
1 minute read
Blýantsteikningar

Áður en ég byrjaði að mála blýantseiknaði ég mikið og vakti myndlistaráfangi í Menntaskólanum við Sund áhuga minn. Hér eru nokkrar myndir sem ég teiknaði á þeim tíma af mismunandi manneskjum ömmu mína, vinkonu mín og ljósmynd sem ég fann á Pinterest.
Advertisement
Þetta verk var tilraun hjá mér að útfæra hamingjulegt málverk í gegnum sveppi. Mér hefur alltaf þótt sveppir veru svo hamingjulegur að sjá. Ég notaði ólíumálningu og steinaði svo plast steina á stilkana hjá þeim.
Ég mála mikið með olíumálningu og hef gaman af því að fikra mig áfram með litum og blöndunartækni. Hér eru dæmi um málverk sem ég hef málað nýlega.
Þetta verk er um ástríðu tveggja kvenna. Ég notaði ,,inverted filter’’ í símanum til að hafa litina öfuga svo ég hefði hugmynd af hvernig litirnir ættu að fara saman.


Þetta verk hefur mikið tilfinningagildi hjá mér. Ég málaði það með vatnsblandaðri Akrýl málingu, ég hellti málingunni á rammann og svo snéri ég rammanum til hliðar svo málningin myndi leka eins og ég vildi. Ég málaði þetta þegar ég var í námi í Háskóla Ísland, ég var í miðnum lokaprófum og þurfti mikla útrás fyrir tilfiningarnar mínar. Mér leið ekki alveg vel á þessum tímapunkti vegna álags og finnst mér það túlkast í málverkinu þegar litið er á það.
Myndin hér fyrir ofan er ekki fullkláruð en mig langaði að hafa hana með. Líkaminn er málaður eftir módeli sem ég tók mynd af. Hugmyndin af þessari mynd togaði mikið í mig, þar sem hún er túlkun af staðnum sem ég er á í dag. Hún táknar frelsi og núvitund.

Myndin hér fyrir neðan er mynd sem ég málaði af systur minni í útskriftargjöf. Hún er teiknuð upp eftir ljósmynd með svo máluð með olíumálingu, munstrið í bakgrunninum er málað með Akrýl málningu.

Þessi mynd táknar berskjöldun. Það að missa allt sem þú hélst að þú værir, að það eina sem er eftir er bara ósköp venjuleg lítil sál inn í beinagrind. Egó dauði fellst í berkjöldun fyrir sjálfum sér. Á endanum erum við bara sálir fastar í föstu formi.

Þessi mynd er um týnda sál, fasta í kvenkyns líkama. Á villigötum um kynhneigð sýna, kona vs. kall, blár vs. Bleikur. Óvissan og myrkrið gleypir hana.