Skip to main content

Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir. Eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Sýnishorn

Page 1

Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Eldarnir Ástin og aðrar hamfarir

Reykjavík 2020


Helsta sögufólk Anna Arnardóttir, prófessor í eldfjallafræði, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar Kristinn Fjalar Örvarsson, eiginmaður hennar, skatta­lögfræðingur Örn Ögmundur Kristinsson, sonur þeirra, 23 ára, vinnur í álveri Salka Snæfríður Kristinsdóttir, dóttir þeirra, 8 ára Tómas Adler, ljósmyndari Örn Ögmundsson, faðir Önnu, jarðvísindamaður, látinn Guðrún Olga Jafetsdóttir, móðir Önnu, þýðandi og skáld Ástríður Lind, innanhússarkitekt Elísabet Kaaber, jarðeðlisfræðingur, stjórnarformaður Jarðvísinda­stofnunar Jóhannes Rúriksson, eldfjallafræðingur á Jarðvísindastofnun Eiríkur Steinarsson, jarðfræðingur á Jarðvísindastofnun Júlíus Óskarsson, fagstjóri jarðvárvöktunar á Veðurstofu Íslands Halldóra Rögnvaldsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands Milan Petrovic, yfirlögregluþjónn almannavarna Ragnar Sveinbjörnsson, ríkislögreglustjóri Sigríður María Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða­þjónustunnar Stefán Rúnar Jóhannsson, skrifstofustjóri í dómsmála­ ráðuneytinu Úlfar Ásbjarnarson, tæknimaður hjá Íslenskum orkurannsóknum Ófeigur Kúld, forstjóri Landhelgisgæslunnar Ólöf Ingimarsdóttir, öryggisstjóri Isavia


Efnisyfirlit

Reykjaneshryggur bls. 13 Fagradalsfjall bls. 68 Krýsuvík bls. 190 Svart bls. 239 Skaði bls. 287


Skýringargrein VIII

Reykjavíkurgrágrýtið Reykjavíkurgrágrýtið myndar berggrunninn undir meiri­ hluta höfuðborgarsvæðisins allt utan frá Engey og Viðey og suður á Álftanes. Upptök þess eru óþekkt. Sprungur og misgengi í berggrunni höfuð­ borgar­ svæðisins eru að mestu tengdar Krýsu­ víkur­ sprungu­ sveimnum svo­ nefnda, en hann liggur til norðausturs um Elliða­vatn og Rauðavatn. Árni Hjartarson: Jarðgöng á höfuðborgarsvæði. Greinargerð ÍSOR fyrir Vegagerðina 2005

Við vorum saman þegar gosið hófst í Krýsuvík, héldumst í hendur og fundum landið þrútna og skjálfa undir fótum okkar, opnast með einhverju sem líktist andvarpi og senda lítinn, snotran gos­mökk upp í himininn. Hraunstrókarnir hófu sig upp úr sprungunni, feimnis­ lega í fyrstu en færðust svo í aukana, rauðar, fjörugar skvettur af ungri og óharðnaðri jörð. Hann var opinmynntur eins og barn, augu hans ljómuðu af hrifningu, og ég varð snortin, þótt ég vissi hverju við mættum eiga von á. Eldsumbrot geta hafist næstum hvar sem er og hvenær sem er á eldgosabeltunum, að jafnaði á þriggja til fimm ára fresti á þessum eldfjallagarði sem stendur upp úr hafinu og við köllum landið okkar, samt er eins og skynfæri okkar hafni því sem þau verða vitni að þegar jörðin opnast og eldurinn streymir úr iðrum hennar. Það er engu líkara en að við verðum vitni að kraftaverki, yfirskilvitlegu undri sem breytir sýn okkar á heiminn, þótt jarðeldurinn sé 197


frumstæðasta og eðlilegasta fyrirbærið á reikistjörnunni okkar. Fyrir utan fæðinguna, auðvitað, hitt ofureðlilega kraftaverkið sem við verðum vitni að, grípum andann á lofti og föllum í stafi yfir því að ný manneskja skuli vera komin í heiminn. 250 börn fæðast á reikistjörnunni jörð á hverri einustu mínútu, 500 eldfjöll gjósa á hverri öld, og samt neita þessi undur að beygja sig undir ok hversdagsleikans. Ég trúi ekki á guð, ég trúi á krafta náttúrunnar. Þangað leitaði ég á meðan ég fæddi börnin mín, tefldi lögmálum hennar gegn óreiðunni og sársaukanum í hríðunum. Hugur minn einbeitti sér að því á meðan líkami minn rifnaði í sundur, reiknaði mótstöðu og seigju, hvernig jarðskorpan rís yfir kvikuhólfinu, landið gliðnar og þrýstingurinn eykst, þar til skjálftarnir gefa til kynna að tíminn sé kominn, gosið að hefjast, og kvikan þrýstir sér í gegnum jarð­ lögin eftir gosrásinni og upp á yfirborðið. Ég hélt dauðahaldi í höndina á manninum mínum, kreisti aftur augun og einbeitti mér að kröftunum undir mér, undir dýnunni og sjúkrarúminu og gólfi sjúkrahússins, ég stefndi niður um kjallarann og grunninn, í gegnum mjúka, þykka moldina, hrjúfa mölina og svo klöppina undir spítalanum, elsku blessað Reykjavíkurgrágrýtið. Hugur minn gældi við nöfn bergtegunda og steinda; ólivín, andesít og gabbró, plagíóklas, pýroxín og magnetít; heitin eins og galdraþula, líknandi lausnarbænir aftan úr grárri forneskju; Anna peperit Mariam, Maria Christum; gleymd nöfn allra formæðra mannkyns sem höfðu leitt þessa fornu krafta í gegnum sig á undan mér. Og undir þessu öllu steig möttulstrókurinn upp á móti mér, stríður og heitur, knúinn hvítglóandi kjarnanum í miðju jarðar, bráðnu ólgandi járninu undir fótum okkar allra, nálaroddinum sem við dönsum á, hvert eitt og einasta okkar. Þú mátt alveg sýna tilfinningar, vinan, sagði ljósmóðirin, en ég þurfti þess ekki, ekki þarna þar sem ég var, umlukin heitri, líknandi jörðinni. Ég kveinkaði mér fyrst í kollhríðinni, svo runnu 198


þau frá mér, mjúk og sterk og lifandi, ilmandi eins og nýbakað brauð, ég grét þegar ég fékk þau í fangið. Ég skal hugsa um þig, hvíslaði ég og lagði hann á brjóstið. Ég strauk henni um vangann: elsku hjarta, ég fer ekki frá þér, ég skal gæta þín, út yfir gröf og dauða.

199


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir. Eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Sýnishorn by Benedikt Books - Issuu