Skip to main content

Beautyklúbburinn 1.tbl

Page 1

1


2

EFNISYFIRLIT Hátíðarlúkkið

04

Bodyologist

12

Vöruannáll

14

Förðunarvörur

14

Aukavörur

16

Sjálfbrúnkuvörur

17

Húðvörur

18

Hárvörur

20

Teboðið

22

Last Object

22

Eva Ruza

26

Beautyklúbburinn x Gallerí 17 & Reykjavík Makeup School

28

Náðu TikTok trendinu

38

Beautyklúbburinn 1. tbl 2023 Ritstjóri: Erna Hrund Hermannsdóttir Ritstjórn: Lára Sigíður Lýðsdóttir & Kristín Ása Brynjarsdóttir Hönnun & uppsetning: Erna Hrund Hermannsdóttir & ENNEMM Úgefandi: Beautyklúbburinn


3

BEAUTYKLÚBBURINN Velkomin í Beautyklúbbinn! Okkar markmið er að fræða, veita innblástur og gefa þér góðar hugmyndir um hvernig þú getur notað snyrtivörurnar þínar. Beautykúbburinn er staður þar sem þú getur náð í allar þær upplýsingar sem þér finnst þú mögulega þurfa til þess að velja þér þær vörur sem henta þér og fullkomna þitt útlit eða stuðla að heilbrigðari húð. Við sem komum að Beautyklúbbnum lifum og þrífumst í heimi snyrtivara og vinnum með mörgum af stærstu snyrtivörumerkjum heims eins og Maybelline, NYX Professional Makeup, L’Oréal Paris, Real Techniques, Bondi Sands og mörgum fleirum. Í fyrsta tölublaðinu okkar sem kemur nú út rétt fyrir jólin tókum við saman hugmyndir að hátíðarförðunum, helstu trendunum sem hafa einkennt árið 2023 og rifjum upp okkar allra vinsælustu vörur á árinu. Það er okkar von að þetta sé eingöngu upphafið að spennandi framhaldi Beautyklúbbsins og við vonum að þið hafið gaman af. Endilega fylgið Beautyklúbbnum á helstu samfélagsmiðlum til að sjá allt sem er í gangi hjá okkur og fá fréttir af nýjungum og vinsælum vörum.

Nokkur af þekktustu vörumerkjum Beautyklúbbsins eru:

- athugið listinn er ekki tæmandi!

FORSÍÐA Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Módel: Brynja Bjarnadóttir Ey Agency Förðun: Sunna Björk Erlingsdóttir Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir


4

Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Módel: Saga Úlfarsdóttir Ey Agency Förðun: Ugla Snorradóttir Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir


5

HÁTÍÐARFÖRÐUN

Rauðar varir sem fullkomna útlitið Það er fátt jafn hátíðlegt eins og eldrauðar varir. Fallegur liner og náttúruleg augnförðun fara vel með vörunum án þess að taka of mikla athygli frá þeim.

3.

1.

2.

6. 4. 9. 8.

7. 5.

1. Ultimate 16 Pan Palette í Warm Neutrals frá NYX Professional Makeup, 2. Superstay Liquid Lipstick í Individualist frá Maybelline 3. Line Loud Lip Liner í Stay Stuntin frá NYX Professional Makeup, 4. Superstay 24H Skin Tint frá Maybelline 5. Bare With Me Serum Concealer frá NYX Professional Makeup, 6. Wonder Stick Contour Stick í Universal frá NYX Professional Makeup, 7. Micro Brow Eyebrow Pencil í Chocolate frá NYX Professional Makeup, 8. Thick it Stick It Brow Glue í Cool Blonde frá NYX Professional Makeup, 9. Worth the Hype Waterproof Mascara frá NYX Professional Makeup


6

HÁTÍÐARFÖRÐUN

Glimmer & glamúr Glimmer á alltaf vel við í kringum hátíðirnar. Það þarf samt alls ekki að verða of mikið, smá ljóst glimmer sem gefur augunum fallegt útlit. Varirnar í brúnum tón fullkomna förðunina. 5.

4.

1.

8. 2.

7.

6.

3.

9.

5 in 1 Shark Flex Style fæst í Elko. Við verðum að fá að sýna ykkur þessa geggjuðu græju sem auðveldar að stílisera hárið!

10.

1. Glitter Primer frá NYX Professional Makeup, 2. True Match Serum Foundation frá L’Oréal Paris, 3. CSWS Mattifying Powder í Light frá NYX Professional Makeup, 4. Wonder Stick Blush Stick í Light Peach/Baby Pink frá NYX Professional Makeup, 5. Lash Sensational Mascara frá Maybelline, 6. Butter Gloss í Ginger Snap frá NYX Professional Makeup, 7. Slim Lip Liner í Nude Truffle frá NYX Professional Makeup, 8. Ultimate Glowshots í Highkey Lychee frá NYX Professional Makeup, 9. Lifter Gloss í Ice frá Maybelline, 10. F&B Glitter í Ice frá NYX Professional Makeup


7

Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Módel: Brynja Bjarnadóttir Ey Agency Förðun: Sunna Björk Erlingsdóttir Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir


8

Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Módel: Saga Úlfarsdóttir Ey Agency Förðun: Ugla Snorradóttir Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir


9

HÁTÍÐARFÖRÐUN

’90s er með endurkomu! Falleg brúntóna augnförðun með gylltum ljóma sem gera augun alveg sérstaklega blá! Að leika sér með varablýanta í tveimur litum móta varirnar á sérstaklega flottan hátt og glossið fullkomnar þær.

1.

3.

4.

5.

2. 6. 7.

8.

1. Ultimate 16 Pan Palette í Warm Neutrals frá NYX Professional Makeup, 2. Worth the Hype Waterproof Mascara frá NYX Professional Makeup, 3. Thick it Stick It Brow Glue í Cool Blonde frá NYX Professional Makeup, 4. Micro Brow Eyebrow Pencil í Chocolate frá NYX Professional Makeup, 5. Epic Smoke Liner í Nude Haze frá NYX Professional Makeup, 6. Wonder Stick Blush Stick í Light Peach/Baby Pink frá NYX Professional Makeup, 7. Highlight & Contour Pro Palette frá NYX Professional Makeup, 8. Instant Perfector Glow frá Maybelline,


10

HÁTÍÐARFÖRÐUN

Litir sem fanga athygli Hvernig væri að prófa að setja fallegan, bjartan lit í innri augnkrókinn? Falleg ljómandi húð og náttúrulegar varir passa vel við þetta lúkk. 4.

3. 2.

1.

5.

7.

6.

8. 10.

9.

11.

1. Slim Lip Pencil í Nude Beige frá NYX Professional Makeup, 2. Suede Matte Lipliner í Los Angeles frá NYX Professional Makeup, 3. Infallible Grip 36H Gel Eyeliner í Brown Denim frá L’Oréal Paris, 4. Brow Artist Plum Serum frá L’Oréal Paris, 5. Ultimate 16 Pan Palette í Vintage Jean Baby frá NYX Professional Makeup, 6. Ultimate 16 Pan Palette í I Know That’s Bright frá NYX Professional Makeup, 7. Suede Matte Lipstick í Free Spirit frá NYX Professional Makeup, 8. Glow Paradise Balm in Lipstick í lit 112 frá L’Oréal Paris, 9. Superliner Le Khol í Midnight Black frá L’Oréal Paris, 10. Lash Sensational Mascara frá Maybelline, 11. True Match Serum Foundation frá L’Oréal Paris


11

Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Módel: Brynja Bjarnadóttir Ey Agency Förðun: Sunna Björk Erlingsdóttir Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir


12

NÝTT VÖRUMERKI

Einkunnarorð Bodyologist eru „Treat Your Body Like Your Face“ eða „Hugsaðu um líkamann eins og andlitið þitt“. Húðvörur með mörgum af þekktum innihaldsefnum eins og retinóli, hýalúronsýru og ávaxtasýrum. Vörumerkið einblínir á að bjóða upp á vörur fyrir allt annað en andlitið þitt, alla vega til að byrja með. Stofnendur merkisins þær Charlotte og Didde sem stýrðu lengi vel innkaupum fyrir snyrtivörudeild Magasin du Nord.

Í mörg ár leituðu þær að merki eins og Bodyologist en þegar það fannst ekki brugðu þær á það ráð að búa það til sjálfar. Úr varð þetta fallega vörumerki sem býr yfir vörum sem eru þróaðar og framleiddar í Danmörku. Vörurnar eru allar 100% vegan og innihaldsefnin eru 93-99% af náttúrulegum uppruna. Það eru þá helst þessi allra virkustu efni eins og t.d. retínólið sem ekki kemur frá náttúrunni. Allar vörurnar eru í endurunnum umbúðum sem eru endurvinnanlegar áfram. Bodyologist er með B Corp viðurkenningu sem staðfestir að fyrirtækið hefur skýr sjálfbær markmið og uppfyllir ströng skilyrði þegar kemur að gagnsæi um hvernig áhrif vörumerki hafa á heiminn. Mikil áhersla er lögð á að vörurnar séu með rétt pH gildi fyrir húðina og passi þannig við náttúrulegt pH gildi húðarinnar sjálfrar.


13

Hjá Bodyologist finnurðu serum og krem fyrir líkamann, handaáburð og handsápu, sturtusápu og líkamsskrúbb ásamt bursta sem eykur blóðflæði um líkamann og um leið virkni húðfrumnanna. Við hvetjum alla sem hafa áhuga að að styrkja húðina, draga úr einkennum öldrunar í húðinni og um leið jafna áferð hennar að skoða Bodyologist.


14

Mest seldu förðunarvörur Beautyklúbbsins 2023

Í lok ársins er gaman að skoða hvaða vörur slógu rækilega í gegn! Vinsælustu förðunarvörurnar ættu að koma fáum á óvart en þær ættu að finnast í fjölmörgum snyrtibuddum lesenda nú þegar, ef ekki þá færðu kannski góðar hugmyndir til að setja á óskalistann þinn!

2 4

3

Þessi gyllti maskari lætur augnhárin þín virðast allt að 60% lengri. Burstinn aðskilur augnhárin og tryggir að með einni stroku verða augnhárin strax umfangsmeiri.

Maskari sem passar að öll augnhárin njóti sín! Gúmmíburstinn er með 10 lögum af hárum sem greiða vel úr augnhárunum og leyfa öllum lögum þeirra að njóta sín!

6

Lash Sensational Sky High Maskarar frá Maybelline Maskari sem gefur augnhárunum aukið umfang og mikla lengd eftir aðeins eina umferð. Burstinn er hannaður til að ná til allra augnháranna.

Telescopic Mascara frá L’Oréal Paris

Lash Sensational Mascara frá Maybelline

1

5

The Brow Glue frá NYX Professional Makeup Glært augnháragel sem festir hárin í þá átt sem þú greiðir augabrúnirnar þínar í. Með þessu er leikur einn að ná „soap brow“ lúkkinu.

Telescopic Lift Mascara frá L’Oréal Paris Maskari sem lengir augnhárin um allt að 5 mm og skerpir umgjörð augnanna um leið og hann mótar hvert og eitt augnhár.

Plump Right Back Serum frá NYX Professional Makeup Gelkenndur förðunargrunnur sem er bæði primer og serum í einni vöru. Húðin fær mikinn raka og sléttari áferð.

7

Instant Age Rewind Concealer frá Maybelline Hyljari sem er hugsaður til að fríska upp á augnsvæðið og dregur um leið úr þrota í húðinni; einn af mest seldu hyljurunum í heiminum í dag.


9 8 10 11 12 13 14 15

15

True Match Serum Foundation frá L’Oréal Paris Farði sem inniheldur 1% af hýalúronsýru. Fullkomin blanda af förðunar- og húðvöru. Farðinn skilur eftir sig ljómandi fallega áferð.

Lifter Gloss frá Maybelline

Gloss sem innihalda hýalúronsýru sem gefur vörunum mikinn raka og fallegan glansandi lit á sama tíma.

Honey Dew Me Up Primer frá NYX Professional Makeup Fljótandi primer sem inniheldur þykkni úr hunangsmelónu. Primerinn gefur húðinni ljómandi fallega áferð á sama tíma og húðin fær sléttari áferð.

Fit Me Concealer frá Maybelline

Léttur hyljari með fallegri áferð sem blandast vel saman við húðina. Hyljarinn er til í fjölmörgum litum.

Wonder Stick Contour Stick frá NYX Professional Makeup

Kremkennt stifti sem aðstoðar við að móta andlitið eftir þínu höfði. Stiftið er með dökkum lit öðrum megin og ljósari hinum megin. Liturinn blandast mjög vel saman við húðina.

Master Fix Translucent Powder frá Maybelline

CC C’est Magic Anti Redness Cream frá L’Oréal Paris Litað dagkrem sem hjálpar til við að jafna tón húðarinnar og draga úr sýnileika roða í húðinni.

Superstay 24H Skin Tint Foundation frá Maybelline

Farði sem gefur húðinni náttúrulegan ljóma og næringu. Formúlan inniheldur Cg vítamín sem gefur húðinni ljóma, jafnar húðlit, gerir hana mjúka og vinnur á roða.

Létt, laust og glært púður sem aðstoðar við að gefa húðinni matta áferð.


16

Mest seldu aukavörur

Beautyklúbbsins 2023 Hvað í ósköpunum eru aukavörur? Jú, það eru vörurnar sem fullkomna lúkkið, þær sem setja lokapunktinn yfir i-ið og aðstoða þig við að fá fallegri áferð á förðunina, húðina eða jafnvel hárið. Aukavörurnar eru ómissandi í okkar bókum og hver veit nema þú lærir eitthvað nýtt fyrir næsta ár?

2

Fluttery Light #117 augnhár frá Eylure Augnhár sem ramma augun fallega inn og setja svip á förðunina svo hún verður ennþá fallegri.

1

Miracle Complexion Sponge frá Real Techniques

3

Svampurinn fullkomnar förðunina því hann hjálpar þér við að blanda öllum vörunum saman. Notaðu hann rakan eða þurran, eftir því hvaða áferð þú vilt ná fram.

Eyelash Curler Pro frá Eylure Við þurfum öll góðan augnhárabrettara; þessi er einn af þeim.

4 5

Fluttery Light #008 augnhár frá Eylure Falleg ¾ augnhár sem eru sérstaklega auðveld í notkun. Gefa augunum fallega umgjörð.

Au Naturel Set frá Real Techniques

Fallegt förðunarburstasett sem inniheldur alls konar bursta sem hjálpa þér að ná fram förðuninni sem þig langar í.


Mest seldu sjálfbrúnkuvörur Beautyklúbbsins 2023

2

Liquid Gold Foam frá Bondi Sands

Application Mit frá Bondi Sands

Brúnkufroða með nærandi formúlu sem ilmar af kókos og gefur húðinni gylltan ljóma. Formúlan þornar fljótt og er ekki með leiðandi lit sem þarf að skola af.

Ef þú hefur einhvern tímann verið í vandræðum með að fá jafna áferð á brúnkuna þína þá þarftu þennan hanska.

4

Self Tanning Gradual Tanning Milk frá Bondi Sands Hér er á ferðinni líkamskrem sem gefur húðinni þinni nauðsynlega næringu ásamt því að húðin fær smám saman fallegan sólkysstan lit. Það er líka tilvalið að bera kremið yfir aðrar brúnkuvörur til að viðhalda fallegum ljómandi lit.

1

3 5

Self Tanning Foam frá Bondi Sands Upplifðu sólkyssta brúnku allan ársins hring! Með Bondi Sands Self-Tanning Foam froðunni fær húðin sólkysstan ljóma. Froðan er með leiðandi lit.

Self Tanning Eraser Oft er það þannig að maður vill fjarlægja brúnkuna sem fyrir er alveg af áður en maður ber hana aftur á. Þessi froða er algjör snilld og gerir einmitt það eða aðstoðar þig við að lagfæra mistök. Hreinsirinn leysir upp brúnkuna á aðeins 5 mínútum og skilur húðina eftir silkimjúka.

17


18

Mest seldu húðvörur Beautyklúbbsins 2023

Húðin er stærsta líffærið okkar og það er svo mikilvægt að hugsa vel um hana, hreinsa hana, næra hana og dekra við hana. Það er nauðsynlegt að viðhalda góðu jafnvægi og styrkja varnir húðarinnar. Veist þú hvernig húðin þín er? Það skiptir miklu máli að velja húðvörur sem henta þér sérstaklega og blanda saman innihaldsefnum sem styðja og styrkja þína húð. Mundu svo alltaf eftir sólarvörninni!

2

Micellar Cleansing Water frá Garnier Söluhæsta hreinsivara landsins síðustu ár skv. AC Nielsen. Þetta hreinsivatn hefurðu líklega prófað.

4

Moisturising Cream frá CeraVe Þétt rakakrem fyrir líkama og andlit sem inniheldur keramíð og gefur húðinni jafnan raka yfir daginn.

1

Facial Moisturising Lotion frá CeraVe

3

Andlitskrem með keramíðum sem styrkir húðina og þéttir hana svo varnir hennar verða sterkari.

Moisturising Lotion frá CeraVe Létt rakakrem fyrir líkamann sem inniheldur keramíð og gefur húðinni jafnan raka yfir daginn.

5

Hydrating Cleanser frá CeraVe Andlitshreinsir sem freyðir ekki. Húðin fær mikinn raka og hreinsirinn fer mildum höndum um andlitið.


19

6

Anthelios UV Mune Fluid frá La Roche-Posay Ein mest selda sólarvörnin í heiminum. Hún er sérstaklega þunn og með einhverri hæstu og bestu vörn sem hægt er að fá. Vörnin smitast ekki, er vatnsheld og svitaheld.

8

Cicaplast Balm frá La Roche-Posay Græðandi smyrsli sem má nota á allar húðgerðir og er fyrir allan aldur, meira að segja þau nýfæddu. Smyrslið má nota á andlitið og líkamann.

10 Mineral 89 Booster frá Vichy

Mineral 89 inniheldur 89% af steinefnaríka vatninu frá Vichy sem sannað er að hefur styrkjandi áhrif á húðina.

7 9

Revitalift Filler Serum frá L’Oréal Paris Serum sem inniheldur hýalúronsýru sem er rakamikið fyllingarefni og gefur húðinni fallega og þétta áferð.

Hydraboost Gel Cream frá Neutrogena Létt og frískandi rakakrem sem inniheldur mikið magn af hýalúronsýru. Það hentar öllum húðgerðum og aldri.


20

Mest seldu hárvörur Beautyklúbbsins 2023

Að eiga góðan hárdag er eitthvað sem er mjög skemmtilegt í okkar bókum; þeir dagar verða einhvern veginn oft betri en aðrir dagar. Hárvörur eru ekki bara hárvörur og það er til gríðarlegt úrval af alls konar vörum sem aðstoða þig við að viðhalda heilbrigðu hári.

1 3

2

Elvital Hyaluronic Acid sjampó og hárnæring Hárvörur fyrir þurrt hár sem gefa húðinni ótrúlega mikinn raka.

Elvital Dream Length sjampó og hárnæring Hárvörur fyrir sítt hár sem gera við slitna enda.

Nutrisse aflitun frá Garnier

4

Elnett Kraftig hárlakk Eitt frægasta hárlakk heims, Elnett, er þekkt fyrir að halda vel í greiðsluna og svo er auðvelt að greiða það úr.

Langar þig í ljósara hár? Þetta er ein söluhæsta varan okkar í ár; greinilega vinsælt lúkk.

5

Elvital Bond Repair Leave In Næring sem er sett í hár eftir hárþvott, verndar og styrkir hárið innan frá svo það verður heilbrigðara.


21

6

Elvital Bond Repair sjampó og hárnæring Hárvörur sem innihalda agnir sem binda hárið betur saman. Sérstaklega gott fyrir illa farið og skemmt hár.

7 8 9 10 Casting Crème Gloss hárlitir

Hárlitir sem gefa hárinu heilbrigðan ljóma og fallegan lit.

Excellence hárlitir

Dercos Anti Dandruff sjampó frá Vichy

Ef þú ert að eiga við flösu þá þarftu að skoða þetta sjampó. Vinnur í því að koma jafnvægi á hársvörðinn.

Hárlitir sem þekja grá hár 100% og gefa þéttan og fallegan lit sem endist lengi.

Magic Retouch hárrótarsprey Sprey sem þekur rótina þína fullkomlega og getur þá aðstoðað við að lengja tímann á milli þess sem þú litar hárið. Líka hægt að nota til að þykkja hárið eða skerpa hárlínuna.


22

Sunnevu Einars og Birtu Líf þarf eflaust ekki að kynna fyrir mörgum en þær standa á bakvið vinsæla podcastið Teboðið. Við fengum þær stöllur til að segja okkur aðeins frá uppáhalds vörunum sínum sem eru frá merkjum Beautyklúbbsins og líka hvað er á þeirra óskalista fyrir hátíðarnar sem eru fram undan. Mest notuðu vörurnar í snyrtibuddunni hjá Teboðinu á árinu? Nyx Ink liner, Lifter Gloss frá Maybelline, SKY HIGH frá Maybelline, NYX Jumbo augnhár – extension cluster, Eyelure augnháralím, Eyelure 3/4 002 og 008, Last Object – Beauty Trio. Teboðs fave varakombó? Butter Gloss Creme Brulee og Whipped Vaviar frá NYX. Teboðs tips til að ná hinu fullkomna hátíðarlúkki? Hreinir og góðir burstar, mikið glimmer/shiny highlighter, rauðar varir og falleg augnhár.

Uppáhalds förðunarburstar? Real Techniques nr. 219 powder brush, ferðasettið frá RT, Dynamic duo brow set RT. Uppáhalds snyrtivaran hennar Sunnevu? Super Stay – Vinyl INK – Red HOT, Skinimalist Cryp Scuplt roller frá RT, NYX hvíti Jumbo pencil, BARBIE highlighterinn úr litlu kinnalitapallettunni frá NYX x Barbie. Uppáhalds snyrtivaran hennar Birtu? NYX – microbrow pencil – taupe, NEW NUDES daily swipe eye set frá RT. Bondi Sands – tan drops – DARK. NYX – The brow glue í lit.


23

VIÐTAL Hvað er á óskalistanum ykkar fyrir jólin?

Sunneva:

NYX lipliner - nude truffle. Bondi Sands GLO gloss finishing glow, Telescopic LIFT - extra black

Birta:

Bondi Sands GLO gloss finishing glow, body highlighter. Bondi Sands body brush, Bondi Fave – Travel set. Maybelline – Lash sensational. 2.

3.

4.

1.

9.

5.

10.

6.

7. 8.

11.

12. 13. 1. Augnhár #002 og #008 frá Eylure, 2. Lash Sensational Mascara frá Maybelline, 3. Superstay Vinyl Ink í Red Hot frá Maybelline, 4. Lifter Gloss í Ice frá Maybelline, 5. Body Brush frá Bondi Sands, 6. GLO Gloss Finishing Glow frá Bondi Sands, 7. Telescopic Lift Mascara frá L’Oréal Paris, 8. Micro Brow Eyebrow Pencil frá NYX Professional Makeup, 9. Slim Lip Liner í Nude Truffle og Whipped Caviar frá NYX Professional Makeup 10. Butter Gloss í Crème Brulée frá NYX Professional Makeup, 11. Epic Ink Liner frá NYX Professional Makeup, 12. Powder Brush frá Real Techniques, 13. New Nudes Daily Swipe Eye Set frá Real Techniques


24

Margverðlaunuðu, umhverfisvænu, fjölnota hreinlætisvörurnar frá LastObject fást nú á Íslandi. Fyrirtækið stofnuðu systkinin Isabel og Nicolas Aagaard og Kåre Frandsen frá Danmörku. Markmið þeirra er að útrýma einnota snyrtivörum og bjóða viðskiptavinum hagnýta fjölnota kosti. Í vörunum eru aðeins úrvalsefni og engin skaðleg efni eða eiturefni. LastObject er vottað B Corp og tilheyrir alþjóðlegum flokki fyrirtækja sem lætur gott af sér leiða. LastSwab eru fjölnota eyrnapinnar í öllum skilningi. Þeir hafa mismunandi hausa sem má nota í mismunandi tilgangi og hægt er að þvo þá með sápu og vatni og nota aftur og aftur. Hvern eyrnapinna má þvo 1.000 sinnum – og þannig koma í veg fyrir að 1.000 eyrnapinnar endi í landfyllingum eða í sjónum.

Förðunarsettið frá LastObject er sérstaklega hannað til þess að betrumbæta förðunina og hefur farið sigurför um heiminn á meðal förðunarfræðinga. Svo er það líka bara fullkomið í snyrtitöskuna þína. Endurnýtanlegir eyrnapinnar sem hjálpa að laga augabrúnir, skilja að augnhár og hreinsa og lagfæra förðunina; askjan sjálf er með spegli.


25

Vissir þú að það þarf meira en 10 lítra af vatni til að framleiða eina bómullarskífu? Meðal neytandi notar að meðaltali 1-2 bómullarskífur á dag. Einnota bómullarskífur skilja eftir sig stórt kolefnisspor sem við getum auðveldlega snúið við með breyttri hegðun. LastRound skífurnar eru harðar viðkomu en verða dúnmjúkar þegar þú bleytir þær. Þær má þvo í þvottavél í sérstökum pokum og nota aftur og aftur, eða allt að 250 sinnum. Vörurnar frá LastObject ættu allir að skoða og sjáið hvort þið getið ekki minnkað notkun ykkar á einnota vörum og um leið haft jákvæð áhrif á jörðina okkar.


26

Eva Ruza 4.

3. 2.

1.

Hvað kemur þér í jólaskap? Ég er rosalega mikið jólabarn og get eiginlega ekki lýst tilfinningunni sem hellist yfir mig í lok nóvember. Þá læðist bara einhver fiðringur í magann og jólaskapið mætir. Ég þarf ekki annað en að sjá jólaseríur í glugga, þá kemur það. Það er í raun ekkert eitt sem gerist. Svo er ég líka meistari í að baka lagkökuna hennar ömmu, sem ég geri alltaf í lok nóvember, og ilmurinn af henni er svo mikil æskuminning frá því að mamma var að baka hana. Lagkakan hjálpar fiðringnum heldur betur að læsast í magann. Reyndar bakaði ég lagkökuna í fyrra líka og gleymdi þá að setja öll kryddin. Skildi ekkert í því að jólailmurinn væri ekki að læðast yfir allt heimilið. Pabbi kom svo í heimsókn að smakka ... En ég er samt meistari í henni. Bakaði hana aftur og þá gleymdi ég engu. Dóttir mín hjálpaði mér í ár og ég lét kryddmálin í hennar hendur. Pabbi gaf henni 9 í einkunn. Jólin mega koma. Hver er uppáhalds jólahefðin þín? Fyrir utan hefðina að ganga inn heima hjá mömmu og pabba á aðfangadag og upplifa allar hefðirnar sem mamma gerir, þá hef ég skapað mína eigin. Á jóladag útbý ég morgun/hádegismat. Steiki beikon og egg,

set croissant í ofninn, græja ostabakka og alls konar góðgæti og í raun troðfylli borðið af alls konar mat. Svo tínast fjölskyldumeðlimir inn einn af öðrum, helst á náttfötunum og við sitjum og spjöllum. Ótrúlega notaleg hefð sem ég sé fyrir mér að þegar ég verð orðin gömul muni barnabörnin mæta til ömmu og afa í morgunmat og spjalla um allt milli himins og jarðar. Uppáhalds jólamyndin? Ég er Grinch kona. Elska Trölla og fjölskyldan öll. Við horfum hver einustu jól á Tröllann okkar og við Tinna systir erum meira að segja búnar að mastera Trölla gervið. Í fyrra lék ég Trölla í Smáralindinni og mun gera það aftur núna í desember. Svo elska ég líka Elf með Will Ferrell. Ég er mikill aðdáandi Will og hann í þessu Elf hlutverki er það besta. Þessar tvær myndir eru alltaf möst á jólunum hjá okkur. Börnin myndu eflaust nefna Home Alone myndirnar líka. Það er svo fyndið að maður horfir á þessar myndir aftur og aftur hver einustu jól og verður aldrei leiður á þeim.


27

VIÐTAL Uppáhalds jólalag?

Ertu með tips til að ná hinni fullkomnu jólabrúnku?

Ég er sjúk í Michael Bublé um jólin og hlusta stanslaust á hann í desember. Ég veit að þegar ég verð gömul kona þá munu börnin alltaf tengja Bublé við mömmu og jólin. Baggalútsmenn komast líka á listann með öll sín lög. Mér líður eins og ég geti alls ekki gert upp á milli laganna en ef ég ætti að nefna eitt með Bublé og eitt með Baggalút þá myndi ég segja „Christmas“ og „Jólin eru okkar“, en þar syngja Baggalútsmenn með Valdimar og Bríeti. Algjört gæsahúðarlag. Annars er ég alæta á jólalög og ef ég get sungið með laginu þá elska ég það – og syng verulega hátt með.

Hahaha! Sem sérlegur sérfræðingur í brúnku frá unga aldri þá hef ég sem betur fer lært ýmislegt frá því að ég gekk appelsínugul um bæinn 16 ára gömul. Mitt mesta ráð, fyrir utan sturtu og skrúbb, er að það er nauðsynlegt að setja gott krem á olnboga, hné, hæla og maka á hendur eftir að maður hefur klínt á sig taninu. Strax eftir að brúnkan er komin á, þá er það næsta skref. Þetta eru staðir sem vilja oft vera þurrari en aðrir staðir á líkamanum og drekka því litinn meira í sig og vilja verða dekkri. Svo eftir sturtuna til að skola brúnkuna af, þá er gott að setja á sig rakakrem á allan líkamann. Ég spara líka brúnkuna í andlitið. Einu sinni makaði ég henni út um allt en í dag set ég bara upp hálsinn og að kjálkalínunni. Ég læt andlitið vera því þar nota ég töfra förðunarvara til að ná ljómanum. Ég nota frekar Facetan dropa á andlitið til að fríska upp á það.

Hvaða vörur eru ómissandi í snyrtibuddunni í desember? Rauður varalitur og varalitablýantur eru algjört möst. Ég man þegar mér fannst rauður varalitur vera algjör bilun og hélt að ég myndi aldrei nota þann lit en eftir því sem þroskinn kom yfir mig þá hef ég áttað mig á því að það jafnast ekkert á við fagurrauðar varir í desember. Passar við allt og er eitthvað svo djúsí. Ég er algjör glitrandi „glimmer queen“ og er ástfangin af Ultimate Glow Shot kremaugnskugganum frá NYX. Ég vinn mikið í sterkum ljósum og hita og hann hefur sýnt og sannað að hann er bomban. Haggast ekki af augnlokunum sama hvað. Sanseringin í honum er svo falleg, alls ekki of ýkt en samt svo mikið extra. Ég nota mest litina „grapefruit glow“, „pear prize“ og ,,wow cacao“ og er alveg óhrædd við að mixa þeim saman. Falleg augnhár frá Eylure eru líka algjör nauðsyn. Ég er mikill aðdáandi þeirra og er stundum með heil, stundum hálf og stundum stök. Er í raun orðin meistari í augnhárum og þau setja punktinn yfir i-ið í fallegri förðun. Ég var að kynnast sólarpúðrinu frá NYX eftir að hafa gert mikla leit síðan mitt gamla uppáhald hætti í framleiðslu. Ég hef keypt alls konar púður frá hinum ýmsu merkjum og held að ég geti hætt leit minni núna. Matte Bronze í litnum Deep Tan er algjörlega málið. Það er alveg laust við sanseringu og gerir nákvæmlega það sem það á að gera. Oft er þörf á sólarpúðri en í desember er það nauðsyn.

Hvaða þrjár vörur frá Beautyklúbbnum verða partur af þínu hátíðardressi? 1.Oroblu sokkabuxurnar Secret Shape í litnum „sun“ eru mínar allra bestu. Þær glansa nánast ekkert, eru ofsalega fallegar á litinn, lausar við tásauminn og halda mjúklega við mjaðmasvæðið. Ég mæli með Shock Up sokkabuxum fyrir þéttara aðhald yfir maga og rass en Secret Shape eru mínar uppáhalds. 2. Augnhárin frá Eylure úr línunni Most Wanted: Lush crush gera öll augu falleg. 3. Sem sérleg talskona Essie þá er að sjálfsögðu Essie naglalakk á nöglum. Ég á ennþá eftir að gera upp við mig hvort það verður eldrauður eða djúpbleikur sem ég mun smella á neglurnar. Smá glimmer yfir eina nögl má svo alveg.

6. 7.

5. 1. Matte Bronzer frá NYX Professional Makeup, 2. Most Wanted Lush Crush augnhár frá Eylure, 3. Ultimate Glow Shots Liquid Eyeshadow í Grapefruit frá NYX Professional Makeup, 4. Ultimate Glow Shots Liquid Eyeshadow í Wow Cacao frá NYX Professional Makeup 5. Really Red frá essie, 6. Bachelorette Bash frá essie , 7. Set in Stone naglalakk frá essie,


28

Beautyklúbburinn x Gallerí 17 & Reykjavík Makeup School Ljósmyndari: Elísabet Blöndal Förðun: Hafdís Björg Davíðsdóttir, Embla Þórey Elvarsdóttir, Agnes Rósa, Fríða Valdís Bárðardóttir frá Reykjavík Makeup School Módel: Magdalena, Bella, Elín & Tamara frá Ey Agency Fatnaður: Gallerí 17 og OROBLU Stílisering: starfsfólk Gallerí 17


29


30


31

LATTE MAKEUP


32

STRAWBERRY MAKEUP


33


34


35

CHERRY COLA LIPS


36

SIREN EYES


37


38

NÁÐU TIKTOK TRENDINU Förðun: Embla Þórey Módel: Elín Rós Ey Agency

1.

STRAWBERRY MAKEUP Trendið leggur áherslu á förðunarvörur sem bragðast, ilma og líta út eins og jarðarber. Mikilvægasta varan er kinnalitur, helst kremkenndur og í tveimur ólíkum litum.

4. 6. 2.

3.

5.

1. Superstay 24H Skin Tint frá Maybelline, 2. Wonder Stick Blush í HoneyOrange/Rose frá NYX Professional Makeup, 3. Suede Matte Lipstick í Spicy frá NYX Professional Makeup, 4. Lifter Gloss í Ice frá Maybelline, 5. Instant Perfector Glow í Medium frá Maybelline, 6. Lash Sensational Mascara frá Maybelline


39

NÁÐU TIKTOK TRENDINU Förðun: Agnes Rósa Módel: Bella Ey Agency

1.

LATTE MAKEUP Förðun þar sem er eingöngu notast við brúna og nude tóna. Helsti kosturinn við trendið er að þessir litir henta öllum og fara öllum vel. Svo er bara spurning hversu djúpa liti þú vilt nota eða hafa þá léttari og þá náttúrulegri förðun.

6.

3.

4.

2.

1. Wonder Stick Contour Stick frá NYX Professional Makeup, 3. Holiday Eyeshadow Palette frá NYX Professional Makeup, 4. Lash Sensational Mascara frá Maybelline, 5. Jumbo Eye Pencil í Iced Mocha frá NYX Professional Makeup, 6. Lift & Snatch Brow Tint Pen frá NYX Professional Makeup, 7. Epic Wear Liner Stick í Brown Shimmer frá NYX Professional Makeup

5.


40

NÁÐU TIKTOK TRENDINU Förðun: Fríða Valdís Bárðardóttir Módel: Tamara Ey Agency

1.

2.

CHERRY COLA LIPS Sækir innblástur sinn í djúpa og áberand liti kirsuberjakóladrykkja. Sambland af brúnum og rauðum tónum, hér snýst allt um að leyfa þínum náttúrulega varatón að njóta sín undir safaríku lagi af flottu glossi. 3.

8. 7.

4.

5.

6.

1. Epic Wear Liner Stick í Brown Shimmer frá NYX Professional Makeup, 2. Line Loud Lip Liner í Ambition Statement frá NYX Professional Makeup 3. Suede Matte Lipstick frá NYX Professional Makeup, 4. Instant Perfector Glow í Deep frá Maybelline , 5. BWM Serum Concealer í Camel frá NYX Professional Makeup, 6. CSWS Foundation í Sienna frá NYX Professional Makeup – MÁ GERA AÐEINS STÆRRI, 7. Butter Gloss Transparent frá NYX Professional Makeup, 8. Lash Sensational Mascara frá Maybelline


41

NÁÐU TIKTOK TRENDINU Förðun: Hafdís Björg Davíðsdóttir Módel: Magdalena Guðmunds

1.

2.

SIREN EYES

3.

Fallegur eyeliner einkennir þessa förðun; linerinn dregur ytri augnkrók út til hliða og gerir augun einstaklega falleg og töfrandi. Augnaráðið verður stingandi fallegt! Hér skiptir mestu máli að vanda sig við linerinn og gefa sér tíma í að fullkomna hann. 7. 5. 6.

4.

1. Lash Sensational Mascara frá Maybelline, 2. Jumbo Eye Pencil í Black Bean frá NYX Professional Makeup, 3. Epic Ink Liner í Black frá NYX Professional Makeup, 4. Instant Perfector Glow frá Maybelline, 5. Butter Gloss í Ginger Snap frá NYX Professional Makeup, 6. Matte Bronzer í Medium frá frá NYX Professional Makeup, 7. Plump Right Back Primer frá NYX Professional Makeup


42


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Beautyklúbburinn 1.tbl by beautyklubburinn_ - Issuu