P贸stberinn 2006
Hver manneskja er veröld, einstök og helg. Þegar hún hverfur endar heimurinn, veröld sem var og kemur aldrei aftur. Mestu verðmæti lífsins, allt það sem aðeins rúmast í hjarta einnar manneskju glatast að eilífu. Hver fjölskylda er einstök sköpun. Það er ómögulegt að endurgera hana með öðru fólki á öðrum tíma. Hún er hverfull gjörningur og viðkvæmir strengir. En þegar fólk gefur hvert öðru verður grunnur þess traust og veröldin örugg, sterkari en allt sem við getum kynnst. Samfélagið á milli okkar er sjálfstæð veröld, heimur sem við mótum úr þeim hliðum sem við snúum hvert að öðru. Þegar við förum hverfur hann ekki, það sem við lögðum til situr eftir og hjálpar öðru fólki til að tengjast. Við skiljum ekki eftir mestu verðmætin heldur farvegi fyrir aðra til að hleypa þeim fram.
© Alda lóa leifdóttir nýr kafli Reykjavík 2012 prentsmiðjan oddi
alda lóa leifsdóttir
fólkið á Þórsgötu skyndimyndir frá árunum 2004 - 2012
HĂŠrna er himinninn hĂŚrri en heima!
ferรฐamaรฐur 2007
ferรฐamenn frรก grikklandi 2011
Það var brotist inn til þeirra um nóttina. Þjófarnir læddust varlega inn um gluggann, fóru úr skónum og skildu eftir blaut sokkaför á gólfinu. Þegar þau vöknuðu var búið að berstrípa íbúðina og taka allt.
Hรกkon og heiรฐa 2012
gunnar 2006
Anna lísa, Tígri og Kristján 2007
Allir inn aรฐ skera niรฐur steinselju
atli, númi og garðar 2012
Þau bjuggu í mörg ár í Eþíópíu og fluttu þegar börnin þurftu að komast í framhaldsskóla. Stundum langar hana aftur heim til Afríku.
Vilborg, gísli, katrín, valgerður og Guðlaugur 2004
Hann er kannski í miðjum leik að slást við þrjú grasstrá sem vaxa upp við húsvegg þegar útidyrahurð skellist skyndilega í lás eða Siggi Hall (kokkurinn sem rak veitingastaðinn á horninu) birtist úti á stétt og kastar kveðju. Svona óvæntar uppákomur fara illa í Pésa, hann er þotinn í skjól undir næsta bíl. Þá reynist ómögulegt að fá hann undan bílnum fram í dagsljósið.
pési og Kolbrún 2004
Stefรกn og Aรฐalheiรฐur 2007
rannveig, Þórunn, Lúðvík, sigurður, áshildur, steinunn og fígó 2005
flugmaรฐur 2006
Rafn og Guรฐbjรถrg 2004
Hún sagði alltaf: Fyrst gerir maður við húsið að utan og síðan að innan.
贸li hj枚rtur, Berglind og Fernando 2006
Stúlkan hefur málað svört strik á augnlokin. Hún hefur séð um sig sjálf frá 16 ára aldri. Hún var 19 ára þegar hún keypti íbúðina af sjómanni sem var skuldugur upp fyrir haus og þurfti að selja strax.
vilborg 2004
annĂ˝ 2005
Steinunn og Þór 2005
Cecile, Guรฐmundur og Katrin 2006
Fríða og Nói 2005
hr. Niels og Sigríður 2007
Eva og hemmi 2005
Hann er vorboðinn á nærbol úti á svölum að kalla eitthvað inn í íbúð til hennar, eitthvað sem hann las í blaðinu eða sem honum datt í hug. Seinna þegar sumarið nálgaðist varð fjölmennara úti á svölunum, jafnvel svona suðrænna landa stemmning, fjör og grill. Ekki mjög íslenskt nema þegar Íslendingar eru í glasi.
ElĂsabet 2005
Sigurður og katrín 2004
Amalía 2005
steinn og sigurr贸s 2007
テ《laug og Emelテュa 2005
Ef tími gafst þá fór hann úr skrifstofufötunum, klæddi sig í vinnugallann og skreið út á vinnupallinn fyrir utan skrifstofugluggann og hélt áfram að byggja Hallgrímskirkjuturninn.
Hermann 2006
Hún segir að í landinu sínu sé hægt að borga 5000 kr fyrir það að láta mann hverfa alveg af yfirborði jarðar.
nilmini 2005
Daviรฐ, auรฐur, sรณley, Smรกri og Alda Lรณa 2012
ร รณrir og Aรฐalheiรฐur 2007
Þau voru nýkomin úr sólarlandaferð þegar hann skrapp út í búð, hneig niður og kom ekki aftur. Síðan hann fór er hún alltaf að bíða eftir að einhver komi og sæki sig.
LYdía 2006
Bjarni og Valgerรฐur 2005
Linda, Einar Logi, aรฐalbjรถrg og hafsteinn 2006
sigurður og MargrÊt 2005
vilborg og kristĂn 2005
Bjรถrgvin, Jรณn Helgi og sigvarรฐur
Hún er elst í götunni og með fallegan garð, með mjög dömulegar plöntur. Það sést að hún er frá þeim tíma þegar konur þorðu að vera glæsikvendi. Hún er komin undir nírætt og einu sinni í viku koma gamlir félagar hennar í heimsókn og spila bridge sem oft vill dragast á langinn. Því ber við þegar flestir í götunni eru lagstir á sitt sæta eyra að frá stofuglugganum hennar ljómi gul birta. Verandi seint á ferð og veitandi glugganum athygli þá dettur manni fyrst í hug miðilsfundur, kannski af því mann grunar gamalt fólk um einhverja dularfulla gjörninga.
Þóra 2005
Hún er 19 ára og barnið þeirra kemur í júli. Þau búa saman á 20 fermetrum á jarðhæð ásamt kettinum þeirra sem var að gjóta sjö kettlingum í þriðja sinn á einu ári. Þau eru búin að taka á móti 19 kettlingum á þessu ári. Þau eru með kettlingana í pappakassa úti í horni. Þau hafa hingað til komið öllum kettlingunum út án þess að hafa þurft að lóga neinum.
justin og katla 2006
iilmur, ARNAR, HELENA, STEFÁN og KOLFINNA 2004
birgir 2007
Ef Guð er þar sem fólkið er, er þá meira af Guði í New York en hérna í Reykjavík?
Ăžorvaldur 2004
hildur og steinn 2007
elĂsabet 2005
sveinbjรถrn 2005
davíð 2005
Elma, sunna, almar og viรฐar 2006
Sveinn 2005
Einu sinni var prestur með fermingarfræðslu fyrir fötluð börn. Sum barnanna voru mikið fötluð með takmarkaða tjáningu og gátu ekki stjórnað hreyfingum sínum. Af því að tjáskiptin voru lítil, þá var prestinum erfitt um vik að sinna formlegri fermingarfræðslu. Hún brá þá á það ráð að taka börnin úr hjólastólunum og leggja þau á gólfið. Síðan lagðist hún sjálf á gólfið hjá þeim og sagði: „Horfðu í augun á mér og ef þú horfir nógu vel þá sérðu hið góða. Ég sé hið góða í þínum augum.“
Guðríður 2007
Það datt lítil stúlka út um glugga á þriðju hæð í húsinu, hún var víst á þriðja ári. Hið heppilega var að einhver hafði lagt bílnum sínum ólöglega upp á gagnstétt og hún féll á mjúkt húddið og henni varð ekki meint af.
Harpa 2006
Valborg, Guรฐmundur, Hallbera og Brynja 2005
Maria, Cymbaline og Frodo 2007
Þegar hann var ný farinn að fara út týndist hann einu sinni í tvo sólarhringa en fannst síðan nær dauða en lífi í kjallatröppum í Hlíðunum. Eftir það hefur hann aldrei hætt sér langt frá heimili sínu.
davíð, ástríður, hanna og tígri 2007
hún er með lagið á heilanum.
Steinunn, Einar Karl og Gr贸 2004
Jón, Júnía Lín, Laufey Lín og Wei Lín 2005
ásgerður, kári, maría og harpa 2010
Hún mælir með líbönskum kvenrithöfundi en ekki með rithöfundi sem kallar sig DCB ... “Hún er reyndar sjálf alveg hætt að lesa skáldsögur, en vonadni bara tímabundið”
Friรฐrik 2010
halld贸ra 2006
arnlaug 2010
sara 2006
ARI
2007
„Sonur minn býr í Grindavík, hann er með aukalykil. Það er alveg óþarfi að ná í hann. Börnin verða alveg snarvitlaus ef þau frétta að ég hafi læst mig úti.“ Hún hafði farið út án þess að taka með sér húslyklana og skammaði sjálfa sig og uppnefndi fyrir þetta ódæði. Hún þyrfti að ná tali af lögreglunni.
MargrĂŠt 2005
BJÖRG ELÍN 2007
UNGUR MAÐUR 2006
Töffi, Clinton, guðrún soffía og Ingvar 2005
BJÖRGVIN 2006
Hún reykir ekki, drekkur hvorki áfengi né kaffi en hún er kókisti.Vaknar á nóttunni og fær sér kóksopa. Hún horfir á sjónvarp og einu sinni átti hún þrjú sjónvörp.
Kar贸l铆na, Heimir og Gu冒j贸n 2006
hrappur og j贸d铆s 2006
Valtýr og Helga 2006
trompetleikarinn
StefĂĄn, Ăžorsteinn og mikki 2005
Hvar er tréð? Ég er að leita að tré sem var hérna, ég held að það hafi örugglega verið hér við götuna. Þetta var einstaklega glæsilegt tré. Einu sinni voru svo fá tré í Reykjavík að við sigldum norður þegar fréttist af trjánum í Vaglaskógi.
Ragnar 2006
Hún datt einu sinni í höfnina milli skips og bryggju og henni var naumlega bjargað. Maðurinn sem bjargaði henni dó stuttu síðar. Hún ákvað þá að venda sínu kvæði í kross og stofnaði gistiheimili.
Katla 2006
Úlfur er mjög ómannblendinn og honum er illa við börn. Hann er stór og mikill og það mætti ætla að hann væri mjög hugaður köttur, en hann er alveg kjarklaus og þegar hann heldur að hann sé í hættu t.d. þegar kviknar á ryksugunni þá annaðhvort hleypur hann út eða undir rúm og treður sér undir fóðrið þar.
Gerรฐur 2005
Teresa og Mariusz 2005
Magnús þór 2006
Einar, kristín, katrín og guðrún 2005
Ingibjörg og úlfur 2006
Rétt aðeins að tilla mér áður en ég held svo áfram.
テ《a
2006
j贸hannes og el铆sabet 2005
j贸n ingi og hr枚nn 2006
Litli gl贸kollur.
þórir og þorsteinn 2007
S贸ley s贸lu fegri.
Sóley, hlynur, kári, þorsteinn, sölvi og Elísabet 2007
Hér hljóðnaði allt eftir hrun góðu heilli.
guðfinna og álfheiður hjá sálfræðistöðinni 2012
Sumum finnst öldrunarhjúkrun eitthvað svo dapurlegt starf, að vera svona nálægt dauðanum, en þeir geta þá lært fæðingarhjúkrun.
diljรก, stefรกn og moli 2006
pétur, ágústa, margrét, jóhann og ólöf 2006