TRÚNAÐARMENN
Ég hef lært mikið á þessum stutta tíma sem ég hef verið trúnaðarmaður. Ég get miðlað upplýsingum um kjaramál, réttindi og mál tengd VR. Ég fæ auðvitað reglulega spurningar sem ég get ekki svarað strax.
TRÚNAÐARMAÐURINN
KATRÍN RÓBERTSDÓTTIR Aldur: 25 Vinnustaður: IKEA
Hvað hefurðu unnið lengi hjá þínu fyrirtæki? Ég byrjaði í hlutastarfi hjá IKEA árið 2015 og hef síðan fært mig í fullt starf.
Hversu lengi hefurðu verið trúnaðarmaður? Ég hef verið trúnaðarmaður síðan í ágúst 2019.
Hvernig fræðslu hefurðu sótt þér sem trúnaðarmaður? Ég fór á flest öll námskeið sem VR bauð upp á fyrir trúnaðarmenn strax eftir að ég var kjörin. Það var mjög gott að fá að vera í hópi með öðrum trúnaðarmönnum, heyra hvaða spurningar þau höfðu og taka þátt í umræðum. Fór einnig á flotta kynningu þegar VR var að kynna styttingu vinnuvikunnar. Ég stefni á að fara á námskeiðið „Sjóðir og þjónusta“ fyrir trúnaðarmenn hjá VR þar sem ég hef ekki komist síðustu tvö skipti og ég er spennt að fá frekari upplýsingar og geta miðlað þeim áfram til samstarfsfélaga minna. 32 VR BLAÐIÐ 01 2021
Finnst þér þú hafa lært eitthvað af því að vera trúnaðarmaður? Ég hef lært mikið á þessum stutta tíma sem ég hef verið trúnaðarmaður. Ég get miðlað upplýsingum um kjaramál, réttindi og mál tengd VR. Ég fæ auðvitað reglulega spurningar sem ég get ekki svarað strax og held ég læri mest af því að finna svörin við þeim. Ég vissi líka ekki hversu auðvelt væri að hafa samband við VR og hversu fljót þau eru að svara spurningum sem ég hef fengið.
Hvernig hefur Covid-19 veiran haft áhrif á starf þitt? Covid-19 hefur haft mikil áhrif á starfsemi IKEA eins og flest fyrirtæki á Íslandi. Við höfum núna tvívegis þurft að loka versluninni og afgreiða allar pantanir sjálf. Það er fólk á öllum aldri að vinna í IKEA og ég er ánægð að við vorum með lokað á meðan Covid-19 var sem verst á Íslandi. Það er rosaleg keyrsla og álag að finna til og afgreiða allar þessar pantanir í svona stórri búð sem er hugsuð sem sjálfsafgreiðsluverslun en þetta var líka gott í reynslubankann. Seinna skiptið sem við lokuðum núna í haust gekk betur, en við lærðum hvað virkaði vel og nýttum okkur þá reynslu. Þetta gekk allt mjög vel fyrir sig og samvinnan áberandi mikil á þessum tímum þegar virkilega reynir á. Ég held samt að bæði starfsmenn og viðskiptavinir séu ánægðir að búðin sé opin núna.