GIRÐINGALEIÐBEININGAR Girðingar þjóna margvíslegum tilgangi. Þær geta veitt skjól fyrir ágangi vinda, manna og dýra, eða skýlt gróðri. Girðing sem skýlir gróðri þarf að vera 0,5 til 0,9 m eða hærri, ef um er að ræða gróður sem þarf meira skjól. Þær þurfa ekki að vera alveg þéttar og má bilið á milli borða vera 10 til 90 % af breidd borðanna. Viðkvæmari plöntur þurfa þéttari girðingu.
Skjólgirðingar Mikið úrval forsmíðaðra skjólgirðinga er í boði. Mismunandi form þeirra gerir það að verkum að hver og einn getur valið sér einingar við hæfi. Einingarnar eru smíðaðar úr gagnvörðu timbri og hægt er að raða þeim saman á margvíslegan hátt sem hæfir garðinum, húsinu, pallinum eða öðru því sem þær eiga að skýla. Einnig er hægt að smíða slíkar girðingar sjálfur.
Gætið vel að vindáttinni Girðingaeiningar eru tilvaldar til að mynda skjólhorn í görðum, við trépalla, í kring um heita potta og til varnar því að börn hlaupi út á götu. Þegar staðsetja á girðingaeiningar þarf að velja hæð þeirra og útlit með notagildi í huga. Þar sem vindasamara er gæti þurft að velja hærri einingar og staðsetja þær þannig að þær gefi tilætlaðan árangur. Rangt uppsett skjólgirðing getur magnað upp vind með því að breyta vindstreng eða magna upp hvirfla. Því þarf að fylgjast vel með ríkjandi vindátt í garðinum áður en staðsetning er ákveðin og útlit veggjaeininga er valið.
Gæta skal öryggis Við smíðar á girðingu eða skjólvegg þarf að gæta að öryggi, einkum barnanna vegna. Rimlar eiga allra helst að vera lóðréttir og bil á milli þeirra ekki vera meira en 100 mm, sama á við um önnur bil í girðingu eða handriði. Þetta kemur í veg fyrir að lítil börn geti fest höfuðið á milli rimla. Lóðréttir rimlar koma í veg fyrir að börn nái að klifra upp girðinguna. Sérstaklega er varasamt að hafa lárétta rimla í handriðum eða girðingum, þar sem fallhætta er til staðar.
16