Skip to main content

B+ 2021

Page 1

B+

BLAÐ BIBLÍUFÉLAGSINS

2021

Karl Sigurbjörnsson Orð í gleði

Sigríður Guðmarsdóttir

Að vitna um Krist og þjóna Kristi

Petrína Mjöll

Stafróf ástarinnar og hugrekkisins

Arnar Jónsson les inn 1. Mósebók

Hvers vegna ættum við að lesa Biblíuna? Sjáðu svörin


En ég treysti þér, Drottinn, og segi: Þú ert Guð minn. Í þinni hendi eru dagar mínir.  Sálmarnir 31.15–16


B+ BL AÐ BIBLÍUFÉL AGSINS 2021 Aðsetur Biskupsstofa Katrínartúni 4 105 Reykjavík Forseti Hins íslensk a biblíufél ags Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands Aðrir í stjórn fél agsins Ásta Guðrún Beck, lögfræðingur Fjalar Freyr Einarsson, kennari Grétar Halldór Gunnarsson, prestur Guðni Már Harðarson, prestur Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri Irma Sjöfn Óskarsdóttir, prestur Kristján Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sveinn Valgeirsson, prestur Sími 528-4000 Netfang hib@biblian.is Veffang www.biblian.is Ritstjóri Brynjólfur Ólason Hönnun og umbrot Brynjólfur Ólason Prentun Ísafoldarprentsmiðja Forsíðumyndin Opin Biblía. Umræðuefni blaðsins í ár er spurningin „hvers vegna ættum við að lesa Biblíuna?“ Sjá umfjöllun á bls. 8–15. Mynd: Unsplash.

Að vera læs á orðið helga

Þ

egar leiðari þessa blaðs var skrifaður í fyrra virtist sem kórónuveirufaraldurinn léti undan síga og framundan væri gleðilegt nýtt ár í tilslökunum og ferðafrelsi. Það fór á annan veg. Við erum nú að ljúka öðru ári í Covid, og í aðdraganda aðventu fjölgaði smitum óvænt, svo að við urðum að takmarka ferðir okkar og útstáelsi enn um sinn. Ljóst er að baráttunni gegn vágestinum ósýnilega virðist hvergi lokið. Sumir eiga um sárt að binda. Hvað næsta ár ber í skauti sér vitum við ekki. Kristnir menn treysta hins vegar Drottni og segja: Í þinni hendi eru dagar mínir (sbr. Slm 31.15–16). Einnig biðja þeir án afláts, þakka alla skapaða hluti og eru glaðir öllum stundum, því að það er vilji Guðs með þá í Kristi (sbr. 1Þess 5.16–18). Á þetta minnir Karl Sigurbjörnsson biskup með nýrri útgáfu bókar sinnar, Orð í gleði, sem hann hefur unnið að á árinu. Bókin flytur að sönnu glettin orð, en þó alvörufull og djúpvitur. Þar eru bænir og „andvörp“ af ýmsu tagi sem hafa „laumast til hans á leiðinni“, eins og hann orðar það svo vel í formála. Hvetjum við ykkur öll til að lesa þessa bók. Í blaðinu að þessu sinni veltum við vöngum yfir mikilvægi Biblíunnar svona almennt séð. Biblíuþekkingu hrakar, en skiptir það einhverju máli? Hvers vegna ættum við að lesa Biblíuna? Við b ­ áðum nokkra valinkunna einstaklinga að svara þessum spurningum og ræddum auk þess við dr. Sigríði Guðmarsdóttur, nýskipaðan lektor í kennimannlegri guðfræði við Háskóla Íslands. Á hennar könnu er að kenna framsetningu kristins boðskapar í nútímasamfé­l agi. Það er ekki lítið hlutverk, en Sigga Guðmars lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Ljóst er af svörum viðmælenda okkar að auk þess að vera grundvöllur kristinnar trúar er Biblían einn mesti áhrifavaldur á sviði mennta, menningar og lista. Án þekkingar á henni virðast menn ólæsir á vestræna menningu. Þeir eru ófærir að taka þátt í umræðu um trúmál almennt og tengsl trúar og menningar í eigin samfélagi. Til að árétta þetta mikilvægi bókarinnar helgu er við hæfi að minna á að fjöl-

mörg tungumál veraldar eignuðust fyrst ritmál þegar hafist var handa við að þýða Biblíuna. Með ritmáli og almennu læsi er lagður grunnur að menningu og menntun, frelsi og lýðræði. Biblían hefur t.d. haft ómetanleg áhrif á íslenska tungu og bókmenntir sem verða seint ofmetin. Svo mikilvæg er Biblían, bók bókanna, orð Guðs. Hún má aldrei verða hornreka í samfélagi okkar, hversu aum og vesæl samtíðin er í miskunnarlausri útskúfun, þöggun og hræsni. Í okkar hlut kemur að tryggja að sú kynslóð sem nú vex úr grasi verði læs á orðið helga. Það er ekki lengur hlutverk skólanna. Hið íslenska biblíufélag er lítið félag sem falin hefur verið mikil ábyrgð. Markmið félagsins er ekki aðeins að vinna að útgáfu Biblíunnar, heldur einnig — og ekki síður — útbreiðslu hennar og notkun. Það er ekki síst þetta síðara atriði sem veldur því að nú hefur félagið ákveðið að gera upp samninginn við JPV útgáfu, sem stofnað var til árið 2004, og taka aftur við útgáfu Biblíunnar. B+ ræðir við sr. Grétar Halldór Gunnarsson, formann framkvæmdanefndar, af þessu tilefni, en hann hefur staðið í brúnni í félag­inu á miklum umbrotatímum. Við viljum minna á að Biblíufélagið er opið öllu kristnu fólki úr öllum kristnum trúfélögum og kirkjum. Mikilvægt er að þjappa trúuðu fólki saman um hlutverk og ábyrgð Biblíufélagsins. Nú eru um ­þrettán hundruð skráðir félagar, karlar og konur, af öllu landinu. Auk þess er fjöldi einstak­l inga og fyrirtækja sem styður fjáraflanir til einstakra verkefna. Sumir eru bakhjarlar félagsins og ævifélagar. Öllum sem styðja Biblíufélagið með einum eða öðrum hætti þökkum við tryggð og trúfesti, stuðning og allan góðan hug fyrr og síðar. Guð launi ykkur öllum ríkulega.

MUNIÐ SÖFNUNARREIKNING BIBLÍUFÉLAGSINS Reikningur 0101-26-003555 Kennitala 620169-7739


4  B+

Bókatíðindi

Hugleiðingar um gleði, von og trú Karl Sigurbjörnsson hefur sent frá sér nýja og endurbætta útgáfu af bók sinni Orð í gleði sem kom fyrst út fyrir 18 árum og hlaut fádæma góðar viðtökur.

B

ókin Orð í gleði eftir Karl Sigurbjörnsson biskup hefur verið endur­útgefin hjá Skálholtsút­gáfunni í nýjum búningi. Bókin kom fyrst út árið 2003 og fékk þá fádæma góðar viðtökur og seldist upp. Bókin geymir gott veganesti út í dagsins amstur og eril, segir á bókarkápu, en í henni má finna örsögur og íhuganir, myndbrot og ljóð, spekiorð og bænir sem styrkja og næra hugann. En hver er sagan á bak við þessa litlu bók? „Bókin varð upphaflega til í samtali okkar Eddu Möller, þeirrar hugmyndaríku atorkukonu sem um árabil hefur stjórnað bókaútgáfu þjóðkirkjunnar af svo mikilli árvekni og elju,“ segir Karl í samtali við B+. „Hún bað mig að taka saman smásögur sem tengdust gleði trúarinnar, taldi sig vita að ég ætti eitt og annað af slíku í mínum fórum. Ég hef verið að prédika í hálfa öld. Sem stúdent var ég með hugvekjur við kvöldsamverur í sumarbúðum og sunnudagaskóla og öðru barna- og unglingastarfi kirkjunnar. Þar vaknaði vitund mín fyrir mikilvægi smásögunnar, dæmisögunnar og skrítlunnar sem ljúka upp hinum óvæntu sjónarhornum á lífið. Ég heillaðist af sagnahefð rabbínanna og Hasídeanna og eyðimerkurfeðranna og viðaði að mér slíkum sögum á þjónustuferlinum.“ Karl segir að Jesús hafi sagt dæmisögur og gripið til líkinga fremur en skilgreininga. „Faríserarnir voru uppteknir af því að skilgreina markalínur og raða í flokka. Það er vitaskuld gömul saga og ný að menn krefjist skilgreininga og vilji fá sannleikann

„Boðun fagnaðar­ erindisins liggur mér umfram allt á hjarta“

settan fram í formúlum og mælanlegum einingum. En Jesús sagði sögur; „án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra,“ segir Markús um Jesú. Hið sama á yfirleitt við um þær og skrítlurnar að það fer sjaldnast vel ef maður reynir að útskýra þær. Líkingar og dæmisögur Jesú eru hliðstæður, einatt svolítið tvíræðar og opnar fyrir túlkunum, virkja innsæi, hugsun, og laða til samfélags. Sama er að segja um ljóðið sem einatt opnar á innri víddir hugsunar og skilnings.“ Karl segir að viðtökur bókarinnar árið 2003 hafi glatt sig mjög. „Kverið geymir örsögur, íhuganir, ljóð og spekiorð af ýmsum toga og úr ólíkustu áttum. Þetta er alls konar, en framar öllu ætlað að vekja til umhugsunar, uppörva í trú og efla von og glæða gleði í dagsins önn.“ Síðar kom frá hendi Karls kverið Fleiri orð í gleði, sem var af sama toga. „Í hruninu, þegar margir misstu vinnuna og útlitið var æði svart hjá mörgum, tók ég saman annað kver af líku tagi sem nefndist Æðru­ leysi, kjarkur, vit og byggðist á æðruleysisbæninni. Og nokkrum árum síðar kom út kverið Trú, von og ­kærleikur.“ Ertu að fást við eitthvað skemmtilegt núna? Einhver frekari skrif í pípunum? „Ég er alltaf að fást við eitthvað skemmtilegt þó að það sé svo sem ekkert í frásögur færandi. Boðun fagnaðar­erindisins liggur mér umfram allt á hjarta nú sem fyrr og hvaðeina það sem getur greitt því veg í samtíðinni.“


Mynd: Kristín Bogadóttir


Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Jóhannesarguðspjall 14.1


8  B+

Hvers vegna ættum við að lesa Biblíuna? Biblían er höfuðtrúarrit kristinna manna og sú bók sem mest hefur mótað vestræna menningu. En biblíuþekkingu hrakar og því spurði B+ nokkra valinkunna einstaklinga hvort þeir teldu að það skipti einhverju máli.

Gerður Kristný „Biblían hefur fylgt mér frá því ég var barn og sumar sögurnar eru í sérstöku uppáhaldi, til dæmis sagan um meyjarnar sem fara til móts við brúðgumann með lampa sína en olían eyðist upp hjá þeim fávísu. Enn tala þessar dæmisögur inn í samtímann og vekja mér myndir og von. Davíðssálma las ég þegar ég orti ljóðabálkinn Sálumessu og Opinberunarbókina þegar ég samdi verkið Drápu. Ég ætla svo sannarlega að halda áfram að lesa Biblíuna því þar býr djúp speki, orðkynngi og uppörvun. Aldrei hefur lífið búið svo um hnútana að ekki hafi verið þörf fyrir þá þrenningu.“ Gerður er skáld.

Margrét Eggertsdóttir „Það er af ýmsum ástæðum gott og gagnlegt, ef ekki bráðnauðsynlegt, að lesa Biblíuna. Að þekkja Biblíuna er forsenda þess að fá innsýn í menningu okkar og sögu. Hún er lykillinn að skilningi á ótal mörgum listaverkum, hvort sem þau teljast til bókmennta, tónlistar, myndlistar eða kvikmynda. En það er líka önnur góð ástæða fyrir því að lesa Biblíuna: Þangað má sækja leiðsögn og visku, gleði og uppörvun. Ég þekki af eigin reynslu hvað það er ómetanlegur fjársjóður að kunna vers úr Biblíunni utan að. Þar má finna huggun og styrk á erfiðum stundum sem ekkert annað jafnast á við.“ Margrét er rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.


B+  9

Ármann Jakobsson „Fá rit eru áhrifameiri en Biblían í menningarsögu síðustu 2000 ára þannig að allir sem vilja skilja menningu og bókmenntir þurfa að lesa Biblíuna til að skilja hugarfar horfinna alda. Sérstök ástæða er síðan fyrir fólk sem lifir og hrærist í nútímasamfélagsumræðu að kynna sér margar dæmisögur Krists, t.d. þá um faríseann og tollheimtamanninn (Lúk. 18.9–14) og jafnvel enn frekar söguna um bersyndugu konuna (Jóh. 8.3–11). Nútíminn hefur greinilega gleymt þessum sögum og veitir ekki af því að rifja þær upp.“ Ármann er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands.

Kolbrún Bergþórsdóttir „Allir ættu að lesa Biblíuna því hún er með réttu bók bókanna. Í henni er að finna sögur sem eiga alltaf erindi og boðskap sem geymir eilíf sannindi. Það er engin tilviljun að listamenn á öllum tímum hafa sótt innblástur í Biblíuna, og það er sannarlega ekki líklegt til að breytast. Lestur á Biblíunni, sem er einstaklega fallega skrifuð, auðgar málkennd og eykur skilning á listasögu heimsins, bókmenntum og tónlist. Boðskapur Krists um kærleik og fyrirgefningu á síðan erindi við alla, ekki síst í nútíma okkar þar sem refsigleði og skortur á umburðarlyndi er að verða æ meira áberandi. Sá einstaklingur sem les ekki Biblíuna einhvern tíma á ævinni er fátækari fyrir vikið. Sá sem les hana býr að því alla ævi.“ Kolbrún er blaðamaður á Fréttablaðinu og bókmenntagagnrýnandi í Kiljunni.

Úlfar Þormóðsson „Ég las hana. Spjaldanna á milli. Frá upphafi til enda. Tvisvar. Þegar ég svo las hana í þriðja sinn skrifaði ég jafnframt bók um lesturinn, bókina Þú sem ert á himnum (Veröld 2010). Spurningunni svara ég þannig: Í Biblíunni er merkileg sagnaslóð, prýðilegur texti, og með góðum hug má finna þar eitt og annað til mannbóta.“ Úlfar er rithöfundur.


10  B+

Í

Þar er djúpgerðin Biblían geymir samhengið í menningu okkar, segir Guðmundur Andri Thorsson þegar hann er spurður hvers vegna við ættum að lesa Biblíuna.

upphafi var orð, og orð var með Guði, og Guð var orð.“ Þannig hefur óþekktur höfundur kosið að þýða upphafsorð Jóhannesar­guðspjalls einhvern tímann á árunum kringum 1200, eða fyrr, einhvern tímann á fyrstu öldum kristni á Íslandi, eins og hægt er að lesa í Íslenskri hómilíubók, sem er elsta bók sem til er íslensk og kom út prentuð í fyrsta sinn árið 1993. Seinna tók svo Oddur Gottskálksson þessa þýðingu og aðrar upp þegar hann sat í fjósinu í Skálholti um miðja 16. öld og bjó til íslenska Biblíu handa íslenskum almenningi. Eins og jafnan gerist um byltingar­menn sem ná árangri byggði hann á langri hefð — guðsorði á íslensku. Það er í sjálfu sér mikilsvert að við skulum enn geta lesið og skilið það sem elst var skrifað á íslensku máli. Við erum eina fólkið í öllum heiminum sem það getur — fyrir utan sérhæft háskólafólk sem líka kann að lesa gotnesku og önnur dauð tungumál. Þetta er það eina sem Íslendingar eru betri í en aðrar þjóðir: að tala, lesa og skilja íslensku. Tungumálið geymir DNA menningarinnar. Hugsun, lífsviðhorf og fordómar, viska, fáviska, þekking og blekking færist frá einni kynslóð til annarrar gegnum tungumálið, sumt fráleitt, annað ómetanlegt. Biblían varðveitir tungumálið, og líka sögur og tilgátur um tilurð alls, mýtur, hugmyndir um rétta breytni og ranga, hugsjónir, sannleik og firrur. Í listaverkum okkar og menningu er allt krökkt af tilvísunum til Biblíunnar og við þurfum að þekkja sögurnar þar að baki. Við getum sótt okkur sögur og innblástur hingað og þangað og sökkt okkur í menningarstrauma héðan og þaðan — og blandað öllu saman á undursamlegan hátt — sem er eitt af ágætustu einkennum okkar tíma, en það er Biblían sem geymir samhengið í menningu okkar. Þar er djúpgerðin. Fyrir rithöfund er nauðsynlegt að þekkja þetta samhengi, en maður þarf líka að lesa í Biblíunni af og til, nánast af handahófi. Biblían er menningarpottur þar sem kraftmikil súpa hefur verið að malla um aldir, og hverjum rithöfundi er nauðsynlegt að sækja þangað sögur og andrúmsloft og kynngikraft — orð: í upphafi var Orð. Guðmundur Andri er rithöfundur.


B+  11

Andri Snær Magnason

„Það skiptir máli að lesa Biblíuna, þó ekki væri nema fyrir tvo kafla. Sá fyrri er Fjallræðan í 5. til 7. kapítula Lúkasarguðspjalls, sem við myndum kalla stefnuræðu nú til dags. Þar er að finna trúarlegan, pólitískan og siðferðilegan grunn undir því sem við köllum vestræna menningu. Seinni kaflinn er stefnuræða Páls postula, Óðurinn til kærleikans, sem hann flutti Korintumönnum í fyrra bréfi til þeirra, 13. kapítula, 1.–13. versi, en henni lýkur með þessum orðum: „En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.“ Þarna er að finna það sem náði til almennings þeirra tíma, en þá bjuggu 90% fólks við Miðjarðarhaf við fátækt og harðræði, aðeins 10% við velsæld, öfugt við það sem nú er. Slík urðu áhrif þessa litla safnaðar í Galíleu að enn í dag minnumst við öll daglega afmælis Jesús Krists, þegar við notum dagatalið sem miðast við fæðingu hans.“

„Ég byrjaði að lesa Nýja testamentið þegar Gídeonfélagið gaf okkur hana þegar ég var tíu ára. Ég held að ég hafi verið hálfnaður, búinn að hrella foreldra mína með spurningum eins og: Hvað þýðir að drýgja hór? Seinna byrjaði ég að lesa Biblíuna sjálfa þegar ég var í menntaskóla og ég var steinhissa þegar ég komst að því að það sem ég hélt að Biblían fjallaði um: Sköpunarsöguna, Adam og Evu, syndaflóðið og allt það, var ekki nema um 10 blaðsíður. Ég er alveg á því að þessar fyrstu blaðsíður ættu að vera skyldulesning í efri bekkjum grunnskóla, þá ekki á forsendum trúboðs, heldur eru þessir textar þungavigtartextar okkar menningarheims. Um hvað er öll restin, hugsaði ég með mér, þegar Nóaflóðið var yfirstaðið? Biblían er grundvallarrit til að skilja menningu okkar og menningarsögu, listasögu, stjórnmálasögu, heimspeki okkar og hugsun. Þótt ekki væri nema að þræla sér í gegnum Fyrstu Mósebók. Biblían vekur oft furðu, Jónasarbók og Jobsbók eru mjög áhugaverðar, Ljóðaljóðin einstaklega falleg á köflum, og svo Opinberunarbókin og helstu kaflar Nýja testamentisins. Það er líka áhugavert að þetta eru 2000 ára gamlar sögur; að ímynda sér sögur í dag, að þær gætu verið til árið 4000! Biblían er ekki eitthvað sem einungis trúaðir eiga að lesa, hún er hluti af því að skilja hver við erum, hvaðan við komum, allskyns siðfræði og hugtök og orð sem er mikilvægt að kunna skil á. Hið sama gildir auðvitað um önnur trúarrit, en það er samt ekki jafngilt, það er er mikilvægt að þekkja sína eigin sögu og hvaðan hún kemur.“

Ólafur er fv. varafréttastjóri.

Andri Snær er rithöfundur.

Ólafur Sigurðsson


12  B+

Að vitna um Krist og þjóna Kristi Biblíuþekkingu almennings ­hrakar að sönnu, en við búum í samfélagi margbreytileikans og það er ólíklegt að hlutirnir fari aftur í fyrra horf. Þetta segir dr. Sigríður Guðmarsdóttir, ­ nýskipaður lektor í guðfræði við ­Háskóla Íslands. Á hennar könnu er m.a. að kenna fram­setningu ­kristins boðskapar í nútíma­ samfélagi, kirkjulega starfshætti, leiðtogahæfni og kennslufræði, svo fátt eitt sé nefnt. Hún segir kirkjuna ekki þrjóta erindið. Mynd: Jón Svavarsson


B+  13


14  B+

Viðtal

S

igga Guðmars, eins og við köllum hana, er snúin heim í suddann. Hún er að vísu að koma frá Tromsö í Norður-Noregi þar sem hún hefur búið um sjö ára skeið, en þar ku oftast vera logn og stilla yfir landi sem nýtur skjóls af skerjagarðinum. Sigga er nýskipaður lektor í kennimannlegri guðfræði við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hún er hvergi bangin að taka að sér að kenna framsetningu kristins boðskapar í nútímasamfélagi. „Það er gott að koma heim,“ segir hún pollróleg. En hvað var hún að gera í Noregi? „Ég fluttist til Noregs til að taka við starfi prófasts, en ég var fyrsti útlendingurinn sem fékk að gegna slíku stjórnunarstarfi í norsku kirkjunni. Það var á Suður-Helge­l and, u.þ.b. sex tíma keyrslu norður af Þrándheimi. Eftir rúm þrjú ár á Helgeland var ég beðin um að sækja um stöðu lektors í hagnýtri/kennimannlegri guðfræði við háskóla í Tromsö, Kirkelig utdannings­senter i nord, sem seinna sameinaðist VID-háskólanum í Stafangri, Björgvin og Ósló. Þetta gerði ég, fluttist á 69. breiddar­gráðu norðlægrar breiddar og vann í teymi með fjórum öðrum í kennimannlegu guðfræðinni.“ Sigríður segist lengi hafa langað að prófa að leggja fyrir sig háskólakennslu. „Ég er með doktorspróf frá Bandaríkjunum (2007) og hef alltaf skrifað mikið á sviði hagnýtrar og samstæðilegrar guðfræði. Ég kenndi við VID í tæp fjögur ár og komst að því að mér fannst gaman að vinna innan háskóla og naut mín vel í kennarahlutverkinu.“

Býr að langri prestsþjónustu

Sigríður segist hafa notið góðs af langri prestsreynslu þegar hún tók til við að kenna. „Ég vígðist til prests árið 1990 og hafði því meira en 25 ára prestsreynslu þegar ég skipti yfir í háskólakennsluna. Hlutverkin eru

„Hin mikla áhersla á biblíuþekkingu í skólunum tengdist því hversu þétt samstarf var áður milli ríkis og kirkju“

ólík, en ég bý að prestsreynslunni, sem er sérstaklega góður grunnur fyrir mörg svið hagnýtu guðfræðinnar. Það er dásamlegt tækifæri að fá að miðla því áfram til annarra sem maður hefur sjálfur lært á akrinum, við fræðastörf og nám. Þegar samsvarandi staða við þá sem ég gegndi í Noregi losnaði við Háskóla Íslands í fyrra, þá ákvað ég að sækja um og er mjög glöð yfir þeirri ákvörðun.“

Þekking hefur breyst

Nú er verið að endurskoða lestraskrár fyrir kirkjuárið þar sem m.a. er tekið tillit til þess að biblíuþekkingu hrakar í landinu og í kirkjunni. Er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af? „Biblíuþekkingu almennings hefur hrakað síðustu áratugi og það þekkjum við öll sem starfað höfum á undanförnum árum við fræðslu barna og unglinga. Hin mikla áhersla á biblíuþekkingu í skólunum tengdist því hversu þétt samstarf var áður milli ríkis og kirkju, og fyrir fræðslulögin í upphafi síðustu aldar var kennslan í kristindómsfræðunum eina kennslan sem flestum unglingum stóð til boða. Við búum nú í samfélagi margbreytileikans og ólíklegt að hlutirnir fari aftur í fyrra horf. Menntun hefur líka breyst og þekking er samþættuð færni og virkni í öðrum mæli en áður var, þegar utanbókarlærdómurinn var sem mest í heiðri hafður.“

Myndmál aftur orðið mjög mikilvægt

„Á miðöldum lærði almenningur biblíusögurnar mest í gegnum táknmyndir kirkjunnar, því fáir kunnu að lesa. Myndmál er aftur orðið mjög mikilvægt, þegar tjáskipti fara að mestu fram á stafrænum miðlum. Það vakti til að mynda áhuga minn fyrir nokkrum árum að þótt fermingarbörnin mín þekktu lítið til guðspjallanna, þá vissu þau allt um Móse, vegna teiknimyndarinnar um egypska prinsinn, sem þá var vinsæl. Ég held þess vegna að umræðan um biblíuþekkinguna sé af hinu góða og að við þurfum að spyrja okkur gagnrýnna kennslufræðilegra spurninga um það hvaða tímabil sé miðað við þegar við berum saman þekkingargrunn fólks, hvers konar þekkingu sé verið að miða við, hvert við viljum stefna og hvers vegna.“


B+  15

„Ég hef ekki miklar áhyggjur af því að kirkjuna þrjóti erindið“ þýðum yfir á íslensku og reynum að orða saman heilagan anda og andann sem bærist í líkama okkar, þá skapast hætta á tvíhyggjulegri aðgreiningu milli sálar og anda. Annað hvort verða þýðingarnar of andlegar, eða of líkam­legar. Ég rakst á gamla grein í Mogganum eftir Gísla Jónsson menntaskólakennara sem útlistaði orðið „erindi“ þannig að það hefði áður verið „örendi“, og að sá sem sé örendur sé þannig „andlaus“ í bókstaflegri merkingu, getur ekki dregið andann (Mbl. 16.9.1989). Ef það er eitthvað sem COVID-heimsfaraldurinn hefur kennt okkur, þá er það það að andi er upphaf og endir alls. Án hans getum við alls ekkert gert. Páll postuli notaði líkams­myndir til að lýsa kirkjunni og þrjóti kirkju erindið er hún þannig búin að vera.“

Erindið ekki stefnumótun eða strategíur

„Mér finnst gott að hvíla í þeirri vissu að erindið kemur ekki frá okkur sem tilheyrum kirkjunni. Von mín liggur í því að erindið sé ekki stefnumótun eða s­ trategíur sem kirkjur heimsins finni upp. Allt það er andsvar við erindinu. Andinn sem kirkjan dregur að sér er ekki hennar, heldur sá heilagi andi sem lífgar allt. Hildigerður frá Bingen kallaði þessa lífgun andans „lifandi grænsemd“ (lat. viriditas). Svo er það kirkjunnar í öllum sínum ólíku söfnuðum og kirkjudeildum að gera allt sem hún getur til að efla andrúmið, grænkuna og gróskuna í kringum okkur.“ MYNDIR: JÓN SVAVARSSON

Sigríður segist ekki hafa miklar áhyggjur af framtíð kirkjunnar. En hvert er raunverulegt erindi hennar í samfélagi nútímans? „Kirkjan um alla veröld á sér þá framtíð að vitna um Krist og þjóna Kristi. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því að kirkjuna þrjóti erindið, og fyrr en það gerist er ekkert búið. Ég hef undanfarið verið að reyna að finna góða þýðingu á enska orðinu s­ pirituality, sem er tekið beint upp úr latínu og fer síðan sem tökuorð inn í flest nútímamál. Þegar við

Að opna heim Biblíunnar

„Í mínum huga er verkefnið við að opna heim Biblíunnar fyrir öðrum í tali, tónum, textum, myndum og boðun í raunheimum og stafheimum hluti af því að víkka þetta andrúm með allri þeirri skapandi andagift sem rúmast í okkar mörgu kollum.“ Frá Biblíufélaginu fylgja Sigríði hamingju- og blessunar­óskir á nýjum starfsvettvangi.


16  B+

MYND: KRISTÍN BOGADÓT TIR

Alltaf heillast af Biblíunni

Litlu stafrófsbækurnar hafa slegið í gegn fyrir smæð sína og einfaldleik. Höfundurinn, Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, sendir frá sér tvær nýjar bækur í ritröðinni fyrir jólin, og þar að auki er bók hennar Salt og hunang endurprentuð.

P

etrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur í Árbæjarkirkju, sendi í fyrra frá sér tvö lítil kver sem heita Stafróf sorgar­ innar og Stafróf gleðinnar. Þeim var báðum vel tekið og eiga að sumu leyti vel saman, enda gleði og sorg gamlar systur. Fyrir þessi jól sendir Petrína frá sér tvær nýjar bækur í ritröðinni, Stafróf ástarinnar og Stafróf hugrekkisins. Þær kunna einnig að eiga vel saman, en varla er hægt að elska án þess að vera hugrakkur. En hver er sagan á bak við stafrófs­bækurnar sem hafa slegið í gegn fyrir smæð sína og einfaldleik?

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sjálfshjálp og sjálfsstyrkingu og vann í mörg ár, innan kirkjunnar, við slík námskeið fyrir konur og unglinga,“ segir Petrína. „Við erum flest meðvituð um nauðsyn þess að styrkja okkur líkamlega með hreyfingu, en það er líka mjög nauðsynlegt að finna leiðir til þess að láta sér líða vel í sál og sinni.“ Petrína segist hafa lesið mikið af allskyns sjálfshjálparbókum um ævina og að margar þeirra hafi hvatt hana og styrkt í lífinu. „Ég les enn slíkar bækur og finnst gott að vekja mig til umhugsunar með hugleiðingum annarra um lífið og tilveruna. Ég hef líka safnað spakmælum


B+  17

„Mig langaði að skrifa stuttar en kjarnyrtar hugleiðingar sem gætu verið uppbyggjandi og hvetjandi í ýmsum aðstæðum“ og góðum setningum úr því sem ég hef lesið, því að oft eru það fáorðu en hnitmiðuðu skilaboðin sem vekja best til vitundar um hvernig best sé að lifa. Og mig langaði að skrifa stuttar en kjarnyrtar hugleiðingar sem gætu verið uppbyggjandi og hvetjandi í ýmsum aðstæðum.“ Sem prestur og sálusorgari veit ­Petrína að það er ekki einfalt að vera til og margt sem reynir á í tilverunni. „Við eigum öll einhvern tíma slæmar stundir eða daga þar sem við þörfnumst uppörvunar. Þess vegna er nauðsynlegt að finna leiðir til að styrkja sig og ein leiðin er með því að lesa eitthvað gott og gagnlegt. Eitthvað sem tekur ekki endilega langan tíma, heldur eitthvað sem maður getur gripið til í erli dagsins.“ Stafrófsbækurnar, sem eru n ­ ánast vasabækur, er einmitt hægt að lesa hvar sem er og hvenær sem er, bæði í sorg og gleði. En er Petrína ánægð með ­viðtökurnar? „Já, þær hafa verið framar öllum vonum. Margir hafa sagt mér að bækurnar hafi styrkt sig og uppörvað. Í starfi meðal syrgjenda er Stafróf sorgarinnar notuð og margir sem kaupa hana líka til að gefa fólki sem hefur misst. Stafróf gleðinnar er líka töluvert keypt til tækifærisgjafa, því að margir eru að leita að einhverju uppbyggilegu til að geta uppörvað aðra. Ég fékk meira að segja fregnir af því að Stafróf gleðinnar hefði hreinlega skipt sköpum í lífi einnar manneskju, en það gladdi mig mjög. Ég vildi gjarnan að bækurnar snertu við fólki og gæfu því

betri líðan, eins og ég hef oft upplifað sjálf eftir að hafa lesið góðar bækur. Því við þurfum öll á styrkingu að halda í daglegu lífi og getum hvatt okkur sjálf með því að lesa eitthvað uppbyggjandi.“ Nú er verið að endurprenta bókina Salt og hunang sem kom út árið 2016 og er einnig eftir Petrínu Mjöll. Sú bók er af dálítið öðru tagi, en í henni eru íhuganir út frá 366 versum úr Biblíunni, ein fyrir hvern dag ársins. Hvernig kom hún til? „Ég hef lesið Biblíuna frá blautu barnsbeini og hún er sannarlega eftirlætisbókin mín. Það er svo margt gott í henni að finna og hún vekur mig sífellt til umhugsunar um hvernig best sé að lifa. En það er ekki létt að lesa hana og margir sem veigra sér við því. Þess vegna áttar fólk sig ekki alltaf á því hve mikinn fjársjóð hún hefur að geyma.

Sumir halda jafnvel að Biblían sé aðeins fornfálegt trúarrit sem hafi lítið að segja nútímafólki. En því fer fjarri. Margt af því sem fjallað er um í Biblíunni er eitthvað sem við þekkjum vel úr okkar tilveru og getur hjálpað okkur til þess að lifa vel. Þess vegna fannst mér spennandi að skrifa bók út frá völdum ritningar­ versum úr Biblíunni og tengja við hið daglega líf.“ Petrína segist hafa lagt sig fram um að skrifa hugleiðingarnar á mannamáli sem allir skildu. „Þetta hljómar kannski skringilega, en stundum hafa kristilegar hugleiðingar tilhneigingu til að verða svolítið háfleygar og skrifaðar á einhvers konar „himn­e sku“ sem fáir tengja við. Ég valdi vers sem töluðu til mín og voru í miklu uppáhaldi, en einnig vers sem ýttu við mér og vöktu mig vel til ­umhugsunar.“ Petrína segist hafa verið í mörg ár að skrifa bókina. „Fyrst í stað viðaði ég að mér versum og skrifaði svo hugleiðingarnar á löngum tíma. Þá var ýmislegt að gerast í lífi mínu, margt gott og gleðilegt, en einnig ýmislegt sem reyndi verulega á. Ég fann hve gott var að endurspegla tilfinningar mínar í orðum Biblíunnar, finna þar kraft og styrk og deila því með öðrum. Við manneskjurnar erum oftast að glíma við sömu spurningarnar og upplifum sömu tilfinningarnar, þó að kynslóðir skilji að. Við viljum gjarnan lifa góðu lífi í sátt við aðra og hamingjusöm.“


Sr. Grétar ­Halldór ­Gunnarsson. Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson.

HÍB tekur aftur við útgáfu Biblíunnar

H

Rætt við Grétar Halldór Gunnarsson, formann framkvæmdanefndar Biblíufélagsins

ið íslenska biblíufélag hefur annast útgáfu íslenskra Biblía frá stofnun félagsins árið 1815. Árið 2004 samdi félagið við JPV útgáfu um útgáfu og dreifingu nýrrar Biblíu, þeirrar Biblíu sem kölluð er „Biblía 21. aldarinnar“. Þessi samningur var síðan endurnýjaður árið 2015, á 200 ára afmælisári Biblíufélagsins. Nú hefur stjórn félagsins ákveðið að gera upp samninginn við JPV og taka aftur við útgáfu Biblíunnar. Þetta gerist formlega í febrúar á næsta ári. Samningurinn við JPV útgáfu árið 2004 var gerður í aðdraganda nýju biblíuþýðingarinnar sem átti upphaflega að koma út árið 2000, á þúsund ára afmæli kristnitökunnar. Hún dróst og kom út árið 2007 og þá undir merkjum JPV útgáfu. Þetta var ellefta útgáfa Biblíunnar á íslensku og í fyrsta sinn sem bókin var prentuð í tvílit hér á landi. Þar á undan hafði Biblían verið gefin út árið 1981, en sú útgáfa var aðeins bráðabirgðaútgáfa, enda var þá þegar áformað að þýða Biblíuna á ný frá grunni. Biblían hafði ekki verið gefin út í nýrri heildarþýðingu á íslensku síðan árið 1912, nærri 100 árum áður. En hvers vegna lýkur samstarfi JPV útgáfu og Biblíu­ félagsins nú? „Ég var sjálfur ekki í stjórn félagsins í þá daga þegar ákvörðun var tekin um að gera breytingu á tilhögun útgáfunnar árið 2007,“ segir sr. Grétar Halldór Gunnarsson, formaður framkvæmdanefndar Biblíu­félagsins. „En ég man vel að á þeim árum var verið að gera tilraunir víða með að útvista verkefnum. Í tilviki Biblíufélagsins vildu

menn greinilega prófa að útvista útgáfu Biblíunnar til þekkts og reynds bókaútgefanda. Þetta hefur án efa verið spennandi tími á margan hátt. Ný biblíuþýðing var að líta dagsins ljós og atvinnumenn í bókaútgáfu að taka að sér útgáfu heilagrar ritningar. Tilraunin var áhugaverð og án efa margt jákvætt sem kom út úr samstarfi JPV útgáfu og Biblíufélagsins.“ Grétar segir að fljótlega hafi farið að bera á því að samstarfsaðilar Biblíufélagsins, einkum í Sameinuðu biblíu­ félögunum, gerðu athugasemdir við þessa tilhögun. „Þeir litu svo á að það væri mjög óvanalegt að biblíufélag væri ekki aðalútgefandi prentaðrar Biblíu í umdæmi sínu og hvöttu okkur reglulega í samtölum til að endurskoða þetta.“ Grétar segir að hefðbundnir bókaútgefendur hafi ekki alltaf sömu markmið og Biblíufélög. „Biblíufélög leitast fyrst og fremst eftir því að gera Orðið aðgengilegt og vilja þess vegna stundum taka ákvarðanir sem snúast ekki einvörðungu um fjárhagslega arðbærni. Biblíufélög eiga það þess vegna til að nálgast málefni Biblíunnar með öðrum hætti en hefðbundin bókaforlög og hafa önnur markmið.“ Grétar segir að stjórn HÍB hafi rætt málið í þaula áður en ákvörðun var tekin um að ljúka samstarfinu við JPV. „Við kölluðum eftir minnisblöðum og gerðum ýmsar athuganir og niðurstaðan var sú að láta aftur reyna á útgáfu Biblíunnar undir merkjum Biblíufélagsins. Fulltrúar Forlagsins tóku þessari ákvörðun vel og vorum við sammála um að halda dyrum opnum um möguleika á samstarfi í framtíðinni.“


Dreifing ritningarinnar eftir heimsálfum Árið 2018 er talið að Biblíufélög heims hafi dreift 354,6 milljónum biblíurita, þar af 38½ milljón eintaka af Biblíunni sjálfri

Norður-Ameríka

Mið- og Suður-Ameríka

BIBLÍUR

BIBLÍUR

BIBLÍURIT

BIBLÍURIT

3,4 milljónir

14,9 milljónir

4½ milljón

273 milljónir

Evrópa

Afríka

BIBLÍUR

BIBLÍUR

BIBLÍURIT

BIBLÍURIT

MiðAusturlönd

Eyjaálfa

2,9 milljónir

7 milljónir

5,8 milljónir

BIBLÍUR

0,3 milljónir BIBLÍURIT

2 milljónir

9,8 milljónir

BIBLÍUR

Asía BIBLÍUR

9,4 milljónir BIBLÍURIT

58,6 milljónir

0,6 milljónir BIBLÍURIT

0,7 milljónir


20  B+

Af vettvangi starfsins

A

Aðalfundur var haldinn í Herkastalanum

ðalfundur Hins íslenska biblíufélags var haldinn í nýjum höfuðstöðvum Hjálpræðishersins að Suðurlandsbraut 72 miðvikudaginn 21. apríl sl. klukkan fimm síðdegis. Á fundinum var farið yfir verkefni liðins starfsárs. Mikil ánægja ríkti á fundinum, enda hefur verið unnið að mörgum spennandi verkefnum á liðnu ári og mörg fleiri verkefni eru í deiglu. Sést það vel á því að þegar starfsskýrsla stjórnar var send félagsmönnum með tölvu-

pósti glöddust sumir þeirra svo mjög að þeir juku styrktarupphæð sína til Biblíufélagsins til muna. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson, formaður framkvæmdanefndar, flutti skýrslu stjórnar þar sem sagt var frá þeim mörgu verkefnum sem voru mest áberandi í starfi félagsins á liðnu starfsári. Hægt er að nálgast skýrslu stjórnarinnar á vef félagsins, biblian.is. Biblíufélagið óskar Hjálpræðishernum til hamingju með glæsileg húsakynni og þakkar þá miklu gestrisni sem þar er að finna.

Stjórn Biblíufélagsins 2021–2022 Á aðalfundi Biblíufélagsins 21. apríl sl. varð ein breyting á stjórn félagsins. Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir gekk úr stjórn og í hennar stað kom Ásta Guðrún Beck. Stjórn félagsins frá 2021–2022 er þannig skipuð: Forseti félagsins er Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, en önnur í stjórn eru Ásta Guðrún Beck, lögfræðingur, Fjalar Freyr Einarsson, kennari, aga- og uppeldisráðgjafi, Grétar Halldór Gunnarsson, prestur, Guðni Már Harðarson, prestur, Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri, Irma Sjöfn Óskarsdóttir, prestur, Kristján Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri og Sveinn Valgeirsson, prestur.

Aukinn sýni­ leiki Biblíunnar á samfélags­ miðlum Í upphafi árs 2018 var íslenska biblíuþýðingin fyrst gerð aðgengileg í snjallforriti YouVersion. Síðan þá hafa meira en 15 þúsund notendur sótt íslenska biblíutextann. Á biblíuappinu er ekki bara hægt að lesa ritningarnar, heldur er auðvelt að útbúa þar myndir með ritningarversum. Þetta hefur gert það að verkum að fjöldamargir deila reglulega ritningarversum á samfélagsmiðlum. Samkvæmt tölum úr appinu var 4.385 biblíuversum á íslensku deilt í appinu og á öðrum samfélagsmiðlum á síðasta mælingaári. Sýnileiki Biblíunnar á samfélagsmiðlum heldur áfram að aukast við þetta. Við þetta bætist að myndskreytt ritningarvers birtast jafnframt daglega á Facebooksíðu Biblíufélagsins. Að jafnaði sjá 1.142 einstaklingar hverja færslu og allt stuðlar þetta að því að Biblían verði sýnilegri á vettvangi samfélagsmiðlanna.


B+  21

O

Orð kvöldsins á allar veitur

rð kvöldsins á netinu, hvern dag ársins, er loks orðið að veruleika eftir að hafa verið lengi í farvatninu. Í reynd er um að ræða samstarf Biblíu­ félagsins, Kristilegs félags heilbrigðisstétta og útvarpsstöðvarinnar Lindarinnar. Það er virkilega ánægjulegt að nú sé ekki bara búið að taka upp efnið, heldur að ný tækni geri það aðgengilegra en áður var talið að það gæti orðið. Efnið er aðgengilegt á sérstakri vefsíðu á slóðinni ordkvoldsins.is sem var útbúin af Halldóri Elíasi Guðmundssyni. Þá gerði hann einnig efnið aðengilegt á Apple PodCasts,

Spotify, Google PodCasts og PodBean. Höfundar og flytjendur efnis eru: Bergþóra Baldursdóttir, sr. Díana Ósk Óskarsdóttir, sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, Guðlaugur Gunnars­son, Guðmundur Brynjólfsson djákni, sr. Sveinn Valgeirsson og sr. Valgeir Ástráðsson. Píanóundir­spilið við lestrana samdi Ragnhildur Ásgeirsdóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir flutti. Útvarpsstöðin Lindin sá um upptökur á efninu og við erum sérstaklega þakklát starfsfólki Lindarinnar, Stefáni Inga Guðjónssyni og Hafsteini Gauti Einars­s yni útvarpsstjóra, fyrir þeirra vinnu.

Dreifing á Biblíum og biblíu­ sögum á Haíti gengur vel Jólasöfnun Hins íslenska biblíufélags í fyrra rann til Biblíufélagsins á Haítí. Félagið á Haítí styður við skólastarf með því að útvega skólum og kirkjum Biblíur og lestrarbækur með biblíusögum við hæfi barna. Nú í maí skilaði Biblíufélagið á Haítí

áfangaskýrslu um verkefnið þar sem fram kemur að frá janúar og fram í apríl nú í ár hefur 2.599 biblíusöguritum, 2.015 Nýja testamentum og 1.008 Biblíum verið dreift í átta skóla í landinu. Áætlað er að verkefnið haldi áfram út desember 2021.

Biblíuapp fyrir börn langt komið Biblíufélagið styrkti hóp fólks sem vill gera erlent Biblíu­ app fyrir börn (e. Bible App For Kids) aðgengilegt á íslensku. Félagið styrkti verkefnið um eina milljón króna. Biblíuappið fyrir börn er gagnvirkt og gerir biblíufróðleik skemmtilegan og aðgengilegan fyrir yngstu kynslóðina. Einar Aron Fjalarson og Styrmir Hafliðason stýra verkefninu. Þeir hafa fengið Guðjón Davíð Kalrsson leikara til að sinna leiklestri og Stúdíó Lindarinnar til að sinna upptökum. Biblíufélagið bíður spennt eftir því að sjá afrakstur verkefnisins.

Útgáfa nýrrar altaris­biblíu fyrirhuguð Allmörg ár eru liðin síðan prentuð var íslensk altarisbiblía. Víst er að margar kirkjur vilja gjarnan hafa slíka Biblíu, sem fer vel á altari og er með stærra letri en venjulegar Biblíur. Það þykir enda ekki við hæfi að hið heilaga orð sé lesið af pappírssneplum í guðsþjónustu. Hið íslenska biblíufélag athugar nú grundvöll þess að gefa út slíka Biblíu. Að mörgu er að huga í þeim efnum. En þau sem lengi hafa beðið eftir altarisbiblíu geta huggað sig við það að verið er að skoða hvar og hvernig væri best að útbúa slíka Biblíu.

Innheimtu félags­gjalda með greiðslu­ kortum hætt Undanfarin ár hefur félagsfólk Biblíu­ félagsins getað látið skuldfæra félags­g jöld sjálfvirkt af greiðslukorti og hefur á annan tug félagsfólks nýtt sér þá þjónustu. Nú í lok júní 2021 ákvað SaltPAY að loka á þessa þjónustu og því mun allt félagsfólk fá greiðsluseðla í heimabanka nú í ár fyrir félagsgjöldum.


L ÆSI

1 milljarður manna

kann hvorki að lesa né skrifa

500 milljónir eru konur 250 milljónir eru karlar 250 milljónir eru börn sem ná ekki grunnfærni í lestri og skrift

Átaksverkefni Sameinuðu biblíufélaganna Allt að 30 átaksverkefni á ári á 60 ólíkum tungumálum

162.000

manns nutu góðs af 2018

Átaksverkefni Biblíu­félaganna í læsi njóta viðurkenningar UNESCO


B+  23

Litla Biblían fer sigurför um heiminn

Að ná til næstu kynslóðar

B „En halt þú stöðuglega við það sem þú hefur numið þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það. Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.“ 2Tím 3.14

örn og ungmenni eru framtíðin – framtíð fjölskyldna okkar, kirkjunnar, samfélagsins alls. Sameinuðu biblíufélögin líta á það sem forgangsverkefni að hjálpa ungmennum að uppgötva visku Biblíunnar og verða læs á fagnaðarerindið. Hvernig félögin standa að því er misjafnt eftir löndum og fer að sjálfsögðu eftir aðstæðum hverju sinni. Mörg Biblíufélög í Afríku hafa unnið þrekvirki við lestrarkennslu og -þjálfun. Forsendurnar liggja fyrir, að gera fólki kleift að lesa Guðs orð á sínu móðurmáli. Malaví er eitt þéttbýlasta land Afríku og eitt það fátækasta í álfunni. Samgöngur eru víða lélegar og rafmagn óstöðugt. Heilbrigðisþjónusta er af skornum skammti. Brottfall barna úr skólum er mikið áhyggjuefni. Talið er að allt að 32% stúlkna hætti skólagöngu á tólfta aldursári. Biblíufélagið í Malaví hefur verið að dreifa barnabiblíum í sunnudagaskólana undanfarin ár. Það hefur glatt börn, foreldra og kennara óumræðilega. Kirkja ein í Blantyre, annarri stærstu borg landsins, fékk bókasendingu frá félaginu árið 2018 og sagði að börnum hefði fjölgað í sunnudagaskólanum úr 80 í 250 í kjölfarið. „Þetta verkefni gæti breytt Malaví,“ fullyrðir ­Joseph Khondowe, fulltrúi Biblíufélagsins þar í landi. „Fleiri börn sjást nú í kirkjunum og biblíuþekking þeirra dýpkar.“ Drengurinn á myndinni heitir Gift. Hann er 12 ára og sést hér taka við barnabiblíu í sunnudagaskólanum sínum í Malaví. „Ef Guð er skapari minn og sá sem hjálpar mér, þá vil ég kynnast honum, í gegnum þessa Biblíu.“

Ríkulega myndskreytt bók handa börnum með 60 sögum úr Biblíunni.

Í

fyrra kom út hjá Skálholts­ útgáfunni fallega myndskreytt bók handa börnum sem heitir Litla Biblían. Höfundur­inn er Sally Ann Wright en myndskreytingarnar eru eftir Honor Ayres. Karl Sigurbjörns­son þýddi bókina á íslensku. Í bókinni eru sagðar sextíu sögur úr Biblíunni. Í þeim læra börnin um kærleika, umhyggju, hugrekki, vináttu, virðingu og um það að hið góða sigrar. Sögurnar eru svo sannarlega innihaldsríkar og eftirminnilegar, en inni á milli má finna bænir og vers til að fara með í önnum hversdagsins. Fremst í bókina má skrifa minningar um mikilvæg þroskaskref barnsins. B+ mælir með þessari bók fyrir allt fjölskyldufólk, en bókin hefur farið sigurför um heiminn.


24  B+

Tryggur förunautur á langri ævi Arnar Jónsson leikari verður senn 79 ára, en hann hefur aldrei haft jafnmikið að gera og eftir að hann hætti að vinna. Hann hefur nýlokið við að lesa 1. Mósebók inn á hljóðbók sem verður aðgengileg á Biblíuvefnum innan tíðar.


B+  25

„Meðan ég hef röddina ætla ég að halda mig við það að koma einhverju frá mér“

Arnar Jónsson. Mynd: Jón Svavarsson.

A

rnar Jónsson er einn ástsælasti leikari landsins, en það vill svo til að hann er löngu hættur að vinna — eða ­þannig. Hann segist aldrei hafa haft jafnmikið að gera og eftir að hann lét af störfum. Hann hætti á föstum samningi hjá Þjóðleikhúsinu fyrir nærri áratug, þegar hann varð sjötugur, en hann er ennþá fullur af starfsorku sem hann beinir í ýmsar áttir. „Það er enginn afsláttur gefinn,“ segir hann þegar B+ hittir hann að máli í hljóðverinu í Ármúla, þar sem hann

hefur nýlokið við að lesa inn 1. Mósebók. „Ég er að leika í Rómeó og Júlíu sem stendur, en sonur minn plataði mig út í það. Svo er ég að lesa mikið inn, t.d. fyrir Storytel og ykkur, en einnig er ég kallaður talsvert til þegar lesa þarf upp vítt og breitt um bæinn.“ Leikarinn með silkiröddina er mikið fenginn til að lesa upp ljóð, og hann segist sjálfur hafa mikið dálæti á ljóðlist. Yrkir hann kannski sjálfur? „Aðeins til heimabrúks. Hvernig litist þér á það að ég gæfi út ljóðaupplestur á vínilplötu? Og kannski bók með?“ spyr hann í fullri alvöru. Arnar sást lesa upp í útför vinkonu sinnar, Vilborgar Dagbjartsdóttur, skáldkonu og kennara, sem féll frá í september. Einnig heyrðist hann lesa upp í útgáfuhófi í Iðnó um daginn þegar Guðni Elísson egndi Ljósgildrunni fyrir landann. Þegar píanósónötur Beethovens voru fluttar í Salnum í Kópavogi í október flutti Arnar fróðleiksmola á milli atriða um tónskáldið. Arnar segir að flestir dagar séu þéttskipaðir og hann fari því snemma á fætur. „Dagurinn byrjar oftast klukkan hálf átta í ræktinni, svo fer ég að lesa inn til hádegis. Ég á stundum vinnufundi eftir hádegi og hitti síðan einn eða tvo vini og drekk með þeim kaffi í miðbænum þar sem ég á heima. Ég tek varla eftir því að ég sé að eldast. Meðan ég hef röddina ætla ég að halda mig við það að koma einhverju frá mér. Ég hef mikla ánægju af því. Síðan stunda ég golf og það gerir mér gott.“ Biblían hefur verið tryggur förunautur Arnars á langri ævi. „Karl faðir minn var meðhjálpari í Akureyrarkirkju áratugum saman, þannig að bók bókanna varð snemma áberandi og kunnugleg. Þá veit ég ekki hvað ég hef leikið marga presta um ævina, t.d. lék ég Kaj Munk. Trúartextar eru mér margir tamir á tungu. Ég las alla Passíu­ sálmana í Hallgrímskirkju á sínum tíma og þeir eru mér afar kærir. Einnig las ég Lúkasarguðspjall á sama stað. Þannig að það er eitt og annað sem ég hef nálgast úr þessari áttinni, þó að ég geti ekki sagt að ég sé kirkjurækinn maður.“ Arnar segir að margir áhrifaríkir biblíutextar séu samofnir lífinu. „Það er afskaplega fátt í lífi okkar, hvar sem við stöndum trúarlega, sem hefur ekki einhvern snertiflöt við texta Biblíunnar. Það væri alveg fráleitt af mér, jafnvel þótt ég lýsti því yfir að ég væri trúlaus, að segja að ekkert í Biblíunni hreyfði við mér. Fyrir utan það að ég er mikill ljóðaunnandi og hef mikla unun af því að lesa ljóðatexta. Ég var t.d. á dögunum að lesa inn nokkra Passíu­s álma í hljóðverinu hjá Gísla í Hljóðbók, bara svona prívat. Draumurinn er að setja upp heimasíðu þar sem eitthvað af upplestri mínum á gullaldartextum g ­ etur varðveist.“


Þinn er dagurinn og þín er nóttin, þú gerðir ljós og sól, þú ákvaðst öll mörk jarðar, sumar og vetur gerðir þú. Sálmarnir 74.16–17


28  B+

MYND: KRISTÍN BOGADÓT TIR

„Tek alltaf nýjum bæklingi tveim höndum“ Oddný Garðarsdóttir segist hafa lært að lesa Biblíuna með „renningnum“ frá Biblíufélaginu. Skráin liggur jafnan inni í Biblíunni hennar eins og bókamerki á hverju ári. „Ég er alveg undrandi hvað ég er búin að lesa mikið í Biblíunni.“ Oddnýjarbiblía

O

ddný kynntist Biblíunni fyrst fyrir alvöru þegar hún fór að taka þátt í starfi Aglow, þverkirkjulegri hreyfingu kristinna kvenna. Hreyfingin starfar í yfir 170 löndum, þar á meðal á Íslandi. „Starfið í A ­ glow er þannig vaxið að þar er verið að fræða konur um lestur Biblíunnar, sérstaklega konur sem koma nýjar inn. Þær hafa verið að nota lestraskrá Biblíufélagsins og þetta tileinkaði ég mér sjálf. Ég lærði bein-

línis að nota Biblíuna með þessum renningi, lærði að fletta upp í ritningunni á hverjum degi og tileinka mér hana. Áður en ég fór að starfa með Aglow hafði ég ekki lesið mikið í Biblíunni. Þegar ég var síðan orðin nokkuð sjóuð í starfi Aglow og þurfti sjálf að finna einhver ritningarorð til að flytja á fundum, þá sá ég að ég var búin að lesa býsna mikið í Biblíunni. Það kom sjálfri mér dálítið á óvart. Maður les ótrúlega mikið í Biblíunni á einu ári ef maður notar bæklinginn.“ Oddný segist þekkja margt fólk sem


B+  29

„Maður les ótrúlega mikið í Biblíunni á einu ári ef maður notar bæklinginn“ noti bæklinginn eins og hún. „Það geymir skrána inni í Biblíunni sinni og handfjatlar hana daglega. Og margt af þessu fólki les gjarnan eitthvað meira, t.d. það sem fer á undan versi dagsins, svo að það fái samhengið.“ Oddný er sannkölluð kirkjukona, en hún starfaði um langt árabil sem meðhjálpari í Landakirkju í Vestmannaeyjum. „Ég er fædd og uppalin austur á Breiðdalsvík, en maðurinn minn er Vestmanneyingur og við fluttumst út í Eyjar 1980 og bjuggum þar í 35 ár. Vinkona mín, Vera Björk Einarsdóttir, sem bjó á móti mér í götunni, starfaði með mér í Landakirkju. Við vorum saman með mikið starf í kirkjunni, þar á meðal Aglow, einnig sporastarf og kyrrðarbæn. Þá komu framhaldshópar í sporunum síðar, sem við leiddum einnig.“ Þau hjónin fluttust upp á land ­f yrir fjórum árum. Hvernig kom það til? „Maður­inn minn fór að vinna uppi á landi tímabundið, en ílengdist svo í starfi. Börnin voru farin að heiman og ég var orðin ein eftir úti í Eyjum og þvældist bara á milli. Það var ekki gagnlegt.“ Oddný segist sakna vinnunnar í kirkjunni. „Þetta var svo gjöfult og gott starf, og svo er bara svo gott að vera í kirkjubyggingunni sjálfri og vinna þar. Ég kynntist mörgu frábæru samstarfsfólki sem ég met mikils.“ Nú tekur Oddný m.a. þátt í að leiða tólfsporahópa í Grensáskirkju. „Ég er með bæk­ling Biblíufélagsins í sporahópunum og hann gefst vel þar. Fæstir sem koma inn í þetta starf hafa lesið mikið í Biblíunni. Margir segjast einfaldlega ekki kunna að nota hana. Starfið snýst mikið um það að lesa Orðið og jafnframt að biðja. Lestra­skráin nýtist þessu fólki vel.“ Oddný rifjar upp þegar öðruvísi bæk­ lingur kom á afmælisári Biblíufélagsins árið 2015. „Þá átti að lesa Biblíuna alla á einu ári. Ég man að það var dálítið kvíðvænlegt — og strembið. Mér fannst það mikil hraðferð, mikið span. Sporavinnan í kirkjunni er 30 vikur og stundum hefur fólk verið að fara hraðferð í sporavinnunni, taka fjallabaksleiðina, og þá tekur það hópavinnuna á helmingi styttri tíma. Mér fannst þetta vera svona svipað

með þennan bækling, allt var keyrt með miklum hraða. Mér fannst það ekki skilja nógu mikið eftir, þetta var meira svona bara það að vera að lesa.“ Þegar nýja biblíuþýðingin kom 2007 gaf Oddný börnunum sínum nýjar Biblíur í jólagjöf. „Sá yngsti fór samviskusamlega að lesa og byrjaði bara á fyrstu blaðsíðu, eins og vant er. Hann kom fljótlega til mín og sagði: „Mamma, það er svo leiðinlegt að lesa alla þessa ættartölu, þarf maður endilega að gera það?“ Ég ráðlagði honum að byrja á guðspjöllunum. Ég legg gjarnan til við nýliða að byrja á Nýja testamentinu og Sálmunum.“ Oddný hóf störf í Kirkjuhúsinu í febrúar 2018 og þar líkar henni vel að vinna. „Skálholtsútgáfan er forlag sem lítið lætur yfir sér í jólabókaflóðinu, þótt ýmsar bækur þess séu sannkallaðar jólabækur með tilliti til innihalds og boðskapar.“ Sjálf er Oddný meðhöfundur bókarinnar Móðir, missir, máttur sem kom út hjá Skálholtsútgáfunni árið 2017 og vakti mikla athygli. „Við skrifuðum þessa bók saman þrjár vinkonur eftir að ég fluttist frá Eyjum, Vera Björk Einarsdóttir, Þóranna Sigurbergsdóttir og ég.“ Í bókinni eru frásagnir þeirra þriggja af barnsmissi og hvað varð þeim til hjálpar. „Við vorum lengi að skrifa þessa bók, og það var erfið vinna. Samt mikil og góð úrvinnsla fyrir okkur allar, og einnig fyrir maka okkar og börn.“ Oddný segir að það hafi verið m ­ ikill léttir að ljúka bókinni. „Þegar bókin kom út og það var útgáfuhóf í Kirkjuhúsinu, þá leið mér eins og ég væri að útskrifast. Það var svo margt sem ég var búin að ganga frá. Ljúka.“ Á nærgætinn hátt draga þær stöllur upp mynd af þeim mikla missi sem þær urðu fyrir. En missirinn varð að mætti og þær segja frá því á hispurslausan hátt hvernig þær fundu von í þrengingum sínum. „Í Biblíunni hef ég auðvitað fundið þau huggunarorð sem ein duga við svo erfiðar aðstæður. Ég þvælist með Biblíuna með mér, hef hana gjarnan í töskunni. Það er þægilegt að vera með haldreipið sitt innan seilingar í amstri dagsins.“

Biblíulestrar 2022 Eins og fyrri ár fylgir blaðinu bæk­l ingurinn Biblíulestrar þar sem tilgreindir eru textar fyrir hvern dag ársins 2022 til að lesa og hugleiða. Fyrir þessu er löng hefð hjá Biblíu­ félögum víða um heim og er skráin notendum að kostnaðarlausu. Fólk sem skráð er í félagið fær bæklinginn sendan heim. Hann liggur einnig frammi í flestum kirkjum og safnaðarheimilum landsins. Lesáætlunin er gefin út á hverju ári til að auðvelda fólki að lesa í Biblíunni daglega. Áætlunin nær yfir heilt almanaksár og er þannig úr garði gerð að hana má leggja inn í Biblíuna eins og bókamerki. Þetta er 17. árið í röð sem skráin er gefin út með þessum hætti, en þetta fyrirkomulag hefur gefist vel. Notendur geta merkt jafnóðum við lestrana til þess að fylgjast betur með framvindunni. Rétt er að vekja athygli á því að aftast í Biblíunni er bent á texta sem gott er að lesa við ýmis tækifæri í lífinu. Þar er m.a. vísað á ritningarstaði sem margir þekkja, t.d. Fjallræðuna, Óðinn til kærleikans, frásagnirnar af góða hirðinum, glataða syninum og lækningum Jesú, auk ­ýmissa annarra texta til að lesa í gleði og til huggunar í sorg.


30  B+

Edda Möller. Mynd: Kristín Bogadóttir.

Bók Sigurðar Pálssonar í nýjum búningi Sigurður skrifaði bók um sorg barna sem hefur reynst ómissandi fyrir fjölda starfsstétta. Hann var heiðursfélagi Biblíufélagsins.

S

kálholtsútgáfan hefur endur­útgefið bók sr. Sigurðar Pálssonar, Börn og sorg. Bókin kom fyrst út árið 1998 og var orðin uppseld. Edda Möller, fram­ kvæmda­stjóri Skál­holts­út­gáf­unn­ar, segir að það hafi verið mjög brýnt að gefa bókina út að nýju af því að það var svo mikil eftirspurn eftir henni. „Hún bætti úr brýnni þörf þegar hún kom fyrst út og hefur elst afar vel. Hún er ómissandi hjálp í aðstæðum sem eru þungbærar og krefjandi,“ segir Edda. Fljótlega eftir að bókin var gefin út kom í ljós að hún náði beint til fólks sem hefur þurft að tala við börn um andlát ástvina og þá sorg sem fylgir í kjölfarið. Henni var vel tekið vegna þess að höfundurinn fjallar um þetta af mikilli þekkingu og innsæi, nærfærni og skilningi. „Bókin reyndist einkar heppileg ýmsum starfsstéttum og var strax notuð

í hjúkrunar­námi, uppeldisfræði- og kennara­námi, guðfræði- og djákna­námi, framhaldsskólum og hjálpar- og áfallahópum,“ segir Edda. Sorgarmiðstöðin hvatti eindregið til endurútgáfu bókarinnar og tók þátt í kostnaði við útgáfuna. Sigurður var mikilvirkur guðfræðingur og prestur sem lauk doktorsprófi í menntunarfræði frá Kennaraháskóla Íslands. Hann var kennari við KHÍ og námsstjóri í kristnum fræðum og fíknivörnum um árabil og skrifaði kennsluefni í kristinfræði fyrir grunnskóla. Hann var sóknarprestur við Hallgrímskirkju og virkur í starfi KFUM og KFUK og KSH. Edda segir að texti bókarinnar sé á auðskildu og vönduðu máli. „Það er ekki öllum gefið að ræða og skrifa um þann nístandi veruleika sem blasir við sumum börnum þegar þau missa til dæmis foreldri sitt eða systkini sín. Sigurður var ekki aðeins prestur, heldur kennari og

uppeldisfrömuður sem hlustað var á. Hann var afar vel ritfær maður, snjall ræðumaður og fyrirlesari,“ segir Edda. Þriðji hluti bókarinnar fjallar um það hvað skólarnir geta gert þegar dauðinn kveður dyra. „Sigurður lét sig það mál miklu varða,“ segir Edda. „Hann taldi óhjákvæmilegt að fræðslu um dauðann, missi og sorg, væri sinnt á vettvangi skólanna af því að æ meiri kröfur eru gerðar til þeirra um uppeldi og umönnun.“ Við undirbúning annarrar útgáfu bókarinnar gerði Skálholtsútgáfan óformlega könnun á því hvar skólarnir standa í þessu efni, nú þegar rúm tuttugu ár eru liðin frá því að bókin kom fyrst út. Edda segir að könnunin hafi leitt í ljós að margir skólar hafa komið sér upp viðbragðsáætlun með hagnýtum ráðum fyrir starfsfólk til að bregðast við andláti, slysi eða alvarlegum veikindum. Þessar áætlanir byggist ekki síst á tillögum Sigurðar Pálssonar. Börn og sorg er 112 blaðsíður og í þægilegu broti. Edda segir að engar breytingar hafi verið gerðar á efni bókarinnar í annarri útgáfu að undanskildu talnaefninu. „Talnaefnið uppfærðum við ekki síst vegna þess að Hagstofa Íslands hóf í fyrsta sinn að birta tölur um börn sem missa foreldri árið 2019. Við bættum þeim upplýsingum við í samráði við fjölskyldu Sigurðar.“ Sigurði var Biblían mjög hjartfólgin og hann var ötull stuðningsmaður Hins íslenska biblíufélags alla tíð. Hann var framkvæmdastjóri félagsins árin 1990– 1997 og sat í stjórn þess 1998–2012. Hann sat í þýðingarnefnd Gamla testamentis­ ins árin 1990–2007. Árið 2015 var hann kjörinn heiðursfélagi Biblíu­félagsins.


Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fyllstu gnægð. Jóhannesarguðspjall 10.10


grátt

LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Um helgar 11–16 | www.forlagid.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
B+ 2021 by Hið íslenska biblíufélag - Issuu