Er efni fyrir þá sem vilja læra svolitla pólsku:
http://tungumalatorg.is/polskiabc/
Efnið er ætlað til að auka skilning Íslendinga á máli og menningu Pólverja. Efnið er tengt nánasta umhverfi barna og unglinga: skólanum, leikvelli og frístundum, í bænum, heima og í vinnunni Efnið hentar vel þar sem eru pólskir nemendur í skólanum.
Efnið er í þemum og öll þemun eru eins upp byggð: • • • • •
Hlustunartexti fylgir prentuðum texta; Orðaforði; Æfingar; Málfræðiatriði; Sjálfsmat.
1. Í skólanum Þrjú samtöl: Hlustunarverkefni þar sem nemendur og kennari tala saman: Hvernig á að kynna sig, setja fram óskir og ávarpa kennarann. Ritaður texti fylgir. Orðaforði og helstu kurteisisvenjur sem tengjast verkefnum og samskiptum í skólastofunni. Málfræði (hlusta og lesa) o um stafrófið; o um áherslur á orð; o um nefnifall og hvernig á að kalla á fólk („kallafall“ það er líka fall!); o um samhljóðasamstöður sem eru bornar fram svipað en ekki eins og munurinn er merkingarberandi – rangt hljóð þýðir annað orð; o hljóð sem hafa ekki sömu stafsetningu en sama framburð; o um kyn í eintölu (hann, hún og það); o um spurningar og hvernig maður svarar jákvætt og neikvætt. Þrettán æfingar til að leika sér með og þjálfa málvitund á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Unnið er með orð, frasa og setningar sem hafa komið fyrir í köflum um samtöl, orðaforða og málfræði. Sjálfsmat: ég get . . ., ég kann . . . það sem kaflinn hefur boðið upp á.
2. Á leikvellinum Þrjú samtöl: Hlustunarverkefni þar sem nemendur tala saman. Ritaður texti fylgir. o Hvað heitir þú? o Hvaðan ertu? Hvert er símanúmerið þitt? o Getum við hist aftur? o Hvenær komstu til Íslands? o Hvernig líður þér? Orðaforði og frasar sem tengjast leikvellinum, frístundaiðkun, íþróttum og kynnum unglinga. Málfræði (hlusta og lesa) o um „kallafallið“; o að vera í eintölu og fleirtölu; o tölur frá 1 – 10; líðan; o að hafa í eintölu og fleirtölu; o beygingarmyndir þjóðernis eftir kynjum, t.d. íslenskur, íslensk, íslenskt, íslenskir, íslenskar; o endingar lýsingarorða eftir kynjum. Þrettán æfingar til að leika sér með og þjálfa málvitund á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Unnið er með orð, frasa og setningar sem hafa komið fyrir í köflum um samtöl, orðaforða og málfræði.
Sjálfsmat: ég get . . ., ég kann . . . það sem kaflinn hefur boðið upp á.
3. Í bænum Hlustunaverkefni: Eitt samtal: Hlustunarverkefni þar sem nemendur tala saman. Ritaður texti fylgir. Vefsíða með götuskiltum Myndband þar sem sungið er “Í bíó og í bænum Lublin – verðurðu að elska mig”. Flutt af Brathanki sönghópnum. Orðaforði og frasar sem tengjast bæjarferðum, unglingamenningu, götuskiltum , umferð og samgöngum, sveitarfélaginu og sagnir til að tjá tilfinningar. Málfræði (hlusta og lesa) ■um biernik sem er fall í pólsku sem svarar svarar spurningum “”hvað sé ég?”, “hvern sé ég? ■endingar í biernik um nafnorð og lýsingarorð sem tengist orðaforða í bænum. ■Hvar býrð þú?, Hve lengi hefurðu búið? ■nútíð í eintölu og fleirtölu, t.d. að búa…, að elska…. Tólf æfingar til að leika sér með og þjálfa málvitund á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Unnið er með orð, frasa og setningar sem hafa komið fyrir í köflum um samtöl, orðaforða og málfræði. Sjálfsmat: ég get . . ., ég kann . . . það sem kaflinn hefur boðið upp á.
4. Heima Hlustunarverkefni: Samtal milli móður og dóttur og stuttur text um fyrirkomulag og hluti í herbergi. Ritaður texti fylgir. Orðaforði: Listar með orðaforða sem tengist heimilinu. Málfræði: ■Sagnir beygðar í nútíð og persónum: að gera, að skrifa. . . ■Ábendingarfornöfn eftir kynjum (ta, to, ten) og (tamten, tamta, tamto). Tíu æfingar til að leika sér með og þjálfa málvitund á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Unnið er með orð, frasa og setningar sem hafa komið fyrir í köflum um samtöl, orðaforða og málfræði. Sjálfsmat: ég get . . ., ég kann . . . það sem kaflinn hefur boðið upp á.
5. Í vinnunni Hlustunarverkefni: Á leiðinni í vinnuna. Rætt er um upphaf og lok vinnudags. Rætt er um störf og starfsheiti. Myndband með umferðarreglunum – ætlað börnum. Málfræði: ■Tími og klukkan: kyn á mínútum og klukkutíma. ■Framtíð: Hvað ætlar þú að verða í framtíðinni? Fallið “narzędnik” gefur til kynna hvað við ætlum að verða, t.d. flugmaður. ■Í morgun, um hádegi í kvöld o.fl. ■Fara með farartæki eru notað narzędnik og endingar í kk, kvk og hvk.
Orðaforði: Listar með orðaforða sem tengist starfinu. Tíu æfingar til að leika sér með og þjálfa málvitund á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt. Unnið er með orð, frasa og setningar sem hafa komið fyrir í köflum um samtöl, orðaforða og málfræði. Sjálfsmat: ég get . . ., ég kann . . . það sem kaflinn hefur boðið upp á.
Netkennsla Notaður er opinn hugbúnaður eins: SoundCloud við upptöku á samtölum; Ipadio í málfræðikaflanum; Voki í sjálfsmatinu; Quia í æfingum til að þjálfa málvitund. Efnið er birt á WordPress síðum Tungumálatorgs.
Efnið er unnið af Anna Krzanowska (Filinska), kennsluráðgjafa í Tungumálaveri;
Marta Bartoszek og Emilia Mlynska sáu um íslenska þýðingu. Nemendur Önnu í 7. – 10. bekk aðstoðuðu við gerð hlustunarefnis. Efnið var unnið fyrir styrk frá Innanríkisráðuneyti