Skip to main content

Starf Aftureldingar 2021-2022

Page 1

UNGMENNAFÉLAGIÐ

AFTURELDING Tímatöflur má finna á heimasíðunni

www.afturelding.is


BADMINTON

SVARTI RIDDARINN SMELLTU TIL AÐ HORFA

ER ÖFLUGASTA OG FLOTTASTA BADMINTONVÉLMENNI Í HEIMINUM OG AÐ SJÁLFSÖGÐU NOTUM VIÐ ÞAÐ Á ÆFINGUM

STURLU Ð SAÐRE Y N D Badmi n SMELLTU TIL AÐ HORFA

to n e r næst vinsæl asta íþ ró t t í heimi

STURLUÐ SAÐREYND Bestu b a d m i nto n kúlurnar eru búnar til með gæsafjöðr um úr vins tri væ n g g æ s arinnar

G O U D M KO Í Ð E M U T VER ON!

T N I M D BA

Skráðu þig á námskeið hjá badmintondeildinni með því að smella á táknið


H A NBDLBAOKL T I

KOMDU Í

BLAK

FRAMKVÆMD UPPGJAFAR Knötturinn skal sleginn með annarri hendi eða hvaða hluta handleggsins sem er eftir að honum hefur verið kastað upp eða sleppt úr hendi (höndum).

SMELLTU Á QR KÓÐANN

Smelltu á táknin til að hoppa inn á síður blakdeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá blakdeildinni með því að smella á táknið


H A NBDLBAOKL T I

ÞJÁLFARI BLAKDEILDAR ANTON ÞJÁLFAR ÞAU YNGSTU ANTON BRAGI JÓNSSON U-8 ( 1. og 2. bekkur) U-10 (3. og 4. bekkur) Anton Bragi kemur frá mecca blaksins Neskaupsstað. Hann hefur góða reynslu af þjálfun yngri flokka þar. Hann mun þjálfa U-8 og U-10 að Lágafelli og hlakkar til að hitta skemmtilega krakka þar. U- 8 ( 1. og 2. bekkur) – æfir að Lágafelli – tvær æfingar á viku U-10 (3. og 4. bekkur) – æfir að Lágafelli – tvær æfingar á viku

Frítt að prufa að æfa til 15. október. Blak er skemmtileg og spennandi íþrótt. Blakarar hoppa að meðaltali 300 sinnum í leik. Blak er íþrótt sem hentar vel þeim sem ekki sækja í bein líkamlega snertingu.


FIMLEIKAR

Allir frá aldrinum 2-99 ára geta komið í fimleika hjá okkur svo aldrei of seint að byrja. Þeir sem æfa fimleika verða sterkari, hugrakkari og læra vel á líkamann sinn. Það finnst öllum gaman að hoppa aðeins hærra og komast aðeins lengra !!

STURLUÐ SAÐREYND Fimleikar eru ein af fyrstu íþróttagreinunum sem voru samþykktar á Ólympíuleikana

FIML EIKA R ERU FYRI R

ALLA

Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður fimleikadeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá fimleikadeildinni með því að smella á táknið


FRJÁLSAR Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður frjálsíþróttadeildarinnar KOMDU Í FRJÁLSAR! Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu býður frjálsíþróttadeild Aftureldingar áhugasömum krökkum að koma að prófa að æfa frjálsar. Frítt fram í miðjan október! Æfingar fara fram í sal 3 í íþróttamiðstöðinni að Varmá.

Frábær félagsskapur í góðu umhverfi. Íþrótt þar sem allir geta notið sín og fundið grein við sitt hæfi. Fjölmörg skemmtileg mót bæði vetur og sumur sem allir geta tekið þátt í. Hvetjum alla til að koma og prófa að æfa með okkur í 2 vikur án endurgjalds.

Yfirþjálfari: Birna Varðardóttir

Æfingatímar: 6-10 ára Mánudagar kl.15:30-16:30 Miðvikudagar kl.15:30-16:30 Föstudagar kl.15:00-16:00 11-14 ára Mánudagar kl.16:30-17:30 Miðvikudagar kl.16:30-17:30 Föstudagar kl.16:00-17:00

Skráðu þig á námskeið hjá frjálsíþróttadeildinni með því að smella á táknið


HHAANNDDBBOOLLTTI I styrkt mjög vel að mér finnst, og í þeim stöðum sem okkar vantaði hvað mest reynslu­mikla og sterka leikmenn, það hefur verið gert vel og því hef ég fulla trú á okkur í ár. Er ekki tilhlökkun að spila á móti öllum þessum stórstjörnum sem eru í frönsku deildinni? Það er auðvitað mjög spennandi að fá að spila við marga af bestu leikmönnum heims, til þess er maður í þessu. Það er lang­ skemmtilegast að mæla sig við þá bestu. Það er spennandi tímabil framundan hjá Mosfellingnum Elvari Ásgeirssyni atvinnumanni í handbolta. Hann leikur með Nancy í frönsku úrvalsdeildinni í vetur. Hann skipti yfir í Nancy í janúar á þessu ári eftir að hafa leikið í eitt og hálft ár með TVB 1898 Stuttgart í Þýskalandi. Elvar átti stóran þátt í því að lið hans vann sér inn sæti í einni af sterkustu deild Evrópu. Elvar mun því spila á móti heimsklassa leikmönnum nánast í hverri viku og verður spennandi að fylgjast með honum í vetur. Elvar var valinn í íslenska A-landsliðið í vor en komst því miður ekki í það verkefni vegna veikinda. Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta? Ég byrjaði að æfa handbolta þegar ég var 6 ára.

hafði alltaf hugsað þetta þegar ég var yngri en um 15 ára aldurinn setti ég það sem aðalmarkmiðið.

Af hverju byrjaðir þú að æfa handbolta? Ég man það nú ekki alveg, pabbi minn var að þjálfa mikið og er mikill handboltaáhugamaður, ætli það hafi ég verið ein af ástæðunum allavega.

Hvernig leggst tímabilið í þig? Komandi tímabil leggst mjög vel í mig. Éég er gríðarlega spenntur að fá að spila í svona sterkri deild þar sem mér er ætlað stórt hlutverk með liðinu mínu.

Hvað varst gamall þegar þú settir þér markmið að verða atvinnumaður? Ég var 15 ára þegar ég setti mér fyrst alvöru markmið um að verða atvinnumaður. Ég

Nú fóruð þið upp í fyrra ertu bjartsýnn á að þið náið að halda sæti ykkar í deildinni? Ég er bjarstýnn um það já. Liðið hefur verið

Hvernig líst þér á Aftureldingaliðið í vetur? Mér lýst rosalega vel á hópinn hjá Aftureldingu í ár, meiðsli sem hafa elt okkur í nokkur ár verða ekki fleiri!! Og með alla heila er þetta vel samansettur hópur með fullt af góðum leikmönnum. Ég held þetta verði flottur vetur fyrir Aftureldingu.

Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður handknattleiksdeildarinnar

Heldur þú að Afturelding eigi eftir að eignast fleirri leikmenn í sterkustu deildum Evrópu á næstunni? Það held ég að sé alveg klárt, ég hef heyrt og séð sjálfur að það er mikið af efnilegum krökkum í yngri flokkunum núna og ég hef fulla trú á að þeir sem ætla sér langt geri það. Hvaða ráð hefur þú til þeirra sem ætla sér að verða atvinnumenn og spila í sterkustu deildum Evrópu? Það sem ég mundi mæla með er að reyna að hegða sér eins og atvinnumaður/ íþróttamaður utan æfinga. Sá tími sem maður er ekki inní sal sem er kannski ekki nema 90 mínútur á dag skiptir sköpum. Svefn, matarræði og andleg heilsa/þjálfun skiptir rosalega miklu máli. Taka það föstum tökum!

Skráðu þig á námskeið hjá handknattleiksdeildinni með því að smella á táknið


HHAANNDDBBOOLLTTI I

Skráðu þig á námskeið hjá handknattleiksdeildinni með því að smella á táknið

VIÐ HVETJUM SÉRSTAKLEGA STELPUR TIL AÐ KÍKJA Á HANDBOLTAÆFINGAR Komdu í handbolta – Við viljum sjá nýja iðkendur á handboltavellinum. *Áhugasamar stelpur geta komið og prófað frítt út október. *á við um nýja iðkendur

Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður handknattleiksdeildarinnar


HJÓLREIÐAR

LANGAR ÞIG

AÐ KYNNAST MOSFELLSBÆ OG NÁGRENNI Á REIÐHJÓLI Í SKEMMTILEGUM FÉLAGSSKAP? Hjóla í fallegri náttúru Mosfellsbæjar á fjallahjóli? Eða eru götuhjólreiðar eitthvað fyrir þig? Langar þig að læra að hjóla í hóp á götuhjóli? Kynntu þér starf Hjóladeildar Aftureldingar.

KOM D

U AÐ

HJÓL

A

Smelltu á táknin til að hjóla inn a síður hjóladeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá hjóladeildinni með því að smella á táknið


K A R AT E Á hverri æfingu eru gerðar æfingar og oftast er talið upp á tíu þegar verið er að gera spörk og kýlingar. Þá er talið á japönsku:

SMELLTU TIL AÐ HORFA

Karate er upprunnið frá Kína og Japan. Karate er japanska og þýðir „tóm hönd“ (kara = tóm, te=hönd). Karate þróaðist því það var bannað að nota vopn í Japan, bara samuræjar máttu nota vopn en þeir voru stríðsmenn keisarans. Karate er náskylt kung fu, það er einn bardagi í karate þar sem „hvíta tranan“ (White Crane) er notuð, alveg eins og í kung fu Panda. Í karate er mikið notuð japanska. Í karate eru allir í hvítum galla með belti. Gallinn heitir „gi“ og þýðir búningur. Beltið heitir „obi“ og þýðir belti. Æfingasalurinn heitir „dojo“, þjálfarinn er kallaður „sensei“ og aðstoðar­ þjálfarar „sempai“.

Á hverri æfingu eru gerðar grunn­ æfingar – þær heita kihon. Allir verða að læra kihon vel, því þegar maður kann það þá er hægt að byrja að æfa kata og kumite. Í kata er verið að gera bardaga við ímyndaðan andstæðing, þá er ýmist 1 eða 3 saman. Í kumite þá er bardagi á milli tveggja aðila og maður á að verjast, og reyna að skora stig. Hægt er að skora 1 (yuko), 2 (wazaari) eða 3 (ippon) stig allt eftir því

一 二 三 四 五 六 七 八 九 十

ichi, einn ni, tveir san, þrír shi (yon), fjórir go, fimm roku, sex shichi, sjö hachi, átta kyuu, níu juu, tíu

hvar höggið eða sparkið lendir. Maður verður að skora stigin rétt því annars fær maður refsingu og getur verið dæmdur úr leik. Allir sem æfa kumite nota hlífðarbúnað. Þegar maður er að byrja í karate þá byrjar maður með hvítt belti. Sá sem mætir vel á æfingar fær að taka próf og ef hann kann allt sem á að gera þá fær hann nýtt belti, eða rendur á gamla beltið sitt. Ef maður heldur lengi áfram og æfir vel þá vinnur maður sé inn svarta beltið. Byrjað var að æfa karate hjá Aftureldingu 1997. Á þeim tíma hafa margir náð svarta beltinu, og einnig hefur deildin unnið marga titla. Til dæmis Íslandsmeistara­ titla, Grand-prix meistaratitla og Reykjavíkurmeistara­ titla. Þeir sem vilja keppa æfa með afrekshóp, og þeir geta líka reynt að komast í landsliðið í karate, bæði í unglinga og fullorðinsliðið. Í dag eru tveir iðkendur í landsliðinu í kata, og einn í unglingalandsliðinu og fleiri eru að æfa vel til að komast í það.

Smelltu á táknin til að hoppa inn á síður karatedeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá karatedeildinni með því að smella á táknið


K N AT T S P Y R N A AXEL ÓSKAR, LEIKMAÐUR RIGA FC

STELPURNAR SPILA Í PEPSI MAX Á NÆSTA ÁRI

Fótbolti var mín fyrsta gjöf frá foreldrum mínum sem barn og hef ég elskað síðan. Skemmtilegasta sport sem völ er á og eitthvað sem ég mun gera alla mína ævi. Það sem heldur mér gangandi er að það er alltaf hægt að bæta sig og því meira sem maður leggur á sig því lengra kemst maður.

GUÐRÚN ELÍSABET BJÖRGVINSDÓTTIR MARKADROTTING LENGJUDEILDAR 2021 MEÐ 23 MAÖRK

SMELLTU TIL AÐ HORFA

Af hverju fótbolti? Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fótbolta bæði að spila fótbolta og að horfa á fótbolta. Ég valdi fótbolta aðallega vegna þess að þetta er mikil liðsíþrótt, það er ekkert skemmtilegra en að spila með stelpum og liði sem þú dýrkar. Það er líka bara svo ótrúlega gaman að spila fótbolta, mikil útrás og svo er svo geggjuð tilfinning þegar maður nær árangri og markmiðunum sínum. Að mæta á æfingar og í leiki er það skemmtilegasta við daginn minn, hitta vinkonur mínar og fá að spila fótbolta.

Og ég ætla alla leið. SMELLTU TIL AÐ HORFA

Smelltu á táknin til að hoppa inn á síður knattspyrnudeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá knattspyrnudeildinni með því að smella á táknið


K Ö R F U B O LT I

STELPUÆFINGAR

KÖRFUBOLTAFJÖR Í 1-2. BEKK Æfingar 2x í viku þriðjudögum og föstudögum, Hlökkum afskaplega til þess að taka á móti fjörugum krökkum sem vilja vera með í körfunni í vetur.

Körfuboltadeldin hefur verið mjög vaxandi deild og sérstaklega tókst vel til í fyrra að fjölga stelpuhópunum okkar. Hátt í 30 stelpur samtals eru nú að æfa í félaginu og við viljum endilega bæta við okkur fleirum. Allir krakkar velkomnir að prófa körfubolta hjá Aftureldingu. Við bjóðum upp á æfingar fyrir stúlkur frá 1. bekk uppí 10. bekk. 1 – 5. bekkur æfa í blönduðum hópum. 6.-10. bekkur er skipt í stúlkuog drengja hópa.

Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður körfuknattleiksdeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá körfuknattleiksdeildarinnar með því að smella á táknið


Frístundaávísun Mosfellsbær styrkir eins og fyrri ár frístundaiðkun allra barna og unglinga á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, með fjárframlagi á móti kostnaði við frístundaiðkun sem varir í 10 vikur eða lengur. Markmið þessarar niðurgreiðslu er að hvetja börn og unglinga til að finna sér frístund sem hentar hverjum og einum.

Frístundatímabil nær yfir skólaár og hefst 15. ágúst ár hvert til 31. maí árið eftir. Allar nánari upplýsingar á www.mos.is VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja

Cei\[bbiX³h

Cei


SUND

Elskar barnið þitt að vera í vatni?? Komdu þá með barnið þitt á sundæfingar til okkar. Á sundæfingum leggjum við áherslu á einstaklingsmiðaða þjálfun í góðra vina hópi. Við bjóðum upp á æfingar frá 4 ára aldri (2018) allt upp í 25 ára aldurs (1997).

STURLUÐ SAÐREYND Fyrstu sundgleraugu voru unnin úr skjaldbökuskeljum

Frekari upplýsingar fást hjá sunddeildinni

sund@afturelding.is Smelltu á táknin til að stinga þér inn a síður sunddeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá sunddeildinni með því að smella á táknið


jakosport.is


TA E K WO N D O

VELKOMIN Í TAEKWONDO Taekwondo er frábær íþrótt fyrir alla. Haustönn hefst mánudaginn 23. ágúst 2021

Taekwondo er Ólympísk bardagaíþrótt sem er jafnt fyrir þá sem vilja keppa á fullu, læra sjálfsvörn og þá sem æfa til þess að komast í betra form.

HÆ GT A KOM Ð AO PRÓ FA F G RÍTT Í

2 vi

kur

Agi Sjálfstraust Sjálfsvörn Þrek Liðleiki Samhæfing Góður félagsskapur Frábærir þjálfarar Krílatími á laugardögum fyrir 3-5 ára byrjar 18. septermber. Frábær skemmtun sem blandar saman leikjum, einföldum æfingum og undirstöðuatriðum. TKD fitness fyrir 18 ára og eldri, byrjar 31.ágúst, 10.000,- fyrir önn. TKD fitness eru styrktar og brennsluæfingar þar sem notuð er bardagatækni og eigin líkamsþyngd. Ekki þörf á þekkingu á taekwondo til að mæta í TKD fitness.

DEILDIN Taekwondo deild Aftureldingar hefur stækkað jafnt og þétt síðustu ár. Það er frábær hópur af iðkendum, þjálfurum og foreldrum sem halda starfinu lifandi og skemmtilegu. Það er hægt að byrja að æfa Taekwondo hvenær sem er.


TA E K WO N D O ÞJÁLFARAR Við erum stolt af þjálfurum okkar, þau hafa öll mikinn metnað og leggja sig fram við starfið. Þjálfarar okkur sækja skyndihjálparnámskeið á vegum Aftureldingar sem er haldið á hverju ári. Þá hafa allir sem hafa aldur til sótt þjálfaranámskeið hjá ÍSÍ. Til að undirbúa þjálfara betur fyrir veturinn hafa þeir farið á teygjunámskeið á vegum Primal Iceland, sem er mjög góður grunnur fyrir æfingar.

KRÖFUR Í Taekwondo er beltakerfi og kröfur til iðkenda eru eftir því hvar þau eru stödd. Í lok haust- og vorannar eru beltapróf og geta iðkendur ef þau eru tilbúin tekið próf og fengið næsta belti.

HÓPEFLI Þó Taekwondo sé einstaklings íþrótt þá eru allir að æfa saman og hefur góður félagsskapur haldið mörgum við efnið. Deildin hefur gert ýmislegt utan æfingarsalarins til að efla hópinn og ná þeim betur saman. Það hafa verið pizzakvöld, farið í keilu og lasertag, salurinn lagður undir nerfbyssustríð. Hópefli er stór þáttur í starfinu.

Smelltu á táknin til að hoppa inn a síður taekwondodeildarinnar

Skráðu þig á námskeið hjá taekwondodeildinni með því að smella á táknið


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Starf Aftureldingar 2021-2022 by afturelding - Issuu