Skip to main content

Borgarbókasafnið | Dagskrá jan-maí 2022

Page 1

Fylgið okkur á borgarbókasafnið borgarbokasafn borgarbokasafn.is

2


Að hverju ertu að leita

?

S. 5

Áttu bókasafnskort?

S. 8

Artótek - Viðtal við Heiðu Rúnarsdóttur S. 13 Viðburðir fyrir fullorðna S. 36 Gerðuberg kallar - Viðtal við Hélène Onno og Carolina Caspa S. 40 Stofan - Um nýtt tilraunaverkefni á bókasafninu S. 42 Anime klúbburinn - Viðtal við Ötlu Hrafneyju S. 46 Sögubíllinn Æringi - Sögustund með Sólu S. 51 Viðburðir fyrir börn og fjölskyldur S. 66 Sögustundir á söfnunum


Borgarbokasafnið 4

stöðum


ÁTTU BÓKASAFNSKORT? Vissir þú að á borgarbokasafn.is getur þú: Fengið innsýn í lífið á safninu Fengið innblástur að lesefni Fylgst með dagskrá viðburða Keypt eða endurnýjað bókasafnskort Framlengt lán Tekið frá efni Greitt sektir Bókað tæki og rými á Verkstæðunum Skráð þig til þátttöku í smiðjum Kynnt þér gjaldskrána Sent innkaupatillögu

Bókasafnskortið þitt Kortið gildir í öllum bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu, bókabílnum Höfðingja og á Rafbókasafninu. Gildistími er 1 ár, hægt er að kaupa og endurnýja kort á Mínum síðum á borgarbokasafn.is. Handhafi bókasafnskortsins er sá eini sem má nota það. Bókasafnskortið er ókeypis fyrir börn og unglinga undir 18 ára, öryrkja og fólk 67 ára og eldra, aðrir greiða hóflegt árgjald. Bókasafnskortið er innifalið í Menningarkorti Reykjavíkur. Hvað er innifalið? Lán á bókum, tímaritum, hljóðbókum, tónlist, kvikmyndum, borðspilum, aðgangur að Naxos streymisveitum, raf- og hljóðbækur á rafbokasafn.is og aðgangur að hljóðveri og hlaðvarpsstúdíói. Hvað má hafa efnið lengi að láni? Nýjar bækur - 14 daga Aðrar bækur - 30 daga Tónlist á CD diskum og vínyll - 14 daga DVD diskar - 7 daga Hvað má hafa mörg eintök í einu að láni? Börn og unglingar - 15 eintök Fullorðnir - 40 eintök Til dæmis bland í poka af raf- og hljóðbókum, myndasögum, tónlist, tímaritum, kvikmyndum og fullt af skemmtilegum bókum.

5


VISSIR ÞÚ AÐ Í ÚLFARSÁRDAL GETUR ÞÚ

TEKIÐ UPP EIGIN TÓNLIST Í HLJÓÐVERINU

SPILAÐ TÖLVULEIKI Í TÖLVUVERINU OG FARIÐ

Í SUND Á EFTIR!


Íbúa r í Úl farsá rdal og Grafarholti

'

'

TIL HAMINGJU með NyJA BoKASAFNIð YKKAR!


Lítil skref í átt að stóru listaverkasafni Heiða Rúnarsdóttir býr ásamt Hjálmari Sæbergssyni í notalegu húsi í Breiðholtinu.

Í forstofunni hanga tvær fallegar myndir eftir Iréne Jensen, sem heita Upphaf ferðar og Samstíga. 8


Fyrsta verkið sem Heiða eignaðist í gegnum Artótekið var reyndar fyrsta málverkið sem þau hjónin keyptu. Það verk heitir Slökun og er eftir myndlistarkonuna Ninný. „Við keyptum myndina í tilefni af fertugsafmælinu mínu,“ segir Heiða. Hún segir að þau geymi miðana aftan á verkunum, bæði vegna þess að þar komi fram upplýsingar um verkin en líka því það sé ánægjuleg áminning um myndlist á kjarakaupum. Hún tekur niður eina myndina úr forstofunni og á bakhliðinni kemur fram að þau hjónin greiddu þúsund krónur á mánuði, í tæp þrjú ár, til að eignast myndina. „Við þurftum ekki að neita okkur um mikið til að hafa efni á þessu,“ segir Heiða glaðlega um leið og hún hengir myndina aftur á sinn stað. „Við höfðum ekki mikið á milli handanna á þessum tíma, en langaði til að kaupa myndlist eftir íslenska listamenn, svo Artótekið var frábær leið fyrir okkur til að láta þann draum rætast.“ Heiða segir að þau hjónin fylgist bæði með á vefsíðu Artóteksins, en Hjálmar sé þó virkari ef eitthvað er. „Já, hann skoðar síðuna reglulega og svo er það yfirleitt þannig að ef ég vel eitt þá sér hann tvö til viðbótar,“ segir Heiða og hlær. Hún segir að þegar þau hafa fundið verk þá geri þau sér ferð í miðbæinn til að skoða það. Hún segir að þó þeim finnist mikilvægt að sjá verkið með eigin augum áður en þau taka lokaákvörðun þá hafi það ekki gerst hingað til að þau hætti við þegar á hólminn er komið. Heiða og Hjálmar hófu að safna myndlist í gegnum Artótekið fyrir 14 árum og Heiða segir að það hafi verið gæfuspor. „Það er mögulegt að fylla heimilið sitt af list, bara með því að taka lítil skref með Artótekinu.“

9


Grófin

Gerduberg

Spöngin

15. janúar 12. febrúar 12. mars 09. apríl

19. janúar 16. febrúar 16. mars 13. apríl

29. janúar 26. febrúar 26. mars 23. apríl

kl.11:30-13:00

kl.17:30-19:00

borgarbokasafn.is

kl.11:30-13:00


Czytasz po polsku Lestu pólsku

?

Poznaj wybór książek w języku polskim w bibliotece. Kynntu þér úrval bóka á pólsku á söfnunum. Czy znajde ta ksiazke? Daj nam znac. Senda innkaupatillögu

Er bókin ekki til? Láttu okkur vita.


Bókmenntaganga um Ástu Sigurðardóttur skáldkonu í ágúst 2021


VIÐBURÐIR FYRIR FULLORÐNA JANÚAR - MAÍ 2022


Janúar 2022

Borðum betur

Lífsstílskaffi Þri. 11.01.22 kl. 18:00-19:30 Úlfarsárdalur Eitt stærsta vandamál okkar í mataræði er að við innbyrðum of mikla orku en á sama tíma of litla næringu. Þessi staðreynd spilar stórt hlutverk í þróun lífsstílssjúkdóma. Þjálfarinn og heilsuráðgjafinn Rafn Franklín heldur uppi hlaðvarpinu 360 Heilsa þar sem hann gefur hlustendum hagnýt tól til að bæta eigið líf og heilsu. Hann mun fara yfir mýtur í mataræði, hvernig það hefur breyst og hvernig við getum borðað betur fyrir bætta heilsu.

Hugarflug með macramé Sýning | 12.01.22 - 13.03.22

Árbær

Katla Marín Stefánsdóttir, sýnir verk unnin með macramé tækni. Um er að ræða aldagamalt textílform, sem á rætur að rekja til Arabíu, þar sem þræðir eru hnýttir saman eftir kúnstarinnar reglum svo úr verða listaverk eða nytjahlutir. Katla Marín kynnir þessa fornu textílaðferð á handverkskaffi 17. janúar kl. 17:00. 14

Katla Marín Stefánsdóttir


Janúar 2022

Stefnumót við skáldin í hverfinu Hjólatúr um Hlíðarnar og nágrenni Lau. 15.01.22 kl. 10:00-12:00 Kringlan Komið með í hressandi og andlega nærandi hjólatúr og hlustið á Guttorm lesa upp ljóð og prósa eftir skáldin í hverfinu. Vermum svo kalda fingur á kaffihúsi í lok ferðar. Hjólastjórar: Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Guttormur Þorsteinsson, sagnfræðingur.

Macramé hnýtingar Handverkskaffi Mán. 17.01.22 kl. 17:00-18:00 Elvar Bragi Kristjánsson

Ferðalag með Elvari Braga Jazz í hádeginu Fim. 13.01.22 kl. 12:15-13:00 Fös. 14.01.22 kl. 12:15-13:00 Lau. 15.01.22 kl. 13:15-14:00

Grófin Gerðuberg Spöngin

Trompetleikarinn Elvar Bragi Kristjánsson býður tónleikagestum í ferðalag um tónheima sem sækja innblástur út fyrir höfuðborgina. Hróðmar Sigurðsson leikur með á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa.

Árbær

Hvernig er best að byrja að hnýta? Katla Marín Stefánsdóttir segir frá og sýnir helstu aðferðir við þetta aldagamla arabíska listform í tilefni af sýningu hennar Hugarflug með macramé.

Skáldskapur frá bókaflóði Bókakaffi Mið. 19.01.22 kl. 20:00-21:30

Gerðuberg

Hugguleg kvöldstund með höfundum úr nýliðnu bókaflóði sem segja frá tilurð og efni skáldverka sinna, hráum og hreinum tilfinningum og hugmyndum. Þau lesa upp og spjalla við gesti um skáldskapinn.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

15


Janúar 2022

Flóttaleikur Borðspilakvöld Mið. 19.01.22 kl. 20:00-22:00

Gerðuberg

Langar þig að prófa að spila flóttaleik (Escape Room)? Unlock er samvinnuspil í anda flóttaleikja og ratleikjanna á sýningunni Þín eigin bókasafnsráðgáta. Leikmenn hafa klukkutíma til að leysa gátuna, en til þess þarf að vinna saman, tengja hluti og taka vel eftir smáatriðum. Allt að 6 manns geta spilað saman í hóp. Embla Vigfúsdóttir, spilaunnandi, verður á svæðinu með mörg mismunandi Unlock spil sem hægt verður að velja úr.

Bókverk Sigurborgar Stefánsdóttur Sýning | 20.01.22 - 20.02.22

Kringlan

Bókverkin eru af ýmsum toga bæði einstök verk og nokkur prentuð í fleiri eintökum. Sigurborg beitir fjölbreyttum aðferðum við bókagerðina, svo sem klippitækni, teikningum, málun, útskurði og ljósmyndum. Bækur Sigurborgar innihalda stundum texta með pólitískum skírskotunum en oftast eru textarnir fagurfræðilegir og jafnvel fáránlegir. 16

Úff hvað allt er dýrt hérna Leikhúskaffi Fim. 20.01.22 kl. 17:30-19:00

Kringlan

Leikhópurinn Pólis segir gestum frá sýningu þeirra Tu jest za drogo í Borgarleikhúsinu og býður þeim að skoða umgjörð sýningarinnar. Gestir geta keypt miða á leiksýninguna með 10% afslætti. Viðburðurinn fer fram á pólsku.


Janúar 2022

Opið hús | Kynning á nýju safni

Frá fræi til plöntu Fróðleikskaffi Þri. 25.01.22 kl. 17:00-18:30

Árbær

María Norðdahl frá InniGörðum fjallar um ræktun árið um kring. Hvað þarf til að koma plöntum af stað frá fræi, hvort sem á að setja þær út í potta og beð þegar sumrar eða hafa þær innandyra? Farið verður yfir mikilvægi fjögurra grunnþátta sem þurfa að vera til staðar ef árangur á að nást við ræktun; ljóss, vatns, næringar og hita.

Að skrifa fyrir leikhús Kveikja Mið. 26.01.22 kl. 17:15-18:15

Kringlan

Friðgeir Einarsson, rithöfundur og leikskáld og Ingibjörg Magnadóttir, myndlistarmaður og leikskáld fjalla um innblástur, þverfagleg skrif og sköpun fyrir svið og áhorfendur. Kveikja er samtal lista og fræða um eld, innblástur, skynjun og sköpunarferli. Hvað kveikir ljós og jafnvel bál, hver er ljósmóðir/faðir listaverks?

Fim. 27.01.22 kl. 18:00-20:00

Úlfarsárdalur

Verið velkomin á nýtt Borgarbókasafn í Úlfarsárdal! Við kynnum dagskrána og gefum gestum kost á að koma með hugmyndir að viðburðum, klúbbum, aðstöðu eða öðru tengdu starfseminni. Boðið verður upp á gott kaffi og afslappað spjall.

Brooklyn Sýning | 29.01.22 - 26.02.22

Spöngin

Hrönn Axelsdóttir sýnir ljósmyndir teknar fyrir utan heimili hennar í New York um síðustu aldamót, þar sem fjölbreytileiki íbúa hverfisins kemur glögglega í ljós. Hrönn hefur starfað sem ljósmyndari um árabil og sýnt verk sín víða um heiminn.

„Illt gerðir þú móðir, að varna mér lífs“ Fræðakaffi Mán. 31.01.22 kl. 17:15-18:00

Spöngin

Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, segir frá hugmyndum um hlutverk konunnar sem birtast í íslenskum þjóðsögum og tekur sérstaklega fyrir konur sem afneituðu móðurhlutverkinu.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

17


Febrúar 2022

Teikninámskeið Þri. 01.02.22 kl. 16.30-18.30 Þri. 08.02.22 kl. 16.30-18.30

Árbær Árbær Dreymir þig um að læra að teikna? Kristín Arngrímsdóttir, myndlistarkona, fer yfir grunnatriði í teikningu fyrir 16 ára og eldri sem langar að spreyta sig. Reynsla ekki nauðsynleg.

Mín liljan fríð Sagnakaffi með hljómsveitinni Umbru Mið. 02.02.22 kl. 20:00-21:30 Gerðuberg Tónlistarkonurnar Alexandra, Arngerður María, Guðbjörg Hlín og Lilja Dögg flytja okkur spennandi blöndu af ljóðum, lögum og sögum. Þær hafa í sameiningu skapað sinn eigin hljóðheim sem þykir hafa fornan og oft á tíðum hátíðlegan blæ.

Velkomin á Safnanótt Fös. 04.02.22 kl. 18:00-23:00

Grófin

Við bjóðum ykkur öll velkomin að njóta Safnanætur á bókasafninu. Tónlistin er í aðalhlutverki að þessu sinni og dagskráin stútfull af allskonar uppákomum. Dagskrá Vetrarhátíðar 3. - 6. febrúar er að finna á vetrarhatid.is.

18

Hljómsveitin Umbra


Febrúar 2022

Kyrrðarkvöld og flot Fös. 04.02.22 kl. 20:00-22:00

Úlfarsárdalur

Ljósin verða dempuð, róleg tónlist fær að óma og það slaknar á taugunum. Í samstarfi við Dalslaug verður einnig boðið upp á flot í sundlauginni.

Þetta ER einleikið Sagnakaffi Mið. 09.02.22 kl. 20:00-21:30

Gerðuberg

Elfar Logi Hannesson, leikari, fjallar um einleikjaformið og sagnalistina sem sameinast í sýningum hans. Það verður um sannkallaða Gíslatöku að ræða því Elfar Logi segir frá og flytur brot úr Gísla-einleikja þrennu sinni; Gísli Súrsson, Gísli á Uppsölum og Gísli, Eiríkur og Helgi, nefndir Bakkabræður.

Feður fónanna með Alberti Sölva

Elfar Logi Hannesson

Jazz í hádeginu Fim. 10.02.22 kl. 12:15-13:00 Grófin Fös. 11.02.22 kl. 12:15-13:00 Gerðuberg Lau. 12.02.22 kl. 13:15-14:00 Spöngin Saxófónleikarinn Albert Sölvi Óskarsson setur saman tónleikadagskrá með tónsmíðum helstu kanóna í saxófónleik jazzheimsins. Með Alberti leika Jón Ómar Árnason á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

19


Febrúar 2022

Vínylkaffi Fim. 10.02.22 kl. 20:00-21:30 Úlfarsárdalur Hlustið þér á hljómplötur? Fátt fer betur saman en biksvart kaffi og vínylplötur í sama lit. Á Vínylkaffi setjum við nokkrar vel valdar skífur undir nálina, tökum snúning og spjöllum á léttu nótunum um allt sem viðkemur gripnum; tónlistinni, hljómnum og kápunni. Vínylkostur Borgarbókasafnsins er mjög góður, en gestir geta einnig tekið með sér plötur að heiman og fengið lánaðar plötur með sér heim eftir kaffið.

Syngjum saman Söngstund með Önnu Sigríði og Aðalheiði Fim. 10.02.22 kl. 17:00-17:45 Árbær Verið velkomin í opna söngstund þar sem hver syngur með sínu nefi. Lagatextum er varpað á skjá svo við getum öll sungið með. 20

Björn Unnar Valsson

Stefnumót við ljóðskáld í efri byggðum Hjólatúr um Breiðholtið Lau. 12.02.22 kl. 10:00-12:00

Gerðuberg

Breiðholtið hefur sett mark sitt á skáld sem þar hafa alist upp, og eins hreyft við öðrum sem hafa einungis staldrað við. Við hjólum á milli snertipunkta við holtið og lesum upp ljóð. Fáum okkur hressingu í Mjóddinni í lok ferðar. Hjólastjórar: Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Björn Unnar Valsson, bókmenntafræðingur.


Febrúar 2022

Vilhjálmur Andri Einarsson

Hættu að væla komdu að kæla Lífsstílskaffi Lau. 12.02.22 kl. 15:00-16:00

Sólheimar

Vilhjálmur Andri Einarsson, stofnandi ANDRI ICELAND, fjallar um hugtök og undirstöðuatriði kenninga sinna, deilir sinni persónulegu vegferð og kynnir kuldaþjálfun og Wim Hof öndunartækni.

Valentínusar kaffikviss Mán. 14.02.22 kl. 17:00-18:00 Árbær Valentínusar barsvar með spurninganirðinum og bókaverðinum Guttormi Þorsteinssyni. Temmilega erfið, skemmtileg en alls ekki væmin spurningakeppni á Valentínusardaginn. Velkomin, öll þið sem eruð með ástinni í liði!

Beyond Black Bókakaffi Þri. 15.02.22 kl. 20:00-21:30 Úlfarsárdalur Tónlistarkonan Þórunn Antonía flutti ung til London til að láta drauminn um tónlistarferil rætast. Hún lenti í spennandi ævintýrum þar í borg, starfaði með þekktum hljómsveitum og kynntist meðal annars söngkonunni heitinni, Amy Winehouse. Bestu vinir Amy skrifuðu um hana bókina Beyond Black sem gefin var út á síðasta ári. Þau báðu Þórunni Antoníu að skrifa einn kafla bókarinnar. Þórunn mun ræða vinskap þeirra og hvað gekk á hjá henni sjálfri í bransanum.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

21


Og hvað á svo að gera við allar bækurnar? Sýningarspjall Mið. 16.02.22 kl. 20:00-22:00 Gerðuberg Hvað getum við eiginlega gert við allar þessar bækur sem við eigum og erum hætt að lesa? Sýningarstjórarnir Embla Vigfúsdóttir og Svanhildur Halla Haraldsdóttir spjalla um sýninguna Þín eigin bókasafnsráðgáta og bjóða gestum um leið að taka þátt í hugarflæði um framhaldslíf bóka.

22


Febrúar 2022

Freyðandi vorljóð

Ljóðakaffi Fim. 24.02.22 kl. 17:30-18:30 Kringlan Svikaskáldið Þóra Hjörleifsdóttir fær til sín þrjú önnur spennandi ljóðskáld sem lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum. Freyðandi drykkir í boði.

Skikkjugerð Handverkskaffi Sun. 27.02.22 kl. 12:00-15:00 Árbær

Thomas Mann

Listin að skynja og þýða heimsbókmenntir Kveikja Mið. 23.02.22 kl. 20:00-21:00

Gerðuberg

Birna Bjarnadóttir, doktor í bókmenntum og fagurfræði, og Gauti Kristmannsson, þýðandi og prófessor í þýðingarfræðum, ræða reynslu sína af Töfrafjallinu eftir Thomas Mann. Kveikja er samtal lista og fræða um eld, innblástur, skynjun og sköpunarferli. Hvað kveikir ljós og jafnvel bál, hver er ljósmóðir/faðir listaverks?

Öskudagurinn er í nánd og því rétti tíminn til að sauma sér búning. Komum saman og saumum skikkjur fyrir öskudaginn eða annað gott tilefni. Börn velkomin í fylgd með fullorðnum. Elínborg Ágústsdóttir, sveinn í kjólasaumi, leiðbeinir.

Móri, Skotta og Skupla – bara draugar? Fræðakaffi Mán. 28.02.22 kl. 17:15-18:00 Spöngin Eva Þórdís Ebenezersdóttir, þjóðfræðingur, skoðar draugasögur úr safni Jóns Árnasonar frá sjónarhorni fötlunar. Voru draugar kannski stundum öðruvísi fólk?

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

23


Mars 2022

Erfð áföll Bókakaffi Mið. 02.03.22 kl. 20:00-21:30

Gerðuberg

Hvernig berast áföll niður kynslóðir? Á þessu bókakaffi ræðir Soffía Bjarnadóttir við þær Elísabetu Jökulsdóttur og Önnu Hafþórsdóttur um skáldverkin Aprílsólarkuldi, Rauðir hestar og Að telja upp í milljón – um magíska krafta, arf, rætur og áföll í skáldskap þeirra og um leiðina til að sigrast á gömlum sársauka. Getur skáldskapurinn verið sú leið? 24

Málverk eftir Camillu Reuter

Endurkast Sýning | 03.03.22 - 31.03.22

Spöngin

Camilla Reuter sýnir olíumálverk þar sem líkamar endurkastast á striga á draumkenndan hátt. Í forgrunni verkanna eru litir og hreyfingar sem tjá tilfinningar.


Mars 2022

Ráðstefna um barnaog unglingabókmenntir Lau. 05.03.22 kl. 10:30-13:00

Gerðuberg

Árleg ráðstefna þar sem gestum gefst tækifæri til að hlýða á fyrirlesara og taka þátt í umræðum um hlutverk og stöðu bókmennta fyrir börn og ungmenni í dag. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Félags fagfólks á skólasöfnum, IBBY, SFS, Síung, Upplýsingar og Borgarbókasafnsins.

Steinarnir brosa líka

Ljóðakaffi Mið. 09.03.22 kl. 20:00-21:30 Gerðuberg Ljóðadagskrá þar sem fjallað er um ljóð og líf Vilborgar Dagbjartsdóttur, rithöfundar og ljóðskálds. Vilborg lést á síðasta ári og verður hennar minnst með umfjöllun og upplestri. Ljóðin hennar eru skínandi perlur eins og dagarnir sem hún þræddi upp á óslitinn silfurþráðinn.

Syngjum saman Söngstund með Önnu Sigríði og Aðalheiði Fim. 10.03.22 kl. 17:00-17:45 Árbær

Vilborg Dagbjartsdóttir | Ljósmyndari: Ari Kárason

Finnst ykkur gaman að syngja í góðum hópi? Verið velkomin í opna söngstund þar sem hver syngur með sínu nefi. Lagatextum er varpað á skjá svo við getum öll sungið með.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

25


Mars 2022

Leifur Gunnarsson

Fleiri óskalög hlustenda Jazz í hádeginu Fim. 10.03.22 kl. 12:15-13:00 Grófin Fös. 11.03.22 kl. 12:15-13:00 Gerðuberg Lau. 12.03.22 kl. 13:15-14:00 Spöngin Leifur Gunnarsson, kontrabassaleikari og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, leikur óskalög gesta í góðum félagsskap fleiri hljóðfæraleikara. Óskalagatónleikar hafa verið haldnir einu sinni áður við afar mikla hrifningu gesta. Tekið verður á móti óskalagahugmyndum á tónleikunum Feðrar fónanna í febrúar.

26

Fyrrverandi Leikhúskaffi Fim. 10.03.22 kl. 17:30-19:00 Kringlan Valur Freyr Einarsson, leikskáld og leikstjóri, segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verki sínu Fyrrverandi og býður þeim að skoða umgjörð sýningarinnar. Gestum býðst að kaupa miða á leiksýninguna með 10% afslætti.


Mars 2022

Stefnumót á kvennaslóðum Hjólatúr um Miðborgina og Vesturbæinn Lau. 12.03.22 kl. 10:00-12:00 Grófin Hjólað verður inn á ljóðlendur og út á ritvöll íslenskra kvenhöfunda og skálda og lesið upp úr verkum þeirra á völdum stöðum. Viðburðurinn er haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Við kíkjum svo saman á kaffihús í lok ferðar. Hjólastjórar: Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Sunna Dís Másdóttir, skáldkona.

Kvíði barna og unglinga

Sigurður Héðinn Harðarson

Foreldrakaffi Lau. 12.03.22 kl. 15:00-16:00

Sólheimar

Eru kvíði, ónægur svefn, neikvæð sjálfsmynd eða snjalltækin að hafa áhrif á barnið þitt og gæðastundir fjölskyldunnar? Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir frá Hugarfrelsi kynna einfaldar og gagnlegar aðferðir sem foreldrar geta nýtt með börnum sínum til að auka vellíðan, hamingju og gleði.

Viltu læra að hnýta flugur? Handverkskaffi Mán. 14.03.22 kl. 17:00-18:30

Árbær

Sigurður Héðinn Harðarson (Siggi Haugur) segir frá og sýnir ýmsar gerðir af laxaflugum s.s. Kubba, Long Ving, Long Tail og Túbur. Sigurður hefur hannað vinsælar flugur og skrifað bækur um efnið.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

27


Mars 2022

Kviknar-samfélagið Foreldrakaffi Þri. 15.03.22 kl. 20:00-22:00

Úlfarsárdalur

Kviknar-samfélagið er rödd foreldra í barneignarferli, vettvangur til þess að deila raunum og reynslu og til þess að standa saman. Kviknar-samfélagið er hugarfóstur Andreu Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttur en hún heldur úti stóru samfélagi foreldra á Instagram og sér um hlaðvarpið Kviknar. Auk þess hefur hún gert tvær sjónvarpsþáttaraðir og gefið út bók um efnið. Andrea mun kynna starfsemi Kviknar-samfélagsins og mikilvægi þess.

Innblástur – bakvið tungumálið Kveikja Mið. 23.03.22 kl. 17:15-18:15

Grófin

Ásta Fanney Sigurðardóttir, skáld, tón- og gjörningalistamaður og Valur Brynjar Antonsson, heimspekingur og skáld, kveikja í gestum með hugvekju; heimspeki og skáldskap. Kveikja er samtal lista og fræða um eld, innblástur, skynjun og sköpunarferli. Hvað kveikir ljós og jafnvel bál, hver er ljósmóðir/faðir listaverks?

28

Refillinn frá Bayeux Fræðakaffi Mán. 28.03.22 kl. 17:15-18:00

Spöngin

Reynir Tómas Geirsson, læknir, segir frá hinum fræga útsaumaða refli frá Bayeux. Á honum má sjá eins konar myndasögu um orrustuna við Hastings árið 1066, þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England. Tómas rekur sögu refilsins en segir einnig frá tilurð hans, saumaaðferðinni – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar.


Mars 2022

Æsir með kynusla

Ármann Jakobsson

Fræðakaffi Þri. 29.03.22 kl. 17:30-18:30 Úlfarsárdalur Snærós Sindradóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, og Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands, ræða merkilegan fornleifauppgröft í Finnlandi sem bendir til þess að höfðingi þar í landi hafi bæði verið intersex og kynsegin. Þá munu þau spjalla um hvaða merkingu uppgötvunin hefur með tilliti til stöðu kynjanna á miðöldum á Íslandi og hvernig hún birtist í Njálu, Snorra-Eddu og Heimskringlu.

SamSuða Friðgeirs Einarssonar

Snærós Sindradóttir

Sýning | 31.03.22 - 30.04.22 Kringlan Rithöfundurinn Friðgeir Einarsson velur verk úr Artóteki Borgarbókasafnsins og skrifar um þau texta. Verkin og textinn mynda ákveðna samsuðu sem sett verður upp á sýningu í Kringlunni og opnuð fimmtudaginn 31. mars kl. 17:00. SamSuða er yfirskrift sýningarraðar í Borgarbókasafninu Kringlunni. Röðin er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem rithöfundar og skáld velja verk úr Artóteki Borgarbókasafns og skrifa um þau stuttan texta.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

29


Apríl 2022

Virpi Jokinen

Áhrif skipulags á líðan okkar Fróðleikskaffi Mán. 04.04.22 kl. 17:00-17:45 Árbær Virðist tiltektin nánast óyfirstíganleg? Virpi Jokinen hjá fyrirtækinu Á réttri hillu ræðir um hvernig gott skipulag getur nýst sem verkfæri. Mikilvægi þess að skoða raunverulegar þarfir okkar og langanir hér og nú og aðgreina þær frá þörfum og löngunum liðinna tíma. 30

Vínylkaffi Fim. 07.04.22 kl. 17:30-19:00

Grófin

Fátt fer betur saman en biksvart kaffi og vínylplötur í sama lit. Á Vínylkaffi setjum við nokkrar vel valdar skífur undir nálina, tökum snúning og spjöllum á léttu nótunum um allt sem viðkemur gripnum; tónlistina, hljóminn og kápuna.


Apríl 2022

Rafhjól, hvað er það? Lífsstílskaffi Fim. 07.04.22 kl. 17:30-18:30 Kringlan Hefurðu velt fyrir þér hvort rafhjól séu fyrir þig eða hvernig þau virka? Reyndir hjólagarpar fræða gesti um allt sem tengist rafhjólum. Silja Aðalsteinsdóttir

Astrid Lindgren Bókakaffi Þri. 26.04.22 kl. 17:30-19:00 Úlfarsárdalur Bækur sænsku skáldkonunnar Astrid Lindgren hafa þótt nánast ómissandi á hverju heimili enda innihalda þær falleg skilaboð og ná einstaklega vel til barna. Silja Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, þýðandi og ritstjóri, fjallar um Astrid Lindgren og þann ævintýraheim sem hún skapaði, meðal annars í bókunum: Emil í Kattholti, Lína langsokkur, Ronja ræningjadóttir og Börnin í Ólátagarði.

Syngjum saman Söngstund með Önnu Sigríði og Aðalheiði Fim. 28.04.22 kl. 17:00-17:45 Árbær Finnst ykkur gaman að syngja í góðum hópi? Verið velkomin í opna söngstund þar sem hver syngur með sínu nefi. Lagatextum er varpað á skjá svo við getum öll sungið með.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

31


Maí 2022

Útskriftarsýning listnema

Suðræn sveifla

Sýning | 02.05.22 – 06.05.22 Spöngin Nemendur í grafískri hönnun á listnámsbraut Borgarholtsskóla sýna útskriftarverkefni sín.

Danskaffi Lau. 07.05.22 kl. 15:00-16:00 Sólheimar

Sagnalandið með Halldóri Guðmundssyni Ferðakaffi Fim. 05.05.22 kl. 17:30-18:30

Kringlan

Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur, fer með okkur hringinn í kringum landið í bókmenntum. Bók hans Sagnalandið er í senn handbók fyrir ferðalanga og reisubók hugans.

Sessý, hjá BFA - Bachata fyrir alla, kennir okkur grunnsporin í nokkrum suður-amerískum götudönsum eins og bachata, merengue og salsa. Öll velkomin!

Barnaföt | Skiptimarkaður Lau. 07.05.22 kl. 13:00-15:00 Úlfarsárdalur Eru börnin vaxin upp úr fötunum, hætt að nota þau eða einfaldlega komin með leið á þeim? Hugsum um umhverfið og skiptumst á fötum í stað þess að kaupa ný.

Vínylkaffi Fim. 05.05.22 kl. 17:30-19:00

Grófin

Hefur þú unun af tónlist, kaffi og spjalli? Fátt fer betur saman en biksvart kaffi og vínylplötur í sama lit. Á Vínylkaffi setjum við nokkrar vel valdar skífur undir nálina, tökum snúning og spjöllum á léttu nótunum um allt sem viðkemur gripnum; tónlistina, hljóminn og kápuna.

32

Plöntur | Skiptimarkaður Sun. 15.05.22 kl. 13:00-14:00 Árbær Finnst þér gaman að rækta? Nýttu þér einstakt tækifæri til gera góð skipti á plöntum og afleggjurum og fjölga þannig tegundum í eigin garði eða glugga.


Maí 2022

Vínylkaffi Fim. 19.05.22 kl. 20:00-21:30 Úlfarsárdalur Á Vínylkaffi setjum við nokkrar vel valdar skífur undir nálina, tökum snúning og spjöllum á léttu nótunum um allt sem viðkemur gripnum; tónlistina, hljómana og kápuna.

Hljóðgervlamessan í Grófinni 2021

Sunna Dís Másdóttir

Synthabælið | Hljóðgervlamessa

Sumarútgáfan með Sunnu Dís

Lau. 21.05.22 kl. 13:00-16:00

Fim. 02.06.22 kl. kl. 17:30-18:30 Sólheimar

Grófin

Alþjóðlegi hljóðgervladagurinn er haldinn ár hvert á afmælisdegi Roberts Moog, mannsins sem bjó til fyrsta hljóðgervilinn, en það er óhætt að segja að nútímatónlist er nánast óhugsandi án aðkomu hljóðgervla. Gestum og gangandi á öllum aldri er boðið að kynna sér og prófa hljóðgervla í undraheimi raftónlistarinnar.

Við höldum upp á árlega vor- og sumarútgáfu sem verður blómlegri með hverju árinu sem líður. Sunna Dís Másdóttir, bókmenntagagnrýnandi, fær til sín vel valda rithöfunda og þýðendur í notalegt spjall og upplestur. Léttar veitingar á boðstólnum og sumar í loftinu. Er hægt að hugsa sér betri byrjun á sumrinu?

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

33


VISSIR ÞÚ AÐ Á FIKTDÖGUM

VERKSTÆÐANNA FÆRÐU AÐSTOÐ VIÐ AÐ

LÆRA Á FORRIT, TÆKNI OG ALLSKONAR SKAPANDI TÓL


FINNST ÞÉR GAMAN AÐ SAUMA? Á Verkstæðunum okkar í Árbæ og Gerðubergi er að finna hefðbundnar saumavélar og overlock vél sem þér er velkomið að nýta. Aðstoð í boði einu sinni í mánuði. Kíktu til okkar og skoðaðu aðstöðuna eða pantaðu tíma á bókunarvef Verkstæðanna. borgarbokasafn.is /verkstaedin/boka


36

Hélène Onno

Carolina Caspa

er fædd í Frakklandi 1990. Hún starfar með ungu fólki og hefur rannsakað erfð áföll og heilunarheilunaráhrif sagnalistarinnar. Fjölskyldusaga hennar er mörkuð rótleysi og jaðarsetningu. Hún hefur verið innflytjandi bróðurpart fullorðinsáranna. Það hefur áhrif á sjónarhorn hennar, sýn á sögurnar sem við segjum og ekki segjum hvert öðru.

er fædd í Portúgal 1988. Hún hefur ástríðu fyrir samfélagsuppbyggingu með sérstakan áhuga á frásögnum og hlutverki þeirra í heilun og umbreytingu. Foreldrar hennar eru innflytjendur og hún er sjálf innflytjandi, svo hún þekkir vel tilfinninguna að finnast hún vera klofin milli þess að vera heima og að heiman, samtímis.


Tell Me

er sagnaverkefni sem spratt upp úr samstarfi Carolina Caspa og Hélène Onno.

„Við viljum skapa alþjóðlegt frásagna-samfélag sem samanstendur af listafólki, sögumönnum og áheyrendum með ólíkan bakgrunn. Fólk sem hefur áhuga á að miðla og segja sögur sem tengjast þeirra uppruna og löndum, sögur um mikilvægi þess að tilheyra og að eiga heima. Bæði með rituðum og munnlegum frásögnum, samtölum og umræðum viljum við skapa upplifun af því að tilheyra og grunn sem varpar ljósi á mynstur sem tengja okkur saman. Við viljum safna saman fjölbreyttum sögum á fjölmörgum tungumálum og komast að því hvaða sögur það eru sem skapa íslenskt samfélag samtímans.“ GERÐUBERG

KALLAR EFTIR SKAPANDI EINSTAKLINGUM

Hélène Onno, Carolina Caspa, Martyna Karolina Daniel og Svanhildur Halla Haraldsdóttir

37


RAFBÓKASAFNIÐ HLUSTIÐ Í STRÆTÓ Raf- og hljóðbækur

Skráðu þig inn með bókasafnskortinu þínu Leiðbeiningar á borgarbokasafnid.is/raf

rafbokasafnid.is


PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA Þjónustan er ætluð öldruðum og öðrum sem vegna veikinda eða annarra ástæðna eiga ekki heimangengt.

BÓKIN

HEIM HEIMSENDING BORGARBÓKASAFNSINS

Við aðstoðum við að finna efni sem fellur vel að áhuga og þörfum hvers og eins. Hægt er að fá ýmislegt sent heim; bækur, tímarit, hljóðbækur og mynd- og hljómdiska.

Bókasafnskort eru ókeypis fyrir öryrkja og þá sem eru orðnir 67 ára.

HVERNIG FÆ ÉG BÓKINA HEIM?

Sendingar eru á átta vikna fresti.

Sími: 411 6100 borgarbokasafn@borgarbokasafn.is

Með því að hringja í okkur eða senda tölvupóst.


ofan

A Public Living Room

Nýtt tilraunaverkefni á Borgarbókasafninu Stofan er tímabundið samfélagsrými sem sett er upp mánaðarlega af ólíkum notendum með mismunandi hugmyndir um hvernig þá langar að nota bókasafnið. Hver og einn skapar nýjan og óvæntan stað inni á safninu og hefur einhverskonar samtal í rýminu. Gestum og gangandi er boðið að tilla sér niður, hafa það notalegt og hver veit nema að úr verði gefandi samtal við næstu manneskju í rýminu.

Fylgist með þróun verkefnisins á borgarbokasafn.is/stofan 40


Þátttakendur á hugarflugsfundi Stofunnar um eðli samfélagsrýma og birtingarmyndir þeirra.

Markmið Stofunnar er að skapa margar mismunandi útgáfur af samfélagsrýmum á bókasafninu. Skaparar Stofunnar eru ekki einungis í samtali við notendur með því að stilla upp í rýminu, heldur einnig sín á milli, um hvernig almenningsrými við viljum hafa í okkar samfélagi.

Fyrsta Stofan var opnuð af Janosch Bela Kratz og umræðuefnið var erlend samfélög á Íslandi, menningararfleifð þeirra og mikilvægi.

„Mig langar að miðla tilfinningunni sem þú færð sem barn þegar þú býrð til hús úr teppum. Þetta er hlýlegur staður og þú getur skapað hann alveg eftir eigin höfði. Þú ert ekki útilokaður frá umhverfinu og rýmið er opið þeim sem vilja koma inn.“ Janosch Bela Kratz

Þátttakendur í stofu Janosch

41 41


„Margir eru utan félagshópa í sínum skóla. Þessir krakkar sækja oft í ýmiss konar counterculture (gagnmenning), til dæmis í anime sem eru japanskar teiknimyndir.“

Atla Hrafney er umsjónarmaður Anime-klúbbsins, sem hugsaður er fyrir unglinga, þangað sem þeir geta komið og verið þeir sjálfir. Hún segir að þangað sæki gjarnan krakkar sem kannski eru utanveltu í öðru félagslegu samhengi. Stundum er skipulögð dagskrá eins og búningagerð eða teiknistund, en oft er líka japönsk teiknimynd sett í gang og krakkarnir horfa og spjalla saman. 42

Hvað er gagnmenning (counterculture)? „Það er í rauninni partur af menningunni, sem smærri hópur fólks aðhyllist. Þar ríkja aðrar reglur og menningargildi. Hippar eru gott dæmi um gagnmenningu. Þeir hafa ákveðinn fatastíl, pólitískt viðhorf, tónlistarstefnu, það er heill menningarkimi í kringum þá. Í anime eru búningar, sérhæfð tónlist, sjónvarpsefni og kvikmyndir. Krakkarnir hér nota ákveðið orðfæri sem fólk sem ekki tilheyrir hópnum skilur kannski ekki. Þegar við ráðum inn starfsfólk, þá þurfum við að hafa í huga að umsækjendur þekki til anime.“


Geturðu nefnt dæmi um orðfæri (lingó)? „Uwu - það er ákveðið tjákn (emoji), maður segir þetta til að pirra annað fólk…“ Er hluti af menningunni að pirra aðra? „Já, það er svona félagsmótunin, þau eru að gera létt grín hvert að öðru, til að hafa gaman,“ útskýrir Atla. „Auðvitað fylgjumst við með og reynum að passa að það fari ekki úr böndunum.“ „Sus“ eða „suspect“ er það sem Among Us-aðdáendur nota og bæta við japanska orðið „baka“ sem þýðir hálfviti, og segja sussy-baka sem þýðir grunsamlegur hálfviti… „Þegar maður er ekki inní þessu þá finnst manni þetta skrýtið. Þess vegna er mikilvægt að vera með hóp til að hafa rými til að fá útrás fyrir þetta. Við spjöllum líka við krakkana um hvaða hluti af anime-menningunni er viðeigandi á hverjum stað. Sumt á ekki erindi á almannafæri.“

Koma krakkarnir einir? Sjáið þið vinatengsl myndast sem haldast út fyrir veggi bókasafnsins? „Sum koma með vin með sér, við höfum séð vináttu myndast, stundum er það bara innan veggja safnsins, en svo höfum við líka dæmi um vináttu sem skapast í klúbbnum. Í hópnum eru krakkar á einhverfurófinu og svo eru margir hinsegin krakkar líka. Þetta er öruggt rými til að spjalla um eigin reynslu og vera þau sjálf, þau eru forvitin hvert um annað, eikynhneigð og hinseginleika.“ Atla segir traust myndast á milli hópsins og starfsmannanna og þau fái oft að heyra frásagnir af því sem krakkarnir eru að ganga í gegnum. „Stundum fáum við að heyra sögur af einelti og vanlíðan á öðrum stöðum, þá reynum við að gefa ráð ef það er ekki of alvarlegt, en við hringjum og látum vita ef það er alvarlegra. Við viljum búa til öruggt rými, einstakt umhverfi, þar sem þessir krakkar geta komið og bara verið þau sjálf.“ 43


Þ Í N EI GI N B Ó KASA FNS R Á ÐGÁ TA 02.10.2021 - 30.04.2022


Hefur þú gaman af borðspilum, tölvuleikjum, Escape Room og almennum áskorunum? Þá er Þín eigin bókasafnsráðgáta eitthvað fyrir þig! Þrír spennandi ratleikir fyrir unga sem aldna. Ég leysti Vísindaráðgátuna með vinum mínum og við ætlum að leysa Hrollvekjuráðgátuna næst, en hún er víst dáldið „scary“... Hrikalega skemmtilegt! Við þurftum að vinna mjög vel saman til að klára gátuna. (Ali, 14 ára) Við fjölskyldan tókumst á við Ævintýragátuna saman. Við leyfðum krökkunum, sem eru 6 og 8 ára, að ráða ferðinni og veittum einnig örlitla aðstoð. Æsispennandi! (Hrönn, 37 ára)

Ég bókaði mig og tvö elstu barnabörnin í Hrollvekjugátuna. Þetta var strembið á köflum – en allt gekk vel. Frábært framtak og mjög lestrarhvetjandi fyrir börn. Einstaklega gaman að ganga um og skoða; taka inn þennan ótrúlega bókaheim.

(Katrín, 62 ára)

borgarbokasafn.is/radgata


Sögubíllinn Æringi var vígður við leikskólann Tjarnarborg þann 22. febrúar 2008 og hefur hann farið á leikskóla, frístundaheimili og verið á ýmsum hátíðum á vegum borgarinnar alla tíð síðan. Æringi er rekinn af Borgarbókasafninu og verkefnastjóri bílsins fyrsta árið var María Pálsdóttir, leikkona. Haustið 2008 tók Ólöf Sverrisdóttir leikkona, við keflinu og hefur sinnt honum ætíð síðan. Teikningar eftir Brian Pilkington prýða sögubílinn Æringja.

46


Sögustund með Sólu Sögubíllinn Æringi stendur glansandi með kórónu fyrir utan leikskólann Grandaborg. Hópur leikskólabarna fylgir strýhærðri konu sem brosandi leiðir þau að bílnum. Þetta er Sóla sögukona. Þau byrja á að skoða myndirnar sem skreyta bílinn. Það eru tröll, álfar, úlfar og ýmis dýr sem við þekkjum úr ævintýrunum. Þegar börnin hafa skoðað nægju sína er komið að því að opna bílinn. Sóla dregur upp ósýnilegan lykil, sem börnin sjá auðvitað. Þau blása á lykilinn, hvert á fætur öðru og hrópa svo öll í kór, eins hátt og þau geta: „Opnastu, Æringi!“ Það þarf auðvitað nokkrar tilraunir, en tekst að lokum. Við börnunum blasir notalegt rými, pullur, barnabækur og persónur barnabókanna, í formi tuskudýra. Krakkarnir týnast inn og velja sér sæti. Það er dimmt í rýminu þegar dyrnar lokast, en Sóla kann ráð við því. Hún fer með galdraþulu og þá kvikna logandi stjörnur í loftinu. Hún býður börnunum að velja sér stjörnu. Þau benda á þá sem þeim líst best á og Sóla segir þeim að þau megi eiga stjörnuna, grípa hana og setja í hjartað, svo skuli þau loka augunum og finna hvernig ljósið lýsir upp kroppinn að innan. Það er fallegt að sjá börnin taka þátt í athöfninni af innlifun. Þá er komið að sögustundinni, en fyrst segir Sóla stuttlega frá sjálfri sér. Börnin vilja ólm segja dálítið frá sér í leiðinni, handahófskenndar sögur af fjölskyldumeðlimum, sem tengjast umræðuefninu á óljósan hátt. Að lokum nær Sóla athyglinni og dregur fram bók um einmana skessu sem á í erfiðleikum með að eignast vini. Allt fer þó vel að lokum. Kát og glöð hverfa börnin út úr sögubílnum Æringja, aftur inn á leikskólann sinn. Sóla ekur af stað á næsta áfangastað, ásamt þeim Míu litlu, Einari Áskeli, Línu langsokk, Múmínsnáðanum, Mömmu Mu og fleiri farþegum í aftursætinu. 47


KOMDU KRÖKKUNUM Á ÓVART! Við tökum vel á móti nemendum og kennurum á öllum skólastigum Fjölbreytt fræðslutilboð og aðstaða í boði allt árið um kring borgarbokasafn.is/ skolaheimsoknir


Við opnun sýningarinnar Þín eigin bókasafnsráðgáta í október 2021 | Ljósmyndari: Leifur Wilberg Orrason


VIÐBURÐIR FYRIR BÖRN OG FJÖLSKYLDUR JANÚAR - MAÍ 2022


Janúar 2022

Skissur verða að bók Sýning | 05.01.22 – 16.02.22 Grófin Langar þig að skyggnast inn í töfrandi heim barnabókarinnar? Blær Guðmundsdóttir, myndhöfundur, sýnir hvernig bók verður til; frá hugmyndum og skissuvinnu til útgáfu. Hún býður börnum í smiðju á sýningartímanum.

Vísinda Villi – Vilhelm Anton Jónsson

Vísinda Villi Fuglafit Lau. 15.01.22 kl. 11:00-12:30 Úlfarsárdalur Lærðu að gera fuglafit upp á eigin spýtur. Kennd verða fit á borð við fallhlífina, himnastigann og rófuþjófinn. Bönd í boði á staðnum. 52

Mið. 19.01.22 kl. 17:30-19:00 Úlfarsárdalur Flestir krakkar á Íslandi eru farin að þekkja Vísinda Villa en ef ekki þá er tækifærið til að kynnast honum og uppátækjum hans núna! Um árabil hefur Vísinda Villi leitt krakka í gegnum ævintýraheim vísindanna eins og honum einum er lagið.


Janúar 2022

Bangsasögustund Lau. 22.01.22 kl. 12:00-13:00 Spöngin Lau. 22.01.22 kl. 13:00-14:00 Spöngin Sögustund með bangsa fyrir alla fjölskylduna. Við lesum saman hugljúfa sögu um bangsa sem elskar að knúsa.

Kakó Lingua | Tónlistarsmiðja Fjölskyldustund | 4-9 ára Sun. 30.01.22 kl. 11:00-13:00

Hjartað mitt | Sögustund og föndur Sun. 23.01.22 kl. 14:00 – 15:00

Árbær

Sögustund, spjall og föndur fyrir litlu hjörtun okkar. Við lesum saman Hjartað mitt, ljóðabók um tilfinningar, eftir Jo Witek og Christine Roussey í fallegri þýðingu Hallgríms Helgasonar og föndrum eitthvað hjartanlegt.

Listin að brjóta origami Lau. 29.01.22 kl. 12:00 – 14:00

Sólheimar

Listakonan Sæunn Þorsteinsdóttir sýnir ungum gestum japanska pappírsgerðarlist sem kallast origami. Við sköpum saman falleg listaverk úr pappír eftir kúnstarinnar reglum. Allt efni á staðnum.

Kringlan

Líkt og töfragripir bjóða sérútbúin hljóðfæri okkur að uppgötva hvernig tónlistin tengir okkur saman án orða og fær okkur til að hlusta, hlæja og deila gleðinni yfir spunanum. Kennarinn og tónlistarmaðurinn Adam Świtała leiðir okkur í gegnum undraheim hljóðsins. Stundin er hugsuð fyrir börn með virkri þátttöku fullorðinna. Engrar tónlistarreynslu krafist.

Lærum að tálga Sun. 30.01.22 kl. 13:30-15:30 Grófin Viltu ná réttu tökunum á að tálga? Ekkert er auðveldara þegar Bjarni Þór Kristjánsson sér um kennsluna. Yngri en 9 ára komi í fylgd með fullorðnum. Allt efni og áhöld á staðnum.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

53


Febrúar 2022

Minecraft-smiðja | 8-12 ára

Kæri vinur | Sendibréfasmiðja

Lau. 05.02.22 kl. 12:00-14:00 Spöngin

Lau. 12.02.22 kl. 13:30-15:00 Kringlan

Ertu Minecraft-snillingur eða ertu rétt að byrja? Minecraft tölvuleikurinn hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda í gegnum árin, unnið til verðlauna og jafnvel verið talinn meðal bestu tölvuleikja allra tíma! Sérfræðingur frá Skema í HR mætir á staðinn, kennir okkur öll bestu trixin í gerð Minecraft-heima og leiðir okkur inn í spennandi sköpun í tölvunni.

54

Það er gaman að setjast niður í rólegheitum, skrifa og myndskreyta bréf til góðs vinar eða jafnvel ömmu og afa. Sendibréf eru svo skemmtilega rómantísk og um leið svolítið gamaldags! Það er eitthvað kitlandi við að setja bréf í umslag, líma frímerkið á og stinga bréfinu í póstkassann. Bíða svo spennt eftir viðbrögðum viðtakandans sem oftar en ekki verður ótrúlega glaður að fá sendibréf í sniglapósti.


Febrúar 2022

Minecraft-smiðja | 8-12 ára Vetrarfrí Fim. 17.02.22 kl. 13:00 – 15:00

Árbær

Ertu Minecraft-snillingur eða ertu rétt að byrja? Sérfræðingur frá Skema í HR mætir á staðinn, kennir okkur öll bestu trixin í gerð Minecraft-heima og leiðir okkur inn í spennandi sköpun í tölvunni.

Söngsteypan | 10-13 ára Söngur og sköpun í Vetrarfríinu Fim. 17.02.22 kl. 09:00-12:00 Úlfarsárdalur Fös. 18.02.22 kl. 09:00-12:00 Úlfarsárdalur Söngnámskeið fyrir skapandi krakka þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta tjáningu, framkomu og sjálfsöryggi í gegnum skemmtilega leiki. Söng- og sköpunargleðin verður í fyrirrúmi og í lokin tökum við upp sameiginlegt demó í hljóðverinu.

Söngsteypan | Leiðin að lagi | 14-16 ára Söngur og sköpun í Vetrarfríinu Fim. 17.02.22 kl. 13:00-17:00 Úlfarsárdalur Fös. 18.02.22 kl. 13:00-17:00 Úlfarsárdalur Fyrir unglinga sem vilja skapa og semja, fræðast um lagasmíðar og hugmyndavinnu, kynnast öðrum sem hafa áhuga á tónlist. Í lokin verður tekið upp demó í hljóðverinu.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

55


Febrúar 2022

Bingó og brandarar Vetrarfrí Fim. 17.02.22 kl. 11:00-12:00 Kringlan Komdu og láttu reyna á heppnina í bingó-brandarafjöri á safninu. Spilaðar verða nokkrar umferðir og mjög fyndnir brandarar munu heyrast þess á milli.

Vélmennaklúbbur | 14-16 ára Vetrarfrí Fim. 17.02.22 kl. 15:30–17:30 Fös. 18.02.22 kl. 15:30–17:30 Lau. 19.02.22 kl. 14:00–16:00

Gerðuberg Gerðuberg Gerðuberg

Lærum hvernig á að smíða einföld vélmenni og undirstöður í forritun og rafmagnsfræði. Þátttakendur fá að taka fjarstýrðu vélmennin með sér heim sem þeir hafa sjálfir smíðað og forritað.

Siljan - Stiklugerð | 10-16 ára Vetrarfrí Fim. 17.02.22 kl. 13:00-16:00 Grófin Lau. 19.02.22 kl. 13:00-16:00 Grófin Anna Sæunn Ólafsdóttir, kvikmyndagerðarkona, kennir okkur að búa til stiklu, frá handriti til fullgerðs myndbands. Litlir hópar geta skráð sig til leiks og að kennslu lokinni tekið þátt í Siljunni, árlegri myndbandasamkeppni barna og unglinga.

56

Barmmerkjasmiðja Vetrarfrí Fös. 18.02.22 kl. 11:00-13:00 Spöngin Hannaðu þín eigin barmmerki. Barmmerkjavél og allt efni sem til þarf á staðnum.

Harry Potter kviss Vetrarfrí Fös. 18.02.22 kl. 14:00-15:00 Árbær Spurningakeppni fyrir unga fólkið um allt sem viðkemur Harry Potter og félögum. Hvað veistu um heim galdranna, kynjaskepnurnar og hin ýmsu undur sem finna má í Hogwarts, Hreysinu, á Runnaflöt 4 og víðar?

Bolasmiðja Vetrarfrí Lau. 19.02.22 kl. 12:00-14:00 Úlfarsárdalur Langar þig að eiga bol með mynd af eftirlætis hljómsveitinni þinni? Með þinni eigin list? Með mynd af þér og vinunum? Með texta sem skiptir þig máli? Komdu með bol, lærðu á vínylskerann okkar og skapaðu þinn nýja uppáhalds bol.


Febrúar 2022

Skissur verða að bók Sýning | 23.02.22 – 06.04.22 Grófin Langar þig að skyggnast inn í töfrandi heim barnabókarinnar? Auður Ýr, myndhöfundur, sýnir hvernig bók verður til; frá hugmyndum og skissuvinnu til útgáfu.

Kakó Lingua | Sögur frá Norður Ameríku Sun. 27.02.22 kl. 13:30-15:00 Kringlan Dr. Cecilia Collins, mannabeinafræðingur, segir börnunum sögur af brögðóttum dýrum og frumbyggjum Norður - Ameríku. Við búum líka til okkar eigin söguteninga og pappírsfígúrur og lærum ný orð í leiðinni.

Bolla! Bolla! Bolla! Sun. 20.02.22 kl. 13:00-15:00 Árbær Það er skemmtileg hefð að föndra bolluvendi úr litríkum pappírsræmum límdum á prik. Við verðum á umhverfisvænum nótum og notum trjágreinar og afgangspappír í vendina. Eigum saman góða fjölskyldustund og höldum í hefðina.

Langar þig að búa til bolluvönd? Sun. 27.02.22 kl. 13:30-15:30 Grófin Ertu klár í slaginn fyrir bolludaginn? Komdu og lærðu að búa til litríka bolluvendi með Sigurrós Sóleyju Jónsdóttur, bókaverði og föndurmeistara.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

57


Mars 2022

Öskudagstónleikar Þri. 01.03.22 kl. 17:00-18:00 Árbær Nemendur úr Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts spila skemmtileg lög fyrir gesti og gangandi. Aldrei að vita nema hljóðfæraleikararnir verði í öskudagsbúningum í tilefni dagsins.

Sigrún Harðardóttir

Bambaló tónlistarstund Fim. 10.03.22 kl. 10:00-11:00 Úlfarsárdalur

Vinabandagerð Lau. 05.03.22 kl. 11:00-12:30 Úlfarsárdalur Kenndar verða ýmsar aðferðir við að búa til vinabönd; hnýtingar, fléttur og snúningar. Eina sem þarf að hafa meðferðis er sköpunargleðin og góða skapið!

58

Yndisleg tónlistarstund fyrir þau yngstu í umsjón Sigrúnar Harðardóttur frá Suzukiskóla Sigrúnar. Í Bambaló lærum við skemmtileg lög, leiki og æfingar sem efla málþroska, hreyfigetu, taktskyn og tóneyra. Bambaló er ekki síður frábær vettvangur til að kynnast öðrum foreldrum ungra barna.


Mars 2022

LittleBits smiðja | 8-12 ára

Kubbaföndur

Lau. 12.03.22 kl. 13:30-15:00 Kringlan

Lau. 26.03.22 kl. 12:00-14:00 Sólheimar

Rafeindasmiðja þar sem við fiktum með LittleBits og lærum um virkni rafleiðsla á skemmtilegan hátt. Uppgötvum hvernig hver kubbur í rafrásinni hefur áhrif á ljós, hljóð og hreyfingu.

Búum til ný leikföng úr notuðu efni. Leikum okkur með trékubba og notum þá til að búa til það sem okkur langar. Bætum svo ýmsum efnisbútum við til að fullkomna verkið. Hanna Jónsdóttir, listgreinakennari og hönnuður, aðstoðar.

Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir og Birte Harksen

Leikur að bókum | Lifandi sögustund

Dótatombóla

Sun. 20.03.22 kl. 13:00-14:00 Árbær

Sun. 27.03.22 kl. 13:30-15:30 Grófin

Birte Harksen og Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir hafa þróað leið til að auka innlifun og upplifun leikskólabarna við bóklestur og gera lesturinn líflegan. Söguþráður og persónur verða innblástur að rammaleik þar sem allir taka þátt. Hentar börnum frá 3 ára aldri.

Langar þig að taka þátt í dótatombólu bókasafnsins? Börn eru hvött til að skrá sig til leiks á heimasíðu safnsins og mæta með heillegt dót. Leikfanga glöðum gestum er boðið að kaupa miða á tombólunni. Allur ágóði rennur til Rauða krossins.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

59


Apríl 2022

Listrænt ákall til náttúrunnar Sýning | 02.04.22 – 20.04.22 Spöngin Sýningin er liður í Barnamenningarhátíð í Reykjavík og er afrakstur samvinnu grunnskólanemenda, kennara og listafólks, sem tengja saman listir og náttúruvísindi.

Auður Viðarsdóttir

Rafmögnuð tónlistarsmiðja 10-13 ára

Páskaperl Lau. 02.04.22 kl. 11:00-12:30 Úlfarsárdalur Velkomin í páskaperl fyrir alla fjölskylduna þar sem hægt verður að útbúa segla á ísskápinn, skraut til að hengja út í glugga og frístandandi páskaskraut.

60

Lau. 02.04.22 kl. 12:00-13:30 Spöngin Veistu að það þarf ekki að kunna á hljóðfæri til að semja tónlist? Þú getur gert það á spjaldtölvu! Tónlistarkonan og pródúsentinn Auður Viðarsdóttir (rauður) kynnir grunnatriði raftónlistar og tónsmíða í forritinu Soundtrap. Forritið er auðvelt í notkun og hentar vel til að búa til grípandi tóna. Þátttakendur þurfa ekki hafa neina reynslu af forritinu eða formlega tónlistarmenntun.


Apríl 2022

Barnamenningarhátíð í Reykjavík Dagana 05.04.22 - 10.04.22

Alice Demurtas (Momo) og Lauren Charnow (Silly Suzy)

Kakó Lingua | Kjánakjúllar

Barnamenningarhátíð í Reykjavík er ein af megin þátttökuhátíðum borgarinnar og rúmar allar listgreinar sem börn og fullorðnir geta notið. Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna. Fjölbreyttir viðburðir fara fram um alla borgina, í leik- og grunnskólum, lista- og menningarstofnunum, Ráðhúsi Reykjavíkur og Hörpu. Nánari upplýsingar og dagskrá: borgarbokasafn.is og barnamenningarhatid.is.

Sun. 03.04.22 kl. 13:30-15:00 Kringlan Það kemur upp allskyns orðarugl hjá bestu vinkonunum Silly Suzy og Momo sem tala sitthvort tungumálið. Þær láta það þó ekki stoppa sig í því að sýna trúðslistir sínar, fara í leiki og syngja með börnum á öllum aldri, ásamt vini sínum, frábæra kjúklingnum honum Júlíusi.

Páskabókabingó Fim. 07.04.22 kl. 17:00-19:00 Úlfarsárdalur Tökum forskot á páskasæluna og njótum þess að skella okkur saman í páskabókabingó. Skemmtilegir vinningar í boði, meðal annars bækur og páskaegg.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

61


Apríl 2022

Stefnumót á strigaskóm Hjólatúr fyrir alla fjölskylduna Lau. 09.04.22 kl. 10:00-12:00 Sólheimar Komið með í hjólatúr um Voga- og Heimahverfið og hlustið á Sigrúnu Jónu lesa upp úr nokkrum barnabókum á vel völdum stöðum, í tilefni Barnamenningarhátíðar. Fáum okkur svo heitt súkkulaði á kaffihúsi í lok ferðar. Hjólastjórar: Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Sigrún Jóna Kristjánsdóttir, barnabókavörður í Sólheimum.

Páskabingó Mán. 11.04.22 kl. 13:00-14:00 Árbær Skemmtileg fjölskyldustund með súkkulaðibragði. Komdu í bingó og freistaðu gæfunnar. Vinningarnir verða páskalegir og öll fá eitthvað smávegis.

Skissur verða að bók Sýning | 13.04.22 – 25.05.22 Grófin Langar þig að skyggnast inn í töfrandi heim barnabókarinnar? Hlíf Una Bárudóttir, myndhöfundur, sýnir hvernig bók verður til; frá hugmyndum og skissuvinnu til útgáfu. Hún býður börnum í smiðju á sýningartímanum.

62


Apríl 2022

SÖGUR | Bókaverðlaun barnanna

Bókaföndur

Fim. 21.04.22 kl. 14:00-15:00 Grófin Á sumardaginn fyrsta tilkynnum við hvaða 10 bækur börnum þykja bestar í samstarfsverkefninu SÖGUR. Öll 6-12 ára börn geta tekið þátt og valið sínar uppáhaldsbækur á sínu skóla- eða almenningsbókasafni og á borgarbokasafn.is. Verðlaunahátíðin verður í beinni útsendingu á RÚV í vor. Fylgist með á krakkaruv.is/sogur.

Sun. 24.04.22 kl. 13:30-15:30 Grófin Sigurrós Sóley Jónsdóttir, bókavörður og föndurmeistari, kennir okkur að búa til allskonar fallegt skraut úr gömlum bókum.

Barmmerkjagerð Lau. 30.04.22 kl. 10:00-15:00 Sólheimar Láttu þér ekki leiðast á laugardegi! Komdu heldur á bókasafnið og föndraðu þitt eigið barmmerki. Barmmerkjavél og allt efni á staðnum.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

63


Maí 2022

Bjarni Þór Kristjánsson

Listin að tálga | 6-12 ára Lau. 07.05.22 kl. 13:00-14:00 Spöngin Lau. 07.05.22 kl. 14:00-15:00 Spöngin Börn fá innsýn í listina að tálga í tré undir leiðsögn Bjarna Þórs Kristjánssonar. Yngri en 9 ára komi í fylgd með fullorðnum.

Streymismiðja | 13-16 ára Sun. 08.05.22 kl. 13:00-14:30 Árbær Langar þig að læra að búa til myndbönd, deila efni með öðrum og að streyma? Í smiðjunni lærum við ýmis brögð og brellur við myndbandagerð. Kennari frá Skema í Háskóla Reykjavíkur leiðbeinir hvernig á að streyma spjalli á Facebook, horfa á aðra spila tölvuleiki í beinni útsendingu á twitch.tv og nýta streymisforritið OBS til að klippa og birta myndbönd.

64

Kakó Lingua | Japanskt pappírsleikhús Sun. 08.05.22 kl. 13:30 - 15:00 Kringlan Dorota Jańczak og Małgorzata Porażewska segja söguna W lustrzanym odbiciu (Í speglasalnum) og sýna kamishibai sem er japanskt pappírsleikhús. Á eftir aðstoða þær börnin við að myndskreyta sína eigin túlkun á ævintýrinu. Viðburðurinn fer fram á pólsku.


Maí 2022

Flugdrekagerð | 6-12 ára Lau. 14.05.22 kl. 13:30-15:00 Kringlan Fögnum sumrinu með litríkri flugdrekagerð. Leyfum hugmyndum að fara á flug með fjölbreyttum og skemmtilegum flugdrekum. Eftir smiðjuna hvetjum við börn og foreldra að fara út í garð með drekana og fljúga þeim ef veður leyfir.

Leikjasmiðja | Gömlu góðu útileikirnir Lau. 21.05.22 kl. 11:00-13:00 Úlfarsárdalur Lengi hefur verið hefð fyrir því að íslenskir krakkar hangi úti í leikjum langt fram eftir fallegum sumarkvöldum. Farið verður yfir leikreglur klassískra leikja. Ein króna, fallin spýta, tíu skref blindra, hlaupið í skarðið og hundabein eru vel þekktir auk þess sem allar leikjatillögur eru vel þegnar.

Fögnum sumri með Dr. Bæk Lau. 28.05.22 kl. 12:00-14:00 Sólheimar Er kominn tími á ástandsskoðun hjá Dr. Bæk? Hann mætir með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Doktorinn skoðar reiðhjólin og metur heilsu þeirra.

Barmmerkjagerð Sun. 29.05.22 kl. 13:30-15:30 Grófin Lærum að búa til flott barmmerki og lyklakippur í barmmerkjavélinni okkar. Allt efni á staðnum.

Nánari upplýsingar og skráning á borgarbokasafn.is

65


PÓLSKA

ska isiń a-L ick ow sp ry

n Icba Lyn na n A

A SK

ARA B rún Sig Antonsdóttir

ÍSL

a Ingvarsdóttir r Ing uðu gA ir o ótt nsd tjá ris aK

KA

66

K Ka ro lin a

A ÍSK

Í

FILI PP

Jó n

Sig rún

KA S EN

SPÆ NS

Ous sam a Ma br ou k


Sögustá söfununnudmir 5. febrúar

spænska pólska arabíska filippíska

kl.14 – 15 Spöngin Kringlan Grófin Gerðuberg

10. febrúar kl.19 – 20 íslenska

5. mars arabíska spænska filippíska pólska

10. mars íslenska

Sólheimar kl.14 – 15 Spöngin Kringlan Grófin Gerðuberg

2. apríl

kl.14 – 15 pólska Spöngin Kringlan filippíska Grófin spænska arabíska Gerðuberg

7. maí filippíska arabíska pólska spænska

12. maí íslenska

kl.14 – 15 Spöngin Kringlan Grófin Gerðuberg kl.19 – 20 Sólheimar

kl.19 – 20 Sólheimar

67 67


Krílastundir í Grófinni

alla fimmtudaga kl. 10.30 - 12.00 , , , Við bjoðum, smafolkið hjartanlega , , , velkomið i krilastundir i Grofinni. 68

Notaleg samvera, spjall, leikur og söngur.


VISSIR ÞÚ

AÐ Á BORGARBOKASAFN.IS ERU

TILLÖGUR AÐ

FJÖLBREYTTUM BÓKUM

SEM VÍKKA SJÓNARHORN BARNA

Á LÍFIÐ OG TILVERUNA?

69


Minnispunktar


Minnispunktar


Minnispunktar

Prentun: Prentmet/Oddi | Pappír: UPM fine | Leturgerð: Cooper Hewitt Fjöldi eintaka: 9000 stk | Hönnun og umbrot: Droplaug Benediktsdóttir


Notes


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Borgarbókasafnið | Dagskrá jan-maí 2022 by Borgarbókasafn Reykjavíkur - Issuu