Stefánsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Íris Tanja Flygenring, Margrét Eir Hönnudóttir, Mikael Kaaber, Pétur Ernir Svavarsson, Valur Freyr Einarsson Dansarar: Anaïs Barthe Leite, Birna Karlsdóttir, Björn Dagur Bjarnason, Diljá Sveinsdóttir, Ernesto Camilo Valdes, Fanný Lísa Hevesi, Gabriel Marling Rideout, Hannes Þór Egilsson, Karen Sif Kamgan, Karitas Lotta Tulinius, Margrét Hörn Jóhannsdóttir, Marinó Máni Mabazza, Rúnar Bjarnason
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
15.500.- 10.850.- 10.075.7
Moulin Rouge® is a registered trademark of Moulin Rouge.
Morgunblaðið
Vísir
Djöflar
Frumsýning:
Öskugrár hjónaleikur
Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Djöflar er spennuþrungið verk eftir sænska leikskáldið Lars Norén.
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.-
8
Borgarleikhúsið
2026–2027
Salur:
9. október Nýja svið Höfundur: Lars Norén Þýðandi: Hlín Agnarsdóttir Leikstjóri: Stefán Jónsson Leikarar: Haraldur Ari Stefánsson Hilmir Snær Guðnason Íris Tanja Flygenring Vala Kristín Eiríksdóttir
Svikasögur Glænýtt verk eftir Maríu Reyndal
Frumsýning:
19. september
Salur:
Stóra svið
Árið er 1984 og Nanna stendur á hinum ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur. Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá? María Reyndal er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk á borð við Er ég mamma mín og Með guð í vasanum. Í Svikasögum tekst hún á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni með húmorinn og hlýjuna að vopni. María leiðir magnaðan leikhóp í Svikasögum. Óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök. Höfundur og leikstjóri: María Reyndal Leikarar: Berglind Alda Ástþórsdóttir Birna Pétursdóttir Hákon Jóhannesson Katla Margrét Þorgeirsdóttir Mikael Kaaber Rebecca Lív Biraghi Viktoría Dalitso Þráinsdóttir Vilhelm Neto
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.-
9
Frumsýning:
Salur:
Saga konu – saga kynslóðar
5. mars 2027 Nýja svið
Sumar sýningar snerta okkur vegna þess að þær segja sögu sem við þekkjum – jafnvel áður en við höfum heyrt hana. Árin er slík sýning. Byggð á rómaðri skáldsögu Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux sem leiðir okkur í gegnum minningar, ástir, missi, fjölskyldulíf, samfélagsbreytingar og allt það sem mótar manneskjuna á heilli mannsævi.
Höfundur: Annie Ernaux Þýðandi: Auður Ava Ólafsdóttir Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir
Fimm leikkonur – Berglind Alda, Katla Margrét, Sigrún Edda, Sólveig Arnars og Þórunn Arna – túlka sömu manneskjuna á ólíkum skeiðum lífsins, með ólíkar raddir og reynslu, og skapa sviðsverk sem er í senn persónulegt, kunnuglegt og hjartnæmt. Árin er sýning um lífið sem líður hjá í hinu stóra jafnt sem smáa, um augnablikin sem við reynum að halda í og sögurnar sem búa áfram í okkur. Árin er ein áhrifamesta leikhúsupplifun vetrarins.
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.-
10
Borgarleikhúsið
2026–2027
Leikarar: Berglind Alda Ástþórsdóttir Katla Margrét Þorgeirsdóttir Sigrún Edda Björnsdóttir Sólveig Arnarsdóttir Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Einn maður gegn öllum – sérstaklega sjálfum sér
UNDIRDJÚPIN Frumsýning:
Salur:
12. febrúar 2027 Litla svið
Hilmir Snær Guðnason mætir áhorfendum af fullum krafti í Undirdjúpunum – nístandi, fyndinni og óvæginni sýningu byggðri á einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís. Í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður sagan að magnþrungnum einleik um mann sem stendur einn gegn öllum – en þó aðallega sjálfum sér. Hér takast á stolt og skömm, þráin eftir nálægð og löngunin til að brjótast undan reglum skynseminnar. Hilmir Snær dregur áhorfendur inn í hugarheim manns á mörkum örvæntingar og uppreisnar, á meðan Þorleifur Örn umbreytir klassískum texta í lifandi, sjónræna og kraftmikla sviðsupplifun. Undirdjúpin er sýning sem lifir áfram löngu eftir að tjaldið fellur. Höfundur: Fjodor Dostojevskí Þýðandi: Maríanna Clara Lúthersdóttir Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarsson Leikari: Hilmir Snær Guðnason
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.-
11
Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna
ÞEGAR TRÖLLI STAL JÓLUNUM! Frumsýning:
7. nóvember
Salur:
Stóra svið
Jólahátíðin er tími samveru, söngs … og prakkaraskapar! Í fyrsta sinn kemur hinn ástsæli söngleikur Þegar Trölli stal jólunum! til Evrópu og verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er byggð á klassískri sögu Dr. Seuss þar sem jólaþorpið Hvervík lifnar við með grípandi tónlist og litríkum persónum og aðalpersónunni Trölla – fúlum, grænum prakkara sem ætlar sér að eyðileggja jólin, áður en allt tekur óvænta stefnu. Stórskemmtileg fjölskyldusýning með hinum óviðjafnanlega Björgvini Franz Gíslasyni í hlutverki Trölla. Hvort sem þú þekkir Trölla eða ert að kynnast honum í fyrsta sinn er þetta einstakt tækifæri til að upplifa þennan heimsklassa söngleik og komast um leið í jólaskap. Komdu og leyfðu hjarta þínu að stækka aðeins fyrir jólin! Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
7.900.- 5.530.- 5.135.-
12
Borgarleikhúsið
2026–2027
Höfundur: Dr. Seuss Handrit og söngtextar: Timothy Mason Þýðandi: Salka Guðmundsdóttir Leikstjóri: Valur Freyr Einarsson Leikarar: Björgvin Franz Gíslason, Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Halldór Gylfason, Hilmir Jensson, Pétur Ernir Svavarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir Dansarar: Birna Karlsdóttir, Björn Dagur Bjarnason, Gabriel Marling Rideout, Karen Sif Kamgan, Karitas Lotta Tulinius, Rúnar Bjarnason Barnaleikhópur: Birkir Frosti Kjartansson, Eva Lovísa Heimisdóttir, Eva Sigríður Andradóttir, Helga Matthildur Diallo, Hlynur Axel Bjarkason, Iðunn Eldey Stefánsdóttir, Kári Páll Thorlacius, Nína Sólrún Tamimi, Rafney Birna Guðmundsdóttir, Sindri Gunnarsson, Sól Óskarsson Herrera, Theodór Elí Kristjánsson
Leiksýningin
Pétur og kötturinn Brandur Hjartnæm og sprenghlægileg barnasýning Frumsýning:
16. janúar 2027
Salur:
Litla svið
Í fallegri sveit lifir Pétur bóndi rólegu og einmana lífi þar til allt breytist þegar Brandur, lífsglaður og talandi köttur, mætir á svæðið. Skyndilega fyllist heimilið af hlátri og ævintýrum! Pönnukökuterta, týndir lyklar, bilað hjól og brjálað naut skapa sífellt nýjar og óvæntar uppákomur. En þegar Brandur hverfur sporlaust þarf Pétur að takast á við sinn stærsta ótta og leggja af stað í spennandi leit að vini sínum. Leiksýningin Pétur og kötturinn Brandur er full af tónlist, húmor og töfrum sem minna okkur á mikilvægi vináttunnar. Byggð á vinsælu barnabókunum eftir Sven Nordqvist. Höfundur: Sven Nordqvist Handrit: Maríanna Clara Lúthersdóttir Leikstjóri: Sara Martí Guðmundsdóttir Leikarar: Vala Kristín Eiríksdóttir Valur Freyr Einarsson
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
5.900.- 4.130.- 3.835.-
13
Lífsorka Uppistand með Bergi Ebba
Bergur Ebbi mætir til leiks í Borgarleikhúsið með glænýtt uppistand. Lífsorka fjallar um stóru málin með linsu hversdagsleikans. Til umfjöllunar eru tæknibreytingar, lífsgæðakapphlaupið, barnauppeldi, skemmtanalíf og allir litlu þræðirnir sem fléttast saman og eru uppistaðan í tilverunni. Aðdáendur Bergs Ebba og góðs uppistands verða ekki sviknir af þessari sýningu, sem er bæði fræðandi og fyndin auk þess að vera með eindæmum orkurík! Fyrri sýningar Bergs Ebba, Kynslóðir og Hagsmunir gengu fyrir fullu húsi á árunum 2022–2025 og voru sýndar tæplega sjötíu sinnum fyrir á annan tug þúsunda gesta. Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með tæpa tveggja áratuga reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni. Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.14
Borgarleikhúsið
2026–2027
Frumsýning:
Salur:
15. janúar 2027 Nýja svið
Hrífandi og aðgengileg ópera um sögulegar ástir
27
Frumsýning:
Salur:
30. október
Litla svið
Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni. Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið. Uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan, en markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Sjá nánar á hinoperan.is. Óperan 27 er styrkt af Sviðslistasjóði. Athugið að sýningin er á ensku. Tónlist: Ricky Ian Gordon Textahöfundur: Royce Vavrek Leikstjóri: Bjarni Snæbjörnsson Flytjendur: Íris Björk Gunnarsdóttir Herdís Anna Jónasdóttir Eggert Reginn Kjartansson Áslákur Ingvarsson Bjarni Thor Kristinsson
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.950.- 6.265- 5.818.15
SEX ED Kynfræðslukarnival fyrir fullorðna
Frumsýning:
Salur:
2. október
Litla svið
Sex Ed er fullorðinssirkus og kynfræðslukarnival þar sem íslenska kabarettsenan mætir óbeisluðum brúðusirkus Visceral Abstractions frá New York. Hópurinn lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem hefur frá 2017 blandað saman brúðum, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Í þessari sýningu eru mannslíkaminn, löngunin og samskiptin tekin í sundur og sett saman aftur með ódýrum bröndurum, fjölleikahússspennu og óvæntri blíðu. Sex Ed hefur verið þróuð í nokkrum útgáfum í New York og meðal annars sýnd á The Slipper Room, einum þekktasta kabarettstað borgarinnar. Nú fær sýningin íslenskan líkama, íslenska rödd og nýtt samhengi á litla sviðinu, þar sem lofthæðin er nýtt til hins ítrasta. Útkoman er fræðsla sem gleymir aldrei að skemmta – skökk, líkamleg, forvitin og ófeimin. Leikstjóri: Margrét Erla Maack Höfundar, leikarar, dansarar og sirkusfólk: Dana Abrassart, Jon Joni, Jón Sigurður Gunnarsson, Juanita Cardenas, Margrét Erla Maack, Róberta Michelle Hall, Ryan Shinji, Sara Líf Magnúsdóttir, Sally Cowdin, Sindri Freyja Bjarnabur, Sigurður „Gógó“ Starr, Tamara Ochoa, Thomas Burke
Fullt verð:
Leikhúskort (-30%):
Lúxuskort (-35%):
8.200.- 5.740.- 5.330.16
Borgarleikhúsið
2026–2027
Vinsælar sýningar frá fyrra leikári
Ekki hugmynd
Innkaupa pokinn
Gaflaraleikhúsið er mætt aftur!
Mundu töfrana
10. september
20. september
Sýningar hefjast aftur:
Salur:
Litla svið
Sýningar hefjast aftur:
Salur:
Litla svið
La bohème
Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
Ein dáðasta ópera tónlistarsögunnar!
Sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta
4. desember
9. janúar 2027
Sýningar hefjast aftur:
17
Salur:
Litla svið
Sýningar hefjast aftur:
Salur:
Litla svið
Leikhúsbarinn
Gerðu meira úr leikhúskvöldinu
Leikhúsbar Borgarleikhússins býður upp á úrval af dönsku smurbrauði að hætti Jómfrúarinnar ásamt fleiri spennandi nýjungum á þessu leikári. Stækkaðu kvöldið og gefðu þér góðan tíma til þess að njóta veitinga fyrir sýningu í notalegu umhverfi.
Veitingar í hléi Við bjóðum upp á girnilega veitingapakka sem hægt er að panta fyrirfram og bíða þín á fráteknu borði þegar hlé hefst.
Í vetur verður reglulega boðið upp á skemmtilegar uppákomur og lifandi tónlist að sýningum loknum. Staldraðu við eftir sýningu og njóttu kvöldsins, aðeins lengur.
Aðgengi Í Borgarleikhúsinu er gott aðgengi fyrir hjólastóla. Salerni fyrir fatlaða er staðsett við Nýja sviðið. Textun Borgarleikhúsið býður upp á textun og táknmálstúlkun á völdum sýningum. Tónmöskvar Allir salir hússins eru búnir sérstökum tónmöskvum sem gera notendum heyrnartækja kleift að heyra betur það sem fram fer. Nánari upplýsingar um aðgengismál má finna á heimasíðu leikhússins: borgarleikhus.is Leikárið 2026–2027 Útgefandi: Borgarleikhúsið Leikhússtjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson Ábyrgðarmaður: Guðný Steinsdóttir Umsjón með textagerð: Hrönn Blöndal Birgisdóttir Prentun: Prentmet-Oddi Ljósmynd á forsíðu: Hörður Sveinsson Stílisti á forsíðu: Eva Signý Berger Hönnun: Brandenburg Upplýsingar um sýningar og verð eru birtar með fyrirvara um breytingar. borgarleikhus.is 568 8000 Listabraut 3 103 Reykjavík Fylgdu okkur á Facebook og Instagram: @borgarleikhusid
Bakhjarlar
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir leikhúsinu kleift að bjóða landsmönnum upp á metnaðarfullt og skapandi leikhús. Jafnframt er stuðningur Ölgerðarinnar ómetanlegur.
Fáðu besta verðið með leikhúskorti
568 8000 | borgarleikhus.is