Skip to main content

Grafarvogsbladid 12.tbl 2008

Page 29

Jólagjafir sem alla veiðimenn dreymir um

Jólapakki frá Shakespeare fyrir fluguveiðimanninn, eiginkonuna eða unglinginn á einstöku tilboði - stöng, hjól og lína á aðeins 19.990,-

Hágæða þýsk taska undir fluguhjól og flugubox eða annað dót sem fylgir hverjum fluguveiðimanni. Hér er komin alvöru taska sem framleidd er í Þýskalandi. Taskan er djúp og tekur því mjög mikið af dóti, bæði hjólum og boxum. Þetta er hágæða vara á hreint ótrúlega góðu verði.

Aðeins 5.990,- krónur

- 7 feta Shakespeare flugustöng fyrir línu 4-5. Stöngin er aðeins 42 grömm og punds bleikja beygir stöngina upp í korkskaftið. Frábær stöng fyrir vandláta fluguveiðimenn í silungsveiði sem leggja áherslu á léttar og nettar græjur. Upplögð stöng fyrir eiginkonuna eða unglinginn sem er að stíga fyrstu skrefin í fluguveiði. Létt og meðfærileg stöng í allra fremstu röð. Einnig mjög skemmtileg stöng í laxveiði. - Shakespeare ,,grafít" fluguhjól með diskabremsu og aukaspólu. Fislétt hjól sem gerir ekkert nema koma á óvart. Nýtist bæði rétthentum og örvhentum. Frábært hjól sem Shakespeare hefur framleitt í áraraðir og notið hefur mikilla vinsælda. - Flotlína númer fjögur - Shakespeare Professional 3227 - . Ein skemmtilegasta flotlínan frá Shakespeare. ,,Pastel sky" liturinn er veiðilegur og línan snarvirkar á 7 feta stönginni frá Shakespeare.

Takmarkað magn Húfugleraugu - bylting fyrir fluguveiðimenn Nú er leikur einn að skipta um flugu. ,,Húfugleraugunð’’ eru kærkomin bylting. Hvaða fluguveiðimaður sem slitið hefur barnsskónum kannast ekki við erfiðleikana við að skipta um flugu? Veiðimenn á skemmtilegri veiðislóð vilja ekki eyða alltof miklum tíma í að koma girnisendanum í gegnum augað á litlum flugum. Með ,,húfugleraugunum’’ frá Krafla.is tekur þetta aðeins nokkrar sekúndur. Veiðimenn sem séð hafa þessa nýung hjá okkur hafa verið yfir sig hrifnir. Styrkurinn í glerinu er mátulegur fyrir flesta veiðimenn. Þetta er stækkun sem nýtist nánast öllum veiðimönnum þegar skipta á um flugu, augað á flugunni og girnisendinn í góðum fókus og skiptin taka aðeins nokkrar sekúndur.

Verð aðeins kr. 4,900,-

,,Polarized’’ veiðigleraugu frá Eyelevel Gleraugunum fylgja í raun tvenn auka gleraugu, tvær aðrar ,,birtur’’, ljós og dökk. Hægt að skipta um með einu handtaki. Mjög góð gleraugu sem hægt er að fá með svartri eða silfurlitaðri umgjörð og bandi í stíl.

Þrenn gleraugu á verði fyrir ein gleraugu Verð aðeins 8.900,-

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500 / 698-2844


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsbladid 12.tbl 2008 by Skrautás Ehf. - Issuu