Bíó Paradís og Goethe Institut í Danmörku standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í níunda sinn dagana 2. – 11. febrúar 2018 í samstarfi við Þýska Sendiráðið á Íslandi. Þessi sannkallaða kvikmyndaveisla hefst með In the Fade í leikstjórn Fatih Akin með hinni þekktu leikkonu Diane Kruger (Inglourious Bastards, Brúin, Troy) í aðalhlutverki en hún vann verðlaun sem besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni Cannes 2017. Myndin vann auk þess Golden Globe verðlaunin í flokki erlendra kvikmynda nýverið.
Samtals verða sýndar sex nýjar og nýlegar kvikmyndir -brot af því besta sem þýsk kvikmyndagerð hefur upp á að bjóða en kvikmyndadagarnir hafa svo sannarlega fest sig í sessi sem einn helsti menningarviðburðurinn í Reykjavík.
Myndirnar eru á þýsku með enskum texta. Sjá dagskrá og sýningartíma hér að neðan. Smelltu á mynd til þess að fá upplýsingar.