Skip to main content

Benedikt bókaútgáfa árið 2020

Page 1

ÚTGÁFAN 2020


Auður Ava Ólafsdóttir

Dýralíf Sjöunda skáldsaga Auðar Övu fjallar um brothættasta og grimmasta dýrið: manninn. Sagan gerist í vetrarmyrkri, rétt fyrir jól, þegar áður óþekkt lægð er í aðsigi. Á þriðju hæð við Ljósvallagötu býr ljósmóðir í íbúð sem hún erfði eftir einhleypa og barnlausa ömmusystur sína. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú handrit sem ömmusystirin vann að, Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósið og Tilviljunin.

BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2018 FYRIR ÖR

„Hrífur lesandann með sér inn í myrkrið og þaðan í ljósið.“ Maríanna Clara Lúthersdóttir, Víðsjá

„Bókin er með þeim allra fegurstu sem ég hef lesið.“ Ragnheiður Þrastardóttir, Morgunblaðinu

208 bls Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Anton Brink

Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

2


„Magnað u skáldska r pur.“ L’EXPRE

SS

3


Jón Kalman Stefánsson

Fjarvera þín er myrkur Er það ábyrgð eða hugleysi að sætta sig við örlög sín?

Hér tvinnast saman yfir staði og tíma, frá Hólmavík suður eftir Evrópu, kynslóð fram af kynslóð, líf sem kannski eru jafn tíðindalítil og girðingarstaurar en halda þó öllu uppi. Kornabarn sem rétt er yfir eldhúsborð, löngu dáið þýskt skáld, trillusjómaður sem er sérfræðingur í Kierkegaard, döpur rokkstjarna, stúdína úr MR, dánir hvolpar og hver er þessi prestlærði rútubílstjóri? Sum bros geta breytt heimum og sum líf kvikna eingöngu vegna þess að heimar gengu úr skorðum. Þetta er saga mennsku og breyskleika og hinnar óseðjandi gleymsku.

„Fjarvera þín er myrkur er ættar- saga, ástarsaga, sveitasaga og saga um sögur. Hún er ljóðræn og falleg og svo full af ást og harmi að hún lætur engan ósnortinn.“ Ragnheiður Birgisdóttir, Morgunblaðið

496 bls. Kápa: Exil Design Ljósmynd af höfundi: Einar Falur Ingólfsson

Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

4


er lman a K n “ „Jó skáld. mikið laðið nb

Morgu

5


Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir. Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eld­ fjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.

el andi v „Áber ð.“ skrifu órsdóttir rgþ

ún Be

Kolbr

Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála. „Eldarnir er einstaklega vel skrifuð og ánetjandi saga … hættan sem býr bæði innra með söguhetjunni og í bullandi kvikuhólfum undir yfirborðinu er eins og sagan sjálf, áleitin og sterk.“ Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðið 287 bls Kápa: Elin Mejergren Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

6


7


Þórdís Gísladóttir

Ljóð 2010-2015 Ásamt formála Úlfhildar Dagsdóttur Ljóð 2010–2015 hefur að geyma þrjár fyrstu ljóðabækur Þórdísar Gísladóttur, sem hafa lengi verið ófáanlegar. Þetta eru bækurnar Leyndarmál annarra (2010) sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, Velúr (2014) sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Tilfinningarök (2015). Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur ritar formála.

sta tilega m m e k s „Eitt s áld íslensk ljóðsk tíma.“ sam blaðið orgun

RÞ, M

208 bls. Kápa: Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar

Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

8


9


Óskar Árni Óskarsson

Vatnaleiðin Ljósmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson Árið 2009 dvaldi Óskar Árni Óskarsson um sex mánaða skeið sem gestalistamaður í Vatnasafninu í Stykkishólmi. Hann hélt dagbók flesta daga sem hér birtist nú á prenti í endurskoðaðri útgáfu. Bókin hefur að geyma lýsingar á því sem fyrir augu bar þessa mánuði, hugleiðingar og ljóð og ljósmyndir sem Einar Falur Ingólfsson tók á vordögum 2018. Óskar Árni Óskarsson er fæddur í Reykjavík árið 1950.

ri Meista ns. ósa smápr

Hann hefur lengi fengist við ljóðagerð og þýðingar, sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók árið 1986. Samhliða ritstörfum hefur hann starfað sem bókavörður. Óskar Árni hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins, auk þess að hafa verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hann hefur verið nefndur meistari smáprósans í íslenskum bókmenntum. Einar Falur Ingólfsson er fæddur í Keflavík árið 1966. Hann lauk námi í bókmenntafræði við Háskóla Íslands og er með MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Hann hefur haldið fjölda sýninga á verkum sínum í söfnum og sýningarsölum hér á landi og erlendis.

208 bls. Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Einar Falur Ingólfsson Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

10


11


Kristín Svava Tómasdóttir

Hetjusögur aldrei urðu vötnin henni farartálmi aldrei brast hana kjark aldrei dró hún úr því að lagt væri á tæpasta vaðið

Ljóðin í bókinni eru ort upp úr ritinu Íslenskar ljósmæður I–III sem séra Sveinn Víkingur bjó til prentunar og kom út hjá Kvöldvökuútgáfunni á Akureyri 1962–1964. Þar eru prentaðir æviþættir og endurminningar 100 ljósmæðra. Kristín Svava Tómasdóttir er fædd í Reykjavík 1985. Hún hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur, síðast Stormviðvörun árið 2015, og sagnfræðiritið Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar.

a bráð .“ g e l r e „Alg sning ileg le on t m m ske lgas Egill

He

114 bls. Kápu hannaði Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Guðrún Lára Pétursdóttir Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

12


13


Halla Þórlaug Óskarsdóttir

Þagnarbindindi Það eru kaflar um mæður og það eru kaflar um dætur.

Ljóðsagan Þagnarbindindi miðlar hugarheimi konu sem reynir að ná tökum á minningum um missi og ótta, um samskipti við konurnar sem hafa verið henni nánastar og henda reiður á svo mörgu sem hún hefur aldrei sagt. Á yfirborðinu hafa ljóðin lágstemmt yfirbragð hversdagsraunsæis en markvisst myndmál og athuganir undirstrika sársaukann í þögninni og tilfinningalega dýpt undir kyrrlátu yfirborðinu. Umsögn bókmenntaráðgjafa Miðstöðvar íslenskra bókmennta en Halla Þórlaug hlaut nýræktarstyrk

einlæg g o g e „Fall bók.“ ið lað

réttab

BB, F

fyrir þetta verkefni.

96 bls. Kápa Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Sigurjón Ragnar Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

14


15


Loki

Tunglið er diskókúla Fyrsta bók höfundar „Hér er bók um það hvernig heimurinn springur stundum út í villtu streymi og rambar á mörkum draums og veruleika, erótíkur og klósettferða, ástar og losta, regnboga og ælu. Þetta er skáldið sem þú átt eftir að taka eftir næstu árin, flæðið er farið í gang.“ Elísabet Kristín Jökulsdóttir

„Loksins, Loksins! Loki stígur hér fram á ritvöllinn og varpar fram versum með fítonskrafti.“ Mikael Torfason

daleg „Grod .“ ð fegur ðið nbla

Morgu

„Í verkinu er einnig að finna áhugaverða blöndu af groddaskap og fegurð; ljóð sem fanga það hvað lífið getur merið misheppnað en á sama tíma fallegt.“ Ragnheiður Birgisdóttir, Morgunblaðið

120 bls. Kápa: Ólafur Unnar Kristjánsson Ljósmynd af höfundi: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

16


17


Þrjár ljóðabækur Jóns Kalman Stefánssonar með stórskemmtilegum eftirmála höfundar.

Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

18


Sagan um heimsins furðulegasta fisk. Sænsk verðlauna- og metsölubók í þýðingu Þórdísar Gísladóttur.

19


Þessi frumraun höfundar ætti að gleðja glæpasagnaunnendur. Þetta er haganlega unnin glæpasaga þar sem lausnin á ráðgátunni liggur ekki í augum uppi. Kolbrún Bergþórsdóttir, Fréttablaðið

Menntuð: ný prentun. Loks fáanleg á ný, þessi ótrúlega ævisaga í þýðingu Ingunnar Snædal.

Benedikt bókaútgáfa. Bræðraborgarstíg 9, 101 Rvk. Sími 821 4323

20


Bráðskemmtilegar staðreyndir um skrítnar skepnur – og frábærar teikningar eftir hina sænsku Maju Safström.

Fróðle falleg g, skemm & tileg Hvað styttir skammdegið?

Bókaklúbburinn Sólin Bókaklúbburinn Sólin vermir og lýsir leið! Heimsins heitasta lesefni inn um lúguna heima, 2 vikum áður en því er dreift í bókaverslanir. Upplýsingar á www.benedikt.is/solin

Gjafabréf Sólarinnar Fæst í forlagsversluninni, Bræðraborgarstíg 9 og á netinu. Sendum heim að kostnaðarlausu! Hafið samband við benedikt@benedikt.is eða í síma 821 4323

21


Ábm: Guðrún Vilmundardóttir

Bræðraborgarstíg 9 101 Reykjavík Sími 552 7711 og 821 4323 www.benedikt.is benedikt@benedikt.is

Hönnun, umbrot og umsjón: Dynamo Reykjavík

Benedikt bókaútgáfa


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Benedikt bókaútgáfa árið 2020 by Benedikt Books - Issuu