Hvernig á að framtíðast?
1.- 14. mars 2026
Samstarfsaðilar:
ENDURTAKK, Rik McNair, Ross McNair, Samtök um mannvæna tækni, Atli Þór Jóhannsson, Halldóra Mogensen, Kakkalakki Studio, Fernanda Fajardo, João Linneu, Zuzana Vondra Krupkova, Emma Shannon, Reddingakaffi, Cerise Fontaine, Ingiríður Halldórsdóttir, Yi Jen Chang, Juan Camillo Roman Estrada, Alexander Jean Fontenay, Félag kvenna frá Marokkó, Armando Garcia, Pola Sutryk, Dögg Sigmarsdóttir, Berglind Indriðadóttir, Nílsína Larsen Einarsdóttir, Framtíðarsetur Íslands, J.J. Mancho, Patrik Ontkovic, Soumia Georgsdóttir, Vasilis Valatsos, Marie Veselá, Þórey Mjallhvít og Richard Wheeler.
Frekari upplýsingar veita: Martyna Karolina Daniel, Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Fanny Sanne Sissoko, Verkefnastjóri - Inngilding og fræðsla fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Hvernig á að framtíðast?
Hvaða færni þurfum við að tileinka okkur?
Hvernig getum við deilt því sem við vitum, hvert með öðru? Framtíðinni er oft lýst sem fjarlægum stað sem við höfum litla stjórn
á, en einhvern tímann, einhvers staðar, ímyndaði einhver sér að við myndum lifa eins og við lifum í dag.
Og hér erum við.
Við bjóðum þér að nota bókasafnsrýmið til að ímynda þér og tileinka þér umhyggjusamari framtíð með sterkari tengingar, hvort sem er í sambandi okkar við tækni, náttúruna eða komandi kynslóðir.
Hátíðin fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (Tryggvagata 15, 101 rvk).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum.
Dagskrána má finna hér: borgarbokasafn.is
dagskrá
Sunnudagur 1. mars
Opnunarhátíð: hvernig á að „framtíða“ viðgerðir?
Á opnunarhátíðinni er þér boðið að taka þátt í degi með viðburðum sem snúast um viðgerðir.
Reddingakaffi: rafrænar viðgerðir
13:00-16:00
Taktu með þér hlut sem þér þykir vænt um en er af einhverri ástæðu ónothæfur og njóttu ókeypis viðgerða, kaffis og góðs félagsskapar. Fyrir þessa sérstöku Framtíðarfestival-útgáfu Reddingakaffis, munum við einbeita okkur að viðgerðum á raftækjum, komið því með snjallsíma, fartölvur og önnur raftæki sem þarfnast viðgerðar! 1. hæð - Torgið
Vonarsprotar: búum til blómpotta
14:00-16:00
Gefðu gömlum bókum nýtt líf - bókstaflega!
Listakonan Ingiríður Halldórsdóttir setur upp pop-up vinnustofu og býður öllum áhugasömum að taka þátt í að breyta afskrifuðum bókum úr
bókasafninu í blómapotta til að taka með heim. Öll fá gróðurdagatal, aðlagað íslensku loftslagi, hannað af Kakkalakki Studio.
1. hæð - Bókatorgið
Tímahylki og opinn hljóðnemi: ‘Viðgerð’ 15:30-16:30 Ímyndaðu þér umhyggjusamari framtíð þar sem við hugsum betur um auðlindir okkar og hvert annað og búum til ný orð til að lýsa því. Á meðan á viðburðinum stendur opnum við einnig tímahylkið og bjóðum þér að bæta minningum þínum í það. Hvað langar þig að senda til framtíðarinnar?
1. hæð - Bókatorgið
Mánudagur 2. mars
Að læra að dansa með hinu óþekkta
16:30-18:00
Hvernig getum við látið okkur dreyma um framtíð sem býður ungu kynslóðinni og
öðrum lífverum á jörðinni möguleika á góðu lífi? Þessi vinnustofa, haldin af Juan Camillo, gefur ekki svör við því en hún er boð um að kanna saman hvernig við getum kynnst óvissunni og hinu óþekkta betur. 5. hæð
Miðvikudagur 4. mars
Vonarsprotar: að búa til blómapotta
13:00-17:30
Gefðu gömlum bókum nýtt líf - bókstaflega!
Listakonan Ingiríður Halldórsdóttir setur upp pop-up vinnustofu og býður öllum
áhugasömum að taka þátt í að breyta afskrifuðum bókum úr bókasafninu í blómapotta til að taka með heim. Öll fá gróðurdagatal, aðlagað íslensku loftslagi, hannað af Kakkalakki Studio.
1. hæð - Bókatorgið
Myntuteathöfn
16:00-17:30
Soumia Georgsdóttir frá Félagi kvenna frá Marokkó heldur hefðbundna myntuteathöfn þar sem notuð er mynta sem ræktuð er í innanhússvatnsgarði bókasafnsins.
1. hæð - Bókatorgið
Fimmtudagur 5. mars
Búum til draumagarð úr Legokubbum
16:00-17:30
Ímyndaðu þér hvernig sameiginlegur garður á bókasafninu gæti litið út. Hvað gerir garð að stað þar sem þig langar að dvelja? Hvað ættum við að rækta? Í þessari vinnustofu, sem er haldin af Armando Garcia, munt þú byggja hugmyndir þínar úr Legokubbum og bæta þeim við sameiginlegt líkan. Eða komdu bara til að leika!
1. hæð - Torgið
Laugardagur 7. mars
Spjöllum með hreim: að framtíðast
11:30-13:30
Komdu á Framtíðarfestivalsútgáfu af vikulegu íslenskuæfingunum okkar!
Að þessu sinni ætlum við að búa til ný íslensk orð fyrir framtíðina: Hvaða orð vantar í íslenskan orðaforða til að tala um það sem þig langar að tala um? Við verðum einnig með bækur og borðspil fyrir þau sem kjósa hefðbundnari verkefni.
1. hæð - Torgið
Búðu til svefnpoka fyrir símann þinn
14:00-16:00
Er síminn farinn að fara í taugarnar á þér? Eða gæti verið að síminn sé orðinn þreyttur á þér?
Textílhönnuðirnir Endurtakk og Emma Shannon sýna þér hvernig á að búa til og skreyta svefnpoka fyrir símann úr Faraday-efni, sérstöku efni sem hindrar símasamband. Svefnpokarnir eru boð um að ákveða hvenær og hvernig við notum tækninaog tækifæri til að endurheimta dýrmætan tíma.
1. hæð
Framtíðarsamfélag án aldursfordóma: umræður
14:00-16:00
Hvernig getur tæknin stutt við baráttuna gegn aldursfordómum og hverjir eru drifkraftar aldursfordóma í samfélaginu? Vinnustofan, sem haldin er af Framtíðarsetri Íslands, leiðir saman fólk á ólíkum aldri til að deila reynslu sinni og hvetja okkur til að skoða ný sjónarhorn í átt að samfélagi framtíðarinnar þar sem aldur er ekki hindrun heldur styrkur. 1. hæð
Sunnudagur 8. mars
Milli handa, líkama og landa: skapandi vinnustofa fyrir fjölskyldur
13:00-15:30
Hver brottför er líka koma. Það sem við berum í líkama okkar er þekking sem mótar hvernig við tengjumst heiminum. Í gegnum hreyfingu, leir og leik gefst gestum - sérstaklega þeim sem eru að aðlagast nýjum heimkynnum og samfélögum - kostur á að virkja skynfærin sín og kanna reynslu breytinga. Haldin af Yi Jen Chang.
5. hæð
Vonarsprotar: plöntum og syngjum! 14:00-16:30
Plantið fræjum úr fræbanka bókasafnsins í lífbrjótanlega potta sem aðrir bókasafnsgestir hafa búið til úr afskrifuðum bókum. Takið plönturnar með heim og fáið með ykkur gróðurdagatal, aðlagað íslensku loftslagi, hannað af Kakkalakki Studio. Og syngjum!
1. hæð – Bókatorgið
Þriðjudagur 10. mars
Stórar spurningar! Leikur fyrir fjölskyldur
16:00-17:30
Eruð þið með stórar spurningar um heiminn og framtíðina? Búið til eigið spákort úr pappír, semjið spurningarnar ykkar og skreytið kortið með límmiðum. Takið kortið með ykkur heim og sökkvið ykkur í djúpar samræður við vini eða fullorðna í kringum ykkur.
2. hæð
Miðvikudagur 11. mars
Búðu til svefnpoka fyrir símann þinn – textílvinnustofa
14:00-18:00
Er síminn farinn að fara í taugarnar á þér? Eða gæti verið að síminn sé orðinn þreyttur á þér? Textílhönnuðirnir Endurtakk og Emma Shannon sýna þér hvernig á að búa til og skreyta svefnpoka fyrir símann úr Fara day-efni, sérstöku efni sem hindrar símasamband. Svefnpokarnir eru boð um að ákveða hvenær og hvernig við notum tæknina - og tækifæri til að endurheimta dýrmætan tíma.
1. hæð
Laugardagur 14. mars
Ímynduð framtíð, skapandi fjölskyldusmiðja með Þóreyju
Mjallhvíti, höfundi Ormhildar
14:00 – 15:30
Geturðu ímyndað þér hvernig Ísland mun líta út eftir 100 ár? Langar þig að skrifa eða teikna sögur sem gerast í framtíðinni? Komdu í skapandi vinnustofu og lærðu hvernig Þórey Mjallhvít ímyndaði sér söguna af Ormhildi, vinsælu sjónvarpsþáttaröðina sem gerist í fjarlægri framtíð þar sem jöklar hafa bráðnað og þjóðsagnaverur Íslands eru komnar fram í dagsljós.
1. hæð Torgið
Lokahátíð: hvernig á að „framtíða“ minningar?
“The act of imagination is bound up with memory.” Toni Morrison Til að ljúka hátíðinni er þér boðið í athöfn þar sem ímyndunarafl
Framtíðarsmakk fyrir öll
16:00-17:00
Listakonan og kokkurinn Pola Sutryk býður til ímyndaðrar máltíðar þar sem við smökkum og ímyndum okkur gagnkvæmar leiðir til að neyta matar.
Þessi viðburður fer fram í viðbyggingunni milli Grófarhúss (Tryggvagötu 15) og Biang (Tryggvagötu 13). Ef þú ert óviss um hvar viðbyggingin er, spurðu þá í móttöku bókasafnsins.
Tímahylki og opinn hljóðnemi: ‘Minningar’ 17:00-18:00
Komdu á opinn hljóðnema (e.Open Mic) þar sem þér býðst að deila minningum sem þig langar að taka með þér inn í framtíðina.
Þessi viðburður fer fram í viðbyggingunni, milli Grófarhúss (Tryggvagötu 15) og Biang (Tryggvagötu 13).
innsetningar
Fimm innsetningar verða opnar allan hátíðartímann, frá 1. til 14. mars.
Félagsleg flokkun
Finnst þér internetið þekkja þig of vel? Veltirðu fyrir þér hvort þér sé stjórnað þegar þú vafrar um? Hvað er eftirlitskapítalismi? Getum við losað okkur undan honum? Og hvernig myndi mannúðlegri stafræn framtíð líta út og og hvernig myndum við upplifa hana? Þessi upplifunarinnsetning sýnir hvernig netgögn okkar eru unnin af stafrænum kerfum og móta hver við verðum. Samtök um mannlega tækni og Alexander Jean Fontenay. 5. hæð, Verkstæðið
Faraday-kassi
Þessi eins manns kassi, úr Faraday-efni sem hindrar símasamband, býður þér að aftengjast og njóta stundar án truflana frá netinu. Hvert fer hugurinn?
Endurtakk og Emma Shannon. 5. hæð
Heitur pottur
Stígðu inn í notalegan hring úr endurunnum handklæðum frá Dalslaug. Eins og í heitum potti er þér boðið að taka pásu og njóta samverustundar án truflana. Í þessu rými finnur þú sniðmát úr pappír og leiðbeiningar um hvernig á að búa til pappírsgogg sem hvetur til samræðna í fjölskyldunni um stór málefni.
Endurtakk og Emma Shannon. 2. hæð
Vonarsprotar
Fallegar gardínur með fínlega
útsaumuðum kryddjurtum og grænmeti sem vaxa vel í íslensku
loftslagi og sýna ferðalag þeirra frá fræi til uppskeru.
Endurtakk og Emma Shannon.
1. hæð, Bókatorgið
Tímahylki
Komdu og settu minningar þínar í tímahylki
Framtíðarhátíðarinnar. Hvað langar þig að senda til framtíðarinnar? Augnablik með einhverjum sem þér þykir vænt um, tilfinninguna þegar vorið leikur um
þig, bragðið af heimagerðum mat? Tímahylkið verður innsiglað í lok hátíðarinnar og geymt í bókasafninu næstu 10 árin, þar til við hittumst aftur til að opna
það saman 14. mars 2036. hæð
Eftir framtíðina: Að lifa af undir myrkvun tækninnar
Laugardagur 18. apríl kl. 14:00-16:00
Hvað gerist ef við vöknum einn daginn og flugvélar eru hætta að fljúga? Eða ef rafmagnið hverfur alveg? Vertu með okkur í hlutverkaleik þar sem við finnum út hvernig við getum lifað af saman í þessum aðstæðum.
Leikurinn er undir stjórn Vasilis Valatsos.
Eftir framtíðina: Samantekt með klippimyndum
Laugardagur 2. maí kl. 14:00-16:00
Tími til að melta hugsanir okkar og tilfinningar um framtíðina! Vertu með okkur í síðdegisklippimyndasmiðju undir forystu Marie Veselá þar sem við notum myndir frá framtíðarhátíðinni og afgangstímarit af safninu til að vinna úr hugmyndum okkar.