JÓLIN KOMA! Jólaundirbúningurinn er í algleymingi um þessar mundir og mikið um að vera í verslunum bæði hjá viðskiptavinum og verslunarfólki. VR blaðið kíkti í Kringluna og hitti þar fyrir félagsfólk sem stendur vaktina í verslunum í jólaösinni, grímuklætt samkvæmt núgildandi sóttvarnarreglum.
ÖGMUNDUR KÁRASON
ÓLAFUR DOFRI GUÐVARÐARSON
Vinnustaður: Gamestöðin
Vinnustaður: Penninn Eymundsson
Hvernig leggst jólatörnin í þig?
Hvernig leggst jólatörnin í þig?
Bara vel.
Bara vel, þetta hefur farið mjög vel á stað. Ég er öllu vanur hér.
Hvað ætlarðu að gera um jólin? Ekki hugmynd. Fjölskyldan er öll að fara til útlanda en ekki ég! Smá „Home alone“ fílingur í þessu hjá mér. Ég hitti nú samt örugglega kærustuna eitthvað.
Hver er uppáhaldsjólahefðin þín? Það var alltaf hefð hjá fjölskyldunni að labba niður Laugaveginn á Þorláksmessu en síðan ég varð 18 ára þá hef ég alltaf verið að vinna hérna í Kringlunni. Ætli það sé ekki bara nýja hefðin að vera í stemmningunni hér á Þorláksmessu. Það er tvennt sem getur gerst, þú kemst annað hvort í meira jólaskap eða minna jólaskap! 28 VR BLAÐIÐ 04 2021
Hvað ætlarðu að gera um jólin? Ég verð heima með fjölskyldunni á aðfangadag og svo höfum við vanalega farið til ömmu og afa á jóladag. En það er spurning með jólakúluna, hvort við fjölskyldan skiptum okkur eitthvað upp, það er ekki alveg ákveðið.
Hver er uppáhaldsjólahefðin þín? Það er bara allt sem fylgir þessu, jólamaturinn og svo er líka gaman á annan í jólum þegar það eru bara rólegheit og svona.