HVAÐ ER Í MATINN? Skólamaturinn minn Sigurjón kokkur
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn-Sigurjón kokkur Ljósmyndir: úr myndasafni Hjallastefnunnar Útlit: bjorgvilhjalms.is Útgefandi: Hjallastefnan Rit þetta má ekki afrita með nokkrum hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á sambærilegan hátt, að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda. Öll réttindi áskilin 2023 Hjallastefnan © Margrét Pála Ólafsdóttir
HVAÐ ER Í MATINN? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Efnisyfirlit FRÁ HÖFUNDI . . . . . . . . . . . . . . . . . 9 SÚPUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12 Tómatsúpa . . . . . . . . . . . . . . . . . 13 Ítölsk grænmetissúpa . . . . . . . . . . . 14 Blómkálssúpa . . . . . . . . . . . . . . . . 15 Kjúklingasúpa . . . . . . . . . . . . . . . 16 Íslensk kjötsúpa . . . . . . . . . . . . . . 17 Gúllassúpa . . . . . . . . . . . . . . . . . 18 Hýðisgrjónagrautur . . . . . . . . . . . . 19 KALDAR SÓSUR . . . . . . . . . . . . . . . 20 Hamborgarasósa . . . . . . . . . . . . . 21 Sinnepssósa . . . . . . . . . . . . . . . . 22 Gúrkusósa . . . . . . . . . . . . . . . . . 23 Kokteilsósa . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Tartarsósa . . . . . . . . . . . . . . . . . 25 FISKRÉTTIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26 Fiskbollur . . . . . . . . . . . . . . . . . 27 Plokkfiskur . . . . . . . . . . . . . . . . . 28 Ýsa í eggjadeigi . . . . . . . . . . . . . . 29 Steiktur fiskur í raspi . . . . . . . . . . . 30 Steiktur fiskur með karrýsósu . . . . . . 31 Ofnbökuð bleikja . . . . . . . . . . . . . 32
VEGAN RÉTTIR . . . . . . . . . . . . . . . . 33 Grænmetislasagne . . . . . . . . . . . . 34 Ofnbökuð sellerírót með mangósósu . . . 36 Fylltar paprikur . . . . . . . . . . . . . . . 37 Vegan tortillur . . . . . . . . . . . . . . . 38 KJÖTRÉTTIR . . . . . . . . . . . . . . . . . 39 Pasta Bolognese . . . . . . . . . . . . . 40 Pasta með sveppum og papriku í rjómasósu . . . . . . . . . . . . . . . . 41 Lasagne . . . . . . . . . . . . . . . . . . 42 Tortillu lasagne . . . . . . . . . . . . . . 43 Burritos . . . . . . . . . . . . . . . . . . 44 Kjúklingalæri – Tikka masala . . . . . . . 45 Kjúklingasalat . . . . . . . . . . . . . . . 46 Kalt pasta með kjúkling . . . . . . . . . . 47 Taco . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 48 Hakkabollur . . . . . . . . . . . . . . . . 49 Lamb í karrý . . . . . . . . . . . . . . . . 50 Stroganoff . . . . . . . . . . . . . . . . . . 51 Kalkúnabringur með salvíusósu . . . . . 52
BRAUÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 54 Skólabrauð . . . . . . . . . . . . . . . . . 55 Hvítlauksbrauð . . . . . . . . . . . . . . 56 Brauðbollur . . . . . . . . . . . . . . . . 57 Tómatbollur . . . . . . . . . . . . . . . . 58 Naan brauð . . . . . . . . . . . . . . . . 58 Pizzasnúðar . . . . . . . . . . . . . . . . 59 Pítubrauð . . . . . . . . . . . . . . . . . 61 Focaccia brauð . . . . . . . . . . . . . . 62 Bananabrauð . . . . . . . . . . . . . . . 63 Döðlubrauð með bönunum . . . . . . . . 64 BAKKELSI . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 65 Hjalla kókoskúlur . . . . . . . . . . . . . 66 Skúffukaka . . . . . . . . . . . . . . . . . 67 Rjómaís - grunnuppskrift . . . . . . . . . 68 Eplapæ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 69 Kanilsnúðar . . . . . . . . . . . . . . . . 70
UPPÁHALDS UPPSKRIFTIR . . . . . . . . . 71 Frönsk lauksúpa . . . . . . . . . . . . . . 72 Humarsúpa . . . . . . . . . . . . . . . . 73 Steiktur fiskur með rækjum, bönunum, vínberjum og gráðostasósa . . . . . . . . 74 Ýsugratín . . . . . . . . . . . . . . . . . . 75 Fylltar kjúklingabringur . . . . . . . . . . 76 Innbökuð nautalund . . . . . . . . . . . . 78 Andabringur með appelsínusósu . . . . . 79 Gróuterta . . . . . . . . . . . . . . . . . 80 Haframjölsterta . . . . . . . . . . . . . . 81 Ávaxtasalat með þeyttum rjóma . . . . . 82 og súkkulaði . . . . . . . . . . . . . . . . 82
8 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Frá höfundi Þann 1. október 2023 náði ég þeim áfanga að hafa starfað hjá Hjallastefnunni í fimmtán ár. Í tilefni þeirra tímamóta ákvað ég að tína til þær uppskriftir sem ég hef eldað eftir í gegnum tíðina ásamt nokkrum uppáhalds. Ég vil tileinka bókina öllum þeim börnum sem komið hafa í eldhúsið til mín og spurt „Hvað er í matinn?“. Ég vil þakka Önnu Björk, dóttur minni, fyrir ómetanlega hjálp við gerð bókarinnar. Sigurjón Ívarsson
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 9
Kæru fjölskyldur, til hamingju með nýju matreiðslubókina ykkar Eldhús hafa tilhneigingu til þess að verða hjarta heimila, daglegur samverustaður og sameiginlegt vinnusvæði. Hjá Hjallastefnunni er rík hefð fyrir því að eldhús skóla verði slíkt hjarta og þannig hefur því svo sannarlega alltaf verið farið þar sem Sigurjón Kokkur hefur starfað. Sigurjón er svo einstaklega hlýr og alúðlegur í samskiptum sínum við börn og skólasamfélagið allt. Alltaf eru börn velkomin í eld húsið hans, hann tekur vel í allar tillögur og býður börnunum upp á það að eiga hlutdeild í sínu vinnuumhverfi Margir réttir Sigurjóns hafa fyrir löngu öðlast fastan sess í hjörtum okkar sem hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að njóta matarins sem hann lagar af ástríður og kærleika. Má þar, til að mynda, nefna hans rómuðu fiskbollur sem bornar eru fram með sinnepssósu, ýsu í eggjadegi, grænmetislasagne, burritos og skólabrauðið. Þessar upp skriftir og fjölmargar aðrar má finna í þessu hefti sem Sigurjón hefur sett saman til þess að fagna 15 ára starfsafmæli sínu hjá Hjalla stefnunni.
10 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Kunnum við Sigurjóni bestu þakkir fyrir samstarfið í gegnum árin öll og fyrir það að hafa ætíð staðið vörð um matarstaðla Hjalla stefnunnar þar sem næringarríkur og hollur matur er grunnurinn og áhersla lögð á það að vinna mat frá grunni – því þannig nýtist hann börnum best í erli dagsins. Einhvern tíma var því fleygt fram að uppskrift hefði ekki sál, það væri góð uppskrift í góðum höndum sem væri hráefni matar með sál. Það ætla ég að vona að sálin sem Sigurjón setur í matseldina skili sér í gegnum handbragð ykkar heima í eldhúsi. Bóas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 11
Súpur
TÓMATSÚPA Hráefni 1 paprika 1 laukur 2 tsk. grænmetiskraftur 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. timían 1 msk. tómatpúrra 400 g maukaðir tómatar 2 dl rjómi 7 dl vatn Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Fersk steinselja
Aðferð Grænmetið er ristað í potti upp úr ólífuolíu. Kryddunum bætt út í og látið brúnast. Tómatpúrru og maukuðum tómötum bætt út í ásamt vatni og látið malla í 20 mínútur. Því næst er rjómanum bætt út í. Súpan er svo maukuð með töfrasprota og smökkuð til með salti og pipar. Borið fram með ferskri, saxaðri steinselju, brauði og soðnu eggi.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 13
ÍTÖLSK GRÆNMETISSÚPA Hráefni 600 g ferskt grænmeti Paprika Laukur Kúrbítur Blómkál Sveppir 1 L vatn 3 tsk. grænmetiskraftur 1 tsk. hvítlauksduft 140 g tómatpúrra 400 g maukaðir tómatar 1 búnt fersk basilíka Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Grænmetið er steikt upp úr ólífuolíu og vatninu er svo bætt við ásamt kryddunum, tómatpúrru, maukuðum tómötum og basilíku. Látið malla í 30 mínútur. Súpan er maukuð með töfrasprota og smökkuð til með salti og pipar. Borið fram með heimabökuðu brauði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
14 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
BLÓMKÁLSSÚPA Hráefni 1 haus blómkál ½ púrrulaukur 1 L vatn 1 ½ msk. grænmetiskraftur 4 dl rjómi 50 g brætt smjör og 50 g hveiti blandað saman - smjörbolla Salt og pipar
Aðferð Grænmetið er saxað smátt og sett í pott ásamt vatninu og kraftinum. Látið sjóða saman í 30 mínútur. Rjómanum bætt út í og súpan þykkt með smjörbollunni. Súpan er látin sjóða áfram í 10 mínútur og krydduð til með salti og pipar. Borið fram með heimabökuðu brauði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 15
KJÚKLINGASÚPA Hráefni 350 g kjúklingabringur Kjúklingakrydd eftir smekk 1 græn paprika 1 rauð paprika 1 laukur ½ rauðlaukur ½ kúrbítur 100 g sveppir 1 L vatn 400 g maukaðir tómatar 2 msk. Heinz chilisósa 3 tsk. kjúklingakraftur 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. karrý ½ tsk. rósmarín ½ tsk timían ½ tsk hvítlauksduft 2 dl rjómi Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Kjúklingabringurnar eru kryddaðar með kjúklingakryddi og steiktar í ofni við 170°C (blástur) í 25 mínútur. Á meðan kjúklingabringurnar eldast er súpan löguð. Grænmetið er steikt upp úr ólífuolíu og látið brúnast. Þá er vatninu bætt út í ásamt maukuðum tómötum, chilisósunni og kryddi. Látið malla í 30 mínútur. Þá er rjómanum bætt út í ásamt elduðum kjúklingabringum sem eru skornar í bita. Látið malla í 5 mínútur. Súpan er smökkuð til með salti og pipar. Borið fram með brauði, rifnum osti og sýrðum rjóma.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já 16 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
ÍSLENSK KJÖTSÚPA Hráefni 300 g lambagúllas 150 g púrrulaukur 100 g gulrætur 200 g rófur 1 L vatn 1 msk. kjötkraftur 1 tsk. rósmarín 1 tsk. timían ½ tsk. estragon Salt
Aðferð Lambagúllas sett í pott ásamt smátt skornu grænmeti, vatni og kryddi. Látið sjóða við vægan hita í 70 mínútur. Á meðan súpan sýður er gott að fleyta fitunni úr lambakjötinu reglulega ofan af. Saltað eftir smekk. Borið fram með brauði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 17
GÚLLASSÚPA Hráefni 300 g smáttskorið nautagúllas 1 stk laukur ½ rauð paprika ½ græn paprika 125 g sveppir ½ kúrbítur 1 msk. paprikuduft 1 tsk. cumin 1 tsk. rósmarín 1 tsk. timían 2 tsk. kjötkraftur 1 L vatn 3 msk. tómatpúrra 150 g maukaðir tómatar 2 dl rjómi Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Nautagúllasið og grænmetið er steikt í potti upp úr ólífuolíu. Kryddunum bætt við ásamt vatni, tómatpúrru og maukuðum tómötum. Látið malla við vægan hita í 60 mínútur. Rjómanum er þá bætt út í og smakkað til með salti og pipar. Borið fram með sýrðum rjóma og brauði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
18 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
HÝÐISGRJÓNAGRAUTUR Hráefni 2 dl stutt hýðisgrjón 8 dl vatn ½ tsk. sjávarsalt 5 dl mjólk
Aðferð Hýðisgrjónin skoluð og sett yfir til suðu í vatni ásamt salti. Látin sjóða við vægan hita í 60 mínútur eða þar til grjónin eru orðin mjúk. Þá er mjólkinni bætt saman við og grauturinn látinn malla við vægan hita í 15 mínútur. Borið fram með lifrarpylsu og kanil.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 19
Kaldar sósur 20 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
HAMBORGARASÓSA Hráefni 2 msk. majónes 1 msk. sætt sinnep 1 msk. tómatsósa ½ tsk. grillkrydd 1 tsk. majoram ½ tsk. hvítlauksduft ½ tsk. svartur pipar
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 21
SINNEPSSÓSA Hráefni 2 msk. majónes 2 msk. sætt sinnep 1 msk. sýrður rjómi 1 tsk. sjávarsalt
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
GRAFLAXSSÓSA Hráefni 2 msk. majónes 1 msk. sýrður rjómi 2 msk. sætt sinnep 1 msk. dijon sinnep 1 msk. dill 1 msk. púðursykur 1 tsk. sjávarsalt
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
22 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
GÚRKUSÓSA Hráefni 2 msk. majónes 2 msk. sýrður rjómi ½ tsk. sjávarsalt ½ tsk. svartur pipar 1 tsk. hunang 1 msk. smátt saxaður kóríander 2 msk. smátt saxaðar agúrkur
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
REMOLAÐI Hráefni 2 msk. majónes 2 msk. sætt sinnep 1 msk. sýrður rjómi 1 tsk. sjávarsalt ½ laukur – smátt skorinn 10 sneiðar af súrum gúrkum – smátt saxaðar
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 23
KOKTEILSÓSA Hráefni 2 msk. majónes 1 msk. sætt sinnep 1 msk. tómatsósa ½ tsk. sjávarsalt ½ tsk. svartur pipar
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
PÍTUSÓSA Hráefni 1 msk. majónes 2 msk. sýrður rjómi 2 tsk. majoram ½ tsk. sjávarsalt ½ tsk. grófur pipar ½ tsk. timían 1 tsk. hunang ½ tsk. hvítlauksduft
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
24 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
TARTARSÓSA Hráefni 2 dl majónes 1 soðið egg – skorið 10 sneiðar af súrum gúrkum – smátt saxaðar Smávegis af sítrónusafa 1 tsk. dill Salt og pipar
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
GRASLAUKSSÓSA Hráefni 1 msk. majónes 2 msk. sýrður rjómi 1 tsk. dijon sinnep ½ tsk. hvítlauksduft ½ tsk. sjávarsalt 1 tsk. hunang 1 msk. saxaður graslaukur
Aðferð Öllum hráefnunum er hrært vel saman.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 25
Fiskréttir
26 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
FISKBOLLUR Hráefni 400 g fiskhakk með lauk 110 g hveiti 1 egg 1 dl vatn 1 tsk. grænmetiskraftur 2 tsk. sítrónupipar 2 tsk. hvítlauksduft 100 g smjör til steikingar
Aðferð Öllu hrært saman í hrærivélarskál, passa vel að hræra ekki of lengi en þá geta bollurnar orðið seigar. Bollur mótaðar og steiktar á pönnu upp úr smjöri. Borið fram með hýðisgrjónum, grænmeti og sinnepssósu.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 27
PLOKKFISKUR Hráefni 125 g kartöflur 250 g fiskur (t.d þorskur eða ýsa) 50 g laukur - saxaður 5 dl vatn 1 ½ tsk. sítrónupipar 1 ½ tsk. hvítlauksduft 1 tsk. grænmetiskraftur ½ tsk. pipar 2 dl mjólk 50 g hveiti 40 g smjör
Aðferð Kartöflurnar eru skrældar og soðnar í 20 mínútur. Eftir suðuna eru þær skornar í bita. Soðnar kartöflur, fiskur og laukur sett yfir til suðu í vatni ásamt kryddi. Látið malla í 20 mínútur við vægan hita. Þá er mjólkinni bætt út í og blöndunni leyft að malla í 10 mínútur í viðbót. Þá er hveitinu bætt saman við með sleif og hrært í þar til allt er komið vel saman. Í lokin er smjörinu bætt við og plokkfiskurinn borinn fram með rúgbrauði, smjöri og soðnum eggjum.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
28 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
ÝSA Í EGGJADEIGI Hráefni 600 g ýsubitar 2 egg 2 dl mjólk 3 tsk. sítrónupipar 1 tsk. sjávarsalt 100 g hveiti Smjör eða ólífuolía til steikingar
Aðferð Eggin pískuð ásamt mjólkinni. Kryddunum bætt út í ásamt hveitinu og hrært í þar til orðið kekkjalaust. Ýsubitunum er þá velt upp úr deiginu og steiktir á vel heitri pönnu upp úr smjöri eða ólífuolíu í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Gott er að bera fiskinn fram með soðnum kartöflum, grænmeti og graslaukssósu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 29
STEIKTUR FISKUR Í RASPI Hráefni 600 g ýsubitar 1 egg 1 tsk. grænmetiskraftur 150 g raspur + 50 g hveiti Salt og pipar Smjör eða ólífuolía til steikingar
Aðferð Eggið pískað ásamt grænmetiskraftinum. Raspnum og hveitinu er blandað saman. Ýsubitunum er svo velt upp úr eggjablöndunni og síðan upp úr raspinu og hveitinu. Steikt á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar. Borið fram með kartöflum, sítrónu, grænmeti og remolaði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
30 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
STEIKTUR FISKUR MEÐ KARRÝSÓSU Hráefni Fiskur 600 g ýsuflök 4 msk. hveiti 1 tsk. karrý 1 tsk. sítrónupipar 1 tsk. sjávarsalt Smjör til steikingar Karrýsósa 1 laukur – smátt saxaður 3 msk. smjör 1 ½ tsk. karrý 1 msk. grænmetiskraftur 3 msk. hveiti 4 dl vatn 1 dl rjómi Salt og pipar
Aðferð
Fiskur Hveitinu og kryddunum er blandað saman. Fisknum velt upp úr hveitiblöndunni og steiktur á pönnu upp úr smjöri í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Karrýsósa Laukurinn er steikur upp úr smjöri. Kryddunum blandað út í steikta laukinn. Hveitinu bætt við og vatninu þar á eftir. Látið malla í 15 mínútur. Þá er rjómanum bætt út í og látið malla í 5 mínútur til viðbótar og smakkað til með salti og pipar. Fiskurinn er borinn fram með hýðisgrjónum, salati og karrýsósu
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 31
OFNBÖKUÐ BLEIKJA Hráefni 600 g bleikjuflök, roð- og beinlaus Sítrónupipar Sjávarsalt Dill
Aðferð Bleikjuflökin krydduð með sítrónupipar, salti og dilli. Flökin bökuð í ofni við 170°C (blástur) í 12 mínútur. Borið fram með steiktum kartöflum, grænmeti og sinnepssósu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
32 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Vegan réttir Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 33
GRÆNMETISLASAGNE Hráefni Lasagne 1 kg ferskt grænmeti Paprika Sæt kartafla Laukur Blómkál Sveppir Kúrbítur 2 tsk. grænmetiskraftur 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. oreganó 400 g maukaðir tómatar 70 g tómatpúrra 5 dl vatn Fersk basilíka eftir smekk Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Lasagne blöð – eggjalaus Rifinn vegan ostur Ostasósa 4 dl vegan rjómi Rifinn vegan ostur 1 tsk. grænmetiskraftur Salt og pipar
34 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Aðferð
Las agne Grænmetið er skorið smátt og steikt í potti upp úr ólífuolíu og kryddunum bætt út í. Maukuðu tómötunum, tómatpúrrunni, vatninu og basilíkunni bætt út í, látið malla við vægan hita í 45 mínútur og kryddað til með salti og pipar. Þá er gott að fara með töfrasprota í gegnum grænmetið. Því næst eru lasagne blöð lögð í botninn á eldföstu formi, grænmetissósa sett yfir og annað lag af lasagne plötum þar ofan á. Gott er að mynda að minnsta kosti þrjú lög af hvoru. Ofan á efsta lagið fer ostasósan og rifinn ostur. Bakað í ofni við 175°C (blástur) í 35 mínútur. Ostasósa Öllum hráefnunum er blandað saman í potti og soðið upp þar til þykknar. Má einnig þykkja með maizenamjöli.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 35
OFNBÖKUÐ SELLERÍRÓT MEÐ MANGÓSÓSU Hráefni 1 sellerírót 1 rauð paprika 1 græn paprika 1 flaska mangó jalapeno sósa frá Hot Spot Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Fersk steinselja
Aðferð Sellerírótin hreinsuð og götuð með gaffli. Sett í eldfast form og steikt við 170°C (blástur) í 2 klukkustundir. Sellerírótin tekin úr ofninum, skræld, skorin í bita og sett á fat. Mangósósunni penslað yfir bitana. Paprikurnar steiktar upp úr ólífuolíu og kryddaðar með salti og pipar. Paprikunum dreift yfir sellerírótina og ferskri steinselju stráð yfir.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
36 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
FYLLTAR PAPRIKUR Hráefni 4 rauðar paprikur 1 laukur 100 g sveppir 1 græn paprika 1 kúrbítur 2 grænir aspasstönglar 200 g hýðisgrjón – soðin 1 tsk. karrý 1 tsk. grænmetiskraftur 2 dl vegan rjómi Rifinn vegan ostur Ólífuolía til steikingar
Aðferð Paprikan er skorin í tvennt, kjarnhreinsuð og sett í eldfast mót. Grænmetið er smátt saxað, steikt á pönnu og kryddað með karrý, grænmetiskrafti, salti og pipar. Rjómanum bætt saman við og látið malla í nokkrar mínútur. Ein matskeið af soðnum hýðisgrjónum er sett ofan í hvern paprikuhelming og grænmetisblöndunni bætt þar ofan á. Rifnum osti stráð yfir í lokin. Bakað við 175°C (blástur) í 35 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 37
VEGAN TORTILLUR Hráefni 4 tortillur 4 grænmetisbuff 1 rauð paprika 1 gul paprika ½ laukur 1 dl maukaðir tómatar 1 dl salsasósa Vegan sýrður rjómi Rifinn veganostur Klettasalat Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Grænmetisbuffið steikt í ofni við 170°C (blástur) í 15 mínútur. Paprikan og laukurinn steikt á pönnu upp úr ólífuolíu. Maukuðum tómötum og salsasósu bætt út á pönnuna og blandað vel saman við grænmetið. Tortillurnar eru smurðar með sýrða rjómanum og grænmetisbuffið mulið í miðju tortillunnar. Grænmetismaukið er sett ofan á buffið og rifnum osti og klettasalati dreift yfir. Tortillunum er því næst rúllað upp og þær steiktar í ofni við 170°C (blástur) í 15 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
38 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Kjötréttir
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 39
PASTA BOLOGNESE Hráefni 400 g nautahakk 1 laukur 1 paprika 2 hvítlauksrif 140 g tómatpúrra 400 g maukaðir tómatar 1 msk. kjötkraftur 2 msk. oregano 7 dl vatn Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Pasta
Aðferð Nautahakkið brúnað í potti ásamt lauknum, hvítlauknum og paprikunni. Tómatpúrru og maukuðum tómötum bætt út í. Kryddunum bætt við ásamt vatni og látið sjóða við vægan hita í 30 mínútur. Smakkað til með salti og pipar. Borið fram með soðnu pasta, hvítlauksbrauði og parmesan osti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
40 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
PASTA MEÐ SVEPPUM OG PAPRIKU Í RJÓMASÓSU Hráefni 100 g sveppir 1 paprika 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. grænmetiskraftur 3 dl vatn 2 dl rjómi Maizenamjöl Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Pasta
Aðferð Sveppirnir og paprikan skorin smátt og steikt upp úr ólífuolíu. Kryddunum bætt út í. Þá er vatninu og rjómanum bætt út í og látið sjóða við vægan hita í 15 mínútur. Kryddað til með salti og pipar og sósan þykkt með maizenamjöli. Pastað soðið og sigtað og sósunni helt yfir pastað. Borið fram með hvítlauksbrauði og parmesan osti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 41
LASAGNE Hráefni 500 g nautahakk 1 laukur 1 paprika 125 g sveppir 1 búnt fersk basilíka 1 ½ msk. hvítlauksduft 1 msk. kjötkraftur 2 msk. oregano 140 g tómatpúrra 400 g maukaðir tómatar 8 dl vatn Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Lasagne blöð Rifinn ostur
Aðferð Nautahakkið brúnað í potti ásamt grænmetinu og basilíkunni. Kryddað til. Tómatpúrru og maukuðum tómötum bætt út í ásamt vatninu. Látið malla við vægan hita í 30 mínútur. Lasagne blöð lögð í botninn á eldföstu formi og kjötsósa þar yfir og svo koll af kolli, að minnsta kosti þrjú lög af hvoru. Rifnum osti dreift yfir efsta lagið. Það getur verið gott að setja kotasælu áður en rifni osturinn er settur en það er þó ekki nauðsynlegt. Bakað við 170°C (blástur) í 30 mínútur. Borið fram með fersku salati og parmesan osti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
42 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
TORTILLU LASAGNE Hráefni 500 g nautahakk 1 laukur 1 paprika 1 msk. hvítlauksduft 1 msk. nautakraftur 140 g tómatpúrra 400 g maukaðir tómatar 280 g salsasósa 8 dl vatn Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Cheddar ostasósa Tortillur Rifinn ostur
Aðferð Nautahakkið, laukurinn og paprikan steikt saman í potti upp úr ólífuolíu. Kryddunum bætt við. Tómatpúrru, maukuðum tómötum, salsasósu og vatni bætt út í. Látið sjóða við vægan hita í 25 mínútur. Smakkað til með salti og pipar. Tortillur smurðar með ostasósu lagðar í botninn á eldföstu formi. Hakkblandan sett þar yfir ásamt rifnum osti. Tortillur settar þar ofan á og svo koll af kolli þar til myndast hafa að minnsta kosti þrjú lög af hvoru. Rifnum osti dreift yfir í lokin. Bakað við 170°C (blástur) í 25 mínútur. Borið fram með sýrðum rjóma og fersku salati.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 43
BURRITOS Hráefni 250 g nautahakk ½ laukur – smátt skorinn ½ paprika – smátt skorin 100 g rifinn ostur 1 dl maukaðir tómatar 2 dl salsasósa Salt og pipar Ólífuolía til steikingar Cheddar ostasósa 6 tortillur
Aðferð Nautahakkið steikt á pönnu og kryddað með salti og pipar. Nautahakkið er sett í skál og lauknum, paprikunni og rifna ostinum bætt út í ásamt maukuðum tómötum og salsasósu. Öllu hrært vel saman. Tortillukökurnar smurðar með ostasósu, hakkblandan sett í miðjuna og rúllað upp. Steikt í ofni við 170°C (blástur) í 20 mínútur. Borið fram með skornu grænmeti og graslaukssósu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
44 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
KJÚKLINGALÆRI – TIKKA MASALA Hráefni 800 g úrbeinuð kjúklingalæri Kjúklingakrydd Tikka masala sósa
Aðferð Kjúklingalærin eru krydduð með kjúklingakryddi og velt upp úr tikka masala sósu. Steikt í ofni við 175°C (blástur) í 35 mínútur. Borið fram með naan brauði og gúrkusósu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 45
KJÚKLINGASALAT Hráefni Salat 4 kjúklingabringur Kjúklingakrydd Salatblanda 1 askja kirsuberjatómatar 1 rauðlaukur 1 mangó 1 askja jarðarber Bláber eftir smekk Brauðteningar eftir smekk Dressing 2 dl sinnepssósa (sjá uppskrift í bók) 1 dl appelsínusafi
Aðferð
Salat Kjúklingabringurnar steiktar í ofni við 170°C (blástur) í 25 mínútur. Bringurnar látnar kólna og skornar í bita. Salatið rifið niður og grænmetið og ávextirnir skornir í bita. Öllu blandað saman. Brauðteningar Hvítt skorpuskorið brauð skorið í litla teninga og steikt á pönnu upp úr smjöri. Kryddað með sjávarsalti og hvítlauksdufti. Dressing Sinnepssósunni og appelsínusafanum blandað vel saman.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
46 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
KALT PASTA MEÐ KJÚKLING Hráefni 400 g kjúklingabringur 400 g soðið pasta ½ dl ólífuolía 1 dl sætt sinnep 1 tsk. kjúklingakraftur 1 rauð paprika Klettasalat Vínber 4 soðin egg 6 kirsuberjatómatar
Aðferð Kjúklingabringurnar steiktar í ofni við 170°C (blástur) í 25 mínútur, leyft að kólna og skornar í bita. Sæta sinnepinu, ólífuolíunni og kjúklingakraftinum hrært saman og blandað út í soðna pastað ásamt öllu grænmetinu og kjúklingnum. Eggin skorin í báta og dreift yfir salatið. Borið fram með heimabökuðu brauði.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 47
TACO Hráefni 400 g nautahakk 1 laukur 1 paprika 1 msk. grillkrydd 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. kjötkraftur 4 dl vatn 230 g tacosósa 140 g tómatpúrra 2 msk. súrsæt sósa Ólífuolía til steikingar Tacoskeljar
Aðferð Nautahakkið, laukurinn og paprikan brúnað saman í potti og kryddað. Vatninu, tacosósunni, tómatpúrrunni og súrsætu sósunni bætt út í. Látið malla við vægan hita í 30 mínútur. Borið fram með tacoskeljum, rifnum osti, maís og fersku salati.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
48 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
HAKKABOLLUR Hráefni 2 sneiðar heilhveitibrauð 1 dl mjólk 400 g nautahakk 1 egg 1 laukur – smátt saxaður ½ tsk. basilíka ½ tsk. sjávarsalt ½ tsk. svartur pipar ½ tsk. oreganó ½ tsk. hvítlauksduft 2 msk. ólífuolía
Aðferð Heilhveitibrauðið rifið í bita og lagt í mjólkina. Hakkinu bætt við ásamt egginu, lauknum og kryddunum. Öllu blandað vel saman. Bollur mótaðar og steiktar á pönnu upp úr ólífuolíu þar til þær eru eldaðar í gegn.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 49
LAMB Í KARRÝ Hráefni 600 g lambagúllas 1 laukur 1 paprika 1 gulrót 1 msk. karrý 1 msk. kjötkraftur 5 dl vatn 1 dl rjómi Maizenamjöl Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Lambið brúnað í potti upp úr ólífuolíu ásamt grænmetinu og karrýinu. Vatninu hellt yfir og kjötkraftinum bætt út í. Látið sjóða í 40 mínútur. Þá er rjómanum bætt út í og þykkt með maizenamjöli. Smakkað til með salti og pipar. Borið fram með hrísgrjónum og fersku grænmeti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
50 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
STROGANOFF Hráefni 800 g nautastrimlar 200 g sveppir 1 laukur 1 paprika 3 msk. tómatpúrra 2 tsk. paprikuduft 1 msk. kjötkraftur 6 dl vatn 2 dl rjómi 50 g brætt smjör + 50 g hveiti Ólífuolía til steikingar
Aðferð Nautastrimlar steiktir í potti ásamt grænmetinu og paprikuduftinu. Vatni hellt yfir ásamt kjötkrafti. Látið sjóða við vægan hita í 50 mínútur eða þar til kjötið er orðið meyrt. Þá er rjómanum bætt út í og smjörbolla búin til úr smjöri og hveiti. Smjörbollan er notuð til að þykkja blönduna. Borið fram með kartöflumús og grænmeti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 51
KALKÚNABRINGUR MEÐ SALVÍUSÓSU Hráefni Kalkúnabringur 800 g kalkúnabringur 1 msk. hunangs dijon sinnep 1 msk. púðursykur Rósmarín Salt og pipar Salvíusósa 125 g sveppir 50 g smjör 6 dl vatn 1 msk. kjúklingakraftur ½ tsk. salvía 2 dl kalkúnasoð 3 dl rjómi 50 g brætt smjör + 50 g hveiti 1 msk. títuberjasulta Salt og pipar
52 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Aðferð
Kalkúnabringur Kalkúnabringunum er lokað á pönnu og kryddaðar með salti, pipar og rósmarín. Því næst eru þær settar í ofnskúffu. Dijon sinnepi og púðursykri er blandað saman og smurt á kalkúnabringurnar. Sett í 170°C (blástur) heitan ofn og kjarnhitamæli stungið í bringurnar. Eftir 15 mínútur í ofni eru 2 dl af vatni settir í ofnskúffuna. Þegar kjarnhiti hefur náð 62°C eru bringurnar teknar úr ofninum og settar á fat. Álpappír settur yfir fatið og bringurnar látnar bíða í 15 mínútur. Salvíusósa Sveppir steiktir upp úr smjöri og vatni bætt við ásamt kjúklingakrafti og salvíu. Sósan látin sjóða í 15 mínútur. Soði af kalkúnanum bætt við sósuna ásamt rjómanum. Sósan látin malla áfram í 10 mínútur. Þá er hún þykkt með smjörbollu og títuberjasultan sett út í. Sósan er svo smökkuð til með salti og pipar. Kalkúnabringurnar eru bornar fram með brúnuðum kartöflum og eplasalati.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 53
Brauð
54 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
SKÓLABRAUÐ Hráefni 4 dl volgt vatn 12 g þurrger 400 g hveiti 300 g heilhveiti 18 g salt 1 msk. púðursykur
Aðferð Vatn og ger sett í hrærivélarskál og látið bíða í 10 mínútur. Þá er þurrefnunum öllum blandað saman við og hnoðað í 5 mínútur. Deigið fært yfir í aðra skál og viskastykki sett yfir. Látið hefast í 30 mínútur. Bökunarpappír settur á ofnskúffu og brauðið mótað. Sett í 180°C (blástur) heitan ofn í 32 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 55
HVÍTLAUKSBRAUÐ Hráefni 12 g ger 4 dl volgt vatn 700 g hveiti 15 g salt 15 g hvítlauksduft Hvítlauksolía Fersk steinselja Rifinn parmesanostur
Aðferð Gerið sett í volgt vatn og látið bíða í 10 mínútur. Þá er þurrefnunum blandað saman við og hnoðað í 5 mínútur. Deigið látið hefast í 30 mínútur. Brauðið mótað og sett á pappírsklædda ofnskúffu. Brauðið smurt með hvítlauksolíu og fersk steinselja og rifnum parmesanosti stráð yfir brauðið. Sett í 180°C (blástur) heitan ofn og bakað í 32 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
56 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
BRAUÐBOLLUR Hráefni 8 g ger 50 g brætt smjör 2 dl volg mjólk 1 tsk. salt 1 tsk. hunang 450 g hveiti 1 egg Sesamfræ
Aðferð Gerinu, smjörinu og mjólkinni blandað saman í hrærivélarskál. Látið bíða í 10 mínútur. Þá er saltinu, hunanginu og hveitinu bætt út í. Hnoðað vel saman í 5 mínútur. Látið hefast í klukkustund. Þá eru bollurnar mótaðar og settar á pappírsklædda ofnskúffu. Bollurnar eru penslaðar með eggi og sesamfræjum stráð yfir. Bollurnar eru bakaðar í 12 mínútur við 190°C (blástur).
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 57
TÓMATBOLLUR Hráefni 8 g ger 50 g brætt smjör 2 dl volg mjólk 450 g hveiti 1 tsk. salt 2 tsk. oreganó 4 msk. pizzasósa Ólífuolía
Aðferð Gerinu, smjörinu og mjólkinni blandað saman í hrærivélarskál. Látið bíða í 10 mínútur. Þá er hveitinu, saltinu, oreganó og pizzasósunni bætt við. Hnoðað saman í 5 mínútur og látið hefast í klukkustund. Því næst eru bollurnar mótaðar og settar á pappírsklædda ofnskúffu. Bollurnar eru penslaðar með ólífuolíu. Bollurnar eru bakaðar í 12 mínútur við 190°C (blástur).
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
NAAN BRAUÐ
58 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Hráefni 25 g ger 2 msk. sykur 2 dl volg mjólk 550 g hveiti 1 tsk. sjávarsalt 1 ½ dl Ab-mjólk 3 msk. ólífuolía Brætt smjör Fersk steinselja Hvítlauksduft Sjávarsalt
Aðferð Gerinu, sykrinum og mjólkinni er blandað saman og látið bíða í 5 mínútur. Hveitinu, saltinu, Ab-mjólkinni og ólífuolíunni bætt við. Hnoðað saman í 5 mínútur. Deigið fært í aðra skál og látið hefast í klukkustund. Brauðin eru mótuð með því að búa til litlar kúlur, um það bil 40 g hver. Kúlurnar eru síðan flattar út. Brauðin eru götuð með gaffli, pensluð með bræddu smjöri og steinselju, hvítlauksdufti og salti stráð yfir. Brauðin eru bökuð við 180°C (blástur) í 8 mínútur á pappírsklæddri ofnskúffu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
PIZZASNÚÐAR
Hráefni 2 ½ tsk. ger
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 59
1 ½ dl volgt vatn 4 dl hveiti 1 msk. ólífuolía 1 tsk. sjávarsalt Pizzasósa Rifinn ostur
Aðferð Gerið sett í volgt vatn og látið bíða í 10 mínútur. Þá er hveitinu, olíunni og saltinu bætt við. Hnoðað saman í 5 mínútur og látið hefast í klukkustund. Deigið er þá flatt út með kökukefli, penslað með pizzasósu og rifnum osti stráð yfir. Deiginu er síðan rúllað upp og skorið í bita og fært á pappírsklædda ofnskúffu. Snúðarnir eru bakaðir við 190°C (blástur) í 12 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
60 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
PÍTUBRAUÐ Hráefni 12 g ger 2 tsk. sjávarsalt 1 msk. sykur 3 dl volgt vatn 500 g hveiti ½ tsk majoram 2 msk. ólífuolía
Aðferð Gerið, saltið og sykurinn er sett út í vatnið og látið bíða í 10 mínútur. Hveitinu, kryddinu og ólífuolíunni bætt við og hnoðað í 8 mínútur. Látið hefast í klukkustund. Deiginu er síðan skipt upp í 8 hluta og flatt örlítið út. Bakað við 200°C (blástur) í 8 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 61
FOCACCIA BRAUÐ Hráefni 2 tsk. ger 1 msk. sjávarsalt 3 dl volgt vatn 1 msk. hunang 500 g hveiti 1 msk. ólífuolía Ólífur – smátt skornar Kirsuberjatómatar – smátt skornir Rósmarín Ólífuolía Sjávarsalt Parmesan ostur
Aðferð Gerið og saltið sett út í volgt vatn og hunanginu bætt við. Látið bíða í 10 mínútur. Þá er hveitinu og ólífuolíunni bætt við. Hnoðað í 5 mínútur og látið hefast í klukkustund. Deigið er flatt út og fært yfir í pappírsklædda ofnskúffu. Fingurnir eru notaðir til að mynda holur í deigið. Tómötum, ólífum og rósmarín stráð yfir deigið. Bakað við 200°C (blástur) í 20 mínútur. Þegar brauðið er tilbúið er það penslað með ólífuolíu og kryddað með sjávarsalti og parmesan osti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
62 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
BANANABRAUÐ Hráefni 2 egg 2 þroskaðir bananar – stappaðir 60 g smjör 1 dl sykur 350 g hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. vanilludropar 1 ½ dl mjólk
Aðferð Smjörið brætt og látið kólna. Eggin og sykurinn þeytt saman. Smjörinu bætt út í og blandað við eggjablönduna. Restinni af hráefnunum bætt út í og hrært. Deigið fært í ferkantað brauðform og bakað við 170°C (blástur) í 40 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 63
DÖÐLUBRAUÐ MEÐ BÖNUNUM Hráefni 200 g döðlur – skornar smátt 2 ½ dl heitt vatn 2 stappaðir bananar 300 g hveiti 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. sjávarsalt 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. kanill 2 msk. ólífuolía
Aðferð Döðlurnar eru settar í hrærivélarskál og heitu vatni hellt yfir. Leyft að liggja í 10 mínútur. Restinni af hráefninu er bætt út í og öllu hnoðað saman í nokkrar mínútur. Deigið fært yfir í ferkantað brauðform og bakað við 170°C (blástur) í 40 mínútur.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
64 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Bakkelsi
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 65
HJALLA KÓKOSKÚLUR Hráefni 2 dl flórsykur 4 dl haframjöl 6 msk kakó 100 g mjúkt smjör 1 tsk. vanilludropar ½ tsk sjávarsalt 6 dl kókosmjöl
Aðferð Flórsykri, haframjöli, kakói, smjöri, vanilludropum og salti hrært vel saman. Litlar kúlur mótaðar og þeim velt upp úr kókosmjöli. Ef kúlurnar haldast illa saman getur verið gott að bæta örlitlu vatni við deigið. Kúlurnar kældar vel áður en þær eru bornar fram.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
66 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
SKÚFFUKAKA Hráefni Kaka 100 g smjör – brætt 200 g sykur 2 egg 200 g hveiti ½ tsk. salt ½ tsk. lyftiduft 3 msk. kakó 1 bolli mjólk 1 tsk. vanilludropar Krem 100 g mjúkt smjör 1 egg 1 tsk. vanilludropar 150 g flórsykur 1 ½ msk. kakó
Aðferð
Kaka: Sykri og smjöri blandað saman og einu og einu eggi bætt við. Þeytt vel saman þar til blandan er létt og ljós. Þurrefnunum bætt við ásamt mjólkinni og vanilludropunum og hrært varlega saman. Bakað við 170°C (blástur) í 15 mínútur. Kakan tekin úr ofninum og leyft að kólna. Á meðan er kremið lagað. Krem: Smjörið þeytt ásamt eggi og vanilludropum. Flórsykri og kakói bætt við og þeytt þar til kekkjalaust. Kremið er sett á kökuna og kakan borin fram. Gott er að dreifa kókosmjöli yfir í lokin en það er þó ekki nauðsynlegt.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 67
RJÓMAÍS - GRUNNUPPSKRIFT Hráefni 3 dl rjómi 3 egg 100 g flórsykur 100 g súkkulaði – smátt skorið
Aðferð Fyrst er rjóminn léttþeyttur og settur í aðra skál. Því næst er hrærivélarskálin þrifin vel og eggin og flórsykurinn þeytt saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Þetta skref gæti tekið um það bil 10 mínútur. Rjómanum er þá blandað varlega saman við eggjablönduna með sleikju. Saxaða súkkulaðinu er bætt varlega út í í lokin. Ísblandan er sett í skál og fryst, helst yfir nótt. Athugið að það er hægt að nota allskyns útgáfur af súkkulaði eða öðru bragðefni, þar á meðal ávexti og ber.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
68 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
EPLAPÆ Hráefni 100 g lint smjör 75 g sykur 50 g kókosmjöl 50 g haframjöl 100 g hveiti Smjörklípa 3 gul epli Kanill Mjólkursúkkulaði
Aðferð Eldfast form er smurt með smá smjörklípu, eplin skorin í bita og sett í formið. Kanil stráð yfir eplin. Smjöri, sykri, kókosmjöli, haframjöli og hveiti er blandað saman í höndunum og blandan sett yfir eplin. Mjólkursúkkulaði er skorið í litla bita og stráð yfir deigið. Bakað við 170°C (blástur) í 35 mínútur.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 69
KANILSNÚÐAR Hráefni Deig 70 g smjör – brætt 2 ½ dl volg mjólk 10 g ger 400 g hveiti 50 g sykur 1 tsk. vanilludropar Fylling Smjör – brætt Kanilsykur
Aðferð Smjöri og mjólk er blandað saman og gerinu bætt út í. Látið bíða í 5 mínútur. Þá er hveitinu og sykrinum bætt út í ásamt vanilludropum og hnoðað í 5 mínútur. Deigið flatt út. Bræddu smjöri er penslað á deigið og kanilsykrinum stráð yfir. Deiginu er rúllað upp og skorið í bita. Bitarnir færðir yfir pappírsklædda ofnplötu og bakað við 180°C (blástur) í 12 mínútur.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
70 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Uppáhalds uppskriftir Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 71
FRÖNSK LAUKSÚPA Hráefni 50 g smjör 1 dl ólífuolía 600 g laukur 6 hvítlauksrif – smátt söxuð 1 L vatn 1 dl rauðvín 2 msk. kjötkraftur 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. timían 2 lárviðarlauf Sjávarsalt Svartur pipar 4 brauðsneiðar Rifinn ostur Fersk steinselja
Aðferð Laukurinn er skorinn frekar gróft og léttsteiktur í potti upp úr smjöri og ólífuolíu ásamt hvítlauknum. Vatnið, rauðvínið og kryddið sett saman við og látið sjóða við vægan hita í klukkustund. Brauðið er skorpuskorið, sett á pappírsklædda ofnskúffu og rifnum osti stráð yfir ásamt ferskri steinselju. Bakað við 200°C (blástur) í 5 mínútur. Súpunni er ausið í skálar og brauðsneið lögð ofan á.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
72 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
HUMARSÚPA Hráefni 1 kg humar 1 laukur 1 paprika 1 gulrót 4 hvítlauksrif 1 grein fersk steinselja 2 tsk. paprikuduft 1 tsk. hvítlauksduft 2 msk. grænmetiskraftur 100 g tómatpúrra 1 L vatn 50 g brætt smjör + 50 g hveiti ½ L rjómi 1 dl hvítvín 2 msk. koníak ½ tsk dill Salt og pipar Ólífuolía til steikingar
Aðferð Humarinn er pillaður og garndreginn. Skeljarnar brúnaðar upp úr ólífuolíu ásamt grænmetinu. Kryddunum bætt við í pottinn ásamt tómatpúrru og látið malla í smástund. Vatninu bætt við og þá er súpan soðin í að minnsta kosti klukkustund við vægan hita. Því næst er súpan sigtuð og humarskeljarnar og grænmetið tekið frá. Súpan er þá þykkt með smjörbollunni og rjómanum, hvítvíninu og koníakinu bætt við. Leyft að sjóða áfram í 10 mínútur. Þá er dillinu bætt út og súpan smökkuð til með salti og pipar. Rétt áður en súpan er borin fram er humarkjötinu bætt við. Súpan borin fram með nýbökuðu brauði.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 73
STEIKTUR FISKUR MEÐ RÆKJUM, BÖNUNUM, VÍNBERJUM OG GRÁÐOSTASÓSA Hráefni 600 g ýsuflök – skorin í bita 200 g hveiti 100 g smjör 2 dl mysa 2 dl rjómi 50 g gráðostur 1 tsk aromat 10 vínber – steinlaus 1 banani 100 g rækjur Salt og pipar
Aðferð Fisknum er velt upp úr hveiti og steiktur upp úr smjöri á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Fiskurinn er tekinn af pönnunni og lagður á fat. Mysan er sett á pönnuna ásamt rjómanum, gráðostinum og aromatinu. Suðunni leyft að koma upp og þegar sósan byrjar að þykkna er vínberjunum, banananum og rækjunum bætt út í. Sósan smökkuð til með salti og pipar og hellt yfir fiskinn. Borið fram með hrísgrjónum og fersku salati.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
74 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
ÝSUGRATÍN Hráefni 600 g ýsa 7 dl vatn 2 dl mysa 5 egg 4 dl hveiti 200 g smjör 1 msk. grænmetiskraftur Rifinn ostur
Aðferð Fiskurinn er soðinn í vatninu og mysunni í 10 mínútur. Þegar fiskurinn er klár er hann settur til hliðar og leyft að kólna. Á meðan er smjöri bætt út í soðið og hrært í á meðan það bráðnar. Hveiti er sáldrað út í og hrært stöðugt í blöndunni á meðan eða þar til deigið byrjar að losna frá pottinum. Því næst er deigið fært yfir í hrærivélarskál og einni og einni eggjarauðu bætt við ásamt grænmetiskrafti. Fiskurinn er þá settur út í deigið og hrært saman við. Að lokum er stífþeyttum eggjahvítum bætt varlega út í með sleif. Blandan sett í eldfast form og rifnum osti dreift yfir. Bakað við 200°C (blástur) í 30 mínútur. Borið fram með hrísgrjónum, fersku salati og sítrónu.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 75
FYLLTAR KJÚKLINGABRINGUR Hráefni 4 kjúklingabringur Grillkrydd 100 g sveppir 100 g rjómaostur 100 g grænt pestó 4 sneiðar parmaskinka
Aðferð Sveppum, rjómaosti og grænu pestói hrært saman. Vasi skorinn í kjúklingabringurnar og þær kryddaðar með grillkryddi. Fyllingin sett í vasann og parmasneiðum vafið utan um kjúklingabringurnar. Steikt í ofni við 175°C (blástur) í 25 mínútur. Gott að bera kjúklinginn fram með soðnu pasta, hvítlauksbrauði og gúrkusósu.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
76 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
KJÚKLINGUR MEÐ PASTA Í RJÓMASÓSU Hráefni 600 g kjúklingalundir 150 g sveppir 4 hvítlauksrif – smátt söxuð Safi úr hálfri sítrónu Ólífuolía til steikingar 3 dl rjómi 10 stk ólífur Fersk steinselja Salt og pipar Tagliatelle pasta - soðið
Aðferð Pastað er soðið eftir leiðbeiningum og fært í eldfast form. Kjúklingalundirnar steiktar upp úr ólífuolíu í um það bil 6 mínútur á hvorri hlið. Þegar kjúklingnum er snúið á hina hliðina fara sveppirnir út á pönnuna. Þegar kjúklingurinn er fullsteiktur er rjómanum bætt út í ásamt sítrónusafanum, ólífunum og steinseljunni. Látið malla saman í nokkrar mínútur. Kryddað til með salti og pipar og hellt yfir tagliatelle pasta. Borið fram með hvítlauksbrauði og parmesan osti.
Erfiði: 2 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 77
INNBÖKUÐ NAUTALUND Hráefni 1 nautalund – um það bil 1 ½ kg 200 g smjör 250 g sveppir 1 poki fersk steinselja 1 plata smjördeig 1 egg Salt og pipar
Aðferð Nautalundin er hreinsuð og sinin fjarlægð. Lundin brúnuð á pönnu upp úr helmingnum af smjörinu. Krydduð með salti og pipar og látin kólna. Sveppirnir steiktir upp úr restinni af smjörinu, kryddaðir með salti og pipar og saxaðri steinselju bætt saman við. Smjördeigið flatt út á bökunarpappír og sveppablandan lögð á mitt deigið. Þá er nautalundin lögð ofan á sveppablönduna og brúnir smjördeigsins penslaðar með þeyttu eggi. Nautalundinni er því næst pakkað inn í deigið og endar smjördeigsins snyrtir til. Endunum er lokað vel með gaffli. Áður en lundin er sett í ofninn er deigið penslað með restinni af egginu og gatað að ofan með gaffli. Steikt í ofni við 200°C (blástur) og kjarnhitamæli stungið í miðju lundarinnar. Þegar kjarnhitamælirinn sýnir 54°C er lundin tekin út og látin bíða í 10 mínútur áður en hún er skorin. Hún ætti þá að vera medium-rare.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
78 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
ANDABRINGUR MEÐ APPELSÍNUSÓSU Hráefni Andabringur 3 andabringur – um það bil 1 kg Salt og pipar Appelsínusósa 1 dl vatn + 4 dl vatn 3 msk. sykur 2 dl ferskur appelsínusafi 1 msk. andakraftur 1 dl hvítvín 1 ½ dl rjómi Maizenamjöl 30 g smjör
Aðferð
Andabringur Skorið er þvert í fituna á andabringunum. Bringurnar eru brúnaðar á pönnu, fyrst á fituhliðinni og því næst á kjöthliðinni í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Andabringurnar er færðar yfir í ofnskúffu og steiktar í 12 mínútur við 180°C (blástur). Þegar bringurnar eru tilbúnar eru þær teknar út og leyft að standa í 10 mínútur áður en þær eru skornar. Appelsínusósa Sykurinn er soðinn í 1 dl af vatni þar til hann er farinn að brúnast. Þá er 4 dl af vatni bætt út í ásamt appelsínusafanum og andakraftinum. Látið sjóða í 30 mínútur. Því næst er hvítvíninu bætt út í ásamt rjómanum og látið sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Sósan er þá þykkt með maizenamjöli. Í lokin er smjörinu bætt út í.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 79
GRÓUTERTA Hráefni Botnar 4 eggjahvítur 200 g sykur ½ tsk. lyftiduft Fylling 400 ml rjómi Vínber Jarðarber Krem 100 g suðusúkkulaði 2 eggjarauður Smá sletta af óþeyttum rjóma
Aðferð
Botnar Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykrinu bætt út í smátt og smátt ásamt lyftiduftinu. Blandan stífþeytt. Botnarnir bakaðir í tveimur smurðum hringformum við 120°C (blástur) í um það bil klukkustund. Fylling Rjóminn er þeyttur og berin skorin í litla bita. Berjunum blandað varlega saman við rjómann og fyllingin sett á milli botnanna. Krem Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og eggjarauðunum og rjómanum hrært vel saman við. Kremið sett ofan á kökuna.
Erfiði: 3 Aðstoð fullorðinna: Já
80 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
HAFRAMJÖLSTERTA Hráefni 2 bollar hveiti 2 bollar haframjöl 300 g mjúkt smjör 1 egg 1 tsk. matarsódi 1 bolli sykur Rabbabarasulta Glassúr
Aðferð Smjöri, eggi og sykri hrært vel saman og öðrum hráefnum bætt við. Deigið er sett í tvö smurð hringform og bakað við 200°C í 15-20 mínútur. Botnarnir kældir vel, sulta sett á milli botnanna og glassúr sett á toppinn.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 81
ÁVAXTASALAT MEÐ ÞEYTTUM RJÓMA OG SÚKKULAÐI Hráefni Jarðarber Bláber Bananar Ananas Perur Þeyttur rjómi Rjómasúkkulaði
Aðferð Ávextirnir skornir í bita. Rjóminn þeyttur og rjómasúkkulaðið saxað.
Erfiði: 1 Aðstoð fullorðinna: Já
82 Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur
Hvað er í matinn? Skólamaturinn minn - Sigurjón kokkur 83
Hjallamiðstöðin, Hæðasmára 6, 201 Kópavogur hjallastefnan@hjalli.is - +354 555 7020