ATVINNUMÁL
Nathalía Druzin Halldórsdóttir verkefnastjóri Atvinnumála og ráðgjafi hjá VR hefur fjölbreytta reynslu af atvinnuráðgjöf og markaðsmálum, auk þess sem hún hefur starfað sem klassísk söngkona og staðið á sviði um árabil. Hún starfaði áður við ráðningar hjá IMG-Gallup, var annar stofnanda ráðningarfyrirtækisins Ráðum, starfaði sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í atvinnumálum og sem markaðs- og verkefnastjóri Íslensku óperunnar. Atvinnuleit getur verið mjög krefjandi tímabil í lífi fólks og til þess að auðvelda ferlið og vonandi gera það áhrifaríkara, er boðið upp á fjölbreytta og nytsamlega þjónustu til þeirra sem vilja fá ráð, aðstoð, hvatningu og þjálfun. Það er nú svo að þegar kemur að því að þurfa að setjast niður, íhuga næstu skref og hefjast handa við að sækja um störf, láta vita af sér, skipta jafnvel um vettvang, stofna fyrirtæki eða vinna verkefni á eigin spýtur, er dýrmætt að geta leitað til fagaðila sem geta komið með þarfar ábendingar og leitt fólk á réttar slóðir. Það eru gríðarlega krefjandi tímar framundan í atvinnumálum og ljóst að atvinnuleysi fer vaxandi. Það er samt svo að störf eru áfram auglýst og eins er verið að ráða í störf hjá fyrirtækjum án þess að það sé sérstaklega auglýst en vissulega er samkeppin um hvert starf harðari. Einstaklingur sem er tímabundið án hefðbundinnar atvinnu hefur þar af leiðandi tíma til þess að einbeita sér að ýmsum styrkjandi verkefnum sem lúta að því að byggja sig upp andlega, líkamlega og ekki síst faglega. Á okkar tímum er feykilegt úrval af námskeiðum bæði hérlendis sem og erlendis sem eru mjög aðgengileg og þeir sem nýta sér þau markvisst verða betur í stakk búnir til þess að takast á við ný verkefni. Mörg þessara námskeiða eru aðgengileg án sérstaks gjalds, en einnig er hægt að kaupa aðgang að námskeiðum og þjálfun. Það er um að gera að nýta þann tíma sem einstaklingur er án atvinnu til uppbyggilegra athafna og sjálfstyrkingar, þannig er líklegra að eftirleikurinn verði ánægjulegri og auðveldari.
ATVINNURÁÐGJÖF VR
BETUR SJÁ AUGU EN AUGA Frá haustinu 2020 býður VR félagsmönnum sínum upp á ráðgefandi þjónustu í atvinnuleit og undirbúningi sem henni fylgir.
Það eru því ýmis bjargráð sem hægt er að nýta sér í atvinnuleit og aðaláskorunin er að gefast ekki upp og leita allra leið til þess að finna sér farveg og sjá sér farborða. Stundum þarf að hugsa hlutina upp á nýtt og jafnvel að horfa á nýjar starfsgreinar tímabundið eða jafnvel til frambúðar. VR mun bjóða félagsmönnum einstaklingsbundna ráðgjöf í formi viðtala, þjálfunar og endurgjafar. Einnig verður á boðstólum spennandi úrval af námskeiðum og fyrirlestrum sem vegna Covidástandsins eru eingöngu á rafrænu formi í ár. Við hvetjum félagsmenn til þess að nýta sér það sem í boði er og hafa samband við okkur með sín mál. Það er nú svo að betur sjá augu en auga og oft þarf ekki mikið til að umsóknarferli einstaklings verði ánægjulegra og áhrifaríkara eftir að hafa fengið ráðgjöf og í kjölfarið breytt eða bætt aðferðir eða gögn í atvinnuleitinni. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að koma að þessum málaflokki hjá VR og vera í samskiptum við félagsmennina sem hingað hafa leitað. Við höldum ótrauð áfram og tökum vel á móti þeim félagsmönnum sem til okkar leita.
22 VR BLAÐIÐ 04 2020