SKOLEPROJEKTET SKÓLAVERKEFNIÐ
Gjörið svo vel Fyrst viljum segja „gjörið svo vel” en við gætum líka verið aðeins djarfari og sagt:
„ER ÞETTA EKKI BORÐLEGGJANDI?” Það hlýtur að vera góð byrjun þegar skóli, fyrirtæki og barnasjúkraþjálfari ákveða að sameina krafta sína með eitt markmið í huga: að efla hreyfifærni barna. Þetta er frumkvæðisverkefni sem auðveldar börnum að þroska hreyfifærnina og það hefur jafnframt jákvæð áhrif á kennsluumhverfið vegna þess að börnin geta setið kyrr lengur og einbeitt sér að viðfangsefninu. Minna er um truflanir í kennslustofunni og þessi tiltölulega litla breyting mun því skipta sköpum fyrir starf kennarans.
DÓMÍNÓ-ÁHRIF Í BESTA SKILNINGI ÞESS ORÐS: UMBÆTUR Á HREYFINGU, NÁMI OG VINNUUMHVERFI SEM KOMA ÖLLUM TIL GÓÐA.
Velkomin Við kynnum „Skolen Ved Sundet” skólaverkefnið. Verkefni sem fyrirtækið bObles og barnasjúkraþjálfarinn Louise Hærvig hafa náð svo góðum árangri með, að okkur er bæði ljúft og skylt að deila niðurstöðunum með ykkur. Okkar helsta ósk var að Skólaverkefnið hefði í för með sér jákvæðar breytingar fyrir barnið en það byggist líka á þekkingu, reynslu og sannfæringu.
Við erum sannfærð um að börn með sterka líkamsvitund hafi meira svigrúm þegar þau hefja skólagöngu. Þau eiga því auðveldara með að mynda félagsleg tengsl, afla þekkingar og læra, og standa því almennt betur að vígi þegar þau byrja í skóla. Ýmsar rannsóknir og bækur um hreyfiþroska barna styðja þessa skoðun okkar. Það sem við sáum strax með berum augum og fundum á okkur hefur nú verið staðfest með þeirri staðreynd að börn sem hafa trú á sinni eigin líkamlegu færni geta hlakkað til skólagöngunnar:
“Tilbúin, viðbúin, í skólann!”
Svona fórum við að Við þróuðum skólaverkefni og tilgangur þess var eftirfarandi: Að rannsaka hvort skólabörn á aldrinum 5-7 ára verði fyrir jákvæðum áhrifum af 26 vikna tilraun sem felst í því að í stað venjulegra stóla í skólastofunni er notast við bObles-orminn (hallanlegt veltihúsgagn sem má hækka með því að bæta við minna veltihúsgagni). Hugmyndin var sú að auka líkamsvitund barnanna, kjarnavöðvastyrk og setjafnvægi. Við könnuðum einnig viðbrögð kennara við þessari breytingu á kennslustofunni.
Staðreyndir:
Verkefnið beindist að börnum í tveimur leikskólabekkjum og var hreyfigeta allra barnanna prófuð áður en verkefnið hófst. Annar bekkjanna var prófunarbekkur og hinn viðmiðunarbekkur. Eftir 26 vikur voru börnin prófuð aftur. 54 börn tóku þátt í Skólaverkefninu. Prófunin sem notuð var í Skólaverkefninu er hin svokallaða Movement Assessment Battery for Children (MABC-2), en með henni er hægt að afla hlutlægra og megindlegra gagna um hreyfigetu barna. Hún samanstendur af 8 undirprófunum á fínhreyfingum, færni í að leika sér með bolta og hreyfijafnvægi.
bObles-ormurinn í stað stóla
Niðurstaða Prófunarbekkurinn bætti fínhreyfingar sínar umtalsvert í: + 2 fínhreyfingaverkefnum + 1 boltafærniverkefni + 1 jafnvægisverkefni Svör kennaranna á matsblaðinu eru samhljóða þeirri niðurstöðu vegna þess að:
Kennararnir upplifðu í
„mjög miklum mæli“: + að húsgagnið hvetur börnin til að sitja í fleiri stellingum.
Kennararnir upplifðu í „miklum mæli“: + að börnin gátu einbeitt sér að viðfangsefnum + að börnin gátu setið kyrr lengur + að minni óróleiki var í kennslustofunni Þeir hafa orðið meðvitaðir um að: + gera hreyfingu að hluta kennsluumhverfisins + einbeitingarhæfni barnanna eykst þegar þau sitja á hreyfanlegum húsgögnum eins og bObles-orminum.
Ástæðan fyrir þessum jákvæðu breytingum er væntanlega aukin líkamsvitund, kjarnavöðvastyrkur og setjafnvægi barnanna sem setið höfðu á bOblesorminum - á ýmsa vegu. Okkur langar til að segja „er þetta ekki borðleggjandi?” þegar við sjáum þessar niðurstöður. Einfaldlega með því að setja bObles-orminn í staðinn fyrir venjulegu stólana hefur verkefnið haft jákvæð áhrif á börnin, kennarana og námsumhverfið á einungis 26 vikum. FRAMTAKSVERKEFNIÐ LAGÐI GRUNN AÐ BÆTTRI FÉLAGSLEGRI TENGSLAMYNDUN OG NÁMSFÆRNI SEM ER EINMITT ÞAÐ SEM GOTT SKÓLALÍF SNÝST UM.
Af stað Með því að velja þessa leið hafið þið tekið ákvörðun sem gerir gæfumuninn fyrir barnið, kennarana og vinnuumhverfið. Húsgögnin okkar skýra sig nokkurn veginn sjálf en þó skal hafa eftirfarandi atriði í huga:
o HREYFING OG ÁNÆGJA Í SKÓLANUM
bObles-ormurinn þarf að vera „vinur” sem barnið þekkir vel. Takið fyrstu vikuna í að kynna ykkur alla eiginleika ormsins.
o EKKI LENGUR SKYLDA AÐ „SITJA KYRR”
Megintilgangur verkefnisins er að börnin fái að hreyfa sig á meðan þau sitja svo að þau fái þá líkamlegu örvun sem þau þurfa án þess að trufla aðra í bekknum.
o SITJIÐ SJÁLF Á BOBLES-ORMINUM
Sem kennari hefur þú gott af því að sitja á bObles-orminum. Þá veistu hvernig börnunum líður og finnur sennilega líka að líkaminn þjálfast við þessa hreyfingu á meðan þú situr.
o EINN ORMUR - MARGVÍSLEG NOTKUN
Í kennslustofum með litlum skólaborðum er hægt að hafa bOblesorminn bæði lóðréttan og láréttan. Ormurinn er hreyfanlegur börnin geta auðveldlega borið hann yfir í annað herbergi ef með þarf.
o VOTTUR AF SJÓVEIKI
Fyrsta vikan einkennist af bylgjukenndri hreyfingu í kennslustofunni og það getur haft áhrif á sjónræna skynjun og jafnvægisskynið. Það tekur smá tíma að venjast því en það líður hjá.
o FYLGIST VEL MEÐ
Sum börn eiga erfitt með að sitja á orminum og þurfa smá tíma til að læra á hann. Það er í lagi að detta af orminum til að byrja með en ef barninu finnst áfram erfitt eða óþægilegt að sitja á orminum kann það að vera merki um óstöðuga hreyfifærni og slíkt þarf að taka alvarlega.
o ORMA-ÞVOTTUR
Það kemur að því að þrífa þarf orminn. Til þess þarf klút, vatn og smávegis af mildri sápu. Biðjið allan bekkinn um að hjálpa til - þá finnst þeim þau eiga orminn og bera ábyrgð á honum. Og það besta er að þetta örvar hreyfifærni barnanna - allt sem þau gera líkamlega eykur hreyfiþroskann.
Samstarfsaðilar: Barnasjúkraliði “Það hefur verið sérlega ánægjulegt að vinna að verkefni sem tekur tillit til hreyfiþarfa barna, sérstaklega í kennslustofunni - því það er nokkuð sem ég hef mikla trú á! Hinn síkviki bObles-ormur er einföld og hagkvæm lausn sem ég vona innilega að fleiri börn og kennarar fái tækifæri til að prófa. Þannig væri lagður grunnur að bættu kennsluumhverfi.” - Louise Hærvig
Skolen Ved Sundet (skólinn) “Það mikilvægasta að vita um bObles-orminn er að hann tekur tillit til allra barna. Það er ekki stöðugt verið að segja þeim að sitja kyrr. Við vitum að hreyfiþörf er börnum eðlislæg og að börn þurfa örvun til þess að læra. Með því að sitja á orminum fá börnin þessa örvun sjálfkrafa.” - Annette Vistesten aðstoðarskólastjóri
bObles
“Það besta við þetta verkefni er að börnin fá að hreyfa sig og öðlast vitund um hvað líkamar þeirra þurfa og geta. Ég er þeirrar skoðunar að börn með þroskaða líkamsvitund læri betur, séu félagslega færari og sjálfsöruggari.” - Bolette Blædel, stofnandi fyrirtækisins
Stærð ormsins með litlum fiski ofan á:
Stærð ormsins :
h=40sm
Þ=30sm
h=52sm
Þ=30sm
Frekari upplýsingar um skólaverkefni veitir: bObles
Nyrnberggade 21, 1. 2300 Copenhagen S E-mail: bobles@bobles.dk Tel: + 4533151040 www.bobles.com