Skip to main content

B+ 2018

Page 1

B+

BLAÐ BIBLÍUFÉLAGSINS 2018

Biblían á appi Á Gamla testamentið erindi í prédikun presta á okkar dögum?

GRÆN GUÐFRÆÐI

Er siðbót svarið við umhverfisvandanum? GARÐURINN SEM VAR OG ER


ÖNDVEGISTEXTAR VESTRÆNNAR MENNINGARSÖGU

Þess vegna get ég ekki og ætla ekki að taka neitt aft ur, því að það er hvorki ráðlegt né hollt að breyta gegn samvisku sinni.

2 bindi 27 rit 812 síður BÆ Ð

I BIND

9.800 kr. Í KIRK

Kirkjuhúsið | Laugavegi 31 | 101 Reykjavík skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is |

☎ 528-4200

JUHÚ

IN

SINU


B+ BLAÐ BIBLÍUFÉLAGSINS 2018 Hið íslenska biblíufélag Laugavegi 31 101 Reykjavík FORSETI HINS ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAGS Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands AÐRIR Í STJÓRN FÉLAGSINS Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari Áslaug Björgvinsdóttir, héraðsdóms­lögmaður Guðni Einarsson, blaðamaður Sr. Guðni Már Harðarson Sr. Grétar Halldór Gunnarsson Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor Rúnar Vilhjálmsson, prófessor VERKEFNASTJÓRI Guðmundur Brynjólfsson PÓSTÁRITUN Pósthólf 243 121 Reykjavík SÍMI 528-4004 NETFANG hib@biblian.is VEFFANG www.biblian.is RITNEFND Grétar Halldór Gunnarsson Guðmundur Brynjólfsson Gunnlaugur A. Jónsson HÖNNUN OG UMBROT Brynjólfur Ólason PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja FORSÍÐUMYNDIN Ungur maður með snjallsíma í hönd. Nú er Biblían aðgengileg á appi á íslensku. Sjá umfjöllun á bls. 14. Mynd: Shutterstock.

Fylgt úr hlaði

B+

FRÁ VERKEFNASTJÓRA

B

iblían er aflmesta bók í heimi. Bóka sterkust og áhrifamest. Útbreiðsla hennar er einstök. Samt eru enn stór landsvæði og fjölmennar þjóðir eða þjóðabrot sem hafa ekki aðgang að þessari mögnuðu bók; bók bókanna eins og hún er svo oft nefnd. Hið íslenska biblíufélag hefur það meðal annars á sinni könnu, ásamt fjölda annarra biblíufélaga um víða veröld, að breiða boðskapinn út og dreifa Biblíunni til þeirra sem ekki hafa haft aðgang að henni hingað til. Stundum hefur aðgangur að hinni helgu bók verið takmarkaður vegna ofstækis í stjórnmálum, stundum hefur fátækt ráðið því að stórir hópar hafa ekki fengið að kynnst Biblíunni — og sjálfsagt má tína til enn fleiri ástæður. En ástæðurnar skipta okkur litlu í biblíufélögum heimsins; við vinnum að því að fylla í þær holur sem eru biblíulausar, ef svo má að orði komast. Og þær holur eru margar og þær er víða að finna. Til þess að við getum staðið okkur sem best í þessari göfugu baráttu þá þurfum við líka að vera sterk heild á heimavelli; við félagarnir í Hinu íslenska biblíufélagi þurfum að huga að okkar minnstu bræðrum og systrum í þessu mikilvæga efni — svo sem í öllum málefnum. Um síðustu áramót tók sá sem þetta skrifar við sem verkefnisstjóri Hins íslenska biblíufélags í 50% starfshlutfalli. Þetta er í raun og veru sama starf og hingað til hefur verið kallað framkvæmdastjóri. Hvað það er kallað skiptir engu máli — heldur sú staðreynd að ég hef verið kallaður til starfsins, ég tek auðmjúkur við því og mun gera mitt besta. Titlar skipta engu, nema jú einn: Biblían. Kær kveðja og Guðs blessun, Guðmundur Brynjólfsson

MUNIÐ SÖFNUNARREIKNING BIBLÍUFÉLAGSINS Reikningur 0101-26-003555 Kennitala 620169-7739

3


4   B+

Jón Ómar Gunnarsson

Á Gamla testamentið erindi í prédikun presta á okkar dögum?

E Sr. Jón Ómar Gunnarsson.

ins og flestum lesendum B+ er kunnugt um, er Biblían samsett úr tveimur meginhlutum; Gamla testamentinu og Nýja testamentinu, þar að auki eru apókrýf rit Gamla testamentisins gefin út með biblíuútgáfunni frá 2007. Af þessu má draga þá augljósu ályktun að Gamla testamentið og rit þess skipta þau máli sem vilja leita sér aukins skilnings á ritum Nýja testamentisins og sannindum kristinnar trúar. Af sömu ástæðu hafa textar Gamla testamentisins verið lesnir við almennar guðsþjónustur og stundum er lagt út af þeim samhliða öðrum textum dagsins eða til að styðja við útleggingu guðspjallsins. Rit Gamla testamentisins eru kristnu fólki mikilvægur

frásögur Gamla testamentisins fá aukið vægi sem prédikunartextar. Kirkja mótmælenda í Þýskalandi (þ. Evangelische Kirche Deutschland) hefur einnig endurskoðað sína textaröð með það fyrir augum að fjölga prédikunartextum úr Gamla testamentinu. Textaröð þjóðkirkjunnar býður upp á fjölda texta úr Gamla testamentinu sem eiga tvímælalaust erindi við trúað fólk á okkar tímum. Í ljósi þess er áhugavert að velta því fyrir sér hvort íslenskir prédikarar og prestar ættu að leggja í auknum mæli út af textum Gamla testamentisins í prédikunum sínum? Ég tel því auðsvarað, auðvitað ættum við að leggja út af ritum Gamla testamentisins í prédikunum okkar og langar mig að nefna nokkrar ástæður því til stuðnings hér.

„Jesús Kristur kom ekki inn í heiminn óvænt því hans var vænst af fólkinu sem las rit Gamla testamentisins.“ vitnisburður um Guð og þau ætti alls ekki að vanrækja í boðun kirkjunnar. Það ætti eflaust að gera meira af því að leggja út af textum Gamla testamentisins í prédikun til stuðnings guðspjallstexta sunnudagsins, en jafnframt væri eftirsóknarvert í ákveðnum tilvikum að hafa rit Gamla testamentisins að meginprédikunartexta. Í Bandaríkjunum hafa verið gerðar tilraunir með svokallaða frásagnartextaröð (e. narrative lectionary) þar sem

Í fyrsta lagi voru rit Gamla testamentisins sú Biblía sem Jesús sjálfur las. Hann hefur líkt og samtímafólk hans beðið með bænarorðum Davíðssálmanna og sungið lofsöngva þeirra, lært um Guð forfeðranna, Móse og spámennina. Í boðun sinni lagði Jesús sjálfur út af textum Gamla testamentisins: „Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. Var honum fengin bók


B+

5

Fórn Abrahams. Málverk eftir Giovanni Battista Pittoni (1687–1767), feneyskan málara frá barokktímanum. Varðveitt í San Francesco della Vigna kirkjunni í Feneyjum. Olía á striga, 118 x 155 cm. Frásagan er í 1Mós 22. Mynd: Wikipedia. Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn þar sem ritað er: Andi Drottins er yfir mér af því að hann hefur smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, boða bandingjum lausn og blindum sýn, láta þjáða lausa og kunngjöra náðarár Drottins. Síðan lukti Jesús aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður en augu allra í samkundunni hvíldu á honum. Hann tók þá að tala til þeirra: „Í dag hefur ræst þessi ritning í áheyrn yðar“ (Lúkasarguðspjall 4.16–21). Jesús og lærisveinar hans tóku í arf trúararf forfeðra sinna og þar var Gamla testamentið og boðskapur þess í aðalhlutverki. Það var á þeim grunni sem lagður er í ritum Gamla testamentisins sem hin fyrstu kristnu skildu líf, dauða og upprisu Jesú. Frumkirkjan deildi fyrst um sinn helgiritasafni með Gyðingum og það var í ljósi túlkunarramma gyðingdómsins sem hin fyrstu kristnu túlkuðu líf, dauða og upprisu Jesú Krists. Sú hefð hefur haldist allt fram á þennan dag, enda eru textar spámannarita Gamla testamentisins í aðalhlutverki á aðventunni þegar kirkjan minnist tímans þegar frelsarans var beðið með eftirvæntingu. Kristið fólk á öllum tímum hefur leitað styrks og visku fyrir sitt dagalega líf í rit Gamla testamentisins. Í ritum Gamla testamentisins mætum við líka litríku myndmáli spámannanna, dómsorðum þeirra og einnig vonarboðskap ritanna sem vísa á Jesú Krist. Frásögur Gamla testamentisins ásamt hinum fjölmörgu ólíku ritum og bókmenntaformum þess auðga trú okkar og vitnisburð, ásamt því að veita trúnni á Jesú guðfræðilegt og sögulegt samhengi. Það er í okkur í raun

ómögulegt að öðlast nokkurn skilning á því sem Guð vill koma til leiðar í veröldinni fyrir líf, dauða og upprisu Jesú án þess að geta leitað í ritin sem vísa á hann. Gamla testamentið lýsir því fyrir okkur hvernig Guði er annt um sköpun sína, jörðina og fólkið sem hana byggir og hvernig Guð aftur og aftur leitar færis á því að sýna fólkinu sem skapaði elsku sína. Hinn fjölbreytti vitnisburður Gamla testamentisins, fyrst um samferð Guðs og manns og síðan um samferð Guðs og hinna fornu Hebrea, getur orðið okkur innblástur í hinum fjölbreyttu aðstæðum daglegs lífs. Það eru ótal ástæður fyrir því að prestar ættu í auknum mæli að leggja út af ritum Gamla testamentisins í prédikunum sínum. Hér hefur aðeins verið minnst á nokkur þeirra. Gamla testamentið er órofa hluti af kristinni hefð og ef kirkjan vanrækir Gamla testamentið í boðun sinni eigum við það á hættu að glata mikilvægum hluta af trúarhefðinni. Jesús Kristur kom ekki inn í heiminn óvænt því hans var vænst af fólkinu sem las rit Gamla testamentisins. Guðspjöllin og önnur rit Nýja testamentisins vísa aftur og aftur til Gamla testamentisins til þess að sýna með hvaða hætti Jesús Kristur væri uppfylling fyrirheita Guðs. Kirkja sem vill miðla boðskapnum um Jesú Krist til samferðafólksins verður þess vegna að fræða og fjalla um Gamla testamentið, því að það á erindi við okkur í dag.

Höfundur er prestur í Fella-og Hólakirkju.


6   B+

Arnfríður Guðmundsdóttir

Er siðbót svarið við umhverfisvandanum?


B+

7

„Það er býsna útbreidd skoðun að kristin trú láti sig engu varða um hinn efnislega veruleika og stuðli jafnvel að sinnuleysi og tómlæti þegar kemur að náttúruvernd og umhverfismálum.“

Þ

að líður ekki sá dagur að við séum ekki minnt á umhverfisvandann og þau margvíslegu áhrif sem hækkandi hitastig hefur á allt líf á jörðinni. Í fjölmiðlum lesum við um áhrif eins og hækkun sjávarborðs, bráðnun jökla, öfluga hitabeltisstorma, spillingu gróðurlands, ýmist vegna flóða eða þurrka og hækkandi matarverð vegna minnkandi uppskeru. Allt þetta flokkast undir aðsteðjandi umhverfisógn, því að lífinu á jörðinni stendur ógn af því sem er að gerast. Hversu vel sem við þekkjum til umhverfisvandans, þá er það eitt sem við vitum fyrir víst: Það er ekki allt eins og það á að vera. Það er eitthvað mikið að og skilaboðin frá sérfræðingum á sviði loftslagsmála eru einfaldlega þau að útlitið sé ekki gott — að málin muni halda áfram að þróast til hins verra — af því að hitastigið muni halda áfram að hækka, nema eitthvað róttækt komi til. Það þarf með öðrum orðum eitthvað róttækt að gerast, ekkert minna en hugarfarsbreyting þarf að eiga sér stað, sem leiðir af sér breytta forgangsröðun, bæði almennings og stjórnvalda. Til þess að slíkur viðsnúningur verði mögulegur þá þurfum við öll að leggjast á eitt. Þess vegna er mikilvægt að allar fræðigreinar leggi sitt af mörkum til umræðunnar og um leið til baráttunnar fyrir vitundarvakningu í okkar nærsamfélagi, í von um að margt smátt verði að lokum að einhverju stærra og meira, að einhverju sem munar um í stærra samhengi. Þörf á siðbót? Á síðasta ári héldum við upp á það að 500 ár voru liðin síðan Marteinn Lúther skrifaði tesurnar 95 og hleypti þar með af stað hreyfingu sem átti eftir að hafa víðtæk áhrif og kljúfa Vesturkirkjuna í herðar

Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor.

niður. Þessi guðfræðistefna sem varð síðar að kirkjulegri hreyfingu kallast á mörgum erlendum tungumálum re-formation, sem getur útlaggst sem endur-mótun, endurskoðun, eða endur-uppbygging, en hefur á íslensku verið þýtt sem sið-breyting, siðaskipti, eða sið-bót. Reformert guðfræði fól vissulega í sér siðbót á 16. öldinni en hún var sett fram sem andsvar við spillingu innan kirkjustofnunarinnar og andvaraleysi almennings við ríkjandi ástandi. Reformert guðfræði gekk að því leyti út á það að bæta siðinn og er því réttilega kölluð siðbótarguðfræði. Eins og allar guðfræðistefnur varð siðbótarguðfræðin til í ákveðnu sögulegu samhengi, því engin guðfræði verður til í sögulegu tómarúmi. Hlutverk guðfræðingsins er alltaf að bregðast við nýjum

aðstæðum og túlka kjarna kristinnar trúar með tilliti til þeirra spurninga sem brenna á fólki, með orðræðu sem það skilur. Þegar við minnumst þess sem gerðist í borginni Wittenberg í Þýskalandi árið 1517 þá gerum við það ekki aðeins til að rifja upp 500 ára gamlan atburð og áhrif hans, heldur hljótum við einnig að velta fyrir okkur merkingu boðskaparins í okkar sögulega samhengi, sem er að mörgu leyti frábrugðið samtíma Marteins Lúthers og samverkafólks hans við upphaf 16. aldar. Saga siðbótar Lúthers gefur okkur tilefni til að spyrja hvað geti verið sambærilegt ástandinu sem kallaði á siðbót í Vesturkirkjunni við upphaf 16. aldar, núna 500 árum síðar? Hvað getur kallað á jafnafger­ andi viðbrögð á meðal okkar nú við upphaf 21. aldar? Með öðrum orðum: Er hugsanlega þörf á siðbót hér og nú? Lykilhugtök í siðbótar-guðfræðinni eru sígild guðfræðihugtök eins og synd, iðrun/ afturhvarf og hjálpræði. Það þykir vissulega ekki lengur mjög flott að tala um synd og iðrun eða afturhvarf og það má til sanns vegar færa að þau séu ekki lengur „í tísku“, eða þannig. Ég er í hópi þeirra sem telja ástæðu til að dusta rykið af þessum hugtökum, ekki síst þegar rætt er um brýn samfélagsleg vandamál, eins og umhverfismál. En fyrst er mikilvægt að huga að merkingu þessara hugtaka, sem oft á tíðum hafa verið notuð í þeim tilgangi að ala á sektarkennd og skömm. Í sinni upprunalegu merkingu er syndin tengslahugtak og vísar til brotinna tengsla; hvort sem um er að ræða tengsl manneskjunnar við skapara sinn, við náungann eða við sköpunarverkið. Syndin vísar þannig ekki til einstakra verka eða athafna, heldur til rofinna samskipta í brotnum heimi. Hugtökin iðrun og afturhvarf vísa í þessu samhengi til vilja til þess að koma á samskiptum, vilja


8   B+

til þess að brjótast út úr einangrun og afskiptaleysi, að gera það sem er brotið heilt á ný. Hjálpræðið vísar þá til þess þegar heilun hefur átt sér stað, þegar hið brotna verður aftur heilt. Við skyldum ekki vera feimin við að nota þessi klassísku hugtök þegar við ræðum um umhverfisógnina og möguleg viðbrögð guðfræðinnar við henni. Kristin umhverfisguðfræði Það er býsna útbreidd skoðun að kristin trú láti sig engu varða um hinn efnislega veruleika og stuðli jafnvel að sinnuleysi og tómlæti þegar kemur að náttúruvernd og umhverfismálum. Vissulega hefur áherslan oft verið einhliða á andleg málefni og það sem tekur við þegar jarðlífinu lýkur, sem hefur ýtt undir þá skoðun að kristin trú sé í eðli sínu sinnulaus um allt annað en velferð sálarinnar og eilífa himnavist. Með því að játa trú á Guð sem er „skapari himins og jarðar“, staðfestir kristin kirkja þá grundvallarafstöðu kristinnar trúar að efnið sé gott. Í gyðing-kristinni trúarhefð er einnig lögð áhersla á að okkur sem búum á þessari jörð sé falið að annast hana. Það er ljóst að við höfum ekki staðið okkur sem skyldi. Þess vegna er brýnt að guðfræðingar fjalli um afleiðingar vanrækslu og misnotkunar á umönnunar­ hlutverkinu. Við stöndum frammi fyrir þeim mikla vanda sem raun ber vitni af því að sköpunin hefur verið svívirt með illri umgengni og ofnýtingu. Ábyrgð okkar

„Ábyrgð okkar allra er mikil, ekki aðeins gagnvart skapara okkar og sköpunarverkinu, heldur einnig kynslóðum framtíðarinnar og möguleikum þeirra.“ allra er mikil, ekki aðeins gagnvart skapara okkar og sköpunarverkinu, heldur einnig kynslóðum framtíðarinnar og möguleikum þeirra til þess að byggja þessa jörð. Andspænis þeim mikla umhverfisvanda sem við stöndum frammi fyrir við upphaf 21. aldar, er sem aldrei fyrr mikilvægt að áherslur umhverfisguðfræðinnar fái að heyrast og guðfræðingar taki höndum saman með öllum þeim sem vinna að því að stemma stigu við þeirri skelfilegu þróun sem nú á sér stað og ógnar framtíð lífs hér á jörð. Í þessu samhengi getur syndahugtakið fengið jákvæða merkingu, orðið uppspretta vonar, þegar það fær að tákna hið nýja upphaf sem verður til í gegnum iðrun og afturhvarf. Kristin trú leggur áherslu á það hvernig Guð vill leiða okkur út úr okkar synduga ástandi og gefa okkur möguleika á nýrri byrjun, sem felur í sér endurnýjuð tengsl við skapara okkar, sköpunina og okkur sjálf. Slík umbreyting (re-formation) á sér stað þegar við, sem einstaklingar eða samfélag, viðurkennum það sem hefur farið úrskeiðis — við iðrumst, eða göngum í okkur — og ákveðum að snúa við. Við

ákveðum að breyta því hvernig við hugsum og hvað við gerum og opnum þannig á hjálpræðið sem kemur sem gjöf Guðs til okkar — og skapar eitthvað alveg nýtt. Hjálpræði merkir það sem er heilt, öruggt og gott. Hið synduga/brotna ástand sem við erum hluti af, minnir okkur stöðugt á takmörk okkar. Marteinn Lúther lagði áherslu á að við erum hvort tveggja í senn, réttlætt og syndug — brotin og heil. Hin kristna von felst þá í því að treysta því að hjálpræðið muni að lokum ná yfirhöndinni, að eyðingin og sundrungin muni ekki eiga síðasta orðið, heldur munum við að lokum eignast hlutdeild í umbreytingu sköpunarverksins, þegar hið gamla verður nýtt, hið brotna verður heilt. Andspænis aðsteðjandi umhverfisógn getur boðskapurinn um synd, afturhvarf og hjálpræði gefið okkur kjark til að takast á við ógnina — í stað þess að gefast upp fyrir henni. Valið — og ábyrgðin — er okkar.

Höfundur er prófessor í samstæði­legri guðfræði með áherslu á kvennaguðfræði við Háskóla Íslands.


B+

9

Sólveig Anna Bóasdóttir

GRÆN GUÐFRÆÐI

V

ið upphaf nýrrar aldar er ný meðvitund og skilningur á jörðinni að festa rætur í hugum jarðarbúa, skilningur sem byggist annars vegar á einstakri samræðu milli vísindamanna samtímans, og hins vegar þekkingu á því hvernig rányrkja mannsins er langt komin með að skemma hinn náttúrulega heim.“ Þessi orð sem ættuð eru frá rómversk-kaþólska guðfræðingnum Elizabeth A. Johnson og skrifuð fyrir hartnær ­tuttugu árum, endurspegla að verulegu leyti þá stöðu sem uppi er nú um stundir á fræðasviði kristinnar umhverfis- og náttúru­guðfræði. Kristin umhverfis- og náttúru­guðfræði hefur gengið í gegnum ákveðna endurskoðun á hugmyndum um náttúruna, manninn og heiminn og útkoman er það sem ég ætla að fjalla um hér og kalla „græna guðfræði.“ Græn guðfræði er ekki ný guðfræði í þeirri merkingu að inntak hennar sé allt annað en áður hefur þekkst. Fremur má segja að hún sé endurskoðandi og endurskapandi guðfræði þar sem hún leitast við að endurheimta ákveðin atriði í fyrri tíma guðfræðilegum túlkunum og túlka þau í samhengi samtímavandamála sem tengjast umhverfis- og náttúruverndarmálum. Á því sviði má segja að hugtakið loftslagsbreytingar af manna völdum og afleiðingar

þeirra leiki einna stærst hlutverk nú um stundir. Í um tuttugu ár hafa trúarsamfélög víðs vegar um heiminn beint sjónum að loftslagsbreytingum af mannavöldum og afleiðingum þeirra. Aðkoma trúaðs fólks að ýmiss konar umhverfisvandamálum á sér þó mun lengri sögu, en upp úr 1960 tóku margir kristnir söfnuðir og samtök að beita sér gegn mengun af ýmsu tagi, eyðingu skóglendis, virkjun fallvatna, útrýmingu dýrategunda og fjölmörgu öðru. Kringum 1980 fjölluðu bæði einstakar kirkjur og kirknasamtök um umhverfismál og náttúru­vernd en þau málefni voru á dagskrá hjá ýmsum stofnunum Sameinuðu þjóðanna á sama tíma. Í því samhengi ber hæst starf Alkirkjuráðsins sem tengdi saman umhverfissinna frá ólíkum kirkjudeildum og hélt fjölda ráðstefna. Réttlát tengsl við náttúruna og áhersla á tengsl réttlætis, friðar og friðhelgi náttúrunnar voru og eru enn kjarnaatriði í starfi Alkirkju­ráðsins á þessu sviði. Meðvitund um jörðina Hugum betur að hinni meintu meðvitund um jörðina sem vaxið hefur fram innan trúar og vísinda og Johnson nefndi hér í upphafi. Hvernig birtist sú meðvitund innan grænu guðfræðinnar og út á hvað gengur hún? Í hnotskurn má segja að sú meðvitund komi fram í þeirri þekkingu, sem er þó sannarlega ekki ný, að allar lífverur á jörðinni séu hluthafar í


10   B+

sömu lífkeðjunni. Þetta var inntak kenningar Charles Darwin á sínum tíma og var síður en svo vel tekið meðal kristinna guðfræðinga á síðari hluta 19. aldar, sem alkunnugt er. Af hverju vakti staðhæfing Darwins andúð á sínum tíma? Til að skilja það þarf að muna að á sama tíma og Darwin setur fram sína kenningu um sameiginlegan uppruna alls lífs er vinsæl skoðun algeng innan heimspeki og guðfræði að guðlegur skapari hafi hannað heiminn með öllum sínum flóknu kerfum og lögmálum. Hluti hönnunartrúarinnar var að maðurinn væri kóróna sköpunar-

samfélagi lífsins. Uppgötvanir samtíma náttúru­vísinda kalla því á nýjar túlkanir á hefðbundnum trúarlegum kenningum. Náin tengsl hins náttúrulega og hins trúarlega heims Það má halda því fram að margir miðaldaog fornaldarguðfræðingar hafi gert sér betur grein fyrir þessu atriði en margur nútímaguðfræðingurinn og því er það að græna guðfræðin telur sig hafa margt til hinna fyrrnefndu að sækja. Nálægð hins náttúrulega heims er til staðar í verkum Heilags Ágústínusar, Tómasar frá Akvínó,

„Græna guðfræðin leggur áherslu á hinn djúpstæða skyldleika mannsins við allar aðrar lífverur. Allt lífríki jarðar er einn samhangandi vefur þar sem ekkert líf er öðru æðra.“ verksins eða æðsta veran sem skaparinn hefði hannað fyrir þennan heim. Kenning Darwins andmælir þeim skilningi og staðhæfir þess í stað að lífið eigi sér óralanga sögu, vegna sífelldra breytinga og þróunar og sú saga muni halda áfram og maðurinn sé ein birtingarmynd þessara þróunar. Græna guðfræðin leggur áherslu á hinn djúpstæða skyldleika mannsins við allar aðrar lífverur. Allt lífríki jarðar er einn samhangandi vefur þar sem ekkert líf er öðru æðra. Þá tjáir græna guðfræðin að samfélagið sé undirstaða lífsins í heildstæðri og umlykjandi merkingu. Ekkert líf getur þróast eitt og óstutt, hélt Darwin fram, heldur þarf það alltaf ákveðið samfélag til að þróast og dafna. Vistkerfi náttúrunnar eru samfélög þar sem allar lífverur hafa sínu hlutverki að gegna í flókinni lífkeðju. Kristin kirkja hefur löngum lagt áherslu á samfélagið sem forsendu vaxtar og lífs en það sem hún þarf að skilja betur er kjarni nýjustu náttúruvísinda. Allt líf, allar lífverur eru náskyldar og eiga sama uppruna. Nýjustu náttúru- og loftslagsvísindi leggja áherslu á þetta atriði: Allt í heiminum er samtengt. Maðurinn deilir uppruna sínum með öllum lifandi verum. Bakteríur, furutré, spörfuglar, hestar, hvalir — öll erum við erfðafræðilega skyld í hinu flókna

Bónaventura, Hildegard frá Bingen og margra fleiri. Öll sóttu þau í biblíulega texta til að tjá náin tengsl hins náttúrulega og hins trúarlega heims. Boðskapur þeirra gekk út á að hinn skapandi og endurleysandi Guð elski og gleðjist yfir hinum náttúrulega heimi. Guð hafi skapað allt sem til sé og þess vegna sé líka allt viðfangsefni guðfræðinnar. Guðfræðingum fornaldar og miðalda fannst þessi túlkun sjálfsögð og eðlileg og útfærðu hana á sinn hátt en auðvitað er tæpast hægt að halda því fram að fornaldar- og miðaldaíhuganir um sköpunarverkið hafi falið í sér vistfræðilega meðvitund á borð við þá sem við þekkjum nú um stundir. Ný tegund mannhyggju Það sem einkennir siðfræðilegt inntak grænu guðfræðinnar sem hér hefur verið til umræðu, hvort sem hún kemur úr ranni hans heilagleika, patríarkans Bartólómeus­ ar I., frá umburðarbréfi Frans páfa í Róm Laudato si‘, yfirlýsingum Alkirkjuráðsins og Lútherska heimssambandsins, hvað þá framsetningu fjölda guðfræðinga innan hinna mörgu kristnu kirkjudeilda, er áherslan á skyldleikann milli mannkyns og alls annars lífs í heiminum. Maðurinn er ekki einangruð lífvera, kóróna


B+

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir prófessor.

„Sú ógn sem mannkyn stendur frammi fyrir nú er til komin vegna þess að mannkyn hefur ekki kannast við uppruna sinn, hefur gert sig að yfirboðara náttúrunnar.“ sköpunarverksins, heldur mikilvægur hlekkur í flóknu samhengi sem tengir menn, dýr og plöntur. Velferð mannsins og frelsun frá synd og sekt verður að setja í mun víðara samhengi en lengstum hefur verið ástundað innan hefðbundinnar guðfræði. Gegn mannhverfri kristinni guðfræði og siðfræði teflir græna guðfræðin fram þekkingu lífhyggjunnar og nýrri tegund mannhyggju sem tjáir samstöðu með mönnum og náttúrunni. Lífhyggjan leggur áherslu á sjálfstætt gildi náttúrunnar og mannhyggjan undirstrikar réttlæti og miskunnarhugsun sem nái til málstaðar kynslóða framtíðarinnar. Siðferðileg afleiðing hvors tveggja felur í sér að efla þarf velferð lífríkisins alls, ekki aðeins velferð mannsins, ásamt því að hugsa mun lengra fram í tímann hvað varðar afleiðingar mannlegrar breytni. Sú ógn sem mannkyn stendur frammi fyrir nú er til komin vegna

þess að mannkyn hefur ekki kannast við uppruna sinn, hefur gert sig að yfirboðara náttúrunnar. Maðurinn hefur ekki breytt sem dyggur ráðsmaður með ábyrgð á sameiginlegu heimili allra sem byggja jörðina, manna jafnt sem lífvera. Drottnunar- og yfirráðahugsunin í garð náttúrunnar þarf því að víkja. Þess í stað þarf að verða til breiðvirk samstaða með náttúrunni, niðurstöðum náttúruvísindanna og hinum fátæku í heiminum. Græna guðfræðin fer þar með eftir nýjum lífsháttum sem einkennist af hófsemi, sjálfstjórn og þakklæti. Fyrirmynd þess lífsstíls er að sjálfsögðu líferni Jesú sjálfs. Boðskapur hans, líf og dauði vísar mannkyni, nú sem fyrr, veginn til lífsins.

Höfundur er prófessor í guðfræði­legri siðfræði við Háskóla Íslands.

11


12   B+

Helgi Guðnason

GARÐURINN sem var og er

S

köpunarsaga Biblíunnar er án efa einn mest lesni og túlkaði texti Biblíunnar. Áherslur manna í túlkun eru ólíkar og oft langur vegur á milli þegar kemur að því hvernig þessi texti hefur áhrif á okkar líf í dag. Hvernig sem á það er litið er þó ljóst að þessir fyrstu kaflar Biblíunnar eru ákaflega mikilvægir því þar er sleginn ákveðinn grunntónn sem endurómar allt í gegnum ritningarnar.

Helgi Guðnason.

hugsun. Það sem er jafnvel róttækara er að það er ekki bara hugur á bak við heiminn heldur líka hjarta. Því að sá Guð sem birtist okkur í ritningunum er ekki kaldur og laus við tilfinningar, raunar þvert á móti. Það sem bindur saman frásögnina um sköpunina eru kvöld og morgunn, himinn og jörð og setningin „og Guð sá að það var gott“ (1Mós 1.10, 12, 16, 21, 25). Ítrekað er okkur sagt að heimurinn sem Guð hafi skapað hafi verið skapaður góður, Guð var ánægður með sköpunina, „og Guð leit allt

„Hið efnislega er ekki illt eða óandlegt, það skapar umgjörð þar sem Guð og maður geta átt samfélag. Sköpunin er góð, hið efnislega er gott.“ Þessi grein er einföld umföllun um hvernig sköpunarsagan hefur mótað heimsmynd höfundar, ekki endilega mjög fræðileg í nálgun sinni en vonandi gagnleg. Það var gott Uppsetning sköpunarsögunnar er falleg og ljóðræn, vafalaust talað mun sterkar til fyrstu áheyrenda hennar en til okkar, ekki ólíklegt að við förum á mis við alls kyns tilvísanir og stef sem ofin eru í söguna. Engu að síður getur nútímalesandi farið gegnum söguna og setið eftir með nokkrar lykilhugmyndir sem hafa víðtæk áhrif á sýn okkar á lífið og heiminn. Í upphafi skapaði Guð. Þessi einfalda setning er gríðarlega áhrifamikil fullyrðing. Þessi heimur er til vegna þess að Guð skapaði hann, að baki tilvist heimsins býr

sem hann hafði gert, og sjá, það var harla gott“ (1Mós 1.31). Samfélag Guðs og manns Það má vel vera að það hafi breyst eða eigi ekki við um okkar nærumhverfi, en í aldanna rás hefur mátt finna þá hugmynd að hið efnislega sé andstæða þess andlega, jafnvel að hið efnislega sé andstæða Guðs. Slík hugmyndafræði leiðir af sér að tilbeiðsla felur í sér einhvers konar afneitun á því efnislega. Meinlætalifnaður og það sem Páll postuli segir að sé „harðneskja við líkamann“ (Kól 2.23) einkennir andlega ástundun á þessum forsendum. Þessi grunntónn sköpunarsögunnar, að Guð sjálfur í eigin persónu skapaði heiminn og lýsti hann góðan, slær á allar slíkar hugmyndir. Heimurinn var svo góður að Guð


B+

13

SKÖPUNARSAGAN

sjálfur gekk um garðinn með manninum. Hið efnislega er ekki illt eða óandlegt, það skapar umgjörð þar sem Guð og maður geta átt samfélag. Sköpunin er góð, hið efnislega er gott. Af öllum trjánum megið þið eta Næsta hugmynd úr sögunni má vera að sé svolítið einfeldningslegur lestur á textanum. En það er alveg ljóst af sögunni að dauðinn kom ekki til fyrr en eftir syndafallið. Þess vegna finnst undirrituðum það mjög áhugavert að freistingin sem leiddi til fallsins hafi snúist um mat. Af hverju ætti ódauðlegt fólk að þurfa að borða? Þau eru sett í garðinn og Guð gefur þeim nær öll trén og allar sáðberandi jurtir til fæðu, en ef þau borða af einu ákveðnu tré, þá kemur dauðinn til sögunnar. Það er ekki með nokkru móti hægt að segja að þetta sé eitthvert áhersluatriði í sögunni og má vel vera að hafi enga sérstaka merkingu. En fólk á öllum tímum hlýtur að hafa tengt mat við það að lifa af. Af hverju þykir það sjálfsagt að ódauðlegt fólk borði af ávexti trjánna? Ef þetta hefur einhverja merkingu, þá finnst undirrituðum það líklega vera sú hugsun að sköpunin sé til þess að njóta hennar. Maðurinn er hluti af sköpunarverkinu, hann er ekki framandi viðbót, ekki guðleg vera sem er yfir hana hafin, maðurinn tilheyrir sköpuninni og er hluti af henni. Það tilheyrir að njóta góðra gjafa Guðs. Sé þessa hugsun ekki að finna hér þá er hana í það minnsta að finna í 5. Mósebók 14.22–26, þar sem mönnum er sagt að tilbiðja Guð með því að halda veislu, kaupa hvað sem þá lystir og gera sér glaðan dag. Að njóta sköpunarinnar og þakka Guði er ein mynd lofgjörðar.

„Á heimili þar sem ríkja ást og alúð, þar sem fólk sýnir hvert öðru sáttmálatrúfesti og þar sem Guð er jafn­ sjálfsagður hluti af umhverfinu og hann var í garðinum forðum, má segja að við finnum enduróm frá Eden.“ Guð blessaði þau Frásagan af sköpun mannsins er mjög merkileg og áhugaverð. Guð skapar manninn í sinni mynd, karl og konu, og gefur þau hvort öðru. Blessun Guðs yfir þeim er mjög tengd hinu efnislega, Guð blessar þau sem hluta af þessum heimi, þau eru blessuð til þess að blómstra á jörðinni. Það er alltaf ákveðinn vandi að ákvarða hversu þröngt á að túlka texta og hversu langt hægt er að fara í sinni túlkun. En verkefnið sem þeim var falið fólst í því að annast garðinn, láta hann blómstra og í raun að öll jörðin verði þessi garður. Þeim hlotnast sú blessun að eignast afkomendur, stofna fjölskyldu, henni þarf að sinna alveg eins og blómagarði. Það þarf að hlúa að börnum og sýna þeim alúð, gæta þess að vaxtarskilyrði séu sem best og halda skaðvöldum í burtu. Ef það er eitthvað sem nútímasamfélag hefur sannreynt þá er það sá veruleiki að hjónabandið er garður sem þarf að rækta og sinna, eigi það að lifa. Kannski má segja að hver fjölskylda sé smækkuð mynd af garðinum. Á heimili þar sem ríkja ást og alúð, þar sem fólk sýnir hvert öðru sáttmálatrúfesti og þar sem Guð er jafnsjálfsagður hluti af umhverfinu og hann var í garðinum forðum, má segja að við finnum enduróm frá Eden. Það er svo margt sem má heyra af

­ essum fyrstu versum Biblíunnar. Það er þ eitthvað mjög fallegt við það að vita að við erum sköpuð af kærleiksríkum Guði. Við erum sett í heim sem hefur ótrúlega burði til góðs, þrátt fyrir blett syndarinnar á honum. Það má lesa sköpunarsöguna sem hvatningu og boð til þess að njóta sköpunarinnar. Við erum hvött til þess að finna og rækta ástina, kanna og reyna heiminn sem við búum í, smakka nýjan mat, skoða nýja staði, reyna náttúruna á nýjan hátt. Það er eitthvað magnað við það þegar kristnir menn nýta sköpunina sem helgidóm við tilbeiðslu, hvort sem það er þegar prestur rétttrúnaðarkirkjunnar blessar hafið, eða hvítasunnumaður skírir í hafinu, þegar fólk gengur í hjónaband við dynjandi foss eða í grænni laut, þá er eitthvað magnað við það að tilbiðja Guð umlukinn sköpunarverkinu. Það er líklega ein lexía sköpunarsögunnar, að öll jörðin er Drottins, stærsti og magnaðasti helgidómurinn. Hvatning þessara skrifa er byggð á áhrifum sköpunarsögunnar á greinarhöfund. Látum okkur annt um sköpunina, njótum hennar og lifum í tengslum við hana. Þannig erum við hönnuð.

Höfundur er prestur í Fíladelfíu.


14   B+

Innreið snjallsíma og annarra snjalltækja hefur ekki farið framhjá neinum. Stór hluti Íslendinga er með snjalltæki á sér flestar stundir, þá helst í formi snjallsíma. Lestur fólks hefur að nokkrum hluta færst inn á slík tæki og hefur því skapast eftirspurn eftir því að Biblían sé fáanleg á snjalltækjaformi. Af þessum ástæðum hefur Biblían á íslensku nú verið gerð aðgengileg á alþjóðlegu biblíuappi Youversion.

Biblían á appi! Þ

að að íslenska Biblían sé nú komin út á biblíuappi ­Youversion þýðir að meirihluti Íslend­inga mun nú hafa rafræn­an aðgang að Biblíunni í vasanum, allar stundir! Biblíuapp Youversion verður með íslensku viðmóti og þar verður hægt að nálgast íslensku biblíuþýðinguna, notendum að kostnaðarlausu. Biblíuappið mun bjóða upp á fjölda notkunarmöguleika sem gerir fólki m.a. mögulegt

300 milljón sinnum. Það að Íslendingar muni nú hafa aðgang að íslenskri þýðingu Biblíunnar á þessu appi mun hafa umbreytandi áhrif á biblíulestur í landinu, skapa rafrænt samfélag um biblíulestur og gera visku Biblíunnar fyrirferðarmeiri á samfélagsmiðlum. Einn af hvatamönnum þess að Biblían hefur nú verið gerð aðgengileg á biblíuappi Youversion er Styrmir Hafliðason. Styrmir hefur lengi verið áhugamaður um að fá

„Biblíuapp Youversion er það vinsælasta í heiminum og hefur verið hlaðið niður 300 milljón sinnum.“ að tengjast samfélagsmiðlum og deila þar ritningarversum og öðru efni úr appinu. Þá verður ennfremur hægt að velja úr fjölbreyttum lestraráætlunum sem halda fólki við lesturinn, gera því kleift að tengjast öðru fólki sem er að nota appið, áherslumerkja ritningarvers, skrifa minnispunkta og bera saman þýðingar ólíkra tungumála. Biblíuapp Youversion er það vinsælasta í heiminum og hefur verið hlaðið niður

Biblíuna á íslensku í góðu appi. Styrmir kom því að máli við stjórn Biblíu­félagsins og hvatti eindregið til þess að samþykkt yrði að Biblían yrði gerð aðgengileg með þessum hætti. Stjórn Biblíufélagsins, sem er rétthafi biblíuþýðingarinnar, samþykkti það með ánægju eftir góða kynningu frá Styrmi. B+ spurði Styrmi hvernig áhugi hans á þessu verkefni hefði vaknað og komist á skrið.


B+

„Þar sem útbreiðsla snjalltækja á Íslandi er orðin svo víðtæk þá ætti Biblían allra helst heima á snjalltækjum hér. Með því að opna leið snjalltækja að Biblíunni ætti því aðgengi Íslendinga að Biblíunni að verða betra en nokkru sinni fyrr.“

Styrmir: „Hugmyndin að gera Biblíuna aðgengilega á þeim tækjum sem við notum í okkar daglega lífi vaknaði hjá mér fyrir um sex árum. Ástæðan var fyrst og fremst sú að ég var í tíma og ótíma að opna biblíuappið í gegnum snjalltækið mitt og óskaði þess að ég gæti lesið Biblíuna á mínu eigin tungumáli. Mér fannst mikilvægt að ég sem og aðrir gætu haft tækifæri til þess að lesa Biblíuna á íslensku hvar og hvenær sem var. Þar sem útbreiðsla snjalltækja á Íslandi er orðin svo víðtæk þá ætti Biblían allra helst heima á snjalltækjum hér. Með því að opna leið snjalltækja að Biblíunni ætti því aðgengi Íslendinga að Biblíunni að verða betra en nokkru sinni fyrr. Með þessa hugmynd í farteskinu óskaði ég eftir áheyrn hjá stjórn Biblíufélagsins og var sú hugmynd síðan samþykkt.“ Eftir að ákveðið var að fara í verkefnið tók Styrmir það að sér að vera í reglubundnum samskiptum við skrifstofur Youversion. Hann fór jafnframt í það, ásamt fleira fólki, að safna saman hópi þýðenda til að þýða viðmót appsins á íslensku. Styrmir segir frá: „Það má í raun segja að ferlið frá því að Biblíufélagið samþykkti notkun íslensku Biblíunnar í appviðmóti hafi verið ótrúlegt. Dreifing Biblíunnar á alheimsvísu fer í gegnum tiltekinn gagnagrunn sem heldur utan um biblíuþýðingar í heiminum. Fyrsta skrefið var því að komast að því hvernig hægt væri að koma íslensku Biblíunni inn í þann gagnagrunn svo hægt væri að heimfæra textann inn í Youversion appið. Auk þess þurfti rafræni texti Biblíunnar að vera á tilteknu formi svo hægt væri að nýta hann á mismunandi tækjum. Fljótlega eftir að við komumst í samband við umsjónarmenn gagnagrunnsins kom það í ljós að þeir höfðu textann undir höndum

og höfðu þegar breytt formi textans þannig að hægt væri að byrja að nota hann strax. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu báðir þessir liðir tekið töluverðan tíma og fjármagn sem gerði það að verkum að við gátum strax hafist handa við þýðinguna á viðmótinu sjálfu. Ég ákvað þegar í byrjun að fá til liðs við mig góða aðila til þess að stýra þýðingarvinnunni. Ég hafði starfað með Sigurði Bjarna Gíslasyni á öðrum vettvangi og vissi að hann væri ákaflega vanur og góður í að stýra þýðingarvinnu. Við lögðum síðan af stað í það, ásamt Aroni Hinrikssyni, að búa til hóp þýðenda sem þekktu vel inn á það tungumál og þau hugtök sem notuð eru í síku appi. Allir sem við töluðum við tóku vel í hugmyndina og innan nokkurra daga var kominn hópur þýðenda sem hófst handa við að íslenskuvæða Youversion viðmótið, allt í sjálfboðavinnu! Sú vinna kláraðist á mettíma og það hefur víst ekkert tungumál verið heimfært á jafnskömmum tíma og íslenski hópurinn náði að þýða viðmótið yfir á íslensku. Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka öllum sem stóðu að þýðingarvinnunni fyrir sitt innlegg inn í það verkefni.“ Það er stór breyting að Biblían á íslensku skuli nú vera aðgengileg á biblíuappi Youversion. B+ hvetur alla sem eiga snjalltæki til að hlaða niður appinu. Þá getum við öll verið með Biblíuna við hendina allar stundir og tekið þátt í að skapa rafrænt samfélag um biblíulestur á Íslandi!

Sr. Grétar Halldór Gunnarsson tók saman. Hann er prestur í Grafarvogsprestakalli og situr í stjórn HÍB.

15


16   B+

BIBLÍUFRÓÐLEIKUR 01

02

03

01

Allt sem ég hef unnið að gagni á ævinni

„Ég komst að raun um að allt sem Guð gerir stendur að eilífu, við það er engu að bæta og af því verður ekkert tekið“ (Préd 3.14a). „Allt sem ég hef kennt um listir, allt sem ég hef skrifað, allt sem eitthvað hefur verið varið í af því, sem ég hef hugsað, allt sem ég hef unnið að gagni á ævinni, allt hefur þetta átt rætur til þess að rekja, að þegar ég var barn las móðir mín fyrir mig kafla úr Ritningunni, og lét mig læra nokkrar greinar hennar utan að“ (John Ruskin). John Ruskin (1819–1900) var einn áhrifamesti og virtasti listgagnrýnandi og hugsuður nítjándu aldar. Ruskin má telja föður hins listræna handverks og hann vildi varðveita handverkið og meta gildi þess þó svo að iðnvæðingin væri á þeim tímum að framleiða margt betra og ódýrara en handverkið gat keppt við. Til þess, t.d. að styrkja þessa hugmynd sína — og baráttu — stofnaði hann félag um list og handverk (The Arts and Crafts Movement). Ruskin var líka ágætur rithöfundur og prýðilegur listamaður sjálfur. Hann hafði skýra þjóðfélagssýn og var t.d. mjög mikill talsmaður samvinnu- og kaupfélaga. Arfleifð Ruskins stendur traustum fótum í dag; margir listaskólar eða deildir bera nafn hans, söfn bera nafn hans og götur hafa verið nefndar eftir honum og svo margt fleira hefur verið gert til þess að heiðra minningu hans sem sérstaklega Bretar halda vel, og verðskuldað, á lofti. Málverkið af Ruskin málaði Charles Fairfax Murray (1849–1919) árið 1875 með möttum vatnslitum. Verkið er varðveitt í Tate-safninu í Lundúnum.

02

Manna í eyðimörkinni

Nicolas Poussin (1594–1665) málaði þessa mynd á árunum 1637–1639. Hún heitir einfaldlega: „Ísraelsmenn safna manna í eyðimörkinni.“ Þetta er mikið olíumálverk, 149 x 200 cm, og það er varðveitt í Louvre í París. Gefið gaum að smáatriðum í verkinu og þá má sjá baráttu, jafnvel grimmd, þakklæti, æði, ringulreið og svo margt annað reyndar. Við vitum hverju þar er verið að koma til skila; sundurlyndi og óhlýðni — en líka gleði og þakklæti. Sagan kemur tvisvar fyrir í Fimmbókaritinu, Mósebókunum. Meginsagan er í 2Mós 16, en hina er að finna í 4Mós 11.1–9. Nokkur munur er á því hvernig himnabrauðinu, manna, er lýst í þessum frásögum. Af Poussin er það að segja að hann var franskur barokkmálari sem málaði mjög margar myndir af trúarlegum og einnig goðfræðilegum toga.

03

Dómur Salómons

Margir, t.d. stjórnmálamenn, grípa til þess að slá um sig með því að kalla ákveðinn úrskurð Salómonsdóm. Stundum hefur maður á tilfinningunni að þeir viti ekki hvaðan það hugtak er fengið. Sagan á bak við það er í 1Kon 3.16–28 og fjallar í raun um móðurást. Málverkið er eftir flæmska málarann Frans Francken II (1581–1642) sem var á dögum í Antwerpen í Belgíu. Hann málaði fjölmargar senur úr Biblíunni. Myndir hans verða vart kenndar við eina stefnu í listasögunni því hann var fyrir margt sérstæður málari; þannig var hann í raun langt á undan sinni samtíð hvað varðaði notkun tákna í list sinni, og minnir sumt í myndum hans jafnvel á verk symbólista og súrrealista sem fram komu öldum síðar. Mynd hans, „Dóm­ ur Salómons“, er þó að mestu hefðbundin list síns tíma.


B+

04

17

05

06

04

Beðið eftir Godot

Í hinu fræga leikriti Beðið eftir Godot eftir írska Nóbelsverðlaunaskáldið Samuel Beckett er heilmikið vísað til hinna og þessara bókmennta — og þar á Biblían sinn skerf, ríkulegan. Flestir eru nokkuð kunnugir efni leiksins, um hina endalausu bið, og það er snemma í verkinu sem Vladimir segir við félaga sinn Estragon: „Langdregin eftirvænting gjörir eitthvað sjúkt, hver sagði þetta?“ Hann man sum sé ekki alveg þessa tilvitnun sem hann hyggst fara með, hann rámar í hana — honum finnst eins og einhver hafi sagt þetta. Í sjálfu sér „segir þetta enginn“ heldur er þetta úr Orðskviðum Biblíunnar. Í þrettánda kafla, tólfta versi, segir: Löng eftirvænting gerir hjartað sjúkt en uppfyllt ósk er lífstré. Þetta skulum við hafa hugfast í dag. Það er nefnilega fólgin í þessu mikil speki. Vladimir rámar í þetta — vegna þess að Beckett þekkti þetta. Á myndinni eru engir aðrir en Patrick Steward sem Valdimir og Ian McKellen sem Estragon í Cort Theater árið 2013. Ljósmynd: Sara K ­ rulwich/The New York Times.

05

Jesús mettar fimm þúsundir

Guðspjallið um það undur þegar Jesú mettaði 5000 manns með harla litlu er m.a. í Lúk 9.10–17. Það skiptir í raun ekki máli hvað það voru margir fiskar eða mörg brauð. Það sem skiptir máli er að hann gerði svo mikið úr nánast ekki neinu. Það gerir hann dag hvern í lífi okkar. Það er stóra kraftaverkið; máttur hans og dýrð. Mannleg erum við, og líf okkar „til fárra fiska metið“ — eins og segir í ljóðinu — en samt er það þannig að dag hvern hefjumst við fyrir hans orð. Fátt verður að miklu, ekkert að mörgu — og við að því sem hann vildi. Menn — ef við viljum. Málverkið er eftir Giovanni Lanfranco (1582–1647). Hann var ítalskur barokkmálari, fæddur í Parma en nam hjá hinum frægu Carracci-bræðrum, Agostino og Annibale. Þessa mynd um þetta tiltekna kraftaverk málaði Lanfranco í kringum 1620.

06

Bréfið um gleðina

„Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð“ (Fil 4.4). Það er ekki að ástæðulausu sem Johann Albrecht Bengel kallar Filippíbréfið „epistola de gaudio“ — bréfið um gleðina. Bengel (1687–1752) var guðfræðingur og lærdómsmaður í grísku sem gerði Nýja testamentið að sérsviði sínu. Hann var píetisti. Áhrifa hans hefur gætt með margvíslegum hætti í þýskum bókmenntum og guðfræði allt fram á okkar daga — stundum með beinum hætti eins og í verki þýska Nóbelsverðlauna­höfundarins Hermanns Hesse, Das Glas­ perlenspiel, frá 1943 en einnig í gegnum óljósari þræði, eins og í skrifum þýska guðfræðingsins Jürg­ens Moltmanns.


18   B+

BIBLÍUFRÓÐLEIKUR 01

02

Lofstír „Að óttast Drottin er ­upphaf speki, þeir vaxa að viti sem hlýða boðum hans. Lofstír hans stendur um eilífð“ (Sálmarnir 111.10). Þarna er að finna hið sérstaka orð, lofstír. Sem þýðir lof, hrós eða orðstír. Þetta er alls ekki algengt orð og nánast deyjandi í íslensku máli. En þarna er það sem sagt og hefur lifað á þessum stað í Sálmunum allt frá því Guðbrandur þýddi sama vers: „Upphafið vísdómsins er ótti Drottins, það er ein ágæt viska, hver hann gjörir þar eftir þess lofstír blífur eilíflega.“ Hér sannast, bara í þessu litla dæmi, hve Biblían er mikilvæg sem málsins varðveitari, þjónn og verndari.

01

Byrjað með tvær hendur tómar

„Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara. Guð er þess megnugur að veita ykkur ríkulega allar góðar gjafir til þess að þið í öllu og ávallt hafið allt sem þið þarfnist og getið sjálf veitt ríkulega til allra góðra verka. Eins og ritað er: Hann miðlaði mildilega, gaf hinum snauðu, réttlæti hans varir að eilífu.“ (Síðara Korintubréf 9.7–9.) Elsa Borg (1826–1909) hét kona sem fræg var í Svíþjóð og víðar fyrir störf sín að mannúðarmálum í Stokkhólmi; þar sem hún gekk fram í nafni lifandi trúar. Þar sinnti hún fátækum og ekki síst konum sem höfðu orðið illa úti, t.d. í vændi. Hún stofnsetti og barnaheimili og heimili fyrir sjúkar konur og heimilislausar. Hún lét mjög til sín taka í „Vita Bergen“ sem þá var fátækasta og vafasamasta hverfi Stokkhólms, en því umhverfi er m.a. ágætlega lýst í skáldsögu Augusts Strindbergs, Rauða herberginu (s. Röda rummet) sem út kom 1879. Vegna starfa sinna í þessu hverfi var Elsa Borg stundum kölluð „Drottning Hvíta Bergs“ (s. Vita Bergens drottning). Eftir Elsu Borg eru þessi orð höfð: „Ég byrjaði með tvær hendur tómar. En ég átti líka ríkan föður á himnum.“ Myndin er af Elsu Borg.

02

Sterkur í veikleika „Því að þótt fjöllin bifist og hæðirnar haggist mun kærleikur minn til þín ekki bifast og friðarsáttmáli minn ekki haggast, segir Drottinn sem miskunnar þér.“ (Jesaja 54.10.)

Halldór Laxness, sem fæddur var 23. apríl 1902, lætur Jón Prímus lýsa almættinu svo í skáldsögunni Kristnihald undir Jökli: „Í skólakappræðum var stundum lögð fram sú spurníng hvort guði sé ekki ómáttugt að skapa svo þúngan stein að hann geti ekki tekið hann upp. Oft finst mér almættið vera eins og snjótittlíngur sem öll veður hafa snúist gegn. Svona fugl er á þýngd við frímerki. Samt fýkur hann ekki þó hann standi útá berángri í fárviðri. Hafið þér nokkurntíma séð hauskúpu af snjóttilíngi? Hann beitir þessu veikbyggða höfði mót veðrinu, með gogginn við jörð, leggur vængina fast uppað síðunum, en stélið vísar upp; og veðrið nær ekki taki á honum heldur klofnar. Jafnvel í verstu hrinunum bifast fuglinn ekki. Hann er staddur í logni. Það hreyfist ekki einu sinni á honum fjöður.“ Hugmyndin um hinn sterka Guð en þó um leið hinn veika er gegnumgangandi í kristinni trúfræði. Kristur beygir sig, hann lægði sig, og er þannig með okkur í veðrum heimsins. Þjáning hans og dauði eru fullkomnun þeirrar gjörðar hans. En, líkt og snjótittlingurinn í dæmisögu Jóns Prímuss, þá haggast hann ekki, bifast ekki ögn þó veðrin geisi — þannig er hann sterkur í veikleika sínum. Þannig er hann líka þessi leyndardómur; þess vegna spyrjum við aftur og aftur: Hvernig má það vera?


B+

Gunnlaugur A. Jónsson

Biblíugjöf á Seltjarnarnesi

U

ndanfarin ár hefur sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju gefið fermingarbörnum Biblíur og hefur það mælst vel fyrir. Talsvert á annað hundrað manns voru við messu í kirkjunni okkar 11. febrúar síðastliðinn þrátt fyrir mikinn veðurofsa og að víða hafi verið felldar niður messur þann daginn. Þar á meðal voru um þrjátíu fermingarbörn og fengu þau hvert og eitt Biblíu að gjöf frá kirkjunni. Á myndinni færir sóknarnefndarkonan Sigríður Nanna Egilsdóttir einu fermingarbarnanna Biblíu. Guðmundur Einarsson, formaður sóknarnefndar, er í ræðustól og Ólafur Egilsson sóknarnefndarmaður fylgist með. Ólafur ávarpaði börnin, flutti gott ágrip af sögu Biblíunnar. Hann sagði það von gefenda Biblíunnar að hún yrði fljótt snjáð, þ.e. bæri þess merki að hafa verið mikið lesin! Ástæða þessarar ákvörðunar kirkjunnar er vitaskuld sú að ljóst er orðið að það er liðin tíð að sérhvert fermingarbarn fái Biblíu í gjöf frá fjölskyldu eða vinum og vill kirkjan tryggja að enginn fermist án þess að eiga Biblíu. — Vitað er að fleiri kirkjur hafa tekið upp á þessu.

Höfundur er prófessor í gamlatestamentisfræðum við Háskóla Íslands.

„Hann sagði það von gefenda Biblíunnar að hún yrði fljótt snjáð.“

FJÁRSJÓÐIR Bænir og ritningarorð í dagsins önn Fjársjóðirnir innihalda 84 númeruð spjöld — 12 vikur, eitt spjald á dag — eða lesa fleiri í einu. Öðrum megin er ritningarvers úr Biblíunni sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn.

KVÖLDBÆNAFJÁRSJÓÐUR ▶ tilvalinn að grípa til fyrir svefninn. FJÁRSJÓÐUR ▶ talar til okkar í upphafi dags. FJÁRSJÓÐUR GLEÐINNAR ▶ uppörvar og gleður í önnum hversdagsins. KÆRLEIKSFJÁRSJÓÐUR ▶ fjallar um kærleikann, þar má bæði finna bænir og andleg húsráð. Nánar á heimasíðunni kirkjuhusid.is Kirkjuhúsið | Laugavegi 31 | 101 Reykjavík skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is Sími: 528-4200

19


LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–19 | Um helgar 11–16


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
B+ 2018 by Hið íslenska biblíufélag - Issuu