Skip to main content

Bíó Paradís – Dagskrá haust 2026 / vor 2027

Page 1

26 27 Heimili kvikmyndanna Art House Cinema & Café

haust 2026

vor 2027


2

„Eitt svalasta kvikmyndahús heims“ – Variety

„Sannkölluð paradís fyrir kvikmyndaunnendur“ – Time Out

„Eitt af 24 stórbrotnustu kvikmyndahúsum heims“ – Financial Times

Bíó Paradís, staðsett í hjarta Reykjavíkur, er fyrsta og eina list­ ræna kvikmyndahús Íslands. Við sýnum nýjar kvikmyndir alls­ staðar að úr heiminum, klassísk meistaraverk, „költ“ myndir og litróf íslenskra kvikmynda. Við sköpum hlýtt og notalegt umhverfi fyrir kvikmyndaunnendur í þremur sýningarsölum og á huggulega bíóbarnum okkar. Einnig er tilvalið að tylla sér á kokteilbarinn Regnbogann í létta drykki og spjall. Bíó Paradís er sjálfseignarstofnun rekin af fagfélögum kvikmyndafólks á Íslandi. Hverfisgata 54

Sími 412 7711

Nánari dagskrá á

101 Reykjavík

midasala@bioparadis.is

bioparadis.is

/bioparadis

@bioparadis

@bioparadis

D N U T 19 IS – A Ð 17 EG LE . L G K L AG D


2025—2026 Bíó Paradís

haust 2026 > vor 2027

3

Bíó Paradís á erindi við okkur öll Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís

Á tímum þegar umræðan skiptist í andstæðar fylkingar og reiknilíkanið velur hvað ber fyrir augu okkar er mikilvægt að eiga stað þar sem við sjáum eitthvað sem við hefðum ekki sjálf leitað að. Stað þar sem við hittum fólk, skiptumst á skoðunum og gefum okkur tíma til að hlusta. Bíó Paradís er slíkur staður. Hér sitjum við saman í myrkrinu en sjáum ekki endilega sömu myndina. Við hlæjum á ólíkum stöðum, tökum eftir mismunandi hlutum og göngum út með sitt hvað í kollinum. Svo hefjast samræðurnar. Góð kvikmynd getur hreyft við skoðunum okkar, vakið spurningar og gefið okkur eitthvað að rífast um yfir glasi. Það er líka hluti af því að búa saman í samfélagi. Bíó Paradís er gluggi út í heim. Hér kynnumst við hversdagsleika, list og hugmyndum fólks í öðrum menningarheimum, frá ólíkum sjónarhornum og á eigin forsendum þess. Kvikmyndir færa okkur nær fólki sem annars birtist okkur kannski aðeins sem fyrirsögn í fréttum. Á tímum þegar auðvelt er að gera fólk að framandi hópi skiptir máli að sjá andlit þess og heyra sögurnar. Við trúum því að kvikmyndamenning sé ekki munaður fyrir fáa heldur nauðsynlegur hluti af opnu, skapandi og lýðræðislegu samfélagi. Slíkt samfélag þarf lifandi samkomustaði þar sem list og hugmyndir fá að njóta sín og ólíkar raddir heyrast. Það þarf líka rými fyrir forvitni, efasemdir og ágreining. Í sextán ár hefur Bíó Paradís byggt upp slíkan vettvang. Kvikmyndirnar, fræðslan, hátíðirnar og samveran eru orðin hluti af lífi kynslóða bíógesta. Hér er kominn traustur grunnur til að byggja áfram á. Framtíðarsýn okkar er að vera öflugasti vettvangur kvikmyndamenningar og kvikmyndafræðslu á Íslandi og efla sköpunargleði og gagnrýna hugsun barna, ungmenna og samfélagsins alls. Það er framtíðin sem við viljum byggja með ykkur. Mynd eftir mynd. Samtal eftir samtal. Verið hjartanlega velkomin í Bíó Paradís. Bíó Paradís nýtur stuðnings


VELJUM ÍSLENSKT


Bíó Paradís

5

haust 2026 > vor 2027

Paradís á tilboði Fastagestir í Paradís Árskort í Paradís veitir endalausan aðgang að öllum almennum sýningum í Bíó Paradís og korthafi fær 10% afslátt á Bíó­bar. Klippikortið er ótrúlega hagkvæm leið til að kaupa bíómiða og fá afslátt á Bíóbarnum.

Árskort

39.990 kr.

Aðeins 3.333 kró

nur á mánuði!

Klippikort

9.990 kr.

6 mið ar á ótrúle

gu verði!

Gjafakort og gjafamiðar Gjafakortin eru snilldarleið til að splæsa í bíó og með því. Sætt gjafakort kostar 6.500 kr. og gildir fyrir tvo með miðstærð af poppi og gosi. Létt gjafakort kostar 8.500 kr. og gildir fyrir tvo með miðstærð af poppi og bjór eða vínglasi. Og fyrir hátíðarnar má ekki gleyma jólagjafamiðunum vinsælu, sem skreyta pakkann og bjóða í bíó um leið.

Gleðilega hátíð! Til: Frá: ÞETTA KORT ER LÍKA BÍÓMIÐI Í Gildir ekki á íslenskar kvikmyndir og kvikmyndahátíðir

þar sem það er tekið fram

Skráðu þig í bíóklúbb Paradísar og fáðu nýjustu fréttir, boð á frumsýningar, tilboð á bíómiðum og afslátt á Bíóbarnum.

Kynntu þér fjölbreytta möguleika á bioparadis.is


6

8

9

Frumsýningar

11

27


Bíó Paradís

haust 2026 > vor 2027

7

10

15

11

22


8

Frumsýningar

Föðurlandið Fatherland Drama, Saga | Paweł Pawlikowski | 2026 | Pólland, Þýskaland, Ítalía Sandra Hüller, August Diehl, Hanns Zischler 82 mín.

Þýska

Íslenskur texti

Nýjasta mynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Paweł Pawlikowski (Cold War, Ida), með Söndru Hüller og Hanns Zischler í aðalhlutverkum. Árið er 1949 og Nóbelsverðlaunahafinn Thomas Mann snýr aftur til Þýskalands eftir áralanga útlegð með dóttur sinni Eriku. Saman ferðast þau um um stríðshrjáð land, frá Frankfurt í vestri til Weimar í austri.

Hope Vísindaskáldskapur, Ráðgáta, Spenna | Na Hong-jin | Kórea Hwang Jung-min, Zo In-sung, Hoyeon, Alicia Vikander 160 mín.

Kóreska

Enskur texti

Na Hong-jin, leikstjóri hinnar mögnuðu The Wailing, snýr aftur eftir tíu ára hlé með stórfenglegri og gjörsamlega ófyrirsjáanlegri blöndu af hrollvekju, vísindaskáldskap, kolsvörtum húmor og trylltum hasar. Hope keppti um Gullpálmann í aðalkeppni Cannes 2026 og er sannkölluð kvikmyndaveisla sem allir kvikmyndaunnendur vilja ekki láta fram hjá sér fara.


2026

9

Frumsýningar

Fjörður

Fjord

Drama | Cristian Mungiu | 2026 | Rúmenía, Noregur, Frakkland Lisa Loven Kongsli, Renate Reinsve, Sebastian Stan 146 mín.

Norska

Íslenskur texti

Stórkostleg kvikmynd með tveimur eftirsóttustu leikurum samtímans, Renate Reinsve (The Worst Person in the World) og Sebastian Stan (The Apprentice, Captain America). Þegar dóttir rúmensk-norskrar fjölskyldu mætir marin í skólann fer af stað rannsókn sem reynir á fjölskylduna og samfélagið allt. Gull­pálminn í Cannes og Óskarsframlag Rúmeníu!

2026


10

Frumsýningar

Biturleg jól Amarga navidad Drama, Grín | Pedro Almodóvar | 2026 | Spánn Aitana Sánchez-Gijón, Bárbara Lennie, Leonardo Sbaraglia, Rossy de Palma 111 mín.

Spænska

Íslenskur texti

Meistari Pedro Almodóvar teflir hér fram litríkri og fyndinni hugleiðingu um sköpun, krísur og kvikmyndagerðina sjálfa. Myndin fjallar um misheppnaðan kvikmyndaleikstjóra sem fær kvíðakast sem verður til þess að hún pakkar í tösku og flýr til Kanaríeyja þar sem hún hefur vinnu við nýja kvikmynd.


11

Frumsýningar

Ástkær The Beloved Drama | Rodrigo Sorogoyen | 2026 | Frakkland, Spánn Javier Bardem, Raúl Arévalo, Victoria Luengo 135 mín.

Spænska

Íslenskur texti

Óskarsverðlaunahafinn Javier Bardem fer með hlutverk kvikmyndaleikstjóra sem býður dóttur sinni að leika í nýjustu mynd sinni. Á tökustað rifjast upp gömul sár og mörkin á milli listarinnar og einkalífsins verða sífellt óljósari.

Paradís Drama | Maria Sødahl | 2026 | Danmörk, Noregur Danica Ćurčić, Esben Smed, Aziz Çapkurt, Claes Ljungmark 98 mín.

Danska

Íslenskur texti

Dönsk fjölskylda nýtur draumafrísins í sannkallaðri orlofsparadís. Handan hótelsins blasir þó annar veruleiki við, þar sem flóttafólk berst fyrir framtíð sinni. Þegar fjölskyldan keyrir óvart á ókunnan mann umturnast fríið á einni nóttu. Norræna mynd ársins (Dragon verðlaunin 2026).


12

Frumsýningar

Mínotár Minotaur

PRIX DU JURY

Drama, Spenna | Andrey Zvyagintsev | 2026 | Frakkland, Þýskaland, Lettland Dmitriy Mazurov, Iris Lebedeva, Juris Žagars, Varvara Shmykova 135 mín.

Rússneska

Íslenskur texti

Pólitískur spennutryllir eftir leikstjórann Andrey Zvyagintsev. Sagan gerist árið 2022 og fjallar um ríkan forstjóra í Rússlandi sem stendur frammi fyrir því að þurfa að senda starfsmenn fyrirtækisins til þátttöku í stríðsátökunum í Úkraínu, en samtímis hriktir í stoðum einkalífsins. Myndin hlaut dómnefndarverðlaunin á kvikmyndahátíðinni Cannes 2026.

Litið til baka Look Back Drama | Hirokazu Kore-eda | 2026 | Japan Aju Makita, Furi Nanase, Natsuki Deguchi, Rokka Okada 100 mín.

Japanska

Enskur texti

Tvær vinkonur. Önnur sjálfsörugg og metnaðarfull, hin feimin og einangruð. Sameiginleg ástríða þeirra fyrir manga-teiknimyndasögum verður upphafið að óvæntri vináttu. Hirokazu Kore-eda (Shoplifters, Monster) leikstýrir þessari hjartnæmu sögu, byggðri á hinni rómuðu myndasögu Tatsuki Fujimoto.


13

Frumsýningar

Allt fyrir ástina La Bola Negra

BEST DIRECTOR

Drama, Stríð | Javier Ambrossi, Javier Calvo | 2026 | Frakkland, Spánn Guitarricadelafuente, Lorenzo Zurzolo, Teo Lucadamo 160 mín

Spænska

Íslenskur texti

Örlög þriggja manna fléttast saman í djörfu og kynþokkafullu kvikmyndaverki þvert á kynslóðir þar sem mörkin milli ástar, girndar og skammar verða sífellt óljósari. Óskarsframlag Spánar þar sem Penélope Cruz og Glenn Close fara með hlutverk, en myndin hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíðinni Cannes.


Allur pakkinn á 60 sekúndum

Fá tilboð


15

Frumsýningar

Blíðlegt skrímsli Gentle Monster Drama | Marie Kreutzer | 2026 | Austurríki, Þýskaland, Frakkland Léa Seydoux, Laurence Rupp, Catherine Deneuve, Jella Haase 114 mín.

Franska, þýska, enska

Íslenskur texti

Þau eru nýflutt í sveitasæluna. Líf píanistans Lucy (Léa Seydoux) umturnast þegar eiginmaður hennar er handtekinn, grunaður um óhugsandi og hryllilegan glæp. Í kjölfarið neyðist hún til að horfast í augu við sannleikann um manninn sem hún taldi sig þekkja best, endurmeta lífið og ástina upp á nýtt.

Heim Hjem Drama | Marijana Janković | 2026 | Danmörk Dejan Cukic, Nada Sargin, Sergej Bulatovic, Tara Cubrilo 105 mín.

Serbneska

Íslenskur texti

Maja er sex ára og flytur með foreldrum sínum frá Júgóslavíu til Danmerkur, bræður hennar verða eftir með loforð um endurfundi. Í nýju landi reynir fjölskyldan að festa rætur á meðan söknuður, sektarkennd og fórnirnar sem þau færðu fyrir nýtt líf reyna á böndin milli þeirra. Dönsku stórleikararnir Trine Dyrholm og Claes Bang fara með hlutverk.


16

Franska

15.–24.

kvikmyndahátíðin

janúar 2027

Skyndilega All of a Sudden Drama | Ryusuke Hamaguchi | 2026 | Frakkland, Japan, Þýskaland Aurélia Petit, Lazare Gousseau, Marie Bunel, Virginie Efira 197 mín.

Franska, japanska

Íslenskur texti

Nýjasta kvikmynd Ryusuke Hamaguchi, leikstjóra Drive My Car. Hér er á ferðinni ljúf og hugleiðandi saga tveggja kvenna frá Frakklandi og Japan – þar sem mannleg tenging verður ljós í skugga dauðans.


Franska

15.–24.

kvikmyndahátíðin

janúar 2027

17

Frönsk kvikmyndahátíð

Bjargvætturinn A Man of His Time

PRIX DU SCÉNARIO

Saga, Grín, Drama | Emmanuel Marre | 2026 | Belgía, Frakkland Harpo Guit, Mathieu Perotto, Swann Arlaud, Sandrine Blancke 159 mín.

Franska

Íslenskur texti

Frakkland, 1940. Henri Marre leitar nýs upphafs með því að ganga til liðs við Vichy-stjórnina í þeirri trú að hann geti bjargað framtíð Frakklands. Myndin hlaut verðlaun fyrir besta handritið á kvikmyndahátíðinni Cannes 2026 og er byggð á ótrúlegri fjölskyldusögu leikstjórans Emmanuel Marre.


18

Alþjóðleg

Barnakvikmyndahátíð

Sólaldin Papaya Teiknimynd | Priscilla Kellen | 2026 | Brasilía, Portúgal Aretha Garcia, Maria Vitória Garcia, Tulipa Ruiz 74 mín.

Án tals

Lítið fræ í Amazon-frumskóginum dreymir um að fljúga og er sífellt á ferð til að forðast að skjóta rótum. Fræið uppgvötar síðar ræturnar og lífið í skóginum enda ævintýrin ein sem bíða. Hugljúf og heillandi teiknimynd sem var tilnefnd til Kristalbjarnarins á Berlinale árið 2026.


Alþjóðleg

Barnakvikmyndahátíð

19

Járndrengurinn Iron Boy Teiknimynd | Louis Clichy | 2026 | Belgía, Frakkland Alexandre Astier, Jean-Pascal Zadi, Rod Paradot 90 mín.

Íslensk talsetning

Þegar Kristófer er 10 ára fellur hann skyndilega saman og þá tekur lífið óvænta stefnu. Fjarri sveitastörfunum uppgötvar hann tónlistina, eignast nýja vinkonu og finnur eigin styrk. Einstök handteiknuð vatnslitateiknimynd sem vann bæði áhorfenda- og dómnefndarverðlaun á Annecy 2026.

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í þrettánda sinn dagana 6.–14. febrúar 2027 í Bíó Paradís. Fylgstu með dagskrá og viðburðum á samfélagsmiðlum: @barnakvikmyndahatid


20

Frumsýningar

Maðurinn sem ég elska The Man I Love Drama, Rómantík | Ira Sachs | 2026 | Frakkland, Bandaríkin Rami Malek, Luther Ford, Rebecca Hall, Tom Sturridge 95 mín.

Enska

Án texta

New York á níunda áratugnum. Þegar listamaðurinn Jimmy greinist með alnæmi ákveður hann að verja tímanum sem eftir er í að skapa, elska og lifa. Rami Malek (Bohemian Rhapsody) fer á kostum í þessari rómuðu mynd Ira Sachs.

Óþekkta konan Woman Unknown Drama, Saga, Spenna | May el-Toukhy | 2026 | Denmark, Lettland, Svíþjóð Mathilde Arcel, Marie Askehave, Carsten Bjørnlund 124 mín.

Danska

Íslenskur texti

Stríðinu er lokið en fortíðin sleppir engum. Ung barnapía er við það að giftast auðugum ekkli í Kaupmannahöfn þegar leyndarmál frá hernámsárunum ógnar öllu. Myrkur og magnþrunginn sálfræðitryllir sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2026.


21

Frumsýningar

Engir góðir menn No Good Men Grin, Rómantík | Shahrbanoo Sadat | 2026 | Þýskaland, Frakkland, Noregur Shahrbanoo Sadat, Anwar Hashimi, Liam Hussaini, Yasin Negah 103 mín.

Darí, pastú

Íslenskur texti

Kabúl, sumarið 2021. Við fylgjum Naru, kvikmyndatökukonu á stærstu sjónvarpsstöð landsins, sem hefur misst alla trú á karlmönnum. En þegar Talibanar nálgast borgina bankar ástin óvænt upp á!

Allt sem okkur er kært Tender Loving Care Drama, Gaman | Mike Leigh | 2026 | Bretland, Bandaríkin Kate O'Flynn, Marion Bailey, Paul Jesson, Tilly Vosburgh 107 mín.

Enska

Íslenskur texti

Eftir sambandsslit flytur Amy inn til bestu vinkonu sinnar, Rosie, og reynir að fóta sig á ný. Breski meistarinn Mike Leigh (Secrets & Lies, Mr. Turner) snýr aftur með hlýja og bráðfyndna mynd um mannleg samskipti og óvæntar beygjur lífsins.


Pop-up þýskir

kvikmyndadagar

22

Rose Drama | Markus Schleinzer | 2026 | Austurríki, Þýskaland Sandra Hüller, Caro Braun, Marisa Growaldt, Robert Gwisdek 94 mín.

Þýska

Íslenskur texti

Snemma á 17. öld dulbýr Rose sig sem karl til að geta lifað af í heimi þar sem konur hafa lítið frelsi. En nýtt líf og ný sjálfsmynd hafa ófyrirséðar afleiðingar. Stórleikkonan Sandra Hüller hlaut Silfurbjörninn fyrir besta leik í aðalhlutverki á Berlinale 2026.


Pop-up þýskir

kvikmyndadagar

23

Í hvert sinn Everytime

UN CERTAIN REGARD

Drama | Sandra Wollner | 2026 | Austurríki, Þýskaland Birgit Minichmayr, Carla Hüttermann, Lotte Keiling, Tristán López 121 mín.

Þýska

Íslenskur texti

Óhugsandi harmleikur verður til þess að syrgjandi móðir, dóttir hennar og unglingsdrengur halda til Tenerife í frí. Undir heitri sólinni renna fortíð og nútíð saman þegar sektarkennd, sorg og fyrirgefning takast á. Myndin vann Un Certain Regard verðlaunin á kvikmyndahátíðinni Cannes 2026 og er framlag Þýskalands til Óskarsins.


24

Frumsýningar

Hjartað ræður Brace Your Heart Drama | Amanda Kernell | 2026 | Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Ísland, Búlgaría Elli Sara Valkeapää, Andte Gaup-Juuso, Vincent Niia 97 mín.

Samíska

Íslenskur texti

Í afskekktu samísku fjallaþorpi erfir hin tvítuga Ejva hreindýrahjörð föður síns. Þegar hún fellur fyrir ungri konu ögrar hún aldagömlum hefðum og vekur afbrýðisemi valdamikils manns. Amanda Kernell (Sami Blood), snýr aftur með áhrifamikla ástarsögu sem hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar í Toronto (TIFF).


25

Frumsýningar

Dagbók vinnukonu The Diary of a Chambermaid Drama | Radu Jude | 2026 | Frakkland, Rúmenía Ana Dumitrașcu, Mélanie Thierry, Vincent Macaigne 94 mín.

Franska

Íslenskur texti

Rúmensk heimilishjálp í Bordeaux sér eigið líf speglast í Dagbók vinnukonu, sem hún æfir með áhugaleikhópi. Radu Jude staðfestir hér enn á ný stöðu sína sem eitt frumlegasta kvikmyndaskáld Evrópu, með beittri samfélagsgagnrýni, húmor og samkennd.


26

Frumsýningar

Undir ísnum The Meltdown Drama | Manuela Martelli | 2026 | Síle, Bandaríkin, Spánn Maia Domagala, Maya O’Rourke, Paulina Urrutia, Saskia Rosendahl 108 mín.

Spænska

Íslenskur texti

Síle, 1992. Inés dvelur hjá afa sínum og ömmu á afskekktu hóteli við rætur skíðasvæðis. Hún vingast við unglingsstúlkuna Hönnu sem er stödd í æfingabúðum á svæðinu. Sporlaust hvarf Hönnu dregur smám saman fram í dagsljósið ýmis undarleg mál. Myndin er framlag Síle til Óskarsverðlaunanna.


27

Frumsýningar

Árru Drama, Tónlist | Elle Sofe Sara | 2026 | Noregur, Svíþjóð, Finnland Anitta Suikkari, Ayla Gáren Audhild P. Nutti, Mikkel Gaup 95 mín.

Samíska, norska

Íslenskur texti

Hreindýrahirðirinn Maia lætur ekki vaða yfir sig þegar námuvinnsla ógnar landi og lífsháttum fjölskyldunnar. En í miðri baráttunni bankar fortíðin óvænt upp á og gömul fjölskylduleyndarmál dúkka upp. Haldið ykkur fast, hér er um að ræða joik-söngleik þar sem dansinn dunar!


28


29

Íslenskar heimildamyndir Fuglar (og menn) Leikstjórn: Mika Kaurismäki, Ingvar Þórðarson, RAX | 2026 | Ísland

Í Loðmundarfirði er sérstætt bæjarfélag í umsjá hjónanna Ólafs og Jóhönnu. Bæjarbúar eru æðarfuglar sem leggja í langt ferðalag til þess eins að ala upp afkvæmi sín í þessari öruggu náttúruparadís. Það skiptast á skin og skúrir í lífi fuglanna en samlífið með hjónunum er einstakt fyrir alla aðila. Kvikmyndin hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2026.

Eyríki Leikstjórn: Nikolai Galitzine | 2026 | Ísland

Í Grímsey er nyrsta mannabyggð Íslands en eyjan er aðeins 2.5 km á lengd og hefur verið í byggð samfellt í 800 ár. Þegar best lét, bjuggu þar 120 manns en nú er framtíð byggðarinnar tvísýn. Skólinn og fiskvinnslan hafa lokað og aðeins í kringum 30 íbúar eru eftir á eyjunni þegar kirkjan brennur til grunna. Myndin er óður til Grímseyinga og ást þeirra á eyríkinu Grímsey. Tilnefnd sem besta norræna heimildarmyndin á Nordisk Panorama 2026.

Heimkoman Leikstjórn: Helgi Felixson, Titti Johnson | 2026 | Ísland, Svíþjóð

Myndin fjallar um sjálfsmynd, tilheyrslu og djúpa þrá eftir að finna sinn stað í heiminum. Hún fylgir Mike Årsjö, sem var ættleiddur sem ungbarn frá Chile af sænskum trúboðum og ólst upp í Sawiyano-þorpi djúpt í regnskógum Papúa Nýju Gíneu. Myndin vann Ljóskastarann, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar 2026 fyrir bestu heimildamynd í fullri lengd.

Háhitasvæði Leikstjórn: Susan Muska, Gréta Ólafsdóttir | 2026 | Ísland

Konur af mismunandi kynslóðum veita einstaka innsýn í líf sitt sem verkfræðingar og vísindamenn innan jarðvarmaiðnaðarins. Hvað þurfa þær til að vaxa og dafna í fagi þar sem karlar eru allsráðandi? Konur frá þremur löndum segja frá baráttu sinni fyrir kynjajafnrétti og þeim breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi þeirra í gegnum árin.


Paradís heim í stofu Heimabíó Paradís býður upp á ýmsar gersemar sem ekki er auðvelt að finna annars staðar – og á sérlega hagstæðu verði. Tilbreyting er góð fyrir sálina!

heima.bioparadis.is


31

Kvikmyndafræðsla í Bíó Paradís Bíó Paradís er eina menningarstofnun landsins sem býður upp á reglubundna kvikmyndafræðslu fyrir börn og ungmenni. Frá fyrsta vetrinum 2011–2012 hafa yfir 10.000 börn og ungmenni, allt frá leikskólaaldri til framhaldsskóla, tekið þátt í fræðslusýningum þar sem kvikmyndin er nýtt sem vettvangur fyrir listræna upplifun, gagnrýna hugsun og aukið kvikmyndalæsi. „Krakkar eru á samfélagsmiðlum, með myndefni í símunum og það er mikilvægt að þau séu læs á þessa miðla og geti metið það efni með gagnrýnum hætti.“ – Oddný Sen, kvikmyndafræðingur og verkefnastjóri fræðslu í Bíó Paradís

Fyrir kennara Kveiktu áhuga nemenda á töfrum kvikmyndanna með sýningum og sérunnu kennsluefni. Skannaðu QR kóðann fyrir frekari upplýsingar eða fylgdu okkur á samfélagsmiðlum! Kvikmyndafræðsla grunnskólanna í Bíó Paradís Framhaldsskólasýningar í Bíó Paradís


32

Bíó Paradís

Föstudagspartísýningar

BROT AF ÞVÍ BESTA

Dans, spenna, söngur, ástir, örlög… og smá bull og hryllingur líka! Myndirnar sem enginn fær nóg af. Föstudaga kl. 21 (og stundum laugardaga).

The Rocky Horror Picture Show (1975) 24. október kl. 21:00

Addams Family (1991) 30. október kl. 21:00

The Craft (1996) 31. október kl. 19:00

Interstellar (2014) 6. nóvember kl. 21:00

E.T. (1982)

13. nóvember kl. 21:00

10 Things I Hate About You (1999) 20. nóvember kl. 21:00

Carrie (1976)

27. nóvember kl. 21:00

The Room (2003)

8. janúar 2027 kl. 21:00

The X-Files (1998)

5. febrúar 2027 kl. 21:00

The Game (1997)

26. febrúar 2027 kl. 21:00


33

The Descent (2005) 25. október kl. 21:00

Oldboy (2003)

8. nóvember kl. 21:00

La Haine (1995)

22. nóvember kl. 21:00

A Christmas Story (1983) 13. desember kl.21:00

Dr Strangelove (1964) 27. desember kl.21:00

Harakiri (1962)

3. janúar 2027 kl 21:00

Diva (1981)

17. janúar 2027 kl. 21:00

My Bloody Valentine (1981) 14. febrúar 2027 kl. 21:00

Perfect Blue (1998) 28. febrúar 2027 kl. 21:00


34

Jólapartísýningar og fjölskyldubíó The Holiday (2006) 4. desember kl 21:00

Home Alone

Íslenskur texti

(1990)

Fjölskyldusýning 5. desember kl. 14:30

Eyes Wide Shut

(1999)

5. desember kl 21:00

Love Actually (2003) 11. desember kl. 21:00

Íslenskur texti

Íslenskur texti


35

Home Alone 2 (1992)

Fjölskyldusýning 12. desember kl. 14:30

Íslenskur texti

The Muppet Christmas Carol (1992) 12. desember kl. 19:00

Die Hard (1988)

18. desember kl. 21:00

Íslenskur texti

19. desember kl. 21:00

Íslenskur texti

Christmas Vacation (1989)


36

Varningur frá Paradís fyrir alvöru aðáendur Nú getur þú keypt æðislegan bíóvarning með stórskemmtilegu kvikmyndaívafi. Eingöngu til sölu á staðnum í Bíó Paradís.

Bollar

Coffee is for closers! Kaffi bragðast einfaldlega betur úr þessum geggjuðu Paradísar bollum. 2.990 kr.

Bolir

Fullkomin gjöf fyrir kvikmyndaáhugamanninn. Sex mismunandi týpur með ólíkum leturgerðum úr frægum bíómyndum. 5.990 kr.

Taupokar

Frábær fyrir bíóferðina eða einfaldlega hvert sem er! Stílhreinn og handhægur taupoki í kvikmyndastíl. 1.990 kr.

Tilboð #1 réf Bolli + gjafab um ng með veiti

7.990 kr.

Tilboð #2 Bolur + gjafabréf með veitingum

9.990 kr.

Tilboð #3 Bolur + klippikort

12.990 kr.


37

Gleðjumst í Paradís Hvort sem tilefnið er starfsmannagleði, barnaafmæli, ráðstefna, sérsýning, gæsa- eða steggjapartí er Bíó Paradís rétti staðurinn til að koma saman og gera sér glaðan dag. Við bjóðum upp á einstaka aðstöðu í hjarta borgarinnar, glæsilega bíóbari, fjölbreyttar veitingar og fyrsta flokks hljóð- og myndgæði. Hjólastólaaðgengi er í öllu húsinu. Regnboginn, kokteilbarinn okkar, setur svo punktinn yfir i-ið! Barinn er opinn fimmtudaga til laugardaga kl. 19:00 - 01:00 og er einnig í boði fyrir einkasamkvæmi. Þitt tilefni. Þín Paradís. Kynntu þér möguleikana á bioparadis.is/salarleiga eða sendu okkur fyrirspurn á salarleiga@bioparadis.is.


PRENTUM í einum grænum Tækifæriskort

Daga

P R E N erfisvæ T S M IÐ n JA

talsk

Umhv

Bæklingar

ubba

r

Veggspjöld Skrifblokkir

Ráðgjö f Hönnu n Umbr ot Prentu n Frága ng

UM

Nafnspjöld

VIÐ S

JÁUM

Tímarit Umbúðir Bækur Pr fagle entlausni g pre r gæði, ntráð og fagme nnska gjöf og p

Hraði,

ersón

uleg þ

jónust

a

Vatnagarðar 14, 104 Reykjavík Sími: 563 6000 - litrof@litrof.is - www.litrof.is ÞÚ FINNUR OKKUR LÍKA HÉR:


Sjá nánar á kvikmyndasafn.is eða bioparadis.is

BÍÓTEKIÐ er heiti yfir reglulegar kvikmyndasýningar á vegum Kvikmyndasafns Íslands sem haldnar eru í samstarfi við Bíó Paradís. Sýndar verða valdar íslenskar og erlendar kvikmyndir einn sunnudag í hverjum mánuði, frá september 2026 fram í apríl 2027. Boðið verður upp á sérstaka viðburði, fræðslu og spjall í tengslum við þær kvikmyndir sem til sýningar verða.

Loftur Guðmundsson

Ungfrúin góða og húsið

Bronenosets Potyomkin

f. 1892

1999

1925

Málarinn og sálmurinn hans um litinn

Popiół i diament

Niewinni czarodzieje

2001

1958

1960


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Bíó Paradís – Dagskrá haust 2026 / vor 2027 by Bio Paradis - Issuu