42 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
Selfie frá sumarfríi á Spáni 2019. Á myndinni eru f.v.: Sigrún, Rhys Ragnar, Sædís Rhea og Paul.
„Allt í lífinu hefur breyst á síðustu sex vikum“ – Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths veiktist alvarlega af COVID-19 í London. Hún hefur náð sér af sjúkdómnum og hlakkar til að takast á við fjölbreytt verkefni sem eiga það þó öll sameiginlegt að hafa frestast vegna heimsfaraldursins. Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths býr í Sydenham, Suð-austur London, með manninum sínum, Paul Griffiths, og börnunum þeirra tveimur, Sædísi Rheu, tólf ára, og Rhys Ragnari, sextán ára. Sigrún flutti til London 1997 til þess að stunda tónlistarnám við Guildhall School of Music and Drama. Hún endaði svo á því að giftast kennaranum sínum og taka við rekstri kúrsins sem hún lærði við.
Norbusang kórinn í Norðurljósasal Hörpu í maí 2018: „600 manna barna og unglingakór í þann mund að fara að flytja verk sem við sömdum í sameiningu á þremur dögum.“
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.
Sigrún og Paul veiktust bæði alvarlega af COVID-19 fyrir um sex vikum síðan. Sigrún var flutt með sjúkrabíl undir læknishendur eftir að hún hætti að anda en hresstist fljótt aftur. Hún var þó ekki lögð inn á sjúkrahús. Daginn eftir var hún aftur flutt með sjúkrabíl og þá var hún komin með vatn í lungu vegna sjúkdómsins. Hún segir að ástandið hafi verið tæpt. En aðeins um lífið í London. „Ég stýrði meistaranámi við Guildhall í tólf ár en í dag rek ég mitt eigið fyrirtæki og stýri ýmsum sjálfstæðum verkefnum sem stjórnandi og kenni við Guildhall innan tónlistardeildarinnar,“ segir Sigrún í samtali við Víkurfréttir. Hún hefur sérmenntun og yfir tuttugu ára reynslu í því að stýra skapandi tónlistarverkefnum við hinar ýmsu samfélagslegu aðstæður. „Markmiðið með verkefnunum er að veita fólki tækifæri til þess að semja saman nýja tónlist og öðlast með því lífsfyllingu, aukið sjálfstraust, tengingu við náungann og nærsamfélagið, auk þess að eiga jákvæðar, fallegar og skemmtilegar samverustundir. Því ef okkur líður vel, höfum rödd og á okkur er hlustað, eru mun meiri líkur á því að við finnum tilgang í lífinu, orku til þess að takast á við erfiðleika og tökum jákvæðari ákvarðanir,“ segir hún.