Tímarit Hinsegin daga 2015 / Reykjavik Pride Magazine 2015

Page 12

Gjá milli skóla og íslensks samfélags Líðan hinsegin ungmenna í framhaldsskólum á Íslandi

Jón Ingvar Kjaran hefur unnið við rannsóknir í hinsegin- og kynjafræðum samhliða kennslu við Verzlunarskóla Íslands. Þar hefur hann einkum kennt sögu og menningarfræði. Hann hefur jafnframt starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og verið reglulegur gestafyrirlesari í menningarfræðum við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Hann var enn fremur gestarannsakandi við Kynjafræðideild Humboldt-háskóla í Berlín á vormisseri 2013. Doktorsritgerð hans, „Í átt til hinsegin framhaldsskóla. Reynsla hinsegin nemenda af íslenskum framhaldsskóla í skugga gagnkynhneigðrar orðræðu og valds“, er fyrsta doktorsritgerðin sem varin er hérlendis þar sem viðfangsefnið er hinsegin reynsla og hinsegin veruleiki. Í rannsókninni tók Jón viðtöl við 14 hinsegin ungmenni sem fædd eru á tímabilinu 1987–1993 og framkvæmdi vettvangsathuganir í tveimur framhaldsskólum. Jón Kjartan Ágústsson tók viðtal við Jón Ingvar og spurði hann út í niðurstöðurnar. 12


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tímarit Hinsegin daga 2015 / Reykjavik Pride Magazine 2015 by Hinsegin dagar / Reykjavik Pride - Issuu