Skip to main content

B+ 2016

Page 1

B+

BLAÐ BIBLÍUFÉLAGSINS 2016

„Burðarstoðir í sjálfsvitund þjóðarinnar“ Ávarp forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar

200. AFMÆLISÁRIÐ Í MÁLI OG MYNDUM ÁFRAM SKAL HALDIÐ Biblíuútgáfur og framtíðin CODEX SINAITICUS Til hvers er Biblían? Til hvers Biblíufélag?


Fylgt úr hlaði

ÁFRAM SKAL HALDIÐ Árið 2015 er liðið og árið 2016 hefur hafið göngu sína. Á árinu 2015 var þess minnst að 200 ár voru liðin frá stofnun Hins íslenska biblíufélags. Ýmislegt var á dagskrá afmælisársins og er það allt rakið hér í blaðinu og einnig á heimasíðu félagsins biblian.is. Í hverjum mánuði var viðburður og stundum fleiri en einn. 24 aðilar, bæði vígðir og óvígðir, rituðu pistla sem birtust í hverjum mánuði í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu, biskupar fluttu vikulega hugleiðingar á útvarpsstöðinni Lindinni allt árið. Börn myndskreyttu hátíðarvers úr Biblíunni, málstofur voru haldnar, sýningar settar upp og tónlist var flutt sem tengdist Biblíunni. Á afmælisdaginn hinn 10. júlí var guðsþjónusta í Dómkirkjunni eins og fyrir 200 árum og hátíðarsamkoma var haldin í Hallgrímskirkju 29. ágúst. Um 200 manns gerðust félagar og ungt fólk tók þátt í kynningu á félaginu ásamt fleirum. Á þessu starfi afmælisársins skal byggt þegar gengið er til móts við framtíðina. Það má ekki sofna á verðinum og setja starfsemina í salt. Áfram skal haldið við að breiða út Orðið og vekja athygli á því og bókinni sem geymir margar bækur sem skrifaðar voru á löngu tímabili og flytja bæði boðskap og sögu. Áfram skal haldið við að byggja brú frá textunum til samtíðarinnar þannig að hver kynslóð skynji boðskapinn og fái þekkingu á tilurð hans og skilning á tilgangi hans. Það er fátítt að félög lifi svo lengi sem Hið íslenska biblíufélag. Tilgangur stofnunar þess og tilveru síðastliðin 200 ár hefur verið

að vinna að þýðingu, útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. Nýjasta þýðing Biblíunnar er frá árinu 2007 en nýjasta útgáfan kom út á afmælisárinu, sem er rafbók. JPV-útgáfa gefur Biblíuna út í samstarfi við Hið íslenska biblíufélag frá árinu 2007 en áður gaf félagið sjálft út Biblíuna. Áfram skal haldið í þakklæti fyrir það sem hið viðburðarríka afmælisár gaf. Áfram skal haldið í krafti þess sem árið færði. Áfram skal haldið í þakklæti til Sameinuðu biblíufélaganna (United Bible Societies) sem Hið íslenska biblíufélag á aðild að og í þakklæti til frænda okkar á Norðurlöndunum sem gerðu okkur kleift að halda starfinu gangandi með miklum og góðum stuðningi. Hlutverk Biblíufélagsins verður hér eftir sem hingað til að standa vörð um Biblíuna og boðskap hennar og sjá til þess að alltaf verði til Biblíur á íslenskri tungu í landi okkar. Þakkir eru færðar öllum þeim fjölmörgu er lagt hafa hönd á plóg í þágu félagsins í gegnum tíðina. Páll postuli segir í fyrra bréfi sínu til Korintumanna: „Þannig skiptir það engu hver gróðursetur eða hver vökvar. Það er Guð sem skiptir máli, hann gefur vöxtinn.“ Guð blessi B ­ iblíufélagið og starfsemi þess.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands og forseti Hins íslenska biblíufélags

MUNIÐ SÖFNUNARREIKNING BIBLÍUFÉLAGSINS Reikningur 0101-26-003555 Kennitala 620169-7739

 KJÖRI HEIÐURSFÉLAGA LÝST

Frá vinstri: Sverrir Kristinsson, Sigurður Pálsson, Karl Sigurbjörnsson, Guðrún Kvaran og Agnes M. Sigurðardóttir.

Á afmælishátíð Hins íslenska biblíu­félags, sem fram fór í Hallgrímskirkju 29. ágúst 2015, voru fjórir einstaklingar kjörnir heiðursfélagar þess og þeim afhent skjal því til staðfestingar „í viðurkenningarskyni fyrir mikilvægt framlag til útbreiðslu Biblíunnar meðal íslenskrar þjóðar“. Undir skjalið ritaði Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands og forseti Hins íslenska biblíufélags. Heiðursfélagarnir fjórir eru: Dr. Guðrún Kvaran, dr. Karl Sigurbjörnsson, dr. Sigurður Pálsson og Sverrir Kristinsson. Ljósmyndirnar eru teknar við þetta tækifæri, þegar kjöri fjórmenninganna var lýst og forseti félagsins afhenti þeim viðurkenningarskjal. Myndirnar tók Gígja Einarsdóttir ljósmyndari. Fleiri myndir frá hátíðinni eru á miðopnu blaðsins.


B+ EFNI BLAÐ BIBLÍUFÉLAGSINS 2016 Hið íslenska biblíufélag Laugavegi 31 101 Reykjavík FORSETI HINS ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAGS Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands AÐRIR Í STJÓRN FÉLAGSINS Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari Dögg Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur Guðni Einarsson, blaðamaður Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor Rúnar Vilhjálmsson, prófessor Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður Séra Valgeir Ástráðsson Séra Þórhildur Ólafs FRAMKVÆMDASTJÓRI Ragnhildur Ásgeirsdóttir PÓSTÁRITUN Pósthólf 243 121 Reykjavík SÍMI 528-4004 NETFANG hib@biblian.is

B+

3

SÍÐUR 4–5

„BURÐARSTOÐIR Í SJÁLFSVITUND ÞJÓÐARINNAR“ Ávarp forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, á afmælishátíð Hin íslenska biblíufélags í Hallgrímskirkju 29. ágúst 2015.

SÍÐA 6

BIBLÍAN SEM EIN AF STOÐUM MENNINGARINNAR Jónína Ólafsdóttir segir að sá sem vilji vera læs á fortíð sína og samtíð eigi að gera sér far um að lesa Biblíuna og kryfja hana til mergjar.

SÍÐA 8

BIBLÍAN OG UNGA FÓLKIÐ Ungt fólk hefur hvorki gagn né gaman af að lesa eitthvað sem það skilur ekki, segir Jón Ólafur Magnússon guðfræðinemi, en ýmsar leiðir eru til að efla skilning.

VEFFANG www.biblian.is RITNEFND Gunnlaugur A. Jónsson Ólafur Egilsson (ábm.) Ragnhildur Ásgeirsdóttir HÖNNUN OG UMBROT Brynjólfur Ólason

SÍÐA 9

„HEFURÐU LESIÐ ALLA BIBLÍUNA?“ Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrar­kirkju, fjallar um algengustu spurninguna sem hún hefur fengið síðan hún hóf prestsskap.

PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja FORSÍÐUMYNDIN Kristsstytta Alberts Thorvaldsens (1770–1844) í Frúarkirkjunni í Kaup­ mannahöfn. Thorvaldsen varð mesti myndhöggvari Evrópu á sinni tíð og afi hans, séra Þorvaldur Gottskálksson á Miklabæ, var kunnur fyrir fagra kirkjusmíð. ­Ljósmyndari: Poul Erik Hornstrup.

SÍÐUR 18–19

EITT MERKASTA HANDRIT BIBLÍUNNAR Séra Hreinn Hákonarson fjallar um Konstantín von Tischendorf og biblíuhandritið sem hann fann 1859 og nefnist Codex Sinaiticus.

SÍÐUR 22–23

TIL HVERS ER BIBLÍAN? TIL HVERS BIBLÍUFÉLAG? Erindi herra Karls Sigurbjörnssonar biskups sem hann flutti á málstofu 8. desember 2015 í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins.


4   B+

„Burðarstoðir í sjálfsvitund þjóðarinnar“ Ávarp forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags

B

iskup Íslands, biskupar, prestar, virðulegu hátíðargestir. Í höfuðkirkju sem helguð er lífi og skáldskap séra Hallgríms, við hörpuslátt og sellótóna, hljóma orgelsins sem fært hefur listina í hæstu hæðir komum við saman til að minnast þeirra sem stofnuðu félag í fátæku þorpi, að lokinni messu í guðshúsi sem landsmenn kusu að nefna Dómkirkju þótt það tignarheiti styngi í stúf við hrörleg timburhúsin, torfkofa, moldargötur og opin ræsi. Þorpið varð í fyllingu tímans að blómlegri borg, iðandi vettvangi mannlífs, menningar og lista, fundarstaður leiðtoga heimsins, margfræg vítt um veröldina. En sú sýn var fjarri hinum fámenna hópi; kannski líkust álfheimum hefði einhver reynt að beina hugum þeirra að slíkri þróun. Það er á svipaðan hátt okkur framandi að skilja til fulls hve fátæklegur, hrörlegur, jafnvel dapur bragur var á reykvíska þorpinu þegar Hið íslenska biblíufélag var stofnsett fyrir tvö hundruð árum; nafnið enn metnaðarfyllra í ljósi vanefnanna allt í kring og hve dimmar horfurnar voru. Skólinn hafði nokkru áður verið fluttur vegna niðurníðslu frá Hólavöllum til Bessastaða og þótt sagan hafi síðar varpað ljóma á lærdómssveitina sem þar sat næstu áratugi var slíkur bjarmi andans enn hulinn móðu óvissu og erfiðleika; Sveinbjörn Egilsson við nám í Kaupmannahöfn, búningur hans á helgum

textum og Heims um ból enn í húfu guðs; Jónas Hallgrímsson föndraði við legg og skel heima á Hrauni og Jón Sigurðsson lítill snáði á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Vegferð hinnar fátæku, fámennu þjóðar við nyrsta haf til sjálfstæðis og fjölþættrar, blómlegrar menningar þá algjörlega framandi öllum þeim sem landið byggðu; án fótfestu í hugum þeirra. Samt sótti sveitin sem stofnaði Hið íslenska biblíufélag metnað og styrk í hugsjónina um að efla sess hinnar helgu bókar með útgáfum hennar á íslensku, óf í heildarsýn arfleifð og tign tungumálsins, boðskap kristninnar og frásagnir beggja testamenta, sem og gildi trúar sem var svo samofin sögu og menningu Íslendinga að ekki verður sundur slitið. Það gleymist oft í orðræðu okkar tíma, þegar krafist er að kristnum textum sé ýtt til hliðar í skólum landsins og við uppeldi æskunnar, að menning og vegferð Íslendinga frá landnámstíð til þessarar nýju aldar, rösk þúsund ár í sögu þjóðar, verða ekki skilin til hlítar án þekkingar á kristnum fræðum; frásagnir Biblíunnar, sess og þróun kirkjunnar, störf presta í byggðum landsins séu öllum kunn og að verðleikum metin; að viðurkennt sé af heilum huga að hin helga bók og trúarskáldskapur Íslendinga sjálfra eru burðarstoðir í sjálfsvitund þjóðarinnar, í samfelldri sögu okkar og í nýsköpun bókmennta, lista og samfélags á okkar tímum. Sá sannleikur birtist okkur í mörgum myndum: Í sálmi Kolbeins Tumasonar sem átta öldum síðar er öðrum oftar sunginn við jarðarfarir; í mannanöfnum sem Hornstrendingar og íbúar Jökulfjarða sóttu löngum í Gamla testamentið; í lærdómssögu Hóla og Skálholts og þátttöku prestanna í sjálfstæðisbaráttu nítjándu aldar; í áhrifamætti kirkjunnar við að móta samfélagsvitund, samtakamátt og félagsþroska á tímum hins unga lýðveldis; í störfum

kirkju sem nú velur presta og biskupa á grundvelli lýðræðisvilja fólksins sjálfs. Þessi sannleikur birtist okkur líka í nýsköpun bókmennta og lista, í trúarstefum óperunnar sem poppari blómatímans færði okkur sem fullþroskað tónskáld, í nýrri útgáfu Passíu­sálma sem byltingarsinni úr röðum 68-kynslóðarinnar klæddi sem lærdómsmaður í búning öndvegisrits; í málverkunum sem nú prýða Hallgrímskirkju og í flutningi Mótettukórsins á Salómon fyrr í ágúst; Biblían, Händel og hin unga kynslóð í íslensku tónlistarlífi urðu eitt í einstæðum flutningi; þúsund ára trú, texti og saga í tignarstól æðri lista. Kraftar Hins íslenska biblíu­ félags beindust í öndverðu og jafnan síðan að útgáfu hinnar helgu bókar á tungu fámennrar þjóðar, ekki aðeins í nafni kristninnar heldur einnig til að efla vegsemd og þroska Íslendinga, gera bændum og sjómönnum kleift að verða þjóð meðal þjóða. Að tveimur öldum liðnum þökkum við stofnendunum og öllum þeim sem helgað hafa Biblíufélaginu krafta sína, þökkum fyrir framlag til menningar og helgihalds Íslendinga; heiðrum félagið sem orðið hefur hið elsta meðal okkar og sækjum í sögu þess vegvísa um dýpri skilning á arfleifð þeirra sem skópu það Ísland sem við nú njótum, ættjörð sem áfram getur boðið börnum sínum andlegan þroska og gjöfult líf. Flutt á hátíðarsamkomu í Hallgrímskirkju 29. ágúst 2015


B+

5

„Það gleymist oft í orðræðu okkar tíma, þegar krafist er að kristnum textum sé ýtt til hliðar í skólum landsins og við uppeldi æskunnar, að menning og vegferð Íslendinga frá landnámstíð til þessarar nýju aldar, rösk þúsund ár í sögu þjóðar, verða ekki skilin til hlítar án þekkingar á kristnum fræðum.“

© GÍGJA EINARSDÓTTIR


6   B+

Egill Jóhannsson

Biblíuútgáfur og framtíðin

L

íklega er ekkert þeirra verka sem Forlagið gefur út sem ég er stoltari af að hafa tengst en Biblían enda þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi verksins í svo mörgu tilliti. Heiðurinn fyrir útgefandann er því mikill. Það var árið 2007 sem nýja íslenska þýðingin kom út og hófum við útgáfuna með fimm mismunandi gerðum í tveimur stærðum. Síðan þá höfum við bæði endurprentað inn í þær útgáfur auk þess sem við gáfum árið 2011 út Biblíuna í ódýrri kilju, og sömuleiðis gáfum við hana út án Apókrýfubóka sama ár. Nýja testamentið kom svo út á hljóðbók árið 2009. En aðeins að árangrinum þessi rúmu átta ár sem liðin eru frá útkomu nýrrar þýðingar. Í stuttu máli sagt hefur salan ekki staðist væntingar okkar. Þá skal nú reyndar strax tekið fram að hún hefur heldur ekki verið nein katastrófa, en þó ekki eins og við höfðum lagt upp með og vænst þegar við ákváðum að ráðast í þetta verkefni með Biblíufélaginu. Og auðvitað spyrjum við eins og þið hvers vegna ekki hafi tekist að selja jafn mikið og lagt var af stað með í upphaflegum áætlunum. Ég held að það sé ekki hægt að benda á eina tiltekna skýringu fyrir því að salan hefur ekki staðist upphaflegar væntingar. Við útkomu var, eins og líklega mátti við búast, þýðingin verulega gagnrýnd og má segja að okkur, og öðrum aðstandendum útgáfunnar, hafi ekki gengið nægjanlega vel að svara fyrir gagnrýnina. Eins hefur kirkjan auðvitað verið með storminn í fangið í allri almennri umræðu á undanförnum misserum og árum, og má nánast segja að það hafi verið í tísku að pönk­ ast á kirkjunni og öllu er henni tengist og fjölmargir aðilar farnir að líta á það sem skyldu sína að koma reglulega fram og agnúast út í flest það sem fékk að vera í friði, áratugum og jafnvel öldum saman. Og það gerir okkur erfiðar fyrir og þá sér í lagi þegar kemur að markaðsstarfi. Ég vil þó árétta það að við erum enn jafn ákveðnir þegar kemur að útgáfu Biblíunnar og við vorum í upphafi. En auðvitað setur það strik í reikninginn þegar eftirspurnin er ekki sú sem við höfðum vænst — og verðum við því að taka mið af því þegar allar frekari hugmyndir eru skoðaðar og gera raunhæfari áætlanir út frá því.

Egill og kötturinn Randver. En aðeins að framleiðslunni. Einn ánægjulegasti þáttur bókaútgáfu er sjálf bókargerðin og hún verður nú varla áhugaverðari en þegar kemur að Biblíuútgáfu. Ef vel á að vera þarf að vanda sérlega vel til allra verka, að ekki sé nú minnst á pappírsgerðina. Það er því engin furða að sérhæfing í Biblíuprentun er mikil, og var því ljóst snemma í útgáfuferli nýju þýðingarinnar að ekki yrði hægt að prenta hér á landi. Við ákváðum að leita til afar vandaðs hollensks Biblíuprentara, sem eftir því sem ég best veit tekur engin önnur verk að sér en prentun Biblíunnar. Frágangurinn var því í hæsta gæðaflokki eins og að var stefnt. Það má samt ekki líta framhjá þeirri staðreynd að Biblíuprentun er afar dýr, enda um sérhæfða prentun og umfangsmikla að ræða. Það getur því tekið langan tíma að fá inn fyrir prentkostnaði, og skal ég játa það að mér finnst það vera alveg á mörkunum eins og staðan er núna, að halda úti 6–7 mismunandi gerðum. Þessu fylgir umtalsverð fjárbinding, og reynir nokkuð á budduna, en enn er þetta þó allt innan sæmilega skynsamlegra marka. En þetta setur vissulega öllum framtíðarpælingum einhverjar skorður, að fjölga prentuðum útgáfutegundum. Við höfum frá upphafi velt fyrir okkur útgáfu ýmissa nýrra útgáfna, og víst að það kemur að því að við annað hvort fjölgum

tegundum, eða þá skiptum út — með það að markmiði að höfða til fleiri viðskiptavina og breikka það sem mætti kalla grunninn — a.m.k. framboðið. Sérútgáfur eins og skírnar- og giftingarbiblíur eru eitthvað sem við höfum lengi velt fyrir okkur og mun án efa koma að því að við ráðumst í einhverja útgáfu af slíku tagi. Næst á dagskrá er rafræn útgáfa Biblí­ unn­ar og er ég að vona að það takist að koma henni á markað í þessum mánuði. Nú er unnið hörðum höndum að því að koma henni á þess lags rafrænt form að hægt verði að bjóða hana í rafbókaverslunum bæði hér heima og hjá stærsta rafbókasala heims, Amazon. Þetta er nokkuð umfangsmikið verk — og tæknilega líklega það flóknasta og sömuleiðis kostnaðarfrekasta rafræna útgáfa sem við höfum tekið að okkur af þessu tagi — og því þori ég ekki að lofa því að þetta náist, en við stefnum svo sannarlega að því fyrir margra hluta sakir. Margir myndu ætla að rafræn útgáfa væri einfalt mál, en svo er alls ekki. Það þarf að gæta að ýmsu, og mikilvægt að tæknin sé nýtt og virknin þannig eins og lesendur og kaupendur verksins vilja. Og að sjálfsögðu að textinn lagi sig vel að mismunandi skjástærðum, tækjum o.s.frv. Við höfum viljað leggja sama metnað í rafbókargerð og aðrar útgáfur og ekki viljað ráðast í útgáfu með einfaldasta mögulega hætti — þó svo að það sé kannski ódýrast, fljótlegast og einfaldast — heldur lagt ríka áherslu á að kaupendur fái það sem vænst er. Þess vegna tekur þetta nokkurn tíma. Að öðru leyti er erfitt að tjá sig frekar um framtíðarplön hvað útgáfuna varðar en þetta. Við munum breikka úrvalið af prentuðum bókum en höfum ekki enn sem komið er tímasett slíkar útgáfur en það ræðst líka eins og ég sagði áður af framboði og prentun á öðrum gerðum. Hvað rafrænar útgáfur varðar þá fylgjumst við mjög vel með þróuninni í rafrænni útgáfu erlendis og munum reyna eftir fremsta megni að fylgja henni innan skynsamlegra og gerlegra marka fyrir hinn smáa íslenska markað. En það er þó á hreinu að við ætlum okkur ekki að verða eftirbátar annarra, og þá ekki síst þegar kemur að gæðum útgáfunnar. Af henni erum við — og munum verða — stolt. Höfundur er útgefandi hjá JPV-útgáfu


B+

Jónína Ólafsdóttir

Biblían sem ein af stoðum menningarinnar

B

iblían er ein mest selda og mest lesna bók í heiminum. Hún er safn 66 bóka sem skiptast niður milli Gamla og Nýja testamentisins. Sumar þeirra fjalla um lög og reglur, aðrar eru ljóð og sálmar, og enn aðrar eru frásagnir af fólki. Biblían fjallar um mannlega tilveru og þá anga sem henni tengjast, sorg, gleði, öryggi og ótta. Biblían er heillandi rit á ótalmarga vegu og á henni má alltaf finna nýjan flöt sem vert er að gefa sérstakan gaum. Kynni mín af Biblíunni undanfarin ár hafa fyrst og fremst tengst námi mínu í Háskóla Íslands, fyrst í íslensku þar sem ég rannsakaði meðal annars kynjanotkun í þá nýútkominni þýðingu Biblíunnar (2007), en síðar í guðfræði- og trúarbragðafræðideild þar sem eftir tæplega fimm ára nám ég hef lært að skoða þetta merka rit með gagnrýnum hætti á svo ótal marga vegu. Meðal þess má nefna mismunandi guðsmyndir í Davíðssálmum Gamla testamentisins, afstöðu Biblíunnar til samkynhneigðar og kynverundar, afstöðu Biblíunnar til stöðu kvenna og hvernig Biblían fjallar um óréttlæti, andóf og ofbeldi. Hvernig Biblían hefur verið notuð í kirkjusögu Íslands og menningu og með hvaða hætti sé vert að leggja út af textum þessa forna rits, svo nútímamanneskjur skilji og geti nýtt sér boðskapinn með árangursríkum hætti. Þessi upptalning, sem er langt því frá tæmandi, sýnir einna best hversu mikilvægt er að við skoðum Biblíuna út frá mörgum mismunandi sjónarhornum svo sem flestir þjóðfélagshópar geti nýtt sér boðskap hennar á uppbyggilegan hátt. Þá er einnig mikilvægt að við áttum okkur á því að Biblían er rit sem nauðsynlegt er að túlka. Dæmisögur Jesú eru til að mynda viðurkennd og dáð listaverk sem afhjúpa leyndarmál með líkingum og dæmisögum. Vitnisburður í slíku formi krefst ávallt túlkunar. Það þarf varla að minnast á það að Biblían hefur víða í kristnum samfélögum verið notuð gegn ákveðnum hópum til að þagga niður í þeim og það er ekkert launungamál að Biblían hefur til að mynda verið notuð til að réttlæta óæðri stöðu konunnar. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir það að konur hafa einnig fundið hvatningu og styrk í Biblíunni í baráttu sinni gegn kúgun, óréttlæti og ofbeldi. Vel þekkt dæmi úr Biblíunni sem tala gegn stöðu konunnar eru frásögurnar um

7

MINN RITNINGARSTAÐUR HARALDUR HREINSSON Doktorsnemi í guðfræði við háskólann í Münster

Jes 30.15  Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast, í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera. „Þetta vers kennir manni mikilvægi þess að lifa og starfa í náð og friði. Maður gleymir því svo auðveldlega í hversdeginum og þess vegna er alltaf jafngott að rekast á þessi orð.“

ÞORKELL ÁGÚST ÓTTARSSON BA í guðfræði, kvikmyndagerðarmaður í Drammen 1Mós 3.22  Og Drottinn Guð sagði: „Nú er maðurinn orðinn sem einn af oss fyrst hann ber skyn á gott og illt. Bara að hann rétti nú ekki út hönd sína, taki einnig af lífsins tré og eti og lifi eilíflega.“

Jónína Ólafsdóttir. sköpun heimsins og syndafallið í upphafi fyrstu Mósebókar og ekki síður útlegging þessara frásagna í Nýja testamentinu. Eins og gefur að skilja voru konur til skamms tíma ekki þátttakendur í túlkun Biblíunnar til jafns á við karla, þar sem þær höfðu einfaldlega ekki aðgang að menntun eða trúarlegum stofnunum. Konur höfðu þar af leiðandi ekki greiðan aðgang til að vinna gegn þeim hindrunum og fordómum sem byggðust á Biblíunni í þeirra garð. Hér er þó einnig mikilvægt að við gefum því gaum að mjög víða t.d. í Nýja testamentinu má sjá að konur eru í aðalhlutverki í mikilvægustu atburðum guðspjallanna. Það var til að mynda kona sem fékk fyrst að vita að frelsarinn myndi fæðast, það var kona sem fyrst játaði Jesú sem Drottin og það voru konur sem fengu fyrst vitneskju um upprisuna, grundvallaratburð kristninnar. Biblían er eins og áður segir margslungið rit, sem hægt er að leggja út af á ótal vegu. Hún er ein af stoðum menningarinnar í veröldinni, hvort sem menn trúa því sem í henni stendur eða ekki. Það er hins vegar mikilvægt að við höfum það ávallt í huga að Biblían er skrifuð á löngum tíma og elstu rit hennar eru um þrjú þúsund ára gömul. Sá sem vill vera læs á fortíð sína og samtíð, menningu, umhverfi og rætur, ætti hins vegar að gera sér far um að lesa Biblíuna og kryfja hana til mergjar. Höfundur er íslenskufræðingur og mag.theol. nemi við Háskóla Íslands

„Þetta vers heillar mig því það útskýrir svo vel að hvaða leyti mannkynið er frábrugðið dýrunum (þekking, siðgæði …) og að hvaða leyti við erum lík þeim (dauðinn). Versið er einnig áhugavert því það gefur til kynna að Guð hafði ekki ætlað mannkyninu þessa stöðu. Hann „sagði ósatt“ um ástæðu þess að þau mættu ekki borða af ávexti skilningstrés góðs og ills og þarf síðan að kljást við afleiðingarnar (sem er restin af Biblíunni).“

SIGRÚN ASPELUND Skrifstofumaður á skrifstofu Framsóknarflokksins Sír 6.14–15  Traustur vinur er örugg vörn, finnir þú slíkan átt þú fjársjóð fundinn. Traustur vinur er verðmætari öllu, á engan kvarða fæst gildi hans metið. „Mér finnst vináttan eitthvað það dýrmætasta í lífinu og þarna er komist svo vel og fallega að orði um hana að ritningarstaðurinn hefur lengi verið mér hugleikinn.“

JÚLÍUS HAFSTEIN Sendiherra og fv. borgarfulltrúi Jóh 1.1–5  Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er. Í honum var líf og lífið var ljós mannanna. Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því. „Það er svo margt í þessum orðum sem kemur manni til að hugsa um lífið og tilveruna — og ekki síður um samskipti mannfólksins um allan heim. Að orðið og ljósið eru sterkara en myrkrið.“


8   B+

MINN RITNINGARSTAÐUR

ANNA MAGNÚSDÓTTIR Tannlæknir Okv 30.8  Lát fals og lygi vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðævi en veit mér minn deildan verð. „Eitt af mínum uppáhaldsversum er þessi texti úr Orðskviðunum, og þá finnst mér sérstaklega seinni hluti þess tala til mín. Mér finnst frábær lífsspeki í þessari bæn. Við ættum að leitast við að hafa það sem við þurfum, hvorki meira né minna. Ef allir hefðu sinn deildan verð væri veröldin betri. Nýtískulega mínimalíska lífsstílinn má finna í hinum tvö til þrjú þúsund ára gömlu Orðskviðum.“

MARÍA GUNNLAUGSDÓTTIR Prestur í Lundi, Svíþjóð Jes 66.9  Skyldi ég láta barnið komast í burðarliðinn og ekki láta það fæðast? segir Drottinn. Eða skyldi ég, sem læt barnið fæðast, loka móðurkviðnum? segir Guð þinn. „Myndlíkingin sem hér birtist í þessum fallega Jesajatexta hefur verið mér einkar kærkomin síðastliðið misseri og hjálpaði mér gegnum bókstaflega fæðingu, en það vildi svo til að hún tók 38 tíma. En textinn getur átt við hvaða erfiða verkefni sem er þar sem svo mikils er krafist að maður (eða kona) er á barmi þess að gefast upp. Einnig þykir mér afar gaman að líkingunni þar sem orðalagið er einstakt og talar til reynslu kvenna þá og nú. Textinn er í raun svar við Jes 37.1–3, en þar er Hiskía konungur alveg frá sér numinn af sorg vegna ástands þjóðar sinnar sem hann telur of örmagna til að orka lokasprettinn til nýs lífs.“

JÓN G. HAUKSSON Ritstjóri Frjálsrar verslunar og sóknarnefndarmaður í Grafarvogssókn 1Kor 13.4  Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. „Kjarni kristindómsins er kærleikur. Biblían og biblíusögur boða kærleika og góð, siðferðileg gildi í umgengni við aðra. Koma skaltu fram við náungann eins og þú vilt að komið sé fram við þig. Ekki síst reynir á boðskap kristindómsins í umgengni við þá sem lakar eru settir. Þau gildi eru þroskandi og menntandi og eiga því brýnt erindi til barna; ungur nemur, gamall temur. Þess vegna er það sérkennilegt að þeir, sem kenna sig við siðmennt og húmanisma — sem sagður er leggja höfuðáherslu á manninn — vilji af svo mikilli hörku bregða fæti fyrir kennisetningar bókar og úthýsa úr skólum landsins. Bókar sem byggir upp, þroskar manneskjuna, kennir henni góða siði og engan meiðir. Af háttvísi sýnir kirkjan þeirri hegðun hins vegar umhyggju og kærleik.“

Ólafur Jón Magnússon

Biblían og unga fólkið

F

yrirsögnin hér að ofan vekur upp margar vangaveltur um tengsl ungs fólks og Biblíunnar. Þekkir ungt fólk Biblíuna? Les það hana? Ætti ungt fólk að lesa hana? Án þess að hafa rannsakað hug ungs fólks tel ég mig geta svarað af nokkru innsæi þar sem ég sjálfur fell í hópinn sem um ræðir. Ég tel öruggt að um það bil allt ungt fólk hafi heyrt minnst á Biblíuna og tekið einhvers konar afstöðu til þess sem hún hefur að geyma. Hún hefur einstaka stöðu meðal bóka í samfélagi okkar. Hvaða önnur bók er jafnvíðfræg og knýr fólk með jafnsterkum hætti til þess að taka afstöðu til þeirra orða sem hún hefur að geyma? Fornt rit og tímafrekt aflestrar En lestur hennar helst ekki í hendur við frægð hennar, að minnsta kosti ekki meðal ungs fólks eftir því sem ég fæ best séð. Margar ástæður búa þar að baki en ein þeirra er þessi: Biblían er fornt rit og oft er erfitt og tímafrekt að botna í því. Ungt fólk hefur hvorki gagn né gaman af að lesa eitthvað sem það skilur ekki. Í leit að einhverju sem gagnast þeim og nýtist vel í lífinu verður oft eitthvað annað en biblíulestur fyrir valinu. Ég hugsa að mörg Gídeon-nýjatestamenti hafi verið lögð til hliðar eftir nokkrar blaðsíður og ekki tekin upp aftur af þessum ástæðum. Leiðir til að efla skilning Margt er hægt að gera til þess að hjálpa ungu fólki að skilja Biblíuna betur, t.d. að gefa út skýringarrit og stutt myndbönd á vefnum, gerð greinarbetri inngangsorða að hverju riti o.s.frv. En hafa ber í huga að rit Biblíunnar voru skrifuð með það fyrir augum að vera lesin upphátt í samfélagi en ekki í einrúmi. Því ætti ekki allur þungi að liggja á því að auka persónulegan biblíulestur. Fremur ættu kirkjur að vanda prédikunar- og kennsluhlutverk sitt og gæta þess að leggja Biblíuna út þannig að boðskapur hennar tali til ungs fólks og gagnist þeim í lífinu. Ótæmandi uppspretta Biblían hefur gagnast mér vel í mínu lífi og er stöðug uppspretta innblásturs og huggunar. Ég get óhikað mælt með lestri

Ólafur Jón Magnússon, stud.theol.

„Eitt af því sem heillar mig hvað mest við bókina er með hversu f­ jölbreyttum hætti hægt er að lesa hana … Hvernig sem hún er lesin veldur hún ekki vonbrigðum.“ hennar og er sannfærður um að annað ungt fólk hefði mikið gagn af því að kynna sér boðskap hennar betur. Eitt af því sem heillar mig hvað mest við bókina er með hversu fjölbreyttum hætti hægt er að lesa hana. Það má lesa hana sem sígilt bókmenntaverk eða kryfja texta hennar með „dauðhreinsuðum“ verkfærum biblíufræðanna. Hana má auk þess lesa í trúarlegum tilgangi; í leit að persónulegri leiðsögn, huggun og hvatningu frá Guði. Hvernig sem hún er lesin veldur hún ekki vonbrigðum. Hún er ótæmandi uppspretta hugsunar sem á einn eða annan hátt fær lesandann til að hugsa um Guð og tengsl hans við sjálfan sig, annað fólk og umhverfi sitt. Því hvet ég þig, lesandi góður, til þess að láta Biblíuna ekki framhjá þér fara. Höfundur er guðfræðinemi við Háskóla Íslands


B+

9

Hildur Eir Bolladóttir

„Hefurðu lesið alla Biblíuna?“

Þ

etta er ein algengasta spurning sem ég hef fengið síðan ég hóf minn prestsskap. Fyrst í stað var svar mitt nokkuð loðið: „Ja, svona næstum því,“ en í dag er það mjög afdráttarlaust og satt: „Nei, og hef heldur ekki hugsað mér það.“ Að lesa alla Biblíuna, bara til þess að geta sagst hafa gert það, er eins og að borða sig saddan í fjórtán fermingarveislum án þess í rauninni að langa til þess. Þá er líka best að upplýsa, að samlíkingin er ekki alveg úr lausu lofti gripin, því undirrituð gerði þetta einmitt á barnsaldri, ekki vegna þess að hún væri svo svöng heldur vegna þess að hún var ekki búin að hugsa gjörninginn til enda og líka vegna þess að pabbi hennar var prestur í litlu samfélagi og þeim var þess vegna boðið í allar þessar veislur. Samtal fjölda fólks Biblían er fjölmenningarsamfélag, hún býður ekki upp á ein algild siðalögmál frekar en sá heimur sem við lifum í og hún býður heldur ekki bara upp á fegurð frekar en veröldin sem við tilheyrum. Biblían er eins og Facebook þar sem fólk viðrar skoðanir sínar á Guði og mönnum, mannréttindum , trú og trúleysi án þess að vita

Séra Hildur Eir Bolladóttir

heldur ekki að skauta framhjá óþægilegu köflunum sem eru býsna margir, ekki síst í Gamla testamentinu. Þetta eru kaflar sem birta guðsmynd sem nútímamanninum hugnast síður. Við eigum að lesa Biblíuna með sagnfræði, félagsfræði, sálfræði og lífsreynslu í huga og kynjagleraugu á nefinu. Biblían er ekki eins og sjálfshjálparbækur nútímans sem tala inn í okkar samtíma og segja okkur eitthvað sem við flest vitum en þurfum stundum hjálp til að horfast í augu við. Lestur Biblíunnar

„Ég stend mig að því að skilja ritningarlestra á nýjan hátt eftir því sem árin líða og líf mitt tekur breytingum rétt eins og ég sjálf tek breytingum. Aldrei hafði Davíðssálmur 139 neitt nýtt að segja mér fyrr en náinn ástvinur greindist með heilabilunarsjúkdóm.“ í raun hver hefur á endanum rétt fyrir sér. Biblían er samtal fjölda fólks við Guð og menn, fólks með ólíkan bakgrunn og lífsviðhorf. Þess vegna efast ég um ágæti mannakorna, að fólk dragi sér daglega orð í þeim tilgangi að nærast af handahófskenndum línum úr Biblíunni. Ég held að það sé svolítið eins og að borða bara einhvern mat og vita ekkert hvað hann inniheldur. Þetta er einmitt það sem næringarfræðingar eru alltaf að brýna fyrir fólki að gera ekki, hafi það á annað borð hug á að lifa heilsusamlegu lífi. Við verðum að lesa Biblíuna í samhengi til þess að hún komi að raunverulegu gagni, við eigum

er meira krefjandi en svo, ekki síst ef við ætlum okkur að forðast að falla í pytt bókstafstrúar. Bókstafstrúin er tvíþætt en báðir þættir eru að mínu mati gagnslausir. Annars vegar er um að ræða þá trú að hvert orð Biblíunnar sé innblásið af Guði og okkur beri að gleypa það ótuggið án þess að bera upp spurningar og hins vegar er það bókstafstrúin sem velur að taka það sem sagt er í Biblíunni bókstaflega í þeim tilgangi að benda á ógagn hennar og illsku. Lestur Biblíunnar á að vera til gagns Lífsreynslugleraugun eru gríðarlega mikilvæg við lestur Biblíunnar, sumt ætti

fólk ekki að lesa fyrr en það er komið til vits og ára. Ég viðurkenni að hafa í tímans rás stundað gegndarlausa ritskoðun á biblíusögum í sunnudagaskólanum og jafnframt í fermingarfræðslunni. Það er nefnilega einhver ástæða fyrir því að ungbörn drekka sérstaka mjólk á fyrstu mánuðum ævinnar í stað þess að borða reykt kjöt, kartöflur og uppstúf. Þess vegna segi ég börnum þær sögur sem þau hafa forsendur til að skilja, vegna þess að það er ekki gagnlegt að segja þeim hinar sögurnar, því að lestur Biblíunnar á að vera til gagns. Þegar barn er fært til skírnar táknar lengd skírnarkjólsins það að barnið á eftir að vaxa og þroskast í trúnni og fylla upp í skírnarkjólinn sinn í andlegri merkingu. Persónulega finnst mér ég enn vera að fylla upp í þennan skírnarkjól. Ég stend mig að því að skilja ritningarlestra á nýjan hátt eftir því sem árin líða og líf mitt tekur breytingum rétt eins og ég sjálf tek breytingum. Aldrei hafði Davíðssálmur 139 neitt nýtt að segja mér fyrr en náinn ástvinur greindist með heilabilunarsjúkdóm. Á sama tíma horfði ég á kvikmynd byggða á ævi bresku skáldkonunnar og heimspekingsins Iris Murdoch sem lést sjálf úr slíkum sjúkdómi en við lok myndarinnar fer hún með línur úr þessum sálmi. Allt í einu varð hann mér svo mikil huggun í eigin sorg, sérstaklega þessar línur: Þótt ég lyfti mér á vængjum morgunroðans og settist við hið ysta haf, einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér. Og þótt ég segði: „Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,“ þá mundi myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér. Sálmurinn svaraði því sem ég hafði spurt Guð að í gegnum veikindi föður míns: „Guð, er hann nokkuð einn í þessum óminnisdal, veit hann ekki örugglega af þér?“ Biblíulestur krefst þess ekki að maður sé búinn að læra guðfræði í fimm ár, hann krefst þess að maður rýni í orðið með sína lífsreynslu og skapandi huga að vopni, þannig verður Biblían jafnlifandi og sá sem les. Sumir kaflar hennar tilheyra fortíðinni, aðrir nútíðinni og enn aðrir bíða manns í framtíðinni. Höfundur er prestur í Akureyrarkirkju


10   B+

MINN RITNINGARSTAÐUR

ÞORBJÖRG SIGRÍÐUR GUNNLAUGSDÓTTIR Sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst Rut 1.16–17  En Rut svaraði: „Reyndu ekki að telja mig á að yfirgefa þig og hverfa frá þér því að hvert sem þú ferð þangað fer ég, og hvar sem þú náttar þar nátta ég. Þitt fólk er mitt fólk og þinn guð er minn guð. Þar sem þú deyrð þar dey ég og þar vil ég verða grafin. Drottinn gjaldi mér nú og framvegis ef annað en dauðinn aðskilur okkur.“ „Þessi fallegu orð fela í sér mikinn trúnað og samkennd. Ég upplifi þau sem fyrirheit um að standa með annarri manneskju og finnst þau geta átt við hvort sem er innan fjölskyldu, í ástarsambandi eða milli vina. Faðir minn las þessi orð í minni brúðkaupsveislu, sem er ástæða þess að mér þykir svo vænt um þau.“

HARPA ÁRNADÓTTIR Myndlistarkona Slm 139.3  Og alla vegu mína gjörþekkir þú. „Ég málaði verk með þessu heiti á árunum 2007–2008 og þessi titill verksins kom til mín þar sem ég sat hjá afa, Sigurbirni ­Einarssyni, sem lá veikur, og las Davíðssálmana hans á meðan hann sofnaði um stund. Þetta var mjög stuttu áður en hann lést (2008). Að finna hvað það gladdi hann að ég fann titilinn á verkið þarna hjá honum við að lesa einmitt þennan sálm, hans uppáhaldssálm af öllum, snerti mig djúpt. Stundum er eins og manni sé leiðbeint. Í kyrrð og þögn. Ég áttaði mig á því þessa stund hjá afa að landslagið á dúknum mínum var mitt innra landslag, mín leið og þó að hún væri mér hulin væri hún í huga Guðs.“

ALFREÐ ÖRN FINNSSON Handknattleiksþjáfari og guðfræðingur Esk 37.10, 13  Þá talaði ég eins og hann bauð mér og lífsandinn kom í þá svo að þeir lifnuðu við. Þeir risu á fætur og var það geysifjölmennur her. … Þið munuð skilja að ég er Drottinn þegar ég opna grafir ykkar og leiði ykkur, þjóð mín, upp úr gröfum ykkar. „Áhrifamikill texti og hvetjandi. Hér er að finna mikla von um upprisu heillar þjóðar og þeirra sem trúa á Drottin.“

Dalla Þórðardóttir

Um Biblíulestur í Frakklandi

L

esandi blaðsins Le Nouveau Messager, sem er málgagn frönsku siðbótarkirknanna í Elsass og Lo­ thring­en (UEPAL, Union des Églises Protestantes d‘Alsace et de Lorraine), skrifaði bréf í lesendadálk nýjasta tölublaðs þess. Hún furðaði sig á því og lýsti yfir trega vegna þess að aðeins í einni grein var lesendum bent á ritningarstað til að íhuga. Í stað þess að byggja greinar sínar á versi eða versum úr Biblíunni styddust greinarhöfundar við kenningu, kristna eða af heimspekilegum toga. Síðan segir: „Í takti við það sem þá var að gerast á meðal kristins fólks, færðist Mart­ einn Lúter það í fang að opna því leið að Biblíunni. Það gerði hann með því að festa greinarnar 95 á kirkjudyr en líka með því að þýða ritninguna á þjóðtunguna. Þetta var til þess að „hver lesandi fyrir sig gæti sannreynt að það sem predikað var, væri satt“ að dæmi safnaðarins í Beroju, eins og frá er sagt í Postulasögunni 17. kafla 11. versi: „Þeir tóku við orðinu með mesta áhuga og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið.“ Nú er mikið gefið út af bókum um trú og siðbót svo að hvers vegna ætti þá ekki miklu fremur í nálægð 500 ára afmælis siðbótarinnar að minna á Bók bókanna og skipa henni í öndvegi?“ Þetta ritaði þessi lesandi. Mótmælendur lesa oftar en aðrir Frakkar Vert er að velta því fyrir sér hvort siðbótarmenn halda enn þeim sið fyrri kynslóða að lesa ritningarnar, íhuga og leggja út fyrir sér eftir bæn og með hjástoð heilags anda. Fyrir fimm árum var gerð skoðana­ könnun á meðal siðbótarmanna í Frakklandi öllu m.a um Biblíulestur, kirkjugöngu, trú á kraftaverk og bænaiðkun. Í úrtakinu var fólk úr lúterskum söfnuðum, úr sameinuðum kirkjum lúterana og kalvínista, svo og annað fólk sem telur sig til mótmælendahefðarinnar. Kannað var hversu oft fólk tæki sér Biblíuna í hönd. Samkvæmt svörum segjast 24% aldrei lesa Biblíuna, 12% minnst einu sinni í mánuði og 34% einu sinni í viku. Þetta þýðir að 46% mótmælenda — nær helmingur þeirra — les í heilagri ritningu í hverjum mánuði.

Séra Dalla Þórðardóttir

Í Frakklandi hafa mótmælendur það orð á sér að þekkja Biblíuna vel. Og svörin gefa til kynna svo ekki verður um villst að mótmælendur standa undir nafni sem unnendur og lesendur Biblíunnar. Skara þeir á þessu sviði langt fram úr öðrum löndum sínum, jafnt hinum almenna Frakka sem kaþólskum systkinum, en í hvorum hópi fyrir sig reyndust 7% lesa Biblíuna mánaðarlega. Nær helmingur unga fólksins les vikulega í Biblíunni Það eru góðar fréttir og óvæntar að unga kynslóðin les meira og oftar en þau sem eldri eru. Í hópnum 35 ára og eldri kveðast 24% aldrei lesa Biblíuna og 32% einu sinni í viku. Sé hins vegar fólk undir 35 ára aldri spurt eru svörin á þá leið að þau sem aldrei lesa teljast 23% — en vikulega lesa 45% eða nær helmingur alls þess unga fólks sem þátt tók í könnuninni. Heimildir: Le Nouveau Messager, nóvember– desemberhefti 2015. Sébastien Fath, Jean-Paul Willaime: La nouvelle France protestante. Höfundur er prófastur að Miklabæ í Skagafirði


B+

11

ÁHRIF BIBLÍUNNAR Í ÍSLENSKUM BÓKMENNTUM

Biblían í Bernskubók H

vílík snilldarbók eða öllu heldur bækur,“ skrifar Sigurður Pálsson rithöfundur í Bernskubók sinni (2011, s. 265) er hann rifjar upp fermingarundirbúning sinn. „Lestur hinna ótrúlega fjölbreytilegu texta í Biblíunni“ heillaði prestssoninn frá Skinnastað. Þessi bók Sigurðar er sérstaklega skemmtilegt dæmi um ritverk þar sem ríkulega er vitnað í Biblíuna. Höfundurinn hefur góðfúslega heimilað B+ að nefna nokkrar þessarar biblíuvísana sem dæmi um notkun og áhrif Biblíunnar í íslenskum bókmenntum. Sigurður teflir fram lifandi fortíðarmyndum sem hafa mótað hann frá frumbernsku og þar grípur hann aftur og aftur til biblíulegra orðatiltækja eða biblíulegra frásagna til að krydda frásögn sína með. Hann talar um nauðsyn þess að vita hvar maður sé „staddur í sköpunarverkinu (s. 94). Veðrið skipti máli í sveitinni og „veðrið var heilagt“ og veðurspáin var „guðspjall dagsins, guðspjall veðurguðanna og þeirra æðstu presta, veðurspámannanna.“ Sunnudagshelgin var í hávegum höfð á Skinnastað. Þá „hvíldi húsið sig“ (s. 99). Mamma Sigurðar sá um að hvíldardagurinn væri haldinn hátíðlegur. Sjálfur lærði Sigurður hvíldardagsboðið „áhugaverðasta boðið utan að til hafa það á hraðbergi mér til varnar ef einhver ætlaði að biðja mig um viðvik“. Og hann bætir skemmtilega við: „Þannig kom Móses mér til hjálpar norður á Skinnastað, maður frá botni Miðjarðarhafs.“ Í fjárhúsinu á Skinnastað ríkti „heilög rósemd, trúarleg stemning. Kyrrðarstund í hinni þúsund ára sauðfjárkirkjudeild Íslands“ (s. 77) og Kópasker var „okkar borg á bjargi traust“ (s. 244).

Bernskubók eftir Sigurð Pálsson kom út hjá JPV árið 2011.

Biblíuleg orð og trúarleg hugtök koma stöðugt við sögu: nýr sáttmáli, gósenland, kraftaverk, „Verði ljós“, sköpunarverk, Golíat, guðlast sem og helgi og heilagleiki, sbr. „heilögu kindur bernsku minnar“ (s. 134). Sköpunargáfa hans gerði fljótt vart við sig og ekki síst þörfin fyrir að skrifa. Hann skapaði sína eigin sveit, Fögursveit, og samdi manntal yfir íbúana þar og „blés lífsanda á nasir þeirra“ (sbr. 1Mós 2.7). Þá tók „barnið“ að skrifa minningargreinar og reyndi að finna texta

í Biblíunni „sem lágu vel við höggi“ (s. 267). Sigurður fékkst einnig mikið við teikningar sem barn og teiknaði einkum tré, „heilan aldingarð“. Og að því loknu leið honum „eins og skapara himins og jarðar í lok hins sjötta dags“ (s. 119). Þegar hann veltir fyrir sér hvaðan árnar koma minnist hann frásagna Mósebóka „þar sem það er stöðugt vesen með vatn“ (s. 174). Þegar fólkið var orðið pirrað út í Móse „ lamdi (hann) klettinn og vatnið spratt fram“ (s. 171). Og Sigurði var hlátur í huga er honum „flaug í hug sagan af Abraham og Ísak“ (s. 179). En hræddur var hann, dýravinurinn, um að minkurinn kálaði hænunum og minntist þá sögunnar úr Exodus: „Rjóða blóði sauða og kiða á dyratré og stafi húsanna þannig að Eyðandinn, Tortímandinn fari framhjá“ (s. 223). Kirkjugarðurinn var löngum „dásamlegur leikvöllur“ og kirkjan sjálf sömuleiðis. Þar sviðsetti hann eigin fermingu, tók sjálfan sig meira að segja til altaris en fylltist að því loknu tilfinningu fyrir að hafa guðlastað og svo mikilli skelfingu (s. 258) að minnir á frásögn Jesaja af reynslunni af návist Guðs í musterinu: „Vei mér, það er úti um mig“ (Jes 6). Á prédikunarstólnum í kirkjunni að Skinnastað eru þessi orð skrautmáluð: „Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ Af bók Sigurðar má ráða að höfundurinn hefur þegar í bernsku tekið þessi orð til sín, heyrt orðin, varðveitt þau og loks miðlað þeim í bók sinni sem þar með verður áhugavert og áhrifamikið dæmi um þátt heilagrar ritningar í íslenskri menningu. – GAJ

Danadrottning segist treysta Jesú Margrét Þórhildur Danadrottning er verndari Hins danska biblíu­ félags.

Á fésbókarsíðum hafa sést orð Margrétar Þórhildar Danadrottningar í Berlingske Tidende um það traust sem hún ber til Guðs en hún segir: „Að trúa á Guð hefur allt aðra þýðingu fyrir mig í dag en áður, þegar trú mín var fræðilegs eðlis. Í dag er trúin á Guð mér jafneðlileg og skin og skúrir. Í mínum huga táknar Jesús tækifæri Guðs til þess að sýna mannanna

börnum að hann gengur með okkur og er mitt á meðal okkar. Jesús er vitnisburður Guðs um það að við eigum ekki aðeins Guð sem er skaparinn. Við eigum Guð sem kemur til okkar til þess að endurleysa okkur mennina og leiða til sín. Þess vegna þori ég að treysta á Jesú, sem náðaður syndari og sem drottning.“


12   B+

A

fmælisár Hins íslenska biblíufélags 2015 hófst formlega í fyrstu viku janúar er sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup og fyrrverandi forseti félagsins, flutti fyrstu hugleiðingu sína af ­þrettán í tilefni afmælisársins. Allt árið voru fluttir þættir frá Biblíufélaginu á Lindinni og kann stjórn félagsins útvarpsstjórum Lindarinnar bestu þakkir fyrir. Útsendingar Lindarinnar ná til 90% þjóðarinnar á mismunandi bylgjulengdum sem finna má upplýsingar um á lindin.is. Í hverjum mánuði ársins 2015 birtust greinar í dagblöðum eftir ýmsa höfunda til að vekja athygli á Biblíunni og þeim áhrifum sem hún hefur haft á líf fólks og hefur enn. Greinarnar birtust einnig á heimasíðu félagsins. Útgáfufagnaður í tilefni af útgáfu bókarinnar Áhrifasaga Saltarans eftir Gunnlaug A. Jónsson prófessor var haldinn fimmtudaginn 15. janúar kl. 17 í Seltjarnarneskirkju. Þar sagði Gunnlaugur frá tilurð bókarinnar, Grétar Halldór Gunnarsson fjallaði um bókina og tónlist fluttu Friðrik Vignir Stefánsson og Eygló Rúnarsdóttir. Ólafur Egilsson stjórnaði athöfninni. Biblíumaraþon Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga efndi til árlegrar bænaviku dagana 18.–25. janúar 2015. Í lok þeirrar viku, helgina 24.– 25. janúar, var efnt til biblíumaraþons, þar sem fólk kom saman til „maraþonlesturs“ þar sem Biblían eða hlutar hennar voru lesnir í heyranda hljóði af safnaðarfólki, ungum og eldri. Tólf hátíðarvers voru valin í tilefni af 200 ára afmæli félagsins. Börn í leikskóla KFUM og K, Vinagarði, myndskreyttu ritningarversin. Margir viðburðir hafa verið á vegum kirkna í tilefni afmælisársins. Þar má meðal annars nefna að skemmtileg biblíukvikmyndavika var

AFMÆLISÁRIÐ

í máli og myndum Við lok 200. afmælisársins vill Hið íslenska ­biblíufélag þakka öllum sem komu að viðburðum félagsins með einum eða öðrum hætti og óska þeim Guðs blessunar fyrir velvilja og aðstoð.

haldin í Bústaðakirkju, fræðslu­morgnar voru í Seltjarnarneskirkju í febrúar og í mars, þar sem listafólk og rithöfundar tengdu list sína við Biblíuna og boðskap hennar, fræðslukvöld voru haldin í Glerárkirkju, í Laugarneskirkju voru fræðsluerindi um Biblíuna, prestar settu upp biblíublogg og fleira. Biblíu­ félagið gladdist mjög yfir þessu framtaki kirkna víðs vegar um landið. Sóknir og söfnuðir hafa haldið áfram að kynna Biblíuna allt afmælisárið. Á afmælisárinu var gefið út veglegt afmælisrit fréttablaðs Biblíufélagsins, B+. Í ritnefnd þess sátu: Guðni Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Egilsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Hugvísindaþing í mars Hugvísindaþing 2015 var haldið 13.–14. mars. Þar var boðið upp á tvær málstofur um áhrifasögu Biblíunnar í tilefni af afmælisári Biblíufélagsins, hvora sinn daginn. Þar var fjallað um áhrif, notkun og túlkun Biblíunnar á ýmsum sviðum bókmennta og lista, svo sem ljóðlistar, tónlistar og kvikmynda, í sögu og samtíð. Málstofustjóri báða dagana var Ragnhildur Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri HÍB. Föstudaginn 13. mars var haldin málstofa um sögu biblíuþýðinga og biblíuskilnings. Þar var fjallað um ýmsa þætti úr langri sögu íslenskra biblíuþýðinga. Þar koma við sögu tveir elstu þýðendurnir, Oddur Gottskálksson og Guðbrandur Þorláksson, sem gerðu sitt til bjargar íslenskri tungu á sextándu öld, sem og skoski trúboðinn Ebenezer Henderson, sem beitti sér fyrir stofnun Hins íslenska biblíufélags 1815. Loks var fjallað um biblíuskilning Danans Grundtvigs sem hafði umtalsverð áhrif á íslenska menntamenn. Laugardaginn 14. mars voru flutt þrjú erindi um áhrifasögu Biblíunnar. Aðalfundur Biblíufélagsins


B+

var haldinn fimmtudaginn 19. mars í Áskirkju. Þar frumflutti tónlistarmaðurinn Ívar Jóhann Halldórsson lag sem hann samdi í tilefni af afmælisári Biblíufélagsins. Undirritaður var samingur við JPV-Forlagið til ársins 2017. Jóhann Páll Valdimarsson ávarpaði fundinn. Guðni Einarsson og Stefán Einar Stefánsson voru endurkjörnir í stjórn félagsins til fjögurra ára. Kynningarstarf Stjórnarfólk og fram­k væmda­ stjóri fóru í kirkjur og víðar og kynntu starf félagsins. Einnig kynntu fulltrúar ungra félagsmanna í HÍB félagið í unglingastarfi víðs vegar í kirkjum og kristnum söfnuðum. Stjórn Biblíufélagsins hvatti sóknir og söfnuði til að færa fermingarbörnum og unglingum kirkna Biblíur að gjöf. Biblíufélagið hefur fengið upplýsingar um að tæplega 15 kirkjur afhendi sínum fermingarbörnum Biblíur í fermingargjöf frá kirkjunni sinni. Á pálmasunnudag var barnabiblíum stillt upp á Borgarbókasafni og þar annaðist framkvæmdastjóri fræðslu fyrir börn um dymbilviku og páska ásamt Hreini Pálssyni og Pétri Ragnhildarsyni fyrir hönd Biblíufélagsins. Heimsókn frá Noregi Dagana 14.–19. apríl kom hingað til lands Hans Johan Sagrusten, guðfræðingur og starfsmaður norska biblíufélagsins. Hann flutti erindi á Prestastefnu í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins. Hann hitti einnig forstöðumenn safnaða, fulltrúa Gídeonfélagsins og fulltrúa SÍK og sat fundi með framkvæmdastjóra og varaforseta félagsins. Hans Johan talaði einnig á leikmannastefnu laugardaginn 18. apríl um gildi alþjóðlegs samstarfs. Málstofa var haldin þriðjudaginn 21. apríl um Ólaf Ólafsson kristniboða. Málstofan var

13

haldin í sal Kristniboðssambandsins og mættu á annað hundrað manns á málstofuna. Ólafur Egilsson stjórnaði málstofunni. Barnabarn Ólafs, Margrét Jóhannes­dóttir, flutti erindið „Afi minn, Ólafur Ólafsson“ og séra Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍK, flutti erindið „Ólafur, kristniboði með sýn á útbreiðslu Biblíunnar“. Sýnt var brot úr kvikmynd Ólafs um Kína og Ólafur Egilsson sagði í stuttu máli frá miklum framgangi kristni í Kína um þessar mundir. Þriðjudaginn 28. apríl var haldið málþing í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands sem bar heitið „Biblían á 21. öldinni.“ Fundarstjóri var Rúnar Vilhjálmsson. Sýning í Amtsbókasafni Í maí var haldin biblíusýning á Amtsbókasafninu þar sem meðal annars voru til sýnis ljósprentað eintak af Guðbrandsbiblíu, Viðeyjarbiblía og Biblíur á ýmsum tungumálum. Laugardaginn 16. maí var síðan boðið upp á dagskrá á safninu í samstarfi við biblíufélagið en það var barnastund sem Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson höfðu umsjón með. Sungin voru létt lög, sögð biblíusaga og sýnd brúðusýning. Boðið var upp á leiðsögn um safnið fyrir þau sem það vildu, kynning á starfi biblíufélagsins og síðan voru tónleikar, þar sem sungin voru lög með biblíutextum eða með tilvísun í Biblíuna og boðskap hennar. Íris Andrésdóttir, söngkona og tónlistarnemi, söng. Það var mikil ánægja með þessa dagskrá og félagið þakkar Amtsbókasafninu innilega fyrir gott samstarf. Sýning á Þjóðminjasafni Margt fólk lagði leið sína á Þjóðminja­safnið föstudaginn 3. júlí þegar opnuð var sýning á 3. hæð safnsins í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags. Bryndís Sverrisdóttir,


14   B+

sviðsstjóri ­miðlunarsviðs Þjóðminjasafns, bauð gesti velkomna og kynnti efni sýningarinnar sem samanstendur af ýmsum biblíuútgáfum í eigu Þjóðminjasafnsins, Biblíufélagsins og Gídeonfélagsins. Einnig flutti Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri HÍB ávarp og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir söng eigin lög með textum úr Biblíunni en Henning Emil Magnússon lék undir á gítar. Hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni Hátíðarguðsþjónusta var haldin í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 10. júlí kl. 16 á afmælisdegi félagsins. Guðsþjónustan var öllum opin og kirkjan fylltist af fólki sem fagnaði saman 200 ára afmælinu. Reynt var að hafa hátíðarguðs­þjónustuna með svipuðu sniði og árið 1815. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikaði, séra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur þjónaði fyrir altari. Þau Sigrún Ásgeirsdóttir og Ólafur Egilsson lásu ritningarlestra. Lesið var upp úr Hendersonbiblíunni frá 1813 og nýjustu útgáfunni 2007. Við guðsþjónustuna sungu félagar úr Dómkórnum undir stjórn Kára Þormar organista. Að lokinni guðsþjónustu var gengið í fylkingu að minnisvarða í Fógetagarðinum, gamla Víkurkirkjugarði þar sem lagður var blómsveigur til heiðurs Geirs Vídalín, biskups Íslands árið 1815 og fyrsta forseta félagsins. Þar flutti dr. Gunnlaugur A. Jónsson stutt ávarp. Síðan var gengið að Aðalstræti 10 þar sem afhjúpaður var skjöldur á húsinu sem er nú í eigu Minjaverndar. Stjórnarformaður Minjaverndar, Þröstur Ólafsson, flutti stutt ávarp. Eftir þetta var móttaka í biskupsgarði. Á sama tíma var lagður blómsveigur að leiði Ebenezers Hendersons í London en þar flutti

fulltrúi íslenska sendiráðsins í London stutt ávarp. Á Skálholtshátíð 18.–19. júlí var kastljósinu að nokkru beint að afmæli HÍB og flutti dr. Guðrún Kvaran þar erindið „Brauðryðjendur í biblíuþýðingum á Íslandi. Um þátt þeirra Odds Gottskálkssonar og Gissurar biskups Einarssonar.“ Föstudaginn 14. ágúst var haldið örþing í Hallgrímskirkju í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins undir yfirskriftinni „Hver var Salómon?“ Ýmissa svara var leitað um þennan konung og áhrif hans á þjóð sína, sögu og samtíð. Hólahátíð var haldin helgina 14.–16. ágúst 2015. Boðið var upp á vandaða dagskrá. Hún var að talsverðu leyti helguð Biblíunni, meðal annars með viðamikilli biblíusýningu í Auðunarstofu og voru fræðileg erindi flutt í tengslum við hana. Þá var biblíumatur á borðum í hátíðarkvöldverði. Hátíð í Hallgrímskirkju Afmælishátíð Hins íslenska biblíufélags var haldin í Hallgrímskirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 14. Stjórnandi hátíðarinnar var Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá og var hátíðin vel sótt. Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna og af 200 ára afmæli Biblíufélagsins var opnuð myndlistarsýning í byrjun september sem bar heitið Konur og Kristur. Sjö konur sýndu þar myndverk sín: Elva Hreiðarsdóttir, Hanna Pálsdóttir, Hildur Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Rúna Gísladóttir, Steinunn Einarsdóttir og Þórey Magnúsdóttir (Æja). Fyrsti kvenprestur Íslands, dr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, opnaði sýninguna föstudaginn 4. september kl. 16 í safnaðarheimili Neskirkju. Ragnhildur Ásgeirsdóttir og Marta Andrésdóttir fluttu frumsamin lög með texta eftir sr. Guðmund Guðmundsson en lögin voru samin


B+

í tilefni af afmælisári HÍB. Um 30 manns mættu á opnunina. Sýning í Þjóðar­bókhlöðu Biblíusýning var opnuð í Þjóðarbókhlöðu sem bar heitið „Þann arf vér bestan fengum“. Við opnunina fluttu sr. Hreinn Hákonarson og sr. Sigurður Ægisson erindi. Á sýningunni eru allar íslenskar biblíuútgáfur. Sýningin var opnuð laugardaginn 26. september 2015 kl. 13 og verður hún opin í allan vetur. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands — Háskólabókasafns og Hins íslenska biblíufélags. Ólafur J. Engilbertsson átti veg og vanda að hönnun sýningarinnar og voru sett upp vegleg veggspjöld með upplýsingum um Biblíufélagið og íslensku biblíuútgáfurnar. Tónleikar í Fíladelfíu Tónleikar voru í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu laugardaginn 17. október. Þar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Meðal annars voru frumflutt ljóð og lög sem ort höfðu verið og samin í tilefni afmælisársins. Margt listafólk lagði félaginu lið og þar voru flutt frumsamin lög og ljóð. Hátt í 500 manns mættu á tónleikana sem þóttu afar vel heppnaðir. Laugardaginn 31. október var haldið málþing í safnaðarheimili Grensáskirkju í Reykjavík kl. 13.30–16.00 um Lúther og Biblíuna í samstarfi við nefnd um fimm alda minningu siðbótarinnar. Á málþinginu voru flutt þrjú erindi. Málþing um Viðeyjarbiblíu Málþing var haldið um Viðeyjar­biblíu á degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember klukkan 12:10 í Norðursal Hallgrímskirkju. Þar opnaði frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands og forseti Biblíufélagsins, rafrænan aðgang að Viðeyjar­ biblíu eftir stutta kynningu dr. Sigurðar Pálssonar á þeirri

15

Biblíu. Þar með var Viðeyjarbiblía formlega gerð aðgengileg á heimasíðu Biblíufélagsins. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson og Guðrún Kvaran prófessor emerítus fluttu ávörp sem tengdust efninu. Jón Hjörleifur Stefánsson, 34 ára guðfræðingur, setti upp Viðeyjar­biblíu á stafrænt form en hann setti einnig upp Guðbrandsbiblíu fyrir nokkrum árum. Nú er hægt að nálgast fjórar útgáfur á heimasíðunni, Guðbrands­biblíu frá 1584, Viðeyjar­biblíu frá 1841, Biblíuna 1981 og Biblíu 21. aldar frá 2007. Orðið, kennslubók um Biblíuna, eftir dr. Sigurð Pálsson, var gerð aðgengileg á heimasíðu félagsins undir dálknum Biblíufélagið. Kennslubókin var samin fyrir elstu bekki grunnskóla, gefin út af Námsgagnastofnun árið 1986. Þriðjudaginn 8. desember var haldið málþing í Setrinu í Háteigskirkju um Biblíuna og framtíðina. Á málþinginu voru flutt þrjú erindi sem öll fjölluðu um Biblíuna í samtíð og framtíð. Tónleikar í Dómkirkjunni Síðasti viðburðurinn í tilefni afmælisins var haldinn í Dómkirkjunni föstudaginn 11. desember kl. 20. Þar fluttu frænkurnar Margrét Hannesdóttir sópransöngkona og Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari tónlist sem samin hefur verið við texta Biblíunnar. Tónlistin sem flutt var er bæði íslensk og erlend og má þar nefna Ljóðaljóð Páls Ísólfssonar, Biblíuljóð Dvoˇráks sungin á íslensku og Rejoice úr Messíasi eftir Händel. Við lok afmælisársins er rétt að þakka öllum sem komu að viðburðum félagsins með einum eða öðrum hætti og óska þeim Guðs blessunar fyrir þeirra velvilja og aðstoð. Ragnhildur Ásgeirsdóttir tók saman. Ljósmyndir tóku Vigdís Pálsdóttir, Gígja Einarsdóttir o.fl.


16   B+

María Sighvatsdóttir

LÍFIÐ Á LEIKSKÓLANUM: Trú, von og kærleikur

V

inagarður er kristilegur leikskóli stofnaður 17. nóvember 1975 og hefur því starfað í 40 ár. Hann er staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er sjálfstætt starfandi og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. Í leikskólanum dvelja daglega 95 börn. Í starfi leikskólanns er gengið út frá forsendum kristinnar trúar og áhersla lögð á kristna fræðslu, kristilegt siðgæði og að barnið öðlist grundvallar­ traust sem er viðfangsefni í trúarlegri uppeldismótun. Gildin sem unnið er út frá eru trú, von og kærleikur. Við sem stjórnum leikskólanum trúum því staðfastlega að þessi gildi séu undirstaða í lífi hverrar manneskju. Barn sem elst upp við kærleika lærir að sýna öðrum kærleika. „Þar sem kærleikurinn hefur fastar rætur, lætur guð rósina spretta.“

þær og vinnum með þær í skapandi starfi. Börnin læra bænavers og að biðja frá eigin brjósti. Morgun- og borðbænir eru fastur liður í daglegu starfi á leikskólanum. Við fræðumst um kirkjuhátíðirnar, syngjum kristileg barnalög og sálma. Sunnudagaskólastundir eru einu sinni í viku hjá okkur. Nú í desember hefur verið risjótt veður, snjór, rigning, frost og hiti til skiptis. Börnin og starfsfólkið á Vinagarði njóta hvers dags aðventunnar eins og best verður. Þau mæta hverjum degi glöð og kát með jákvæðu hugarfari, og sjá ný tækifæri í misjöfnu veðri sem býður upp á ótal möguleika í leik og starfi, bæði úti og inni. Við höfum aðventustundir og sögustundir þar sem við syngjum jólasálma og börnin fara í gönguferðir um Laugardalinn, húsdýragarðinn og skoðum Betlehem í Grasagarðinum eins og börnin segja. Allir syngja af krafti:

Það læra börn sem þau búa við Það barn, sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn, sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn, sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn, sem býr við r­ éttlæti, lærir sanngirni. Það barn, sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn, sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn, sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska. Helgi Hálfdánarson þýddi

Á Vinagarði tölum við mikið um Jesú og hvað hann gerði fyrir okkur; börnin okkar vita að þau mega trúa á Jesú og hann elskar þau, það er stór hluti af okkar menningu. Við lesum sögur úr Biblíunni, tölum um

Tendrum lítið ljós, ljós er boðar heilög jól. Sannur jólafriður fagur fer um byggð og ból.

Stjarna lýsir leið, lýsir aðventunnar veg Jesús kemur, jörðu gefur jólin gleðileg. Pétur Þórarinsson

Þessi jólasálmur er í miklu uppáhaldi hjá okkur á Vinagarði. Hann hljómar daglega á leikskólanum nú þegar aðventan er gengin í garð með öllum sínum hátíðleika. Aðventan er yndislegur tími, þegar allt snýst um undirbúning og boðskap jólanna, andrúmsloftið er hátíðlegt, gleði, friður og eftirvænting er í lofti. Það er talað um

hvað gerðist á jólunum, að Jesús fæddist fyrir okkur. Við leggjum áherslu á orðin úr Biblíunni „yður er í dag frelsari fæddur“. Allt þetta gerum við og megum af því að við erum sjálfstætt starfandi leikskóli. Börnin á leikskólanum vita hvað gerðist á jólunum og það er víst að börnin ruglast ekki á Jesú og jólasveininum. Maður fyllist stolti þegar farið er í kirkju með leikskólabörnin og þau kunna jólaguðspjallið utan að og taka virkan þátt í frásögninni. Þau syngja af miklum krafti jólasálmana og finnst fátt meira spennandi en að fara í heimsókn til sr. Sigurðar og hans starfsfólks í Áskirkju, sem taka á móti börnunum af einstakri hlýju og virðingu. Elstu börnin æfa helgileik sem þau flytja svo fyrir gesti á jólaskemmtun leikskólans. Þau leggja mikla vinnu í að endursegja jólaguðspjallið með sínum orðum og mikið erum við kennarar stoltir af börnunum. Núna var tekin ákvörðun um að leggja áherslu á jólasálma á söngstundum og gefa hefðbundnum jólalögum minna vægi; aðrir sjá um það. Það eru forréttindi að fá að vinna á leikskóla með einstöku starfsfólki sem starfar af köllun og hugsjón. Þar sem við megum kenna börnunum um frelsarann og syngja með þeim fallegu barnasálmana sem tilheyra kirkjuárinu og við erum svo rík af. Að lokum er hér falleg saga af leikskóladreng sem yljar um hjartaræturnar og kallar fram bros: „Foreldrarnir á heimilinu voru að skikka drenginn til hlýðni og var því ákveðið að minna á að jólasveinarnir væru væntanlegir til byggða með sitt árlega eftirlit og skógjafir. Agla Marta: Jæja, Atli Viðar minn, hver er að fara að koma núna fyrir jólin? Atli Viðar: Jesús, hann fæddist þá. Agla Marta: Já, það er reyndar alveg rétt hjá þér, við minnumst þess á jólunum að Jesús kom í heiminn þá, en það eru einhverjir karlar sem koma líka um jólin er það ekki? Atli Viðar: Jú, það eru vitringarnir. Agla Marta: Já, það er líka alveg rétt hjá þér, þeir komu að heimsækja litla Jesúbarnið þegar það kom í heiminn og færðu því gjafir en eru ekki einhverjir karlar með húfur og í rauðum fötum líka að koma? Atli Viðar: Jólasveinarnir! sagði drengurinn og hljóp í burtu í æsingi. Við þökkum Vinagarði kærlega fyrir að halda hinum rétta jólaboðskap að drengnum.“

Höfundur er leikskólastjóri í Vinagarði


B+

FRÉTTIR

Biblíudagurinn 2016 — „Biblíur fyrir alla“ Safnað fyrir barnabiblíum til Úkraínu

B

iblíudagurinn svokallaði er haldinn hátíðlegur annan sunnudag í níuviknaföstu sem að þessu sinni er 31. janúar 2016. Á þessum degi þökkum við fyrir að við eigum Biblíuna á okkar eigin tungumáli og um leið erum við hvött til þess að að lesa og kynna okkur boðskap Biblíunnar. Biblíufélagið tekur þátt í alþjóðlegu starfi og tekur þátt í verkefni Sameinuðu biblíufélaganna „Biblía fyrir alla“. Að þessu sinni er ætlunin að safna fyrir barnabiblíum til Úkraínu. Stríðið austur í Úkraínu hefur hrakið rúmlega eina milljón manna á flótta. Margir hafa misst nána ástvini. Það sem hófst með friðsamlegum kröfugöngum á Maidan-torginu í Kænugarði hefur endað sem blóðug borgarastyrjöld á milli aðskilnaðarsinna, sem eru hliðhollir Rússum, og úkraínskra stjórnarliða. Margir hafa þurft að yfirgefa hús sín og heimili og allir landsmenn eru áhyggjufullir og órólegir vegna þess sem er að gerast. Hið íslenska biblíufélag vill ekki aðeins stuðla að útbreiðslu Biblíunnar á Íslandi, heldur út

17

MINN RITNINGARSTAÐUR ALDÍS ÍVARSDÓTTIR Myndlistarkona

Slm 23.1  Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. „23. Davíðssálmur er í miklu uppáhaldi hjá mér. Sálmurinn gefur mér æðruleysi og traust til Guðs að hann muni sjá um mig, sama hvað gerist í lífinu hjá mér. Ég syng oft þennan sálm, bæði á erfiðum stundum og gleðistundum.“

PERLA MAGNÚSDÓTTIR Ferðamálafræðingur

Börn í stríðshrjáðri Úkraínu veita viðtöku barnabiblíum á sinni eigin tungu.

um allan heim. Félagsmenn fá sendan greiðsluseðil þar sem hægt er að styðja við kaup á barnabiblíum en reikningsnúmerið er 0101-26-3555 og kennitalan 620169-7739. Á heimasíðu félagsins er hægt að nálgast efni sem hægt er að nota til kynningar á söfnuninni, bæði stuttar frásagnir en einnig glærusýningu.

Fil 4.4–5  Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. „Eitt af mínum uppáhaldsversum er þessi texti úr Filippíbréfinu. Mér finnst ótrúlega dýrmætt og mikilvægt að vita, að Guð hvetur okkur til þess að vera glöð. Gleðin er merkilegt fyrirbæri, hún er bráðsmitandi og í senn læknandi. Hún er sterkt vopn gegn neikvæðni, niðurrifi og vanlíðan. Ég vil hvetja okkur sem erum erindrekar Krists að gefa náunga okkar gleði, kærleika og ljúflyndi — enda verður líf okkur miklu innihaldsríkara í kjölfarið.“

JÓHANN ÞORSTEINSSON Svæðisfulltrúi KFUM og K á Norðurlandi

STUTTAR FRÉTTIR Biblíur handa fermingarbörnum Sóknarnefndir í kirkjum og kristnir söfnuðir víðs vegar um landið gefa fermingarbörnum sínum Biblíu í fermingargjöf frá kirkjunni sinni. Biblíu­ félagið hefur hvatt kirkjur til þessa og nú eru 13 sóknir og söfnuðir sem afhenda fermingarbörnum eða unglingum kirkjunnar Biblíur. Einhverjar sóknarnefndir hafa einnig látið skrautrita nöfn barnanna og ritningarstaði inn í Biblíurnar. Það er ánægjulegt hversu margar kirkjur gefa fermingarbörnum Biblíu að gjöf, hlýleg og innihaldsrík gjöf frá kirkjunni sem þau geta átt alla tíð. Forlagið hefur veitt kirkjum sérstakan afslátt við kaup á Biblíum fyrir fermingarbörn.

Viðeyjarbiblía á rafrænu sniði Viðeyjarbiblía frá árinu 1841 er nú orðin aðgengileg á heimasíðu félagsins, biblian.is. Einnig er hægt að nálgast

aðrar biblíuútgáfur á heimasíðunni en það eru auk Viðeyjarbiblíu Guðbrandsbiblía frá 1584, útgáfan frá 1981 og nýjasta útgáfa Biblíunnar frá árinu 2007.

Kennslubók um Biblíuna aðgengileg á vef félagsins Orðið, kennslubók um Biblíuna, eftir dr. Sigurð Pálsson, er nú aðgengileg á heimasíðu félagsins undir dálknum Biblíufélagið. Kennslubókin var samin fyrir elstu bekki grunnskóla, gefin út af Námsgagnastofnun árið 1986. Bókin er um Biblíuna. Þar er m.a. reynt að svara á einfaldan hátt erfiðum spurningum: Hvers konar bók er Biblían? Hvernig urðu ritin til og hvernig var ritunum safnað og svo framvegis. Þessi bók er kjörin til notkunar í unglingastarfi eða í biblíuleshópastarfi og vill félagið hvetja kirkjur að sækja sér bókina á rafrænu sniði.

Fil 2.1–5  Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst kærleikur hans uppörvar, fyrst andi hans skapar samfélag, fyrst þar ríkir hlýja og samúð gerið þá gleði mína fullkomna með því að vera einhuga, hafa sama kærleika, einn hug og eina sál. Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. „Í þessum fallegu orðum úr bréfi Páls sem kennnt er við gleði finn ég hvatningu til að reyna af veikum mætti að lifa lífi hins kristna manns. Hvatningin er tilkomin vegna þess að ég hef fengið að reyna að Jesús Kristur veitir mér kjark og kærleikur hans uppörvar. Þá hef ég í samhengi kirkjunnar margsinnis fengið að reyna hlýju og samúð. Því langar mig að stuðla að einingu og friði og leggja mig fram við að þjóna náunganum í kærleika. Vissulega er krafan um að vera með sama hugarfari og Jesús Kristur ávallt nokkuð yfirþyrmandi, en í því felst glíma hins kristna manns að biðja þann sem allt gefur að leiða og styrkja.“


18   B+

Hreinn S. Hákonarson fjallar um Codex Sinaiticus

EITT MERKASTA HANDRIT BIBLÍUNNAR

Þ

að eru margar tilviljanirnar í lífi manna. Fyrir margt löngu varð guðfræðinemi að læðast út úr fyrirlestrum í Háskóla Íslands í heilt misseri þar sem fjallað var um textasögu og inngangsfræði Nýja testamentisins. Honum þótti það leitt en var nauðbeygður til því áður en hann hóf háskólanámið hafði hann verið úti á hinum almenna vinnumarkaði og þetta var sá tími er skattar voru greiddir eftir á — fyrir tíma skattastaðgreiðslu. Hann var þess vegna í skattaskuld fyrsta háskólaárið og hjólaði því frá Nýja-Garði upp í Öskjuhlíð og kenndi þar börnum til að geta gert upp skuldir sínar. En hann las því betur fyrir prófin og hafði ánægju af. Þarna sá hann fyrst getið um þann merka mann Tischendorf en reyndar ekki í mörgum orðum. Hins vegar sögðu samstúdentar hans á reykfylltu kapelluloftinu að dósentinn hefði fjallað mikið um þennan mann og af djúpri aðdáun. Ári síðar var þessi sami guðfræðinemi á ferð með félögum sínum úr guðfræðideildinni í London og þar var að sjálfsögðu farið í British Museum og safnið skoðað. Í þessari ferð var staldrað við frægt biblíuhandrit í einföldum glerkassa, Codex Sinaiticus, og mynd smellt af guðfræðinemanum og handritinu. Tæpum fjörutíu árum síðar varð myndin sú aftur á vegi gamla guðfræðinemans um svipað leyti og ævisaga mannsins sem tengdur var þessu handriti komst í hendur hans. Tilefni þessarar ágætu ævisögu var að minnast þess að Tischendorf þessi hefði verið borinn í heiminn árið 1815 og því 200 ár frá fæðingu hans. Hann er því jafnaldri Hins íslenska biblíufélags sem haldið hefur upp á afmæli sitt á þessu ári með margvíslegum hætti. Sumarið 2015 sneri gamli guðfræðineminn

Greinarhöfundur ungur að árum við Codex Sinaiticus í British Library í Lundúnum. Myndina tók sr. Gísli Gunnarsson, Glaumbæ.

lítilli bók úr norsku á íslensku um textasögu Nýja testamentisins: Stóra púsluspilið — Leitin að elstu handritum Biblíunnar, sjálfum sér til skemmtunar og í því skyni að efla þekkingu manna á kristnum fræðum, fræða almenning um spennandi tilurðarsögu Biblíunnar sem lítið hefur verið fjallað um á íslensku. Svo sannarlega við hæfi á afmælisári Biblíufélagsins. Konstantín von Tischendorf Lobegott Friedrich Konstantín von Tisch­ en­dorf fæddist 18. janúar 1815 í Þýskalandi og lést árið 1874. Til hans er jafnan vitnað sem Konstantíns von Tischendorfs. Ástæða nafnsins Lobegott (sem þýðir lofið drottin) er sú að móðir hans sá blindan mann nokkru fyrir fæðingu hans. Hún varð gripin við þessa sýn þeirri hjátrú að barn hennar yrði blint. Þegar drengurinn fæddist og augu hans voru heil helgaði hún hann Guði með því að gefa honum þetta sérstaka nafn. Segja má að drengurinn litli hafi svo sannarlega átt eftir að lofa drottin með lífsstarfi sínu.

Tischendorf gekk menntaveginn og nam klassísk fræði og guðfræði. Hann setti sér það mark að finna sem upprunalegastan texta Biblíunnar. sem myndi þar af leiðandi geta m.a. varpað ljósi á þann texta Biblíunnar sem til var í nokkrum lesháttum. Þetta var árið 1839 og hann vonaðist til að ná nákvæmasta textanum eins og hann kom frá hinum heilögu höfundum hans. Ónothæfur texti Sá texti Biblíunnar sem notaður var í útgáfum allt frá 16. öld og til loka þeirrar 19du var ættaður úr smiðju Erasmusar frá Rotter­dam — latneskur texti og grískur í einni bók. Texti Erasmusar kallaðist „Textus Receptus“ — hinn viðtekni texti sem trúr væri hefðinni. Og þessi texti var notaður við Biblíuþýðingar næstu 350 árin. Þegar Marteinn Lúther (1483–1546) þýddi Nýja testamentið yfir á þýsku studdist hann við texta Erasmus­ ar í grundvallaratriðum. Texti Erasmus­ ar var allsráðandi til loka 19. aldar. Biblíufræðingar 19. aldar voru ekki ánægðir með texta Erasmusar og töldu hann illa unninn. Þeir vildu leita aftar í söguna. „Burt með Textus Receptus — förum aftur til fjórðu aldar,“ sögðu þeir. En vandinn var sá að svo gömul handrit voru ekki tiltæk nema að litlu leyti. Þetta var að hluta til hinn kaldi veruleiki sem Tischendorf ungur að árum stóð andspænis þegar hann ákvað að


B+

helga líf sitt leitinni að hinum upprunalegasta texta Nýja testamentisins.

British Library gaf síðast út Codex Sinaiticus í ljósriti í öskju í janúar árið 2011 og seldi á tæp 500 pund. Bókin er nú uppseld.

Austurlönd heilla Austurlönd drógu Tischendorf til sín og fór hann meðal annars til Egyptalands. Þar heimsótti hann Katrínarklaustrið við Sínaífjall. Klaustrið hafði verið reist bæði sem klaustur og virki á 6. öld og talið vera á þeim stað þar sem Móse sá runnann brenna sem þó brann ekki (2Mós 3.3). Tischendorf var tekið vel í klaustrinu og mátti fá hvaða handrit sem hann vildi úr eigu klaustursins. En bókasafnið var í slæmu ásigkomulagi. Hann skoðaði það hátt og lágt. Fór höndum um hvert eitt og einasta rit. Hann hafði gert sér miklar væntingar en vonbrigðin gengu hratt á þær. Einn til frásagnar — og fnykur í klaustrinu? Frásögnin af fyrsta handritafundi Tischen­ dorfs í klaustrinu er með ævintýrablæ en þangað kom hann í fyrsta sinn árið 1844. Hann er reyndar einn til frásagnar og sumir hafa furðað sig á nokkrum þáttum frásagnarinnar. Dag einn kom hann inn í bókasal klaustursins og rak augun í körfur með handritum. Bókavörðurinn sagði þetta vera eldivið. Þeir hefðu hitað klaustrið upp í nokkurn tíma með því að brenna gömul skinnhandrit. Tischendorf sá að í körfunum leyndust arkir úr Gamla testamentinu á grísku og þær mátti hann eiga. Hann gat ekki hamið gleði sína og undrun og það vakti grunsemdir meðal munkanna um hvílík verðmæti þeir hefðu undir höndum og snarlega dró úr gjafmildi þeirra. Sem fyrr segir er Tischendorf einn á vettvangi og frásögn hans mótast vitaskuld af því — og kannski komst hann í tilfinningalegt uppnám þegar við honum blöstu menningarverðmæti hins vestræna heims. En kannski féll líka bara ryk í augu Tisch­ endorfs og sjálfur textarýnirinn mislas hlutverk karfanna sem handritaarkirnar lágu í. Þessar körfur voru kannski ekki eldiviðarkörfur heldur bókakörfur! Og víst er að skinnhandrit eru ekki góður eldsmatur og gefa frá sér meiri fnyk við brennslu en hita. Gersemin En sagan er ekki öll sögð. Árið 1859 hélt hann í þriðja sinn í Katrínar­k laustrið við Sínaífjall. Sú ferð olli straum­hvörf­um. Hann hafði eytt

19

nokkrum dögum í bókasafni klaustursins og velt við hverju handritinu á fætur öðru í leit að því sem máli skipti en fann ekkert. Hann segir frá því að kvöld eitt hafi hann setið að spjalli við ráðsmann klaustursins. Eftir drjúgt spjall dró ráðsmaðurinn fram þykkan stranga, sveipaðan rauðu klæði og lagði fyrir framan hann. Þetta var biblíuhandrit. Tischendorf áttaði sig strax á því að þarna hefði hann í höndum sínum dýrmætasta biblíufjársjóð sem til væri í veröld allri. Handrit sem var eldra og mikilvægara en öll þau sem kunn voru. Honum var leyft að skoða handritið um kvöldið og fram á næsta dag. Þessa nótt svaf Tischendorf ekki. Nóttin var köld og týran frá lampanum flöktandi þegar hann settist niður og fór höndum um dýrgripinn mikla. Codex Sinaiticus Þarna voru semsé 199 arkir af biblíuhandriti frá fyrstu öldum kristninnar, ritað með ævafornri grískri rithönd. Handritið var vel með farið. Skinnið var mjúkt og ljóst — af kálfum — og síðar var reiknað út að 350 kálfar hefðu fórnað skinni sínu til verksins. Rithöndin falleg og auðveld til aflestrar. Þetta handrit fékk heitið Codex Sinaiticus. Það er frá því 350 e.Kr. og er ómetanlegt því það geymir elsta handrit Nýja testamentisins sem er nær óskemmt. Tischen­ dorf sem unnið hafði margar útgáfur á texta Nýja testamentisins var ljóst að Codex Sinaiticus fylgdi miklu eldri textahefð en önnur áður kunn handrit Nýja testamentisins. Codex Sinaiticus geymir

til dæmis ekki lengri kaflalok Markúsarguðspjalls (Mrk 16.9–20) og ekki heldur frásögnina af hórseku konunni í Jóhannesarguðspjalli 7.53–8.11 — sem eru síðari tíma viðbætur. Handritið er fjögurra dálka, skrifað með hástöfum, Tischendorf taldi fjóra skrifara hafa komið að verkinu og það líklega ritað í Egyptalandi. Í því má finna margar leiðréttingar frá seinni öldum. Tischendorf ákvað að tákn handritsins skyldi vera fyrsti bókstafur hebreska stafrófsins, ‫( א‬alef). Að lokum Fjöldi papýrushandrita hefur fundist eftir daga Tischendorfs og þau eru eldri en Codex Sinaiticus. En þau eru ekki eins glæsileg á að líta og Codex Sinaiticus og mörg þeirra mjög svo skemmd. Fræðimenn telja að textagerð Codex Sinaiticus sé ævaforn og sé mikilvægur vitnisburður um það hvernig biblíutexti leit út á fyrstu öldum kristninnar. Handritið er hægt að skoða á: www.codexsinaiticus.org/en/ Konstantín von Tischendorf var ástríðufullur Biblíufræðingur og handritasérfræðingur sem kristin kirkja á mikla þökk að gjalda. Án hans er með öllu óljóst hvað orðið hefði um menningarverðmæti Katrínarklaustursins við Sínaífjall en það var mjög mikilvægt að þau kæmust í hendur hinna bestu fræðimanna. Árið 1933 keypti British Museum handritið Codex Sinaiticus. Mestur hluti handritsins er nú í British Library í London (347 arkir). Aðrir hlutar eru geymdir í í Leipzig, í Pétursborg og í Katrínarklaustrinu við Sínaífjall. Höfundur er fangaprestur Þjóðkirkjunnar


20   B+

MINN RITNINGARSTAÐUR FRÉTTIR

Slm 37:5  Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. „Þetta vers á vel við mig þar sem ég starfa sem farandprestur hjá íslenska söfnuðinum í Noregi, ég ferðast töluvert um landið þar sem ég þjónusta Íslendinga sem búsettir eru í Noregi. Boðskapur textans felur einnig í sér æðruleysi sem mér finnst mikilvægt að muna eftir í mínu lífi og starfi.“

HJÓNIN ÞÓRDÍS JÓNSDÓTTIR OG HAUKUR HJALTASON Fjármálastjóri og framkvæmdastjóri Matt 7.12  Það sem þér viljið að aðrir gjöri yður skuluð þér og þeim gjöra. „Biblían er endalaus uppspretta speki til sjálfskoðunar og þroska sem manneskja. En gullna reglan stendur að okkar mati fremst. Hún bætir samskipti einstaklinga og samfélög sem virða regluna. Eykur gagnkvæman skilning og virðingu milli manna. Hún gefur tilefni til að vænta hins besta sem þú veitir — um leið og líka er mikilvægt að kunna að fyrirgefa ef manni finnst rangindum vera beitt. Kærleiki er hin sterka keðja sem tengir fjölskyldu, ástvini og samfélög manna — fyrirgefningin er hinn mikli andlegi kraftur sem viðheldur því er mestu máli skiptir hjá mönnunum.“

Innsigli Hiskía konungs finnst í Jerúsalem Í

nóvember s.l. bárust þau tíðindi frá Jerúsalem að þar hefði fundist í opinberum fornleifauppgreftri innsigli með nafni Hiskía konungs (715–687 f.Kr.). Hann gengur líklega næst þeim Davíð og Salómon að frægð meðal konunga í Landinu helga frá tímum Gamla testamentisins. Um hann er sagt að hann hafi gert það sem gott var í augum Drottins og hann var uppi á miklum umbrotatímum í lífi þjóðar sinnar, þ.e. Júda, er Assýringar herjuðu á landið, unnu 46 borgir og bæi, en Jerúsalem bjargaðist fyrir eitthvert kraftaverk. Hiskía kemur mjög við sögu í Jesajaritinu og um hann er að auki fjallað í Konunga- og Kroníkubókum. Hann stóð m.a. fyrir mikilli siðbót á sviði helgihaldsins. Frá fornleifafundi þessum, sem varð við uppgröft í hlíðum musterishæðarinnar, var skýrt í fjölmiðlum víða um heim. Þess var þó almennt ekki látið getið að í einkasafni Sholmo heitins Moussaieff, tengdaföður forseta Íslands, hefðu þegar verið til býsna hliðstæð innsigli. Munurinn er sá að þau innsigli eru ekki úr opinberum uppgreftri. –GAJ

© OURIA TADMOR

Farandprestur íslenska safnaðarins í Noregi

Mynd af innsiglinu, eign Hebrew University of Jerusalem’s Institute of Archaeology.

© ANDREW SHIVA

ÁSA LAUFEY SÆMUNDSDÓTTIR

Fornleifafundurinn varð við uppgröft í hlíðum musterishæðarinnar í Jerúsalem, á því svæði sem hér er sýnt með rauðum hring.

Ný bók um íslenskar biblíuþýðingar JÓNÍNA ERNA ARNARDÓTTIR Tónlistarkennari Slm 23  Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. … „Það eru margir ritningarstaðir sem mér þykja fallegir en 23. Davíðssálmur kemur alltaf reglulega til mín. Hann er að mínu mati dásamlegur sálmur sem talar til mín, bæði í meðbyr og mótbyr í lífinu og gefur mér fullvissu um að Guð gangi við hlið mér í gegnum lífið.“

Séra Sigurður Ægis­ son, ­sóknarprestur á Siglufirði, sendi nýlega frá sér bók um íslenskar biblíuþýðingar. Í bókinni Íslenska Biblían — ágrip rúmlega fjögurra alda sögu rekur séra Sigurður sögu íslenskra biblíuþýðinga. Árið 1584 birtist heilög ritning í fyrsta skipti öll í íslenskri þýðingu og urðu landsmenn þar með hinir 20. í röðinni til að eignast hana á móðurmáli sínu. Árið 1644 kom sú næsta og síðan bættust fleiri við í tímans rás. Sigurður hefur áður sent frá sér bækur, en aðrar bækur hans eru Ísfygla: íslenskir fuglar (1996), Íslenskir hvalir (1997), Íslenskar

kynjaskepnur (2008), Hvalir (2010) og Icelandic trade with gyrfalcons: from medieval times til the modern era (2015). Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, skrifar í formála bókarinnar: „Útgáfusaga Biblíunnar er fróðleg og er fengur að geta kynnt sér hana í einni bók.“ Dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor skrifar í ritdómi um bókina: „Hér birtist látlaust en læsilegt „ágrip rúmlega fjögurra alda sögu“ í smekklegum búningi. Það er gleðiefni að slíkt rit skulu birtast á 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags og full ástæða til að þakka höfundi framtakið og óska honum til hamingju.“ Bókin var gefin út í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins. Fólk er hvatt til að kynna sér bókina, sögu íslenskrar biblíuþýðinga. –RÁ


B+

21

MINN RITNINGARSTAÐUR SVEINN GUÐMARSSON Fréttamaður

Sveinn Valgeirsson

Slm 19.2–5  Himnarnir segja frá Guðs dýrð, festingin kunngjörir verkin hans handa. Hver dagur kennir öðrum og hver nótt boðar annarri speki. Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra. Þó berst boðskapur þeirra um alla jörð og orð þeirra ná til endimarka heims.

Híerónýmus, Ágústínus og þýðing Gamla testamentisins

© ÁRNI SVANUR DANÍELSSON

Í

bréfi sínu til Eustochium (XXII) segir Híerónýmus að þegar hann hafði einsett sér að helga líf sitt Kristi, þá hafi hann haldið áleiðis til Jerúsalem og skilið allt að baki — foreldra og systur, vini alla og hóglífið í Róm — allt nema bókasafnið sitt. Það tók hann með, enda reyndist honum hvað erfiðast að skilja við sig. Hann segir frá því að hann hafi fastað, bara svo hann gæti lesið Cíceró á eftir; að lokinni iðrunarvöku og syndajátningum las hann Plátus. En þegar hann komst til sjálfs sín, þá fór hann að lesa spámennina en hann gat ekki gert að því hvað honum þótti stíll þeirra ruddalegur og fráhrindandi. Enda er hinn semitíski stílsmekkur á aðra lund en kennt var í klassískri retórík. Síðan segir hann frá vitrun sinni sem beindi honum eindregið í þá átt að rannsaka Ritningarnar. Híerónýmus er fyrstur kirkjufeðranna til þess að kynna sér hebresku að einhverju gagni ef Órígenes er undanskilinn. Reyndar efast margir um að hebreskukunnátta Órígenesar hafi verið ýkja mikil. En Híerónýmus einsetti sér að þýða Gamla testamentið úr hebresku en ekki eftir grísku sjötíumannaþýðingunni. Það uppátæki hans vakti nú samt ekki taumlausa gleði. Ágústínus skrifar Híerónýmusi, sennilega árið 394, og hvetur hann eindregið að láta vera að fara að þýða úr hebresku Híerónýmus Biblíunni nema þá hann merki sérstaklega hvar hann víki frá Septúagintu. Enn fremur skilur Ágústínus ekkert í þessu brölti ­Híerónýmusar og gefur í skyn að honum muni aldrei takast betur upp en sjötíumenningunum. Enda sjái 140 augu betur en tvö. Híerónýmus svarar Ágústínusi ekki strax, enda ekki víst að bréfið hafi borist honum. En hann heyrði af þessu bréfi, sem virðist hafa farið víða um Rómarveldi án þess að hann hafi fengið það

Séra Sveinn Valgeirsson

undirritað af sendanda. Bréfið var eins og þess tíma stöðuuppfærsla á Facebook sem Híerónýmus gat svo varla gert athugasemd við með góðu móti. Árið 403 reynir Ágústínus aftur að hafa samband við Híerónýmus (já, menn voru þolinmóðari að bíða eftir svari en nú) og ítrekar að það sé ekki skynsamlegt að víkja frá Septúagintu því söfnuðirnir séu vanir þeim texta. Þá loks svarar Híerónýmus og er ekkert alltof kátur með Ágústínus. Hann snuprar nokkuð fyrir þessar furðulegu bréfaskriftir og finnst nánast eins og Ágústínus sé að troða illsakir við sig. En hann ver sína afstöðu af krafti. Híerónýmus hélt sínu striki og þýddi úr hebresku; glöggir lesendur Vúlgötu munu taka eftir því að þar eru tvær útÁgústínus gáfur af hverjum Davíðssálmi, annar þýddur eftir Septúagintu og hinn eftir hebreskum texta. Textinn samkvæmt Septúagintu hafði greinilega fest sig svo í sessi meðal safnaðanna að ekki hafi annað gengið en að láta hann fylgja með. Sem sýnir að þýðendur glíma ekkert síður við eldri þýðingar heldur en þann texta sem þeir þýða. Höfundur er Dómkirkjuprestur

„Þessi upphafsvers 19. Davíðssálms hljóta að hreyfa við öllum sem unna náttúrunni, hvort sem hún er jarðnesk eða himnesk. Mér verður oft hugsað til þeirra þegar ég stend andspænis mikilfenglegu landslagi eða skoða fallegt blóm eða smádýr. Ef Guð er til býr hann alveg örugglega í náttúrunni.“

KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR Doktorsnemi í lögfræði við Columbia-háskólann í New York Fil 4.4–7  Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú. „Þetta voru uppáhalds ritningarorð afa míns, Séra Einars Guðnasonar í Reykholti í Borgarfirði, og fyrir nokkrum árum, þegar mér gafst tækifæri til að gera útvarpsþáttinn Á sumarvegi á Rás 1 um áhrifavalda í lífi mínu, fékk ég að hlusta á útvarpsupptökuna af kveðjumessu hans í Reykholtskirkju árið 1972. Þar sagði hann við fólkið eftir 42 ára farsæla þjónustu að hann óskaði þess að þótt þau gleymdu öllu sem hann hefði kennt festu þau sér í minni þessi orð. Ég hafði vitað miklu fyrr að þessi orð voru leiðarljós hans og uppáhald og á fyrsta farsímanum mínum lét ég þau árum saman birtast á hvíldarskjánum. Eftir því sem ég hef elst og þroskast hefur skilningur minn á þessum orðum dýpkað og breyst og ég held enn meira upp á þau. Nýlega heyrði ég þau sungin í dómkirkju í New York tónsett af Henry Purcell. Þau hafa lag á að koma til mín og þá finnst mér þau gera það af ástæðu og skilaboðin tek ég til mín.“

ERLA BJÖRG KÁRADÓTTIR Söngkona Jós 1.8  Hefi ég ekki boðið þér: Ver þú hughraustur og öruggur? Lát eigi hugfallast og óttast eigi, því að Drottinn Guð þinn er með þér í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur. „Eitt af mínum uppáhaldsbiblíuversum sem svo oft hefur talað inn í mínar aðstæður er úr Jósúabók. Það er svo gott að vita til þess að Guð er með okkur í öllum okkar verkefnum og að við þurfum ekkert að óttast ef við setjum traust okkar á hann.


22   B+

Karl Sigurbjörnsson

Til hvers er Biblían? Til hvers Biblíufélag?

É

Samkirkjulegt almannafélag Hið íslenska biblíufélag var stofnað til að annast þýðingu og útbreiðslu Biblíunnar, að tryggja að hún verði ætíð fáanleg og aðgengileg við vægu verði. Það markmið hefur ekkert breyst. Sú hreyfing sem að baki bjó í öndverðu var liður í kristniboðshreyfingunni sem greip um sig í Evrópu, og eins í þeirri félagavæðingu sem varð einkum þegar leið á öldina öflug og áhrifarík. Félög af ýmsu tagi voru stofnuð og virkjuðu fólk til átaka, hvort sem var að menningarmálum, samfélags og þjóðþrifamálum eða trúmálum, og sem oftar en ekki hélst nú í hendur. Og þessi félagavæðing og trú á mátt félagasamtaka náði hámarki á 20. öldinni og hefur skilað menningunni miklum gæðum. En það er önnur saga. Það var gæfa Biblíufélagsins og kirkjunnar á Íslandi, að félagið varð samkirkjulegt almannafélag. Verkefnið sem félaginu er falið er eitt hið allra göfugasta sem nokkru félagi er ætlað, að stuðla að því að bókin helga sé ætíð tiltæk öllum. Sú einstæða

helgu sögu. Þetta var allt til að meira og minna leyti. Hið fyrsta sem skráð var á íslensku voru „þýðingar helgar“, útleggingar orða og frásagna Biblíunnar. Þannig varð íslenskan til. Af því að kristnir menn lesa og hlusta á aðra lesa orðið helga.

© GÍGJA EINARSDÓTTIR

g þakka fyrir boðið að vera með ykkur hér og íhuga með ykkur tvær spurningar: Til hvers er Biblían? Til hvers Biblíu­félag? Góðar spurningar sem vert er að hugleiða þegar líður að lokum afmælisárs þar sem Hið íslenska biblíufélag hefur fagnað 200 ára afmæli sínu og horft er til framtíðar. Svarið liggur svo sem í augum uppi og mætti setja fram í einni eða tveimur setningum. Til hvers er Biblían? Því svarar enginn betur en Jóhannes guðspjallamaður: „En þetta er ritað til þess að þið trúið að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þið í trúnni eigið lífið í hans nafni“ (Jóh 20.31). Til hvers Biblíufélag? Því er svarað með ljómandi glöggum hætti í markmiðsgrein Hins íslenska biblíufélags, og þarf ekki að leita lengra. Ég gæti látið hér við sitja og við farið heim að svo búnu. En. Já, við erum að horfa til framtíðar á afmælisári og þá er nauðsynlegt að velta fyrir sér svörunum við þessum tveimur spurningum og heimfæra upp á aðstæður okkar hér og nú. Og þá eru engin einföld svör í boði.

Herra Karl Sigurbjörnsson biskup

bók, því það er hún, þetta óviðjafnanlega bókasafn, sem fékk sitt núverandi form á fjórðu öld, ritunartími þeirra er langur og tilurðarsagan flókin og spannar árþúsundir. Biblían er að þessu leyti án hliðstæðu meðal heimsbókmenntanna. En eins hvað áhrif varðar á alla heimsmenninguna. Það er einstakt með öllu. Til hvers er Biblían? Hún „boðar trú sem blessar og reisir þjóðir,“ segir skáldið. Kristnir menn lesa, og þegar menn kunna ekki að lesa er þeim kennt það, til að þeir megi lesa og heyra og skilja hið heilaga orð og tileinka sér þá trú sem þar er boðuð. Saga kristniboðsins frá öndverðu er þýðingasaga Biblíunnar, og sagan af því hvernig tungumál, ótal tungumál, eignuðust ritmál, og þjóðir urðu til sem lesandi, skrifandi menningarþjóðir. Það á við um Íslendinga, aldeilis. Þegar Oddur sat í fjósinu og þýddi Nýja testamentið þá var hann ekki á ókunnum slóðum að finna orð og móta í setningar til að tjá hina

Kristnin óháð frumtungu stofnandans Ég hef undanfarið setið við og lesið Kóraninn, þá merku bók. Hún er heilagt orð á arabísku. Verður að sögn helst ekki þýdd. Drengirnir í kóranskólunum um allan heim þurfa að læra arabísku til að geta skilið Kóraninn. Fyrir ekki svo löngu las ég í erlendu blaði sagt frá því að tíu þúsundasta erlenda bókin hefði þá komið út í arabískri þýðingu. Frá upphafi. Það er ámóta fjöldi og þær þýðingar sem gefnar eru út á spænsku á einu ári. Kristnir menn lesa og umfram allt á sínu móðurmáli. Kristnin er einstæð meðal trúarbragða heims að hún er frá öndverðu borin fram og boðuð óháð frumtungu og þjóðmenningu stofnanda síns. Orðið er ekki meitlað í stein heldur lifandi orð, mannamál með öllum þeim takmörkunum sem því fylgja, og er því jafnan háð samhengi og túlkunum, eins og allt mannlegt — ómur eilífðar á mannamáli — vegna þess að Orðið varð hold. Orðið er líf. Það er grundvallaratriði kristins boðskapar. Guð varð maður í þessum heimi, á þessari jörð. Við höfum aðgang að á sjöunda tug vitna um þessa opinberun, vitna sem hafa skráð vitnisburð sinn og þeim hefur verið safnað á bók sem nefnist Heilög ritning, Biblían. Þetta eru frumheimildirnar, sem við komumst ekki undan hvað varðar opinberun Guðs í Jesú Kristi. Þegar kristnir menn vilja vita hver Guð er þá leita þeir til Biblíunnar. Og við þurfum ekki að læra grísku og hebresku til þess, ekki einu sinni móðurmál Jesú. Af því að þetta orð hefur frá upphafi verið þýtt og það er sístætt viðfangsefni í kristninni, að þýða orðið og túlka. Og það er sístætt verkefni í síbreytilegum aðstæðum mannlífs og menningar. Það er ekki um aðra leið að ræða til að fá svör. Til dæmis að menn geti unnið sig


B+   upp í algleymi til að sjá sýnir eða andlega innsýn til að mæta Guði. Ekki heldur með því að öðlast siðgæðislega yfirburði eða að fara til fjalla og tæma hugann af allri hugsun og tilfinningu og þrá svo ekkert sé eftir sem hindri aðgengi að guðdóminum. Við kristnir menn hrífumst á stundum af slíkum andlegum og siðgæðislegum fimleikum, sem auglýstir eru á markaðstorgi guðanna, en andlegar mæður og feður kristninnar um allar aldir hafa varað við þeim. Þau hafa bent á hversdagslegri iðju, að lesa og hlusta og hlýða. Til að vita hver Guð er og hvað hann vill þá sláum við upp í bók, Biblíunni, og lesum hana, eða hlustum á hana lesna. Hún er ómissandi. Og um þetta orð er sagt að það sé „kraftur Guðs til hjálpræðis“ eins og við sem komin erum til vits og ára lærðum þetta kjarnavers Biblíunnar, Róm 1.16, eða eins og það hljómar nú: „kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir …“ Aðalatriðið er þetta orð: Kraftur! Magn, orka, afl. Sprengikraftur Guðs sem leysir, bjargar, frelsar. Og það á enn við nú og fyrr. Það er satt sem Mannréttindaráð Reykjavíkur heldur fram, að þetta er „hættuleg“ bók, hún hefur í sér fólginn sprengikraft sem er ekki barnameðfæri. Eða þannig. Þó þurfum við að verða sem börn til að geta tileinkað okkur hann. Mest selda bók allra tíma Það var með uppgötvun Gutenbergs árið 1437 og svo í kjölfarið átaki siðbótarinnar og síðar Biblíufélaganna að Biblían varð almenningseign. Mest selda bók allra tíma, og þrátt fyrir allt mest lesin allra bóka, mest til vitnað við fjölbreyttust tækifæri. Nú erum við mitt í nýrri byltingu sem að vissu leyti boðar endalok prentmiðilsins eins og við þekkjum hann. Maður hefur miklar efasemdir um að sú kynslóð sem nú er að feta leið sína upp úr grunnskólunum, spjaldtölvuvædd og sítengd muni líta í bók. Og maður hefur orðið var við mikla breytingu í viðhorfi til bókarinnar yfirleitt, hún er orðin einnota fyrirbæri, ekki eign, sem prýðir heimili og hefur jafnvel í sér fólgið magn, heillatákn og blessunar, eins og gjarna hefur verið litið á hana. Um það vitna hefðir eins og að bera Biblíu inn í nýju íbúðina og leggja Nýja testamentið, eða umfram allt Sálmabók eða Passíusálma á brjóst hins látna í kistu hans. Ég held að slík afstaða til bókarinnar sé að hverfa. Og það er út af fyrir sig, við kristnir menn trúum ekki á bók heldur Honum sem Bók bókanna vitnar um. Samt sem áður hefur hin ritaða bók, hin prentaða bók allt annað vægi og skírskotun en stafir á skjá. Mér finnst t.d. jaðra við guðlast við brúðkaup eða jarðarför þegar prestur stendur

„Það er satt sem Mannréttindaráð Reykjavíkur heldur fram, að þetta er „hættuleg“ bók, hún hefur í sér fólginn sprengikraft sem er ekki barna­meðfæri. Eða þannig. Þó þurfum við að verða sem börn til að geta tileinkað okkur hann.“

við altarið og les biblíutextann af spjaldtölvu. Mér finnst það röng skilaboð. Þá er ekkert sem segir áheyrandanum annað en þetta sé Apple eða Samsung og nútímalegur, tæknivæddur og flottur nútímaprestur. Hins vegar ber virðuleg bókin með sér átoritet, vísar til tímaleysis og samhengis sem rafbókin gerir ekki. Það er gleðilegt að Biblían skuli nú væntanleg sem rafbók og þar verði vandað til verka. Þar eru ekki viðskiptahagsmunir sem ráða för, heldur ástríða, óþol þess sem brennur í skinninu að koma orðinu á framfæri. Framtíðar vegna. Til hvers er Biblían? er spurt. Til að svara spurningunni um það hver Guð er og hvað hann vill, og eins hver við erum og hvað okkur er ætlað að vera. En vandinn er að sá sem slær upp í Biblíunni í leit að einföldum svörum verður oft fyrir vonbrigðum. Við lifum tíma sem krefjast auðfenginna lausna og stuttra og afdráttarlausra svara. En í Biblíunni er iðulega djúpt á svörunum og einatt vakna ótal spurningar. Boðskapurinn er ofinn inn í örlagasögu einstaklinga og þjóða. Þar má finna ótal margt að leggja sér á hjarta. En líka margt sem verkar framandi og jafnvel stundum fráhrindandi og ögrandi og verður á stundum fjötur um fót. Vesalings sá sem leitar huggunar í Biblíunni og slær upp í Jeremía, þar sem mæta blaðsíða eftir blaðsíðu af bölbænum! Biblían sýnir hvernig maðurinn þroskast og lærist að sjá líf sitt og samhengi við lifandi, óskiljanlegan Guð sem á engan máta sýnir einsleitt andlit. Og birtist jafnvel á stundum svo fráhrindandi sem mest má vera, hefnigjarn og ofsafenginn, svo Lúther sagði um hann að mann langaði mest til að henda honum út um gluggann! Eins og einhver sagði: Biblían er eins og góður maki. Hún heldur manni uppi þegar maður er niðurdreginn og kemur manni niður á jörðina þegar maður gerir sér of háar hugmyndir um sjálfan sig.

23

Biblían hefur marga botna og mörg lög og djúp. Af því að hún er persónuleg, á mannamáli, af mannheimi. Saga Jesú varpar ljósi á allt, krossinn og upprisan. Undir og yfir og allt um kring hina klassísku kristnu biblíutúlkun er sú vissa að margræðni Biblíunnar minnir á þann mikla leyndardóm sem við erum frammi fyrir, að Guð er meiri en allar hugmyndir okkar og sögur af honum, er dýpri og víðari en skilningur okkar eða skynjun leyfir? Við getum aldrei sett Guð í formúlu eða box eða stungið honum í vasa okkar, Guð er meira en. Alltaf meira en! En Jesús er lykillinn, vegurinn, dyrnar. „En þetta er ritað til þess að þið trúið að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þið í trúnni eigið lífið í hans nafni“ (Jóh 20.31). Til þess er Biblían. Það er svo magnað að orðið helga skuli vera sett fram í sögum, persónulegum, mannlegum! Ekki yrðingum og formúlum eins og Kóraninn, með allri virðingu fyrir honum, eða spakmælum eins og sjálfshjálparbækur blómabúðanna. Heldur í sögum. Við mætum þar lifandi fólki af holdi og blóði og öllu því sem því fylgir, og svo umfram allt honum, mannssyninum, Jesú, Orðinu sem varð hold.

Á

öllum öldum hefur kristnin íhugað hina helgu bók í síbreytilegum aðstæðum mannlífsins í samfylgd með Jesú Kristi, eins og lærisveinarnir á leið til Emmaus að kvöldi páskadags. Þar lauk hann upp ritningunum svo að ljós orðsins helga lýsti upp veginn. Hið sama má segja um okkur hvert og eitt. Það er verkefni safnaðanna að leiða til slíkra samfunda, ekki Biblíufélagsins. En leggur ljúfa skyldu á herðar félaginu aldna að vera alltaf síungt í viðleitni sinni að hafa Orðið tiltækt og aðgengilegt með því tungutaki og í því formi sem best má að gagni verða hverri kynslóð. Til þess er og verður Biblíufélagið. Hlutverki þess er hreint ekki lokið! Samtíðin býður ekki upp á kjöraðstæður fyrir hverskyns félagastarfsemi, mörg félög ganga gegnum útfiri og þurrkatíma. Biblíufélögin voru í upphafi angi kristniboðshreyfingarinnar, þess öfluga andsvars við kalli tímans og laðan Guðs anda sem hún var og er. Þetta tvennt þarf að haldast í hendur ef vel á að vera. Vitundin fyrir því að vera verkfæri boðunarinnar, ambátt trúarsamfélagsins, kirkjunnar. Megi Hið íslenska Biblíufélag dafna og eflast um ókomin ár þjóð og tungu, menningu og kristni landsins til heilla. Erindi flutt á málþingi 8. desember 2015 í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags


w w w.forlagid.i s – alvör u b ókave rslun á net inu


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook