Skip to main content

Íslenska á vinnustað

Page 1

-

TÖLUM ÍSLENSKU Í VINNUNNI - vertu meira með Mími! Sérhæfing í 14 ár Mímir hefur áralanga reynslu af íslenskukennslu fyrir erlent starfsfólk og hafa námskeið verið haldin í samstarfi við fyrirtæki með góðum árangri síðan árið 2003. Námskeiðin byggja á viðurkenndum kennsluaðferðum sem hvetja til aukinna samskipta á íslensku. Mímir hefur hlotið viðurkenningu á fræðslustarfseminni frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og hefur vottunina EQM (European Quality Mark) sem viðurkenndur fræðsluaðili.


Ávinningur fyrirtækja Ávinningur fyrirtækja af því að efla íslenskukunnáttu meðal starfsfólks er margvíslegur. Þar ber að nefna aukna starfsánægju og samskipti innbyrðis, minni starfsmannaveltu og upplýstara starfsfólk, sem aftur hefur jákvæð áhrif á lífsgæði erlendra starfsmanna. Þá felst ávinningur í því að bæta almenn samskipti starfsfólks og viðskiptavina, sem og að auka skilvirkni í samskiptum erlendra starfsmanna við yfirmenn og stjórnendur.

Starfstengt nám Námskeiðin eru ætíð sniðin að þörfum vinnustaðarins. Sérfræðingur frá Mími greinir þarfir vinnustaðarins fyrir íslenskukennslu og skilgreinir markmið og áherslur í náminu í samvinnu við vinnustaðinn. Mat á stöðu starfsmanna í íslensku fer fram í upphafi og við lok námskeiðs. Þá hefur starfsfólk aðgang að náms- og starfsráðgjöf meðan á náminu stendur. Í lok námskeiðs fer fram rafrænt mat á námskeiðinu og niðurstöðum skilað til vinnustaðarins ásamt viðurkenningum sem staðfesta þátttöku. Námskeiðin geta farið fram á vinnustaðnum eða í húsnæði Mímis.

Þjónusta við fyrirtæki Mímir býður fyrirtækjum ýmiss konar þjónustu við að efla starfsfólk sitt í íslensku og gera íslensku að leiðandi tungumáli á vinnustaðnum. Fyrirtækjum býðst að gera samstarfssamninga við Mími sem miðast við ákveðið tímabil og þjónustu og/eða kaupa stök námskeið. Mímir sækir um niðurgreiðslu til Mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna íslenskunámskeiða. Þá geta fyrirtæki leitað í starfsmenntasjóði um styrki til námsins. Sérfræðingur frá Mími greinir þarfir vinnustaðarins fyrir íslenskukennslu Þátttakendur á námskeiðum fá viðurkenningu frá Mími að loknu námi

Ráðgjafi frá Mími býður starfsfólki upp á stöðumat í íslensku

Námskeiðsmat er lagt fyrir í lok námskeiðs og vinnustaðurinn upplýstur um niðurstöður þess

Aðgerðaráætlun smíðuð í samstarfi við vinnustaðinn

Þátttakendum á námskeiðum býðst að sækja sér ráðgjöf hjá náms- og starfsráðgjafa Mímis

Íslenskunámskeið haldin á vinnustaðnum eða hjá Mími


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Íslenska á vinnustað by Mimir-simenntun - Issuu