ÚTGÁFAN 2018
Auður Ava Ólafsdóttir
Ungfrú Ísland Um sköpunarþrána og það að karlmenn fæðast skáld
Sögusviðið er Reykjavík árið 1963. Ung skáldkona flytur vestan úr Dölum með nokkur handrit í fórum sínum, á tímum þegar karlmenn fæddust skáld en ungum konum var boðið að taka þátt í fegurðarsamkeppni Fegrunarfélags Reykjavíkur. BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2018 FYRIR ÖR
Þetta er saga um sköpunarþrá og leitina að fegurð. Auður Ava hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, bóksalaverðlaunin og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir síðustu skáldsögu sína, Ör.
„Hversu smátt sem viðfangsefnið kann að virðast, rúmar það heilan alheim. Hér er fjallað um mennskuna sjálfa á listilegan hátt.“
aður „Magn pur.“ ka skáldsPRESS L’EX
Le Monde um Ör
„Gersemi.“ Internazionale um Ör
„Töfrandi.“ Observer um Ör
240 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-31-2 Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson með tilvísun í eldri kápu Gísla B. Björnssonar Ljósmynd af höfundi: Anton Brink Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
2
UNGFRÚ ÍSLAND EFTIR AUÐI ÖVU ÓLAFSDÓTTUR
★ ★ ★★★ JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ
Auður Ava Ólafsdóttir hlaut bóksalaverðlaunin, Íslensku bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir síðustu skáldsögu sína, Ör. Bækur hennar koma út á yfir 20 tungumálum. „Auður Ava býður upp á allt það besta sem bókmenntir geta boðið upp á; frásögnin geislar af falsleysi og ljóðrænu í senn en það sem springur þó hvað best út í Ungfrú Ísland er sögumeistarinn Auður Ava. Vegna sagnagáfunnar og þess að höfundur getur sagt sögur eins og sögur verða best sagðar, með viðburðum og persónum sem vekja tilfinningar og forvitni um að vita meira og meira, er Ungfrú Ísland bók sem lesandi svolgrar í sig.“ JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ
3
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Hið heilaga orð Ástríður, lestur, flótti og ferðalög Ung kona hverfur frá nýfæddu barni sínu og bróðir hennar leggur í leit að henni. Hið heilaga orð er spennandi saga um ástríður og lestur, flótta og ferðalög, og undursamleg völundarhús mannshugans. Sigríður Hagalín er fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Fyrsta bók hennar, Eyland, vakti verðskuldaða athygli og kemur nú út víða um Evrópu. Hið heilaga orð hefur þegar verið selt til Frakklands.
r d hefu Eylan í meira út komð öndum. l en 10
„Falleg og spennandi frásögn sem fer víða.“ Hallgrímur Helgason
„Intellektúel, tilfinningaþrungin. Flóknar og heillandi manngerðir. Skrýtið, en töfrandi líf. Rússíbanareið um sögu mannsandans í heimi nýrrar tækni. Listilega spunninn þráður. Spenna og samúð. Kynþokki. Næmni. Alþjóðleg sýn. Íslenskur veruleiki. Firnavel skrifað. Töff lýsingar. Fögur íslenska.“ Ólafur Þ. Harðarson
272 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-35-0 Kápu hannaði Jón Ásgeir ásamt Ólafi Unnari Kristjánssyni Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
4
HIÐ HEILAGA ORÐ EFTIR SIGRÍÐI HAGALÍN BJÖRNSDÓTTUR
„Frábærlega vel gert“ EGILL HELGASON UM EYLAND
Ung kona hverfur frá nýfæddu barni sínu og bróðir hennar leggur í leit að henni. Hið heilaga orð er spennandi saga um ástríðu og lestur, flótta og ferðalög, og undursamleg völundarhús mannshugans. Sigríður Hagalín er fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Fyrsta bók hennar, Eyland, vakti verðskuldaða athygli og kemur nú út víða um Evrópu.
5
Þórdís Gísladóttir
Horfið ekki í ljósið Leiftrandi fyrsta skáldsaga Andvaka sögukona rifjar upp ævi sína, segir frá samferðafólki, raðar saman minningabrotum og gerir tilraun til að greina samhengi hlutanna. Horfið ekki í ljósið er leiftrandi skemmtileg skáldsaga sem sýnir kunnuglega atburði í nýju ljósi. Þórdís hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu bók og hefur þrisvar sinnum verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Þórdís h e þrjár til fur hlotið nefning a Íslensk u bókm r til enntaverðlau na barnabæ nna fyrir kur og ljóð
„Það sem maður bjóst við af Þórdísi, skemmtilegur stíll og gaman af tíðarandastemmningunni.“ „Skemmtilegt persónugallerí.“ Sunna Dís og Þorgeir Kiljunni 160 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-30-5 Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Mynd á kápu Ulrica Zwenger Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
6
HORFIÐ EKKI Í LJÓSIÐ EFTIR ÞÓRDÍSI GÍSLADÓTTUR
Leiftrandi fyrsta skáldsaga
Andvaka sögukona rifjar upp ævi sína, segir frá samferðafólki, raðar saman minningabrotum og gerir tilraun til að greina samhengi hlutanna. Horfið ekki í ljósið er leiftrandi skemmtileg skáldsaga sem sýnir kunnuglega atburði í nýju ljósi. Þórdís hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og hefur þrisvar sinnum verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
7
Eiríkur Guðmundsson
Ritgerð mín um sársaukann Ástarsaga um fölar minningar. Harmleikur sem ekki verður færður í orð.
Ástarsaga um fölar minningar, um kynslóðir sem bugast og neyðast til að játa uppgjöf sína, harmleikur sem ekki verður færður í orð. Sársauki sem er rýtingur í hjarta okkar allra. En þessi ritgerð er líka ein lítil, græn rós. Ritgerð mín um sársaukann er fimmta skáldsaga Eiríks sem er landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1.
★★ ★★★ in Baldv
Páll insson Baldv mninum i ndir h um U
„Stíllinn er líka rammgöldróttur, heldur manni föngnum svo erfitt er að leggja bókina frá sér.“ Ingi Björn Guðnason um Undir himninum
„Tónninn í hans eigin orðum er allt að því angurvær, sumir kaflar í ætt við tregaljóð, en þó fullur af húmor og einstaklega skemmtilegum lýsingum.“ Gunnþórunn Guðmundsdóttir um 1983 272 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-33-6 Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
8
RITGERÐ MÍN UM SÁRSAUKANN EFTIR EIRÍK GUÐMUNDSSON
Rýtingur í hjartað
Ástarsaga um fölar minningar, um kynslóðir sem bugast og neyðast til að játa uppgjöf sína, harmleikur sem ekki verður færður í orð. Sársauki sem er rýtingur í hjarta okkar allra. En þessi ritgerð er líka ein lítil, græn rós. Ritgerð mín um sársaukann er fimmta skáldsaga Eiríks sem er landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1.
9
Friðgeir Einarsson
Ég hef séð svona áður Beittasti stílistinn Ferðalangur leitar að húfu með nafni bæjarins sem hann er staddur í. Sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum fer á ráðstefnu sem hún á ekki erindi á. Aðfluttur Reykvíkingur losar sig við byssu. Millistykki í skjávarpa bilar á mikilvægu augnabliki. Ég hef séð svona áður hefur að geyma tólf nýjar smásögur eftir Friðgeir Einarsson, höfund bókanna Takk fyrir að láta mig vita og Formanns húsfélagsins sem báðar hlutu lofsamlegar viðtökur gagnrýnenda. Friðgeir er einn af forsprökkum hins óviðjafnanlega leikhóps Kriðpleirs.
„Óbo fynd rganleg in sa a KOL g BRÚ a “ NB E
RGÞ UM ÓR F HÚS ORMA SDÓTT N FÉL IR AGS N INS
„Friðgeir Einarsson er einhver beittasti stílisti sem komið hefur fram í íslenskum bókmenntum afar lengi.“ ÁBS, DV um Takk fyrir að láta mig vita 168 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-02-2 Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Teikning á kápu Sigrún Hlín Sigurðardóttir Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
10
ÉG HEF SÉÐ SVONA ÁÐUR EFTIR FRIÐGEIR EINARSSON
„Óborganlega fyndin saga“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR UM FORMANN HÚSFÉLAGSINS
Ferðalangur leitar að húfu með nafni bæjarins sem hann er staddur í. Sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum fer á ráðstefnu sem hún á ekki erindi á. Aðfluttur Reykvíkingur losar sig við byssu. Millistykki í skjávarpa bilar á mikilvægu augnabliki. „Friðgeir Einarsson er einhver beittasti stílisti sem komið hefur fram í íslenskum bókmenntum afar lengi. lengi.“ ÁBS, DV UM TAKK FYRIR AÐ LÁTA MIG VITA
11
Alexander Dan
Vættir Áhugaverð skáldsaga eftir upprennandi höfund Sagan gerist í torkennilegri Reykjavík; vættir birtast á hverju húshorni, þökum og upp úr holræsum. Tré vex á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar, hnífum rignir niður af himninum. Hvernig bregst mannshugurinn við?
Rithöfundurinn Alexander Dan Vilhjálmsson býr í Reykjavík. Hrímland var fyrsta skáldsaga hans en með henni skipaði hann sér sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins. Hún kemur brátt út hjá einu virtasta fantasíuforlagi heims, Gollancz. Alexander er útgefandi og ritstjóri tímaritsins Furðusögur sem tileinkað er vísindaskáldskap og fantasíubókmenntum. Það er fyrsta tímarit sinnar tegundar á Íslandi. Ásamt ritstörfunum semur Alexander texta fyrir „black metal“-sveitina Carpe Noctem þar sem hann þenur einnig raddböndin sem forsöngvari.
207 bls. – Prentun: Prentmiðlun 978-9935-488-32-9 Kápu hannaði Elin Mejergren Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323
12
VÆTTIR EFTIR ALEXANDER DAN
Reykjavík með japönsku ívafi
Fyrsta skáldsaga hans Hrímland skipaði honum sess sem einn helsti furðusagnahöfundur landsins. Bókin kemur brátt út hjá einu virtasta fantasíuforlagi heims, Gollancz.
13
REYKJAVÍKURMYNDIR EFTIR ÓSKAR ÁRNA ÓSKARSSON
Meistari ljóðsins og smáprósanna
„Ef Óskar væri tónlistarmaður … væri hann þá ekki munnhörpuleikari í blúshljómsveit, sem ætti það til að breytast í dreymna djasssveit?“ skrifar Jón Kalman Stefánsson í formála. Ljóðasafn þetta hefur að geyma úrval ljóða Óskars Árna. Fjölbreytt og fögur ljóðin eiga það sameiginlegt að fjalla um Reykjavík, stundum á augljósan og stundum dulmagnaðan hátt.
Bókin er 206 síður. Prentun: ScandBook. 978-9935-488-25-1. Hönnun kápu: Ólafur Unnar Kristjánsson. Mynd af höfundi: Sigurjón Ragnar.
14
FRÆ SEM FRJÓVGA MYRKRIÐ EFTIR EVU RÚN SNORRADÓTTUR
Ekkert varir, gott eða slæmt
Hér er meðal annars fjallað um misspennandi leyndarmál, nærfatakaup í sólarlandaferðum og far til að sýna þeim heima. Eva Rún er sjálfstætt starfandi sviðslistakona og ljóðskáld. Hún hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur: Heimsendir fylgir þér alla ævi og Tappi á himninum.
Bókin er 80 síður. Prentun Prentmiðlun. 978-9935-488-34-3. Hönnun kápu: Ólafur Unnar Kristjánsson. Mynd af höfundi: Sigurjón Ragnar.
15
HIMNARÍKI OG HELVÍTI EFTIR JÓN KALMAN STEFÁNSSON
Þríleikurinn vinsæli í fyrsta sinn á einni bók
Sögusviðið er sjávarþorp um þarsíðustu aldamót. Það er vetur og strákurinn kemur úr sjóferð. Besti vinur hans hefur frosið í hel. Nú er hann einn í heiminum með alla sína drauma. Við fylgjumst með honum á torfærri leið til fullorðinsáranna og ástarinnar sem er bæði ljúf og forboðin. Bókin kom út í tilefni af sýningu Borgarleikhússins á leikgerð Bjarna Jónssonar eftir þríleiknum, sem var frumsýnd 11. janúar 2018.
Sýningin fékk flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna, alls tólf talsins; og verðlaun í eftirfarandi flokkum: Sýning ársins 2018 Leikrit ársins - Bjarni Jónsson og Jón Kalman Stefánsson Leikstjóri ársins - Egill Heiðar Anton Pálsson Leikmynd ársins - Egill Ingibergsson Búningar ársins - Helga I. Stefánsdóttir Lýsing ársins - Þórður Orri Pétursson Tónlist ársins - Hjálmar H. Ragnarsson Bókin er 832 síður. Prentun: ScandBook. 978-9935-488-21-3. Hönnun kápu: Hjörvar Harðarson. Mynd af höfundi: Einar Falur.
16
RÖK LÍFSINS EFTIR GUÐMUND EGGERTSSON
Um erfðafræðirannsóknir allt frá Aristótelesi til vorra daga
Rannsóknir á lífverum má rekja til fornaldar, sérstaklega til Aristótelesar sem starfaði á 4. öld f.Kr. og hafði meðal annars ákveðnar hugmyndir um erfðir. Kenning um þróun lífvera kom fram um aldamótin 1800 og árið 1859 kom út bókin Uppruni tegundanna eftir Charles Darwin. Góður skilningur á líffræðilegum forsendum þróunar varð þó að bíða blómstrunar erfðafræðinnar á 20. öld. Í þessari bók er sagt frá nokkrum brautryðjendum líffræðinnar, sérstaklega á sviði erfðafræði, allt frá Aristótelesi til uppgötvana Watsons og Cricks árið 1953. Jafnframt er sögð saga hugmynda og uppgötvana sem um miðja 20. öld leiddu til byltingar í skilningi manna á eðli lífsins.
Dr. Guðmundur Eggertsson var um árabil prófessor í líffræði við Háskóla Íslands og vann að rannsóknum á sviði sameindaerfðafræði. Fjöldi greina eftir Guðmund hefur birst í íslenskum og erlendum tímaritum. Guðmundur er höfundur bókanna Líf af lífi: gen, erfðir og erfðatækni, Leitin að uppruna lífs: líf á jörð, líf í alheimi Ráðgáta lífsins: ritgerðir um eðli og uppruna lífs
Bókin er 198 síður. Prentun: Leturprent. 978-9935-488-28-2. Hönnun kápu: Ólafur Unnar Kristjánsson. Mynd af höfundi: Sigfús Már Pétursson
17
Fallega myndskreytt harðspjaldabók fyrir yngstu lesendurna. Frönsk klassík sem kemur nú í fyrsta sinn út á Íslandi. Hrikalega gaman að lesa saman.
ATH Lesist ! tilþrifumeð m!
Bókin er 120 síður og er prentuð í Kína. 978-9935-488-29-9.
Hvað styttir skammdegið?
Bókaklúbburinn Sólin Bókaklúbburinn Sólin vermir og lýsir leið! Heimsins heitasta lesefni inn um lúguna heima, 2 vikum áður en því er dreift í bókaverslanir. Frábærar kiljur, væntanlegar með hækkandi sól árið 2019. Upplýsingar á www.benedikt.is/solin
Gjafabréf Sólarinnar Fæst í forlagsversluninni, Bræðraborgarstíg 9. Sendum heim að kostnaðarlausu! Hafið samband við benedikt@benedikt.is eða í síma 821 4323
18
SUNNAN VIÐ MÆRIN, VESTUR AF SÓL EFTIR HARUKI MURAKAMI
Klassík
Hajime elst upp sem einbirni og honum virðist sem allir í kringum hann eigi bræður og systur. Nánasti vinur hans er stúlka á hans reki, Shimamoto, líka einbirni. Þau missa samband og árin líða. Hajime rekur stefnulaust áfram uns hann finnur hamingju með eiginkonu og tveimur börnum. Þá birtist Shimamoto. Þetta er endurútgáfa á þessari klassísku bók Murakamis í þýðingu Ugga Jónssonar.
Bókin er 272 síður. Prentun: Prentmiðlun. 978-9935-488-20-6. Hönnun kápu: Ólafur Unnar Kristjánsson og Sigurjón Ragnar.
19
Ábm: Guðrún Vilmundardóttir
101 Reykjavík Sími 552 7711 og 821 4323 www.benedikt.is benedikt@benedikt.is
Hönnun, umbrot og umsjón: Dynamo Reykjavík
Bræðraborgarstíg 9
Prentun: Ísafold
Benedikt bókaútgáfa