3 Publications
0 Followers
Eirberg
Eirberg
Stuðlaberg heilbrigðistækni
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er systurfyrirtæki Eirbergs sem áður var heilbrigðissvið Eirbergs. Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er framsækið innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem byggir á traustum faglegum grunni og áratuga reynslu. Starfsfólk Stuðlabergs hefur víðtæka þekkingu og menntun á heilbrigðissviði. Meðal starfsmanna eru þroska- og iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar og heilbrigðismenntað starfsfólk með áralanga starfsreynslu. Stuðlaberg selur hjálpartæki, búnað og rekstrarvörur fyrir sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir og leggur áherslu á faglega þjónustu til heilbrigðisstofnanna, fagfólks og skjólstæðinga þeirra. Við bjóðum vörur sem auðvelda daglegt líf, styður fólk til sjálfsbjargar og eykur öryggi. Stuðlaberg er samstarfsaðili Sjúkratrygginga Íslands, er aðili að fjölmörgum rammasamningum og er í samstarfi við heilbrigðisstofnanir um land allt.