KOSNINGAR 2021 – FRAMBJÓÐANDI TIL FORMANNS
Helga Guðrún Jónasdóttir Fæðingardagur og ár 06. desember 1963 Félagssvæði Reykjavík og nágrenni Netfang postur@helgagudrun.com
ýmsum nefndum og ráðum hjá Kópavogsbæ, þar á meðal í félagsmálaráði, lista- og menningarráði og jafnréttisnefnd. Ég hef starfað í markaðs- og kynningarmálum undanfarin 30 ár ýmist sem upplýsingafulltrúi, ráðgjafi, kynningarstjóri eða samskiptastjóri.
HELSTU ÁHERSLUR
Vefsíða helgagudrun.com/formannsblogg
Ég vil efla VR og setja nýjan kraft í kjarabaráttuna. Ég vil að kjarabarátta okkar skili kaupmáttaraukningu og raunverulegum kjarabótum.
Facebook Helga Guðrún í formann VR
Ég vil skilja á milli stjórnmálastarfs og VR. Flokkapólitík á heima á Alþingi.
VINNUSTAÐUR, STARFSHEITI OG MENNTUN
Ég vil breikka umræðuna um lægstu laun og tengja neðstu launaþrep við lágmarksframfærslukostnað. Allir eiga að geta lifað á launum sínum.
Ég er um þessar mundir nemandi í vefmiðlun við Háskóla Íslands og hef samhliða náminu sinnt ýmsum hlutastörfum í afgreiðslu og þjónustu hjá Lyfju hf. Ég er stjórnmála- og fjölmiðlafræðingur að mennt.
REYNSLA AF FÉLAGSSTÖRFUM OG ÖNNUR STARFSREYNSLA Ég er svo heppin að hafa fengið mörg skemmtileg tækifæri á vettvangi félagsmála. Svo að stiklað sé á því helsta, þá hef ég verið formaður Kvenréttindafélags Íslands og Landssambands sjálfstæðiskvenna, varaformaður Almannatengslafélags Íslands og stjórnarmaður m.a. í Samtökum auglýsenda og Landvernd. Ég hef átt sæti í 18 VR BLAÐIÐ 01 2021
Ég vil að við festum norræna kjarasamningalíkanið betur í sessi, undirstöðu norræna velferðarkerfisins. Ég vil að við öxlum ábyrgð í loftslagsmálum. Okkur ber skylda til að skjóta sjálfbærum stoðum undir efnahags- og atvinnulíf landsmanna. Ég vil að VR standi vörð um það góða orðspor sem þetta frábæra 130 ára stéttarfélag býr að. Ég vil að VR verði áfram stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins með breiðan hóp launafólks innanborðs. VR á að vera í þágu allra VR-félaga.